Tíminn - 18.06.1921, Síða 2
76
T í M I N N
Hafsíld
veidd frá Siglufirði og aðgreind og útbúin með 100 kíló í hverri tunnu,
handa Ameríku, en vegna þess að hún náði aldrei að komast þangað
með s.s. .Lagarfossi í vetur, verður hún seld hér til skepnufóðurs.
Henni hefir verið haldið við með pæklun, og er öll í vel bentum
tunnum. —
Síld þessi verður seld fyrir mjög lágt verð, flutt á skip hér á
höfninni. Ennfremur fæst vanaleg úrgangssíld fyrir enn þá lægra verð.
Upplýsingar á skrifstofu
P. J. Thorsteinssonar,
Hafnarstræti 15.
Fr.. Segir hann þá meðal annars:
„það er ekki rétt að Guðmundur
Friðjónsson sé alveg ómentaður
maður.------Samt sem áður er
það alveg rétt, að hann hefði gott
af því ef hann gæti aflað sér meiri
mentunar“. p. G. hefir ekki órað
fyrir því, er hann ritaði þetta, að
sá „ekki alveg ómentaði" G. Fr.
yrði eitt af helstu átrúnaðargoð-
unum.
2. Áskorun til p. G. 1 hinni sömu
grein segir p. G. eftirfarandi orð
um ritstjóra Tímans: „Aftur á
móti vildi hann (þ. e. Tr. p.) nú
fyrir skömmu fá í' atvinnumála-
ráðherrasessinn mann,sem Tíminn
elti með þrálátum og illvígum á-
sökunum fyrir fáum missirum“.
þessi ummæli p. G. lýsi eg full-
komlega tilhæfulaus ósannindi. Eg
lýsi því yfir afdráttarlaust, til
þess að hnekkja þessum ósannind-
um sem Lögrétta og Morgunbl.
hafa margtuggið, að eg hefi ekki
einu sinni látið það í ljós við einn
einasta mann, að eg óskaði, eða
væri því fylgjandi, að einhver sá
maður yrði atvinnumálaráðherra,
eða yfirleitt yrði ráðherra, sem
Tíminn hefir „elt með þrálátum
og illvígum ásökunum,‘, eins og p.
G. kemst að orði. Eg skora á p. G.
að birta nafn þess manns sem
hann á við með ummælum þessum,
til þess að mér gefist tækifæri til
að mótmæla þeim enn kröftugleg-
ar.
3. p. G. og Bjarni frá Vogi. Loks
gerir p. G. sér mikinn mat úr því,
að Bjarni frá Vogi hafi verið end-
urkosínn í bankaráð Islandsbanka
„með atkv. allra þeirra manna,
sem næst standa Tímanum“. Bros-
legt er að sjá þessi orð í Morgun-
blaðinu og sannanlega ósönn eru
þau að sumu leyti a. m. k. Bjarni
mun hafa verið kosinn með rúm-
um 20 atkv., en næsti maður fékk
7 atkv., að Því er mig minnir. Ein-
hverntíma sagði Morgunbl. að 1 —
einn — maður fylgdi Tímanum í
þinginu. Annars er mér með öllu
ókunnugt um hverjir þeir eru
þessir rúmlega tuttugu. En hitt
er mér kunnugt ,að a. m. k. sumir
þeir menn „sem næst standa Tím-
anum“ skiluðu auðum seðlum við
kosningu bankaráðsins, þar eð
þeir gátu ekki komið því fram,
sem þeir vildu, að bankaráðspen-
ingunum væri varið til einhvers
þarfa fyrirtækis. þessvegna er
mér óhætt að telja ummælin ó-
sannifidi.
4. p. G. og Sig. Eggerz. I þessari
viku verður Morgunblaðinu það
enn á að fara með-bein ósannindi.
það segir að Sig. Eggerz sé orð-
in meðritstjóri Tímans og hafi rit-
að greinina um lántökuna í síð-
asta blaði Tímans. Eg lýsi þetta
gjörsamlega tilhæfulaus ósann-
indi. Síðan eg tók við ritstjórn
Tímans hefir þar ekki birst ein
einasta grein eftir hann í Tíman-
um. Eg get bætt því við, að síðan
skeytin fóru að birtast um lántök-
una, hefi eg ekki talað eitt einasta
orð við Sig. Eggerz. Tr. p.
