Tíminn - 19.03.1921, Side 2

Tíminn - 19.03.1921, Side 2
32 T I M I N N Samvinnuskólinn 1921-1922 Inxi.tö]k;-u.slk;ilyrði: Nemendur, sem hafa í hyggju að vera í Samvinnuskólanum veturinn 1921—22 verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði við inntökupróf: 1. Skrifa læsilega rithönd. Geta gert nokkurn veginn skipulega ritgerð um fengið efni. Hafa numið málfræði Halldórs Briem; síðustu útgáfuna. 2. Hafa lesið Kenslubók í íslandssögu, eftir Jón J. Aðils, en í mannkyns- sögu kenslubók eftir Pál Melsteð eða eftir Þorleif H. Bjarnason. 3. Hafa numið Landafræði Karls Finnbogasonar. 4. Hafa lesið, undir handleiðslu kennara, bæði heftin af Kenslubók í dönsku, eftir Jón Ófeigsson, og Enskunámsbók Geirs Zoega. Hafa gert skriflegu æfingarnar í þessum kenslubókum. 5. Vera leiknir í að reikna brot og tugabrot. 6- Hver nemandi verður að hafa fjárhaldsmann, búsettan í Reykjavík eða þar í grend, sem stjórn skólans tekur gildan. Aths. Það er mjög óráðlegt, að hugsa til að sækja skólann, nema fyrir þá, sem eru vissir um að uppfylla þessi skilyrði. Reykjavík er nú orðin of dýr staður til að stunda þar það, sem nema má hvar sem er annarsstaðar á landinu. Inntöku í skólann fá konur jafnt sem karlar. Þeir, sem ekki kæra sig um að taka verslunarpróf, fá kenslu í bókmentasögu og félagsfræði, í stað þess sem þeir fella niður í námsgreinum sem lúta að verslun. — Kenslugjald er nú 100 kr. fyrir hvern nemanda. Reykjavík 20. nóv. 1920. Jónas Jónsson. Eftirmæli. Milli jóla og nýárs í vetur and- aðist hér í Reykjavík ekkja á átt- ræðisaldri, pórdís Ámundadóttir, sem fyrrum hafði um fjórðung aldar staðið meðal hinna fremstu í húsfreyjuflokki átthaga sinna í Ámessýslu, svo sem hún átti kyn til. Hún var fædd á Sandlæk í Gnúpverjahreppi 12. febr. 1847. þar bjuggu þá foreldrar hennar, Ámundi, sonur Guðmundar bónda Björnssonar á Syðra-Langholti, og Guðrúnar Ámundadóttur smiðs, systur Halldórs prófasts á Mel- stað, og Guðríður Guðmundsdótt- ir Loftssonar Freysteinssonar. Höfgu þeir feðgar búið á Sandlæk hver eftir annan, og verið landset- ar biskupsstólsins í Skálholti, þar til er Guðmundur keypti jörðina er stólseignimar voru seldar um aldamótin 1800. Freysteinn var sonur Rögnvalds bónda í Auðs- holti í Biskupstungum, og höfðu forfeður hans búið þar hver fram af öðrum um langan aldur og ver- ið gildir bændur og gerðarmenn. þórdís ólst upp á Sandlæk. Vom þau systkinin alls átta, sem upp komust, og þótti mannvænlegur systkinahópur, enda reyndist svo. Hefir þar hagleikur og aðrir bú- mannskostir gengið í ætt. þegar Ámundi bóndi lést, tók Guðmund- ur, eldri sonur hans, við jörðinni, og kvæntist, en misti konu sína eftir stutta sambúð.Var þórdís þá fyrir framan hjá bróður sínum þangað til hann kvæntist aftur. þótti hún þá sýna, að hún var þeim starfa vel vaxin, enda glæsi- legur kvennkostur að fleira en því, fríð sýnum, látprúð og sköruleg, vel verki farin og einkar vel látin. Vorið 1874 fór hún vistferlum að Vatnsleysu í Biskupstungum og giftist litlu síðar Gísla Matthías- syni, er þar hafði verið mörg ár fyrir búi hjá Margréti Bjamadótt- ur, ekkju eftir Guðmund bónda Einarsson, og fengið almennings- orð fyrir, hve vel hann hefði stað- ið í þeirri stöðu. Gísli var fæddur 26. sept. 1835 í Miðfelli í Hruna- mannahreppi. Matthías bóndi, fað- ir hans, var sonur Gísla, bónda á Sóleyjarbakka, Jónssonar bónda í Bræðratungu, Guðmundssonar, bónda á Kópsvatni, er í brösum átti við þórð prest í Reykjadal. Ilöfðu þeir langfeðgar verið merk- isbændur þar í Hreppum hvora- tveggja, frá því fyrir siðaskifti (Sýslum.