Tíminn - 14.06.1924, Blaðsíða 1
©faíbferi
09 afgreiösluma&ur tEtmans er
Sigurgeir ^ti&rifsfon,
Samfcan&sfyÁsinu, KeYffadf.
^ýgteifcsía
C i m a n s er í Samfcanösljóstn*.
®pin baglega 9—\2 f. 1$.
Sími *96-
VIII. ár.
Reybjarík 14. júní 1924
Aðalíundur
Sambands íslenskra samvinnufélaga.
%eary
ELEPHANT
CIGARETTES
Mest reyktar. Fást allsstaðar.
Smásoluverð 55 aura pakkinu.
THOMAS BEAR & SONS, LTD.,
LONDON.
1
f
♦
♦
♦
♦
♦
♦
4
Hvítárbakkaskólinn
starfar næsta vetur, sem að undanförnu, frá veturnóttum til sumar-
raála. Þessar námsgreinar eru kendar í skólanum: íslenska, danska,
enska, reikningur, saga, félagsfræði, landafræði, náttúrusaga, eðlisfræði,
siðfræði, söngur-, leikfimi og hannyrðir. Auk þess verður kend bók-
færsla og þýska þeim er þess óska.
Allur kostnaður við skólaveruna var síðastliðið ár ca. 382 kr.
fyrir pilta og ca. 315 kr. fyrir stúlkur.
Inntökuskilyrði eru:
1) Umsækjandi sé fulli'a 16 ára, þó getur skólastjóri veitt undan-
þágu frá því, séu menn fullra 14 ára.
2) Umsækjandi hafi ófiekkað mannorð og sé ekki haídinn neinum
næmum sjúkdómum.
3) Umsækjandi hafi öðlast þá rnentun, sem krafist er í fræðslu-
lögunum til fullnaðarprófs.
4) Umsækjandi leggi fram skírnarvottorð og bólusetningar og
yfirlýsingu frá áreiðanlegum manni um ábyrgð á greiðslu alls kostn-
aðar er skólaveran hefir í för með sér.
Nemendur verða sjálfir að leggja sér til rúmfatnað, liandklæði,
mundlaugar, sápu cg annað slíkt, en skólinn sér þeim fyrir húsnæði
(rúmstæði fylgir með dýnu), ljósi og hita.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 15. ágúst n. k.
Iivítárbakka, 10. júní 1924.
Gl. A. Sveinssou.
Fundurinn var settur 4. þ. m. í
húsi Sambandsins hér í bænum og
var slitið aðfaranótt 10. þ. m. For-
maður Sambandsins, Ólafur Briem
frá Álfgeirsvöllum setti fundinn.
Fundinn sóttu 36 kjörnir fulltrú-
ar frá 31 samvinnufélagi, hvaðan-
æfa að á landinu, fjórir úr stjórn
Sambandsins, forstjóri þess og
framkvæmdastjórar innanlands og
ýmsir gestir.
Eftir að kjörbréf fulltrúa höfðu
verið prófuð og samþykt, var
fundarstjóri kosinn Sigurður
Bjarklind kaupfélagsstjóri á Húsa-
vík og Jón bóndi Jónsson í Stóradal
ti) vara. Fundarskrifarar voru
kosnir Jónas B. Bjarnason bóndi í
Litladal og Jón ívarsson kaupfé-
lagsstjóri á Höfn í Hornafirði.
Voru þvínæst nefndir kosnar til
þess að athuga reikninga og hag
Sambandsins og til að gera tillög-
ur um ferðakostnað fundar-
manna.
Sigurður Kristinsson, forstjóri
Sambandsins, lagði fram endur-
skoðaða reikninga þess fyrir árið
1923 og skýrði þá með ítarlegri
ræðu. Jafnframt gerði hann grein
fyrir störfum Sambandsins á ár-
inu, fjárhagsástæðum þess og
deildanna, sem yfirleitt virtust
hafa batnað á árinu. Skuldir Sam-
bandsins höfðu minkað á árinu um
c. 630 þús. kr., auk veðskuldar
þeirrar, sem hvíldi á þeim hluta
lóðar þess, er greidd var um leið
og lóðin var seld. Tekjuafgangur
á árinu hafði orðið c. 43 þús. kr.
eftir að ýmsir eignaliðir höfðu ver
ið færðir niður í verði að mun.
