Tíminn - 27.10.1923, Page 1
C2>jaíb£eri
o <3 afgretðslur’aður Círnans er
Stgurgetr ^riSrtfsfon,
Sambanösíjúsinu, Scyfjat>if.
JZ^fgrei&ðía
C i rtt a n s er { Sambanbsþúsmu.
(Dptn ö«$lega 9—\2 f. 1>.
Sími 496.
YII. ár.
Reykjavík 27. okt. 1923
Alfa-
Laval
skil vindnr
H’.-, - í;s;í':' . W
1 ' *' |ií •ni' •wííi 1
reynast best
Pantanir annast kaupfé-
lög út um land, og
Samband ísl. samviélaga.
»FúImenní«
Off
»ódrengir«.
I.
Óvenjulegt er að sjá slíka grein-
arfyrirsögn sem þessa, enda hafa
óvenjuleg tíðindi gerst.
Út af grein í síðasta tbl. Tím-
ans, um árás Gunnars Egilssonar
á David Östlund, hefir Gunnar rit-
að nýja greina um sama mál.
Meginið af þeirri grein eru ónot til
mín, en jafnframt er vikið að
fleiru og fleirum.
G. E. hefir orðið afarreiður yfir
því að vera mintur á ávarpið frá
bannmönnum í mars 1922, þar sem
því er lýst yfir, að þjóðinni sé skylt
að tortryggja Gunnar Egilsson í
því máli. Segir Gunnar að ávarp
þetta hafi verið sent eftir að Stór-
stúkan hafi gefið einhverja yfir-
lýsing til Einars Kvarans.
Má fyrst geta þess út af þessu,
að þarna fer Gunnar með rakalaus
ósannindi. Fyrst og fremst var yf-
irlýsing sú, sem hann mun eiga
við, alls ekki komin fram þegar
ávarpið var sent. Og í ánnan stað
fer hann algerlega rangt með yfir-
lýsinguna.
Hann heldur svo áfram og segir:
„Eg hefi sjaldan séð veist jafn-
fúlmannlega aftan að nokkrum
manni eins og hér var veist aftan
að Kvaran“ — með ávarpinu marg-
nefncla. Og ennfremur segir Gunn-
ar: „Eg legg það óhræddur undir
úrskurð hvers þess manns, sem
línur þessar les, hvort eg muni
ekki standa jafn keipréttur, þrátt
fyrir aðkast slíkra manna og þess-
ara, sem leyfa sér annað eins
ódrengskaparbragð og hér hefir
verið lýst“. (Leturbreytingar hér).
þetta eru skýr orð og afdráttar-
laus. Allir þessir menn sem rituðu
undir ávarpið, eru kallaðir fúl-
menni og ódrengir, og meira að
segja fúlmenni og ódrengir í
óvenjulega ríkum mæli, því að G.
E. hefir „sjaldan séð“ annað eins.
Eg hafði hinsvegar sagt, og G.
E. hneikslast mjög á því, að ávarp-
ið væri undirritað af „mörgum hin-
um merkustu borgurum Reykja-
víkur og (Gullbringu-) sýslunnar“.
Ætla eg nú að leggja það undir
dóm almennings, „óhræddur“ eins
og G. E„ hvor okkar fari með
réttara mál eg eða hann. Hann sem
kallar þessa menn „fúlmenni“ og
„ódrengi“ og eg sem tel þá marga
í röð hinna merkustu borgara.
Nöfn þeirra eru þá þessi:
Árni Jóhannsson bankaritari,
Bjarni þórarinsson præp. hon„
Gísli Jónasson kennari,
Haraldur Níelsson prófessor,
Sigurður Gunnarsson præp. hon.,
Sig. þorsteinsson síldarmatsm.,
Tryggvi þórhallsson ritstjóri,
Borgþór Jósefsson bæjai’gjaldk.,
Helgi Helgason verslunarm.,
Jónatan þorsteinsson kaupm.,
Páll Jónsson verslunarstjóri,
Sigurður Sigurðsson ráðun.,
Guðm. Jónsson sjóm.,
Magnús V. Jóhannesson sjóm.,
Ólafur Ólafsson fríkirkjupr.