----o---
Fréttir.
Konungur og fylgdarlið hans
lagði af stað í gær frá Kaup-
mannahöfn. Dagana 20.—23. júní
verður dvalið í Færeyjum.
Fundahöld verða óvenjulega
mikil í bænum síðari hluta þessa
mánaðar. Kennarafundur er byrj-
aður. Búnaðarþing verður sett
þann 25. Sambandsfundur sam-
vinufélaganna verður settur
þann 27. þá er Stórstúkuþing og
aðalfundur Eimskipafélags Is-
lands. Jafnhliða eru allar sýning-
arnar. Má búast við að tafsamt og
erfitt verði að koma öllu því í verk
sem koma þarf, þar eð kónungs-
koman ber og upp á hina sömu
daga.
Öll skip sem til bæjarins koma
nú, bæði frá útlöndum og víðsveg-
ar að af landinu, eru hlaðin fólki,
sem er að sækja fundina, sýning-
arar og konugskomuna.
Botnía kom frá útlöndum mið-
vikudag síðastl. með fjölda far-
þega, þar á meðal marga útlend-
inga. Forsætisráðherra var og
með í förinni. Ekki hefir neitt
frést um hin endanlegu úrslit lán-
tökunnar, og fréttist ef til vill
ekki fyr en „gjöfin“ kemur sem
dönsku blöðin töluðu um.
Mörg svín gat að líta á hafnar-
bakkanum, morguninn eftir að
Botnía kom. Sennilega verður
þeim ekki langra lífdaga auðið
hér á landi, því að giskað er á að
þau muni eiga að prýða matborð-
in við konungskomuna.
Lagarfoss fór til útlanda í fyrra-
dag. Skipið var sem alveg óhlað-
ið. Meðal farþega var Hallgrímur
Hallgrímsson magister. Ætlar
hann að dveljast í Kaupmanna-
höfn í sumar við ritstörf.
Berlínarbörn. Að forgöngu
Bjarna Jónssonar frá Vogi og
landlæknis var efnt til skemtana
til ágóða fyrir fátæk og þurfandi
börn í Berlín.
Gróðrarstöðin. Miklar breyting-
ar er búið að gera þar, til undir-
undirbúnings verkfærasýningunni.
Grýtta stykkið, sem var í suð-
austurhorni landsins, beint niður
undan Kenaraskólanum, hefir alt
verið rutt og sléttað og verður þar
sýningarsvæðið. Verður svæðið
þvínæst tekið til ræktunar. Mun
einkum eiga að auka þar til mik-
illa muna ræktun á gulrófnafræi.
Minnisvarða hafa Templarar
reist á leiði Áma Gíslasonar letur-
grafara. Var Árni einn hinn allra
ötulasti starfsmaður Reglunnar á
fyrri árum hennar.
Laxveiði er sögð góð í ánum í
Borgarfirði, og hefir mikið borist
til bæjarins af laxi.
Skipstjóraskifti eru að verða á
skipum landssjóðs og Eimskipafé-
lagsins. Einar Stefánsson, sem er
skipstjóri á Sterling, tekur við
hinum nýja Goðafossi, en þórólf-
ur Bech tekur við Sterling. Jón
Eiríksson, sem um stund var á
Lagarfossi, tekur við Villemoes,
en Júlíus Júliníusson tekur við.
Lagarfossi..
Tímarit þjóðræknisfélags Is-
lendinga í Vesturheimi, II. ár, er
nýlega komið hingað. Eins og í
fyrra er ritið prýðilega vandað að
frágangi og ,.efni. Vesturheims-
skáldin leggja til bæði ljóð og sög-
ur og auk þess eru í. ritinu veru-
lega efnismiklar og góðar greinar
t. d. eftir Halldór Iiermannsson
prófessor, síra Kjartan Helgason,
Guðm. Árnason, síra Rögnvald
Pétursson, Jón Jónsson frá Sleð-
brjót o. fl. — Ársæll Ámason hef-
ir aðalútsölu ritsins hér á landi.
