Tíminn - 09.04.1927, Qupperneq 4

Tíminn - 09.04.1927, Qupperneq 4
60 TlMIlíN Herragarðurinn og prestssetrið. Kemur út í þeBSum mánuði. Verð fyrir áskrifendur: Á vanaleg- an pappír kr. 4,00. Á glanspappír, bundið í skinn kr. 30,00. (Á glans- pappír verða prentuð aðeins 10 eintök tölusett og eru 5 stk. óseld). í bókabúðum kostar bókin kr. 10,00. Þeir sem panta bókina utan af landi verða að láta eina krónu fylgja pöntun, annars ekki tekin til greina — Sömuleiðis verða pantanir að vera komnar útgáfunni í hendur í síðasta lagi 1. maí 1927. Bókaforlagid. Reykjavík. li á M Mð IIÉIÍIÍ. Þegar Einar í Nesi sagði fyrir um 1890, að hér ætti að vera kaupfélög við hverja ihöfn, og samvinnubiað er kæmi inn á hvert heimili, þá hefir sá vitri og framsýni maður fundið hið eðlilega samræmi þar á milli. Með kaupfélögunum trygði allur þorri landsmanna sér góða og ósvikna vöru með sannvirði. Með sam- vinnublaði trygðu menn sér frétt- ir innan lands og utan, og rit- gerðir þannig, að almennir hags- munir sætu í fyrirrúmi. Fyrir 20 árum kvörtuðu leiðtogar kau]> félaganna yfir að þeir gætu ekki fengið að rita í blöð þau, sem þá vora til, af því að blöðin voru háð sérhagsmunum milliliða, ís- lenskra og útlendra. Mjólkurneyténdum varð þó enginn hagur að þessu til fram- búðar, því að á meðan söluör- yggið var ekki meira en þetta, voru aðeins örfáir menn sem lögðu nokkra alúo við mjólkur- framleiðsluna og hlaut hún því að verða kostnaðarsamari en þörf var á og mjólkin auk þess iðu- lega af skomum skamti. Á starfsárum félagsins hefir þetta verið að smábreytast, svo að nú munar miklu frá því sem var. Nú verður aldrei mjólkur- skortur í Reykjavík. Fyrst og fremst leggur félagið mikla á- herslu á að gjöra mjólkurfram- leiðsluna sem jafnasta yfir árið. Auk þess sér það um mjólkur- kaup utan félagssvæðisins þá tíma sem það ekki fullnægir mjólkurþörfinni af eigin ram- leik. hinn bóginn bætir það einnig úr söluþörf bænda þann tíma ársins, sem mjólkin er of mikil, með því að vinna úr henni smjör, skyr og ost og koma því í peninga. Þannig hefir það bætt fræræktartilraunimar þangað, nema það væri í skilyrðum haft, og sjálfsagt þætti að ganga að þeim. Það skal ekki vefengt, sem G. J. heldur fram að kostn- aður gæti orðið minni, ef margt er sameinað á einum stað. Gildir það um margt fleira en tilrauna- starfsemi, og er þó eigi nærri ætíð eftir því farið, jafnvel þótt beinna liggi við en í þessu efni, enda er það svo að kostnaðurinn er ekki ætíð aðalatriði, og að mínu áliti á það alveg sérstak- lega við í þessu máli. Mér er kunnugt um að G. J. lítur svo á, að grasfræræktartil- raunimar eigi að reka undir meðalskilyrðum, og að þau séu á Ólafsvöllum, en í Fljótshlíðinni séu þau betri en í meðallagi, og þess vegna sé ekki rétt að hafa þær þar. Nú sýna þær undirbún- ingstilraunir í grasfrærækt, sem hér hafa verið igerðar, að það er á takmörkum að fullþroskað fræ geti fengist af sumum okkar bestu túngrösum. Þess vegna lít eg svo á, að til þessara tilrauna þurfi valinn stað, að landkostum og veðurfari, einkanlega í byrjun, meðan allar aðferðir eru því sem næst óþektar, svo að á öll- um sviðum þarf að þreifa fyrir sér og leita að nothæfum að- ferðum. Það er í samræmi við þessa úr annmörkum mjólkursölunnar til beggja handa, kaupandans með því að tryggja honurn altaf mjólk, seljandans með því að tryggja honum markað. Það hef- ir þannig lagt undirstöðuna að búskap bændanna í nærsveitum Reykjavíkur eins og að hann er rekinn nú og verður framvegis. Áður hlupu þeir með mjólkursop- ann á götúna í þeirri von að ein- hver væri þyrstur. Nú framleiða þeir rólegir fyrir mjólkurbúið