Tíminn - 17.05.1924, Síða 1
Reykjavík 17. maí 1924
Fvamsóknavflokkuvinn á Alþingi.
Gruðmundur Ólafsson,
bóndi i Asi,
' þm. A.-Hún.
Jónas Jónsson,
skólastjóri Rvik,
5. landskj. þm.
Halldór Stefánsson,
bóndi á Torfastöðum,
1. þm. N.-Múl.
Ingvar Pálmason,
bóndi i Nesstekk,
2. þm. S.-Múl.
Bernh. Stefánsson, Ásg. Ásgeirsson, Einar Árnason, Ingólfur Bjarnarson, Jör. Brynjólfsson, Pétur Þórðarson,
bóndi á Þverá, kennari I Laufási, bóndi á Eyrarlandi, bóndi i Fjósatungu, bóndi i Skálholti, bóndi i Hjörsey,
2. þm. Eyf. þm. Y.-ísf. 1. þm. Eyf. þm. S.-Þing. 2. þm. Árn. þm. Mýr.
Tryggvi Þórhallsson, Klemens Jónsson, Þorleifur Jónsson, Sigurður Jónsson, Sveiun Ólafsson,
ritstjóri i Laufási, fyrv. ráðh. Rvík, bóndi á Hólum, fyrv. ráðh. Ystafelli, bóndi i Firði,
þm. Strand. 2. þm, Rang. þm. A.-Skaft. 2. landslij. þm. 1. þm. S.-Múl.
©)aíbfer!
09 afgretðslur’aður (Eimans er
Stgurgetr ^riftrtfsfori,
Sambanósþúsinu, Heyfjauíf.
YIII. ár.
Búnaðarlánadeild
Landsbanlcans.
Ein höfuðástæðan til þess hve
landbúnaðurinn hefir dregist aft-
ur úr í samkepninni við sjávarút-
veginn, er sú, að engin stofnun
hefir verið til, sem veitti bændum
lán við atvinnuvegarins hæfi.
Sjávarútvegurinn og kaupstaðabú-
arnir hafa notað langsamlega
mestan hlutann af veltufé landsins.
Svo hefir lengi verið og búið
bændum þröngan kost. En fjár-
kreppan, töp bankanna og verðfall
krónunnar, hafa Isitt af sér geysi-
mikla hækkun á vöxtum. Eins og
vant er rignir jafnt yfir réttláta
sem rangláta. þótt háu vextirnir
séu á engan hátt bændum að
kenna, koma afleiðingarnar niður
á öllum sem lána vildu leita í bönk-
unum. þessvegna hefir það verið
svo allra síðustu árin, að bankarn-
ir hafa nálega verið lokaðir fyrir
bændum. Landbúnaðurinn hefir
ekki getað notað þau lánskjör sem
bankarnir hafa boðið. —
Nú á að vera svo frá gengið, að
bráðla verði bætt úr þessum vand-
ræðum. Síðustu þingdagana af-
greiddi Alþingi lög um stofnun
Búnaðarlánadeildai við Lands-
bankann. Framtíðarskipulag er
ekki sett með lögum þessum. En
með þeim á að geta fengist merki-
leg reynsla. Með þeim á að vera
hægt að bæta úr brýnustu lánsþörf
bænda í bili. Og á grundvelli þeirr-
ar reynslu, sem þá fæst, á að mega
reisa frambúðarskipulag um slík-
ar lánveitingar.
Lögin mæla svo fyrir, að Bún-
aðarlánadeildin verði stofnuð 1.
júlí í ár og taki þá þegar til starfa.
Skal Landsbankinn í ár leggja
deildinni alt að 250 þús. kr., sem
verja má til útlána og ennfremur
hálfa miljón króna á ári næstu tvö
árin.
Lánin veitast fyrst og fremst
til hverskonar jarðabóta og enn-
fremur til stofnunar nýbýla, til
stofnunar mjólkurbúa, til smjör-
og ostagerðar — trygð með ábyrgð
bæjar-, sýslu- eða sveitarfélaga, til
félaga sem hafa með höndum sam-
vinnumannvirki til jarðabóta,
áveitu eða samgirðinga og loks til
varanlegra húsabóta í sveitum. Um
tryggingar gilda sðalreglurnar sem
settar eru í Ríkisveðbankalögun-
um.
Lánbeiðni á að fylgja áætlun um
kostnað við þá landbúnaðarfram-
kvæmd, sem lánið er tekið til, gerð
af manni sem Búnaðarfélag Is-
lands tekur gildan og ennfremur
áætlun um væntanlegan arð af end-
urbótinni og væntanlega verð-
hækkun hennar vegna. Umsókn
um lán til húsabóta í sveit skal
fylgja áætlun um kostnað frá
byggingarfróðum manni og skulu
húsin reist eftir fyrirsögn og und-
ir eftirliti hans.
