Tíminn - 20.08.1921, Síða 2
100
T 1 M I N N
og hitinn þegar gert mikið tjón.
Víða um landið er orðinn voðaleg-
ur vatnsskortur til drykkjar. pað
er talin hætta á að vatn þrjóti í
London og jafnvel búist við að
þar verði farið að skamta vatn.
Kornið gulnar á ökrunum og græn-
meti hefir stigið í verði um 100%
og er nú dýr'ara en það var nokkru
sinni á stríðsárunum.
— þýsk blöð ræða mjög um
uppskerubrestinn og hungursneyð-
ina í Rússlandi. Gera jafnvel ráð
fyrir að afleiðingarnar verði upp-
reist gegn Leninstjórninni. Færi
svo að Lenin steyptist úr stóli,
gera þýsku blöðin ráð fyrir að aft-
ur lendi í öfgunum gömlu: gamla
afturhaldsstjórnin muni á ný hefj-
ast þar til valda og hefja nýjar
blóðugar ofsóknir og manndráp.
— það var fyrst um miðjan síð-
astliðinn mánuð sem það var opin-
berlega tilkynt að búið væri að
hreinsa öll sprengidufl úr Norður-
sjónum.
— í Kína hefir starfað afarstór
VevÖbveytimgav.
Frá því í dag og fyrst um sinn er verðlag þannig:
Á kolum kr. 110,00 tonnið heimflutt.
" - sykri höggnum —- 1,20 kílóið — (í heildsölu).
• sykri steyttum — 1,10' — — ( — ).
Reykjavík, 17. ágúst, 1921.
Landsverslunin.
. ísl.
útvegar heint frá verksmiðjmmi hið viðurkenda
Mc. Dougalls haðlyf.
Frá útlöndum.
Andbanningar í Bandaríkjunum
ætluðu að nota frelsisdaginn síð-
astliðna (4. júlí) til stórkostlegra
mótmæla gegn bannlögunum.
Höfðu blöð þeirra löngu áður skor-
að á þjóðina að taka þátt í þessum
stórkostlegu mótmælum. t New
York átti mannsöfnuðurinn að
koma saman og hefja hina ógur-
legustu skrúðgögu til mótmæla.
Afarmikill undirbúningur var
gerður. Nokkru fyrir daginn sagði
aðalblað andbanninga frá því að
það væri nú fulltrygt að þátttak-
endur skrúðgöngunnar yrðu a. m.
k. 200 þúsund. það væim komin
skrifleg loforð frá svo mörgum.
Altaf væri að bætast í hinn vænt-
anlega hóp. önnur blöð andbann-
inga komust svo langt að áætla að
a. m. k. hálf miljón manna mundi
taka þátt í skrúðgöngunni. Loks
rann upp sá mikli dagur. það urðu
einar tólf þúsundir sem tóku þátt
í þessari gríðarkostnaðarsömu og
vel undirgúnu skrúðgöngu and-
banninga. Er þetta hið ljósasta
dæmi um fylgisleysi andbanning-
anna í Bandaríkjunum.
— Samkvæmt fyrirskipunum
Bandamanna er nú verið að rífa
niður öll virki á landamærum
þýskalands að austanverðu. En
um sama leyti eru Pólverjar að
reisa ný virki sín megin landamær-
anna, og hressa við hin gömlu.
Eru það franskir herfræðingar
sem því verki stjórna.
— Miklir skógarbrunar hafa ver-
ið víða um Svíþjóð.
— Enskur liðsforingi, Philipps
að nafni, er nýkominn heim til
Englands úr langri landkönnunar-
ferð um áður ókunn héröð í
Kongóríkinu í Afríku. Meðal ann-
ars sem þessi ferðalangur fann er
ný tegund af Górilla-öpum. Eru’
þeir afargrimmir og er talið að
þeir séu að líkamsbyggingu lík-
astir mönnum af öllum apategund-
um.
— Um allan norðurhluta Evrópu
hafa verið óvenjulegir þurkar og
víðar en á Rússlandi lítur út fyrir
uppskerubrest. Á þýskalandi eru
aftur á móti afbragðsgóðar upp-
skeruhorfur. það er búist við að
liveiti og rúguppskeran verði betri
en nokkru sinni áður.
