Tíminn - 27.11.1918, Qupperneq 2

Tíminn - 27.11.1918, Qupperneq 2
234 TIMINJN var þegar brugðið við og skip sent austur með vistir og tunnur undir saltkjöt. t*ótt sú ferð hafi kostað milli 20 og 30 þúsund krónur, en það verðmæti í vörum sem flutt var og þangað og þaðan flyzt — saltkjötið — sé miklu minna virði, þá dettur engum lif- andi manni í hug að finna að þessari ráðstötun. Þvert á móti. Þetta var röggsamlega og vel gert. Þegar um það er að ræða, að bjarga úr neyð, er ekki horft í slíkt. En hér liggur margfalt meira við. En nú er ekki brugðið við með neinni rögg. »Misvitur er Njálk. Þessi breytni heilbrigðisstjórnar- innar, að vilja endilega halda framkvæmdunum beint undir handarjaðrinum á sér og láta þær fara sér úr hendi með slíku for- sjárleysi og seinlæti — sem eðli- legt er að vissu leyti vegna margra annara starfa sem á henrii hvíla — er alveg óskiljanleg og alveg óafsakanleg. Má geta þess í þessu sambandi að sá af ráðherrunum semheimaeru, sem kunnugastur er högum manna í sveitum og veit því bezt hver hætta hér lá fyrir dyrum, kvað ekki hafa fengið að koma neinum ráðum við, enda vildi hann stofna til miklu röggsamlegri aðgerða en orðnar eru og gera það miklu fyr. Fregnirnar berast alvarlegri með degi hverjum um ástandið í sveit- unum. Og veikin er komin um hálft ísland. Meir en þrjár vikur eru liðnar síðan veikin magnaðist, en nægi- lega öruggar ráðstafanir eru ekki enn gerðar af hálfu heilbrigðis- ráðherra. Hversu mörg mannslíf eiga að týnast til þess að sannfæra heil brigðisstjórnina um að hún verð- ur að fá ráðstafanirnar öðrum i hendur, þeim sem geta gefið sig alla við þeim og með fullri rögg. Sterling hefir nú legið hér í þrjár vikur og ekki getað fengið afgreiðslu. Nú fer að líða að þvi að skipið geti siglt þeirra hluta vegna. Sagt er að á annað hundr- að farþega bíði hér eftir fari með skipinu. Er nokkurt vit i því að sleppa skipinu með farþegum í hringferð kringum landið? Mikil óþægindi geta orðið að því fyrir einstaka mann að fá ekki far að sinni. En hvað vega þau óþægindi á móti hinu, ef veikin berst á Austurland og Norð- urland og fær að fara þar drep- andi um bygðirnar. Einn læknir er t. d. á öllu Fljótsdalshéraði. Pað á að banna það að nokkur maður fái far með Sterling iil þeirra hafna sem ekki eru sýktar af drep- sóttinni. En til þess að skipið geti þó farið ferðina, œtti það að taka með sér verkamenn héðan úr bœnum, sem önnuðust alla uppskipun og útskip- un vara, þannig að menn af skip- inu þgrftu ekki að hafa nein mök við menn í landi. — Landpóstar eiga að fara snemma í næsta mánuði. 1 sambandi við ferðir þeirra er bráðnauðsynlegt að gera alvarlegar ráðstafanir. Pá verður að vera komin skýr og glögg aðgreining á sýktum hér- öðum og þeim sem á að verja og verðir á mörkum. Og þar sem póstur kemur á þau mörk verða að verða mannaskifti við póstinn. Eftir því sem útlendir læknar segja ætti að mega ganga svo frá um póstsendingar að veikin berist ekki með þeim. — Fleiri einstakra atriða verður hér ekki getið að sinni. En bygðirnar ósýk'tu eiga þá kröfu á hendur heilbrigðisstjórn- inni að hún geri þær ráðstafanir sem duga til varnar. Og þau héröð sem sýkt eru eigi síður um bjargir. Og hið óbœtanlega tjón sem orðið er talar skýrum