Tíminn - 31.03.1928, Blaðsíða 2

Tíminn - 31.03.1928, Blaðsíða 2
62 TlMINN fékk engu til leiðar komið í þá átt. Kosningar til Lögþingsins fóru fram árið eftir, 1924. Notuðu Sambandsmenn atburði þessa að kosningavopni og kváðu einsætt að þeir, sem fylgdu Patursson, vildu samband við Noreg! Eigi að síður urðu hlutföll milli flokkanna hin sömu og verið höfðu. En er Lögþing Færeyinga var sett 1924 hlaut það fágæta heim- sókn og virðulega. Kom þá til Þórshafnar Molkte utanríkisráð- herra á herskipi með tvo kaf- nökkva að fylgd. Flutti hann þann boðskap frá Danastjóm, þingi Dana, þingflokkum og þjóð að Færeyingar skuli danskir vera og danska þjóðtunga í Færeyjum. Þegar utanríkisráðherrann hafði lokið máli sínu mælti Patursson nokkur orð og kvað svörum myndi frestað til næsta dags. Síðan gengu Sjálfstæðismenn á ráð- stefnu og bættu við stefnuskrá sína þeim lið, að í Færeyjum skuli Færeyingar einir ráða. — Hlaut Molkte slíkt svar og eigi annað. Næsta skref Dana í viðskiftum við Færeyinga var að ákveða það árið 1926, að málefni þeirra, sem áður höfðu öll heyrt undir dóms- málaráðuneytið, skyldu skiftast milli hinna ýmsu stjómardeilda eins og málefni hinna dönsku amta. Með þeirri ráðstöfun hafa Danir viljað þurka út alla sér- stöðu Færeyinga. Atburðir þessir hafa gefið sjálfstæðismáli Færeyinga aukinn byr og stælt hugi þeirra til sókn- ar. Votta það kosningamar síðast- liðið ár, þar sem sjálfstæðismenn urðu í greinilegum meirihluta og hafa um 13 af 23 fulltrúum á Lögþinginu. Hefir nú hér verið litið um helstu viðburði í sjálfstæðisbar- áttu Færeyinga. Saga þessi kem- ur Islendingum ekki ókunnuglega fyrir sjónir. Má telja að hún sé öllum efnum hliðstæð okkar eigin sjálfstæðisbaráttu. Færeyingaj- eru aðeins skamt á veg komnir. Árið 1662 vorum við heimsóttir af dönsku hervaldi, en Færeyingar árið 1924. Þó mun verða talið að Danir beiti Færeyinga meira ger- ræði en Tslendingar, þar sem þeir freista þess að kúga af þeim móðurmálið og veita þeim litla eða enga áheym mála þeirra. Danir hafa tvöfalda reynslu í sjálfstæðismálum smáþjóða Eftir langstæða baráttu hafa þeir orðið að viðurkenna jafnrétti Tslend- inga. Sjálfir hafa þeir verið kúg- aðir af gerræðisvaldi Þjóðverja í Suður-Jótlandi, fengið aftur frelsi sitt og orðið harla fegnir. Við- skifti þeirra við Færeyinga stríða því beint gegn reysnlu þeirra í þessháttar málum og án efa gegn réttlætismeðvitund mik- ils þorra dönsku þjóðarinnar. Mun því verða aðeins um stundar- bið að ræða uns Danir unna Færeyingum samskonar málaloka og Islendingum. Hafa þeir um tvent að velja: Annars vegar vaxandi ámæli og fjandskap lít- illar þjóðar en vel ættaðar og þó ósigur að lokum. Hinsvegar aukna virðingu og vináttuþel hinna nor- rænu þjóða. ---ó--- r A víðavangi. Réttarvemd samvinnufélaga. I greininni „Dómur almenn- ings“ í Verði 17. mars síðastl. er leitast við að hnekkja rökunum fyrir nauðsyn þeirrar lagasetn- ingar um þessi efni, sem þingið hefir nú með höndum. Eru birt í greininni nokkur ummæli úr for- sendum hinna gagnstríðandi dóma, þar sem mælt er, að ekki hafi verið „gert sennilegt“ að níðrit B. Kr. um S. I. S. og kaup- íélögin hafi bakað þeim tjón! Hinsvegar er kröfu Garðars Gíslasonar um