Tíminn - 07.08.1919, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.08.1919, Blaðsíða 1
TIMÍNN ,að minsia kosii 80 blöð á ári, kostar 5 krónur árgangurinn. AFGREIÐSLA i Reykjavík Laugaueg 18, simi 286, út um land í Laufási, simi 91. III. ár. Reykjavík, 7. ágúst 1919. 59. blaö. ,8íða§íta íullið4. Eins og getið var um í grein D. Östlunds hér í blaðinu nýverið gekk í gildi einskonar bráðabirgð- ar bann í Bandaríkjunum 1. júlí s. 1. Aðal bannlögin koma til fram- kvæmda nokkrum mánuðum síðar. Vínmenn höfðu spáð, að Bakk- us mjmdi duga vel síðasta kvöldið, skilja við landið med þeim hætti að þess yrði minst lengi. Eftir því sem drykkjuspámönnunum taldist til átti skilnaðarlcvöldið að verða glaðast allra kvölda sem Banda- ríkjaþjóðin hefir lifað. Vínguðin heíir fyr brugðið heit við sína dýrkendur, enda varð sú raunin í þetta sinn. Síðasta vín- kveldið var næsta ómerkilegt. Þeg- ar stærsta og þróttmesta þjóð í heimi kastaði áfenginu út úr sín- um liúsum varð enginn héraðsbrest- ur. Þjóðin sýndi að hún var að losa sig við óboðin gest og var fegin. Maður sem staddur var í New- Yorlc i júlíbyrjun heíir sagt frá tíð- indum. Alt var kyrt á götunum. Því nær engin ölvaður maður sást þar. í gildaskálunum sátu söinu gestir, sem þar voru vanir, og sVelgdu þar lífdryklc sinn í siðasta skiftið. Annars engin ös. Kl. 12 var hætt að veita, en gestirnir máttu sitja yfir áður fengnum birgðum eina klukkustund. En þá urðu þeir að hverfa heim. Þá um kvöldið héldu allir eig- endur hinna stærri gistihúsa í New-York fund með sér. Þeir komu sér saman um því nær í einu hljóði, að láta steinhætta að hafa nókkra tegund áfengra drkkja til neyslu í sínum húsum. Einn þeirra lýsti yfir við blaðamann þann sem þetta er haft eftir, að þeim þætti engin sérleg eftirsjá í víninu. Sum af stærstu og mest arðberandi gistihúsum í landinu, hefðu verið )>þur« um all-langan tíma. Að minsta kosti væri hagn- aðurinn af óieyfilegri vínsölu, næsta iítill í samanburði við þá ábœttu sem henni fylgi Þessi siðustu orð eru eftirtektar- verð. Það er auðséð að Banda- ríkjamenn gera ráð fyrir að dómar- ar þar í landi muni verða mjög þungir í slcauti þeirra sem troða bannlögin undir fótum. Það er vafalaust rétt á litið. Þar mun enginn dirfast að halda því fiam, að sum lög í landinu séu þannig samkvæmt eðli sínu og anda, að hvorki sé skylt að hlýða þeim eða að gæta þeirra. Hvergi nema á öldutoppum íslenskra menningar- strauma verður vart slikra kenninga. ^lirei mök við ðréitiim. I. Gamall sjálfstæðismaður kom að máli við ritstjóra Tímans alveg nýlega. Honum var mikið niðri fyrir. »Mikið eruð þið óhygnir við Tímann«, sagði hann. »Þarna hefð- uð þið getað haft sjálfstæðisflokk- inn alveg með ykkur og haft gott af. En nú Iítur út fyrir eitthvað annað. Hvaða nauður rak ykkur til að fara að fjölyrða um em- bættisrekstur Guðmundar Eggerz og bitlinga Bjarna frá Vogi? Og þótt þið gætuð ekki orða bundist í vetur um seinlæti og fyrirbyggju- leysi Sigurðar Eggerz í drepsóttar- málinu — hvaða nauður rak þá til að rifja það upp aftur í síðasta blaði? Það hefir verið þagað um það, sem meira hefir verið en þetta. Þið hefðuð átt að gera það til þess, að hafa þessa sjálfstæðismenn góða og hafa gagn af þeim. Með þessu lagi komið þið ykkur alstaðar út úr húsi«. Rétt á eftir hitti ritstjóri Timans gamlan heimastjórnarmann. »Ykk- ur eru mislagðar hendur«, sagði hann. »í stað þess að taka nú höndum saman við heimastjórnar- flokkinn gamla og hafa mikið gott af því, eruð þið nú búnir að spilla á milli, með því að áreita svo einstaka mikilsráðandi menn í honum, að þeir a. m. k. verða ykkur þungir í skauti. Þarna þurft- uð þið endilega að hnýta í þá Þórarinn og Guðjón fyrir síldar- kaupin sælu, Halldór Steinsen hafið þið ráðist á margsinnis fyrir óvild hans til landsverslunarinnar, og svo hófuð þið þessa reginsókn á landlækni, varð að vísu ekki hjá því komist í vetur, en svo þurftuð þið að víkja aftur að því í síðasta blaði. Eg er nú þeirrar skoðuuar, að það verði að taka tillit til kringutnstæðanna. Og þegar mikið er að vinna í aðra hönd, í stjórn- málunum, þá sé það engin stór- synd, það sé beinlínis sjálfsagt, að þegja um siít af hverju í fari þeirra sem maður vill hafa gott af og leggja lag sitt við í pólitíkinni«. — Hvorugur þessara manna mót- mælti með einu orði þeim atrið- um, sem þeir vildu hafa látið þegja um. Það var þvert á móti. En þeim kom báðum saman um, að þetta væri