Tíminn - 24.03.1928, Side 3
. TlMINK
Fréttir.
Konungshjónin hafa gefið 1200 kr.
til fyrirhugaðrar útgáfu íslenskra
fornrita og jafnframt tjáð sig fús til
að vera verndara fyrirtœkisins. Eins
og fyr liefir verið getið, er próf. dr.
Sig. Nordal útgáfustjórinn. Verður
safnað 25 þús. kr. stofnfé. 8 þús.
hafa þegar safnast.
Mannskaðar. Mjög gerist nú slysa-
samt á sjó og gjalda íslendingar
mikið afhroð í mannfalli, þrátt fyrir
tijtölulega mikla veðurmild. þann 17.
þ. m. fórst bátur í Vogum með 6
mönnum. Var það róðrarbátur með
hjálpgrvél. Er œtlan manna að bát-
urinn hafi fest sig í dufli og hvolft
á' siglingunni. Mennimir, sem fórust
voru: Bjarni Guðmundsson formaður
irá Bræðraparti í Vogum, nýkvæntur,
Kristján Finnsson frá Hábæ í Vogum,
ókvæntur, Ingimundur Ingimundar-
són frá Reykjavöllum í Biskupstung-
um frá konu og 5 bömum, Einar
Gíslason frá Torfastöðum í Grafningi,
ókvæntur, Ólafur B. J. Gíslason frá
Eyjarhólum í Mýrdal ókvæntur. —
Á þriðjudaginn var tók Jón Hansson
skipstjóra út af enska togaranum
Lord Devenport. Varð slysið hér við
land. Jón Hansson hafði lengi verið
skipstjóri á breskum togurum og bú-
settur i Hull. Hann var vel látinn og
liinn mesti atorkumaður.
Geiorétting. í ræðukafla þeim eftir
Ingólf Bjarnai'son alþm., er birtist í
síðasta blaði Timans, misprentaðist
ein tala, þar sem tekjuafgangurinn
1924 var talinn 2þ^ miljón í stað
iy2 milj. kr.
Amgrimur Bjamason. í siðasta
biaði var þess getið, að póstaf-
greiðslumaðurinn í Bolungavík hefði
verið settur í gæsluvarðhald, grun-
aður um óreiðu í sambandi við toll-
stimplun. Síðari fregnir herma, að
manninum hafi verið slept lausum
og hafi sakir reynst litlar eða engar.
Tvær bækur eru nýkomnar út í
Bókavefslun þorst. M. Jónssonar á
Akureyri. „Líf og blóð“, skáldsaga
eftir Theódór Friðriksson og „Orá-
skinna L“, safn af þjóðsögum skráð-
um af Sigurði Nordal og þorbergi
þórðarsyni.
„Annáll nítjándu aldar“. Hallgrímur
Pétui'sson bókbindari á Akureyri hef-
ir undanfarin ár gefið út merkilegt
ritverk eftir föður sinn, séra Pétur
Guðmundsson er prestur var i Grims-
ey. Er hefti nýútkomið og annállinn
þar með rúmlega hálfnaður.
Póstþjófnaður. þegar Esja kom
hingað til Reykjavíkur úr hringferð
í þessum mánuði, kom það í ljós, að
brotið hafði verið innsigli á tveimur
póstpokum, fi*á Blönduósi og Sauð-
árkróki og stolið verðpósti úr öðrum
en miklu af almennum bréfum
(sennilega í misgripum) úr hinum.
í verðpóstinum voru meðal annars
um 4000 kr. í peningum. — Pokar
* þessir voru ásamt öðrum póstflutn-
ingi geymdir í svonefndum póstklefa
á Esju. Má ætla að eftirliti með póst-
inum hafi verið ábótavant. þjófurinn
or ófundinn.
Spellvirki. Einhverjir þorparar hafa
nýlega fengið sér það til skemtunar
uð ráðast á sumarbústaði fólks i
grend við Reykjavík, brjóta þá upp,
molbrjóta innanstokksmuni og spilla
öiiu sem hönd - á festi, húsum og
munum. Eru slikir óþokkar til
skammar þjóð sinni og landi og þó
sjálfum sér verstir.
Landhelgisbrot. Óðinn kom hingað
með þýskan togara „Frida“ að nafni,
á þriðjudaginn var, tekinn við Eld-
eyjar. Fékk hann 12.725 kr. sekt.
