Tíminn - 02.06.1928, Síða 2

Tíminn - 02.06.1928, Síða 2
98 TlMINN trt er komið: íslandskortið nýja, landsuppdráttur með 7 hæðalitum og 4 hafdýpislitum. Mæli- kvarði: 1:500000; stærð 1.20X8.87 m. Þetta er skólakort, með nöfnum. Verð: 25 kr., fullbáið á stöngum, fyrir skóla með rammbyggi- legri, einfaldari gerð, fyrir skrifstofur og heimili með fegurra frágangi. Pantanir aendist Sambandi ísl. bamakennara, Pósthólf 616, Reykjavík (í síma: Kennarasambandið, Reykjavík). hann dróttar að honum embættis- afglöpum og sviksamlegri van- rækslu í slíku máli. Má segja um G. Sv. að honum er launað mjög að málsefnum, er hann hlýtur svívirðingu af þeim moðkálfi íhaldsins, sem hann hefir hlaupið af sér tæmar fyrir við atkvæða- smölun í V.-Skaftafellssýslu. J. Þ. ---o--- Á víðavangí. Samgöngubætur Valtýs. Valtýr tekur sig nýskeð til og fer að athuga ferðakostnað á sjó og landi og kemst að þeirri kát- legu niðurstöðu að strandferða- skipa sé ekki þörf hér á landi, því að komast megi frá Reykjavík til Húsavíkur á 22 tímum yfir sumarmánuðina, þegar bílvegur sé kominn alla leið norður. — Og svo fer hann að reikna. Haxm reiknar út hve nýja strandferða- skipið muni kosta mikið, og hve reksturshalli þess muni verða og hve miklu ódýrara sé að sendast í bílum um landið, heldur en að veltast í strandferðaskipum, mið- að við bílagjöldin syðra. — En honum gleymist ýmislegt í þeim útreikningi. Hann gleymir því að nú er verið að leita tilboða um smíði hins nýja skips, svo að hyggilegra hefði verið að geyma alla útreikninga um verðið á því þar til tilboðin eru fengin. Hann gleymir því líka, að tekjuhalli Esju stafar að mestu af því að hún verður ein að eltast við nær alla viðkomustaði landsins og missir þar af leiðandi megnið af fólksflutningnum, sem heldur kýs hraðferðaskipin með fáu við- komustöðunum, og að nýja skip- inu er einmitt ætlað að bæta úr þessu, svo að Esja nái fólks- straumnum með strönduniun frá útlendu keppinautunum. Hann gleymir því líka, að þá er fleira sem þarf að flytja út um landið en fólk. Fólkið, sem býr í land- inu, þarf að ná að sér nauðsynj- um sínum og koma frá sér sölu- vörunum. Og þar af leiðandi gleymir hann því, -að reikna út kostnaðinn við vöruflutningana eftir áður nefndum taksta. En þeir yrðu sem hér segir: Undir hestburðinn mundi kosta frá Reykjavík á norðurlandsveg f Borgarfirði (gama sem í Borgar- nes) 5 kr., til Bólstaðahlíðar 15 kr., til Akureyrar 20 kr. og til Húsavíkur 26 kr. Nú getur Val- týr leikið sér að því, að bera þessi flutningsgjöld saman við flutningsgjöldin með skipunum og birt svo útkomuna í Morgun- blaðinu. En lakast er þó hitt, að Valtýr gleymir alveg að til eru vetur hér á landi og þá þjóta engir bílar til Húsavíkur á 22 tímum. Og að á þessari umræddu leið eru fjallvegir sem geta verið ófærir bílum 7—8 mánuði ársins — og hugleiðir þar af leiðandi ekkert hvemig þá á að flytja fólk og farangur út í og kringum landið. — Hið eina, sem hann man, er það, að hann getur notað sumarfríið sitt til að fara skemti- ferðir um landið og að þá er þægilegt að hafa mjúkan bíl til að