Tíminn - 10.07.1919, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.07.1919, Blaðsíða 1
TÍMINN að minsta kosti 80 blöð á ári, kostar 5 krónur árgangurinn. AFGREIÐSLA i Regkjavik Laugaveg 18, sími 286, út um land i Laujási, simi 91. III. ár. Reyhjavíb, 10. júlí 1919. 51. blað. Aftur að vinna. Nú eru fólksflutningar um Norð- urálfuna. Friðurinn er endanlega undirritaður. Herirnir eru og verða leystir upp að mestu. Og allir her- fangarnir fá að fara heim. Manna- ferðirnar heim urðu þegar miklar þá er vopnahéð var samið, en nú er hafln kollhríðin. Þetta er það mesta sem við friðinn vinst, fyrst í stað, að svo margir verkamenn hverfa aftur að því að vinna friðsamleg störf, að því að byggja aftur upp það sem lagt var i rústir, að því að safna aftur í sparisjóð heimsins í stað þess að taka altaf út, eins og að undanförnu. Og nú reynist það að sínu leyti eins erfitt verkefni að fá öllu þessu fólki eitthvað að gera eins og það var umsvifamikið að ná því saman í herina. Það eru komnir nýir liðsmenn í þau sæti sem þeir skipuðu áður. þeir voru kvaddir til starfa þegar föðurlandið var í hættu, þá var þeim gert að skyldu að takast þessi störf á hendur. Það er óhugsandi að láta þá nú rýma. Er það einkum kvennfólk sem á fjölmörgum svið- um situr nú í þeim stöðum sem karlmenn skipuðu fyrir stríðið og fara ekki úr þeiin aftur. Vesturheimsmenn, t. d. bæði Bandaríkjamenn og Kanadamenn, eiga hægast með að leysa þetta vandamál. Þar er enn svo mikið til at ónumdu ágætu landi. Þar slarfa nú margar nefndir að þvi að skifta löndum milli liermann- anna, aðrar vinna að undirbún- ingi járnbrautarlagninga til þess- ara nýju landa sem á að fara að byg&í3 °S l°ks sjá enn aðrar nefndir um.að þessir nýju bændur geti fengið all sem þeir þurfa til þess að geta reist bú: starfsfé, vél- ar, við í hús o. fl. o. fl. Gera þeir i ekki endaslept um forsjá og skipu- | lag Bandaríkjamennirnir. Á Englandi er vitanlega ekki til beinlínis ónumið land. En aðals- ættirnar hafa um aldaraðir haft undir sér víðáttumikil lönd og haldið þeim óræktuðum til þess að ala þar veiðidýr. Hefir það oft kveðið við að láta ekki lönd þessi vera svo gersamlega arðlaus fyrir þjóðina. Nú mun verða hafist handa og veiðiskógum lávarðanna hreytt í búgarða handa heimkomn- um hermönnum. Ekki er vandinn minstur að fá þeim inönnum eitthvað að vinna sem orðið hafa fyrir meiri eða minni áverkum, en eru að ein- hverju leyti verkfærir. Hafa ríkin selt niður til þess hugvitsmenn, að finna verkefni við þessara manna hæfi, hafa verið reistar margar stofnanir og heimili í því skyni og með lijálp rafmagnsins virðist það ætla að takast að skapa fjöl- mörgum hinna limlestu manna framtíðaratvinnu. Pjónarjjirðnngur. I. Á sunnudaginn var kom Morg- unblaðið út í mjög stækkaðri útgáfu og verður svo áfram. Daginn eftir kom ísafold út tvöföld og verður að vísu svo stór áfram. Með þessu hefur göngu sína hið mikla blað- fyrirtæki auðvaldsins islenska, sem skýrt hefir verið áður frá hér i blaðinu. Kaupmenn alstaðar að af land- inu og aðrir auðvaldssinnar, hafa kej'pt bæði blöðin, og stækka þau nú svo gífurlega sem talandi vott um gnægð peninganna sem að baki eru. Er það almannarómur að auð- mannafélag þetta hafi þegar til taks 250,000 krónur — miljónar- fjórðung — til þess að ausa i þessi stækkuðu blöð og önnur annars- staðar á landinu, sumpart gömul sem verði keypt, sumpart ný sem verði stofnuð — og í annan stað verður miljónarfjórðungurinn að sjálfsögðu notaður í kosningaundir- búning af hálfu hins nýja flokks. Það eru margir hlutir falir. Það varð fljótt kunnugt, þá er það stjórnskipulag komst á, að almenn- ingur ^éði úrslitum mála og stjórn- aði sér sjálfur með atkvæðum á kjördegi, að þau atkvæði voru föl fyrir peninga, bæði beinlinis. en einkum óbeinlínis. Aðferðin var sú að gefa út blöð, sem prédikuðu kenningar þeirra sem ej'ða vildu peningum í að kaupa sannfæring- una, — blöð sem væru svo stór og ódýr að þau gengu fólki í augu. það var um að gera að ná eyra fólksins og syngja svo sönginn óslitið við eyrað. Auðvaldið í heiminum eyðir nú árlega mörgum miljónum króna lil þess að halda úti slíkum blöð- um, þau eru einn aðalhj'rningar- steinninn undir valdi þess. Og þeim er það fyllilega Ijóst, auð- mönnunum, að þeim miljónum sem þeir verja til blaðanna er vel varið — frá þeirra sjónarmiði. Með þessari nýju sögu ísafoldar