æf. IV. 225). Margrét húsfreyja átti einn son á lífi, Ein- ar Guðmundsson. Var hann þar á Vatnsleysu hjá móður sinni. Hann Flutningsræða Sigurjóns alþnt. Friðjónssonar við 1. umræðu frumvarps til laga um samvinufélög. Mér hefir hlotnast sá óverð- skuldaði heiður að vera fyrsti flutningsmaður að frumvarpi til laga um samvinnufélög. Eg segi óverðskuldaði vegna þess, að eg hefi ekki verið neinn meiri háttar forgöngumaður í samvinnuhreyf- ingunni, og þó einkum vegna þess, að eg finn ekki mátt hjá mér til að flytja þetta erindi samvinnufélag- anna eins og eg gjarnan vildi. Frá sjónarmiði samvinnumanna er hér um hreyfingu að ræða, sem stefnir að gjörbreytingu á þjóðfélagslegu lífi og skipulagi, og þó á fomum og — að hennar áliti — traustum grundvelli. Samvinnuhreyfingin er í sínu insta eðli jafnaðarhreyfing. Af þrem kjörorðum stjórnbylting- arinnar frönsku: frelsi, jafnrétti, bróðerni, eru það einkum jafnrétt- ið og bróðemið sem hún leggur á- herslu á. Til þessa era meðal ann- ars þau sögulegu rök, að í frelsis- hugsjónina hljóp nokkurs konar ofvöxtur á 19. öldinni, að sumu leyti fyrir áhrif frá þjóðmegunar- fræðikenningum A. Smiths og lífs- þróunarkenningum Ch. Darvins og hans fylgifiska, ofvöxtur, sem var 6 árum yngri en Gísli, og vora þeir virktavinir og mjög sam- rýmdir. Við fráfall móður sinnar kaus Einar heldur að byggja Gísla jörðina, föðurleifð sína, og dvelja á heimili þeirra hjóna, en að setj- ast þar sjálfur að búi, þó að efn- in væru nóg til þess. það var líka sannast að segja, að ekki afþokk- aðist búskapurinn á Vatnsleysu þó að þau tækju við. Vitur rffaður, sem vel kunni mann að sjá, sagði um föður Gísla: „Slíka vildi eg flesta bændur kjósa sem Matthías í Miðfelli“. Mun margur hafa hugsað líkt um Gísla og heimili þeirra hjóna. Gísli var karlmann- legur maður og ásjálegur; enginn léttúðarmaður og frásneiddur allri óreglu og drykkjuskap, sem þá brann þó helst til víða við þar í sveit. En glettinn gat hann verið og kíminn, og stilti þó jafnan vel í hóf. Hann var stillilegur í fram- göngu og fór að engu óðslega, en reyndur að dugnaði hvar sem á þurfti að taka. Hann var friðsam- ur og óáleitinn við aðra, en eitt- hvað var í svipnum er sagði, að þar væri maður fyrir, sem ekki mundi verða að vatni þó að á hann væri leitað í orði eða verki. Um alt var hann dyggur maður og trú- lyndur, traustur eins og sker. Hann var búmaður mikill í göml- um stíl, stjórnsamur, gjörhugull og reglufastur, hagsýnn og fyrir- hyggjusamur. Var jafnan gnótt í búi á Vatnsleysu alls þess er hafa þurfti, og fymingar miklar að fornum búhölda sið. En það var enginn búrabragur á heimilinu fyrir því. Innanbæjar var stjóm húsfreyjunnar engu síðri en hús- bóndans utan bæjar, og hvar sem þórdís var, fylgdi henni kurteisin og