Vill Tíminn mjög hvetja menn til
að eignast ritið og báða árgang-
ana.
„Syrpa“ heitir tímarit sem Ól-
afur S. Thorgeirsson hefir gefið
út í Winnipeg síðustu 10 árin.
Mun ekki ofsagt að sé skemtileg-
asta og fjölbreyttasta tímaritið
sem nú er gefið út á íslei\sku í
seinni tíð. Hafa oft verið í því af-
bragðsgóðar sögur. Er þess þó sér-
staklega getið nú annars hlutar
vegna. Við og við áður og nú sér-
staklega í þeim heftum sem út
komu á árinu sem leið, hafa birst
í Í3yipu ritgerðir um íslenska ætt-
fræði, eftir mann sem skýlir sér
undir dularnafninu Steinn Dorfi,
en kunnugir munu vita hver er.
Fjalla greinarnar einkum um ætta-
rannsóknir á því tímabili í sögu
Islands sem langminst hefir verið
rannsakað, frá lokum Sturlunga-
aldar til siðaskifta, og eru rann-
sóknirnar langmest bygðar á
Fombréfasafninu. Greinar þessar
eru stórkostlega merkilegar. þær
bera vott um alveg einstaka-hæfi-
leika og elju höfundar til ætta-
rannsókna. Um fjölmörg atriði
hefir höf. kastað alveg nýju ljósi.
Greinar þessar og rannsóknir eru
til óumræðilegs stuðnings fyrir þá
sem rannsaka vilja sögu Islands á
þessum öldum. Slíkur maður sem
höf. þessara greina ætti sem allra
fyrst að verða starfsmaður á öðru
hvoru safninu hér heima. Hann
getur ekki notið sín til fulls
vestra, þar eð hann getur þar ekki
náð til allra þeirra heimilda sem
nauðsynlegar eru. En svo ágætii
hæfileikar á þessu sviði, verða að
fá að njóta sín.
Próf við háskólann hafa þessir
tekið: Heimspekispróf: Gunnl.
Indriðason, Sigurður þórðarson,
Stefán Pétursson og Sveinbj. Sig
urjónsson með ágætiseinkunn;
Árni Ó. Ámason, Björn Gunn
laugsson, Garðar þorsteinsson,
Hermann Jónasson, Jóhannes
Jónsson, Jón Hallvarðsson, Jón J.
Skagan, Kristinn Guðmundsson,
Kristján Jakobsson, Pétur H.
Jónsson og þórður Eyjólfsson með
I. einkunn. Eiríkur Björnsson, Ól-
afur Ólafsson stud. med., Thyra
Lange og þorsteinn Jóhannesson
fengu II. einkunn betri og Ólafur
Ólafsson og Sveinn Gunnarsson II.
einkunn lakari. — Efnafræðispróf
hafa þessir læknanemar tekið:
Björn Gunnlaugsson, Eiríkur
Björnsson, Jóhannes Jónsson, Ól-
afur Ólafsson, Pétur Jónsson og
Sveinn Gunnarsson, — Embættis-
prófi í guðfræði hafa lokið: Bjöm
O. Björnsson og Friðrik Friðriks-
son. — Embættisprófi í lögfræði
hefir lokið Símon þórðarson frá
Hól.
Embætti. þorsteinn þorsteins-
son frá Arnbjarnarlæk, sem um
hríð hefir þjónað Dalasýslu' hefir
nú fengið veiting-u fyrir sýslunni.
Hann sest að á Staðarfelli og tek-
ur þar við búsforráðum. Er þá vel
fyrir séð. — Jón Bjamason frá
Steinnesi hefir fengið veitingu
fyrir Borgarfjarðarlæknishéraði.
Endurreistur er hann nú veislu-
skálinn sunnan við Iðnaðarmanna-
húsið, sem byrjað var að reisa í
fyrra, en var aftur rifinn. Verður
vafalaust rifinn í annað sinn er
konungskoman er um garð gengin.
