Tíminn - 27.10.1928, Page 1

Tíminn - 27.10.1928, Page 1
©falbfett 05 afgrei56luma6ur ílmarts er Hannoeig þ 0 r s t e \ n s öó M i r, SOmbanösíjúsinu, ReyfjaDÍf. jZ^fgteifcsía Clmans er í Sambanösljúsinu. 0pin imojega 9—f. i)* Stmi XH. 6r. Reykjavík, 27. október 1928. 51. blað. Samvinnusaga Islands Avarp tii samvinnumanna Stjórn og fulltrúaráð Sambands íslenskra samvinnufólaga hefir ákveðið að láta safna drögum og’ heimildum um upphaf og sögu samvinnuhreyfingarinnar á íslandi. Hefir mér undirrituðum verið falið að leggja fyrstu drög að verkinu. — Heimildir þessar eru vitanlega dreifðar um alt land í gjörðabókum samvinnufélaganna, minnum manna þeirra, er fyrir hafa beist í samvinnumálum, tekið virkan þátt í starf- semi félaganna eða af öðrum ástæðum fylgst með þróun og sögu hreyfingarinnar, og loks í einkabréfum, ritgerðum og skrif- legum frásögnum, birtum eða óbirtum. Flestir af elstu frumherjum hreyfingarinnar eru nú að vísu fallnir í valinn, og þeir, sem eftir lifa, komnir af fót- um fram. Brófum og ritgerðum, er kynnu að geyrna fróð- leik um þessi efni, liggur og við glötun. Er þvi í hæsta lagi tímabært að hefja þetta verk. Af framan greindum ástæðum leyfi eg mér hór með að skora fastlega á íslenska samvinnumenn, heima og erlendis, yngri jafnt og eldri, þá er lesa ávarp þetta og gætu miðlað einum eða öðrum fróðleik um þetta efni, að gera það nú á komandi vetri eða svo fljótt, sem ástæður framast leyfa. — Til leið- beiningar þeim mönnum, er sjá sór fært að verða við þess- um tilmælum, skal eg leyfa mér að gefa eftirfarandi yfirlit um efnisval og niðurskipun þeirra heimilda og sögulegs fróð- leiks, sem æskt er eftir: / 1. Itarleg frásögn um verslunarástæður, vöruverkun, búnað- arhætti, klæðaburð, mataræði og heimilislíf íslendinga éður og um þær mundir, er verslunarsamtök bænda hófust, eða um og eftir miðja síðastliðna öld. Æskilegt væri, að frá- sagnir þessar væru í ritgerðaformi, með það fyrir augum, að þær mætti fell-a, lítt eða ekki breyttar, inn í forsögu eða inngang að sögu samvinnunnar. 2. Frásagnir um elstu verzlunarsamtök almennings í landinu, alt til stofnunar samvinnufélaganna. 3. Nöfn samvinnufélaga, heimilisfang og varnarþing, félags- svæði, stofnár, lokaár þeirra, sem hætt eru störfum, for- göngumenn, formenn, stjórnarnefndir og framkvæmda- stjórar frá upphafi félaganna og fram á þennan dag. 4. Myndir af t'römuðum samvinnumála og þeim mönnum, er koma við sögu félaganna samkvæmt því, sem greint er undir tölutil 3. Séu nöfn greiniiega rituð aftan á mynd- irnar, helst eiginhandarnöfn. Ennfremur fylgi þeim stutt ágrip af ættartölum og helstu æfiatriði mannanna og þá sérstaklega frásögn um þátttöku þeirra í samvinnumálum. 5. Myndir af byggingum og öðrum mannvirkjum félaganna og fylgi saga bygginganna, þar sem tilgreint er um verð þeirra, notkun og innri gerð. 6. Yfirlit um þróun félaganna frá upphafi þeirra og fram á þennan dag: Fólagatal, verzlunarveltu, sjóði, fram- kvæmdii og út.færslu starfsgreina. 7. Yfirtit um skipulagsþróun fólaganna: Eintök af lögum félaganna eða samþyktum, eldri og yngri, rituð eða prent- uð, ásamt yfirliti um verðsálagningaraðferðir, ábyrgðar- skipulag (samábyrgð innan deilda), stjórn félaga, deilda- skipun, breytingar þær er orðið hafa í þessum efnum ðg tildrög breytinganna. 8. Gjörðabækur félaga, sem liðin eru undir lok. Útskriftir úr gjörðabókum fólaganna um þau atriði, er máli skifta fyrir þróun þeirra og sögu og þá tilgreindir merkir dag- ar og ártöl. 