Tíminn - 30.04.1927, Blaðsíða 3
TlMINN
dag um námstímann og mest 160
kr. hverjum, enda sé þá námið
stundað minsta kosti í 6 vikur.
Um skyldur og réttindi aðilja fer
að öðru leyti eftir nánari reglum,
er félagið setur.
Þeir, sem þessu vilja sinna á
báðar hliðar, gefi sig fram sem
allra fyrst.
----o----
Búnaðarbálkur.
Áburður, — évinsla.
Allir sem nokkuð hafa um það
hugsað, munu hafa ákveðinn
grun um að búfjáráburðurinn
eins og hann er venjulega notað-
ur, komi túnunum sjaldan að
fullum notum; — stundum jafn-
vel að mjög litlum notum. Not-
kunin er misjöfn, sumir bera á
á haustin, aðrir á vorin; sum-
staðar er breitt úr um leið og
borið er á, sumstaðar liggja
hlössin óbreidd í fleiri mánuði.
Sumstaðar er slóða dregið um
leið og breitt er, sumstaðar ekki
fyr en löngu síðar; og sumstað-
ar er malað og ausið. En hvem-
ig sem þessu er hagað með á-
vinsluna, er það sameiginlegt, að
veður og vindur fær mjög gott
tækifæri til að leika um áburð-
inn. Við komum honum ekki niB-
ur I jörðina.
Stöku bændur, sem góöa að-
stöðu hafa, og lengst em komnir
með túnræktammbætur, em
farnir að aka öllum búfjáráburð-
inum í flögin og nota eingöngu
tilbúinn áburð á grasgróna túnið.
Það er ör og mikil ræktun. Þó
svo langt verði ekki komist al-
staðar, mun óhætt að telja það
framtíðarmarkið, að búfjáráburð-
urinn komist fljótt og vel niður
í jörðina, en sé ekki „spanderað“
í vafasama yfirbreiðslu — og
afrak.
Nýjar danskar tilrauxiir sýna
ljóslega hve mikils er um vert að
áburðurinn komist fljótt niður í
jörðina. Tilraunin var gerð á
komakri og útkoman var þessi:
Kom af máli
Án áburðar fengust 287 kg.
Áburður 2000 kg.
plægður niður um
leið og borið var
á, fengust .. 868 kg.
Sama áburðarmagn,
áburðurinn plægð-
ur niður eftir 6
tíma, fengust .. 857 kg.
Sama áburðarmagn,
áburðurinn plægð-
ur niður eftir 24
tíma, fengust . . 863 kg.
Sama áburðarmagn,
áburðurinn plægð-
ur niður eftir 4
sólarhringa, feng-
ust............. 828 kg.
Áburður 1000 kg.
plægður niður um
leið og borið var
á, fengust . . . . 327 kg.
Við þessa tilraun fengust því
eins mörg kíló af korni eftir
1000 kg. af áburði sem plægð-
ur var niður um leið og borið
var á, eins og eftir 2000 kg. af
áburði, sem lá 4 sólarhringa í
breiðslu áður en honum var kom-
ið niður í jörðina.
Hver ætli útkoman hefði orðið
ef áburðurinn hefði aldrei verið
plægður niður, ef hann hefði leg-
ið ofanjarðar í nokkrar vikur og
honum svo verið rakað af aftur?
Sjálfsagt hefir veðurfarið mik-
il áhrif á útkomuna, einnig er
áburðurinn misjafnlega viðkvæm-
ur fyrir áhrifum „lofts og lagar“
eftir því hvemig hann hefir
verið hirtur áður en hann er
borinn á og breiddur.
Á. 6. Eylands.
Samvinnumál.
Einstaka samvinnuheildsalar
hér á landi halda að Island sé
eina landið, þar sem kaupfélög
starfa og að minsta kosti séu
„sambönd“ hvergi til nema á
Islandi. En þetta er meiriháttar
misskilningur. Kaupfélög em til
í öllum menningarlöndum og
samvinnuheildsalar í hverju
landi Norðurálfunnar nema
sumum Balkanríkjunum og á
Spáni og Portúgal.
Elsta núlifandi kaupfélag vai-
stofnað í dálitlum bæ, Rochdale,
skamt frá Manchester árið 1844.