sitt í vissu um að fá til baka, gegn fyrirfram ákveðnu gjaldi, það fylsta verð, sem varan legg- ur sig á, hvort heldur að hún er seld sem mjólk eða að henni er breytt í önnur matvæli. Vöruvöndunin er einn þýðing- armesti þátturinn í starfi félags- ins. Nokkru eftir að félagið var stofnað, reisti það sér fullkomna gerilsneyðingastöð til þess að geta haft við mjólkursölu sína sama hreinlæti og krafist er ann- arsstaðar í heiminum þar sem þrifnaður og menning er á háu stigi. Síðan selur það ávalt nokk- urn hluta mjólkurinnar geril- sneyddan á flöskum og sendir heim til kaupenda. Er það fastur hópur kaupenda og allálitlegur sem kunnað hefir að meta þann þrifnað og þá hollustu sem þessi nýung hafði í för með sér, þó að bæjarfélagið sem heild hafi ekki enn fengist til að sjá það við félagið í neinu, og þó að all- ur þorri bæjarbúa virðist enn ekki álíta óhreinindi og gerla- gróður í mjólkinni annað en nauðsynlegt krydd. Á sama hátt hefir það reynt að vanda sem best til sölubúða sinna. Enda bera þær af flestum öðrum mjólkursölustöðúm bæjar- ins bæði að þrifnaði og öllum út- búnaði. Annar liður 4 starfsemi félags- ins er vörukaupin fyrir bændur. Frh. skoðun, að staðurinn var valinn í Fljótshlíðinni, þeiiTÍ sveit, sem eftir almannadómi er einna frjó- sömust og veðursælust hér á landi. Og frá þeim stað mun stjórnin ekki hverfa, þótt lof- orð fengjust um tilraunabú. Undanfarin Búnaðarþing hafa talið mjög þýðingarmikið að ís- lensk grasfrærækt komist á fót og sem fyrst. Það hefir verið lit- ið svo á, að hér sem annarsstað- ar myndu innlendu stofnarnir reynast bestir yfirleitt. Sáðrækt fer vaxandi og þarmeð grasfræ- þörfin, og rekur á eftir að inn- lend grasfrærækt komist á. Það mundi tefja framkvæmdir í því máli ef því væri hrundið út af þeim grundvelli, sem fyrir það hefir verið lagður, og ef til vill eyðileggja það í bili, ef frærækt- in yrði sett á óheppilegan stað. Meðan tilraunabúin komast ekki á fót á að veita bændaskól- anum nokkurt fé til tilrauna- starfsemi, enda má það margra hluta vegna teljast sjálfsagt, að þar séu tilraunir gerðar, og jafn- vel rekin þar tilraunabú. Og hvað sem tilraunabúunum annars líður, þá þarf það mál annan og meiri undirbúning og athugun en það hefir enn fengið. Það er ekki mál, sem flana má að eða ráða til lykta án rækilegs undirbúnings. Metúsalem Stefánsson. H.f. Jón Slgmmtil—cp & Co T BEilInr og alt til upphluts sérlega ódýrt. Skúfholk&r úr gulli og silfri. Sent með póstkröfu út um land ef óskað er. Jón Sigmundsson gnHsmiBnr. Sími 888. — Laugaveg 8. IMZa-ltÖl Bstjerslszt öl Pilsner Best. — Odýrast. Innient. Með hinni gömlu, viðurkendu og ágætu gæðavöru Herkulesþakpappa sem framleidd er á verksmiðju vorri ,.Dortheasminde“ frá því 1896 — þ. e. í 30 ár — hafa nú verið þaktir í Danmörku og Islandi. ca. 30 milj. fermetra þaka. Fæst alstaðar á Islandi. Hlutafélagið Mh fiiriUær Köbenhavn K. Slæm prentvilla var í grein Árna G. Eylands í síðasta tbl. Þar stóð: þéttfingraðar greiðuv fást ekki en átti að vera þétt- fingraðri greiður fást ekki. VAKA I. árg. 2. hefti er að koma út. Efni 1. h.: Ágúst Bjarnason: Sjálfstæði Islands; Olafur Lárusson: Lög og landslýður; Sigurðu'r Nordal: Raf- stöðvar á sveitabæjum; Guðm. Finnbogason: Helgar tilgangur- inn tækin; Sig. Nordal: Samlagning; Davíð Stefánsson: Hall- freður vandræðaskáld; Ásgeir Ásgeirsson: Gengi; Árni Páls- son: Þingræðið á glapstigum; S. N., Stafsetning; Ritfregnir eftir Ó. L., S. N. og G. G. B. Efni 2. h.: Árni Pálsson: Mussolíni; Jón Þorláksson: Silfrið Koðrans; Sig. Nordal: Poksandur; Kristján Albert- son: Uip bersögii; Páll ísólfsson: Beethoven; Baugabrot; Orða- belgur (Greinar eftir S. N., G. P. og K. A). Ritfregnir eftir Á II. B., S. N., K. A. og G. F.