þjóta með sig í sumarblíðunni um bygðir og óbygðir þann stutta tíma, sem íslensk veðrátta leyfir slík farartæki. Liðhlaupinn, sem hvarf frá samherjum sínum, af því að hann mat sjálfs sín hagsmuni meir en íslenska bændur, er ennþá sjálfum sér næstur. * Marðar-hlutverk MbL Mbl. er auðsýnilega gramt í geði yfir því, að Suimlendingum takist að stofna alþýðuskóla, Flytur það nú hverja árásar- greinina á fætur anari, auðsjáan- lega til þess að ala á óvild og reipdrætti milli einstakra hreppa eystra. Er það ilt starf og óvirðu- legt, og engum samboðið nema málaliði Mbl. Nú gefur blaðið í skyn, að stjómin ætli að bægja sr. Kjartani í Hruna frá forstöðu Laugavatnsskólans. Er kynleg sú aðdróttun. Á Alþingi 1926 var samþykt, að sr. Kjartan skyldi halda prestslaunum sínum óskert- um, ef hann tæki við forstöðu væntanlegs Suðurlandsskóla. Jón- as Jónsson núv. dómsmálaráð- herra var einn af ákveðnustu stuðningsmönnum tillögunnar. En sumir íhaldsmenn, t. d. Jóh. Jós- efsson og Eggert heit. Pálsson voru henni andvígir og töldu mis- ráðið að fela sr. Kjartani skóla- stjórn fyrir aldurs sakir. — Þeg- ar þessi tillaga var samþykt, voru horfur á að Suðurlands- skólinn yrði reistur á næsta sumri. — En afstaða Mbl. til skólamálsins er slík, að það ætti aldrei á hann að mixmast og síst í sambandi við sr. Kjartan. Hann er nú maður á sjötugs aldri og mátti hverjum vera ljóst, að því lengur sem dróst stofnun skólans, því minni líkur voni til þess, að hans nyti þar við. Þrátt fyrir það hefir Mbl. unnið að því með allri sinni fádæma nagdýrselju að tefja málið og spilla því, og gera þá menn tortryggilega, sem vilj- að hafa skólanum vel. Hafi nokk- ur reynt til að hindra það, að sr. Kjartan gæti starfað við skól- ann, þá er það Mbl. — Sunnlend- ingar verða að gera sér það ljóst, að Mbl. hefir aldrei mælt orð af heilum huga í garð skólans, frem- ur en nokkurs annars, sem bænd- um má að gagni verða. I hvert sinn, sem tekst að vekja deilur í sveitum landsins, glotta Mbl.- mennimir í Rvík, því að þeir eiga sitt pólitíska líf undir sundrungu bændastéttarixmar. Slettirekuháttur Mbl. Mbl. gerði sig fyrir nokkru digurt út af frystihússbyggingu Norður-Þingeyinga á Kópaskeri. Svo er að sjá sem blaðið haldi, að því sé ætlað að velja staði fyrir frystihús þau, sem kaupfé- lögin láta reisa víðsvegar um land. Mikið má það heita, ef Valtýr þykist hafa skilist svo sómasam- lega við málstað bænda, að hann geti vænst þess, að þeir spyrji hann ráða. Og óhætt er að full- yrða, að Norður-Þingeyingar muni aldrei þurfa á aðstoð Mbl. að halda og blaðinu komi fram- kvæmdir þeirra innan héraðs ekk- ert við. Mbl. fær áminningu. Ingvar Guðjónsson útgerðar- maður frá Akureyri, sem verið hefir á ferðalagi um Svíþjóð í erindum síldareinkasölunnar, hef- ir í viðtali við eitt bæjarblaðaxma hér, skýrt frá söluhorfum þar og undirtektum sænskra síldarkaup- Þýska aðaikonsulatið er fiutt í Sólvallargötu 12, neðri hæð. Skrifstofutími 11—12 Sími 2375. manna. Ber ummælum hans lítt saman við slúður það, sem und- anfarið hefir fylt dálka Mbl. Þar hefir verið