Tíminn - 02.01.1926, Side 1

Tíminn - 02.01.1926, Side 1
©Jaíbfeti »4 afgcetöslun’a&ur Cimans «r Stgurgeir 5*i6rií*fon, Sambanbsfyús-tnu Herfjöuif ^fgteifesía Cfmans ec i Sambanösíjúsinu ©pm baglega 9—(2 f. Sími ^96- KejkjuTÍk 2. janúar 1926 Landneinarnir- — Þorleitur frá Hrafhhóli. — pið voruð báðir höldar í þeim hóp sem „hólmann kalda“ gróðurvonum tjaldar, og.stefnduð hærra en lýðsins lof og hróp er leitar hvergi fram um rendur skjaldar. þið áttuð trú sem víða velli skóp. — J)ið voruð brautryðjendur landnámsaldar. þó ekki væri æfisaga löng og oftast lítið gull í mála þegið, þið báruð merkið hiklaust hátt við stöng, og hirtuð hvorki um alin-mælt, né vegið. þó stundum væri ilt um orkuföng var ekki af sannfæring né stefnu slegið. það fellur sárt að missa slíka menn, úr miðri fylking, þegar störfin bíða. Hér er svo fátt sem vísar vegu enn og vont að segja hversu stakk skal sníða. Hér þai’f svo oft að varast veður tvenn og vita glöggt, hve beint má álinn ríða. Hér skortir hvergi öfl sem eyða land né illar vættir sem að kröftum dreifa, það hvarf svo margur bær í svartan sand; um sárt á víða liðfá þjóð að reifa. það virtist stundum eins og giftugrand og gróðurféndur myndu engu leifa. þann moldaraðal skortir mest vort láð — Fáll frá Beykhúsum. — sem mælir afrek sín í landnámsteigum, sem brestur aldrei kjark né karlmannsdáð að klæða hrjóstur ber með vilja seigum. Er veit og skilur: þar sem vel er sáð er vænst að kostagróður hljóta megum. — Með gróðrartrú sem götvar þjóðarmein, sem glímir fús við lífs og sólar féndur. — Er vinnulotnu bökin telur bein og besta glófa: starfadökkar hendur. Er signir hverja rudda og gróna rein, og rótum bundin er við heimalendur. Að hefja merki og benda rétta braut, og breiða um sveitir stefnutrú og vilja. það reynist flestum fullstór æfiþraut er fjöll og álög hugi girða og skilja. því leggur margur hendur, hálft, í skaut 0g hættir hvergi á vegu fanna 0g gilja. það varpar ljóma ykkar stutta starf og stráir vonum, — þó að brött sé gata. Við þökkum fegnir gullinn gróðrararf, — hið glæsta merki, — nú skal liðið rata. þið voruð menn, og menning land vort þarf, ei, mörkviðaða dægur-veifiskata. 29. desember 1925. Árni G. Eylands. X. ár. Litið um öxl. Minningaái'. Á árinu sem nú er nýbyrjað eru liðin 200 ár síðan Eggert Öiaísson fæddist. Fimtán árum áður fædd- ist fjkúii fógeti. En Jón Eiríksson var tveim árum yngri. Fyrir- tveim öldum voru að koma fram á sjónarsviöið þeir menn, sem hófu íramsóknar- baráttuna á Islandi. Og síðan hafa aliir góðir Xslend- ingar fetað í þeirra fótspor og tramsókn og framföriun Islands vildu þeir helga alla krafta sína. I nálega 200 ár nafa það þoct Ijót orð á Islandi að neina kyr- stoöu, íhaid og aftuihald. þann tíma allan hafa bestu synir Ís- lands hatað kyrstöðu, íhald og afturhald. Að þessu leyti mega yfkstand- andi ár kallast miimingaár um það að tvær aldir eru hðnar síð- an fæddust íramsóknarmenn Is- lands og í tvö hundruð ái’ hefir verið reynt að feta í fótspor þeirra. En árið sem leið er merkilegt ár um það gagnstæða. það er fyrsta árið samfelda, í 200 ár, sem þjóðinni hefir verið boðaður sá boðskapur, að með kyrstöðu, íhaldi og aftui’haldi ætti hag hennar að vera best borgið. það er fyrsta samfelda árið, síð- an