Tíminn - 27.08.1921, Page 1

Tíminn - 27.08.1921, Page 1
Reykjavík, 27. ágúst 1921 Alþýduskólixin á» Mvasimistang'Æ byrjar i. nóvember og starfar 6 mánuði. Aðgöngu fá bæði. piltar og stúlkur, allsstaðar að meðan rúm leyfir. Inntökuslkilyrði: Að vera vel læs og skrifandi, þekkja 4 höfuðgreinir reikningsins í heilum tölum og metrakerfi. Hafa ófiekkað mannorð og engan næman sjúkdóm. Nemendur liafa heimavist ef þeir vilja og matarfélag. Alt, sem þar að lýtur, verður undir búið fyrir þá. Helmingur áætlaðs kostnaðs greiðist í byrjun skólaársins, en ábyrgð gefin fyrir greiðslu hins. Skólinn veitir kenslu í öllum almennum námsgreinum, sem kendar eru á alþýðuskólum og lætur sér ant um framfarir nemenda. Umsóknir sendist fyrir 5. október. Undirritaður gefur nánari upplýsingar. Hvammstanga 18. ágúst 1921. Asgek Mag'is.'ússon skólastj óri Sesta sögnbébiu er Æfintýri eftir Jack London,. víðlesnasta söguskáld nútímans. Bóldn er 213 síður, prentuð á ágætan pappír með mynd höf- undarins, og kostíér að elllS ^ kl?«, sé hún pöntuð fyrir 1. okt- óber þ. á. Eftir það kostar hún 6 kr. Send gegn póstkröfu. _L. Áfgreiösla Alþýðnblaðsins, Reykjavík. Morgunblaðið tilkynnir það í gær — vafalaust í umboði lands- stjórnarinnar: „að samningar þeir um lántöku í Englandi, sem verið hafa á döf- inni í Englandi um tíma, séu full- gerðir, eða hér um bil, og er lánið nálægt 10 milj. kr.“ Um danska lánið, sem stjórn Is- landsbanka talaði um, segir blað- ið aftur á móti ekkert. Almenning- ur á íslandi fær sennilega ekkert um það að vita, hvort þar er búið að taka, eða verður bráðum tekið, annað miljónalán. Stjómin álítur sennilega að enga varði um það, aðra en stórlaxana við Morgun- blaðið. Eftir fyrri ummælum stjómar- blaðsins eiga svo þessar 10 milj. kr. að mestu leyti að felast hinum erlenda hluthafabanka. það á að verja þeim til þess að borga þær skuldir, sem útlendir og innlendir kaupsýslumenn hafa látið safnast fyrir í íslandsbanka í „yfirfærslu“- vandræðum hans. pessar skuldir eru þar með komnar yfir á herð- ar íslenskrar alþjóðar. Tíu miljónir króna, eru 100 kr. á hvert einasta nef á íslandi. — Eins atriðis verður enn að geta í sambandi við þessa lántöku. Síðustu dagana hefir sterling- pundið enska verið að hríðfalla, en danska krónan að stíga. Og alt út- lit er fyrir að áfram stefni í sömu áttina. Samkvæmt skeyti í gær jafn- gilti enskt pund þá kr. 21,65 dönsk- um. En fvrir rúmum mánuði, hinn 18. júlí, jafngilti enskt sterling- pund kr. 23,65 dönskum. Aðalhagurinn af því að taka enskt lán, fremur en danskt lán, var talinn sá, að gengið væri svo hátt á enskum peningum. Landsstjómin ætlar, eins og alt- af, að vera seinheppileg í fram- kvæmdum sínum. Henni virðist ætla að hepnast það prýðilega að draga ensku lántökuna þangað til gengið er orðið mjög lækkað á enskum peningum. það lsetur nærri, eftir núverandi gengi, að 10 milj. króna lán sam- svari hálfri miljón enskra punda. Nú skal þó gert ráð fyrir — sem vitanlega er þó alveg óvíst — að stjórninni hepnist að fá lánið áð- ur en pundið fellur enn meir. í dönskum krónum er þó lánsupp- hæðin einni miljón króna lægri, en ef lánið hefði verið tekið 18. júlí. það er dálagleg fúlga það. — þess gerist engin þörf að fjöl- yrða um alla ráðsmensku lands- stjórnarinnar — og forsætisráð- herrans sérstaklega.