reynt að telja mönn- um trú um, að Svíar væru mjög óvinveittir einkasölunni. Um þetta atriði farast Ingvari svo orð: „Nú er óhætt að fullyrða, að innflytjendur yfirleitt í Svíþjóð vilja að öðru jöfnu fremur*) meiri trygging sé fyrir því, að hún standi við gerða samninga*) og vandi til vörunnar en Pétur eða Páll“. „En engan hefi eg heyrt“, bætir hann við, „hallmæla okkur fyrir, að við reynum að bæta úr því ófremdar ástandi, sem síldarVerslunin hefir verið í til þessa, nema nokkra landa mína, einkum þá, sem verið hafa leppar norslaa og sænskra síldar- kaupmanna.*) Er ilt til þess að vita, að íslenskir menn skuli ger- ast til þess að ófrægja einkasöl- una, að óreyndu, og reyna að spilla fyrir henni og gera hana tortryggilega, ekki einasta hér innanlands, heldur og meðal við- skiftamanna hennar í útlöndum“. — Ingvar Guðjónsson er einn þeirra manna, er sjálfir hafa rek- ið síldarútgerð og síldarsölu. En hann á þó drengskap til að viður- kenna, hve gerómögulegt það skipulag hefir reynst, sem ríkt hefir um þau efni hingað til. Nú *) Leturbr. Tímans. ofbýður honum svo athæfi og þvermóðska andstæðinga einka- sölunnar, að hann segist ekkert „kurteislegt orð“ þekkja, er lýsi því réttilega. Er þar þungur og maklegur dómur uppkveðinn yfir hinum ósæmilegu tilraunum Mbl. og þess liða til að vinna einkasöl- unni tjón. Ólíkir menn. 1 síðasta blaði Varðar veitist Ámi frá Múla að Tr. Þ. forsætis- ráðherra, og gefur í skyn, að hann efni ekki loforð sín, Á. J. ætti aldrei að hætta sér út í per- sónulegar árásir, því að það má honum ljóst vera, að sjálfur stenst hann ekki samanburð við nokkum annan stjórnmálamann íslenskan (nema ef vera skyldi V. St.) Tr. Þ. hefir hlotið alþjóðar- viðurkenningu og æðstu völd í landinu vegna mikils og farsæls starfs í þágu opinberra mála. En þau litlu afskifti sem Á. J. hefir haft af landsmálum, em bæði honum sjálfum og þjóðinni til raunar. Stauparéttardómur. íhaldið setti stauparétt um síð- ustu helgi og dæmdi alla þá menn, sem vilja verja áfengissektum til menningarbóta, „móralska idi- ota“. Væri ekki úr vegi að at- huga í því sambandi, hvað Norðmenn hafa t. d. ákveðið að öllum tekjum af áfengisverslun ríkisins skuli ráðstafa sórstaklega og verja til almenningsheilla. Er í ráði, að tekjur síðasta árs renni til berklavama. Með þessum hætti á vínnautn þjóðarinnar, sem í sjálfu sér veldur siðspillingu, óbeinlínis þátt í því að bjarga þúsundum norskra æskumanna úr klóm „hvíta dauðans“. Fær landið með því nokkrar „bölva bætur“. — En Norðmenn eru „móraiskir idiotar“ eftir stauparóttardómi. -------------o— Frá útiöndam. Hinn 20. f. m. vildi til óvenjuiegt slys i Hamborg. í í verksmiðju nokk- urri, sem framleiddi eitraðar loftteg- undir á ófriðarárunum, var geymir með eiturgasi þvi, er „phosgen" nefnist. Sprakk ge.ymirinn, og vita menn eigi með vissu, hverjar orsakir hafa valdið. Gas þetta er þyngra en venjulegt loft og breiddist út frá geyminum, með jörðu, og án þess að skifta við einkasöluna en einstaka útgerðarmenn. Þeir telja, að : aðrar þjóðir segja um slík mál. Landsbankinn og