Tíminn - 25.01.1919, Qupperneq 4
24
TÍMINN
2. Til utanríkismálanna kr. 12
þús. á ári.
3. Til skrifstofuhalds í Kaup-
mannahöfn kr. 12 þús. á ári eða
alls til þessara mála kr. 74 þús.
á ári.
Nefnd hefir stjórnarráðið skipað,
samkvæmt þingsályktun síðasta
reglulegs þings til þess að »leita
samninga við íslandsbanka um að
hann láti af hendi seðlaútgáfurétt
sinn allan, gegn ákveðnu gjaldi,
eða, ef það næst eigi, þá að hann
láti af hendi, með ákveðnum skil-
yrðum, rétt sinn til að hindra
seðlaútgáfu fram yfir 21/* miljón,
auk seðla Landsbankans«.
í nefndinni eru: Magnús Guð-
mundsson skrifstofustjóri, f’orsteinn
Þorsteinsson hagstofusljóri og Pét-
ur Ólafsson konsúll. Nefndin á að
hafa lokið störfum sínum fyrir lok
marzmánaðar.
Embætti, Ólafur Lárusson, að-
stoðarmaður borgarstjóra hefir ver-
ið skipaður prófessor við laga-
deild háskólans í sæti Jóns heitins
Kristjánssoar. — Auglýst eru laus
lögreglustjóraernbættið á Siglufirði
og Helgafellsprestakall.
Fisksalan. Englendingar afsöl-
uðu sér kauprétti á nokkrum hluta
fisksins frá liðnu árí, tóku ein-
ungis það sem seljast átti með
lægra verðinu. Útílutningsnefnd
hefir nú selt allan fullverkaðan
fisk sem af gekk á 272 kr. skip-
pundið. Hækkar meðalverð fiskj-
arins mikið við það.
Rúmeníu, Ukraynemenn og Pól-
verjar berjast um yfirráðin í Galí-
sfu, ítalir hafa lagt undir sig Tyról,
Istríu og Dalmatíu og loks hafa
lönd Suður-SIava, Slavónía, Króa-
tía, Bosnía og Hersegovnia sam-
einast Serbíu. Þessi skifting hins
gamla stórveldis er eins dærni í
veraldarsöguuni.
Panpig leið veldi Habsborgar-
ættarinnar undir lok. Hún hafði
ríkjum ráðið í hálfa sjöunda öld.
Það er langur tími, en þó að eins
örfá augnablik í sögu mannkyns-
ins. Alt starf þessarar ættar var
storfengleg tilraun til að mynda
eitt voldugt ríki, úr mörgum og
ólikum þjóðflokkum, riki, þar sem
enginn þjóðflokkurinn bæri veru-
lega af hinum. Þetta er eina stóra
tilraunin, sem gerð hefir verið í
þessa átt (að Tyrklandi undan-
skildu, sem þó er bygt á trúar-
grundvelli) og hún mistókst al-
gerlega.
Sameiginlegt þjóðerni er fyrsta
og nauðsynlegasta skilyrði til þess
að varanlegt ríki geti myndast. —
Óteljandi dæmi — nú síðast og
áþreifanlegast Austurríki — sýna
og sanna, að án þess grundvallar-
skilyrðis kemur öll stjórnkænska
mannanna að litlum notum.
H. Hallgrímsson.
Verzlunarskóli Islands.
Inntökupróf til neðri deildar skólans verður haldið 28. og 29.
apríl næstkomandi.
Inntökuskilyrðin eru:
1. Að þekkja orðílokkana og reglulegar beigingar í íslenzku (sam-
kvæmt Litlu móðurmálsbók Jóns Ólafssonar).
2. Að hafa lesið í dönsku einhverja lestrarbókina: Jóns Þórarinsson-
ar, eða Þorleifs og Bjarna, eða Steingríms, eða Jóns Ófeigssonar.