— Rússar hafa nýlega keypt 20
flutningaskip af Norðmönnum og
eiga þau að vera í ferðum milli
Noregs og Arkhangelsk.
— Á Englandi hafa þurkarnir
Frá Canada.
Veturinn síðastliðni var í heild
sinni með bestu vetrum hér. Snjó-
fall á sumum stöðum varð að vísu
alt að því í meðallagi. Allan snjó
tók upp hér um mánaðamótin
mars og apríl. En fremur var köld
tíð og oftast frost um nætur fram
að 20. maí. Síðan hafa verið rign-
ingar og sólskin á víxl; engir sér-
legir hitar, en gróðrartíð hin besta.
Lítur því vel út allur gróður, bæði
á ökrum, sem snemma voru sánir
(hveiti), og óræktaðri jörð. Gripa-
höld voru góð og nægilegt hey til
fóðurs, sjálfsagt hjá mörgum
fymingar nokkrar. Hey var í
lágu verði lengstum í vetur, víða
svo lágt, að verðið hrökk sumstað-
ar aðeins til að borga flutnings-
kostnað með járnbrautum. Urðu
því ýmsir, sem safnað höfðu heyi
í fyrrasumar til sölu í vetur, fyrir
vonbrigðum og fjárhagshnekki,
því kaup var hátt í fyrrasumar,'
og dýrt að afla heyja. Gripaversl-
'un mjög treg og-verð á sláturgi’ip-
um fullum helmingi lægra en fyr-
ir tveim árum, og erfitt mjög að
selja annað en alda gripi. Húðir af
gripum og ull af sauðfé nær eink-
isvirði og stundum minna en það.
T. d. sendi bóndi einn í Vestur-
landinu nautshúð til verslunar í
Winnipeg, sem auglýst hafði að
hún keypti húðir, og fékk aftur
franskur banki undanfarin ár og
eiga Kínverjar þar inni mjög mik-
ið fé. Nú er það komið upp að
þessi banki er mjög tæpt staddur.
En það er talið að álit Frakklands
þar eystra bíði hinn mesta hnekki
fari bankinn á höfuðið. Er því bú-
ist við að franska ríkið vei’ði að
leggja bankanum margar miljónir
franka. Hafa orðið harðar sennur
um mál þetta á þingi Frakka.
— Við síðustu áramót var fólks-
fjöldinn í Svíþjóð 5,904,292. Hefir
fólkinu fjölgað um rúm 57 þúsund
á árinu.
— Alkunnugt er það að sambúð-
in er alls ekki góð milli Englands
og Bandaríkjanna. Ein aðalástæð-
an er kapphlaup beggja landanna
að ná undir sig olíulindum heims-
ins. Fyrir um 20 árum síðan var
olían nálega eingöngu notuð til
ljósa. En nú er hún orðin ómiss-
andi bæði í iðnaði og samgöngum.
Olíumótorarnir í heiminum skifta
nú hundruðum þúsunda og þeim
skipum fjölgar æ sem rekin eru
með olíu. Og í hernaði er olían nú
orðin jafnómissandi og púðrið.
Síðasta hálfa ár ófriðarins notuðu
herir og flotar Bandamanna nokk-
uð á aðra miljón smálesta af
bensíni og rúmleg'a tvær miljónir
smálesta' af olíu. öll ný herskip
Englendinga, Japana og Banda-
ríkjanna brenna olíu. Japanski
flotinn þarf 300 smálestir af olíu
á friðartímum árlega og 3 miljónir
smálesta í ófriði og enski flotinn
yfir 5 miljónir smálesta árlega í ó-
friði. Fyrir ófriðinn réðu Englend-
ingar yfir 2*/2% af olíulindum
heimsins en nú er talið að þeir
hafi náð undir sig meir en 60%.
Eru það einkum olíulindirnar í
Mexícó, Persíu, Mesópótamíu og á
Súmatra, sem Englendingar hafa
náð undir sig’. Bandaríkin eru olíu-
auðgasta land heimsins, en þörfin
er orðin svo mikil að þau þurfa
mikið að flytja inn og menn spá
því að eftir 16—20 ár verði olíu-
lindir Bandaríkjanna þrotnar.
pykir Bandaríkj amönnum Eng-
lendingar hafi verið alt of stór-
tækir í því að leggja undir sig
olíulindirnar.
