Tíminn - 04.11.1919, Side 4

Tíminn - 04.11.1919, Side 4
344 TIMIN N ið fyr og nú, er ljósasti votturinn um það. Og ilt er að skilja hugsanagang þeirra manna sem eru með því að koma hér upp stóryðju, og sumir ef til vill án þess að þær skorður verði við reistar og takmarkanir settar sem flestir munu vilja telja óumflýjanlegar og lífsnauðsyn, en vilja um leið afnema bannlögin og leyfa víninu að æsa upp hinar verstu girndir sem til eru hjá mis- jöfnum lýð. Þróun stjörnarfarsins. Fyrir einni mannsæfi eða svo, var haldið um islenska stjórnar- tauma úti í Danmörku. Og það voru Danir sem héldu um þá. Með vaxandi viðreisnarhug fóru íslendingar sjálfir að seilast eftir taumhaldinu. Og þeim tókst að ná því smátt og smátt. Siðan 1904 má heita að stjórn allra mála hafi verið í landinu sjálfu — í Reykjavík. Þar hafa þeir menn setið, sem mestu hafa ráðið i stjórnmálun- um. Eigendur blaðanna og for- ingjar flokkanna sem greindi á um málin út á við hafa átt að- setur þar. Þaðan hafa þeir þeytt herlúðurinn og þá fastast, í hvert sinn er kom til kosninga. Er þetta afareðlilegt. Deilumálin voru ælíð að meira eða minna leyti lögfræðilegs efnis, lögskýring- ar um »ríkisráðssetu«, »Real- Union«, »Personal-Union«, »Status quo« eða annað þess háttar sem almenningur áttaði sig ekki á til hlýtar. Þess vegna blutu völd flokkanna á þessu stigi að Ienda i fárra manna höndum, og þá stóð Reykjavík auðvitað best að vígi. Ekkert skorti á að foringjunum ------------------------------— að láta þetta áfengi fara beint um hendur ríkisins, sem seldi lyfsöl- unum og leyfði þeira einungis að leggja^ iítilsháttar á það, fyrir kostnaði og fyrirhöfn. Væri að vísu með því kipt burt hvötinni fyrir lyfsalana að selja sem mest af þessu, en til læknanna næði þetta alls ekki og er því þýðingar- lítið. En sem stendur er ekkert gert. Og það er óþolandi. Pað verður að hefjast handa með ráðstafanir sem duga. Það liggur svo margt og mikið við. Það iná ekki láta staðar numið fyr en alt hefir verið gert til þess að þurka þennan smánarblett af þjóðinni. Ritstjóri: Tryggvi Þórhatiasoii Laufási. Sími 91. Prentsmiðjan Gntenberg. tækist að skipa mönnum í flokka um þessi millilandamál. En þann galla fundu menn á þessari flokka- skipun, að þegar til innanlands- málanna, framkvœmdamálanna kom, þá gerriðlaðist hún lang- oftast. Var öllum hugsandi mönnum þetta svo mikið áhyggjuefni, að í hvert sinn er eitthvað slotaði orra- hríðinni um málin út á við, urðu all-margar raddirnar um aðra og farsælli flokkaskipun, flokkaskipun um innanlandsmálin. Álti sú skipan örðugan róður bæði af því, að engum var um að slaka á um reiptogið við Dani, en þó öllu fremur af hinu, að margir voru þeir menn, sem »lifðu pólitiskt« á millilandamálunum, óttuðust umskiftin og spornuðu við þeim í lengstu lög. Svo mikið ólán hafði þó mál- unum inn á við stafað af milli- landadeilunum, að áður en síðasta áfanganum þar A'arð náð, var þjóð- inni sýnilega orðið það fullkomið alvörumál að leggja þær á hyll- una, og snúast einhuga að því sém fremur var á borði en í orði. Og þar eð rás viðburðanna hefir nú í einni 'svipan fleygt okkur fram að fullkomnu sjálfstæðis- marki út á við, þá má nú eiga það víst, að afstaðan