Tíminn - 17.11.1923, Blaðsíða 2
154
T 1 M I N N
Hérmeð tilkynnist vinum og vanda-
mönnum, að konan min, Guðrún Páls-
dóttir, andaðist að heimili sinu, Meium
á Kjalarnesi 15. þ. m.
pórður Elisson.
Fjórir föðurlandsvinir
Svo sem kunnugt er voru þeir
Bjami frá Vogi, Einar Arnórsson
og Jóhannes Jóhannesson kosnir í
nefnd 1919, til aö hafa stuttan
fund með jafnmörgum dönskum
mönnum einu sinni á ári, til að
ræða um löggjöf beggja landa, að
hún ekki rekist á í einstökum at-
riðum. Jón Magnússon, sem er einn
í hinu svokallaða sparnaðarbanda-
lagi, ánafnaði hverjum þeirra 2000
króna þóknun árlega fyrir starfið,
auk ferðakostnaðar, eftir reikn-
ingi. Nú mátti heita, að þetta sætti
furðu, þar sem allir mennirnir
voru áður á landssjóðslaunum og
unnu þetta aukastarf á þeim tíma,
sem þeir annars voru ráðnir hjá
landinu og borgað fyrir. 1 Tíman-
um var sýnt fram á, hversu mikil
ósvinna þetta var. Treystust Mbl.-
þingmennimir ekki að mæla athæfi
Jóns eða þeirra þremenninganna
bót, svo að laun hvers þeirra um
sig vora færð niður í 500 kr. árlega.
Var þetta samt of mikið, því að
ekki gátu mennimir tvíselt vinnu-
kraft sinn. þeir áttu vitanlega að-
eins að fá ferðakostnað og annað
ekki fyrir þetta litla viðbótarstarf.
En Bjarni, Einar og Jóhannes
undu þessu hið versta. þeir töldu,
að Jón hefði lofað sér peningunum.
Landssjóður yrði að borga. Ekki
virðist þeim hafa hugkvæmst
sjálfsagðasta leiðin, að heimta pen-
ingana af Jóni sjálfum.
Ósvífni þeirra félaga reið ekki
við einteiming. þeir afréðu að fara
í mál við landið. Reyna að ná í pen-
ingana, hvað sem öðru liði. Eftir
kenningu þeirra var fjárveitingar-
valdið ekki hjá þinginu, heldur hjá
stjórninni.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
mun hafa felt dóminn í undirrétti.
Jóhannes gat því miður ekki dæmt
í þessu máli, né heldur látið sinn
„litla son“ gera það. Og landið
vann málið, eins og hver heilvita
maður vissi fyrirfram. Ekki létu
þessir þrír kumpánar sér segjast
að heldur. þeir stefndu málinu
fyrir hæstarétt. Dómur þar er ný-
fallinn. peir töpuðu enn, og urðu að
borga 150 kr. í málskostnað. Aldrei
hefir nefnd kosin af þingi íslend-
inga, sýnt slíkan smásálarskap, eða
fengið verðskuldaðri snoppung
fyrir framferði sitt. Mun þess lengi
minst, að fégirnd og vöntun á til-
finningu fyrir því, hvað sæmilegt
er, skyldi leiða þrjá af trúnaðar-
mönnum landsins út í slíka ófæru.
Eftir að undirdómurinn var kom
inn, munu þeir Einar og Jóhannes
hafa farið að átta sig á, að þeir
myndu tapa málinu. þeir fundu þá
nýjan veg til að bjarga sér og
þeirra ólögfróða félaga. peir lágu
margar vikur aðgerðalausir úti í
Khöfn, og heimtuðu að sendiherr-
ann greiddi þeim 50 krónur á dag
hverjum í ferðakostnað. Með þessu
móti tókst þeim að halda kostnað-
inum fyrir landið jafnhátt uppi
eins og þó hver þeirra hefði haft
2000 kr. í laun.
Magnús Guðmundsson er sá
fjórði úr „sparnaðarsamtökunum",
sem leggur landinu sinn litla fórn-
arskerf. Hann kvað vera búinn að
tapa einu, ef ekki tveimur málum
fyrir hæstarétti, þar sem hann var
að reyna að hjálpa einhverjum úr
„kærleiksheimilinu" til að sleppa
undan að borga tekjuskatt 1 lands-
sjóð, samkvæmt þeim lögum, sem
hann sjálfur hefir verið með til að
gera.
Af ávöxtunum skuluð þér þekkja
þá. - X.
