Tíminn - 26.06.1926, Side 1
(S)aíbf eri
csg, afgm&síuma&ur Itmans er
Sigurgeir ^ri&rifsfen,
Som&anösfjásinn, Heyfimrif
^.fgreiböía
£ í mans er í Samfcan&sljúsmu
(Dpin öaglíga 9—(8 f. t).
Stmt <í96.
X. ár.
Reykjayft 26. júní 1926
31. blnð
Alþýðuskólinn á Eiðum.
Þar sem húsakynni skólans batna að forfallalausu'mjög í haust
verður fært að veita þeim framhaldstilsögn hinn 3. vetur, er lokið hafa
prófi 2. árs og kynnu að óska hennar. Sameiginlegar námsgrein-
ar verða:
fslenska og íslenskar bókmentir.
Eitt erlent- tungumál (enska eða danska).
fslandssaga (sérstök tímabil rannsökuð eftir föngum).
Stærðfræði eða náttúrusaga.
Að öðru leyti geta menn hagað námi sínu í samráði við kenn-
arana og með hliðsjón af því er þeir vilja taka fyrir síðar. Kenslan
verður að nokkru falin í leiðbeiningum um sjálfsnám.
Kennari er ráðinn til þess að kenna stúlkum vefnað og hann-
yrðir um veturinn.
Einnig mun piltum veitt tilsögn í smíðum.
Að öðru leyti verður fyrirkomulag skólans hið sama og áður.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Eiðum, 17. júní 1926.
Jón Magnússon I
forsætisráðherra
varð bráðkvaddur á Norðfirði að
kveldi þess 23. júní síðastliðið.
Kann hafði ásamt konu sinni,
Þóru Jónsdóttur Péturssonar far-
ið á „Niels Juel“ norður og aust-
ur um land í boði konungshjón-
anna. Á Seyðisfirði skildust leið-
ir. Konungur hélt til Damnerkur,
en ráðherrann ætlaði suður um
land á herskipinu „Gejser“ áleiðis
til Reykjavíkur. Á leiðinni ætl-
aði hann að skoða æskustöðvar
sínar á Skorrastað, en skömmu
eftir að hann hafði stigið á land
á Norðfirði var hann örendur.
Jón Magnússon hefir fylt mikið
rúm í opinberu lífi íslensku þjóð-
avinnar. Sem embættis- og stjóm-
rnálamaður komst hann svo hátt,
sem auðið er á landi hér. Þykir
því hlýða að skýra frá helstu
æfiatriðum hans.
Jón Magnússon er fæddur i
Múla í Þingeyjarsýslu 16. jan.
1859, sonur Magnúsar Jónssonar,
síðast prests í Laufási hins al-
kunna bindindisfrömuðar, og konu
hans Vilborgar Sigurðardóttur
bónda á Hóli í Kelduhverfi Þor-
steinssonar. Hann fluttist með
foreldrum sínum að Skorrastað í
Norðfirði 1867 og ólst þar upp.
Lauk stúdentsprófi 1881 með I.
eink.; las lög við Hafnarháskóla
og lauk þar prófi 1889 með I.
eink., varð sama ár sýslumaður
í Vestmannaeyjum, en ritari við
landshöfðingjadætmið 1896, og
1904 skrifstofustjóri í Stjómar-
ráðinu. 30. des. 1908 varð hann
bæjarfógeti í Reykjavík og gengdi
því starfi þangað til hann tók
við ráðherraembættinu 1917.
Um embættisfærslu Jóns Magn-
ússonar er ekki nema einn dómur.
Hann þótti allsstaðar skylduræk-
inn, samviskusamur og velviljað-
ur embættismaður. Talinn var
hann meðal bestu lagamanna hér
á landi.
Jón Magnússon var kosinn á
þing í Vestmannaeyjum 1902 og
var fulltrúi þess kjördæmis til
1916 að hann var kosinn í
Reykjavík. Hann féll við kosn-
ingarnar 1919, en varð landkjör-
inn þingmaður 8. júlí 1922 sem
efsti maður á lista Heimastjórn-
arflokksins.
Á Alþingi hlaut Jón Magnús-
son mörg trúnaðarstörf. Hann var
kosinn í margar milliþinganefnd-
ir, til dæmis millilandanefndina
1907. Þegar los tók að komast á
Heimastjórnarflokkinn 1913 munu
margir þingmenn hafa haft auga-
stað á honum sem eftirmannl
Hannesar Hafstein í ráðherra-
sæti. Af þessu varð þó ekki, en
5. jan. 1917 myndaði Jón Magn-
ússon hið fyrsta samsteypuráðu-
neyti á íslandi. Það vék úr völd-
um 2. mars 1922 og höfðu áður
orðið á því miklar breytingar.