Morgunblaðið, og Lögrétta og
ísafold vafalaust líka, í kjölfar
þess, leggja blessun sína yfir
gjörðir forsætisráðherra í lántöku-
málinu og hneikslast mjög á grein
Tímans í síðasta tölublaði. Liggur
og við að farið sé að verja um-
mæli dönsku blaðanna'um Island.
„Meiðandi ummæli um land okkar
eru engin“ í dönsku blöðunum út
af lántökunni, segir Morgunblað-
ið. Alt- annað er eftir því. Kemur
þetta engum á óvart úr þeirri átt.
Morgunbl. og embættismennirn-
ir. I sama blaði hneikslast Morg-
unblaðið mjög á ummælum Tím-
ans í næstsíðasta blaði um embætt-
ismennina. það slær á þá strengi
að gera hlutaðeigendur að píslar-
vottum. það talar um „þrotlaust
strit“ embættismannanna, „gegn
sultarlaunum“, um „harmasögu“
þeirra við „seigdrepandi kjör“ o.
s. frv. það segir að Tíminn þekki
marga dugandi embættismenn.
Vitanlega. En Tíminn þekkir líka
marga ónytjunga í embættum,
reglulega landsómaga og suma sem
eru verra en það, lögbrjóta o. s.
frv. Aðalatriðið er ekki þetta, held-
ur hitt: að embættismennirnir eru
til fyrir landið, en landið ekki fyr-
ir embættismennina. Laun em-
bættismanna verða að miðast við
getu landsins. Sem stendur er
kostnaðurinn við embættismenn-
ina gjörsamlega að sliga lands-
sjóðinn, en síðasta alþingi gekk
inn á þá braut sem orðið getur til
að auka þann kostnað að miklum
mun. það þýðir ekki að benda á
að þessi og þessi embættismaður
verði í vandræðum, borgi landið
honum ekki tvöföld laun. Af
tvennu illu er betra að hann sé í
vandræðum, en að landið sé í
vandræðum. Fordæmið um tvö-
föld laun þriggja embættismanna
á einu ári getur dregið á eftir sér
tíföld útgjöld árlega. þetta er það
sem skilur Morgunblaðið og Tím-
ann. Tíminn vill fyrst og fremst
hugsa um hag landsins og sníða
„embættismannastakkinn“ eftir
efnum. Morgunblaðið hugsar
fyrst og fremst um embættis-
mennina, en síður um hitt, hvern-
ig landið eigi að geta risið undir
þeim.
Skotfélag er nýlega stofnað hér
í bænum. Stofnendur eru um 80.
Síra Friðrik Friðriksson er ný-
lega farinn utan og situr ýmsa
kirkjufundi.
Síra Jakob Kristinsson og þor-
bergur þórðarson málfræðingur
eru nýlega farnir utan og ætla að
sækja Guðspekisfund sem halda á
í París.
Allsherjar íþróttamót hófst á í-
þróttavellinum í gær og stendur
til 20. þ. m. Hófst skrúðganga á
Austurvelli stundu eftir hádegi
og var fyrst gengið að legstað
Jóns Sigurðssonar, ræða flutt þar
og lagður sveigur á leiðið. Síðan
var gengið suður á íþróttavöll,
mótið sett af formanni Iþrótta-
sambands íslands, ræður fluttar
fyrir minni konungs, Islands og
Noregs og þá hófust íþróttirnar.
Verður frá þeim sagt síðar. Kepp-
endur muriu vera fleiri en nokkru
sinni áður, en það sem einkum
prýðir mótið að þessu sinni er það,
að hópur úrvals íþróttamanna
norskra sækir mótið. Eru þeir 16
og eru félagsmenn í besta leikfim-
isfélagi Norðmanna í Kristjaníu.
Er kennari þeirra með þeim og
heitir Sverre Gröner. Komu þeir
beint frá Noregi með Sirius.
Björgun. Aðfaranótt 15. þ. m.
datt maður út af einni bryggj-
unni við höfnina og var nálega
druknaður. Bar þar að einn nætur-
varðanna, Guðbjörn Hansson.
Kastaði hann sér til sunds og
fékk bjargað manninum á síðustu
stundu.
