Tíminn - 05.11.1921, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.11.1921, Blaðsíða 1
V. ár. Utan úr heimi Friðþjófur Nansen og Rússar. Friðþjófur Nansen varð sextug- ur alveg nýlega. Hans var þá minst í fjölmörgum blöðum og lof- inu á hann hlaðið, Hann var tal- inn einn hinn merkasti sonur Norð- urlanda núlifandi. En Nansen lét sér fátt um finnast. Hann hefir tekist það mikla starf á hendur að reyna að útvega mat handa 20—30 miljónum manna á Rússlandi, sem svelta og sem áreiðanlega deyja úr hungri fáist ekki hjálp. Hér er um svo mikið mál að ræða, segir Nan- sen, að ríkin verða að hjálpa til, hjálpfýsi einstakra manna nægir ekki. En hann fær ríkin ekki til að hefjast handa. Hann hefir farið til Moskva og gert samning við stjóm Rúss- lands, og h a n n álítur að sá samn- ingur sé tryggur. Og Nansen þekk- ir þetur til en nokkur annar. því að það var hann sem hafði yfirum- sjón með öllum herfangaflutningi frá Rússlandi og þá stóð Rússa- stjórn að öllu leyti við gerða samn- inga. Ríkin heimta tryggingar fyr- ir því að hjálpin veitist þeim sem þurfa. „En rússnesku stjórninni mun ekki síður um það ant, en þeim sem hjálpina veita vestan úr Evrópu, að rússneska þjóðin líði ekki undir lok“, segir Nansen. — pegar Nansen hafði knúð á dyr ríkjanna vestur í álfunni og feng- ið afsvar, kom hann á fund pjóða- bandalagsins í Genéve og flutti þar mikla ræðu og áhrifaríka. Hann hélt því fram afdráttarlaust, að það sem ylli því að ríkin fengj- ust ekki til að hjálpa væri grunur- inn um það að hjálpin myndi verða til þess að tryggja stjórn Rússa í sessi. „pessi ótti“, sagði Nansen, „stafar sumpart af þeim lygafregnum sem fluttar hafa ver- ið um það að rússneska stjórnin leggi undir sig alt sem flutt er til Rússlands, sumpart af óvináttu við ráðstjórnina“. „En“, segir hann ennfremur, „það á fremur við á Rússlandi, en í nokkru öðru landi, að það er ómögulegt að veita hjálp til fólksins framhjá stjórn- inni. Og, eg held ekki, að það muni styrkja ráðstjórnina að rússneska þjóðin fái að vita að vestur í Ev- rópu býr fólk sem fúst er að hjálpa rússnesku þjóðinni í sultin- um“. „En setjum nú svo að það styrki ráðstjórnina. Hver er það þá, sem dirfist að segja, að fremur eigi að láta 20 miljónir manna deyja úr hungri en að hjálpa ráðstjórn- inni“. petta er aðalatriðið í málaflutn- ingi Nansens. Að öll þessi orð, með eða móti ráðstjórninni, vegi svo lítið á móti hinu. Hann bendir á, að í Canada sé nóg korn afgangs til góðrar hjálpar. Og ekki vanti skipin til að flytja. Hann lauk máli sínu svo: „Er það hugsanlegt að Norðurálfan sitji hjá róleg, án þess að lata sækja fæðuna og bjarga fólkinu. Mér finst það vera óhugsandi. Eg treysti því, að Norðurálfan neyði stjórnirnar til að taka nýja ákvörðun“. pessi orð ber Nansen á vörun- um á sextugsafmæli sínu. Hann hefir að engu fagurgala blaðanna. Hamingjuóskin sem hann sækist eítir er sú, að hann fái stuðning um þá áskorun sem hann ber fram daglega fyrir þjóðir og stjórnir N orðurálf unnar. Reykjavík, 5. nóvember 1921 Sparnaðarnefnd. i. Sá er les útlendu blöðin, t d. þau dönsku um þessar mundir og lengi undanfarið, rekur sig altaf við og við á umræður um tillögur sparnaðarnefndanna. pað fór eins fyrir nágrönnum okkar og okkur að á stríðsárunum var stofnað til ýmislegs sem nú er óþarft orðið. Allra mest bar á em- bættis- og starfsmannafjölgun við opinber störf, langar leiðir úr hófi fram. Og margvíslegur rekstur op- inberra stofnana var orðinn alt of dýr og sumpart óþarfur. Stjórnmálamennirnir