Svo liðu 20 ár. Á þeim ámm
fjölgaði kaupfélögum talsvert
mikið í Englandi og árið 1864
mynduðu 60 slík félög hið fyrsta
„samband“. Nú er því sambandi
vaxinn svo fiskur um hrygg, að
í því eru nálega öll kaupfélög í
Englandi, en þau eru þar svo
fjölmenn að talið er að þriðji
hver maður í landinu versli í
kaupfélagi og heildsalan í Man-
chester er svo stór, að hún á
ekki sinn líka nema þar sem
hringamir eru. Fjómm árum
T. HL Bucli
(Ziitasmidja Buchs)
Tietgensgade 64. Köbenhavn B.
LITIR TIL HEIMALITUNAR:
Demantssorti, hrafnssvart, kastorsorti, Parisarsorti og
allir litir, fallegir og sterkir.
TIL HEIMÁNOTKUNAR:
Gerduft „Fermenta“, eggjaduft, ávaxtadropar, soya,
matarlitir, „Sun“-skósvertan, „ökonom“-skósvertan, sjáf-
vinnandi þvottaefnið „Persil“, „Henko“-blæsódinn,
„Dixin“-sápuduftið, „Ata“-skúriduftið, kryddvörar, blámi,
^ skilvinduolla o. fl.
nranspoim.
LITARVÖRUR:
Anilínlitir Catechu, blásteinn. brúnspónslitir.
GLJÁLAKK:
,,Unicum“ é gólf og húsgögn. þomar vel. Ágset tegund.
HOLLENSKT EXPORT KAFFI-SURROGAT:
Besta tegund. hreint kaffibragð og ilmur.
Fæst atstaðar á íslandi.
Notad
um allan
heim.
ÁriO 1904 var
1 fyrsta sinn
þakiagt i Dan-
mörku úr
- Icopal. —
Besta og ódýrasta eíui í þök. Tiu ára ábyrgð á þökunum
Þurfa ekkert viðhald þann tíma.
Létt --------- I»étt -------- Hlýít
Betra en bárujáru og málmar. Endist eins vel og skífuþök
Fæst alstaðar á Islandi.
jens Villadsens Fabríker,
Köbenhavn K.
Bidjið um verðskrá vora og sýnishorn.
síðar, 1868, byrjuðu Skotar sína
samvinnuheildsölu í Glasgow og
er hún miðuð við þjóðarstærð,
öllu voldugri en enska heildsalan.
Þá koma Danir næstir í röðinni.
Severin Jörgensen stofnaði heild-
sölu þeirra 1888. Hún er nú
stærsta verslunarfyrirtæki í land-
inu, hefir 12 útibú víðsvegar um
landið, og fjölmargar verksmiðj-
ur. Þessar þrjár samvinnuheild-
sölur, sem elstar em, og hér hafa
verið taldar, eru yfirleitt þroska-
meiri og hafa leyst fleiri við-
fangsefni en yngri stallsystur
þeirra. . Svisslendingar em hinir
fjórðu í röðinni. Þeirra heildsala
er stofnuð í Basel 1892. I þeirri
borg em nálega allir menn í
kaupfélagi. Þjóðverjar em hinir
fimtu. Þeir byrjuðu kaupfélags-
heildsölu í Hamborg 1894. Er
hún nú orðin risa-fyrirtæki og
færir út kvíar árlega. Fjórum ár-
um síðar(1898)byrjuðu Rússar 1
Moskva. Hefir heildsala sú nú
/
71-
SKILVINDAN er
smíðuð af stærstu
og elstu skilvindu-
verksmiðju í heimi
og hefir náð fá-
dæma útbreiðslu. Eru yfir
3.500.000 Alfa-Laval skilvindur í
notkun víðsvegar um heim.
Látið ekki dragast að kaupa
ALFA-LAVAL skilvindu. Fást
hjá Sambandskaupfélögunum. I
heildsölu hjá
Sambandi ísl. Samvlnnufélaga.
Vatnsleiðslu
pípur
með öllujtilheyrandi, getum við selt
mjög ódyrt í vor
Gerið svo vel og senda okkur fyrir-
spurnir áður en þér festið kaup ann
arsstaðar.
J.Þorláksson & Norðmann
Reykjavík.