En 22. mars 1924 myndaði hann
ráðuneyti íhaldsflokksins, sem
enn situr að völdum.
Aðalstarf Jóns Magnússonar
sem stjórnmálamanns var hlut-
deild hans í því að leiða Sam-
bandsmálið til farsællegra lykta.
Þar reyndist hann réttur maður
á réttum stað. I Danmörku var
hann meira metinn en nokkur
annar íslenskur stjórnmálamaður
á síðustu árum, og samningalip-
urð hans var alkunn. Annars skal
ekki reynt að fella neinn dóm
um stjórnmálastarfsemi Jóns
Magnússonar. Til þess liggja við-
burðirnir of nærri. Þau ár, sem
hann stjómaði landinu voru við-
burðarík baráttuár, svo embætt-
inu fylgdi vandi meir en venju-
legt er. En heyrt hefi eg menn,
sem áttu í hörðum deilum við
hann á þingi, láta það í ljós, að
hann væri hygnastur og gættn-
astur allra andstæðinganna.
Jón Magnússon var vel að sér
í sögu íslands, einkum á 12. og
13. öld. Sturlunga var honum
allra bóka kærust. Las hann
hana hvað eftir annað og gerði
þar ýmsar athuganir. Ekki fékst
hann mikið við ritstörf. Þó gaf
hann út með Jóni Jenssyni Laga-
safn handa alþýðu IV.—VI. bindi
og eftir hann liggja nokkrar rit-
gerðir í blöðum og tímaritum.
H. H.
----o---
Skógrækt á islandi.
Mikið hefir verið unnið að því
síðustu árin, að hlynna að skóg-
lendi íslands, en fyrir þröngsýni
fjárveitingarvaldsins hefir þó
minna verið hægt að gera en
æskilegt hefði verið. Undanfarin
ár hafa verið veittar á fjárlög-
um 10,000 krónur til verklegra
framkvæmda, en nú hefir fjár-
veitingin þó verið hæikkuð upp í
20,000 krónur. Er það samt altof
lítið, því fáum peningum er bet-
ur varið, en þeim, sem varið er
til þess að græða skóg fyrir.
‘Síðan Kofoed-Hansen tók við
stjórn skógræktarmálanna hafa
verið girtar um 3500 dagsláttur
af skóglendi. Stærstur er Hall-
ormsstaðaskógur, um 1450 dag-
sláttur, og þamæst Háls- og
Vaglaskógur í Fnjóskadal, um
620 dagsl. Vatnaskógur (sem er
beitiskógur og ólíkur hinum) um
590 dag’sl. Laugarvatnsskógur um
155 dagsl. Þá er ómældur skógur
í Þórsmörk, sem nú er verið að
girða, en hann er varla minna en
700 dagsláttur að stærð. Senni-
lega taisvert meira.
Hin hæstu birkitré í Hálsskógi
og á Hallormsstað eru nú um 34
fet. Háls- og Vaglaskógur hefir
tekið einna mestum framförum,
síðan hann var girtur.
Auk birkis er reyniviður hið
einasta innlenda tré, sem telj-
andi er. Á nokkrum stöðum, til
dæmis Skriðu í Hörgárdal, ei-
reynirinn um 26 fet að hæð.
Hærri verður hann varla hér á
landi. Búast má við því, að birki
geti með tímanum orðið 40—50
feta hátt hér á landi.
Af útlendum trjám þrífst sí-
berískt lævirkjatré (barrfellir)
langbest, einkum á Norðurlandi.
Það er stórt og fallegt tré, sem
getur orðið til mikils hagnaðar
fyrir Islendinga. Auk þess þríf-
ast ýmsir útlendir runnar hér
ágætlega. Til dæmis Carragana.
Skógræktarstjóri telur víst, að
græða megi skóg víðast hvar á
láglendi, nema á útkjálkum, en
best vaxtaskilyrði eru fjarst sjó
eða þar sem gott skjól er fyrir
hafvindum. Sennilega hvergi
betri en í Laugardal og Þórsmörk.
Þó íslenska kjarrið sé víða sorg-
lega skemt og næsta lítilfjörlegt,
má þó* víðast hvar rétta það við
með girðingu og grisjun. Þeir
sem komið hafa í Þrastaskóg,
hafa best séð hver munur er á
skóginum utan og innan girðing
arinnar, og hversu miklum fram-
förum hann hefir tekið síðan
hann kom í hendur ungmennafé-
laganna.