——o------
Kosningablað Magnúsar Guð-
mundssonar hefir fyrir margra
hluta sakir verið einstakt blað á
Islandi. Og nú bætist það ofan á,
sem alveg er óheyrt áður í íslenskri
blaðamensku.
Fer hér á eftir opinberlega stað-
fest plagg, af fulltrúa bæjarfóget-
ans í Reykjavík, sem flettir ofan
af blaðamenskunni:
EFTIRRIT
af grein úr Verði 9. nóv. 1923.
Kosningamar.
I Skagafjarðarsýslu voru gömlu
þingmennimir endurkosnir: Magn-
ús Guðmundsson málafærslumað-
ur með 901 atkv. og Jún Sigurðs-
son bóndi á Reynistað með 839
atkv. Jósep Björnsson, kennari á
Hólum fékk 495 atkv. og Pétur
Jónsson bóndi á Frostastöðum 423
atkv. Magnús og Jón eru báðir í
Morgunblaðinu.
í Skagafjarðarsýslu vora gömlu
þingmennirnir endurkosnir: Magn-
ús Guðmundsson málafærslumao-
ur með 901 atkv. og Jón Sigurðs-
son bóndi á Reynistað með 839
atkv. Jósep Björnsson kennari á
Hólum fékk 495 atkv. og Pétur
Jónsson bóndi á Frostastöðum 423
atkv.
Að ofan ritað sé algjörlega sam-
hljóða mér sýndum frumritum af
blaðinu Verði, tveimur blöðum báð-
um dagsettum 9. nóv. 1923 vottar
notariealiter eftir nákvæman sam-
anburð.
Notarius publicus 1 Reykjavík
16. nóvember 1923.
Kristinn Ölafsson, ftr.
Gjald: 1.50
ein króna og fimtíu
Greitt. Kr. Öl.
Sjá nú allir fljótlega, hvað hér
hefir átt sér stað.
Af sama tölublaðinu eru gefin út
tvö ósamhljóða eintök um það,
hvernig sagt er frá úrslitum kosn-
ingarinnar í Skagafjarðarsýslu. I
fyrra eintakinu er því bætt við
frásögnina: „Magnús og Jón eru
báðir í Morgunblaðinu“, þ. e. í
Morgunblaðsliðinu. I síðara ein-
takinu er þessari viðbót slept.
Fyrra eintakið keypti ritstjóri
Tímans á götu í Reykjavík. það er
með öðrum orðum sú útgáfan, sem
Reykvíkingum er ætluð.
Síðara eintakið barst í pósti fá-
um dögum síðar. það er það ein-
takið, sem sent er út um land.
þetta heitir að leika tveim
skjöldum og það gefst aldrei vel til
lengdar.
Gagnvart Reykvíkingum játar
blaðið, það sem og er öllum kunn-
ugt hér syðra, að Magnús og Jón
eru í Morgunblaðsliðinu.
En norður í Skagafirði, og út
um sveitir yfirleitt, má sú fregn
ekki berast. þessvegna er þetta
felt úr bændaútgáfunni.
111 var hin fyrsta ganga kosn-
ingasnepilsins Magnúsar Guð-
mundssonar. Hefir sá leikur verið
leikinn fyrir kosningarnar að þeir
töldu sig ekki Mbl.menn M. G. og
nánustu fylgifiskar hans.
Nú er gríman fallin.
Héðanaf mun það ekki takast að
leika tveim skjöldum.
----o-----
Bækur. Axel Thorsteinsson hefir
nýlega gefið út nýja bók: Æfintýri
íslendings. Eru það minningar um
landa, sem höf. kyntist í New
York. — Árni Jóhannesson banka-
ritari gefur út fyrirlestur sinn:
Vormerki. Eru það hugleiðingar
einkum um spádóma Daníels og
Opinberunarbókarinnar. Niðurstað
an er sú, að „hver samviskusamur
maður hlýtur að játa: að spádóm-
arnir eru hvorki meira né minna
en fyrir fram skrifuð veraldar-
saga — að veraldarsagan er ekk-
ert annað en uppfylling spádóm-
anna“.
—-—o------
Vantraustsyfirlýsing.
I þessa árs árgangi Illínar, sem
er ársrit Sambands norðlenskra
kvenna, er birt fundargerð sam-
bandsfundar norðlenskra kvenna,
sem haldinn var í hátíðasal gagn-
fræðaskólans á Akureyri í júlí-
mánuði síðastliðnum. Er fundur
þessi hinn tíundi sem Sambandið
hefir haldið.