Simnefni: Jónþorláks.
orðið óvenjulega mikil viðskifti,
en tvennum sögum fer um það,
hvort sú starfsemi sé ekki frem-
ur ríkisrekstur en samvinnufé-
lagsskapur, síðan verkamenn
tóku völd í landinu. Tveim árum
síðar (1900) hefst heildsala
Frakka 1 París, en hún er þroska-
lítil, eins og kaupfélögin, því að
lund fólksins hneigist meir til
einstaklingshyggju en í flestum
öðrum löndum. Svíar og Finnar
byrja heildsölu í Stockhólmi og
Helsingfors 1904 og er uppgang-
ur samvinnunnar síðan mikill í
báðum löndunum. Yngri heildsöl-
ur eru í Austurríki, Ungverja-
landi, Hollandi, Noregi, Póllandi
og Tjekkóslóvakíu. Islenska sam-
bandið er stofnáð 1902. Sex ár-
um síðar sendi það í fyrsta sinn
mann út til að annast sölu á
kjöti félaganna. 1914 setti Hall-
grímur Kristinsson á stofn ekrif-
stofu fyrir félögin í Kaupmanna-
höfn og 1917 fluttist sú skrif-
stofa til Reykjavíkur og hefir
starfað hér síðan.
ir sínar eigin gömlu syndir. Varð
þetta til þess, að B. Kr. varð að
þola að sekt hans frá 1909 var
fullsönnuð. Eitt af skemtileg-
ustu gögnum málsins var það, að
B. Kr játaði að hann myndi atvik
frá 1909, sem hann taldi sig ekki
muna 1911, er hann stóð fyrir
rannsóknamefnd Alþingis. Þeirri
líking úr Njálu var snúið upp á
B. Kr., þegar Mörður, sem verið
hafði, svo sem sagan segir, aðal-
hvatamaður að vígi Höskuldar
Hvítanesgoða, nefndi ekki votta
að því af sámm Höskuldar, sem
hann hafði sjálfur veitt. En
einna mest áhrif á Bjöm sjálfan
hafði sú endurminning er vikið
var að því eftirminnilega kvöldi
22. nóv. 1909, er Tr. G. og B.
Kr. stóðu báðir við lampaljós í
steinhvelfingu Landsbankans.
Sjóður bankans hafði verið tal-
inn og reyndist í fullu lagi. B.
Kr. stóð sneyptur yfir að sjá þá
von brostna, að geta sett blett á
minningu andstæðings síns í
sambandi við sjóðþurð. Tryggvi
Gunnarsson dró þá lykla bankans
fram, kastaði kippunni að fót-
um B. Kr. og mælti: „Njóttu
eins og þú hefir aflað“.
Tillaga Jóns Guðnasonar og
Ingvars Pálmasonar um áfengis-
vamir var feld, allir liðimir.
Stjómarflokkurinn beitti sér
móti öllum þeim atriðum, sem
að því lutu, að hefta framgang
áfengisnautnar í landinu. Var
skellihlátur á pöllunum þegar
dvergurinn frá Sauðárkrók játaði
með nafnakalli sitt pólitíska vin-
fengi við Bakkus. Ihaldsmenn
vilja ekki gera tilraun til að létta
af Siglufirði og öðmm kaupstöð-
um bölvun áfengisbúðanna. Þeir
vilja ekki freista að ná betri
samningum við Spán. Þeir vilja
ekki leyfa að áfengisverslunin
hætti að lána út áfengi, en nú
skuldar verslunin um hálfa milj-
ón. Og þeir vildu fyrir hvem
mun halda því leyndu fyrir al-
menningi hve mikið hver vínsala
lætur úti. Jón Guðnason og Ing-
var vildu að í Lögbirtingablað-
inu væri nokkmm sinnum á ári
gefin út hagskýrsla um vínsölu
lyfjabúða og lækna. Þá myndi
koma í ljós, að nálega allir bestu
læknar landsins nota hér um bil
ekkert áfengi, en lélegu lækn-
amir því meira. Á þennan hátt
hefðu hinír brotlegu trúnaðar-
menn þjóðfélagsins verið lagðir
undir dóm almenningsálitsins. En
allir íhaldsmenn feldu þetta, en
i því er fólgin bein yfirhylming
með afbrotum. Þegar Jónas Kr.
hafði drepið frv. um aðhald að
druknum embættismönnum og
aína «igin tillögu um stúdents-
próf á Akureyri, sagði einn
templari: „Hvað skyldi verða það
þriðja?“ Nú er þeirri spumingu
svarað.