3. Að hafa lesið rækilega 50 fyrslu kaflana í' Geirsbók eða sem því
svarar í öðru.
í öllum málum er heimtað að nemandi þekki orðflokka, beyg-
ingar og kennimyndir (og kyn).
4. Að kunna 4 höfuðgreinar (samlagning, frádrátt, margföldun og
deiling) í heilum tölum og brotum.
5. Gott siðferði.
6. 16 ára aldur (minst).
í hvoruga deild fær neinn inntöku, sem hefir næman sjúkdóm.
Allar umsóknir urn upptöku eiga að vera skriflegar og sendast
formanni skólanefndarinnar (hr. Sighvati Bjarnasyni bankastjóra) eða
skólastjóra.
Reykjavík, 23. janúar 1919.
Jón Sivertsen.
Skólablaðið. Helgi Hjörvar
kennari hefir keypt Vörð og
Skólablaðið og ætlar að fara að
gefa út Skólablaðið.
Barnaskólinn. Gert ráð fyrir að
húið verði að sótthreinsa og mála
músið i lok næsta mánaðar, svo
kensla geti byrjað aftur.
Smjörlíki8verksniiðjan, sem þeir
Gísli Guðmundsson og Jón heit-
inn Kristjánsson prófessor .voru
forgöngumenn að, er nú tekin til
starfa og hefir fengið húsrúm og
véla-afnot hjá Sláturfélagi Suður-
lands. Verður hennar nánar getið
síðar.
Samverjinn, matgjafastofnunin
sem starfað hefir undanfarna vet-
ur hefir nú enn tekið til starfa
fyrir nokkru.
Farmgj ölclin.
Tíminn vakti athygli á því i
fyrra, þegar kaupmenn sátu að
öllu rúmi í Eimskipafélagsskipun-
um, sem tóku miklu lægri farm-
gjöld en landsverzlunarskipin, að
ekki kæmi það fram í því að vöru-
verð kaupmanna væri lægra en
Iandsverzlunarinnar. Spurt var:
Hvar er gróðinn. — Svarið er nú:
Hann er meðal annars sá þriggja
miljón króna skattur sem kaup-
menn i Reykjavík hafa lagt á land-
ið, á einu ári, samkvæmt tekju-
skránni.
Vísir gefur það nú hiklaust í
skyn, í sambandi við hina nýju
farmgjaldslækkan, að Tíminn hafi
staðið gegn hag almennings og
hafi ekki viljað láta lækka farm-
gjöldin. Er ekki við öðru en rang-
færslum að búast úr þeirri átt —
en Tíminn stendur við það að
hann kærir sig ekki um þá lækk-
un á tarmgjöldum sem lendir öll
í vasa kaupmanna, heldur vill
hann að félagið græði. En nú horf-
ir öðru vísi en áður, «þvi að kaup-
menn eru ekki lengur einráðir um
þau skip. En fróðlegt er að geta
þess sem Lögrétta segir um málið.
Þar segir svo um Eimskipafélagið:
»Félagið ætlast til þess, að kaup-
menn láti þessa farmgjaldslækkun
koma fram í lækkuðu vöruverði,
svo að hún verði á þann hátt al-
menningi að notum«.
Mundi það vera að þarfleysu
að Eimskipafélaginu hefir þótt
ástæða til að taka slíkt fram, sem
virðist vera svo sjálfsagt ?
Hækkamli verð.
Margt hefir stigið gifurlega i verði
undanfarið, en fátt mun hafa stig-
ið jafnört i verði og kjötið — í
Vísisdálkum. Hinn 25. nóv. stend-
lur svo í blaðinu: »Nú er fengin
vissa fyrir því að hægt hefði ver-
ið að fá 250 kr. fyrir 1. fl. kjöt«.