Ræða forstjóra var þökkuð með
lófataki og reikningarnir síðan
samþyktir í einu hljóði eins og þeir
lágu fyrir með athugasemdum
endurskoðenda.
Aðalsteinn Kristinsson fram-
kvæmdastjóri flutti mjög ítarlegt
erindi um vöruaðflutninga Sam-
bandsins árið 1923. Las upp sam-
andregið yfirlit um magn og verð
ýmissa vörutegunda og bar sam-
an við næsta ár á undan. Benti á
nauðsyn þess að félagsdeildirnar
og félagsmenn spöruðu sem mest
kaup á óþörfum varningi.
Ræða hans var þökkuð með lófa-
taki. Urðu út af ræðunni og fyrir-
spurn frá Jóni Jónssyni í Stóradal
miklar umræður, sérstaklega um
sparnað á miður nauðsynlegum
vörum.
Jónas Jónsson skólastjóri flutti
ítarlegt erindi um starfsemi Sam-
vinnuskólans síðastl. vetur, um
námstilhögun, kenslukrafta, árang
ur námsins og í hverju horfi hann
hefði hugsað sér starfsemi skólans
í nánustu framtíð. Einnig mintist
hann á gagnsemi fyrirlestraferða,
sem Sambandið og Sláturfélag
Suðurlands höfðu látið fram-
kvæma síðastl. vetur. Sýndi ræki-
lega fram á, að nauðsyn bæri til
að efla allskonar samvinnufræðslu.
Ennfremur talaði hann um útgáfu
og ritstjórn Tímarits samvinnufé-
laganna og gat um nokkrar rit-
gerðir sem hann hafði hugsað sér
að birtust framvegis í því. Skýrsl-
an var þökkuð með lófataki. Urðu
síðan um málið nokkrar umræður.
Var samþykt í einu hljóði tillaga
frá Jóni Jónssyni í Stóradal af
hálfu Sambandsstjórnar að veita
heimild til að borga 1000 kr. meir
til starfrækslu skólans næsta vet-
ur en síðastliðinn.
Jón Árnason íramkvæmdastjóri
skýrði, í mjög ítarlegri ræðu frá
sölu allra aðalframleiðsluvara
Sambandsdeildanna, rakti nákvæm
lega verðlag varanna á erlendum
markaði, gat um markaðshorfur á
yfirstandandi ári og hverjar vonir
mætti gera sér um vöruverð.
Ræðan var þökkuð með lófataki.
Urðu síðan allmiklar umræður og
fyrirspurnir bornar fram út af er-
indinu.
Eftiríarandi tillögur komu fram:
Frá lngimar Eydal kennara:
„Fundurinn er því fylgjandi að
S. í. S. geri á næsta hausti tilraun
með útflutning á lifandi dilkum og
heimilar stjórninni nauðsynlegt fé
til þeirrar tilraunar. Ennfremur er
fundurinn því fylgjandi að gerð
verði tilraun með útflutning á
rosknum ám“.
Tillagan var samþykt með öllum
þorra atkvæða gegn 2.
Frá Tryggva þórhallsyni rit-
stjóra:
„Aðalfundur Sambands íslenskra
samvinnufélaga ályktar að lýsa
fullri óánægju sinni yfir þeim
gerðum landsstjórnarinnar, að þá
er sendur er út maður til þess að
greiða íyrir um og rannsaka mark-
að landbúnaðarafurða, þá skuli til
þess starfs valinn faktor fyrir út-
lenda verslun, en algerlega gengið
fram hjá samvinnufélögunum og
trúnaðarmönnum þeirra, sem und-
anfarin ár hafa gert nálega alt sem
gert hefir verið til umbóta á þessu
sviði og eru þeim málum lang-
kunnugastir“.
Tillagan var samþykt í einu
hljóði.
þorsteinn Davíðsson, sem veitt
hefir forstöðu gærurotun Sam-
bandsins á Akureyri síðastliðinn
vetur gaf skýrslu um þá starfsemi,
sem gengið hafði vel. Var málið
rætt og komu fram þessar tillögur:
Frá Jóni Árnasyni framkvæmda-
stjóra:
„Fundurinn heimilar stjórn
Sambandsins að láta reisa hús til
gærurotunar á Akureyri næsta
haust, sem gert er ráð fyrir að
kosti um 25 þús. kr.“.