Sjóslys enn. Heita má að daglega
berist fregnir um hin hörmulegustu
slys á sjó. Á þriðjudaginn varð slys
með undarlegum hætti. Færeysk
skúta, „Acorn" að nafni, var á veið
um á Selvogsgrunni. Kom þá stór
sjór á skipið, sem fleygði því hálf
flötu og féll sjór inn í íbúðarklefa
háseta. þar hafði „carbid“-baukur
fallið af hillu og laskast. Komst vatn
i baukinn. Myndaðist þá samstundis
gas, sem síðan kviknaði í frá lamp-
anum, svo klefinn stóð i björtu báli.
Voru niu menn í klefanum. Lést
einn maðurinn þegar en hinir rudd-
ust út alir skaðbrendir. Létust 5
af sárum, áður en skútan kæmist
hingað, en þrír voru fluttir í sjúkra-
hús og er þeim hugað lif. Skútan er
frá Klaksvík.
„Fálkinn“ heitir nýtt vikublað, sem
byrjar að koma út hér í bænum um
næstu helgi. Verður það allstórt, 12—
l(i síður í fjögra dálka broti, og er
ætlað almenningi til fróðieiks og
skemtunar, en stjórnmál lætur það
sig engu skifta. Blaðið flytur einkum
fræðandi greinar og sögur ásamt
miklu af útlendum og innlendum
myndum, gamandrild handa börnum,
deild fyrir húsmæður, fróðleiksmola
um nýjungar í verklegum efnum o.
fl., o. fl. Ritstjórar verða Vilh. Fin
sen og Skúli Skúlason, en afgreiðslu
annast Svavar Hjaltested.
----o----
Frá útiöndum.
Nokkrir sjóliðsforingjar á breska
Miðjarðarhafsflotanum neituðu ný-
lega að hlýða fyrirskipunum yfir-
manna sinna. Vakti þessi atburður
nokkra atliygli. Tilkynti flotamála-
stjórn Breta að nokkrum undirfor-
ingjum hefði verið vikið frá starfi en
lætur, að öðru leyti lítið yfir málinu,
enda er það talið risið eingöngu af
persónulegum ágreiningi.
— Eins og frá var skýrt hér í blað-
inu síðastl. haust höfðu Facistar með
höndum breytingar á þinginu í Ítalíu.
Samkv. þeim eru einuiyjis Facistar
kjörgengir og atvinnurekendur einir
atkvæðisbærir. Nú hafa þeir komið
þessari skipun í kring. Hefir fyrv.
stjómarforseti, Gislitti, lýst yfir þvi
að kosning stjómarandstæðings sé
með þessu gerð óhugsanleg. Er með
þessu þingræðið lagt niður þar í
landi og má þingið teljast i hæsta
lagi ráðgefandi samkunda, sem er
algerlega í hendi stórráðs Facista og
einvaldsherrans Mussolinis.
— Afvopnunarmálin eru mikiö
rædd um þessar mundir. Hafa farið
orðsendingar milli Frakklands og
Bandaríkjanna um þau efni eins og
fyr var getið. — Afvopnunamefnd
þjóðabandalagsins hefir með höndum
og til álita víðtækar afvopnunartil-
lögur Rússa. — þá hefir þjóðþing
Bandaríkjanna mælst til þess við
Coolidge forseta að hann gengist fyrir
alþjóðaráðstefnu til að ræða og taka
ákvarðanir um takmörkun vígbúnað-
ar á siþ. Hefir þingið leyft að fresta
byggingu flotaaukans þar til slík ráð-
stefna væri um garð gengin.
— Tvær aukakosningar fóru fram
í Englandi snemma 1 þessum mánuði
í St. Ives- og Middlesbrough-kjör-
dænlum og vann Frjálslyndi flokkur-
inn báðar. Annað kjöidæmið vann
hann frá íhaldsflokknum, hinu hélt
hann þrátt t'yrir þriskifta kosningu,
þar sem verkamenn voru á einu leiti.