snyrtimenskan. Fór það hjá henni ágætlega saman við gamlan búkonubrag og breiddi svo við- kunnanlegan sveitaþokka yfir þetta búmannlega heimili, þar sem flest alt var heimaunnið, sem fyr- ir augun bar. Einar Guðmundsson átti og sinn þátt í því að prýða heimilið; hann var bókavinur og fróðleiksmaður, tryggur við gamla siði og góða, en líka gjarn á nýj- an fróðleik; því var þar meiri bókakostur og fleira lesið en al- ment gerðist þá. Vatnsleysa er í miðri sveit, þingstaður hreppsins og annar næsti bær við réttimar; er því oft mannkvæmt, bæði af innansveitar- mönnum og utanhéraðs; hefir þar löngum verið vel veitt og ríkmann- lega; brast það eigi heldur í þeirra tíð, Gísla og þórdísar. Tvíbýli hef- ir nú verið á Vatnsleysu í meir en 100 ár samfleytt. Sambýlismaður margir góðir menn hafa óttast og sem hefir nú að lokum — að margra áliti — átt mjög mikinn þátt í því, að leiða hina stórkost- legu hemaðarógæfu síðustu tíma yfir svo að segja allar þjóðir. Sam- vinnuhreyfingin er þannig í aðra röndina hreyfing á móti auðvaldi og hverskonar yfirgangi, þ. e. jafnréttis- og varnarhreyfing, sem lítur á auðsöfn einstaklinga í stór- um stýl sem einskonar rán og á slíka auðsafnendur sem einskonar stigamenn á viðskiftaleiðum al- mennings, er noti sérstakar að- stöður eða aðstöðuhagræði og yfir- tök til að skapa sjálfum sér óhóf- leg laun, eða draga sér á annan hátt óhóflega mikið af almennu verðmæti, öðram til féflettingar og niðurdreps. En í aðra röndina er samvinnuhreyfingin sam- h j á 1 p a r hreyfing, og þá sér- staklega gagnvart þeim, sem erfitt eiga. Hún setur sam h j á 1 p i n a sem lífskraft upp á móti sam- kepninni og yfir hana, og um leið bróðemishugsjónina yfir frelsishugsjónina. Að því leyti sem samvinnuhreyfingin er jafn- réttis- og j afnaðarhreyfing,vill hún koma á jöfnuði á kjöram manna, ekki þannig, að einn miðli öðrum, hinn ríki hinum fátæka, sem hún skoðar aðeinssembót á gamalt fat, heldur með því að tryggja hverj- þeirra hjóna var Halldór Halldórs- son, fjáraflamaður mikill og auð- ugastur bænda þar í sveit, og þótt lengra væri leitað. Ekki gat hjá því farið, að þröngt væri um tvö svo stór bú á einni jörð, ekki stærri, og mundi það víða hafa orðið misklíðarefni, en ekki bar á því milli þessara heimila. þar fór alt í bróðerni, og bjó þó hvor að sínu. Bændumir áttu að vísu til kapp og metnað, en hvorugur reyndi að sýna hinum ágang né ó- bilgirni, og aðstoð og hvers konar greiðvikni jafnan til reiðu, ef nokkurs þurfti við. Hefir Vatns- leysa að fleira en einu verið far- sældarjörð; þar hefir í manna minnum einlægt verið gnótt í búi og gott sambýli. það orð fylgdi líka þórdísi frá foreldrahúsum, að hún kæmi hvarvetna fram til góðs. — Sennilega hafa þó land- þrengslin valdið því, að þau hjón fluttu búferlum frá Vatnsleysu að Felli vorið 1888. Bjuggu þau þar með sömu sæmd í 11 ár. þá var heilsan tekin að bila og bragðu þau þá búi og fluttust suður til Reykjavíkur. þótti sveitungum þeirra mikill sviftir í að sjá þeim á bak. Upp frá því hnignaði heilsu Gísla óðum, þar til hann andaðist eftir langa legu vorið 1902. Bar um einum fullan ávöxt iðju sinnar, svo sem fremst má verða. Hún byggir þannig