— Maxim Gorki, hinn alkunni
rússneski rithöfundur hefir sent
út ávarp til mentaþjóðanna um að
koma til hjálpar miljónunum á
Rússlandi sem svelta. Iloover, sem
er formaður hjálþarnefndarinnar
í Bandaríkjunum hefir sent það
svar, að Rússland fái enga hjálp
fyr en búið sé að láta lausa þá
Bandaríkjaborgara, sem enn sitji
í fangelsum á Rússlandi.
— Deilan um Efri-Schlesíu
hai’ðnar altaf og ágreiningurinn
milli Bandamanna. Samkvæmt at-
kvæðagreiðslunni ætti langmestur
hluti landsins að verða áfram með
þýskalandi. En þarna ei’u lang-
stærstu kolanámur þýskalands og
því vilja Frakkar umfram alt láta
Pólverja fá landið. Er því altaf
frestað að binda enda á málið.
Englendingar og ftalir vilja láta
atkvæðagreiðsluna skera úr.
Fi-amkoma Frakka er bein afleið-
ing þeirrar stefnu þeþ'ra að ganga
á milli bols og höfuðs á þjóðverj-
um. Sum frönsku blöðin ganga nú
jafnvel svo langt að áfella Clemen-
ceau gamla harðlega fyrir það að
hann hafi samþykt það að þjóð-
aratkvæða væri leitað í Efri-
Schlesíu. ]>að hefði skilyrðislaust
átt að sameina landið Póllandi.
Lloyd George hafi þarna leikið á
Clemenceau. þessi deila Banda-
manna um Efri-Schlesíu er lang-
alvarlegasta deilumálið sem hefir
komið milli þeirra.
— Pétur Suður-Slafa konungur
er dáinn.
— Menn þykjast nú fyrst sjá
votta fyrir því að Austurríki ætli
að fara að rétta við. Útfluttar vör-
ur fyrstu þrjá mánuði þessa árs
voru helmingi meiri en sömu mán-
uði í fyrra.
— Enska stórblaðið ,,Times“
birtir skýrslu um það sem síðast
hefir fundist við gröftinn á Pom-
peji. Hafa fundist nylega um
2000 málverk ágætlega varðveitt.
pá hafa fundist bogagöng og
Kanga þar enn á veggjunum kosn-
ingaflugi’it og áskoranir. Á einum
stað fanst á altari askan af síðustu
fórnunum fyrir gosið, hinn 24.
ágúst árið 79 e. Kr. b. Á öðrum
stað var grafinn upp stór gilda-
skáli og þar var enn vín í leir-
krukkunum.
— í Berlín hefir lengi búið her-
foringi nokkur rússneskur að nafni
Freyberg. Rússneska.stjórnin hef-
ir hvað eftir annað mótmælt því
að fullgera Iludsonsflóabrautina.
Ýmsir telja ekki vonlaust að rík-
iskosningar fari fram í september
í haust, því aukakosningar eiga
að fara fram í 8 eða 9 kjördæmum
í sumar, og tapi stjórnin meiri
hluta þeirra, er ólíklegt talið að
hún hafi hugrekki til að sitja leng-
ur. En móti þeirri skoðun er það,
að manntal á að fara fram í Can-
ada í sumar, og þarafleiðandi
fjölgun þingmanna, einkum í
Vesturfylkjum, og hyggja víst
allir flokkar gott til glóðarinnar
að geta aukið atkvæðamagn sitt
með því að vinna hin nýju kjör-
dæmi.
I Saskatchewan eiga fylkiskosn-
ingar að fara fram í næsta mán-
uði. par er Líberalstjórn við
völd. I því fylki er bændahreyf-
ingin sterkust (United Farmers,
áður nefnt Grain Growers). Mar-
lin stjórnarformaður þar hefir
tekið þrjá eða fjóra Bændafélags-
menn í stjórn sína. Er talið víst
að eftir kosningarnar hafi bænda-
flokkurinn meiri hluta bæði á þingi
og í stjórn. Ýmsir æsingamenn
telja þessa aðferð- stjórnarfor-
mannsins refagildru til að veiða
bændaflokkinn inn í Liberalflokk-
inn og veikja með því áhrif hans.