sáu að eitt helsta ráðið til að rétta við fjárhag ríkjanna, var það, að lækka hin föstu, árlegu útgjöld ríkissjóðsins. Til þess að geta gert það voru sparnaðarnefndirnar skipaðar. Á- rangurinn af starfsemi þeirra hef- ir víða orðið ágætur. Tillögur þeirra um starfsmanna- og em- bættismannafækkun hafa margar náð fram að ganga. Sá árlegi sparnaður sem framkvæmd þess- ara tillaga hefir í för með sér, skiftir, í Danmörku t. d., mörgum miljónum króna. II. Tíminn bar fram þá tillögu fyr- ir síðasta þing að horfið yrði að hinu sama ráði hér og benti á dæmin ytra, sem þá voru kunn. Tillagan fékk engan byr hjá stjórn og þingi. pað var alveg hið gagnstæða sem varð ofan á. Landsstjórnin lét bjóða sér fjár- aukalög og f járlög sem hefðu sæmt ríki sem hafði yfirfljótanlega pen- inga. Landsstjórnin brást alger- lega sinni æðstu skyldu um fjár- málastjórnina sem er sú: að krefj- ast þess af þinginu, að samræmi sé milli fjárveitinganna og afkomu þjóðarinnar. / Landsstjómarinnar æðsta mark- mið er að hanga við völdin og um mörg atriði beint herti hún á eyðslugáleysi þingsins. Og síðan hefir stjórnin ekki dregið úr, heldur bætt við embætti og starfsmannafjöldann. Síðan hefir stjórnin kastað út hundruðum þúsunda króna í tild- ursfagnað við konungsmóttöku, gestunum síst að skapi. Síðan hefir stjórnin rasað út í miljónalántöku með hinum ægileg- ustu ókjörum, veðsett tolltekjur landsins, borgað hundrúð þúsunda króna til íslenskra og erlendra milligöngumanna um lántökuna og bundið þjóðinni hina ægilegustu fjárhagsbyrði um mörg ár. pessu miljónalánsfé ver stjórn- in fyrst og fremst til þess að láta útlendan banka borga þær „spekú- latíónsskuldir“, sem hafa safnast fyrir hjá honum. Gamlar og nýjar skuldir. Andvirði glyssins og tískuvefnaðarins sem ljómar nú í mörgum búðagluggunum hér í bænuin, sem verið er enn að flytja inn nálega með hverju skipi. And- virði súkkulaðsins sem stjórnin gefur nú sérstökum mönnum leyfi til að flytja inn. Loks hefii’ stjórnin horft á það þegjandi og aðgerðalaus, að sá at- vinnuvegur landsins, sem mesta skatta hefir goldið ríkinu, er ná- lega stöðvaður og atvinnuleysið er meira en nokkru sinni. Meginið af árinu hafa flestir togaramir legið bundnir við hafnargarðinn. 1 Af hálfu hinnar íslensku ríkis- stjórnar, sem þetta mál kemur meira við en nokkrum öðrum aðila, hefir ekkert verið gert til að láta atvinnuveginn ekki stöðvast. Ætli þeir séu enn margir, þeir sem virða fyrir sér þessa stjórnar- athafnabeðju, sem bera Tímanum ábyrgðarleysi á brýn fyrir það, að hann vildi a. m. k. láta reyna það að mynda hæfari stjórn á síðasta þingi ? III. pað býst enginn við því, að stjórnin geri neitt til umbóta, hér eftir fremur en hingað til. En er þá einhver von um að þingið geri það? Saga landsins, síðan þingi lauk síðast, er svo alvarleg, að það fer varla hjá því, að mikill hluti þing- manna sjái, að eitthvað alvarlegt verður að'gera. Ókjaralántakan hlýtur að vekja þingmennina til alvarlegrar um- hugsunar. Undirstaðan undir alvarlegri til- raun til f járhagslegi-ai' viðreisnar íslands, hlýtur að vera sú, að færa hin árlegu föstu útgjöld ríkisins svo mikið niður, að atvinnuvegirn- ir geti borið byrðarnai’, og þeirri háskalegu stefnu sé endanlega lok- ið, að taka ókjaralán á lán ofan. Vegna þessara ótíðinda sem gerst hafa þetta ár, hefir Tíminn fremur von um það, að þingið skipi sparnaðarnefnd til þess að rífa mikið af þeim ofviðum sem núverandi stjórn og undanfarandi þing, hafa reist yfir þjóðina •— nefnd sem