Frá síra Arnóri Árnasyni:
„Fundurinn ályktar að fela
stjórn S. I. S. að fá leiðbeiningar
hjá hr. þorsteini Davíðssyni um
verkun og meðferð á gærum, og
senda þær félagsdeildunum“.
Báðar tillögurnar voru samþykt-
ai í tinu hljóði.
Reikninganefndin, sem kosin var
í fundarbyrjun, gerði grein fyrir
störfum sínum. Hafði kynt sér
hag og horfur Sambandsins og
deilda þess, eins og hann kemur
fram í reikningum liðins árs, og
taldi að stjórn og starfsmenn Sam-
bandsins hefðu gert sér alt far um
að gæta hagsmuna þess og deild-
anna í öllum greinum.
Nokkrar umræður urðu um mál-
ið og þvínæst samþykt í einu hljóði
svolátandi tillaga frá Sambands-
stjórn:
„Fundurinn samþykkir að yfir-
færa tekjuafgang síðastliðins árs á
næsta ársreikning“.
Vilhjálmur þór kaupfélagsstjóri
bar fram svohljóðandi tillögu, sem
samþykt var í einu hljóði:
„Aðalfundur Sambands íslenskra
samvinnufélaga lætur i ljós ánægju
sína yfir hagkvæmum og góðum
árangri af rekstri Sambandsins á
síðastliðnu ári og vottar jafnframt
framkvæmdastjórninni sitt fylsta
traust og þakklæti fyrir góða
stjórn á peningamálum þess, inn-
kaupum erlendra vara og sölu inn-
lendra afurða“.
Fram kom og samþykt í einu
hljóði þessi tillaga frá Jóni Jóns-
syni í Stóradal:
„Fundurinn vottar Kaupfélagi
Eyfirðinga virðingu sína og þökk
fyrir að hafa haft forgöngu um að
koma á kornmölun hjá sér. Jafn-
framt leyfir fundurinn sér að beina
þeirri áskorun til deilda Sam-
bandsins að taka til rækilegrar
íhugunar hvort þær geti ekki beist
fyrir aukinni kornmölun, hver á
sínu sviði“.
Erlingur Friðjónsson og Ólafur
Metúsalemsson kaupfélagsstjórar
báru fram svofelda tillögu:
„Fundurinn óskar þess að Sam-
bandsstjórnin haldi áfram að leið-
beina Sambandsdeildunum um
hagsýni og sparnað í vörukaupum,
meðal annars með því að birta
fræðandi greinar um þessi efni í
Tímariti samvinnufélaganna og
samvinnublöðunum“.
Tillagan var samþykt í einu
hljóði.
Jón Árnason framkvæmdastjóri
skýrði frá tilraunum þeim, sem
Sambandið gerði síðastliðið ár með
útflutning á nýju kjöti og þeim
möguleikum sem á því virðast vera
framvegis. Urðu miklar umræður
um málið. Var kosin nefnd, er síð-
ar á fundinum bar fram svohljóð-
andi tillögu:
„Fundurinn lýsir eindregnum
áhuga sínum á að rannsakaðar séu
eftir föngum söluhorfur á kældu
og frystu kjöti héðan af landi.
Framkvæmdastjórninni er því fal-
ið að halda áfram á þessu ári rann-
sóknum á söluhorfum og tilraun-
um. Staðfesti sú reynsla, sem
þannig fæst undanfarna reynslu,
skorar fundurinn fastlega á stjóm
ina að gera alt sem unt er til að
beitast fyrir að koma upp sem
fyrst að verða má fullkomnu frysti
og kæliskipi. Ennfremur væntir
fundurinn þess, að ríkisstjórnin og
Eimskipafélag íslands beiti sér öt-
ullega fyrir málið“.
Tillagan var samþykt í einu
hljóði.
Fonnaður Sambandsins, Ólafur
Briem, skýrði frá framkvæmdum
stjórnarinnar í ýmsum þeim mál-
um, sem síðasti aðalfundur vísaði
til hennar. Kjöttollsmálið, gærúrot-
unin, útflutningur lifandi fjár og
nýs kjöts, höfðu komist til fram-
kvæmdar eftir tilætlun fundarins
og eins og unt hefði verið. Undir-
búningur með kæli- og frystiskip
væri í höndum ríkisstjórnar og Al-
þingis. Samin hefði verið skipu-
lagsskrá fyrir Minningarsjóð Hall-
gríms Kristinssonar, sem nú biði
konunglegrar staðfestingar.