I skjóli við þingsetu J. Kr.
geta liðléttingamir í læknastétt
landsins enn um stund selt á-
fengi til að veikla heilsu manna
í landinu, án þess að almenning-
ur fái að vita hverir eru sekir
og hverir saklausir. En eitt hef-
ir áunnist við þingsetu J. Kr.
Hér eftir verður engum íhalds-
manni trúað í áfengismálinu.
Pétur Ottesen, J. Kr., Jón ölafs-
son Drafnarforstjóri, hvað þá
hinir, halda ætíð og undir öll-
um kringumstæðum, vörð á Al-
þingi um áfengið í landinu.
Fjárlögin em komin úr nefnd
í Ed. Ihaldið hefir lagt til að
klípa af mörgum liðum, mest á
verklegum framkvæmdum, lækk-
að til flestra vega, aíma og brúa.
Auk þess er hagsmunum flokks-
ins drjúgum þjónað. Ihaldið vill
drepa hinn litla vísi til húsmæðra-
fræðslu í Þingeyjarsýslu, en
hækkar til kvennaskólans í
Reykjavík. Feld er niður fjár-
veiting til búpeningshúsa á
Hvanneyri, en lagt til samskon-
ar útgjalda á Hólum, líklega af
því að það er kjördæmi M. Guðm.
Lækkaður er ennfremur um 1000
kr. hinn sárlitli styrkur til hins
nýja húsmæðraskóla á Staðar-
felli og lækkað um 2000 kr. til
nauðsynlegra umbóta við hinn
ágæta húsmæðraskóla á Blöndu-
ósi. Má segja að meirihlutinn í
Ed. sé mjög lítið hlyntur fram-
lögum til mentunar kvenna ut-
an Rvíkur.
Við umræður í Nd. beitti
íhaldsflokkurinn með fáum und-
antekningum mjög hlutdrægt í
fjárlögunum.
Suður-Múlasýsla fær nálega
ekki neitt til verklegra fram-
kvæmda og er þó æin sú sýsla
sem mest gefur landssjóði. Beitti
stjómarflokkurinn sér allur móti
9000 kr. til vegalagningar milli
Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og
áttu þó héraðsmenn að leggja
fram nokkuð þar á móti. Sama
var að segja með Dalaveginn. Sr.
Jón Guðnason bar fram kröfu
um 16 þús. kr. til að byrja þann
veg og kom henni í gegn með
15:13 (allir íhaldsmenn deildar-
innar móti). Má slíkt heita
furðulegt þegar litið er á það hve
mjög Dalamenn hafa verið af-
skiftir í samgöngumálum. Er það
hið heitásta áhugamál allra sýslu-
búa að fá akveg yfir fjallið og
komast þannig í fjömgt við-
skiftasamband við önnur héruð.
Nú ætla Ihaldsmenn í Ed. að
klípa af þessum 15 þús. en ekki
mun málið gefið upp að óreyndu.
Samhliða þessu hefir stjórnin
verið eyðslusöm úr hófi fram til
þeirra hluta sem hennar gæðing-
ar telja nauðsynlega. Þannig hef-
ir Jón Þorl. borgað 16—20 þús.
úr landssjóði í viðgerð á húsi í
Reykjavík sem landið notaði við
móttöku gesta í 3 vikur. Um
sama leyti var laglegt brúarverð
lagt í að skinna upp á ráðherra-
bústaðinn handa Jóni Þorláks-
syni. Handa Vestmannaeyjum
verða lögð fram 70 þús. kr. úr
landssjóði til að dýpka höfnina
nú í sumar, og mikið fé lánað
Akureyri í sama skyni. Mun það
þó vera best höfn á landi hér
frá hendi náttúmnnar svo að
víðar mun skórinn kreppa að um
réttmætar kröfur til umbóta. Þá
hefir íhaldið í Nd. samþykt að
byggja 150 þús. kr. heimavist við
mentaskólann. Er það algerlega
óþarfi þai- sem Akureyrarskólinn
tekur á móti þeim aðkomnu pilt-
um, er þörf hafa fyrir slíka að-
stöðu. Er það beinlínis óafsakan-
leg léttuð að kasta mörg hundr-
uð þúsundum króna þannig í
óþarfar húsabyggingar í höfuð-
staðnum. Auk þess hefir íhalds-
flokkurinn samþykt í Nd. að
byggja í Rvík stærðarskóla fyrir
bæinn. Era það tvær byggingar.
önnur lítið eitt styttri en Lands-