skaðabætur vegna taps á hrossaverslun af völdum óréttmætra ummæla, hrundið en þó talið „gert sennilegt“ að haxm hafi biðið tjón vegna ummælanna og honum því dæmdar skaðabæt- ur. — Verður enginn fróðari né sannfærðari um réttaröryggið í þessum efnum við það að velta fyrir sér þessum niðurstöðum dómsstólanna. Hitt vita allir landsmenn að níðrit, sem ræðst á tryggingar verslunarfyrirtækis, ræðst um leið á lánstraust þess og að þegar starfshættir og grundvallarskipulag slíks fyrir- tækis er nítt og tortrygt, þá er það um leið gert fráfælandi. Virð- ist efalaust, að hæstiréttur hefði dæmt S. 1. S. skaðabætur, ef hann hefði litið svo á, að sam- vinnufélög nytu að lögum sömu réttarverndar eins og fyrirtæki einstakra manna. — Löggjöf sú, sem hér um ræðir fer ekki fram á sérvernd, heldur aðeins sömu vernd. Mótstaða Ihaldsmanna og Sig. Eggerz gegn slíku getur ekki bygst á öðru en því að þeir vilji ekki að félögin njóti sömu vernd- ar. Áður um getnar niðurstöður dómstólanna benda og ótvírætt á, að óhyggilegt muni vera að láta ákvæðin um réttarfarslegan grundvöll fyrir skaðabótadómum vera svo óákveðinn og of háðan á- liti dómaranna á hverjum tíma. Réttarbót þessi miðar því til að tryggja dómstólana gegn efa- semdum og „kritik“ eigi síður en til hins, að treysta réttaröryggið í landinu. Leikfélag Reykjavíkur. Telja má að það hafi látið fremur lítið að sér kveða í vetur um val viðfangsefna. Mest hefir orðið aðsókn að tveimur gaman- leikjum þess síðustu. Hafa þeir að vísu verið innihaldslausir en í ýmsum greinum prýðilega vel sýndir. — Nú færist félagið meira í fang, er það tekur til meðferðar eitt af frægustu skáldverkum Ibsens „V i 1 d a n d e n‘e. Er leik- urinn skörp ádeila á falshátt manna og sjálfsblekkingu. Har- aldur Björnsson leikari, sem hefir haldið uppi leikment norðan- lands í vetur við mikla aðsókn og mikinn orðstýr, stendur fjrrir æf- ' ingum og sýningu þessa stór- merka verks. Er það fyrsta sinn að hann stendur fyrir leiksýningu í höfuðstaðnum, eftir að hafa stundað nám kappsamlega er- lendis. Dr. Helgi Péturss. Ánægjulegt er að sjá þann vott umhyggjusemi fyrir sæmd þjóðarinnar, er kemur fram í nefndaráliti fjárveitinganefndar Ed., er nefndin vill hækka laun dr. Helga Péturss. — Um trúar- skoðanir og heimspekiskerfi verð- ur ágreiningur enn um stund. Um hitt verður ekki ágreiningur að dr. Helgi telst meðal þeirra íslendinga er glæsilegastir hafa verið að vitsmunum á síðari öld- um. Hefir hann og unnið mikið verk í frumlegum rannsóknum i jarðfræði og heimspekilegum efn- um. Mætti ætla að hann væri réttborinn til meiri andlegrar sæmdar, en að búa við meðal- kjör íslenskra rithöfunda. Landsbankinn og sparisjóðimir. Meginrök J. Þorl. gegn því að ábyrgð ríkisins á Landsbankan- um verði ákveðin með lögum er sú, að með því sé sparisjóðum landsins brugguð banaráð, með því að sparifjáreigendur muni hvergi vilja ávaxta fé sitt ann- arsstaðar en í sparisjóðsdeild bankans. — .Er því fyrst til að svara, að þjóðin hefir nú um 40 ára skeið litið svo á, að henni bæri að ábyrgjast fjárreiður þess- arar peningastofnunar sinnar og hafa sparisjóðir þrifist eigi að síður. 