Einar þórðarson skósmiður,
Felix Guðmundsson verkstjóri,
Friðrik Björnsson skipstjóvi,
Guðgeir Jónsson bókbindari,
þorsteinn J. Sigurðsson kaupm.,
Árni Sigurðsson nú fríkirkjupr.,
Andrés G. þormar símritari,
Björn 0. Björnsson nú prestur
á Ásum,
Guðm. Gamalíelsson bóksali,
S. Á. Gíslason cand. theol.,
Sigurjón Jónsson bóksali,
Sveinn Jónsson kaupmaður,
þorbergur Ólafsson rakari,
allir í Reykjavík.
Bjarni Sigurðsson,
Kr. F. Arndal,
Sveinn Auðunnsson,
allir í Hafnarfirði.
Einar Magnússon kennari,
Gísli Sighvatsson sjóm.,
Guðm. Jónsson sjóm.,
allir í Garði.
Guðrún Einarsdóttir,
Jensína Árnadóttir,
Jón Mathiessen,
Pétur V. Snæland,
Sigurgeir Gíslason,
öll í Hafnarfirði.
Einar Einarsson smiður,
Guðjón Egilsson sjóm.,
Guðm. Hannesson oddviti,
allir í Keflavík.
Björn Hallgrímsson útvegsbóndi,
Jarþrúður Bernharðsdóttir,
SigurðUr Kjartansson verslm.,
öll í Sandgerði.
Guðsteinn Einarsson sjóm.,
Ingv. Einarsdóttir,
Ólafur Árnason útvegsbóndi,
öll í Grindavík.
Bjarni Pétursson verkstjóri,
Flosi Sigurðsson trésmiður,
G. Sigurgeirsson verkstj.,
Ingólfur Jónsson stúd. jur.,
ísleifur Jónsson skólastjóri,
Kristj. Ó. Benediktsdóttir.
Otto N. þorláksson skipstjóri,
Pétur Zóphóníasson fulltrúi,
Kóbert þorbjörnsson bakari,
Sigvaldi Bjarnason trésmiður,
allir í Reykjavík.
II.
það er algengt í ritdeilum, að
kasta ókvæðisoi’ðum að andstæð-
ingnum. Venjulega þykir það ekki
bera vott um góðan málstað.
Eg kippi mér ekki upp við það
þótt G. E. kasti ókvæðisorðum að
mér. Eg er ýmsu vanur og skráp-
urinn er orðinn nokkuð þykkur.
En þetta er alveg óþekt áður í
íslenskri blaðamensku, að annar
málsaðili rangfæri fyrst málið og
kalli síðan f jölmennan hóp helstu
borgara fúlmenni og ódrengi.
Gunnar Egilsson er um margt
einstakur maður.
Hann er eini maðurinn á Is-
landi sem fengið hefir þennan
þunga dóm að sér kveðinn að
þjóðinni sé skylt að tortryggja
hann.
Og hann er eini maðurinn á ís-
landi sem dirfst hefir að kalla svo
marga merka menn fúlmenni og
ódrengi.
Og Morgunblaðið er eina blaðið
á Islandi sent birt hefir önnur eins
ósköp í dálkum sínum.
Slík framkoma sem þessi ber
vott um málstaðinn. Mikils þótti
Gunnari og Morgunblaðinu við
þurfa. Slík undur eru óheyrð áður
í ísrael.
Eg- öfunda Sigurð Eggerz for-
sætisráðherra ekki af því að hafa
sent þennan mann í nýjan leiðang-
ur til Spánar.
Eg ætla ekki að hælast um eins
og G. E. gerir í lolc sinnar grein-
ar. Eg þarf ekki að „hressa upp
á“ málstaðinn með því. Eg get lát-
ið mér nægja að skjóta málinu
„óhræddur“ til þjóðarinnar.
En eg ætla að spyrja templar-
ana:
Hvað ætlið þið að gera við Gunn-
ar Egilsson, manninn sem opinber-
lega kallar þessa fulltrúa ykkar
fúlmenni og ódrengi? Tr. þ.
-----0----
Gengið.