stjórnin íluttist aftur inn í landið, sem setið hafa í stjórnar- sessi á íslandi menn, sem hafa kyrstöðu, íhald og afturhald að kjörorðum og eru studdir til vald- anna af þingmeirihluta, sem hefir letrað þessi ljótu orð á skjöld sinn. þá er saga landsins, á þessum árum, verður skráð, á sínum tíma, verður sérstök eftirtekt veitt þessum árum, vonandi sára- fáu, þá er íslendingar sjálfir settu nýja menn í valdasess: þá menn, sem rýmdu úr hásæti kjör- orðum framsóknarmanna ís- lenskra, tveggja alda gömlum, um framsókn og framfarir. En settu í staðinn hin andstæðu orð. þá verður mikið mark tekið á þing- tíðindum og stjómmálabaráttu þessa fyrsta samfelda árs, er íhald ríkti á íslandi. En okkur, sem nú hfum, er holt að staldra við andartak og hta um öxl. Stærsta betliför í sögu íslands. Á árinu sem leið var farin stærsta betliför sem farin hefir verið í sögu íslands. Ríkustu menn landsins fóru ferðina og lands- stjóm Islands bar erindið fram fyrir þá á Alþingi. Eftir mesta gróðaár, sem kom- ið hefir yfir þetta land, eftir að þessir menn höfðu grætt meira en nokkru sinni áður, meir á einu ári en mörgum árum áður sam- anlagt, báðu þeir um að breyta íslenskum lögum þannig að þeir slyppu við að greiða hinn rétt- látasta skatt sem til er. öll landsstjórnin barðist fyrir þessu. Allur flokkur hennar í neðri deild samþykti þetta. Af hræðslu einni, enn ekki af rétt- sýni, heyktust þeir á því að koma þessu endanlega í framkvæmd. því var ekki borið við að ríkis- sjóðurinn þurfi ekki á þessum peningum að halda. þvert á móti. það var alviðurkent að ef pen- ingarnir fengjust ekki þarna, þyrftu þeir aö íást annarsstaðar. það sem um var beöið var því ekki einungis þaö að létta gjöid- um svo næmi hundruðum þusunda króna á ríkustu og teajuhæstu mönnum, heldur jafnlramt um hitt af þessum skatti, sem ríkissjóðui' þannig misti, yrði jaínað niður á allan almenning. Heint samband mun því vera milli þess að jafnframt bar lands- stjó^nin fram tvö frumvörp um að auka tii stórra muna netskatt- ana á öhum almenningi. þetta er ljótasta, og þó, því miður, sannasta myndin af stjórn- ai'farinu á árinu sem leið — af því hverskonar Ihaldí á að koma í framkvæmd á Islandi. Landstjórnin og flokkur hennar er einhliða stéttarfiokkur þeirra sem auðugastir eru og tekjuhæst- ir. það á að halda í, til þess að þeir geti rólegir setið aö kjöt- kötlunum. það á að svínbeygja almenning með álögum, til þess að hinir tekjuhæstu geti haft kúf- inn sinn sem óskertastan. Af þessu framferði mun lands- stjórn og íhaldsflokkur fá þyngst- an dóm í íramtíðinni. En það er líka margs annars að minnast. — Kaupmenn eru annar stóri að- ihnn sem styður íhaldið. Lands- stjómin hugsaði hka til þeirra. 250 þús. kr. vissum árlegum tekj- um ríkissjóðs var kastað, til þess að fullnægja kröfum kaupmanna- stéttarinnar, um að fá þessar tekj- ur í sinn vasa. Alt íhaldið stóð að því að kasta þessum vissu tekjum úr ríkissjóði. En einn ráð- herranna, faðir tóbakseinkasöl- unnar, fór svo á því máli að héð- an af verður hann talinn af öllum óalandi og óferjandi í stjórnmál- unum. Mun það einsdæmi í heims- sögunni að stjórnarflokkur, með sjálfan fjármálaráðherrann í broddi fylkingar skuli beitast fyr- ir að kasta burtu tekjum úr ríkis- sjóði. — Eitthvert