1 öðru lagi hefir reynslan orðið sú, að þeir sparisjóðir, sem starfað hafa fjarri höfuðfésýslu- Staðarfellsskólinn tekur til starfa 15. september og stendur yfir til júníloka ár hvert kent er þar: Hússtjórn, fatasaumur, haunyrðir margskonar, vefnaður, smjör-, skyr- og ostagerð. Auk þess ýmsar bóklegar námsgreinar. Eiginhandar umsóku sé komin til undirritaðrar fyrir maílok. Dvalarkostnaður og skólagjald er 60 kr. á máuuði. Nánari upplýsingar veitir undirrituð. Sig'urfoorg' Kristjánsdóttir Staðarfelli Dalasýslu stöðvum landsins, hefir víðast hvar verið vel stjómað og gæti- lega og myndu því halda trausti sínu og viðskiftum óskertum. 1 þriðja lagi má gera ráð fyrir því, að ef þjóðinni tekst að byggja j upp peningastofnanir sínar heil- | brigðar og traustar, þá muni upp • rísa útibú mjög víða um land. j Má vænta að enn sé margt ó- ; unnið það, er framkvæmt verði á næstu árum í þá átt, að koma peningamálum þjóðarinnar í við- j unanlegt horf. — Grunnfæmisleg j eru þau rök, að vegna dreifðra j sparisjóða eigi þjóðin að afneita , ábyrgð á peningastofnun sinni. j Má segja, að hér tylli á tæpu | vaði dulbúin mótstaða J. Þorl. og j Ihaldsmanna gegn eiginlegum i þjóðbanka, sem brýtur bág við i i þá sjálfsögðu stefnu einstaklings- j hyggjunnar, að eirtstakir „fram- j taks“-menn eigi öll helstu verð- ! mæti þjóðarinnar og þá eigi síst ! peningastofnanir hennar. — Ef | j unt væri að skygnast undir höf- ; j uðskeljar J. Þorl. og lesa hugs- ! anir hans, mundi það sjást, að j þar sem hann hefir talað um j sparisjóði landsmanna, hefir j hann hugsað um erlenda og inn- lenda bankafjárhluthafa. Málþóf íhaldsmanna. Fyrir löngu er það bert orðið, að íhaldsmenn béita málþófi, eft- ir því sem þeir mega við koma. Veldur það tiltæki þeirra gífur- lega miklum þingtöfum og orkar því að lengja þingið og hindra framgang sumra mála að þessu j sinni. Mestir þófarar í deildinni era þeir ólafur Thórs og Magn- ús Jónsson. Eru þeir manna hæf- astir til þess að tala langt um j | lítið efni. Einna ljósust varð mál- j þófshneigð Ihaldsmanna þegar | Landsbankalögin komu úr Ed. til ! Nd. — Forsætisráðherra benti á i að málið væri áður þrautrætt á ! fyrri þingum og taldi vel mega láta málið fara umræðulaust til 2. umræðu eins og þráfaldlega ! gerist um þingmálin. En Ihalds- menn raku upp til handa og fóta og tóku að ræða málið sín á milli, því enginn Framsóknar- eða ! Jafnaðarmaður tók til máls. Þvældu þeir um málið aftur og fram í 3 klst. og um lítið efni 1 með því að þeir virtust sammála. Út af lítilsháttar innskoti frá ein- um Framsóknarmanna héldu þeir 5 ræður! — Munu þingtíðindin bera það með sér hverja við- leitni Ihaldsmenn hafa sýnt að þreyta málþóf og tefja á þann hátt fyrir framgangi nytjamála, sem þeir geta ekki hindrað með atkvæðavaldi. Fer saman þessi ógöfuglega viðleitni þeirra og ó- venjulega mikil og brýn störf, er fyrir þinginu liggja. Er því mikil j hætta á, að eigi takist, þrátt fyr- ir fulla viðleitni meirihlutans, að stytta þinghaldið að þessu sinni. En málþóf íhaldsmanna orsakar óþarfan þingauka og tilsvarandi kostnað. „Landsbanka“-heitið. Fyrir nokkru var hér í blaðinu bent á „misnotkun Islands-heitis". Einhver lökustu mistök í því efni voru þau, er erlendur hluthafa- banki hlaut öndvegisaðstöðu að nafninu til bókstaflega talað. 