Tíminn - 26.07.1919, Side 4

Tíminn - 26.07.1919, Side 4
248 TÍMINN sendir frá Evrópu, og því næst, að bann þetta er til komið vegna þess, að þörf og brýn uauðsyn þótti að spara næringarefni þau, er í tilbúning þessara drykkja færi. Loks ber þess að geta, að Iög þessi voru sett eftir einstaklega sterkri ósk þjóðarinnar í Banda- ríkjunum, og nú, eftir að hið ný- kosna allskerjarþing er saman- komið, hefir á daginn komið, að þingið er miklu sterkara skipað bindindismönnum en fyrri, og þar sem forseti ekki hefir vald til að afnema lög þessi upp á eigið ein- dæmi, þá munu lögin gangají gildi 1. júlí 1919 og vera í gildi þangað til herinn er heim kominn. (ni.) David Östlund. Fréttir. Skipaferðir. B o t n í a fór 22. þ. m. til Danmerkur. Var Sveinbjörn tónskáld meðal farþega og má bú- ast við að bann komi ekki til ís- lands framar. Var hann heiðraður og kvaddur með samsæti í Iðnað- armannahúsinu kvöldið áður en hann fór. — ísland er á leið- inni frá útlöndum og fer norður um land. Pétur Jónsson söng- maður er með skipinu. — Sterl- ing kom 23. þ. m. úr hringferð. Hallinn af kartöflurækt Reykja- víkurbæjar, á Kjalarnesi í fyrra, hefir nú verið gerður upp og reyndist kr. 35143,64. Áhöld talin 8755 kr. virði, svo hreinn halli er kr. 26388,64. Ágóði heíir aftur á móti orðið af mótekju bæjarins í fyrra kr. 8548. Síldveiði er nú að verða góð fyrij öllu norðurlandi. í Bankastræti 4. Virðingarfylst P. 0. Box 477. Reykjavík. Pantanir utan af landi afgreiddar um hæl gegn eftirkröfu. Heíir fengið nýjar birgðir af Winchester-Rjúpna- riflunum þjóðkunnu Cal. 22 á kr. 44,00, og Sela- rifíilinn Cal. 25,20, 7 & 14 skota Magazine ásamt hinum góðkunnu Husqvarna-haglabyssum Cal. 12 Choke með 90 & 100 cm. hlaupi. Allskonar hlaðnar patrónur í Haglabyssur, Rifla og Revolvera. Högl, púður og hvellhettur. — Notið tækifærið meðan birgðir endast. Hvergi ódýrara ef um stærri kaup er að ræða. Baldvin Einarsson alitýgj asmiður. Laugaveg 67. Reykjavík. Sími: 648 A. 43. og 45. tölublöð af þessum árgangi Tímans eru þrotin á af- greiðslunni. þeir kaupendur og út- sölumenn sem kynnu að hafa fengið ofsent að þess- um eintökum eru beðnir að senda þau til afgreiðslunnar. ■ ■ Harmonikur, besta tegund, frá 25 kr. upp í 85 kr. eftir stærð. Hijómfagrar munnhörpnr frá 3 kr. upp í 6 kr. Sendist gegn póst- kröfu um land alt. Burðargjalds- frítt þegar borgun fylgir pöntunum. * Skrifið strax, meðan birgðir eru til. Olafsey í Skógarstrandarhreppi fæst til kaups og ábáðar í far- dögum 1920. Nánari upplýsingar um jörðina, svo og um verð og borgunarskilmála, hjá undirrituðum eig- anda. Peir sem sinna vilja þessu, gefi sig fram í síðasta lagi fyrir nóvembermánaðarlok n. k. Ólafsey, 13. júlí 1919. Olafiir Jóhami^son. Hljóðfærahús Reykjavíkur. Símnefni: Hljóðfærahús. É éskilum grár hestur 6—7 vetra; lítill, vakur, sumarafrakaður, lítið tagl. Mark: sílt hægra. Hjá lögreglunni í Reykjavík. AV! Hafið þér gerst kaupandi að Eimreiðinni? Ritstjóri: Tryggrvi kórliallBSon Laufási. Sími 91. Prentsmiöjan Gutenberg. búnfiðarlánstofnana komið á fót, eflir lögum frá 1896. Aðalbankinn (Nippon Kvongo Ginko) er hluta- banki undir eftirliti rikisstjórnar, og ábyrgist ríkið hluthöfum 5°/o ágóða fyrstu tíu árin. Bankinn veitir lán til langs tíma, alt að 50 árum, veðtrygð lán til einstakra manna, en má láta óveðtrygð lán til sveitafélaga, jarðabóta og sam- vinnufélaga með »solidariskri« á- byrgð. Veltufjár aflað með sölu veðvaxtabréfa. Auk