mesta flasræðið sýndi landsstjómin er hún bar fram frumvarp um að stofna póhtiska varalögreglu, sem átti að setja niður kaupdeilur með valdi. Slíkri aðierð er hvergi beitt í iýðírjáls- um löndum, en bæði á Itahu og Kusslandi er henni beitt. Bókstaf- lega engin takmörk voru lands- stjórninni sett, með frumvarp- inu, um fjáreyðslu í þessu skyni. Var það aö því leyti rétt hugsun, að fyrirsjáanlegt var að stofnun varalögreglunnar mundi leiða af sér svo mikinn ófrið, hatur og' iiðsdi'átt á móti, að ómögulegt var að áætla hversu miklu þyrfti að kosta til liðs þessa og hversu fjöl- ment það þyrfti að vera. Allur Íhaldsflokkurinn virtist standa að þessu fargani, en kjarkinn brast til framkvæmda er á reyndi, eins og í tekjuskattsmálinu. Er nú fullséð hversu hörmulega hefði farið í haust, er togararnir voru bundnir við garðinn, ef Ihalds- varalögreglan hefði ógnað sjó- mönnum meðan yfir stóð. — Fjölmennasta stétt framleið- enda, bændastéttin, var olnboga- barn stjórnar og íhaldsflokks. Frá landsstjóm, flokki hennar og blöðum, kom ekkert annað en óbilgirni, skilningsleysi og beinn fjandskapur, á árinu, í bænd- anna garð. Jón þorláksson hafði þar forystuna. Búnaðarlánadeild- ina reif hann niður og vildi gefa steina fyrir brauð. það sem gott er í Ræktunarsjóðslögunum, er ekkert frá honum komið. Hann vann í gegn því, eftir því sem honum entist máttur til, gerði það sem hann gat, og allur flokkur hans í efri deild, til að eyðileggja starfsemi Búnaðarfélags íslands. — það sem gert var til að bæta kjötmarkaðinn, er alt verk and- stæðinga stjórnarinnar. — Á einu sviði, um ullartollinn í Bandaríkj- unum, átti landsstjómin frum- kvæði að því að vilja gera eitt- hvað fyrir bændastéttina. Fram- kvæmdinni er lýst á öðrum stað í blaðinu. — Meðferð á almannafé. Stjóm- inni var trúað fyrir ríkisfjárhirsl- unni. það er rík skylda að’ fara vel með alþjóðar fé. Einhver stærsta ávirðing stjómendanna er sú að nota almannaíé eða eignir til að þægja gæðingum sínum, eða á annan hátt th að styrkja sig í sessi. 1 þessu efni hefir landsstjórnin brotið af sér meira á árinu sem leið en nokkur lands- stjórn hefir nokkurntíma gert. Hún vildi koma kvennaskólanum í Reykjavík á landið, eingöngu til þess að þóknast einu þingatkvæð- inu, því atkvæðinu, sem siglt hefir inn á Alþingi undir fölsk- ustum fána. Innrætið landsstjóm- ar og íhalds kom í ljós er af- tekið var með ollu að láta landið um leið taka að sér Blönduóss- skólann, sem er fyrir sveitastúlk- ur. — Landsstjórnin, og alt íhald- ið, að því er virtist, vildi selja Vestmannaeyjar langt neðan við hálfvirði, einungis til þess að þóknast einum flokksbróðumum. — Á öðrum stað 1 blaðinu er vikið að því hvaða hvatir lágu að fram- kvæmdum í ullartollsmálinu. — Og ný embætti, fleiri en eitt, stofnaði stjórn og stjómarflokkur, einungis til þess að þóknast stuðn- ingsmönnum. — Svo mikil hefir spillingin aldrei orðið áður í ís- lensku stjórnmálalífi. þess vegna er það ekki undarlegt, þo að jafn- vel í sjálfum stjómarmálgögnun- um, kvarti sjálfir flokksmenn stjórnarinnar yfir ástandinu og spillingunni, eins og Árni Páls- son hefir gert nýlega. — Sú lands- stjórn sem þannig fer með um- boð. sitt yfir fjárráðum ríkisins á skilið hinn allra harðasta dóm. Að feigðarósi stýrir landsstjóm- in þjóðarskútunni allra greinileg- ast í gengismálinu. Hefir það mál verið rætt svo rækilega undan- farið í blaðinu að endurtekningar eru óþarfar. En í mörgum hundr- uðum þúsunda króna telst sá skatturinn sem landsstjórnin hefir lagt á mikinn hluta landsmanna, ófyrirsynju, með ráðstafanaleysi sínu í málinu. Og í því máli hefii’ hún þverbrotið yfirlýstan vilja Alþingis. 