‘ Aðalafgreiðslumaður: He 1 gi Árnason, Safnahúsinu, Rvík. HeimilLsiðnaðarfélag íslands. Y efnaðarnámskeið. Hið árlega vefnaðarnámskeið Heimilisiðnaðarfélags íslands hefst í Reykjavík 1. októher næstkomandi og stendur yfir í 2 mánuði. Kent er 8 stundir á dag, á fullkomnustu vefstóla. Kenslugjald 75 krónur fyrir allan tímann. Umsóknir sendist se:n allra fyrst til undirritaðrar, sem einnig veitir allar nánari upplýsingar. Reykjavík 23. mars 1927. Karólína Guðmundsdóttir, Skólavörðustíg 43. Sími 1 509. Fyrir alla. Til þess ennþá að anka hróðui- verslunar ok'kar, ætlum við að bjóða öIIubi tækifæriskaup á grámn gúmmiskóm með hvitum hotn- um. sem sje: Karlmannastærðir fyrir, kr. 7,75 parið. Kvenstæröir - - 6,75 — Unglingastærðir — - 5,90 — Hér við bætist burðargjald út um land, sem verður kringum 70 aura á parið. — Með næstu ferðum fáum við stórt úrval af allskon- ar gúmmistigvélum, sem við ætlum lika að selja fyrir óheyrilega lágt ve.rð, t. d. grá eða brún gúmmistigvél, hnéhá, með hvitum botn- um seljast, í karlmannastærðum frá nr. 7-11, fyrir kr. 18,50, parið, að viðbættu burðargjaldi, sem verður kringum 70 aurar á parið iit um lind. - K\en- og unglingastærðir'komá einnig-, og verður verðið hlutfallslega lægra. Bæði gúmmískórnir og gúmmistigvélin eru nauð- synieg fyrir alia sem ganga á engjar, fyrir utan það að þetta er sterkasti eg endingarbesti skófatnaðurinn. - Fyrir þá sem eru fótrakir viljum við ráðleggja" að panta ;sér „Kork“-ileppa, sem við seljum fyrir 75 aura parið, og sem halda fótunum alveg þurrum - Munið eftir alleðurskónum (hússkónum), sem við seljum fyrir aðeins kr. 3,50, að viðbættuin 50 aurum i burðargjald út uin land. — Einnig viljum við minna alla á, að gefa okkur upp nákvæmt mál eða stærðarnúmer af skófatnaði þeim sem þér notið. - Best væri að greiðslan fylgdi hverri pöntun, og að minsta kosti helmingsgreiðsla á því sern pant- að er verður að fylgja með pöntun, til þess að sending á vörunni komi til greina. - Ef yður ekki líkar skófatnaðurinn að ölhi leyti tökuin við hann aftur, “og"endurgreiðum yður peninga yðar án frá- dráttar. - Skrifið strax i dag; þess fyr fáið þér sendinguna til yðar. EIRIKUR LEIFSSON Simnefni: „Leifur“. Talsimi 822. Skóverslun. Laugaveg 25. PóstlióK 111. Reykjavik. Kjöttunnur, L. Jacobsen, Köbenhavn Símn.: Cooperage V a 1 b y Ritstjóri Tryggvi Þórhallsson. Prentsmiðjan Acta. alt til beykisiðnar, smjörkvartel o. s. frv. frá stærstu beykissmiðjum í Danmörku. Höfum í mörg ár selt tunnur til Sambandsins og margra kaupmanna. Alit kennara og foreldra um hinar nýju kenslubækur eða sjálffræðara Bókafélagsins: (9) Dýrafræði J. J. líkar mér mjög vel. Lýsing á eðli og hátt- um dýranna er framsett í auðveJt og aðgengilegt form og stíllinn víðast hvar prýðilegur. Þó er Fugiafræðin e. t. v. enn betri. Og sameiginlegt með báðum bókunum er það, hve ljós og skilmerki- leg og skemtileg frásögnin er. En sennil. er þó sá kosturinn mest- ur og bestur, hve laginn höf. er á að snerta viðkvæma strengi bamssálarinnai‘ til samúðar með þessum mállausu bræðrum og systrum. Dýravemdunarmálinu er gtór styrkur að bókunum. Og ]iað er kannske það besta sem ura þær er þægt að segja. Það er og að mínu viti laukrétt stefna, ag kenslubækur séu allar í les- bókarformi, að efni til, en ekki þurrar, stuttar beinagrindur. — Höfundi séu bestu þakkir fyrir hjg ágæta starf, og njóti heill handa við fleiri bækur. 12. nóve^þgj. 1926. SNORRI SIGFOSSON, skólastjóri Flateyri.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.