I okkar kalda og nakta lands-
lagi er ekkert sem prýðir og lífg-
ar eins og skógarrúnnar og það
var því í sannleika vel viðeigandi,
að ungmennafélögin settu skóg-
rækt sem helsta atriðið á stefnu-
skrá. Þau hafa unnið gott verk,
en kraftar þeirra hafa náð of
skamt. Hér þarf meiri styrk en
þau áttu til, en vonandi fer öllum
landslýð að verða það ljóst, hve
mikilvæg skóggræðslan er fyrir
land vort og menningu, svo auð-
velt verði á næstu árum að út-
vega meira fé til þessa starfs.
Þeim peningum, sem varið er til
skógræktar, er sannarlega vel
varið, og víða má ná góðum á-
rangri með tiltölulega litlum
kostnaði.
---o----
llialö 00 einokun.
Ein af þeim blekkingum, sem
íhaldsmenn hafa beitt óspart í
kosningabaráttunni er sú, að listi
Framsóknarflokksins, D-listinn, sé
einokunarlisti, og ef að sá listi
kæmi fulltrúa á þing, muni. ein-
okun með allskonar hörmungum
skella ýfir landið.
Þetta eru tvöföld ósannindi. 1
fyrsta lagi er engin fjarstæða
meiri en að blanda saman ein-
okunarverslun útlendra kaup-
manna, sem aðeins hugsuðu um
að græða sem mest á viðskiftum
sínum við íslendinga, og þeirri
einkasölu á einstökum vörum,
sem ríkið tekur að sér til
þess að bæta hag borgaranna.
Þetta hefir sjálfur Ihaldsráðherr-
ann Magnús Guðmundsson skilið,
og þegar hann var að mæla fyr-
ir einkasölu á tóbaki á Alþingi
1821 komst hann svo að orði um
einokun og einkasölu: „Það er
mikill munur á þessum tveim orð-
um, og má alls ekki blanda þeim
saman. Einokunin gamla bygðist
á valdboði útlendrar stjórnar, en
hér tekur þjóðin sjálf einkasölu
á þessum tilteknu vörum. Það er
sá miklu munur, sem er á milli
þess að fara sjálfir, einir, með
verslun sína, eða láta aðra fara
eina með hana“. Þetta er alveg
rétt hjá Magnúsi, og margir
flokksmenn hans hafa oftsinnis
stutt einkasölu í ýmsum mynd-
um á þingi. Skulu hér tilfærð
nokkur dæjmi.
Steinolíueinkasalan er borin
Ásmundur Guðmundsson.
fram af Magnúsi Guðmundssyni
og Bimi Kristjánssyni 1917.
Margir af þeim mönnum sem nú
standa fremstir í íhaldsflokknum
greiddu atkvæði með henni.
íhaldsmenn komu 1921 einka-
sölu á lyfjum og víni, en tókst
ekki að koma á einkasölu á korn-
vörum þrátt fyrir harðvítuga til-
raun.
Ihaldsmenn voru það sem mest
beittu sér fyrir því á þingi 1921,
að ríkið tæki einkasölu á tóbaki
til að afla ríkinu tekna. Meðal
þeirra Ihaldsþingmanna, sem
greiddu atkvæði með tóbakseinka-
sölunni var Þórarinn á Hjalta-
bakka, sem íhaldsflokkurinn nú
leggur kapp á að koma upp I
efri deild. Hann er lílja með
^teinolíueinkasölunni og ef nokkr-
ir menn mættu kallast „einokurar-
postular“, þá er það hann og M.
Guðmundsson.
Öllum mun í fersku minni bar-
átta ýmsra helstu forkólfa Ihalds-
ins á síðasta þingi fyrir einka-
sölu á tilbúnum áburði og síld-
sölu. Skal hér því ekki frekar
farið út í þá sálma. En þetta
ætti að nægja til þess að sýna,
að „einokunarpostulana" er fyrst
og fremst að hitta innan Ihalds-
flokksins.
Framsóknarmenn eru á annari
skoðun. Þeir trúa á verslun kaup-
félaganna og telja samvinnu t
verslunarmálum heppilegasta fyr-
ir land og lýð. Þeir vilja aðeins
grípa til einkasölu, til þess að
brjóta ofbeldi útlendra og inn-
lendra auðvaldshringa, sem náð
hafa einokun á vissum vöruteg-
undum (t. d. steinolíu). I ein-
staka tilfellum gæti líka komið
til mála að afla ríkissjóði tekna
með einkasölu á vörum, en auð-
vitað yrði sú leið sjaldan farin.