Ihaldsflokkurinn. Um aldamótin síðustu var stofn- aður hér erlendur hlutabanki. Þessi banki fékk seðlaútgáfurétt- inn í sínar hendur um 30 ára skeið og flest þau fríðindi, sem þroskaðri þjóðir í peningamálum veita aðeins þjóðbönkum sínum. Fyrir sérstaka hepni var þó kom- ið í veg fyrir, að hinn raunveru- legi þjóðbanki landsins — Lands- bankinn — legðist niður, og skorti þó ekki viðleitni erlendra fjárplógsmanna og skósveina þeirra hérlendra til að koma Landsbankanum fyrir kattamef. Margir þjóðræknir Islendingar voru óánægðir með úrslit banka- málsins 1908. Hófust brátt deilur um bankamálin, því alt af átti Landsbankinn marga formælend- ur, og þreifst furðanlega, þrátt fyrir mjög örðuga aðstöðu. Deilumar um það, hvort yfir- ráðin yfir peningamálum landsins skyldu framvegis vera í höndum Landsbankans, eða Islandsbanka, hörðnuðu ekki að marki fyr en með stofnun Framsóknarflokks- ins. Á síðari hluta stríðsáranna og einkum eftir 1919, þegar fjár- kreppan byrjaði, urðu deiluraar um bankamálin eitt af helstu á- greiningsatriðum hinna pólitísku flokka. Fjárbrallsmenn í bæjum og sjóþorpum, og aðrir íhalds- menn, slógu skjaldborg um hags- muni Islandsbanka, hvenær sem gerð var tilraun til að ná ein- hverju af fríðindum þeim, sem honum höfðu verið veitt, til handa Landsbankanum. Þétta sama fólk er ívaf og uppistaða I- haldsflokksins nú, og mun því engan furða þó frá þeim flokki andi kalt til Landsbankans, eftir að hann hefir öðlast þau réttindi, sem framsæknir menn jafnan hafa óskað honum. Þessi andúð gegn Landsbankan- um kemur Ijóslega fram í grein- arbálki miklum 1 „Verði“, sem heitir: „Landsbankalögin“. Höf. greinarinar þykist reyndar vera að verja Landsbankann gegn Lokaráðum Framsóknarmanna, en slíkur yfirdrepsskapur er svo gagnsær, að hugsandi menn láta ekki af honum blekkjast, enda er í sama blaði beinlínis ráðist á bankann með dylgjum, sem síst bera vott um velvild til hans' og skal síðar að þeim vikið. Það sem blaðið leggur aðalá- áherslu á í áðumefndum grein- um, er að sverta Framsóknar- flokkinn fyrir breytingar þær, sem gerðar voru á Landsbanka- lögunum á síðasta þingi og skulu þær því athugaðar í sambandi við önnur. ummæli blaðsins og undangengna atburði í bankamál- inu. Blaðinu farast é einum stað orð á þessa leið: „Það er á almæli að Landsbankalögin, er samþykt vom á þinginu 1927, hafi verið með einsdæmum vel undirbúin". Mestan og bestan undirbúning fengu Landsbankalögin í höndum milliþinganefndarinnar, sem skip- uð var a Alþingi 1925. Nefndin viðaði að sér miklu efni og fékk álit fjölda sérfræðinga í bankar málum. Skilaði hún mjög ítarlegu áliti og gerði frumvarp til banka- laga, sem lagt var fyrir þingið 1926. Á því þingi varð málið ekki útrætt, en á þingi 1927 tókst I- haldsflokknum að berja fram stórbreytingar á frumvarpi milli- þiuganefndarinnar. Þessar breyt- ingar mættu megnri mótstöðu Framsóknarmanna bæði á þingi og í blöðum flokksins, og ekki síst í kosningabaráttunni síðast- liðið vor. Framsóknarflokkurinn hafði tjáð sig fylgjandi tillögum milli- þinganefndarinnar í bankamálinu, í