orðum, að aldrei verður ofmikið gert um að verjast. Eina hœttan er að gera of litið. Grasbresturinn, Það munu margir hafa álitið, að tún í góðri rækt mundi ekki geta brugðist eins stórkostlega eins og raun varð á í sumar. Af öllu landinu er að heyra sömu söguna, túnin kalin og töðubrest mikinn. Beztu túnin munu ekki hafa gefið meira en 2/3 af venjulegri uppskeru, önnur Vz, nokkur a/3 og jafnvel er talað um nokkur tún, sem alls ekki urðu slegin á sumrinu. Þegar svo þar við bætast miklar skemdir á útengi, einkum harðvelli, er voðinn sýnilegur og stórtjónið sem af því hlýst. Hvað mun valdið hafa þessum miklu skemdum? Sumir halda að vetrarfrostin mildu munu valdið hafa. Aðrir, og þar á meðal eg, álíta að vorhretið hafi valdið. í marz kom góður kafli, þiðnaði jörð talsvert, og mátli jafnvel sjá lit á túni. Sáust þá engar skemdir. En um páskaleytið gerði snögglega norðanbál, með 19 stiga frosti á bera, blauta og gljúpa jörðina. Efsta skánin lyftist við frosíið (vatn eykur rúinmál sitt um Vio við að frjósa) og tók með sér rótarhálsinn, en fínni rótargrein- arnar, sogræturnar, sátu fastar í vetrarklakanum. Rótin hlaut því að slitna í sundur, en þá var líka úti um varanlegt líf plöntunnar. Þessa skoðun mína dreg eg beint af því, að viða í vor í »kal- skellunum« sá eg ræturnar sundur slitnar við athugun, og útlent sáð- gresi í nýlegum sléttum, sem ná- lega gersamlega hvarf, lá víða laus! ofan á sem flekkur væri. Eins og allir muna komu frostin óvenju snemma í fyrra haust. Tún voru þá víða nýslegin í annað sinn, og víða var enginn áburður kominn á þau þeim til skjóls. Það er því mjög hætt við því, að plönt- urnar hafi verið illa undir veturinn búnar, vantað vetrarforðann og því illa þolað áfellinn. \ Það er ekki tóm lilviljun, að beztu ræktar túnin eru verst farin. Yngri slétturnar lakari en þær sem meir eru signar. Eða, því lausari og blautari sem jörðin var þegar hretið skall á, því meira hefir frostlosið orðið og skemd- irnar. Yið þessu er nú ekki gott að gera, ef rétt er ályktað hjá mér. En ýmislegt má varast, sem sýni- lega skemdi túnin á þessu vori og vetri. T. d. öll umferð manna og skepna, jafnvel inátti sjá slóðina eftir vagna eða $leða, þó sjaldan væri farið. Enn fremnr þóttist eg sjá greini- legar skemdir hér á túnum, sem eg var nýbúinn að herfa rétt fýrir hretið. Sáust síðar um vorið svart- ar rispurnar eftir gaddavírsslóðann á túninu. Álít eg því varasamt að slóðadraga yfir rótina mjög snemma, nema þegar vel vorar, að koma áburðinum ofan í rótina mað vorrakanum. 1 fyrravor (1917) var foraFáburði ekið á nokkurn hluta túnsins. Síðasta daginn var kominn norðan kuldastormur og jörðin þur. Enda skemdist túnið svo, að þvagrákirn- ar sáust lengi fram eftir vori líkt og kalskellur. En í sláttarbyrjun var þó þarna komið kafgras, sem einnig skar úr i eftirslætti. liingjar ófiarfjólanna. III. Yilhjálmur II keisari. Um engan þjóðhöfðingja Norð- úrálfu, á síðari tímum, hafa verið jafnt skiftar skiftar skoðanir og um Vilhjálm keisara. Sumir telja hann einn hinn mesta mann þessa heims, en aðrir skoða hann, sem hið mesta þrælmenni. Hvorugt er satt. Vilhjálmur er vissulega eng- inn stjórnvitringur, en hann er hins vegar góðum gáfum gæddur og ákaflega fjölhæfur og