miskunnarlaust taki fyrir hvern einstakan lið hinnar opinberu starfrækslu og færi þá niður svo mjög sem hægt er. Og það er nú á kjósendanna valdi að gefa þingmönnunum hið mesta aðhald um að þetta sé gert. Kjósendur landsins eiga nú að krefjast þess, bæði hver einstakur' og á fundum, að þingmennirnir hVerfi að þessu ráði þegar á þing kemur. Hitt aðalatriðið er vitanlega það að skipuð sé ný landsstjórn sem hafi bæði vilja og getu til þess að stýra landinu á heilbrigðum grundvelli. ----o—— Ostagerðin í pingeyjarsýslu sið- astliðið sumar gekk lakar en búist var við. Fötur til mjólkurflutnings komu 2 vikum seinna en von var á og varð það til þess að nokkrir gengu frá á síðustu stundu. Inflú- ensan lagði framkvæmdastjórann, Jón A. Guðmundsson, í rúmið. Varð það til þess að eitthvað lít- ilsháttar af ostinum varð 2. flokks vara. prátt fyrir þessar misfellur eru pingeyingar ánægðir með til- raunina og munu hugsa til að fær- ast í aukana framvegis. Osturinn er talinn ágætur, en sala ekki um garð gengin og því ekki hægt um það að segja, hversu arðsamt fyr- irtækið reynist eða arðvænlegt í framtíðinni. Alls voru búnir til ostar úr 30 þús. lítrum mjólkur í stað 50 þús., sem áætlað var. Alls voru ostagerðarbú á 3 stöðum, Laxamýri, Narfastöðum og Landa- mótsseli, en geymslustaðir á Breiðumýri og Laxamýri. Látin er á heimili sínu, Torfa- stöðum í Vopnafirði Björg hús- freyja Halldórsdóttir, kona Hall- dórs bónda Stefánssonar. Voru þau hjón nýlega flutt þangað frá Hamborg í Fljótsdal. Björg sáluga var dóttir hins alkunna bónda Halldórs á Skriðuklaustri. 45. blað Hvað heimta Spánverjar? Tvent er einkennilegast í hinni hörðu deilu okkar íslendinga við Spánverja: 1. Að landsstjórnin skuli leyfa blaði sínu slíka framkomu í mál- inu. Hefir nú enn í síðustu blöðum Morgunblaðsins verið sunginn eft- væntingarsöngurinn eftir spönsku vínunum. 2. Að landsstjórnin skuli sem allra vandlegast loka fyrir það, að þeir sem berjast fyrir íslenska mál staðnum, fái fullar upplýsingar um það, hvað það er og hversu víð- tækt sem Spánverjar heimta af okkur. petta „pukur“ landsstjóm- arinnar með þetta, eins og annað, er Tímanúm enn óskiljanlegra, vegna þess, að það er víst að utan- ríkisstjórnin danska hefir viljað láta almenning á íslandi fá fullar og nánar fregnir um málið. — Eða á að líta á hvorttveggja sem staf- andi af hinu sama: að stjómin lætur blaðið hegða sér þannig og að hún neitar Islendingum um fulla vitneskju. — En það eru fleiri leiðir til. Norska stjórnin telur það skyldu sína að verja ágengni við Noreg. Norska stjórnin hefir birt kröfur Spánverja. Tekur Tíminn þær eft- ir einu Kristj aníublaðinu: 1. Norðmenn eiga að heimila Spánverjum að flytja inn 500 þús- und lítra af sterkum vínum. 2. Norðmenn verða að gefa tryggingu fyrir því, að sala þess- ara vína vei'ði á engan hátt heft og ef ríkið hafi einkasölu, þá skuli útsölustaðirnir vera hafðir sem víðast. 3. Spánverjar krefjast þess um þau vín sín, sem ekki ná 14% á- fengisstyrkleika, að mega blanda þau með spíritus. 4. Loks krefjast Spánverjar mestu tollhlunninda fyrir allar spánskar vörur sem flytjast til Noregs, en aðeins sumar norskar vörur eiga að njóta sömu hlunn- inda á Spáni. — petta eru aðalkröfurnar til Norðmanna. Fullyrt verður ekki um það, en það er sennilegt, að það séu svipaðar kröfur sem gerð- ar era til okkar. Ætli stjómarblaðið haldi því nú enn fram, að ekki sé um kúgun að ræða í innanlandsmálum okkar? Ef Spánverjar heimta að segja fyrir um það, að vínið þeirra sé selt sem víðast? Ef þeir heimta að fá að blanda með spíritus „léttu vínin“? Eru þau eins nauðsynleg og heilnæm „léttu vínin“, eftir að Spánverjar eru búnir að drýgja þau með spíritus? pó að þeir sem berjast fyrir ís- lenska málstaðnum hafi ekki feng- ið að vita um kröfur Spánverja, þá virðist Ijóst að Morgunblaðið hafi um þær vitað.Ummæli þess 5.