En þeir sem gætnari eru telja ó-
líklegt ef bændaflokkurinn nær
meiri hluta í þingi og stjórn, að
hann svíki fremur stefnu sína þó
frjálslyndur stjórnarformaður úr
að Freyberg mætti vera á þýska-
landi, því að það er álitið að hann
sé einn af helstu leiðtogum hinna
rússnesku flóttamanna, sem eru
að undirbúa gegnbyltinguna á
Rússlandi. Mótmæli þessi komu
fyrir ekki. En seint í mánuðinum
sem leið bar svo við, um hábjart-
an dag, að sjö menn vopnaðir réð-
ust inn í hús Freybergs, þá er
hann var fjarverandi. Höfðu þeir
skorið niður símaþræðina til húss-
ins og kúguðu fólkið sem var í
húsinu til að leyfa þeim að láta
greypar sópa um skjöl hershöfð-
ingjans. Ilöfðu beir á ''”ott með
sér þrjá stóra kassa fulla af skjöl-
um, en peninga og annað verðmæti
létu þeir ósnert. Er talið að skjöl
þessi hafi gefið nánar unDlýsingar
um áform og skipulag gegnbylt-
ingamannanna. Há verðlaun hafa
verið boðin fram handa þeim sem
gæti komið upp um ræningjana,
en það hefir engan árangur borið.
Er talið víst að skjölin séu komin
í hendur rússnesku stjórnarinnar.
— það hefir lengi þótt bregða
við að menn gætu ekki verið ó-
hultir um líf og eignir á járnbraut-
unum frönsku. Bæði hafa slys ver-
ið tíð á járnbrautunum og’ í ann-
an stað hafa komið fyrir ræningja-
árásir við og við. Nýlega var hrað-
lest á leiðinni frá París til Mar-
seille. Grímuklæddir og vopnaðir
ræningjar stöðvuðu lestina og
rændu ferðamennina. Einn af far-
þegunum, ungur liðsforingi, reyndi
að veita viðnám, en var skotinn
vægðarlaust. Ekkert hefir síðan
frést til ræningjanna. — í júní-
mánuði komu tvö lík atvik fyrir.
Ræningjar réðust inn í stóra
skrautgripaverslun í miðri París,
rændu búðina og komust undan í
bíl. Suður í Pyreneafjöllum réðust
ræningjar á umboðsmann frönsku
stjórnarinnar sem þar var á ferð
með föruneyti, ræntu hann og
sluppu. — Frönsku blöðin eru æfa-
reið yfir þessum ránum og krefj-
ast þess af stjórninni að hún geri
ráðstafanir til að slíkt geti ekki
komið fyrir oftar. Segja að ferða-
menn muni alveg hætta að koma til
Frakklands eigi þeir á hættu að
verða fyrir slíku.
— Grikkir halda áfram sókn
sinni í Litlu-Asíu og veitir betur.
En Tyrkir munu ekki gugnaðir og
er talið að þeir séu í óða önn að
búa sig undir vetrarhernað.
— Samningarnir milli Englend-
inga og Sinn Feina virðast nú aft-
ur strandaðir. Segir Valera að
írska þjóðin geti- hvorki né vilji
gengið að sáttaboðinu. Ilann
öðrum flokki sitji við völd, því ef
hann reynist illa, hefir bænda-
flokkurinn ráð hans í hendi sér.
En geti þessi samvinna blessast,
eykur það afl fylkisins, því Liber-
alar og bændaflokkurinn eru þar
í mjög miklum meiri hluta.
Ilér í Manitoba hefir þingið
staðið yfir lengur en nokkurt ann-
að þing, sem háð hefir verið frá
því fylkið var stofnað. það byrj-
aði 15. febrúar og endaði ekki fyr
en 6. maí. Eins og getið mun hafa
verið í síðustu fréttum héðan, náði
enginn þingflokkur nægum at-
kvæðafjölda til þess að hafa meiri
hluta á þingi. Stjórnin hafði flest
atkvæði, 21 eða 22 af 55. Ilin
skiftust milli verkamanna, Conser-
vativa og Independent Farmers.