I dag skera borgarar íslands úr
því, hversu farið verður með mál-
efni þjóðarinnar næstu 4 ár. Um-
boð þingmannanna, sem kosningu
hljóta, er miðað við þann tíma. En
áhrifin af gerðum þeirra manna,
sem með umboðið fara þennan
tíma, ná miklu lengra fram í tím-
ann. Ástæður landsins eru nú
þannig, að nokkur alvarleg mistök
í verslunar- og fjármálunum á
næstu árum geta skapað varanlegt
hallærisástand í landinu.
Hvað er í húfi?
Verðmæti íslenskrar vinnu er í
húfi. Krónan íslenska hefir fallið
mikið í verði, alt að því um helm-
ing, frá því sem var fyrir stríð.
Og krónan er enn að falla. þeir
menn, sem best hafa vit á, segja,
að ef ekki verði komið föstu skipu-
lagi á fisksöluna, þá muni krónan
hrapa mikið í vetur. Að sama skapi
vex dýrtíðin.
Engin takmörk eru fyrir falli
peninga, þar sem óstjórn er á fjár-
og viðskiftamálum. Saga sigruðu
þjóðanna í Mið-Evrópu sannar það
glögglega.
íslendingar hafa ekki enn áttað
sig á gengisbölinu nema að litlu
leyti. Fyrir hlut frá Svíþjóð, sem
hefði átt að kosta 100 krónur, þarf
nú að borga 180 íslenskar krónur.
Svipaða aðstöðu hefir landið gagn-
vart fleiri löndum, þar á meðal
Englandi. Afborganir af skuldum
út á við verða því þungbærari sem
krónan fellur meir. Dýrtíðaruppbót
embættismanna hækkar eftir því
sem krónan fellur, og má þar ekki
miklu á bæta, svo að nærri stappi
fullu gjaldþroti landsins.
Hvei’jum er þetta ólán að kenna?
þeim sem hafa flutt hóflaust varn-
ing inn í landið, meira en þörf og
borgunargeta leyfði. þeim sem
hafa látið fiskverðið falla fyrir inn-
byrðis samkepni íslendinga. þeim
sem eins og Bjarni Jónsson, Sig.
Eggerz, J. M. og M. G. hafa aukið
embættabákn landsins langt fram
úr hófi, svo sem hæstarétt, ýmsar
skrifstofur í Reykjavík, sendi-
herratildrið, ausið fé íslandsbanka
út í laun og heiðurslaun, án tilefn-
is, 0. s. frv.
Viðreisn landsins er komin und-
ir því, að komið verði skipulagi á
innflutning og fisksölu um nokk-
urra ára skeið, og að komið verði
við algerðri breytingu 1 starfs-
mannahaldi landsins, þannig að
sameinuð verði störf í stórum stíl
og lögð niður embætti og sýslanir.
þjóðin dæmir í dag. Ef Fram-
sóknarflokkurinn verður í meiri-
hluta, getur hann leyst úr þessum
vandamálum öllum. Verði Mbl.-
flokkurinn í meiri hluta eða jafn-
sterkur, heldur þjóðin áfram að
síga niður á við í áttina að full-
kominni fjárhagslegri og menning-
arlegri eyðileggingu.
þjóðin dæmir í dag. Lán eða ólán
í þessum efnum eiga borgararnir
sjálfum sér að þakka eða kenna.
J. J.
----o---
Níðrit
/
um Landsbankaim.
það er öllum almenningi kunn-
ugt að Árni Árnason frá Höfðahól-
um hefir verið einn helsti rithöf-
undur Morgunblaðsins undanfarið.
Hefir hann ritað svo mikið í blað-
ið að telja má líklegt að hann sé
orðinn launaður starfsmaður við
blaðið.
Um miðja þessa viku fór það að
kvisast um bæinn, að Árni hefði
samið níðrit um Landsbankann. Og
nú er ritið komið út, ekki í Morg’-
unblaðinu, sennilega vegna
þrengsla nú um kosningarnar,
heldur í sérstökum ritlingi.
Ritlingurinn heitir: Landsbank-
inn og Bolchevisminn og er inni-
haldið eftir því. Árni þykist færa
rök fyrir því, að allir bankastjórar
Landsbankans séu á bandi Bolche-
vicka. Eru forsendurnar svo fárán-
legar að furðu gegnir að jafnvel
einn af blaðamönnum Morgun-
blaðsins skuli bera þær á borð.