— Aukakosningar hafa gengið mjög á
móti Baldwin stjórnarherra og flokki
lians og er því spáð að íhaldsflokkn-
um verði hrundið við næstu kosning-
ar, en Frjálslyndi flokkurinn vinna
mikið á og Jafnaðarmenn þó enn
mcira. — Eins og viðast hvar annars-
staðar, þar sem baráttan er háð gegn
íhaldsvaldinu, skoða hinir framsækn
ari fiokkar það sameiginlegt verkefni
sitt að brjóta það á bak aftur.
---o----
Alþingi
Engin ný frumvörp hafa komið
fram nú síðustu daga, enda orðið á-
liðið þingtímann. En tvær þál.till.
liafa fyrir skömmu verið fluttar í
sameinuðu þingi. Sú fyrri er frá
Halldóri Stefánssyni og Ingvari
Pálmasyni, um gildi islenskra pen-
inga, og hljóðar svo:
„Sameinað Alþingi ályktar að fela
rikisstjóminni að láta fram fara fyr-
ir næsta þing rannsókn og undirbún-
ing til endanlegrar skipunar á gildi
íslenskra peninga, enda telur örugt,
að þangað til verði gildi þeirra hald-
ið óbreyttu".
ÍHina tillöguna flytja Jón þorláks
son og 4 íhaldsmenn aðrir (M. G„
Jóh. Jós., M. J. og P. O.) með hon-
um:
„Sameinað Alþingi ályktar að víta
brot núverandi dómsmálaráðherra á
löggjöf þeirri, sem sett var á síðasta
þingi, um varðskip ríkisins".
þessa till. mun bera að skoða sem
tilraun íhaldsmanna til að fram-
kvæma iiótanir sínar um að kleklcja
á J. J. dómsmálaráðh. fyrir ráðstaf-
anir hans í varðskipsmálinu. Mun
nú brátt á það reyna, hvort Alþingi
telur þær áfellisverðar eða éigi. Eins
og frá er skýrt áður hér í blaðinu,
hefir stjórnin borið fram frv. um
breyting á varðskipalögunum, og eru
fullar horfur á, að þær verði sam-
þyktar. Jón þorláksson beitti sér
mjög gegn þessum brtt. í Ed., og vildi
láta feila þær, fyrst og fremst til að
áminna stjórnina. En eigi hefir hann
getað fengið þá deild á sitt mál.
Frv. um strandferðaskipið er komið
gegnum 2. umr. i Nd. Urðu um það
langar umræður. íhaldsflokkur deild-
arinnar legst allur í móti frv. og
íylgja þeir G. Sig. og Sig. Eggerz
honum þar að málum, en Framsókn-
arm. og Jafnaðarm. eru með málinu.
En meirihlutinn hallast að því að
byggja fremur hraðskreitt fólksflutn
helveg fram á gangi og spurði þá
sem um gengu hvort Jónas væri ekki
búinn, svo að óhætt væri að koma
inn. Var frv. síðan eytt í deildinni
með atbeina allra íhaldsmanna.
En út á landsbygðinni voru vaxtar-
skilyrðin betri fyrir hugmyndina um
byggingar- og landnámssjóð, heldur
en hjá íhaldinu á þingi. Unga kyn-
slóðin í landinu fann, að þetta var
hennar mál, og nálega allir hugs-
andi og vel mentir bændur fylgdu
Iiugmyndinni frá því málið var fram
borið. Fylgi þess fór dagvaxandi ár
frá ári, og íhaldsmenn sáu í fyrra,
að þeir urðu að draga úr mótstöð-
unni fyrir kosningar. Um einn þing-
mann flokksins, Jón Ólafsson, mun
mega fullyrða, að hann hafi verið
hugmyndinni fylgjandi bæði í vetur
og fyrra af sönnum áhuga. En
flokksbræður hans aðrir hafa ein-
göngu fylgt þvi vegna þess hve áhug-
inn er mikill fyrir lausn þess hjá
bændum landsins, og sérílagi af þvi
íhaldsmenn eru í minnihluta í báð-
um deildum þingsins. Málið myndi
nú hafa gengið fram hvað sem þeir
sögðu. Mótstaða eins og sú sem í-
haldið hafði í frammi í máli þessu
1925 og 1926 var nú orðin þýðingar-
laus viðvíkjandi framgangi þess. Af
því stafar uppgjöfin. Ef íhaldið hefði
ekki beðið svo rœkilegan ósigur 9.
júlí í sumar, ef flokkurinn hefði t.