frámunalega óhyggilegt fyrir ungan stjórnmálaflokk. Og þeir bentu á það til sönnunar, að svona hefðu gömlu flokkarnir haft það oft og tíðum, þetta væri nú »mórallinn« í íslenskri pólitík. Og svo mæla miklu fleiri en þessir menn og þess vegna er rétt að athuga þennan hugsunarhátt eilítið nánar. II. Einhver áhrifamesti og besti stjórnmálamaður Dana á síðast- liðinni öld var Christen Berg. Hann var vitmaður með afbrigð- um, stefnufastur og fylginn sér, og þar að auki drenglyndur maður og hreinlyndur svo að úr slcar. Hann kaus sér þessi einkunnar- orð og lifði eftir þeim: »Aldrig at gaa paa Akkord med Uretten«. Er ilt að þýða þau orð á íslensku, en meiningin næst að nokkru, þó ekki öldungis, með þessum orðum: Að hafa aldrei mök við óréttinn. Það er sem sé ekki einungis það, að ljá ekki fylgi röngum málstað, eða því sem rangt er gert, heldur og það að láta það ekki afskifta- laust, hilma ekki yfir það, sam- þykkja það ekki, eða leyfa því að ná fram að ganga, með því að þegja við því —- heldur rfsa beint öndverður gegn því, sem órétt er, í hvaða mynd sem það kemur fram og hvaðan sem það kemur fram. Það er eftirtektavert, að Berg skyldi einmitt velja sér slík kjör- orð, og þau ein út af fyrir sig lýsa vel þeim hreinlynda vitmanni. Þetta er sem sé hin eina rétta undirstaða undirheilbrigðumstjórn- málaflokki. Hreinlyndi og sann- leiksást eru ekki síður hinar ó- missandi og nauðsynlegu einkunnir í stjórnmálalífinu en í einkalífinu. Einstakur maður getur í bili komið ár sinni vel fyrir borð með blekkingum, smjaðri og óhreinlyndi. En hann verður aldrei farsæll maður í þjóðfélagi sínu með því framferði. Hann kemur sér út úr húsi hjá öllum góðum mönnum. Hann verður þeim hvimleiður og ótal dyr verða honum lokaðar. Af honum leiðir miklu meira ilt en gott. Stjórnmálaflokkur getur í bili komið ár sinni vel fyrir borð með því að hilma yfir bresti og glappa- skot mikilsráðandi manna, hann getur fengið að launum fylgi þeirra háu herra, hann getur borið úr býtum ýms fríðindi, völd í bili og bráðabirgða þægindi. En afleiðingarnar af slíku fram- ferði verða óhjákvæmilega:‘ sið- ferðileg spilling í stjórnmálalífinu. Og slíkur stjórnmálaflokkur getur ekki þrifist til lengdar nema í sið- ferðilega sjúku og spiltu þjóðfélagi. í nokkurn veginn heilbrigðu þjóðfélagi hlýtur slíkur flokkur að missa traust einstaklinga og al- þjóðar og líða undir Iok og hann á að gera það. Fyrir fámenna og fátæka þjóð, og einkanlega fyrir þjóð, sem er hefja nýtt stjórnmálalíf á grund- velli viðurkends fullveldis, er það lífsnauðsyn að eignast stjórnmála- flokk, sem aldrei á mök við órétt- inn, sem aldrei fylgir röngum mál- stað vegna flokkshagsmuna eða af persónulegu fylgi við einstaka menn. Það getur haft margföld óþæg- indi í bili fyrir þann stjórnmála- flokk, sem reynir að lifa eftir þess- ari góðu reglu hins danska stjórn- málamanns. Og það hlýtur æ að hafa mikil óþægindi í för með sér. En það verður að gerast. Og það getur ekki farið hjá því, að af leiði það sem er gott. Því að sann- leikurinn er sagna bestur og hreinar línur verða æ farsælastar í stjórn- málalífinu. Þess vegna mun Tíminn, Iftir fremsta megni reyna það hér eftir, eins og hingað til, að lifa eftir þessari reglu, að hafa ald- rei mök við óréttinn. Haun mun reyna að meta það meira, en stundarhag, í einhverri mynd. Hann mun reyna að gera það í traustinu á heilbrigða dómgreind hinnar íslensku þjóðar. Hann stendur vel að vígi um að gera það, því að að honum standa áhugasamir og alóháðir menn, víðsvegar á landinu, sem hafa beint saman bökum um að halda út þjóðblaði og stofnað stjórnmála- flokk, af einskærum áhuga fyrir því að verða þjóð sinni að gagni, án alls tiUits til persónulegra þæginda eða ávinnings. „Til lyfja“. Aftur og aftur hefir því verið haldið fram hér í blaðinu að hinn stjórnlausi vöxtur á innflutningi áfengis »til lyfja« bæri það hik- laust með sér, að hér væri um að ræða gífurlega misnotkun af hálfu læknanna. Voru birtar tölur um vöxt inn- llutningsins síðastl. ár, í 44. tbl. þ. á. Hafði innflutningurinn nálega þrefaldast síðan árið 1915. Var bent á hvílík höfuðhneisa þetta væri fyrir landið í heild sinni og læknastéttina sérstaklega og að henni stæði það næst, að skilja á milli sýknra og sekra og létta þessu smánarfargi af þjóðinni. Fjölmennur læknafundur var háður hér í bænum í vor. Það er ekki kunnugt að hann hafi gert

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.