þessarar mið- stofnunar fyrir ríkið, eru 46 smærri veðbankar, héraðsbankar, (svokallaðir Noko Ginko) er veita lán því nær eftir sömu reglum og »Nippon Kvongo Ginko«, og standa í sambandi við hann að því leyti, að smábankarnir fá oft veðvaxta- bréf sín trygð með ábyrgð aðal- bankans, auk þess sem þeir fá oft lánað veltufé frá honum. Héraðs- bankarnir eru einnig hlutabankar, en styrktir með hlutafjárframlög- um af ríkisins hálfu og standa undir ströngu opinberu eftirliti. Hámark lána 2/3 virðingarverðs. Útlánsvextir »Nippon Kwongo Ginko« eru ákveðnir af ríkis- stjórninni. í Mexícó er fjöldi landbúnaðar- banka, stofnaðir samkvæmt lögum frá 1897. er voru endurbætt 1908. Bankarnir eru af tveim tegundum, nefnil. venjulegir landveðsbankar og jarðabóta- og framfara bankar. Hvortveggja hlutabankar undir yfir- umsjón ríkisstjórnarinnar. Stjórnin hefir eftirlitsmann við hvern banka, er undirritar öll veðvaxtabréf og önnur skuldabréf bankans. Lág- mark hlutafjár hvers banka ein milj. Pesos (ca. 600,000 krónur). Lánin veitt í peningum eða veð- vaxtabréfum eftir vali bankans. — Veðbankarnir veita lán bæði út á húseignir og lönd, upp að hálfu virðingarverði. Hámarlc allra lána til samans er hlutafjárupphæðin margfölduð með 20. Veðvaxtabréf eru skattfrí, og njóta víðtækra hlunninda. — Framfara- og jarða- bótabankarnir veita lán til námu- reksturs og járðabótafyrirtækja, hvort heldur til stutts tíma eða margra ára. Lántakandinn skuld- bindur sig með eiði fyrir réttinum að verja láninu til þess fyrirtækis, sem ætlað er til. Lán má veita leiguliðum gegn tryggingu í áhöfn og búnaðarafurðum eða áhöldum. Bankarnir gefa út, auk veðvaxta- bréfa, bankaskuldabréf alt að tvö- faldri upphæð hlutafjárins, og taka einnig við almennu innlánsfé að tilteknum takmörkum. — Stærsti bankinn er vatnsveitinga- og jarð- yrkjubankinn (Caja Préstamos para Obras de Irrigaciony Fomento da la Agricultura), stofnaður 1908 með hlutafé að upphæð 10 milj. Pesos, þar af þriðjungur eign rík- isins. Veðvaxtabréf hans trygð með ábyrgð ríkisins. Bankinn er hálf- opinber stofnun, og 3 af banka- stjórunum kosnir af ríkisstjórninni. Pessar stofnanir bafa reynst svo vel, að óhseít má telja Mexícó meðal þeirra landa er fremst standa, að því er snertir bankainál land- búnaðarins. Pau mál voru þar í landi tekin til rækilegrar íhugunar og rannsóknar um aldamótin síð- ustu, og komu þar fram ritverk um þessi efni, einkuin eftir Sénor Joaquin D. Casasus, er þykir meðal þess besta er ritað hefir verið um landkreditmál á síðustu árum. Pó að hér að framan hafi verið farið stutt yíir sögur, má væntan- lega af því, sem sagt hefir verið, gera sér nokkra grein fyrir fyrir- komulagi landkreditmála í þeim löndum, sem lýst hefir verið. En eins og tekið er fram í byrjun þessa máls, má skifta lánum þeim sem landbúnaðurinn þarf á að halda, í fjóra aðal flokka, nfl. venjnleg lán til langs tíma, jarða- bótalán, lán til að koma upp eða kaupa smábýli, og ioks stutt lán til búnaðarreksturs. Að vísu getur slík flokkaskifting ekki bygst á neinum skýrum takmörkum, og sömu lánsslofnanir geta að meira eða minna leyti sint fleiri en ein- um flokk. Það getur farið vel á því að sama lánsstofnunin sinni 3 fj'rstu ílokkunum, öllum samhliða, því að þeir eiga allir sammerkt í því, að þar er um að ræða föst lán til langs tíma, trygð með fast- eignaveði annaðhvorl að nokkru eða öllu leyti.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.