Tíminn - 28.05.1927, Side 2
94
TlMINN
Frá útlöndum,
Bretar hafa nú slitið stjórn-
málasambandi við Rússa. Ánægija
yfir þeim tiltektum í íhalds-
flokknum, en Lloyd George telur
ráðstöfun þessa óhyggilega og
geta verið hættulega breskum
hagsmunum. Komið hefir til
orða, að Frakkar fetuðu í þessu
efni í fótspor Englendinga, en
síðustu fréttir herma að það sé
ólíklegt.
— MikiJ kepni hefir verið milli
flugmanna uni| það hver fyrstur
yrði að fljúga yfir Atlantshaf.
Fyrir fáum dögum lagði ágætuv
franskur flugmaður, Nungesser,
af stað í flugvél frá París til
New York. Vont veður skall á og
týndist hann á leiðinni. Þótti það
miður drengilegt að veðurstofa
Bandaríkjanna var treg á veður-
fregnir til útlanda, meðan sá
maður var í heimanbúningi. Fá-
um dögum síðar flaug sænsk-
amerískur maður, Lindbergh, í
einum áfanga frá New York til
Parísar á 38 klukkustundum.
Þótti þetta hið mesta þrekvirki
og eru bæði Svíar og Bandaríkja-
menn stoltir yfir afreki flug-
kappans. Byrd, pólfarinn nafn-
togaði, var og að undirbúa At-
lantshafsflug, en komst ekki af
stað fyr en Lindbergh hafði stað-
ist þrautina. Er talið að hann
ætli þá í þess stað að fljúga yfir
Kyrrahafið. Þriðji fluggarpurinn
ætlaði að fljúga yfir hafið um
Azorseyjar, en vél hans bilaði.
Hann varð að lenda á sjónum, en
var bjargað af skipi, er sigldi
framhjá.
— Þýska þingið hefir fram-
lengt lögin sem heimila lýðveld-
inu að banna Vilhjálmi fyrver-
andi keisara landvist.
Fréítir.
Veðrið er hið hagstæðasta, oft-
ast sunnanátt og við og við hlý-
indaregn. Gróður er með álitleg-
asta móti.
Með Suðurlandi í morgun fór
Tryggvi Þórhallsson til Borgar-
ness, og heldur hann þaðan norð-
ur í Strandasýslu til að hafa í
einu leiðarþing og framboðsfundi
í öllum hreppum sýslunnar. Frá
hálfu íhaldsins verður þar í kjöri
Björn símstjóri á ísafirði. Tr. Þ.
símaði honum fyrir nokkru hve-
nær hann ætlaði að halda fundina
og bauð honum að koma, en
Bjöm kvaðst eigi myndi koma en
þó vera í kjöri. Þykir hinum fáu
íhaldsmönnum á Ströndum, sem
landsstjórnin hefði getað fengið
þeim fcjarkmeiri mann til forustu
í kosningamálunum.
Embættismannafélagið í Rvík
hélt fund í gærkvöldi m. a. um
það hvort félagið skyldi hafa
mann í kjöri við kosningamar 9.
júlí hér í bænum. Hafði félags-
stjómin áður sent út bréf til fé-
lagsmanna. og mátti af því ráða
að félagið vildi annaðhvort hafa
manna í kjöri til að berjast fyrir
launaumbótum embættismanna
eða þá að ná samkomulagi við
einhvem af þingflokkunum,
styðja hann síðan á kjördegi, en
fá að launum aðstoð flokksins á
næstu þingum. Margir töluðu og
kom greinilega í ljós, að starfs-
menn landsins í Reykjavík eru
margir hverir hörmulega haldnir.
Hækkun krónunnar hefir komið
hart niður á þeim, en húsaleigan,
skattar og dýrtíðin yfirleitt ná-
lega öll hin sama og áður var.
Einn hinn þektasti og ákveðnasti
íhaldsmaður í bænum, Árni Páls-
son, lýsti því yfir, að embættis-
menn bæjarins hefðu staðið sem
þéttur múr bak við íhaldsstjórn-
ina, en nú væri þolinmæðin á
þrotum yfir íhaldinu. —- Var
helst að heyra að margir íhalds-
embættismenn vildu sitja hjá við
kosninguna. Munu starfsmenn
landsins fá samúð margra manna
í erfiðleikum sínum, nema fyrir
það að þeir fylgdu stjórninm
glaðir meðan þeir héldu að krónu-
hækkunin skaðaði aðeins fram-
leiðendur, útvegsmenn og bænd-
ur. Fundinum lauk með því að
tveir af lærðustu mönnum fé-
lagsins lentu í illvígri persónu-
legri deilu og brugðu hver öðrum
um bitlingaveiðar.
Jón Þorl. ráðherra brá sér ut-
an með lögin til staðfestingar, en
kemur von bráðar aftur til að
taka þátt í kosningabaráttunni
með sínum samherjum.
Framboð frá hálfu íhaldsmanna
eru nokkur kunn. Talið er senni-
legt að allir þingmenn flokksins
nema Sigurjón reyni stríðsgæf-
una aftur og í sömu kjördæmum.
B. Kr. hafði marglýst yfir að
hann myndi hætta, en er nú að
iáta leita áskorana um áfram-
hald. Jóhannes mun og tregur
við Seyðisfjörð, því að þar hafa
kosningar gengið í óhag íhalds-
mönnum undanfarið. Mun hafa
verið nokkuð unnið, að því að
koma honum efstum á lista í
Reykjavík, en hvorki Jón Ólafs-
son né M. dócent munu hafa ver-
ið fúsir að standa upp fyrir hon-
um. Mun hann því væntanlega
leita austur aftur. 1 Suður-Múla-
sýslu teflir íhaldið fram Stefáni
presti á Hólmi og Þorsteini bónda
Stefánssyni á Þverhamri, en í
Norður-Múlasýslu með Árna,
Gísla bónda Helgasyni í Skógar-
gerði. 1 Norður-Múlasýslu er tal-
ið að Sig. Eggerz flokkurinn
bjóði fram Jón á Hvanná og Jón
bæjarstjóra á Akureyri. í Aust-
ur-Skaftafellssýslu ibýður sig
fram af hálfu íhaldsins Páll
Sveinsson, kennar i við menta-
skólann. Hann mun vera síðasti
íslendingur, sem hefir smekk
fyrir að setja saman ljóð á lat-
ínu. Sigurður Sigurðsson frá
Kálfafelli er farinn austur að afla
sér liðs og mun þykja íhaldið
launa honum lítt trygga þjón-
ustu. Á Rangárvöllum fer með
Einari á Geldingalæk Skúli á Mó-
eiðarhvoli. Hann hefir eitt sinn
boðið sig fram áður, féll þá og
fékk lítið. Björgvin sýslumaðup
hefir við orð að fara á stúfana
til að vinna fyrir héraðsskóla
Rangæinga, sem er honum hið
mesta hugðarmál, en óvíst er
hvort úr því verður. Þá er talið
íullvíst að Gunnar á Selalæk
bjóði sig fram, utan flokka, en
sem stjórnarandstæðingur. Hann
mun telja litlar líkur til að jám-
brautarmálið sé komið í trygga
höfn og er lausn þess helsta á-
hugamál hans. I Ámessýslu fara
þeir fram fyrir íhaidið Einar
Arnórsson háskólakennari og
Vajdemar í ölvesholti. Einar var
í þann veginn að taka að sér rit-
stjórn Mbl. er það nefndi sveita-
menn „þreklausan bændalýð“
haustið 1919. Enga leiðréttingu
gerði Einar, er hann tók form-
lega við blaðinu, en nú mun hann
helst hyggja sér athvarf nokk-
urt hjá einhverjum „þreklaus-
um bændum“. En ómaklega á-
deilu gerir hann á Ámesinga
J með því að snúa nú þangað geiri
sínum. I Dalasýslu fer fram fyr-
ir stjórnina Ásgeir prestur í
Hvammi, og í Vestur-lsafjarðar-
sýslu Böðvar prestur á' Rafns-
eyri, á Ströndum Björn sím-
stjóri, í Vestur-Húnaþingi Egg-
ert Leví á Ósi, en í austursýsl-
unni Þórarinn á Hjaltabakka. 1
Eyjafjarðarsýslu eru engir á-
kveðnir opinberlega. Valtýr Stef-
ánsson var um eitt skeið borinn
við framboð þar óg þreifaði fyrir
sér með skammargrein í Mbl. um
Kaupfélag Eyfirðinga. Var helst
að sjá sem húsbændum hans
þættu sjóðir K. E. betur komnir
í vösum Berlémes eða annara
stórdana, en þar sem þeir era nú.
En í dag leiðréttir Valtýr þetta
og segist ekki hugsa til fram-
boðs. Er þetta virðingarverð nær-
gætni við íhaldsmenn í Eyjafirði,
sem væntanlega heimta eitthvað
betra. 1 Þingeyjarsýslnm hafa
verið nefndir fyrir stjómarflokk-
inn Júlíus sýslumaður á Húsa-
vík, móti Ingólfi, en Kr. Alberts-
on móti Benedikt. Má af því
mannvali búast við að íhaldinu
þyki litlu fómandi að þessu
sinni í þeim tveim sýslum.
---o---
Framsókn
og hinir flokkarnir.
Framsóknarflokkurinn á þingi
telur nú 18 menn, en íhaldið 21.
— Fyrir tveim árum síðan hafði
íhaldið 22, en Framsókn 15. En
síðan hefir svo dregið saman með
flokkunum sem raun ber vitni um.
Höfuðtakmark Framsóknar-
flokksins er sjálfstæði þjóðarinn-
ar, sjálfstæði einstaklinganna í
landinu, djúp og varanleg þjóð-
menning er tryggi framtíð hins
íslenska kjmstofns.
Framsókn er flokkur starfandi
hugsjónamanna. Frelsi landsins,
efnalegt sjálfstæði þjóðarinnar,
menning þjóðarinnai’ á ókomnum
öldum er komin undir því að
Framsóknarflokkurinn. móti aðal-
iega félagsmál landsins. Ekki að-
eins næsta kjörtímabil, heldur
varanlega, langt fram eftir ó-
komnum árum.
En ef hér starfa líka í landinu
þrír aðrir flokkar verða Fram-
sóknarm. að haga svo seglum eft-
ir vindi, að betri þættir hvers af
Aðalfundur S. I. S.
------ Nl.
Ræða skólastjóra var þökkuð
með lófataki.
Miklar umræður urðu útaf
ræðu skólastjóra, og snerast um-
ræðurnar aðallega um það hvort
styðja bæri samvinnufræðsluna í
landinu. Alls töluðu um 20 fund-
armenn, en ræðutala nál. 40. Á
meðan á umræðum þessum stóð,
var tvisvar fundarhlé til hvíldar
og máltíða.
Að síðustu var borin upp eftir-
greind tillaga frá Ingimar Eydal:
„Að gefnu tilefni ályktar fund-
urinn, að lýsa því yfir að hann
telur Samvinnuskólann nauðsyn-
lega stofnun til eflingar sam-
vinnufræðslu í landinu og vill því
að að honum sé hlynt eftir þörf-
um“.
Tillaga þessi var samþykt með
öllum atkvæðum gegn einu.
Kl. 11 síðdegis var fundi frest-
að.
Föstudaginn 13. maí kl. 10,20
árdegis var fundi framhaldið.
Mætti þá Isleifur Högnason
fulltrúi kaupfélagsins „Drífandi“
í Vestmannaeyjum, og afhenti
hann kjörbrjef sitt.
11. Álit reikninganefndar:
Nefndin hafði nú lokið störf-
um, og gjörði framsögumaður
nefndarinnar Sigurður Jónsson
grein fyrir störfum nefndarinnar,
og las upp svohijóðandi:
reikningsnefndar, sem samþyktar
voru á síðasta aðalfundi S. 1. S.
Reykjavík, 12. maí 1927.
síðasti aðalfundur hafði falið
stjóminni að athuga sérstaklega,
hefði hún tekið til yfirvegunar:
a. Samþykta-breyting. Formað-
ur gat þess, að stjómin hefði
tekið rækilega tii athugunar
breytingar á samþyktum Sam-
bandsins, sérstaklega hvað snerti
fulltrúatölu hinna einstöku deilda
á Sambandsfund, og lýsti hann
því yfir, að stjórnin sæi ekki á-
stæðu til, að gjöra að þessu
sinni neinar breytingar á sam-
þyktunum.
b. Starfsmannatryggingar. For-
maður skýrði frá því, að af sér-
stökum ástæðum hefði stjórnin
enn ekki lokið störfum við undir-
búning þess múls.
c. Mat á æðardún. Við athug-
un þess máls hafði stjómin kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að nú
sem stendur mundi of dýrt að
lögskipa mat á æðardún.
d. Ullariðnaðarmál. Hvað það
mál snerti kvað formaður, að
stjórnin hefði enn ekki getað
rannsakað það til hlítar, hún
hefði lagt drög fyrir, að fá ná-
kvæma áætlun um kostnað við
að koma upp verksmiðju á stærð
við verksmiðjuna „Gefjun“, og
að sú áætlun hefði átt að vera
komin fyrir þennan fund, en að
hún væri ókomin enn“.
14. Minningarsjóður Haligrims
Kristinssonar. Forstjóri Sigurður
Kristinsson las upp reikning
Minningarsjóðs Hallgríms Krist-
inssonar fyrir s.l. ár og sýndi sá
reikningur eign sjóðsins við síð-
ustu áramót kr. 16.207.50.
í sambandi við þetta gat for-
stjóri þess, að stjóm Sambands-
ins teldi nauðsyn á, að byrja nú
þegar að safna drögum til sam-
vinnusögu Islands, og gat þess,
að stjórn nefnds Minningarsjóðs
hefði samþykt, að veita Jónasi
ritstjóra Þorbergssyni þeta ár
kr. 425.00 af vöxtum sjóðsins í
þessu augnamiði, enda eigi Sam-
bandið þau drög, sem safnast
fyrir þessa fjárhæð.
15. Önnur mál. Sr. Amór Áma-
son bar fram svohljóðandi til-
lögu:
„Að gefnu tilefni lýsir fundur-
inn yfir því, að hann telur það
alveg óviðeigandi, að ritstjórar
samvinnublaðanna ljái rúm í
blöðum sínum nafnlausum níð-
greinum um nafngreind sam-
vinnufélög og forastumenn
þeirra“.
Eftir nokkrar umræður um til-
lögu þessa, bar Ingimar Eydal
fram svohljóðandi rökstudda dag-
skrá:
„Þar sem ritstjóm „Dags“ er
S. I. S. með óviðkomandi, þá
ályktar fundurinn, að vísa tillög-
Nefndarálit.
Reikninganefndin hefjr, með
aðstoð endurskoðanda S. I. S.
herra Jóns Guðmundssonar, at-
hugað reikninga og hagskýrslur
Sambandsdeildanna og Sambands-
ins, eftir föngum. Hún gerir eng-
ar athugasemdir né tillögur,
snertandi hinar einstöku Sam-
bandsdeildir, en telur nauðsyniegt
að gjöra alt, sem gjöra má, til
að stöðva með öllu skuldaaukn-
ingu Sambandsdeildanna á þessu
ári. Verði því að takmarka við-
skifti deildanna svo, að þau mið-
ist aðeins við óhjákvæmilegar
ársnauðsynjar.
Nefndin telur hyggilegar og
nauðsynlegar ákvarðanir þær,
sem Sambandsstjómin gjörði á
fundi sínum í s. 1. febrúar um
sérstakt eftirlit, aðstoð og við-
skiftaskilyrði gagnvart þeim sam-
bandsdeildum, sem örðugasta
hafa aðstöðu og fjárhag. Jafn-
framt telur hún nauðsynlegt, að
Sambandsstjórnin hlutist til um
það, að sem hæfastir menn fá-
ist til forstöðu deildanna, þegar
mannaskifti verða.
Að öðra leyti leyfir nefndin
sér að skírskota til þeirra tiilaga
Jón Ivarsson form.
Karl Finnbogason skrifari.
Jón Gauti Pétursson.
Sigurður Jónsson.
Páll Hermannsson.
Sigfús Jónsson. Vilhjálmur Þór.
Urðu miklar umræður útaf áliti
þessu, oð sérstaklega skuldamál-
unum, en nefndin hafði enga at-
hugasemd eða tillögu gjört útaf
reikningunum, og engin tillaga
kom heldur fram frá neinum
fundai-manna.
12. Úrskurður um reikninga
S. I. S. 1926.
Þá vora reikningar Sambands-
ins fyrir árið 1926 bornir upp og
samþyktir í einu hljóði.
I sambandi við reikningana
bar reikninganefndin fram svo-
hljóðandi tillögu, sem var sam-
þykt með almennu lófataki:
„Fundurinn þakkar stjórn, for-
stjóra og framkvæmdarstjórum
S. I. S. vel unnið starf, a umiiðnu
ári, og vottar þeim öllum fyista
traust sitt“.
13. Skýrsla formanns. For-
maður Sambandsstjómarinnar,
Ingólfur Bjamarson, skýrði
frá því, að eftirgreind mál, sem