d. haft stöðvunarvald í Ed., myndi
Jón þorl. hafa sýnt í verki, að hann
vildi standa við orð sin frá 1925. Og
sú staðreynd að allir fhaldsmenn í
Ed. nema B. Kr. greiddu nú atkvæði
með málinu, sýnir ástæður til þess-
arar stefnubreytingar. B. Kr. mun
tæplega hugsa til að leita aítur til
kjósenda um fylgi. Sjálfur þarf hann
ekki að „filma" vegna atkvæðaveiða
við næstu kosningar. þess vegna lof-
ar hann þjóðinni að sjá hvað hann
liugsar um iangstærsta umbótamálið,
sem þetta þing semur löggjöf um.
Sparnaðarírumvörpin viðvíkjandi
hinum dýru embættum í Reykjavík
þokast nú áíram. Forstaða áfengis-
verelunar verður að líkindum færð úr
18 þús. á ári niður í hér um bil 8
þús. Frv. um breytingar á launa-
kjörum bæjarfógeta í Rvík og lög-
reglustjóra eru komin til Nd. Jón
þorl. viðurkendi að bæjaríógeti
myndi hafa sum árin 25 þús. kr. og
lögreglustjóri mun meira, enda hlýt-
ur svo að vera, því að fyrir skömmu
galt hann 9500 kr. í útsvar og kærði
ekki. Einn af ritstjórum íhaldsins
bergmálaði síðastiiðið sumar hina
almennu skoðun um launakjör þess-
ara tveggja starfsmanna, er hann
gerði ráð fyrir að þeir hefðu til
samans um 120 þús. kr. af almanna-
fé sum árin fyrir vinnu sína. Jón
þorl. og samherjar hans reyndu í
Ed. að eyða frv. um að færa launin
við þessi embætti í skaplegt horf. Má
vænta hins sama í Nd. — Frv. geng-
ur þó sennilega fram, því aö fylgis-
menn íhaldsins í bænum, einkum
hinir mörgu launalágu embættis-
menn, sem eiga í vök að verjast,
leggja Mbl.-stefnunni í þessu máli
ekki til neinn stuðning í baráttunni
við að halda uppi þeirri ógnar fjár-
eyðslu við þessi embætti, sem Jón
Magnússon kom á og M. G. og Jón
þorl. hafa haldið við.
Samsteypa tryggingarstotnananna
er enn í nefnd í Ed. Er þar gert ráð
fyrir að brunatryggingin, slysatrygg-
ingin og samábyrgðin verði rekin
undir einni yfirstjóm og með sama
fólkshaldi. Síðan eiga að bætast þar
við aðrar tryggingarstofnanir, sem
landið kann að efna til, svo sem bú-
fjártrygging og ellitrygging, sem er
eitt hið mesta nauðsynjamál. Einar á
Eyrarlandi lét fylgja frv. skýrslur fra
ríkisgjaldanefnd um hin miklu og
margvíslegu útgjöld, sem fylgja slik-
um skrifstofum ’í Rvik, og mun sú
vitneskja gefa samsteypunni byr
undir vœngi. Má vænta þess, að
þegar skýrslur nefndarinnar koma í
vor, bæði um embættiseyðsluna, og
bitlingana, þá muni mörgum þykja
sem þeir fái nýjan og glöggan skiin-
ing á hvemig iandssjóði er eytt.
Sameining á sima og pósti er einn-
ig í nefnd í Ed. Er það hið mesta
nauðsynja- og spamaðarmál. í full-
veldisvímunni bjó Jón Magnússon til
embætti aðalpóstmeistara, ofan á
póstmeistara í Rvik. Ofan á hæstu
laun Sig. Briem lagði Jón M. svo
4000 kr. launauppbót handa þessum
félagsbróður sínum, án þess að fá til
þess leyfi þingsins, og hefir það hald-
ist síðan. Mestur spamaður yrði þó
að því út á landi, að sími og póstur
væri rekipn sameiginlega, og undir
sömu yfirstjórn. Má þá komast af
með færra fólk við starfræksluna en
gera lífvænlegra fyrir þá sem sýsla
við þessi störf.