9. Árbækur félaga og ársrit og það, er kann að hafa verið ritað um sögu þeirra. Ritgerðir, birtar í skfifuðum fé- lagsblöðum, sveitarblöðum eða öðrum málgögnum. Einka- bréf, heil eða brot, sem á einn eða annan hátt fjalla um þessi mál. 10. Allur hugsanlegur fróðleikur um þetta efni, sem hér kann að vera ógetið og þá eigi síst það, hvar og hjá hvaða mönnum unt muni vera að fá skýrslur, frásagnir, gjörða- bækur og annan fróðleik um elstu félög, — ennfremur vísbendingar um hvar í blöðum og ritum í bókasöfnum landsins muni vera að finna ritgerðir eða ákveðinn fróð- leik um efnið. Þar sem gert er ráð fyrir, að heimildir þær, er kunna að safnast með þessum hætti, verði notaðar og lagðar til grundvallar, er rituð verður „Samvínnusaga íslands“, skiftir vitanlega mestu og er reyndar alls um varðandi, að frásögn öll verði í samræmi við sögulegar staðreyndir. Skortur á fullri vissu um einstök atriði má að vísu eigi valda því, að eigi sé frá þeim greint. En brýnt skal það fyrir mönnum, að taka það jafnan fram, ef vafi leikur á um sögulega vissu og jafnframt að vísa til annara heimilda eða heimildarmanna til san^anburðar, ef þeirra er kostur.. Og þótt svör einstakra manna kunni að verða aðeins um fátt eitt af því, sem hér er drepið á, má það engum hamla að greina það, er hann veit. Verða jafnvel einstakir fróðleiksmolar kærkomnir og geta orðið harla mikilsverðir. Þess er fastlega vænst, að vinir samvinnunnar, gamlir menn og ungir, sem kynnu að geta aðstoðað í þessu efni, gerist fúslega sjálfboðaliðar í því verki, sem á að geta orðið upphaf þess, að rituð verði, af víðtækri þekkingu, saga merk- ustu. fólagsmálahreyfingar, sem uppi hefir verið í landinu. Skal eg svo að lokum leyfa mér, fyrir hönd Sambands íslenskra samvinnufélaga, að ítreka. framangreind tilmæli og áskorun með þeirri skýrgreiningu, sem nú hefir verið gefin og vænti góðs árangurs. Virðingarfylst Jónas Þorbergsson ritstjóri Sinii 8219. Pósthólf 961 Reykjavik. Blaðið Dag’ur á Akurayri, tímaritið Samvinnan, blaðið Lög- rétta og blöð Islendinga vestan hafs eru vinsamlega beðin að birta ávarp þetta. J. Þ. Utan úr heimi. Forsetakosning Bandai'íkjanna. Innan skamms ganga Banda- ríkjamenn til forsetakosninga. Koma þar aðeins tveir til greina, þeir Alfred E. Smith ríkisstjóri í New York ríki og Herbert Hoover ráðherra. Báðir þessir menn eru taldir mikilhæfir og líklegri til skörungsskapar en þeir Harding og Coolidge, sem báðir hafa þótt litlir skörungar á forsetastóli. A1 Smith er alinn upp í fátækra- hverfi New York borgar, fór hann á mis við háskólamentun, en gat sér eigi að síður mikið álit fyrir gáfur, dugnað og stjómvisku. Er hann talinn langfremstur af ríkis- stjórum Bandaríkjanna. — Her- bert Hoover er áður heimskunn- ur af brytastarfi sínu, er hann stóð fyrir matvælaskömtun og liknarstarfsemi Bandaríkjanna í Belgíu og á Rússlandi á hallæris- árunum um og eftir styrjöldina. Flokkaskipun í Bandaríkjunum hvílir á fornum grunni. Skipulags- baráttan, sem nú geysai’ hvai'- vetna í lýðfrjálsum löndum Ev- í’ópu, hefir enn ekki náð sér niðn í Bandaríkjunum. Auðvaldið þar í landi er svo rammaukið, að sam- tök verkamanna eru nafnið eitt og samvinna í verslun og framleiðslu- háttum á afarerfitt uppdráttar, Meginflokkarnir í Bandaríkjun- um eru tveir: Sérveldismenn (Democrats) og Samveldismenn (Republicans) og eiga rót sína að rekja til þeirra tíma, er nokkur hluti ríkjanna vildi brjóta af sér fjötur ríkisheildarinnar. Aðal- stefna sérveldismanna er mikil umráð almennings og einstakra ríkja yfir sínum málum, víðtækur kosningaréttur lágir tollar 0g hóf- leg meðferð almenningsfjár. Aðaí- stefna Samveldismanna er þá vit- anlega gagnstæð: Sterk ríkisheild og vítt valdsvið allherjarstjómar. háir tollmúrar 0. s. frv. Af þessu sést að flokkaskifting- unni ráða engar þróunarstefnur í skipulagsmálum, heldur aðeins fastheldni beggja flokka við ákveðin form í stjórnskipulags- og skattamálum. Af höfuðstefnum flokkanna verður því ekki ráðið að það hafi meginþýðingu hvor flokkurinn verður hlutskarpari. Árangurinn af kosningunum verð- ur fremur bundinn við þá menn, sem hljóta kosningu á hverjum tíma. Eftir því, sem komið hefir fram í stefnuskrárræðum þeirra manna, sem nú koma til greina, er að vísu nokkur stefnumunur þeirra. Hoo- ver er talinn vera mikill aðdáandi vélamenningar og fésýslukerfis Ameríkumanna. Smith kveðst ekki vera viss um að ekki megi um það bæta. Hoover hefir verið