En hinn 19. jan. »hefir Vísir feng-
ið ábyggilega vitneskju um, að
hægt hefði verið að fá alt að 330
kr. fyrir tunnuna«. — Er það nú
talið víst að verðið muni fara hækk-
andi úr þessu, enda mun Visi
ekki skorta góðan vilja til þess að
koma því sem hæst — í dálkun-
um. Mun verða skýrt frá næstu
verðhækkun óðar og hún verður
auglýst. Má gera ráð fyrir að Vísi
muni ekki skorta tilboð um það
leyti sem hann hefir komið verð-
inu upp í 1000 kr. fyrir tunnuna.
Og Vísi er það einkar hægt, því
að hann þarf ekki nema nokkur
pennastrik til þess að hækka og
lækka vöruverð.
Bækur og ritföixg-
kaupa menn í
Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar
Dagur
vinstrimannablað á Akur-
eyri, hefir stœkkað um
helming og kemur nú út
vikulega. Fœst á Laugaveg
18 b.
Neðannefndar nótur fást 1 Hljóð-
færahúsi Reykjavilcur, og eru sendar
gegn póstkröfu um land alt. (Við
burðargj. bætist póstkröfugj. 0,30 á
hverja sendingu). Fylgi borgun pönt-
un er burðargjald ókeypis.
Folkets Sangbog, 710 sönglög með teksta verð
3,25. Gluntarne eftir G._Wennerberg, ölt lögin
(30) útsett fyrir baryton og bassa, með texta (1
visu) og undirspili. Verð 2,50, Burðarg. 0,70.
Texti sér (öll kvæðin) 2,50 bgj. 0,70. Fredmans
Sánger og Fredmans Epistler eftir Belimann
nótur og kvæði, livort heftiö 2,50 bgj. 0,18 og
0.30. Violinspillerens Underholdningsl)Og 600
úrvalslög fyrir fiðlu verð 3,00 bgj. (með skipi)
0,40. Blandet Kor (Sopran, alt, tenor og bassi) 2
bindi, 50 úrvaislög i liverju. Bindið 3,50 bgj.
0,42. Rubinsteins Duetter, með dönskum og
þýzkum texta verð 2,25 bgj. 0,24. Mcndelsolins
Puetter)2,00 bgj. 0,30. Alnaes Harmonium Album
þrjújjbindi 50 lög í hverju, bindið 3,25 bgj.
0,30. Harmoniumspillerens Underholdningsbog
(Birkedal-Barfod) 3 bindi, 60 lög i hverju verð
3,25 bgj. 0,36. Norges Melodier 3 bindi, 122 iög
með' texta i hverju, 3,75 bgj. 0,60 Danmarks
Melodier 3 bindi, 300 dönsk lög með texta i
livcrju, bindið, 4,25 bgj. 0,96 (með skipi 0,40).
Hvert bindi af þcssuin nótnabókuin selt út af
fyrir sig.
Skrifið strax til: Hljóðfærahtts Reykja-
vlkur, Roykjavík,
Landsbókasafnið.
Snemma í haust var auglýst að-
stoðarmannsstaðan við landsbóka-
safnið og umsóknarfrestur liðinn í
septemberlok. Safninu er hin mesta
þörf á því að bæta þeim manni
við og stjórn safnsins búin að
mæla eindregið með einum um-
sækjanda, enginn vafi á því held-
ur að hann á að fá það. En það
er ekki búið að veita þetta enn.
Maðurinn er dreginn á þessu von
úr viti. Þær eru kaldar viðtökurn-
ar sem þeir fá oft íslenzku menta-
mennirnir þegar þeir koma heim,
hafa lokið námi með bezta sóma
og vilja fara að neyta kraftánna.
Það væri ekki undarlegt þótt enn
fleiri en gera, sneru baki við fóst-
urjörðinni og tækju við þeim miklu
betri stöðum sem , þeim bjóðast
annarsstaðar. Við megum víst við
þvi að missa þá.
Ritstjóri:
Tryggvi Þórhallsson
Laufási. Sími 91.
Preatsmiðjan Gutenberg.