Vitanlega verða það ekki aðrir
en nánustu samherjar Árna í
Morgunblaðsliðinu sem leggja
trúnað á þetta níð hans um Lands-
bankann eða taka undir kröfu hans
um rannsókn á bankanum.
Landsbankinn má vitanlega vel
við una. það hlýtur að vera banka-
stjórunum mikið gleðiefni að það
skuli vera slíkur maður, Morgun-
blaðsrithöfundurinn Árni frá
Höfðahólum, sem verður til þess
að ráðast á Landsbankann. því að
rit hans hafa altaf gagnstæð áhrif
við það sem hann ætlast tii.
þessi hlið málsins, sem að Árna
veit, er því fljótlega afgreidd. Eng-
um dettur í hug að svara honum.
38. blað
En hin hliðin veit að Morgun-
blaðinu. —
Vitanlega standa einhverjir á
bak við Árna um samning níðrits
þessa. Svo hefir venjulega verið áð-
ur þegar Árni hefir samið níðrit
sjálfur, eða feðrað fyrir aðra.
Hverjir standa á bak við Árna
um útgáfu níðritsins? munu marg-
ir spyrja.
Og þessari spurningu verður
beint til Morgunblaðsins.
þar sem Morgunblaðið hefir lát-
ið Áma rita fyrir sig fjölda
stj órnmálagreina og þar sem marg
ir halda að Árpi sé fastur starfs-
maður við Morgunblaðið, verður
Morgunblaðið að skýra frá hvort
það er samþykt þessu níðriti um
Landsbankann.
þegar einn af helstu flokks-
mönnum Morgunblaðsins gefur út
slíkt rit, verður flokkurinn sömu-
leiðis að gera grein fyrir afstöðu
sinni til þess.
Og annari spumingu verður
Morgunblaðið að svara um leið.
Stendur Morgunblaðið á bak við
það að níðrit þetta er gefið út á
síðustu stundu fyrir kosningarnar
og það er sent með bílum austur í
sveitir ?
þangað til Morgunblaðið hefir
gert hreint fyrir dyrum sínum í
þessu efni munu margir hugsa
margt.
Gamli málshátturinn er sannur
að „sækjast sér um líkir“.
Samstarf Morgunblaðsins og
Árna frá Höfðahólum er alkunn-
ugt. þangað til það afneitar honum
verður það að bera ábyrgð á hon-
um.
Við sjáum nú hvað setur.
----o---
Rangliermi
Morgunblaðsins.
Út af deilunni Gunnars Egils-
sonar og sendingu hans til Spánar
stendur smágrein í Morgunblaðinu
í gær. Segir þai’ meðal annars svo:
„Atvinnumálaráðherra Klemens
Jónsson hefir gefið út skipunar-
bréf hr. G. E. í þessa stöðu“.
Og svo'bætir blaðið við hæðnis-
orðum um þetta.
þessi ummæli Morgunblaðsins
eru tiihæfulaus ósannindi. Atvinnu
málaráðherra Klemens Jónsson
hefir ekki gefið út eða skrifað und-
ir neitt skipunaxbréf fyrir hr.
G. E.
Má segja að ekki er hvítt að
velkja, því að Morgunblaðið hefir
margsinnis áður verið staðið að op-
inberum ósannindum.
þeim verður heldur ekki flökurt
af því að éta dálítið ofan í sig á
bænum þeim.
----o---
Afturkölluð framboð. Enn hafa
tveir frambjóðendur afturkallað
framboð sín: Ólafur Friðriksson í
Vestmannaeyjum og Eggert Leví
í Vestur-Húnavatnssýslu. Eigast
þeir þá einir við í Vestmannaeyj-
um: Karl Einarsson sýslumaður og
Jóhann kaupmaður Jósefsson, og í
Vestur-Húnavatnssýslu: Jakob
Líndal og þórarinn Jónsson.
Isfisksala. Togaramir stunda nú
ísfiski af kappi. Gengur salan vel
í Englandi.