Að hvötum Jóns Árnasonar
flutti þorvaldur Árnason erindi um
ullariðnað, hvað vinna mætti úr ís-
lenskri ull og hverjir gallar væru á
henni. Jónas Jónsson skýrði frá
hvað gerst hefði í málinu á síðasta
Alþingi og bar fram ýmsar athug-
anir um framkvæmd málsins. Urðu
um málið miklar umræður.
Formaður Sambandsins til
þriggja ára var endurkosinn Ólaf-
ur Briem.
Varaformaður til eins árs var
endurkosinn Sigurður Bjai'klind.
Varastjórnarnefndarmenn til
eins árs voru endurkosnir: Tryggvi
þórhallsson ritstjóri og Stefán
Stefánsson bóndi á Varðgjá.
24. bl&ð
Endurskoðandi til eins árs var
kosinn Metúsalem Stefánsson
ráðunautur.
Páll bóndi Hermansson á Eiðum
bar fram svohljóðandi tillögu, sem
samþykt var með samhljóða at-
kvæðum:
„Fundurinn felur stjórn Sam-
bandsins að íhuga það hvort þörf
sé á breytingum á ákvæðum um
endurskoðun Sambandsins og
leggja athuganir sínar og tillögur
fyrir næsta aðalfund'.
Bergsteinn Kolbeinsson bóndi í
Kaupangi flutti eftirfarandi til-
lögu:
„Fundurinn heimilar stjórninni
að styrkja samvinnu- og bænda-
blöðin Tímann og Dag með fjár-
framlagi þeim til viðhalds á þann
hátt sem hún telur best henta“.
Jón Gauti Pétursson, bóndi á
Gautlöndum bar einnig fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Fundurinn heimilar stjórninni
að verja alt að 8000 kr. til að
greiða samvinnublöðunum ritlaun
fyrii' birtingu ritgerða um sam-
vinnumál, svo og önnur atvinnu-
og mentamál".
Urðu nokkrar umræður um til-
lögurnar og því næst borið undir
atkvæði hvor tillagan hefði meira
fylgi. Fékk tillaga Bergsteins 15
atkv., en tillaga Jóns Gauta 14
atkv. Tók Jón Gauti sína tillögu
þá aftur og tillaga Bei'gsteins síð-
an samþykt með samhljóða at-
kvæðum.
Jónas Jónsson hreyfði því, að
æskilegt væri, að samvinnufélögin
gætu gert bókasölu kostnaðar-
minni — einkum kenslu- og fræði-
bóka — en hún væri nú.
Ferðakostnaðarnefnd lagði fram
skýrslu um ferðakostnað fulltrú-
anna, sem samþykt var með sam-
hljóða atkvæðum.
Fundarbók lesin og samþykt og
fundi slitið.
----0----
Norskir gestir eru væntanlegir
hingað til bæjarins með Merkur á
mánudaginn kemui’. Eru það fimm
norskir ungmennafélagar, er koma
lxingað að boði Ungmennasam-
bands Kj alarnessþings og verða
gestir þess hér. Eru í’áðgerð ferða-
lög með þá um landið. Er þess að
vænta, að þeim verði hvarvetna
vel fagnað. Ei’u Ungmennafélögin
norsku höfuðvígi þjóðrækni í Nor-
egi og í þeim hóp eru íslandsvin-
irnir fjölmennastir.
Látinn er 6. þ. m. síra þorsteinn
Benediktsson fyrrum prestur í
Landeyjaþingum. Síi’a þorsteinn
var fæddur 2. ág. 1852, sonur síra
Benedikts Eggertssonar er síðast
varð prestur í Vatnsfirði, en bróð-
ir Eggerts bónda Benediktssonar í
Laugardælum. Síra þorsteinn var
vandaður maður og vel látinn.
Slys. Bifreið ók yfir dreng á
Hvei’fisgötu í fyrradag. Meiddist
drengurinn mjög bæði á fæti og
höfði. Bifreiðai’stjóranum verður
ekki kent urn slysið. Hann var
rjettu megin á götunni og gerði
það sem unt var til að verjast
slysi.
Hvaðanæfa að af landinu berast
góðar fregnir af árferði. þótt kalt
væri lengi, hefir sauðburður yfir-
leitt gengið ágætlega vel og úr öll-
um verstöðum berast fregnir um
uppgripa afla.
----0----