Fundinn sátu fulltrúar frá níu
kvenfélögum og voru þar rædd
mörg merk áhugamál kvenna, eiris
og fundargerðin ber með sér.
En 17. liður fundargerðarinnar
hljóðar á þessa leið:
„Nokkrar umræður urðu um
framkomu kvenfulltrúans, Ingi-
bjargar H. Bjarnason, á Alþingi, í
bannmálinu og hússtjórnarskóla-
málinu. Frummælandi Elísabet
Eiríksdóttir frá Sveðjustöðum.
Létu fundarkonur almenna óá-
nægju í ljós, sérstaklega yfir því,
að fyrsti kvenfulltrúi íslands
skyldi greiða atkvæði með tillögu
sem er bannlögunum til niður-
dreps“.
----o----
Yfir landamærin.
Bjarni frá Vogi sagði nýlega
vestur í Dölum frá vísu, sem hann
hefði gert 10 ára. pá sagði einn,
sem viðstaddur var, sem vissi um
60 ára afmælið: „Er yður ekki far-
ið að leiðast að hnoða leirinn í 50
ár?“
I Ameríku leggja auðfélögin oft
stórfé fram til kosninga, og hafa
svo heila hópa af þingmönnum upp
á vasann. Grunur leikur á, að ame-
rískt félag, sem telur sig hafa hér
hagsmuna að gæta, hafi ausið hér
út fé til styrktar sumum Mbl.-
mönnum. Ef einhverjir af þessum
mönnum, eða flokkurinn í heild
sinni fer beint eða óbeint að vinna
á þingi fyrir þessa útlendu hags-
muni, er sökin sönnuð. þá sannast
I á sjálfstæði Islands hið forna orð
Kaupið
íslenskar vörur!
HreinS. Blautsápa
HreinS. Stangasápa
Hreini Handsápur
Hrein® K e rti
Hrein£ Skósverta
Hreins. Gólfáburður
Styðjið íslenskan
iðnaðl
Filippusar konungs: pað er auðvelt
að vinna þá borg, þar sem asni,
klyfjaður af gulli, kemst inn um
borgarhliðin. X.
---a--
Tilkynning
um happdrætti stúdenta.
Sökum ófullnægjandi skila frá
útsölumönnum happdrættisseðla
vorra, gátum vér eigi dregið um
happdrættið þ. 1. nóv., eins og
fyrst var ákveðið. Megum vér eigi
láta drátt fara fram um aðra
seðla en þá, sem seldir eru og full
skilagrein er fengin fyrir. Nú hef-
ir Stjórnarráðið veitt oss frest til
1. febr., og skorum vér á alla út-
sölumenn, sem ennþá eiga eftir að
gera skil, að láta það eigi dragast,
og gera það eigi síðar en svo, að
lokaskil séu komin í vorar hendur
þ. 25 janúar n. k.
Séu engin skil komin fyrir þann
tíma, verðum vér að líta svo á, að
hlutaðeigandi útsölumenn séu því
samþykkir, að vér skuldum þá
fyrir þeim seðlum, sem þá liggja
hjá þeim.
Virðingarfylst
Reykjavík þ. 16. nóv. 1923.
Happdrættisnefnd stúdentaráðsins.
----o-----
Bruni. I Götu í Ásahreppi í
Rangárvallasýslu kviknaði nýlega í
íbúðarhúsi, frá ofnpípu, og brann
til kaldra kola. Nokkuð brann af
innanstokksmunum. Húsið var lágt
vátrygt.
Látinn er hér í bænum síðastlið-
inn sunnudagsmorgun síra Jón
Thorsteinsen; lét hann af prests-
skap í síðastliðnum fardögum og
fluttist hingað. Hafði þá þjónað
pingvöllum í 37 ár. Síra Jón var
sonur Jónasar Thorsteinsen sýslu-
manns á Eskifirði, bróðir frú Elín-
ar konu Magnúsar landshöfðingja.
Skörungur var hann ekki, en fram-
TAPAST
hafa frá Elliðavatni í september 3
hestar:
1. Ljósgrár (hvítur) 11 vetra.
Mark: tvírifað í stúf vinstra, biti
framan.
2. Ljós-blágrár 10 vetra. Mark:
biti aftan vinstra.
3. Jarpskjóttur 5 vetra.
Hestarnir era allir aljárnaðir.