— í þessu lán- tökumáli. Almenningurinn á Is- landi er svo vel þroskaður að hann kann til fulls að dæma um það. En það má koma því að, í þessu sambandi, sem greindur og gætinn maður sagði nýlega við ritstjóra Tímans: „Aldrei hefir Islandi verið eins illa stjórnað og nú, alla tíð síðan það fékk fjárforræði árið 1874.“ pessi orð munu töluð út úr hjarta mikils þorra íslendinga nú. Ætli þeim fari ekki að vefjast tunga um tönn, mönnunum sem voru að ásaka Tímann um ábyrgð- arleysi, fyrir að leggja það til um þingtímann síðasta, að það væri a. m. k. reynt að mynda hæfari landsstjórn, Ætli þeim verði ekki fátt um svör, þingmönnunum, sem bera á- byrgð á þessu stjómarfari, Ilvoru megin er ábyrgðarleysið ? þeirra sem endilega vilja þetta stjórnarfar og ekkert annað? Eða þeirra sem vildu a. m. k. láta reyna að fá eitthvað betra? Almenningurinn er skyldugur að spyrja þingmennina, sem nú dvelj- ast flestir heima, hversvegna þeir hafi endilega viljað halda í þessa landsstjórn og þetta stjórnarfar. þingmennirnir eru skyldugir að gefa greið svör. ----0---- Spánartollurmn. Mikið gleðiefni er það öllum þorra Islendinga, hversu fregnirn- ar sem berast utan yfir pollinn eru eindregið í vil okkur, í viðleitni okkar að verjast kjúgunartilraun Spánverja. Frá Noregi og Spáni. 1. Fregnirnar staðfesta það full- komlega að stjómarskiftin síðustu í Noregi stöfuðu beinlínis af því að þinginu þótti gamla stjórnin norska ekki nógu ákveðin gegn kröfu Spánverja. Eitt aðalblað Dana, Berlingske Tidende, sem er mj ög ákveðið andbanningablað, segir frá því að sú flokkasamvinna sem steypti norsku stjórninni, hafi fyrst og fremst verið gerð vegna bannsins. Norska stjórnin sem nú situr, er beint skipuð með það fyrir augum að halda fast við bannið og láta ekki undan kröfu Spán- verja- 2. það virðist heldur ekki mikil ástæða til fyrir Norðmenn að láta undan, því að það er nú upplýst, bæði af norskum og spönskum fregnum, að þótt hái tollurinn gildi í orði kveðnu á norskum fiski sem ílyst til Spánai', þá hefir hann alls ekki verið krafinn. þessi hái toll- ur snertir alls ekki norska fiskinn. Spánslca stjórnin virðist alveg hafa gugnað í málinu. Ástæðan til þess mun vera hin tvöfalda mót- staða: frá Islendingum og Norð- mönnum annarsvegar og frá al- menningi á Spáni hinsvegar. 3. það eru komnar nánari fregn- ir frá Spáni. Mótþróinn á móti fisktollinum er enn meiri en menn hafa vitað um hingað til. Allur verkamannaflokkurinn er á móti tollinum og styðst fast við almenn- ingsálitið. Mikið af frjálslyndu þingmönnunum' sömuleiðis. Jafn- vel einn greifi, úr hægrimanna- flokknum, hafði áfelt stjórnina í þingræðu fyrir fisktollinn. — það eru vínframleiðendui-nir sem vilja fá tollinn. Og á bak við þá standa andbanningarnir víðsvegar um heim. Sterkur grunur liggur á því að andbanningar einhverjir í Nor- egi hafi róið á bak við, til skamm- ar og skaða fyrir land sitt. Ekki hefir sú alda enn verið rakin til andbanninga hér. Væri betur að sá grunur reyndist ástæðulaus.' 