til innanlands- málanna einna skipi mönnum í fíokka hér eftir. Og bætist þá við nýr liður um þróun íslensks stjórnarfars. Völdin flytja sig enn um set. Flokksvöldin færast úr höndum fárra einstakl- inga yfir á marga samstæða ein- staklinga viðsvegar um land. En að það sé þetta sem er að gerast, því mótmælir enginn. Enda skulu færð að því nokkur rök. Þau eru orðin æðimörg talsins blöðin, sem hlaupið hafa af stokk- unum á íslandi. Hafa þau ekki orðið langlíf í landinu allflesl. Enda langflest verið eign einstakra manna, ætluð til að Iyfta þeim í valdasess eða þá helguð einhverju hitamáli dagsins. Nú er hinsvegar í fyrsta sinni komið til sögunnar málgagn, sem sem er eign fjölmargra manna um flestar bygðir landsins. Það á lang- an aðdraganda, þvi er markað hlutskifti i öllum aðalatriðum löngu áður en það hefur göngu sína. Því er skapað lifslögmál, það verður að vera trútt hugsjónum hinna mörgu manna sem að þvi standa, það verður að vilja eins og þeir, finna til eins og þeir. Og þegar Qöldinn er nógu mikill og einlægnin við málstaðinn, gerir því ekkert til, þótt einhver einn hlypi út úr götunni, skifti skapi. Og einmitt af þvi að svona er til stofnað, er þessu blaði tekið tveim höndum af þjóðinni, það nær meiri útbreiðslu en dæmi eru tii og á skömmum tíma, það er best borgað, því er best trúað, enda líklegast til að verða stór- veldi í landinu. Stofnun þessa blaðs hefir leitt af sér annað blaðfyrirtæki og hlaut að gera það. Af andstöðu við skoðanir Tím- ans og áhrif, hafa íffelmargir kaup- menn og stórgróðamenn kejrpt tvö blöð, sem áður voru eign. einstak- linga. Ber hér að sama brunni, þessir menn fundu að los var að komast á flokksvöldin, engum ein- um manni var kleift að halda þeim lengur í sínum höndum, þau voru að færast yfir á fjöldann, og þá yrði það að standa saman, sem saman heyrði. Að hér sé ekki um neina dægurflugu að ræða, geta menn markað af því, að menn- irnir, sem hér eiga hlut að, fórna miklu fé, þeir kaupa alt dýru verði, blöðin, áhöldin og »áhug- ann«. Auk þess sem fyrirferð Morg- unblaðsins er ætlað að bæta upp »vörugæðin«. Þá er Þingvallafundurinn í sum- ar önnur sönnunin fyrir þessari þróun stjórnarfarsins. Menn hafa aldrei komið á Þingvöll fyr hvað- anæva af landinu til þess að halda þar flokksfund. Þjóðfundir hafa verið haldnir þar, þegar mikinn vanda þurfti að leysa, en flokks- fundur fyrsta skifti að þessu sinni. Sjálfsögð afleiðing af því að flokksvöldin færast úr höndum ör- fárra manna og yfir á_ allan fjölda borgaranna í landinu er það, að hinir svo kölluðu gömlu stjórn- málamenn tapa gildi. í stað þess að vera aðalatriði, verða þeir anka- atriði. Flokkurinn, flokkssamheldn- in, verður aðalatriðið. En sterkur flokkur er sterkari en alt annað. Önnur afleiðing þessarar þró- unar er sú, að fyrst er spurt uin hjartað, hvað viltu, hvar stend- urðu, hverju fylgirðu, en ekki um heilann, hvað geturðu haldið snjalla ræðu, hvernig ferðu að koma fæti fyrir andstæðing þinn, hvernig ertu i hrossakaupum. Þá hlýtur þriðja afleiðingin að verða sú, að hálfdrættingarnir, þing- mennirnir, sem borið hafa kápuna á báðum öxlum, eru góðir um eitt mál, en svikulir um annað, mennirnir, sem undanfarið hafa verið nauð- synlegasta