Upplýsingar óskast símaöar hið
allra fyrsta til
Steiiidórs Gunnlaugssonar
lögfræðings,
Reykjavík.
Jörð óskast til kaups og ábúðar
helst austanfjalls eða í Borgar-
firði. Tilboð merkt: Sauðjörð, með
nákvæmum upplýsingum og sölu-
skilyrðum afhendist afgreiðslu
Tímans.
Tapast hefir hnakkur á vegin-
um frá pjórsá að Ægissíðu. Fimi-
andi vinsamlegast beðinn að gera
aðvart að Hemlu.
úrskarandi vandaður maður,
grandvar um alla hluti og til fylsta
sóma stétt sinni. Kona hans lifir
hann, Guðbjörg dóttir Hermanníus
ar sýslumanns Johnsens, og eiga
þau fjögur börn á lífi. Er elsta
dóttir þeirra gift Helga Bergs bók-
haldara í Sláturfélaginu.
Látin er aðfaranótt 15. þ. m.
Ingiríður húsfreyja Gunnarsdóttir
á Selalæk, ekkja hins merka bónda
Sigurðar Guðmundssonar á Sela-
læk. liún var stórmerk kona.
Gunnar lögfræðingur er sonur
þeirra og dætur nokkrar.
Norður-Múlasýsla. Kosnir eru
Haildór Stelansson bóndi á Torfa-
stöðum með 416 atkv. og Árni Jóns
son frá Múla, verslunarstjóri með
414 atkv. porsteinn M. Jónsson
fékk 311 atkv., Björn Hallsson
293 atkv. og Jón Sveinsson 280
atkv. Halldór er Framsóknarflokks
maður, en óvíst mun vera hvar
Árni skipar sér í flokk.
Smyglun sannaðist nýlega á yf-
irþjóninn á Esjunni, danskan
mann, Victor Overbye að nafni.
Fundust hjá honum 13 flöskur af
spíritus og tollsviknar sígarettur.
Slíkan mann getur landið ekki haft
lengur í þjónustu sinni.
Alvarlegt mál. Enska stjórnin
hefir rofið þingið og fara nýjar
kosningar fram 6. næsta mánaðar.
Kosningarnar snúast um verndar-
tollastefnu stjórnarinnar. Eru úr-
slit þeirra kosninga næsta alvar-
legt mál fyrir okkar land. Verði
verndartollastefnan sigursælli, er
lítill vafi á, að tollur verður lagð-
ur á ísfiskinn, sem togararnir okk-
ar flytja til Englands og sömuleið-
is á kældakjötið sem Sambandið er
byrjað að flytja þangað. Gæti og
hugsast, að tollur yrði lagður á
innflutta hesta. Verður nánar
skýrt frá máli þessu í næsta blaði.
Ófrétt er nú aðeins um kosn-
ingaúrslitin í Barðastrandarsýslu.
Hefir frést að telja eigi 20. þ. m.
Sigurður Kristinsson forstjóri
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga fór utan nýlega.
Sigurjón Sigurðsson kaupfélags-
stjóri á Ilólmavík lætur af því
starfi í vetur. Tekur við því starfi
Jónatan Benediktsson frá Smá-
hömram í Tungusveit í Stein-
grímsfirði.
Kaupið þér Iðunni?
Hún kostar aðeins 7 kr.
Afgreiðsla Bergstaðastræti 9,
Reykjavík.
Ritstjóri: Tryggvi pórhallsson.
Laufási. Sími 91.
Prentsmiðjan Acta h/f.
Smásöluverð á tóbaki
má ekki vera hærra en liér segir:
lE^eyrlctó'ba.lc:
Westward Ho.......... pr. lbs. kr. 12.10
Bright Birds Eye..... pr. lbs. kr. 11.50
Best Birds Eye....... pr. lbs. kr. 13.25
Queen of the City.... pr. lbs. kr. 8.65
Pioneer Brand........ pr. lbs. kr. 13.80
Traveller Brand...... pr. Ibs. kr. 13.80
Utan Reykjavíkur má verðið vera því hærra, sem nemur flutn-
ingskostnaði frá Reykjavík til sölustaðar, en þó ekki yfir 2°/0.
Xjsm.d.svrersluLia..
Baraasöngvar,
(safnað hafa Elín og Jón Laxdal 1917—18)
sem öll böra þurfa að eígnast
fyrír jólín.
Fást hjá öllum bóksölum landsins. Aðalútsala:
Bókaverslun ísafoldar.