og Morgunblaðsins og fjdgihnatla, er þessi siður nú hafiun á íslandi í fyrsla sinn i hreinni mynd. Áður hefir verið til mikill votlur þess, en það er ekki fyr en nú sem til eru blöð sem ganga erindi auð- valdsins og hafa ekkert annað markmið. t*að er sá hlutur sem nú þarf að verða kunnur hverjum einasta íslending, sem með atkvæði fer á kjördegi, að nú eru til orðin á ís- landi blöð, sem hafa að baki sér miljónarfjórðung, og þau stefna að því, að kaupa sannfæring þeirra óbeinlínis á kjördegi, með því að flj'tja þeim, meir og minna dul- búnar, þær kenningar, sem miða að þvi, að efla auðvaldið í land- inu, gera þjóðfélagsskilj'rðin slík, að auðmönnunum veiti hægt að auka og ávaxta auð sinn, án tillits til afkomu fjöldans, hinna smærri framleiðenda og allrar alþýðu. Með blaði, sem út kemur dag- lega, stóru og fjölbreyttu blaði, ódýru blaði, blaði sem er svo úr garði gert að hægt er að kaupa fréttir og höfunda-hæfileika — með því og samhliða fréttum, sögum og öðru góðgæti, á að flytja hitt, skoðanir auðvaldsins — með því á að kaupa sál og sannfæring. »Vantar ei nema sjálfa sál« var forðum kveðið. Það er eftirtekta- vert, að ekki hefir tekist enn að kaupa sálina í fyrirtækið fyrir miljónarfjórðunginn ■— ritstjórann vantar fyrir blaðlröllið. Ritstjóri Morgunblaðsins liefir verið tekinn, en »til bráðabirgða«, — af skiljanlegum ástæðum. t’að mætti benda á enn eitt, sem ■V egamálin. i. Alþingiskjósendur víðsvegar um land, bíða þess með óþreyju, að löggjafarnir marki ákveðnar stefnur í þeim innanlandsmálum, sem legið hafa í salti síðastliðin ófriðarár. Þinginu reiknast það til afsökunar fyrir athafnaskorti í þeim efnum, að ófriðar- og dýrtíðarvarnirnar hafa bundið starfskrafta þess, fram- kvæmdamagn þjóðarinnar og fé landssjóðs. Væri það þakka- og virðingavert, ef þing og stjórn skilja vel við þau hlutverk; og tæplega er ástæða til að heimta meira af næsla þingi, en góð endalok dýr- tíðarmálanna og fullkoinna úrlausn á afleiðingum þeirra. t*að er vanda- verk að leysa smám saman upp það skipulag, sem hefir kostað svo mikla fyrirhöfn að fá iögákveðið. Flokkaskiftingin í þinginu er svo óákveðin, stefnur flestra ilokkanna svo óskýrar og áhugamálin svo fá, að naumast er unt að vænta nokkra er eftirtektavert, á þessum nýju tímamótum ísafoldar. Hinir nýju eigendur hafa fundið til þess, að nú var bandið til fulls slitið, milli fortiðar og nútíðar ísafoldar. t’ólt langl væri af vegi gengið, þá var bandið þó ekki endanlega slitið fyr en nú. Nú er komið á blaðið eitt ytra merki, sem á að reyna að hnýta saman hina slitnu þræði. Neðan undan miðjum blað- hausnum, þar sem áður stóð nafu ritstjórans, þar stendur nú: »Stofnandi: Björn Jónsson«. Undirtektir þjóðarinnar munu sýna hvernig menn taka þessari »tilraun«. En útgefanda er hvergi getið. II. Fyrsta greinin í hinu fyrsta blaði hinnar nýju ísafoldar var ádeilu- grein til Tímans. Hún beinist að því, að vekja tortrygni almennings gegn Tímanum og sérstaklega rit- stjóra hans. Þetta kemur enguin á óvart, því að þetta er einmitt það, sem var öldungis víst. Og það er jafnvíst, að svo verður áfram. Það verður eitt aðal-viðfangsefni blaðtrölla miljónarfjórðungsins, að vekja tortrj’gni alþjóðar á Tímanum, stetnu hans, og þeim mönnum, sem að honum standa. Hvers vegna? Vegna þess, að Tíminn er hinn sjálfsagði andstæðingur auðvalds- grundvallarákvarðana í framtíðar- málunum, fyrri en að afslöðnum næstu kosningum. Enda tel eg það heppilegast, að núverandi þing- flokkar bindi þeim inálum sem fæsta hnúta. Flest það er þeir mundu kunna að gera í því efni, t. d. á næsta þingi, yrði mjög lítið hugsað og undirbúið af kjósendum, en flaustrað af eftir málamj'nda samkomulagi og bræðingi flokka- brotanna. Pess vegna ættu kjós- endur ekki að leggja mikið kapp á slík mál á þirigmálafundum í vor, en vera aftur á móli ákveðnir og skj'rir í þeim kröfum sínum, að þingið gangi svo frá gildandi skipu- lagi á samgöngumálum, verslunar- málum og fjármálum landsins, að þjóðarheill og landsjóði verði vel borgið. Á þann hátt getur næsta þing mest unnið fj'rir framtíðina, og til þess starfs er núverandi landstjórn hæfust, enda er skipun hennar miðuð við þau verkefni. Orðum mínum og tillögum um framtiðarmálin, vísa eg því frem- ur til kjósenda til athugunar og umræðna, áður en þeir velja sér

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.