1. blað Ekki dræp — ekki líft. Ein- hversstaðar verður að hætta, en óendanlega lengi mætti halda áfram að rekja syndir landsstjóm- ar og íhaldsflokks. Allar hinai' gömlu spár og lýsingar Jóns þor- lákssonar á innræti og athöfnum Ihaldsmanna hafa ræst — á sjálfum honum og flokki hans. Eins og mara hefir íhaldið og landsstjómin lagst á þjóðina. I stjórnarfarslegu tilliti er árið 1925 langversta ár sem yfir þessa þjóð hefir komið síðan stjómin flutt- ist inn í landið. — Má heimfæra gamla sögu til landsstjómarinnar. Einlíverjii’ verstu ræningjar og óspektarmenn á Sturlungaöld hétu Maga-Björn og þorkell Eyvindar- son. Varð sú hin hinsta ganga þeirra að þeir gengu í greipar þórði Sturlusyni í Fagurey á Breiðafirði. Vildi þórður láta drepa þá, en vildi þó að þeir næðu áður prestsfundi. þeir skriftuð- ust, en þvínæst gekk prestur til þórðar 0g segir honum, að þor- kell bar þá hluti á sig „að mér þykir hann eigi dræpur“. þórður svai’ar: „þá er honum eigi líft og skal dæma hann að þvi og hengja hann síðan“. Og svo var gert. — Hún verður varla dræp kölluð landsstjórnin, svo stóra hluti sem hún ber á sig og flokkana, með verkum sínum. En sannarlega á hitt líka við: að þá er henni eigi líft. En alt er óvissara hvort á Alþingi sitja nú nógu margir jafnvitrir menn og þórður Sturlu- son, til þess að kveða upp og framkvæma hinn pólitiska heng- ingardóm. Dansinn í Hruna eftir Indi’iða Einarsson hefir verið sýndur hér í höfuðstaðnum nú um jólin. Leikfélagið hefir vandað eftir föngum til leiksýn- inganna. Lögin við söngva og dansa eru eftir Sigvalda Kalda- lóns og Emil Thóroddsen. Dans- ana hefir frú Guðrún Indriðadótt- ir sett saman. Rifjast í þessu sam- bandi upp hversu mikið íslensk leiklist á að þakka Indriða Einars- syni og fólki hans. Áhugi hans á leikfélagsmálum hefir verið sívak- andi. ,,Nýársnóttin“ hans mun verða langlíf og vinsæl. En þó mun íslensk leiklist máske standa í mestri þakkarskuld við hann fyrir þann þátt, sem hann hefir átt í að búa í haginn fyrir fram- tíðina. Er hér átt við þann þátt, sem hann hefir átt í að þjóðleik- hússmálið er nú komið í það horf, sem raun er á orðin. Mintust margir alls þessa þegar hinn gamli höfundur að árum en ungi í útliti, var kallaður fram með fagnaðarlátum í lok fyrstu sýn- ingarinnar á „Dansinum í Hruna“. Nýtt brauðgerðarhús. Guð- mundur ólafsson og Stefán Sand- holt hafa reist stórt og veglegt hús á Laugaveg 36 og hafa hið nýja brauðgerðarhús sitt á neðstu hæð og bakhúsum. Er það vafalaust hið fullkomnasta brauð- gerðarhús, sem komið hefir verið á fót hér á landi, best búið að hverskonar nýtísku vélum, hrein- legast og snyrtilegast. Er óbland- in ánægjan í hvert sinn, sem hægt er að flytja fregnir um unga og atorkusama menn, sem leggja mikið á sig um að fullkomna inn- lenda framleiðslu. -----0----

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.