Umbót þessi stendur í sambandi
við væntanlega gerbreytingu á póst-
málunum, sem nú hafa sofið værum
svefni í mannsaldur, nema þegar að-
alpóstmeistari hefir vegna Mbl-
manna þurft að leggja niður bréf-
hirðingu eð a færa póstinn í óhag
Framsóknarmanna út á landsbvgð-
ina. ***
----o-----
P r j ónavélar
“SrfLr 25 ára ±mrl©n.c5L ro^rrrsla.
hefir sýnt og sannað, að „BRITANNIAU prjónavélarnar frá Dresdner
Strichma8chinenfabrick eru öllum prjónavélum sterkari og endingarbetri
Vélarnar eru með viðauka og öllum nýtisku útbúnaði.
„Britannia“ prjónavélar eru ódýrastar
Samband ísl. samvinnufél.
Herfi
Diskaherfi,
Hankmoherfi,
Fjaðraherfi,
Rálluherfi,
Rúðólfsherfi
og
Ávinsluherfi.
Samband ísl. samvinnufél.
ingaskip — með kælirúmi — en vöru- j
flutningaskip eins og upphaflega var
gert ráð fyrir. Andstæðingar frv. hafa
haldið því fram — og leggur G. S.
séi-staka áherslu á það —, að strand-
ferðir séu komnar í svo gott horf,
að við megi una fyrst um sinn, en
hinsvegar hafi lítið verið gert fyrir
samgöngur á landi, enda séu þær
hvergi með tískusniði. Eigi því að
snúa sér að því að bæta þær áður
en frekar er að hafst í strandferöa-
málunum. — Jón A. Jónsson, sem
hafði orð fyrir íhaldsmönnum,
mælti bót lestaflutningi farþega, og
þótti örvænt um, að íslendingar gætu
fyrst um sinn séð öllum almenningi
fyrir betra farkosti, enda mundi lesta-
ílutningur tíðkast með öðrum þjóð-
um. Gaf Sigurjón Ólafsson þá þær
upplýsingar, að í Noregi væri með
lögum bannað að flytja fólk í lest-
um. pá hélt J. A. J. o. fl. því fram,
að ódýrara yrði að ferðast með bíl-
um en skipum, og væri þó reksturs-
halli strandferðaskipanna eigi reikn-
aður með í ferðakostnaði, en svo ætti
að vera að réttu lagi. Sveinn Ólafs-
son benti á, að þá yrði líka að reikna
það fé, sem varið væri til vega, með
ferðakostnaði á landi. pá varð ágrein-
ingur um væntanlegan reksturshalla
skipsins. Telja stuðningsmenn frv., að
halli sá sem nú er á rekstri Esju
mundi ekki aukast þó að skipin yrðu
tvö, því að þá gengju ferðirnar greið-
1 ar en áður og margir þeir, sem nú
nota hraðferðir hinna erlendu skipa,
mundu fremur ferðast með ísl. skip
um, er þau færu eigi hægar yfir en
erlendu skipin.
Breytingarnar á Landsbankalögun
um hafa verið afgr. til 3. umr. í Ed.
En þær voru þar fram bomar og hafa
því enn eigi komið til Nd. Frv. var
flutt af meirihl. fjárhagsnefndar og
fór fram á að fella niður ýms ákvæði :
úr lögunum frá í fyrra, t.d. ýmislegt, |
sem lýtur að aukinni bókfærslu í í
bankanum. En aðalbreytingarnar eru j
tvær. Sú fyrri er um að rfkið taki !
ábyrgð á öllum skuldbindingum i
bankans innanlands. Aftur á móti er j
gert ráð fyrir sérstöku samþykki
þingsins til að taka lán erlendis önn-
ur en þau, sem bankinn tekur gegn
veði í sjálfs sín eign. Hin aðalbreyt-
ingin er um stofnun 15 manna
bankanefndar, sem Aiþingi velji með
hlutfallskosningu til 6 ára og kjósi
hún svo 4 menn í bankaráð, en ráð-
herrn skipi formann. Er þetta fyrir-
komulag samkv. till. milliþinganefnd-
arinnar í bankamálum, en var felt í
fyrra með styrk íhaldsmanna og
mest fyrir forgöngu Björns Kristjáns-
sonar. En í Sviþjóð hefir það tíðkast
um alllangt skeið og þótt vel gefast.