Búnaðarfélag íslands á að láta
sína umsögn í té um lánveitingar
þessar. Lántakandi skal a. m. k.
leggja fram V3 kostnaðar við þá
framkvæmd, sem lánið er veitt til.
Bankinn má greiða helming lánsins
strax en afganginn er lokið er og
skoðun hefir farið fram af hálfu
manns, sem Búnaðarfélag Islands
tekur gildan. Sé um stærri fyrir-
tæki að ræða, má greiða lánið í
fleiri hlutum jafnóðum og verki
miðar áfram, eftir tillögum Búnað-
arfélags Islands.
Vextir af lánunum mega vera
alt að 1% hærri en venjulegir
sparisjóðsvextir bankans, þó ekki
hærri en 6%, og lánstíminn eigi
skemri en 25 ár og lánin afborg-
unarlaus fyrstu 5 árin.
Alþingi hefir með þessari Iaga-
setning viðurkent kröfur þær sem
fram hafa verið bornar af bænda
hálfu um aðgengileg lánskjör.
pessi lánskjör eru vitanlega miklu
betri en fengist hafa áður. þessi
sérstöku kjör réttlætast af því
þrennu:
að þjóðfélaginu beri sérstök
nauðsyn til að stuðla að viðgangi
landbúnaðarins,
að lán til landbúnaðar séu trygg-
ari en önnur lán og
að þær orsakir, sem nú valda
fjárkreppu og vaxtahækkun, séu
ekki landbúnaðinum að kenna.
Ríður nú mikið á hvernig farið
verður af stað um framkvæmd lag-
anna. Fyrst og fremst er það vit-
anlega á valdi Landsbankastjóm-
arinnar að leggja nú landbúnaðin-
um lið sem honum getur orðið
hvað heilladrýgst. En á Búnaðar-
félagi íslands hvílir sú ábyrgð
fyrst og fremst, að þær fram-
kvæmdir verði á góðu viti bygðar,
sem lána eiga að njóta samkvæmt
lögum þessum.
það tala margir um, að nú séu
betri tímar framundan fyrir at-
vinnuvegi okkar og munu allir
gjarna vilja trúa. Mætti því sam-
fara hefjast alhliða hyggilega
framkvæmdar landbúnaðarfram-
kvæmdir. Verður vart um það deilt
að vai’t verður veltufé landsins til
annars betur varið en að styðja
með hagfeldum lánum þær fram-
kvæmdir.
----o-----
Kæliskip. Undir þinglokin var
samþykt þingsályktunartillaga frá
fiárveitinganefnd neðri deildar um
kæliskip. Er landsstjórninni falið
að skipa fimm manna nefnd til að
undirbúa málið fyrir næsta þing.
Einn nefndarmanna tilnefni Bún-
aðarfélag íslands, annan Samband
íslenskra samvinnufélaga, þriðja
verslunarráðið, fjórða Fiskifélag-
ið, en atvinnumálaráðherra hinn
fimta. Fyrst og fremst er hugsun-
in sú, að skipið flytji kælt kjöt á
enska markaðinn, en því næst von-
ir um að nota megi og til fisk-
flutninga og annars. þetta mál er
eitt hið þýðingarmesta mál land-
búnaðarins og verður að rannsak-
ast með sérstakri gaumgæfni. Ríð-
ur mikið á að vel takist val á
mönnum í nefndina.
I gæsalöppum. Margur hefir orð
á því, hve „ritstjórar" Morgun-
blaðsins nota mikið af gæsalöpp-
um í greinum sínum, og fróðlegt er
að athuga, að langoftast eru gæsa-
lappirnar settar við ramíslensk orð
eða talshætti. Sumir ætla að þessi
ritháttur stafi af virðingarverðri
blygðunartilf inningu „ritst j ór-
anna“. þar sem afstaða þeirra til
Aage Berléme og Co. sé nú alkunn
orðin, fyrirverði þeir sig hálfgert
fyrir að nota ramíslensk orð og
setji þau því í gæsalappir. Aðrir
giska á, að gæsalappirnar séu eink-
um settar við þau orð, sem ætla má
að útlendu eigendurnir eigi bágt
með að skilja og séu því til afsök-
unar.
þingstörfin. Frumvörp 111 voru
lögð fyrir þingið, þar af 24 stjóm-
arfrumvörp. Af þeim urðu 47 að
lögum, feld voru 16, afgreidd með
rökstuddri dagskrá 6, vísað 3 til
stjórnarinnar en 39 urðu ekki út-
rædd. þingsályktunartillögur voru
bornar fram 36, voru 16 þeirra
samþyktar. Fyrirspurnir til stjóm-
arinnar urðu þrjár. Tveim var
svarað. Hinni þriðju þorði stjórn-
in ekki að svara. Sú var um af-
stöðu stjórnarinnar til danska
Mogga. í neðri deild voru haldnir
67 fundir, 65 í efri deild og 7 í sam-
einuðu þingi.
Kjöttollurinn. Helgi Valtýsson
ritar um kjöttollsmálið í Vísi í gær.