íhaldsblöðin ættu því sem
sjaldnast að minnast á einokun,
því með því snoppunga þau fyrst
og fremst annann manninn á
landkjörslista flokks síns og
marga aðra af helstu foringjum
sínum. Samvinnumaður.
í Póllandi er alt á ringul-
reið. Pilsudski reynir að stjórna
með hervaldi, en litlar líkur eru
til þess að honum takist að friða
landið.
í Englandi er féleysi farið
að sverfa svo að námumönnum,
að búast má við því að þeir verði
að láta undan. Verkfallssjóðir
þeirra eru því sem næst eyddir
og hungrið fyrir dyrum.
Fmmsóknarmenn!
Munið eftir að sækja kjörfund
og kjósa D-listann.
Þingmálafundir.
Landkjörsframbjóðendur hafa
nú undanfarið haldið þing-
málafundi á fjöldamörgum stöð-
um. Tíminn hefir frétt það af
þeim, að þeir hafi verið sæmilega
sóttir, en ekki ágætlega, farið
friðsamlega fram og rólega og
kosningahiti virðist ekki vera
mikill. Frásagnir dagblaðanna
um fundina hafa verið ærið sund-
urleitar, enda er sú glópska orðin
algeng (og hér eiga öll blöð hlut
að máli), að skýra ekki rétt frá
fundunum, svo lesendur blaðanna
fái að vita hvað á þeim hefir
gerst, heldur lita frásögnina
þanjiig, að hægt sé að nota hana
í kosningabaráttunni. Það er
heldur lítið uppbyggilegt, að fá
að vita að N. N. „hafði langmest
fylgi á fundinum“ eða allir stóðu
varnarlausir „fyrir rökfimi og
mælsku“ S. S. eða þesskonar
fróðleik, sem allir geta séð, að að-
eins er komið með til þess að
vegsama flokksbróðurinn, en ekki
til þess að fræða lesendurna.
Þetta er með öllu óhafandi, og
blöðin ættu að geta orðið sam-
taka um að láta fréttaritara sína
gefa stutt en rétt ágrip af ræð-
um þingmanna eða frambjóð-
enda á stjórnmálafundum. Ef
þeim þykir ástæða til að minn-
ast á þá. Svo geta ritstjóramir
tekið sig til og skýrt málin frá
sínu sjónarmiði á eftir og skamm-
að andstæðirígana eins og þeim
þóknast, en þá hafa lesendur
nokkuð til samanburðar og geta
því heldur áttað sig á hvað rétt er.
Af þessari breytingu ættu allir
að hafa hag, en enginn óhag, og
þess ættu blaðamenn og fram-
bjóðendur að gæta, að hinar lit-
uðu fundarskýrslur, sem nú tíðk-
ast, eru engum til gagns. Fólkið
þreytist á þeim og tekur ekkert
mark á þeim. Hér er því brýn
þörf á breytingu.
----o-----
Dansk-íslenska ráðgjafamefndin
hefir nú lokið fundum sínum.
Þau mál, sem hún tók til með-
ferðar voru essi:
Sildarsölulögin. Nefndin athug-
aði þau þegar áður en þau voru
staðfest, og er svo um búið, að
þau verði athuguð nánar, ef til
kemur að þau verði framkvæmd.
Ætlunin er að tryggja öllum hlut-
aðeigendum að fullkomins jafn-
réttis verði gætt er lögin koma
til framkvæmda.
Veiðar útlendinga við Island.
Nefndin ræddi um hvaða ráðstaf-
anir þyrfti að gera í báðum
löndunum til að koma í veg fyrir
misnotkun réttarins til að veiða
í íslenskri landhelgi og til að
verka fiskinn í landi, á þann hátt
að verkað sé og saltað fyrir reikn-
ing erlendra manna.
Réttur til vistar á heilsuhæl-
um. Nefndin skoraði á stjómir
beggja landanna, að koma því til
leiðar með bréfaskriftum eða
samningi, að sú venja verði fest,
sem hingað til hefir verið ríkj-
andi, að íslendingar fái inntöku
á dönsk heilsuhæli og öfugt.
Endurheimt skjala og fom-
minja. Loks hefir nefndin sam-
þykt uppkast að samningi um