meðal annars á frið- helgi eignarréttarins, en skorðar hann (þ. e. eignarréttinn) við á- vöxt eigin iðju á nokkuð annan hátt en almennast er. þar sem nú annar meginþáttur samvinnu- hreyfingarinnar stefnir að því, að tryggja réttindi einstaklinga gegn yfirgangi annara, sem einatt er gerður í skjóli misskilinnar frels- ishugsjónar, er henni eðlilega fjar- lægt að ganga vísvitandi á réttindi annara. Að svo kann að virðast sumum mönnum í fljótu bragði, um ýmsar kenningar hennar, t. d. um skattamál, er því og hlýtur að vera annaðhvort vegna þess, að verkamenn hreyfingarinnar mis- skilji hennar insta eðli og útfærslu þess, ellegar vegna þess, að mót- stöðumennirnir hafa ekki áttað sig á hvert stefnt er. Getur hvort- tveggja eðlilega komið fyrir, en hið síðarnefnda ,þó að líkindum fremur og oftar, vegna þess, að skilningsleysi á stefnunni sé þó yfirleitt meira þeim megin.—Sam- hjálparþáttur samvinnuhreyfing- arinnar kemur eðlilega strax að nokkru leyti fram í hinni sam- eiginlegu vörn gegn yfirgangi. En skýrast kemur hann fram í sam- ábyrgðinni. það stafar því af gjör- samlegum skilningsskorti á dýpstu hann þjáningar sínar og horfði móti dauða sínum eins og hann hafði lifað, „æðralaus og jafnhug- aður“. þórdís dvaldist hér í Reykjavík eftir lát bónda síns, með Guð- mundi syni þeirra, er um það leyti hafði lokið trésmíðanámi og kvæntist. Undi hún vel hag sínum, skemti sér við sína gömlu sveita- iðju, tóvinnuna, og sonarbömin sín. þar var og með henni systur- dóttir hennar, Anna Ólafsdóttir, er hún hafði alið upp sem dóttur sína. Oft höfðu vandalaus böm verið á heimili hennar, meðan hún bjó, lengri tíma eða skemri, og var hún við þau öll eins og hún ætti þau sjálf. Hún var hjartanlega barngóð, gat varla séð svo ung- barn, að hún léti ekki vel að því. þórdís andaðist eftir stutta legu í lungnabólgu á fimta dag jóla. Tvö eru á lífi böm þeirra hjóna, Guðmundur trésmiður, sem fyr er nefndur, kvæntur Margréti Gísla- dóttur, og Margrét, gift Jóni Ágúst Jónssyni,- bónda á Vatns- leysu í Biskupstungum. Skipar hún þannig sama húsfreyjusess- inn sem þær höfðu á undan henni móðir hennar og nafna, sem hún heitir eftir, móðir Einars Guð- mundssonar, sem fyr er getið, og rótum samvinnuhreyfingarinnar, þegar henni er ráðlagt að nema samábyrgðina úr gildi, eins og ný- lega hefir verið gert af merkum manni á Norðurlandi, þó því verði raunar ekki neitað, að í sam- ábyrgðinni er fólginn vegur til einskonar yfirgangs, vegur ó- menskunnar í einni eða annari mynd, vegur til að liggja upp á öðrum, sem kallað er, vegur til að lifa yfir efni fram um lengri eða skemri tíma, á ábyrgð og stundum að lokum á kostnað annara. En samvinnuhreyfingin hefir svo mikla trú á lífskrafti sínum, að hún treystir því, að þessa veiklun geti hún yfirstigið, og þessa trú byggir hún meðal annars á vexti sínum alt til þessa dags. Hún lítur á sjálfa sig sem nýgræðing á vor- degi, nýgræðing, sem þegar er van- inn svo, að mótblástur og áfelli verða honum ekki að bana, eins og nýgræðing, sem þrátt fyrir mót- blástur og áfelli hefir þó aðal- strauma vorsins á sínu bandi, strauma hlýinda, trúar og vonar um nýja og betri tíma. Að svo mæltu vil eg