Segir meðal annars, að hin „her-
skáu tollstríðsfrumvörp alþm. Tr.
þ.“ hafi „skapað nýja aðstöðu í
málinu“. H. V. segir ekki meira.
Gamla aðstaðan í málinu var sú,
að Norðmenn drógu málið. Nýja
aðstaðan er sú, að samningar tak-
ast og tollurinn lækkar stórkost-
lega. — Bændunum íslensku þykir
áreiðanlega betri nýja aðstaðan.
Grauslund yfirmaður Hjálpræð-
ishersins hér á landi og kona hans
eru að fara alfarin af landi burt.
Eru kvödd til annars starfs í þjón-
ustu Hersins. Hafa starfað hér í 10
ár og unnið margt ágætt verk. I
tíð Grauslunds hefir Herinn mjög
fært út kvíarnar hér á landi, reist
gesta- og sjómanuaheimili víða og
unnið margháttað mannúðarstarf.
Skiftir mjög í tvö horn um álit
Hersins nú og fyrst er hann hóf
starf sitt. Átti hann þá formælend
ur fá, en hina æðimarga, sem
hæddu og ofsóttu. Nú ljúka allir
upp einum munni um þessa nyt-
semdarstarfsemi.
Afetetbsía
ÍT í m a n s er í Sambanösþúsinu.
0ptn öaglega 9—\2 f. þ.
Simi 496.
20. blað
Innflutningshöft.
Landsstjórnin hefir gefið út
nýja reglugerð um mjög víðtækt
innflutningsbann á ónauðsynlegum
og miður nauðsynlegum varningi.
Um einstök atriði í slíkri reglugerð
má vitanlega ávalt deila, en verð-
ur ekki gert hér. Aðalatriðið er
það að með reglugerð þessari hef-
iv landsstjórnin orðið við vilja vit-
anlegs meirihluta Alþingis um
itijög víðtæk innflutningshöft,
þrátt fyrir þá merkilegu af-
greiðslu sem málið fékk í neðri
deild. Verði framkvæmd haftanna
í aðalatriðum sú, er svo víðtæk
Lönn benda til, verður Tíminn að
telja þetta mjög vel farið.
En því miður getur það ekki tal-
ist víst að svo verði. Er alkunn að-
staða fjármálaráðherra í máli
þessu og eigi síður hitt, að forsæt-
isráðherra lýsti því skýlaust yfir
við fjárlagaumræðu í efri deild, að
hann hefði enga trú á innflutnings-
höftum. Frá þessum ráðherrum
báðum má því vænta mikillar mót-
spyrnu gegn öruggri framkvæmd
haftanna. En sá böggull fylgir
skammrifi, að þessi reglugerð
heimilar undanþágur um innfiutn-
ing allra hinna bönnuðu vara.
Reynsla innflutningshaftanna í
fyrra sinn sýndi ljóslega hversu
erfitt var að fást við undanþág-
urnar. það voru þær sem langmest-
an þáttinn áttu í því að gera höft-
in óvinsæl. það er mikil hætta á
því, að svo reynist enn. Hefir það
og verið mjög á orði meðal hinna
eindregnustu fylgismanna haft-
anna að hafa sem flest af þeim
undanþágulaus.
Undarlegt er það þessvegna, að
stjómin skuli hníga að þessu ráði
að leyfa undanþágur um alt. það
er vafalaust með öllu, að hún bind-
ur myllustein um sinn eigin háls
með því. Framkvæmdin verður
margfalt erfiðari. það verður
áreiðanlega mjög erfitt að standa
í gegn ásókn kaupahéðnanna um
undanþágur. Ekki síst mun stjórn-
in skapa sjálfri sér óvinsældir með
þessu. því að þótt hún væri öll af
vilja gjör, þá mun hún trauðla geta
orðið réttlát um veiting undanþág-
anna.
I miklu meira tvísýni er því
teflt en vera þyrfti um gagnið af
innflutningshöftunum. Alt er und-
ir framkvæmdinni komið. Áreið-
anlegt er að mikill meirihluti þjóð-
arinnar er því eindregið fylgjandi
að framkvæmdin sé sem eindregn-
ust — að undanþáguheimildin sé
sem allra minst notuð. Dómur
þjóðarinnar um landsstjómina
mun að töluverðu leyti á því reist-
ur verða, hversu þessi allsherjar-
sparnaðarráðstöfun á þjóðarbúinu
verður framkvæmd.
Að vísu er ver úr hlaði riðið en
vera þyrfti — en framkvæmdin er
þó aðalatriðið.
----0----
Prófi luku nýlega við landbúnað-
arháskóla Dana í Kaupmannahöfn
Ólafur Jónsson og Steingrímur
Steinþórsson, báðir með fyrstu
einkunn. Ólafur tekst á hendur
framkvæmdastjórastöðu við Rækt-
unarfélag Norðurlands þegar í
vor en Steingrímur verður kenn-
ari við Hvanneyrarskólann.