tómlátur um ásælni Bandaríkja- stjórnar í garð Mið-Ameríkuríkj- anna. Smith tekur ákveðna stefnu gegn þeirri ásælni á hendur öðr- um þjóðum. Hoover telur sig bannmann, en bendir þó ekki á nein róttæk ráð, til þess að hnekkja hinum víðtæku félögum bruggara og leynisala. Smith vill breytingu á áfengislöggjöfinni í þá átt, sem tíðkast í Kanada. Hoover er mótmælandi, Smith ka- tólskrar trúar. Alt þetta og margt fleira kemur til greina, er þjóðin gengur að kjörborðunum. Samt sem áðui’ verður ekki sagt, að þjóðir heimsins hafi ástæðu til að gera sér miklar vonir til eða frá í sambandi við kosninguna. Með afstöðu forsetaefnanna er hvergi mörkuð skýr stefna gagnvart sár- ustu vandamálum mannanna hvorki þar í landi né annarsstað- ar. Þó mun mega telja að Hoover sé þeirra íhaldssamari og blind- aðri af þjóðmálaspillingu Banda- ríkjamanna og líklegastur til þess að feta í fótspor Coolidge, sem hefir haldið verndarhendi yfir því hörmungarástandi, en að Smith sé fremur umbótagjarn og líklegri til haming’jusamlegra afskifta í vandamálum allra þjóða. -----a---- Fimm stjórnmálafundir. A Akranesíuádinuni vai' kom- iö rækiiegar inn á landhelgisvai’n- irnar en á öðrum íundum, og þykir ekki óiíklegt að fundar- mönnum verði nokkurt gagn að þeim urniæöum þegar þeir eftir á 1 Kyiö og næði hugleiða það vei- íeröarmál. Dr. Björn Þóröaison vék l'yrstur aó þeim málum, lýsti nauösyn þess aö iandheigin yrði íærö íjær iandi og benti á hverj- ar leiðir yrði aó fara í þeim efn- um, úrsht málsins mundu liggja 1 liöndum alþjóðabanda- iagsíns. Ln þótt eigi tækist aö breikka landhelgina, þá mundu hkindi til að takast mætti að fríða viss svæöi sem nú eru óíriðuð. Halöi hann átt tal við hinn heimsíræga fiskifræðing Johs. bnurir, og hafði hann taiið ís- ienduigunr ráðlegast að neyta að- sioóar vísindamanna þegar þeir rær u meö þessi mál fyrír alþjóða- dóm tii úrslita. Mun Akurnesing- um þykja, sem meiri von sé að því aö hlýta hér ráðleggingum dr. Björns Þórðarsonar, held- ur en aö láta sig dreyma um aö nokkurt gagn hljótist af lítt hugsuöum tillögum sem Pétur Ottesen á sínum tíma fékk sam- þyktar, tiilögum sem Ihaldsstjórn- in, átrtúnaðargoð Péturs, hafði síðan að engu. Haraldur Guð- mundsson alþingismaður vildi að íslenskir tögai’aútgerðai'menn mynduðu samtök um að banna skipstjórum sínum að veiða i landheigi, og síðan yrðu samtök um það að íslensku botnvörpung- arnir kærðu erlenda botnvöip- unga þegar þeir freistuðu að veiða í landhelgi. Ennfremur taldi hann að það mundi hafa góð áhrif á íslenska landhelgismál- staðinn þegar til úrslita kæmi um útfærslu landhelginnar, ef ís- lensku togaraeigendurnir kæmu sér saman um það að friða Faxa- flóa fyrir sínum skipum, þótt ekki væru á þessu stigi hægt að loka honum fyrir erlendum skip- um. Jónas Jónsson ráðherra sýndi fram á að svona færu Englend- ingar að. Þeir lokuðu Murry-fló- anum fyrir eigin skipum,það væri einskonar Faxaflói hjá þeim. Af þessu mætti hljótast hið mesta gagn í nútíð fyrir vélbáta- 0g smábátaútgerðina, í framtíð fyrir þjóðina og sjávarútveginn í heild sinni. Ólafur Thors neitaði að standa með þessum málum. „Stéttatilfinning“ skipstjóra og sjómanna útilokaði að hægt væri að vonast eftir kærum frá íslensku skipunum á hendur erlendu veiði - þjófunum. Á samtök útgerðar- manna um að láta ekki veiða i landhelgi, mintist hann ekki, en ekki þykir ólíklegt, að Ólafur viti þar líka af einhverri „stéttartil- finningu“ sem sé góðri úrlausn málsins til fyrirstöðu! Þá sýndi J. J. fram á það hvernig spilin lægju í þessu máli. Sjálfir Ihalds- þingmennirnir Ágúst Flygenring, Halldór Steinsen og Pétur Otte- sen, til þess nú að nefna ekki hlutdræg vitni gegn meginkjarna Ihaldsflokksins, stórútgerðar- mönnunum, hefðu lýst því á þingi hve stórkostleg væru brögð- in að veiðiþjófnaði íslensku skip- anna í landhelgi. Og að það væru íslensku skipin sem lokkuðu er- lendu skipin til landhelgisveiða.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.