4. Vegna þessarar megnu and- stöðu gegn fisktollinum á Spáni hefir spánska stjórnin neyðst til að lýsa því yfir á spánska þinginu að tollhækkunin væri aðeins bráða- birgða neyðarúrræði og fisktollur- inn væri settur einungis til þess að seinja um hann. þetta tekur af öll tvímæli. Andbanningum og vín- framleiðendum hefir tekist það í bili að tefla spönsku stjórninni fram. Mótstaða íslands og Noregs annars vegar og almennings á Spáni hinsvegar, neyðir hana til að draga inn seglin. Heima á íslandi. Lítum á framkomu Morgun- blaðsins í þessu Ijósi. 1 gær birtist enn í blaðinu löng grein um málið, sem að nokkru leyti er persónulegar skammir um ritstjóra Tímans, að nokkru leyti eindregin áskorun um að láta und- an kröfum Spánverja. Af greininni er það tvímælalaust augljóst að blaðinu gengur ekkert annað til en það að fá vín flutt aftur inn í landið. Blaðið talar fjálglega um það hversu það væri mikil bót á bann- lögunum ef léttu vínin væru flutt inn. Já, við þekkjum söguna um skottlausu tófuna, sem stakk upp á því við hinar að þær skyldu stýfa af sér skottin. Morgunblaðs- mennirnir vilja öllu fónia fyrir þau eigin þægindi sín, að fá þessi vín að drekka. Blaðið talar um að léttu vínin (upp í 12 eða 14 gráður) séu „að allra dómi óskaðleg“. þessi um- mæli eru jafngömul bindindis- starfseminni á íslandi, af vín- drykkj uvörunum. Sterku drykkirnir „geta verið skaðlegir“, segir blaðið. Mikill vís- dómur er það. Morgunblaðinu gengur ekkert annað til en það að koma bannlög- unum fyrir kattarnef, og byrja á léttu vínunum. Og það ofan í þær fréttir sem nú berast frá Noregi og Spáni. Ef við íslendingar beygjum okk- ur undir spönsku kúgunina undir þessum kringumstæðum, þá fer vart hjá því að svar Norðmanna verði hár tollur á íslenskt saltkjöt. En Morgunblaðinu er alveg sama bæði um sjálfstæði landsins og afkomu landbúnaðarins, ef þeir menn sem að því standa einungis fá vín að drekka. ----o---- Samgöngurnar milli Reykjavíkur og Borgarness. Síðan póstferðum var farið að haga þannig, að póstur norður og vestur var fluttur sjóleiðis til Borgarness, hafa verið fastar á- ætlunarferðir með hann. Annaðist þær gufubáturinn Ingólfur um all- langt skeið, en er hann bilaði, tók sá bátur við þeim, sem enn er og heitir Skjöldur. Er hann svo lítill að mikið vantar til að hann full- nægi flutningaþörfinni milli stað- anna. Ennþá f jær er hann þó þvi að nægja sem farþegaskip, eins og öllum er ljóst, sem með honum hafa farið. Skýli hefir bátur þessi fyrir 10—15 manns, en þyrfti að geta komið um 100 manns undir þiljur í flestum ferðum, og mundi þó ekki vera nóg, því oft eru með honum mikið á annað hundrað far- þegar. það þarf ekki að lýsa líðan manna í ferðum með þessum bát. Allflestir verða að standa uppi á þilfari, og ekki er hugsað svo lítið um þægindi sem það, að fólkið geti sett sig niður á leiðinni. þegar Skjöldur byrjaði þessar férðir var litið svo á, að lands- stjórnin hefði út úr neyð fallist á að hafa hann, en einungis um stundarsakir. En nú lítur svo út að hann eigi að verða framtíðar- milliferðaskip, og það með sam- þykki og tilætlun Alþingis, því að eftir fráfall hins fyrra eiganda, Elíasai’ Stefánssonar útgerðar- manns, er báturinn keyptur af Eimskipafélagi Suðurlands bein- línis til þessara ferða, en skip það, sem þetta félag kvaðst kaupa til Faxaflóaferða — Suðurland — er látið sigla með stórkostlegum styrk úr landssjóði á aðra staði. Auk þess sem að frhman er getið um Skjöld, hefir mönnum komið mjög illa hve áætlunarferðimar hafa verið fáar, aðeins jafnmarg- ar og landpóstaferðirnar. Auka- ferðir koma ekki að notum fyrir almenning, því um þær vita ekki nema örfáir menn, helst þeir, sem á símastöðvum búa, og það með engum eða litlum fyrirvara. 