fjölment- aður. ;— Meðal annars hefir hann fengist við skáldskap, málaralist, hljóðfæraslátt og lagasmíði. Hann er einkennilega mælskur og mjög orðheppinn. Ýmsar af setningum hans eru orðnar að slagorðum, sem allur heimurinn þekkir. Hann er að sama skapi stórorður og ó- gætinn í orðum, og oft hafa ræður hans valdið hneyksli, og orðið til hins mesta ógreiða fyrir þýzka pólitík. Enginn þjóðhöfðingi, síðan Loð- vík XIV leið, hefir fundið jafn- mikið til valds síns og tignar og Vilhjálmur. Hefir hann oft látið í ljósi þá skoðun sína, að vald hans væri af guði þegið, og hann ætti að eins að bera ábyrgð á gerðum sínum fyrir guði, en ekki fyrir mönnum. Heill konungsins er hið æðsta lögmál (Salus regis, suprema lux) hefir hann eitt sinn sagt, og í tima og ótíma hefir hann pré- dikað dýrð konungs- og keisara- valdsins og verið andvígur öllum frjálslyndum hreyfingum. Vilbjálmur er hinn mesti starfs- maður og ákaflega ráðríkur, og vill í öllu láta mikið til sín taka. En hann er mjög hvikull í lund og yfir honum er jafnan eirðarlaus óró. Segja svo fróðir menn, að þótt stjórnmálaskoðanir hans séu ærið miðaldalegar, þá sé hann þó að skaplyndi barn vorra tíma. Hann hefir í ríkulegum mæli hlotið ó- þolinmæði, ókyrð og taugaveiklun, sem einkennir stórborgarlíf nútím- ans. Hann getur ekki selið eða staðið hreyfingarlaus eitt augnablik, og eins er andi hans og hugsanir á sífeldri hreyfingu. Hefir stjórn- málamönnum jafnan þótt ilt og erfitt að vinna með honum. Því honum snýst fljótt hugur, og hann þolir enga mótspyrnu. Stjórnmálabraut hans er því næsta krókótt og full af ósamræmi. Þar eð hann hefir til skams tíma, ráðið miklu í sínu ríld, þá verður saga hans ekki sögð, nema með því, að segja sögu Þýzkalands á stjórnarárum hans. Einkum í ut- anríkismálum. Vilhjálmur er fæddur árið 1859, og er sonur Friðriks keisara III og drotningar hans Victoríu, dóttur Victoríu Englands drotningar. — Vilhjálmur og Georg Englands- konungur eru því systkynasynir. Sannast hér sem oflar, að frændur eru frændunr verstir. Vilhjálmur fékk góða mentun i æsku og dvaldi seinna tvö ár við háskólann í Bonn. Lagði hann þar stund á allskonar vísindi, og munu fáir þjóðhöfðingjar hafa verið jafn víðmentaðir og hann. Árið 1888 kom hann til valda. Bismarck hafði þá í nærri heilan mannsaldur ráðið mestu á Þýzka- landi. En nú var vald hans á för- um. Gamli, ráðríki kanslarinn, sem hafði skapað þýzka keisaradæmið og keisarinn ungi og ráðríki áttu ekki skap saman. Leið ekki á Iöngu áður en milli þeirra hófst fullur fjandskapur. Bismarck hafði um nokkur ár átt í harðri baráttu við jafnaðar- menn og hafði fengið samþykt lög, er sviftu þá ýmsum mannréttind- um og kreptu að þeim á allar lundir. Keisarinn var þeim líka andstæð- ur í stjórnmálum, en hins vegar dreymdi hann stóra drauma. — Hann vildi verða einskonar frelsari mannkynsins, og ráða bót á kjör- um allra bágstaddra. Eitt af hans fyrstu stjórnarverkum, var að kalla saman alþjóðafund, til þess að semja tillögur um, hversu kjör verkamanna yrðu bætt. Fundurinn varð árangurslaus, enda vann Bis- marck honum alt það ógagn er hann mátti. Keisarinn gugnaði er á hólminn kom. Sneri hann nú hatri sínu á jafnaðarmenn, og skip-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.