1 enskumælandi löndum kallast bankarnir „Iceland’s Bank“ og „Iceland’s Landsbank“. Verður hið fyrra nafn fremur einkenn- andi sem nafn hins eiginlega banka þjóðarinnar, sbr. Englands- banki (Bank of England). Reynt hefir verið að bæta úr þessu með því að kynna bankann erlendis eins og þjóðbanka (Islands national Bank, The national Bank of Icelartd o. s. frv.). Að sögn kunnugra manna kemur það ekki að fullu liði. Eigi einungis er þetta óviðunandi í sjálfu sér, heldur bakar það Landsbankanum tjón. — Er það eitt rétt, að hver banki hljóti viðskifti að sönnum verðleikum, en ekki vegna skreyti nafna eða sakir misskilnings viðskiftamanna. Stjórnin og ríkisgjöldin. Mbl. gerir nú mikið veður út af fyrirhuguðum embættabreyt- ingum í Reykjavík. Vill það verja þá skipun að einstakir embættis- menn hafi að launum tugi þús- Abyrgð ríkissjóðs fyrír Samvinnufélag Isfirðinga. Eitt höfuðhneykslunarefni I- haldsins vegna ráðstafana núver- andi þingmeirihluti, er heimild sú er ríkisstjórninni var veitt til að ganga í ábyrgð fyrir Sam- vinnufélag Isfirðinga og þykir því hlýða að gera nokkra grein fyrir því máli, •svo að unt verði fyrir almenning að átta sig á því. Sjávarútvegur er hin eina at- vinnugrein kaupstaðarins og byggist afkoma hans því öll á honum. Enda er staðurinn fyrir flestra hluta sakir vel til útgerð- ar fallinn. Þó hefir nú atvikast þannig á undanförnum árum að atvinna bæjarbúa hefir fallið svo í rústir, að til hallæris horfir, ef ekki er undinn bráður bugur að því að bæta úr ástandinu. Orsak- imar eru þær að útvegur bæjar- ins, sem að mestu er stundaður með stórum mótorbátum, var kominn á hendur örfárra eigenda sem öll alþýða manna átti alt sitt undir. En vegna ýmsra verslunar- óhappa undangenginna byltinga- ára — einkum þó síldarsölumis- takanna árið 1919 — voru eigend- ur bátanna komnir í botnlausar skuldir við bankana, svo að þeir sáu sér ekki fært að halda rekstri þessara manna lengur fljótandi. Var þá gengið að eignunum og bátamir seldir allflestir burt úr kaupstaðnum. Nú hefir sjálf sjómannastéttin á Isafirði hafist handa um að reisa atvinnulífið úr rústum með almennings samtökum. Hefir hún myndað með sér fjölmennan fé- lagsskap, er hefir í hyggju að kaupa 8—10 skip, ca. 40 smálest- ir að stærð hvert og reka þau á eigin ábyrgð á fullkomnum sam- vinnugrandvelli. Fyrirkomulag út- gerðarinnar verður þannig, að hver bátur verður sameign skips- hafnarinnar með skipstjóra í broddi og þannig sérstakt fyrir- tæki útaf fyrir sig. Verkun fiskj- arins og sala verður sameiginleg með fullkomnu samvinnusniði. Verkalaun og arður fara eftir afla og verði fiskjarins og skift- ast eftir ákveðnum reglum á milli eigenda og verkamanna. Ákveð- inn hluti umsetningar og arðs legst í sjóði félagsins til bygging- ar fyrirtækinu og er mjög vel frá þeim ákvæðum gengið. En vitanlega er hér bjarg á vegi þessara samtaka, sem skilj- anlegt er, eftir því sem í pottinn er búið — en það er féleysið. — Nú hefir félag þetta farið fram á það við Alþingi, að það heimili stjóminni að ábyrgjast 4/B hluta kaupverðs 8 skipa og nemur sú upphæð aUs 320 þús. kr. V5 hluta leggja félagsmenn til sjálf- ir, auk þess öll veiðarfæri og rekstrarfé fyrirtækisins. Til tryggingar ábyrgð þessari sé: 1. Veð í skipunum. 