leggja til að þessu máli verði vísað til allsherj- arnefndar. ----0----- eru þeir nú báðir heimamenn hjá henni, hann og Halldór, einkason- ur sambýlismanns foreldra henn- ar. þetta fólk virðist ekki fljótt til flaumslita, hvorki við foma vini né föðurtúnin. M. ---0---, O. J. Havsteen á Þingvöllum. Eins og menn mun reka minni til, gerðist á þingvöllum í sumar sögulegur hemaður milli heildsala O. J. Havstein og umsjónarmanns ríkisins á þingvöllum, Guðmundar kennara Davíðsonar. Ástæðan var sú, að heildsalinn var þarna drukkinn og hafði með- ferðis töluvert af vínföngum. Fylgdarmaður heildsalans og sam- ferðamenn voru í sama ástandi sem hann sjálfur, og var öll ferð þeirra hin óálitlegasta eftir lýs- ingunum. Umsjónarmaðurinn gat ekki horft á þetta óskaplega fram- ferði aðgerðarlaus, sem von var til. það var aðalskylda hans að halda reglu á staðnum — fyrst og fremst að verja þingvöll fyrir drykkjulátum slíkra gesta sem þessara. Vínflöskur heildsalans stóðu upp úr töskunni á einum klámum og mátti sjá það, hver sem hafði augun opin. Umsjónar- maðurinn tók flöskumar undir sína varðveislu, og gaf um þetta skýrslu til umbjóðanda síns. En heildsalinn varð uppvægur sem vænta mátti, og símaði til sýslu- mannsins Guðmundar Eggerz, sem eins og menn vita er fyrirmynd allra yfirvalda í þessu landi (eða var). Sýslumaðurinn, sem staddur var á Kolviðarhóli (því hann var sjaldan heima), brá við skjótt og fór í bifreið ásamt marskálki sín- um Birni kaupmanni Gíslasyni á vettvang. Segir fátt af aðgerðum sýslumanns í málinu, eins og vænta mátti. þar varð sýslumaður, sem kunnugir geta getið nærri, að litlu gagni. En heildsalanum voru afhentar flöskumar, er það þótti upplýst, að maðurinn væri svo sjúkur, að hann mætti ekki án þeirra vera — þær voru fengnar að læknisforskrift. Um samferða- menn heildsalans virðist ekki upp- lýst undir rekstri þessa máls, hvort þeir hafi verið svo sjúkir líka, að nauðsyn bæri til að þeir lægju dauðadrakknir uppi um heiðar að næturlagi, eftir sömu læknisforskrift. Um þetta atriði er heldur ekkert upplýst, hvað sýslumann eða marskálk hans snertir. Skið!ktjo_oiiMt. þótt grasræktin eðliega sé höfð í mestum metum hjá oss íslend- ingum, megum við þó með -engu móti vanrækja skógræktina og garðræktina, svo feykna mikla þýðingu hafa þær, bæði beinlínis og óbeinlínis, fyrir land vort og Þjóð. þorv. Thoroddsen telur skóg- lendi íslands 8 fermílur, og er þá tæplega Va% af landinu skógi ldætt. Ekkert land í Evrópu er jafn sárfátækt af skógi. Sýnir þó reynsla, bæði fyrri og seinni alda, að skógur getur lifað hér góðu lífi. Mikið af þeim skógi, sem eftir er, er í óbygðum, ella væri hann löngu farinn veg allrar veraldar, þannig höfum við búið við feg- ursta gróður lands vors.Heil hérað eru gersamlega eydd af skógi, og íbúarnir hafa aldrei séð hríslu. þvílíkt hörmungarástand, og þó hörmulegast af því, að menn virð- ast nokkurn veginn vel við það una. það hefir Ijóslega sýnt sig í öll- um þeim löndum eða héraðum, sem eytt hafa skógum sínum meir en góðu hófi gegndi, að veðurlag- ið hefir spilst, skógarnir tempra skyndileg veðrabrigði, vætur og

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.