35. blað þegar eigendaskii'ti uiðu í vetur á Skildi, gerðu menn sér vonir um að áætlunarferðir yrðu liaganlegri og fleiri en veiið hcfðu í tíð Elías- ar Stefánssonar. Menn þóttust geta vænst þess, þar eð í stjóm félagsins var maður, sem átti að vera nákunnugur högum og þörf- um héraðsins, þ. e. kaupfélags- stjóri Sigurður Runólfsson, og sem hefði átt að vera ljósir þeir ann- markar, sem voru á ferðunum undanfarin ár. þessar vonir hafa mjög brugð- ist, áætlunarferðirnar eru jafnfá- ar og áður, — einungis póstferðir. Ferðir þær, sem auglýstar eru með 1—2 daga fyrirvara í dagblöðun- um í Reykjavík, eru menn utan lteykjavíkur litlu eða engu bættari fyrir, og því ekki hægt að telja þær með. Ilinir nýju eigendur hafa ekki einungis skelt skolleyrunum við bættum samgöngum, heldur hafa þeir leyft sér að breyta áætlunar- ferðunum fyrirvaralítið eða sama sem fyrirvaralaust,þeir hafa þann- ig í þrjú skifti 1 vor og sumar lát- ið skipið fara til Reykjavíkur aft- úr sama dag og það kom, að á- stæðulausu eða ástæðulitlu, að því er virðist, nú síðast 13. þ. m. að sögn vegna þess, að fáeinir prent- arar í'Reykjavík höfðu óskað eftir að fá skipið til Viðeyjai’ daginn eftir. þetta hefir komið og kemur sér mjög illa. Menn hafa fram á þann tíma sem eigendaskiftin urðu mátt fullkomlega treysta því, að skipið færi ekki á undan áætlun sinni, og þeir miða því ferðalög sín við það; lialda oft áfram síðustu nóttina til að ná skipinu. Og þessu á að vera óhætt að treysta; breytingar slík- ar, sem að ofan getur, eru óafsak- anlegur hi'inglandah áttur, og fæst- :T leyfa sér gagnvart almenningi. þeir menn, sem ekki kunna að meta hve mikilsvert er að hafa á- reiðanlegar skipaferðir í samræmi við gerðar áætlanir, mega alls ekki hafa ráð yfir samgöngutækjum. Annað atriði viðvíkjandi Skildi þarf að víta, og það er hve dýrt er að fara og flytja með honum. Meðan hann var í eign Elíasar, var litið svo á, að fargjöld og farm- gjöld öll væni óhæfilega há, jafn- vel svo há, að skipið væri ekki not- andi þessvegna, enda virtist t. d. forstjóri kaupfélagsins oft forðast að flytja með því nema sem allra minst og ekki varð hjá komist. — þá kostaði kolatonnið 300 kr. og þai’ yfir, og allur annar kostnaður geysimikill. Nú kcsta kolin ekki nema 120 kr. tonnið, og kaup hef- ir lækkað, en þrátt fyrir þessa af- armiklu lækkun á kolum og eflaust mikla lækkun á öðru, eru flutn- ingsgjöld og fargjöld enn engu lægri en meðan alt var í hæsta verði. — Almenningur spyr hvern- ig þessu víki við. það er kunnugt, að Eimskipafélag Islands hefir lækkað farmgjöld verulega fyrir löngu, og sama er um Sameinaða- félagið. Mönnum er því óskiljan- legt, að gjöld þessi geti ekki lækk- að með þessu skipi líka, og því meiri ástæða sýnist til lækkunar, þegar þess er gætt, að núverandi eigendur fengu skipið með mjög vægu verði og að það nýtur styrks úr landssjóði til ferðanna, sem nemur 20 þús. kr. á ári. það virðist nauðsyn bera tií, að lagðar séu einhverjar hömlur á, hve há gjöld megi heimta fyrir flutning á vörum og mönnum með skipum þeim, er styrks njóta af

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.