þ.m. benda hiklaust í áttina. pau eru í svo nánu samræmi við þessar kröfur. Blaðið mælir svo sterk- lega með því að „frjáls verslun" sé með spönsku vínin, þ. e. frjáls verslun fyrir Spánverja, sem allra greiðastur vegur fyrir Spán- verja til að hella ofan í okkur „léttu vínunum“, blönduðum með spíritus. Ætli þess verði ekki krafist næst að hver einasti íslendingur verði að drekka vissa lítratölu af þess- um „heilnæmu“ spönsku vínum, til þess að hver einstaklingur geti náð þessari háleitu fullkomnun sem Morgunblaðið telur því sam- fara að drekka spönsk vín? --o-- Búsáhalda- sýui íiiiin. Beina- og fiskúrgangskvarnir voru tvær á sýningunni og sýndi Stefán B. Jónsson, kaupmaður í Reykjavík, kvarnir þessar. Önnur þeirra er til þess að mala í bein, ain einkum fyrir þorskhausa. Kvarnirnar gætu einkum komið að notum í sjávarþorpum, þar sem fiskúrgangur er notaður til fóðurs, því það er mikill vinnu- léttir að geta malað fiskbein í kvörnum. Tilbúinn áburðui', sýnishorn af honum voru frá tveim verslunar- húsum: Dansk Gödningskompagni og Norgessaltpeter. Sýningin var einkar fróðleg. pað voru sýnishorn af allskonar tilbúnum áburðarteg- undum og skýringar á því, hvernig þær eru tilbúnar. pá voru þar hlut- fallsmyndir af tilraunum um notkun áburðarefna og ýmsir smá- ritiingar um notkun og þýðingu til- búinna áburðarefna, og fékk hver sem vildi þessa smáritliga ókeyp- is. pessi sýning var gott dæmi -þess, hve mikið alment er gert er- lendis til þess að skýra notkun ým- issa hluta og fá menn til þess að notfæra sér þetta eða hitt. Alt það, sem gert er í þessa átt, er ef til vill eigi bygt á heilbrigðum grund- velli, en það má með sanni segja um tilbúinn áburð, að það er notk- un hans aðallega að þakka, að ný- yrkja og jarðrækt hafa tekið svo skjótum framförum, sem raun er á orðin, í nágrannalöndunum og víðar. Vér erum í þessu efni enn á frumstigi, en eigum vér að yrkja land vort, þá verður það eigi gert á annan hátt en með notkun tilbú- inna áburðarefna, og þessvegna er nauðsynlegt að vér öflum oss sem mestrar þekkingar á þeim sem fyrst. Sandgræðslan sýndi ýmislegt, sem að sandgræðslu laut, og hafði sandgræðsluvörður Gunnlaugur Kristmundsson undirbúið þá sýn- ingu; var hann sá eini af starfs- mönnum Búnaðarfélagsins, er gaf þannig lagaða skýringu á starfi sínu og er það þakkarvert, því slíkt er til mikilla leiðbeininga fyr- ir almenning. Á þessari sýningu voru nokkur kort yfir sandgræðslusvæði, þurk- aðar melplöntur (en þær eru aðal- lega ræktaðar á söndunum) á ýmsu þroskastigi og sást hin ein- kennilega rótargreining og vöxtur melgrassins mjög ljóslega. pá vora þar ýms verkfæri, sem höfð eru við sandgræðslu og reiðingur (melja), sem búinn er til af mel- rótum, og fleira. Dúnhreinsunarvélai- voru þrjár á sýningunni, tvær smíðaðar eftir fyrirmynd Guðmundar Davíðs- sonar á Hraunum í Skagafirði, og ein smíðuð af Antóníusi Björns- syni að Hoffelli, gerólík hinum fyr- töldu. Vélar Guðmundar þóttu betri. pessar dánhreinsunarvélar eru íslensk uppgötvun og hefir hepnast að gera þær svo vel úr garði, að að þeim er mikill vinnu- ^parnaður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.