B. Kr. og Jón porláksson stóðu
mjög fast gegn breytingum þessum
og lögðu ffam langt nefndarálit Gal
það tilefni til allsnarprar sennu milli
þeirra annars vegar og fjármálaráðh.
og Jóns Baldvinssonar. pótti fjár-
málaráðherra B. Kr. treysta fullmikið
þekkingu sinni í bankamálum, en
hans vegna hefðu flest hin óþörfu
ákvæði komist inn í bankalögin í
fyrra. Jón Baldvinsson vítti harðlega
nál. þeirra B. Kr. og J. p. og ásak-
anir er þar voru fram bomar á
liendur flm. frv. M. a. höfðu B. Kr.
og J. p. ymprað á því, að bankinn
starfaði eingöngu „með fé einstakra
manna, sem gætu þreyst á að láta
Landsbankann ávaxta fé sitt“, ef um-
rœddar breytingar yrðu gerðar á lög-
unum. Taldi J. Baldv. þessi ummæli
hótun um, að íhaldsmenn ætluðu að
taka fé sitt út úr bankanum, ef þeir
yrðu að lúta í lægra haldi í þessu
máli og væri óverjandi að fulltrúar
þjóðarinnar á Alþingi létu sér slíkt
um munn fara. En það væri í sam-
ræmi við annað skapstillingarleysi
íhaidsmanna, er þeir gengju svo
langt að hafa í hótunum við meira-
hluta þingsins.
Efri deild hefir samþykt frv. um
Gagnfræðaskóla Reykjavíkur með
þeirri breytingu, að fastir kennarar
skuli vera tveir og laun þeirra greidd
úr ríkissjóði. Liggur frv. nú fyrir Nd.
Frv. um byggingar- og landnáms-
sjóð er komið gegnum Nd. og heíir
verið endursent Ed., lítið breytt.
(Stjórnin lagði frv. fyrir Ed.).
Annar eldhúsdagur varð í Nd. á
miðvikud., þegar landsreikningurinn
fyrir árið 1926 kom þar til 2. umræðu.
Var það fyrv. stjóm, sem þar hafði
hendur sínar að verja. Hóf Haraldur
Guðmundsson itarlega gagnrýni á
reikningnum. En H. G. er svo sem
kunnugt er einn þeirra þriggja, sem
núv. stjóm skipaði til að rannsaka
og liða sundur útgjöld ríkisins síö-
ustu ár. pótti honum meira en lítið
bogið við ýmsar greiðslur úr rikis-
sjóði í tíð fyrv. stjórnar, og lítil grein
fyrir þvi gerð í landsreikningnum,
liversu fé rikisins væri varið. Benti
hann t. d. á það, að greiðslur til
starfsmanna ríkisins væru árið 1926
helmlngl melri en fastákveðið væri
í iögurn. Væri sá óvani kominn á að
embættismenn ríkisins, sem fengju
ákveðin laun gegndu margskonar
aukastöríum, og væri jafnv.el greidd
hærri upphæð fyrir þau en hin föstu
embættislaun. Væri þessu ra. a. svo
farið með skriístofustjóra í stjómar-
ráðinu er veittu ýmsum sjóðum for-
stöðu fyrir séi’staka borgun, og kenn-
ara við ríkisskólana, er stunduðu
mikla aukakenslu og tækju sérstakt
kaup fyrir. pá þótti honum hastar-
leg meðferð landhelgissjóðs, þar sem
enginn reikningur væri til um hann
hin síðari ár, en fé hefði verið varið
úr honum til margs, sem honum væri
alveg óviðkomandi, svo sem veislu-
fagnaðar og hestahalds í stjómarráð-
inu. Væri ekki annað sýnna en sú
aðferð hefði verið notuð til að dylja
þessar greiðslur fyrir almenningi. pá
átaldi hann skaðabótagreiðsluna til
Vestmannaeyinga fyrir tjón það, er
þcir biðu á veiðarfæmm, vegna fjar-
vistar varðskipsins, og sagði að fyrv.
stjóm hefði a. m. k. átt að leita
heimildar þingsins, en M. G. varði
sig með því, að landið hefði grætt á
þessari ráðstöfun, vegna sektarfjár
þess, er pór hefði aflað í för sinni.
— Ýmislegt fleira olli ágreiníngi við
þessa umr., t .d. hvort borðfé kon-
ungs ætti að greiðast í islenskum eða
dönskum krónum.
-----o-----