Bannlagabrot. Um miðja vikuna
framkvæmdi lögreglan húsrann-
sókn hjá tveim mönnum hér í bæn-
um, sem grunaðir voru um ólög-
lega vínsölu. Fanst vín hjá þeim
Þakkarávarp
Kærar þakkir færi eg þeim, sem
heiðruðu útför konunnar minnar sál.,
Magnes 8. Jónsdóttur, með návist
sinni. Einnig þakka eg þeim mörgu
sem í’éttu okkur drengilega hjálpar-
hönd í hennar löngu veikindum, bæði
með rausnarlegum peninga-gjöfum og
margyíslegri annari hjálp, og var
eins og allir, sem til náðu, keptust við
að létta byrðina. Nöfn hirði eg ekki
um að greina, en bið guð að launa
þeim öllum af ríkdómi sinnar náðar
þegar þeim mest á liggur.
Hraunsási 20. maí 1921,
Sigurður Bjarnason.
Hvít lambskínn
kaupir hæsta verði
Jónas H. Jónsson,
Bárunni Reykjavík.
Sími 327. P. O. Box 231.
ItT-ý- loóls:.
Byltingin í Rússlandi
eftir Stefán Pétursson stud. jur.
Greinileg frásögn um bylting-
una í Rússlandi, tildrög hennar og
ástand þar, er hún hefir skapað.
Verð: 5 kr.
Fæst send út um land gegn póst-
kröfu. Skrifið til Guðgeirs Jóns-
sonar bókbindara, Hverfisgötu 34,
Reykjavík.
báðum. Annar þeirra heitir Helgi
Jósefsson en hinn Björn Halldórs-
son.
Flug til íslands. Talið er full-
ráðið að danskir flugmenn úr sjó-
liði Dana, ætli að fljúga hingað til
lands í sumar. Var danskur sjó-
liðsforingi á ferðinni hér í vor til
þess að rannsaka lendingarstaði.
Var búist við að lent yrði á Aust-
urlandi, enda er þangað styst leið.
Fjallvegir. Eins og í fyrra, er
nú aftur flokkur að fara af stað
til umbóta á fjallvegunum. Verð-
ur fyrst tekið fyrir að ryðja og
varða Kjalveg, það sem eftir er af
leiðinni frá Hvítá og norður að
Mælifelli: þvínæst á að endurbæta
leiðina frá Arnarvatni mikla og
suður að Kalmanstungu. Verður
það þriggja manna flokkur sem
vinnur. Halldór Jónasson frá
Hrauntúni hefir verkstjórnina
eins og áður. Er gott til þess að
vita að vegamálastjóri hefir góð-
an hug á að láta vinna þetta verk.
Mannalát. Látin er nýlega á
heimili sínu, Skálpastöðum í
Lundareykjadal, Guðbjörg hús-
freyja Aradóttir, kona Guðmund-
ar hreppstjóra Auðunnssonar;
merk kona og vel látin. — Enn-
fremur er nýlega látinn Einar
bóndi Hjálmsson í Munaðarnesi
í Mýrasýslu. Var hann bróðir Jóns
bónda í pingnesi og þeirra góð-
kunnu þingnessystkina.
Ræktun Fossvogs. Búnaðarfélag
íslands hefir farið fram á það við
bæjarstjórn að fá land í Fossvogi
til tilraunaræktar. Hefir fast-
eignanefnd komið fram með til-
lögur um að bærinn láni félaginu
10 hektara land í Fossvogi. Á fé-
lagið að skila því fullgrónu og í
tryggilegri rækt í september 1923
og á þá að meta ræktunarástand
þess. Á bæjarsjóður að greiða fé-
laginu 800 kr. fyrir hvern hektara
af fullræktuðu landi. Er félaginu
heimilað að taka þara úr fjörunni
fyrir landi bæjarins til áburðar á
landið. Bæjarstjórn á að sjá um
að landið sé varið. — Máli þessu
mun ekki vera endanlega til lykta
ráðið.
Málmleit. Bæjarstjórn hefir
veitt félagi einstakra manna léyfi
til málmleitar í landi bæjarins.
Ritstjóri:
Tryggvi pórhallsson
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta.