Tíminn - 20.08.1927, Side 4
140
TlMINN
Húsmæðrafræðsla.
Á Knararbergi við Akureyri verður haldinn skóli í vet-
ur frá 1. október til 1. maí og’ þar kend matargerð og ýms
hússtörf önnur, saumaskapur, vefnaður, matarefnafræði,
íslenska, reikningur o. fl.
Nemendur greiða 85 kr. um mánuðinn. Helmingur gjalds-
ins greiðist fyrir fram, en trygging sett fyrir hinu, er greið-
ist um miðjan vetur.
Læknisvottorð fylgi umsókn.
Garðyrkjunámskeiö verður haldið á Knararbergi
vorið og sumarið 1928. Vornám frá 1. maí til 30. júní
Sumarnámsskeið til 1. október. Nemendur hafa alt
frítt á námskeiðum þessum.
Umsóknir ber að senda fyrir 1. sept. til forstöðukonu skólans.
Guðrúnar Þ. Björnsdóttur
Knararbei’gi.
Nánari upplýsingar má fá hjá Sveinbirni Jónssyni, í síma
Kristneshælis, pr. Akureyri.
nema að hálfu leyti bygð á jarð-
rækt, en að hálfu leyti byggist
hún á jarðnotkun — hálfgerðri
jarðræktun og alls óunnum nátt-
úrugæðum. En hún verður aldrei
trygg, tekur ekki til nokkurrar
hlítar mögulegum framförum og
veitir ekki fulltrygga afkomu,
þeim sem hana stunda, fyr en
henni er lagður tryggur grund-
völlur með jarðrækt, samfara
náttúrugæðum afrétta of heima-
haga.
Túnin gefa nú af sér um 30
hestb. af ha., en væri ræktunin í
fullu lagi ættu 45 hestb. að fást
af ha. Sé þetta rétt, þá má auka
töðufenginn um V3 með betri
ræktun, án þess að stækka tún-
in. Áburðurinn er eitt fyrsta og
helsta skilyrði fyrir góðri rækt-
un, og þegar litið er á það að
nálega helmingur heyjanna er
fenginn af óræktuðu landi, þá er
augljóst að áburðarframleiðslan
er hér mjög mikil, líklega meiri
en í nokkru öðru landi, og það
sýnist því í fljótu bragði ótrú-
legt, sem þó er alment haldið
fram, og með réttu, að hér sé
áburðarskortur, og ber einkum
tvent til þess. Fyrst það að mik-
ið af áburðinum fer í eldinn, og
svo hitt að áburðurinn er alment
illa hirtur og ef til vill er hann
oft mjög óhaganlega notaður.
Hér er nóg vatnsafl til þess að
forða megi öllum áburði frá eld-
inum og sú kemur tíðin að það
verður gert og er þá mikið unnið
fyrir grasræktina. Hversu mikið
tapast af verðmætum efnum
áburðarins árlega, af því að yfir-
leitt er farið með hann eins og
„skít“ er ekki unt að segja, en
eg hefi giskað á að það næmi
minst 1 milj. króna virði, og eg
tel ekki ólíklegt að auka mætti
heyfenginn um 5 hestb. af ha. ef
áburðurinn væri sæmilega hirt-
ur, án þess að notað væri meira
að honum til ræktunar en nú er
gert. Fyrir öll hús landsins nem-
ur þetta rösklega 100 þús. hest-
um af töðu og rösklega 1 millj.
króna, ef hestburðurinn er met-
inn 10 krónur. Þetta á að vinn-
ast með áburðarhúsunum, og þá
held eg enginn geti sagt að því
fé sé illa varið, sem þau eru
bygð fyrir eða þeim styrk, sem
fyrir þau er veittur, enda þótt
gert væri ráð fyrir, að það kost-
aði 5 milj. eða nokkru meira að
byggja alsteypt áburðarhús fyrir
alla kúamykjuna. Þótt mikið geti
unnist með betri ræktun þeirra
túna, sem nú eru, eins og nú
hefir verið gefið í skyn, þá eru
það hreinir smámunir í saman-
burði við það, sem unnist getur
með aukinni ræktun, nýrækt, því
að hér má heita óþrjótandi rækt-
unarland. Sumir telja ræktunar-
hæft land jafnvel 2 milj. ha., og
þó það væri ekki nema 1 milj.
ha., þá er það þó rösklega 40
sinnum meira en það sem nú er
ræktað. Og ef bæta má ræktun-
ina frá því sem nú er um V3>
þá verða möguleikamir fyrir
aukinni töðuframleiðslu sextug-
faldir. Hvar í heiminum annars-
staðar en hér skyldu finnast slík-
ir möguleikar? Það er langt í
land að vinna þá upp, en meðan
verið er að því, virðist ekki öll
viðkoma þjóðarinnar, og meira
þó, þurfa að líta vonaraugum til
fiskimiðanna, þótt þau séu ágæt,
sem betur fer, og leita sér verk-
efnis þar og á ströndinni, og það
sýnist ekki vera miklu á glæ
kastað úr þjóðarbúinu, þótt
menn séu örfaðir með einnar
krónu styrk á dagsverkið í tún-
rækt til þess að hefja nýtt land-
nám.
En þetta er ekki nema einn
þátturinn í -möguleikum landbún-
aðarins á Islandi, þótt það sé að
vísu „kjaminn“, sem reipið er
snúið um. Með aukinni ræktun
og fóðurframleiðslu opnast mögu-
leikar til gripafjölgunar og býla-
fjölgunar. Það mun ekki fjarri
lagi að 5 ha. í vel ræktuðu túni
gætu fóðrað 4—5 kýr,' 2 hesta |
og 40 kindur og geta menn þá j
gert sér það til gamans að leggja
það niður fyrir sér, hvaða gripa-
stofn landið getur borið, þegar
búið er að rækta tiltekna stærð
lands, ákveðna hektaratölu, og
þess verður sjálfsagt langt að
bíða, að þurfi að slá af gripatöl-
unni fyrir það að svo tilfinnan-
lega þrengist í högum, að rækt-
aða landið beri þá ofurliði.
Með vaxandi ræktun verður
lögð meiri stund á nautgripa-
rækt í hlutfalli við annað búfé
en nú er gert, og eg hefi sýnt
fram á það í síðasta tölubl. Tím-
ans hversu miklir umbótamögu-
leikar eru í nautgriparæktinni.
Með fjölgun býla, sem að sjálf-
sögðu leiðir af vei’ulega aukinni
ræktun, batnar aðstaðan til fé-
lagsskapar og samgöngubóta og
rís þá upp mjólkuriðnaður í sveit-
unura miklu víðar og víðtækari i
eðli sínu, en sá litli vísir, sem nú
er. Er þá von til að mjólk og
mjólkurafurðir hækki í verði,
þar sem unnar verða úr mjólk-
inni vörur, sem kept geta við
samskonar vörur á erlendum
markaði. Menn geta þá komið
mjólkinni eða afurðum hennar, í
peninga á vissum tímum árlega
og fengið þá heim í búið til
ávöxtunar þar á nýjum fram-
kvæmdum, að svo miklu leyti,
sem þeir fara ekki til annara
þarfa heimilisins. Þá sjá menn
betur og skilja hvers virði er að
hafa góðar kýr, bindast föstum
félagsskap til kynbóta og leggja
á annan hátt meiri rækt við
kýrnar en nú er gert.
Sama verður upp á teningnum
með sauðfjárræktina. Þar er líka
mikil umbótavon með kynbótum,
úrvali og betri meðferð, þótt
ekki muni þar jafnmikið um
hvern einstaklinginn. En einkan-
lega er þar mikilla hagsmuna
að vænta, þegar svo er komið,
að kjötið verði flutt alt ferskt á
erlendan markað, það sem ekki
selst innanlands. Það má gera
ráð fyrir að nú hafi bændur um
250 þús. dilka til frálags árlega.
Eins kgr. viðbót við hvem kropp-
þunga nemur þá um 1100 tn. af
kjöti meira til útflutnings og
einnar krónu hækkunar á frá-
lagsverði dilksins þar að auki
nemur % milj. króna fyrir þá
alla. Af þessum smæstu dæmum,
getur hver og einn reiknað sér
til, eftir því sem hann er bjart-
sýnn eða stórhuga á þessum svið-
um, hvað unnið er við kynbætur
sauðfjár og bætta meðferð þess
og til hvers er að vinna með
bættum kjötmarkaði. Á sama
hátt geta menn athugað verð og
verðhækkun ullarinnar og mega
þá gera ráð fyrir að hún sé nú
árlega minstakosti V2 milj. kg.
Af ræktuninni leiðir að meira
og meira má vinna að heyskapn-
um með vélum og hestum, spara
dýrasta vinnuaflið, mannsaflið.
Við það lækkar framleiðslukostn-
aður fóðursins og um leið aröur
af búfé, án þess að það sé bætt,
og hestamir verða á vissan hátt
meiri gagnsgripir en þeir hafa
verið hingað til, og hafa þeir þó
verið „þarfasti þjónninn“, öldum
saman.
Hér er ekki rúm til að rekja
þessi efni nánar, og þetta getur
verið mönnum til umhugsunar og
því meir, sem þeir hugsa málið
betur, munu þeir sjá og skilja,
að heita má að hér séu ótæm-
andi verkefni og möguleikar fyr-
ir landbúnaðinn, og göfugt verk-
efni fyrir löggjafarvaldið, að
sjá málefnum landbúnaðarins vel
borgið að því leyti, sem í þess
valdi stendur. Og enginn þarf að
kalla það ölmusur þótt meira
verði hlynt að honum en gert
hefir verið hingað til, þótt það
sé allrar virðingar og viðurkenn-
ingar vert.
Metúsalem Stefánsson.
--------o----
Kartöflur.
Nú í haust verður allmikið til
af útsæði af þeim kartöfluaf-
brigðum sem best hafa reynst
undanfarin ár.
Eru þar meðal annars þessi af-
brigði:
Eyvindarkartöflur (Kerrs pink)
eru ljósbleikar og hnöttóttar,
þó dálítið flatar. Þær eru bráð-
þroska, harðgerðar og hraustar.
Víða frá hefi eg haft fregnir um
hve vel kartöfluafbrigði þettað
hefir reynst. T. d. skrifar Helgi
Ágústsson bóndi í Syðra-Seli í
Hrunam.hr. mér 7. ágúst: „Sendi
þér kartöflu úr garðinum mínum,
sem eg fann í dag, þá stærstu,
sem enn hefir komið (hún vóg
230 gr). Hún er Eyvindar-„dótt-
ir“ að ætt. Aðrar geta þó verið
stærri, því þessi var undir grasi
af handahófi tekið. Hefi notað
kartöflur úr garðinum mínum í
3 vikur. Eyvindur hefir gefið
allgóðar matarkartöflur 2ja mán-
aða frá sáningu, þessi tvö ár sem
eg hefi haft þær. Spretta þær
miklum mun fyr en mínar
gömlu“.
Síra Þorsteinn Briem á Akra-
nesi skrifar mér 28. júlí: „Til
sannindamerkis um ágæti „Ey-
vindar“ sendi eg yður sýnishorn
af jarðeplum, sem eg tók upp í
dag. Vænstu jarðepli af öðrum
útsæðistegundum í sama garði,
eru eins og vænt útsæði, en
vænsti Eyvindur var 225 gr. eða
næstum hálft pund upp úr
garði“.
Annað afbrigði heitir „Stór
Skoti“ (Great Scott). Hún er
ljósgul, vel löguð og ágæt matar-
kartafla að allra dómi. Frekar
bráðþroska og hraust.
Þriðja afbrigðið nefni eg „Blá-
landskeisara“ (enska nafnið er
Shetlands Blue). Þessi kartafla
er fagurblá á lit að utan, hvít að
innan, er stórvaxin og aflöng.
Hún er ekki bládröfnótt eins og
eitt „hérlenda“ afbrigðið og kar-
töflurnar liggja allar mjög nærri
stönglunum, en það er kostur.
Fjórða afbrigðið er „Jórvíkur
hertogi“ (Duke of York) aflöng;
flatvaxin. Gefur mun minni upp-
skeru heldur en hinar fyrnefndu
en er mjög bráðþroska, og gul á
litinn.
„Blálandsdrotning“ heitir sú
fimta (Edzel Blue). Hún er dökk-
blá, hnöttótt, hraust og harð-
gerð. Frekar margar undir grasi
en sjaldan mjög stórar.
Alt eru þettað tiltölulega ný
ensk kartöfluafbrigði, sem mjög
eru ræktuð hér í álfu, og standa
mörgum eldri framar.
En af öðrum afbrigðum, sem
vel hafa reynst má nefna „Roga-
landskartöflur“, tvö afbrigði,
annað rautt hitt hvítt. Og enn-
fremur „Sex vikna kartöflu".
Valið útsæði af þessum fram-
Nýkomið miklar birgðir af
beislisstöngum. Verð:
járnstangir tinaðar 4.50 og 6.00
stálstangir nikkel. 6.00 0g 8.00
nýsilfurstangir 11.00 og 15.00
Ágæt teymingarmél á 0.50 og
1.00. Svipur karla og kvenna selj-
ast mjög ódýrt.
SLEIPNIR, Laugaveg 74.
Heildsala. Smásala.
Símnefni: Sleipnir. Sími 646.
* .............................%
B. P. KALMANN
hæstaréttarmálaflutningsmaður.
JÓN ÓLAFSSON
cand. juris.
Málflutningur,
skuldainnheimta.
Hafnarstræti 15. Rvík.
Ágæt hnakkavirki, spaðalaus
kr. 12,75, spaðavirki, með dýnu-
skrúfum kr. 16,50. Afgreiðslu-
tími fyrir þá sem vilja taka beint
frá útlöndum ca. 3 mánuðir.
SLEIPNIR, Laegaveg 74.
Heildsala. Imásala.
Símnefni: Sleipnir. Sími 646.
SKOTVOPN.
Haglahyssur, einhl.; verð frá kr.
45,00 til 90,00; tvíhleyptar frá kr.
85,00 til 160,00.
Rifflar, Cal. 22. (6 mm.) frá 16.50
til 34.00.
Fjárbyssur á kr. 12.00, 14,50 og
18,00 (MAUSER).
Skotfæri allskonar hleðslutæki og
hroinsunartæki, nýjar birgðir.
Mest úrval. Lægst verð.
Sendið pantanir sem fyrst.
Sportvöruhús Reykjavíkur.
Lfðliásliiljiii á Fpá
„Fana folkehögskule“)
Vetrarnámsskeið fyrir pilta og
stúlkur í 6 mán. frá 3. okt.
Námsskeið fyrir stúlkur apríl
—júní.
Nánari greinargerð hjá
Martin Birkeland,
Store-Milde, Noregi.
annefndu afbrigðum verður selt
á 30 aura hvert kílógr. og verða
pantanir að koma til undirritaðs
sem ,fyrst. Flutningsgjaldið er
kr. 2.80 fyrir hver 100 kilogr.
(eða minna). Væri því hentugt
ef að nágrannar gætu sameinað
pantanir sínar. Verður svo af-
greitt við fyrsta tækifæri og sent
gegn eftirkröfu.
Ragnar Ásgeirsson,
garðyrkjumaður.
----0----
Sjó- og bruna-
vátryggíngar.
Símar:
Sjótrygging .... 542
Brunatrygging . . . 254
Framkvæmdarstjórí 308
Vátryggið
hjá
íslensku
félagí.
Bókaineiiii:
Fyrir fimm krónur sendi eg: Rökk-
ur frá upphafi (fimm árganga), með
sögum og myndum og II. og III. árg.
Sunnudagsblaðsins með sögum og
fjölda mynda.
Fyrir tíu krónur sendi eg: Hið
sama og lofað er fyrir fimm krónut
og að auki: Ljóðaþýðingar Stgr. Th.
I. með mynd í skrautbandi, 13 arka
bók, Æfintýri íslendings, sögu frá
New York, Útlagaljóð og Redd-
Hannesarrímu Stgr. Th.
Fyrir fimtán krónur sendi eg: Hið
sama og lofað er fyrir tíu krónur og
að auki: Æfintýrabókina, Sawitri og
Sakúntölu og bæði heftin af Greif-
anum frá Monte, Christo, sem út eru
komin.
— Allar bækurnar, nema tvær,
eru í sama broti og Steingríms-
ljóðmæli, og á samskonar pappír,
alls um fimtán hundruð hlaðsíður.
Bækurnar fást með þessum kjörum
því að eins, að þær séu pantaðar
beint frá útgefanda og peningar
fylgi pöntun. Eru þær þá sendar
um hæl á næstu höfn eða bifreiða-
viðkomustað (á Suðurlandsundir-
lendi) við pantanda, honum að
kostnaðarlausu. Bækurnar eru boðn-
ar með þessum kjörum til þess að
hraða útgáfu rita Steingríms Thor-
steinssonar og skemtisögunnar frægu,
Greifans frá Monte Christo. þetta er
tvímælalaust besta tilboð um bóka-
kaup sem boðiðliefir verið hér á landi
landi í langa tíð, enda stendur það
aðeins til 1. nóv. þ. árs og ,verður
pöntun þá að vera komin útgefands.
í hendur. Ofannefndar bækur fást
einnig hjá allflestum bóksölum með
áður auglýstu bókhlöðuverði.
— Áhersla lögð á fljót og ábyggi-
leg viðskifti.
NB. Sendið ekki peninga í al-
mennu bréfi.
Axel Thorsteinsson,
Garðastr. við Hólatorg. Pósthólf 956.
Ritstjóri Tryggvi Þórhallsson.
Prentsmiðjan Acta.