Ekki hafði sá síðastnefndi flokkur
fylgi United Fanners af Manitoba,
þó sumir í honum hafi ef til vill
fylgt sömu stefnu og United
Farmers. Enda riðlaðist sá flokk-
ur undir þinglokin. Sumir fylgdu
stjórninni og sumir sögðu sig úr
flokknum og ætla að vera óháðir
(Independent). Af því enginn and-
stæðingaflokkur hafði nægan at-
kvæðaafla til að taka að sér stjóm
og allar tilraunir þeirra til að sam-
eina sig til þess mishepnuðust, þá
sat stjómin við völd. Andstæðing-
ar hennar báru þungar sakir á
hana í kosningabaráttunni, bæði
um fjáreyðsluogóhreinar stjómar-
framkvæmdir, en þegar til fram-
kröfu um 15 cent, sem húðarverð-
ið hrökk ekki til að borga flutn-
ingskostnað með jámbrautinni!
Samt er skófatnaður og alt sem
úr húðum er gert, með afai’verði.
Lágt þykir líka hveitibændum
verð á hveitinu. það er mjög hvik-
ult, hæst upp í $ 1,80, en hafrar
og Barley (bygg) hlutfallslega
miklu ver borgað. Rjómi og smjör
hefir haldist í hæstu verði, þar til
nú. Fyrir mánuði síðan var bænd-
um borgað 50—55 cent fyrir pund-
ið í rjómafitu á smjörgerðarhús-
unum (Creamery). En síðastlið-
inn mánuð hefir rjómaverð fallið,
svo að nú fá bændur aðeins 28
cent fyrir pundið í smjörfitunni.
Hagur bænda er því ekki gróða-
vænlegur, því skattar og gjöld
hækka og margar vörur haldast
enn í nærri eins háu verði og á
stríðsárunum, þó ýmsar hafi nokk-
uð lækkað. Peningaþröng er því
meiri en sá er þetta ritar, man
eftir síðastliðin 18 ár, og bankarn-
ir tregir að lána. Verslun fremur
dauf og talið að margir „Business-
menn“ eigi örðugt uppdráttar
fjárhagslega. Vinnuleysi mikið og
kaup að lækka víða. En gengur
fremur tregt. Verkamenn segjast
ekki geta lækkað kaupið meðan
vörur séu með dýrtíðarverði, og
vinnuveitendur segja að varan geti
ekki fallið í verði meðan svo dýrt
sé að framleiða hana, vegna þess
að kaupið sé svo hátt. Metingur-
inn um, hvort eigi fyr að falla
kaupið eða vöruverðið. pó hefir alt
gengið rólega hér milli verka-
manna og vinnuveitenda, saman-
borið við undanfarin ár. Út lítur
fyrir að nægilegt peningamagn sé
í Canada, en bankarnir halda þeim
inni. í flestum eða öllum hag-
skýrslum bankanna er talið, að
næstliðið ár hafi verið gróðaár og
útbýtt 10% ársarði til hluthafa í
árslok.
í stjórnmálum eru veðrin úr
ýmsum áttum hér í Canada. Rík-
isþingið hefir nú setið síðan 15.
febrúar. Meighonstjórnin hefir
komið öllum sínum málum gegn-
um þingið. En meiri hluti hennar
er nú fallinn ofan í 20 atkv. úr 70
atkv. sem hún byrjaði með 1917 á
stjórnardögum Bordens, undir
nafninu Unionstjórn. Andstæðing-
ar hennar (Liberalar og Bænda-
flokkur) hafa hvað eftir annað
komið fram í þinginu með áskor-
un til hennar að ganga til kosn-
inga. En stjórnin neitað, og haft
meiri hluta þings með sér. Lands-
stjórinn hafði í boðskap sínum til
þingsins boðað nýja tolllöggjöf.
En stjórnin kom ekki með neina
nýja breytingu, aðeins hækkun á
sumum eldri tollum, til að fleyta
fjárhagsskútunni gegnum boða
ríkisskuldanna. Til fárra stór-
virkja lagt fé, svo sem til járn-
brautarbygginga, þar á meðal neit-
að að sinni að leggja fram fé til að