2. Sameiginleg ábyrgð eigend- anna. 8. Ábyrgð ísafjarðarkaupstað- ar. Ábyrgð þessi hefir nú verið heimiluð í neðri deild Alþingis og má ganga út frá því að svo verði og í efri deild. Því hefir verið haldið fram af andstæðingum þessa máls, að hér sé um nýja áður óþekta á- hættu að ræða fyrir ríkissjóð, ef gengið er í þessa ábyrgð. En sú fullyrðing hljómar nokkuð ein- kennilega í munni þeirra manna, sem setið hafa á undanfömum þingum og ausið út með gjöful- um höndum ábyrgðar- og láns- heimildum svo miljónum skiftir, til allra hugsanlegra fyrirtækja á landi og sjó, auk allra beinna, styrkja og framlaga úr ríkissjóði. Þannig eru komin í brimbrjótinn í Bolungarvík full 100 þús. í bein- um framlögum. Við að blaða i gegnum fjárlögin frá 1919—27, sýnir það sig að lánsheimildir úr viðlagasjóði hafa verið veittar fyrir 1,5 milj., en ábyrgðarheim- ildir til ríkisstjómarinnar hafa á sama tíma numið ca. 4,5 milj. •Að vísu hafa ekki aJlar þessar heimildir verið notaðar, en gerð þingsins er hin sama fyrir því. Af ábyrgðar- og lánsheimildum má nefna þessar: Til Akureyrar- bæjar 1 milj., til Hólshr. í ísa- fjarðarsýslu 300 þús., til ullar- verksmiðja 200 þús., 100 þús. og 50 þús., til Seyðisfjarðar- kaupstaðar 120 þús. (rafveitan) og síðast en ekki síst heimild veitt á Alþingi 1921 til að ganga í ábyrgð fyrir skuldum, er eig- endur íslenskra togara höfðu komist í í Englandi vegna skipa- kaupanna, alt að 200 þús. kr. fyr- ir hvert skip. Um ábyrgð þessa sóttu eigendur 12 skipa og hvíldu á þeim ca. 4 milj. kr. skuldir. Hér var ekki krafist 1. veðréttar í skipunum, ekki sjálfsskuldar- ábyrgðar eigenda, ekki ábyrgðar Reykjavíkurbæjar, ekki sett nein skilyrði um íhlutunarrétt um val forstjóra. Á fjárlagafrumvarpi því sem nú liggur fyrir þinginu hefir verið samþykt af flestum þingmönnum ábyrgðarheimild vegna Siglu- fjarðarkaupstaðar að upphæð 240 þús. En í rauninni var hvoru- tveggja þetta samþykt áður, bæði í hafnarlögunum og fjárlögunum, svo að það var ekki annað en til- færsla á gildandi heimildum, því að auk heimilda þeirra og lána, sem á fjárlög komast, er fjöldi lána veittur með sérstökum lög- um, t. d. hafnarlögum og má í því sambandi benda á eitt dæmi: Vestmannaeyjar.Með breytingu á hafnarlögum Vestmannaeyja á þinginu 1919 var landsstjórninni falið að ábyrgjast fyrir hönd ríkissjóðs 1 milj. og 50 þús. kr. lán fyrir kaupstaðinn og samþykt þar að auki að veita 350 þús. kr. sem beinan styrk til fyrirtækisins og hefir síðan verið bætt við þann styrk 70 þús. og nú liggur fyrir þinginu frumvarp um 70 þús. kr. viðbótarveitingu. Þannig eru flest- ir eða allir stærri kaupstaðir landsins meira og minna háðir skuldum, sem ríkissjóður stendur i í ábyrgð fyrir, eða fyrir láhum beint úr ríkissjóði, nema Isa- fjarðarkaupstað, sem þar má heita skuldlaus. Flestum eða öll- um lánum hefir verið varið til framkvæmda, ,sem engan beinan arð gefa, heldur á einn eða ann- an hátt er ætlað að styðja at- vinnulíf þess bygðarlags sem lánið tók. Hvaða höfuðmunur er á lán- veitingum þeim og ábyrgðum, sem hér hefir verið drepið á og

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.