öllum meginatriðum, en fékk ekki við neitt ráðið á þingi 1927 fyrir yfirgangi Ihaldsmanna. Á síðasta þingi hafði svo Framsókn- arflokkurinn aðstöðu til þess að breyta bankalögunum í það horf, sem milliþinganefndin hafði lagt til og flokkurinn jafnan verið fylgjandi. Og breytingamar voru samþyktar. Alt annað hefði verið svik við eigin málstað. íhaldsblöðin æpa hátt út af þessum breytingum á bankalög- unum og bera Framsóknarflokk- inn allskonar brigslum út af úr- slitum málsins. Em það einkum þrjú atriði, sem um er deilt, og skulu þau því athuguð hvert fyr- ir sig. 1. Ríkisábyrgðin. 1 frumvarpi milliþinganefndarinnar er kveðið svo að orði í 1. gr.: „Landsbanki íslands er sjálfstæð stofnun, sem er eign ríkisins". Og 5. gr. frum- varpsins hljóðar svo: „Stofnfé bankans er 3 miljónir króna, sem ríkissjóður leggur honum til“. Auk þess skal bankinn safna varasjóði, samkvæmt 48. gr. Stofnfé bankans má aldrei vera minna en 3 miljónir króna. Ef bankinn einhvemtíma verður fyr- ir svo miklu tapi, að auk vara- sjóðs tapist eitthvað af stofn- fénu, leggur ríkissjóður þegar til það, sem á vantar að stofnféð sé fullar 3 miljónir króna.*) Með þessum tveimur greinum í frumvarpinu er því ótvírætt lýst yfir, að ríkið beri fulla ábyrgð á Landsbankanum. En hvað gerir svo Ihaldsflokk- ur á þingi 1927? 1 frumvarpi því, sem Ihalds- stjórnin lagði fyrir þingið, er bætt inn í 1. gr. frumvarps milli- þinganefndarinnar: - „Ríkissjóöur ber ekki ábyrgð á skuldbinding- um bankans umfram stofnfé það*) o. s. frv. Þessi breyting er svo þvinguð gegnum þingið af forystumönn- um Ihaldsflokksins, gegn eindreg- inni mótstöðu Framsóknarmanna. Á þinginu í vetxu- gerist svo það, að Framsóknarflokkurinn tekur upp í bankalögin ákvæði um ríkisábyrgðina samkvæmt til- *) Leturbr. hér. lögum milliþinganefndarinnar og í samræmi við það, sem flokkurinn hafið stöðugt lýst yfir að hann teldi rétt vera. Höfundur Landsbankagrein- anna talar digurbarklega um dóm almennings yfir Framsóknar- flokknum út af ríkisábyrgðinni. En hvaðan kemur honum mynd- ugleiki til slíks? Umræður í blöð- um benda ekki neitt í þá átt og ekki hefir heyrst getið um nein fundahöld almennings til að and- mæla aðgerðum Framsóknar. I- haldsmenn eru gramir, það fer ekki dult, en alt sem þeir hafa gert í málinu síðan þingi sleit, er að láta skrifa nokkrar illyrtar blaðagreinar, fullar af mótsögn- um og blekkingum. Slík skrif verða ekki skoðuð sem „dómur þjóðarinnar“, en Ihaldsforkólfun- um ætti að fara að skiljast, að ráðleysi þeirra og bmðl í fjármál- um hefir fengið sinn þunga dóm hjá þjóðinni. Höf. Landsbankagreinarinnar þvælir mikið um það, hver áhrif ríkissjóðsábyrgðin hafi á hag sparisjóðanna, ríkissjóðs og bank- ans sjálfs. Mest er þetta meinlaust glam- ur út í loftið og flest af því marghrakið áður. Höf. segir að á- byrgð ríkissjóðs á skuldbinding- um bankans, hafi þær afleiðing- ar, að landsmenn flytji sparifé sitt í Landsbankann „smátt og smátt, hart eða hægt“, og sé því sparisjóðnum bani búinn af þessu ákvæði.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.