skilyrðið til þess að hrossakaup og önnur óheilindi ættu hægt um vik á þingi þjóðariunar, þessir menn hljóta að hverfa úr sögunni og verða dæmdir óalandi og óferjandi, þegar flokksheildin er komin í stað foringjanna, trúin á málstað í stað trúarinnar á menn. En þegar svo er komið, er lýð- stjórnin loks til hlitar komin á laggirnar. G. M. Úr bréíum. Suðnr-Múlasýslu 14/10- — »Eg get ekki stilt mig um að færa Tím- anum bestu þakkir fyrir alla fram- komu hans sérstaklega i tveim málum sem ekki varða þjóðina nú minstu og á eg þar við fossamál- ið og samvinnufélagsmálið. Veit eg ekki betur en að allur almenning- ur — a. m. k. hér um slóðir — sé i báðum þessum málum hjart- anlega samþykkur stefnu blaðsins. Jörðin Byvík ein af bestu jörðum í Grímsnesi fæst til leigu eða kaups ef um semur. Upplýsingar um jörðina geta fengist hjá eiganda. Tilboð frá lysthafendum komi til Jóhannesar Einarssonar á Eyvík fjTÍr 15. jan- ar 1920. Eitt gleður okkur Sunn-Mýlinga, langflesta, einkum okkur, sem syðst búum í sýslunni, það er hve fast og stöðugt Tíminn hefir slaðið við hlið Sveins Olafssonar í fossamál- inu, enda er það sannast að segja um Svein Ólafsson, að hann á það skilið að honum sé alt það full- tingi í té látið sem hægt er, því að þar höfum við Sunn-Mýlingar loks fengið þann þingmann, sem oss er bæði sæma og gagn að, enda er hann bæði hj'gginn maður og heið- arlegur og enginn veifiskati og væri ilt til þess að hugsa ef við Sunn- Mýlingar ekki bærum gæfu til að halda honum áfram sem þing- manni okkar . . . Fréttir béðan þær helstu, að sum- arið hefir verið oss hér um pláss eitt hið besta, grasvöxtur í alt að þvi meðallagi, eða vel svo og nýt- ing hin allra besta. Bændur því yfirleitt heldur vel heyjaðir, því að sennilega verður talsvert mörgu slátrað í haust, einkum lömbum, til þess að nota þetta góða verð sem nú er á kjötinu«. Undir Eyjafjöllnm, 25. október. — Þeir keppa um þingrnensku í Rangárvailasýslu, presturinn á Breiðabólsstað og læknirinn á Stór- ólf'shvoli. Hvorirtveggja eru vin- sælir embættismenn. Sóknarbörn síra Eggerts eru orðin langleið á fjarveru hans frá prestakallinu, trúmálin eru alt af viðkvæm og þykir mönnum safnaðarlífið hafa beðið við þetta hnekki. Um Guð- mund lækni óttast menn það mest aö hann þoli ekki til lengdar hin- ar látlausu embættisannir, þær muni á tiltölulega skömmum tíma i ganga fram af honum, a. m. k. svo, að hann reyni áður langt liði, að koma sér í hægari læknisað- stöðu, en Rangæingar vilja, sem vonlegt er, hann með engu móti missa. Hyggja menn nú gott lil þess að tilbreytingin þann á að giska mánaðartíma úr hverju ári, yrði lækninum holl, og telja það vísustu leiðina til þess að tryggja sér hæfileika hans sem læknis til frambúðar, að senda einmitt hann á þing. Seyðisfirði 19/io. »Mikil er and- ans fátækt okkar Sej'ðfirðinga. Við eigum engan hér heima til að senda á þing. Við eigum ekki einu sinni þarfanaut handa kúnum okk- ar, við þurfum að fá það að láni — eins og þingmanninn. Þessari vísu snjóaði hér í bæinn einn daginn: Bæjarmönnuin bölvað slaut, baka kýr og pólitík, ef þurfa’ að sækja þarfanaut og þingmann suður í Reykjavík. )

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.