Tíminn - 12.01.1929, Blaðsíða 2

Tíminn - 12.01.1929, Blaðsíða 2
10 TÍMINN þegar einvaldsherramir falla frá. — í öðru lagi eru stjómarstörfin í löndunum orðin svo margbrotin og svo mikið bákn, að á þeim grunni getur aldrei risið einveldi með sama hætti og áður var. ---o-- Á víðavanéi. „Frá stjómmálunum“. Jón Þorláksson skrifar í MbL viðbrigða ólundarlega áramóta- grein „Frá stjómmálunum 1928“. Verður sumum atriðum þeirrar greinar svarað sérstaklega. Hér verður aðeins bent á eitt atriði. J. Þorl. finnur ráðherrunum, sem nú fara með völd, það til foráttu, að þeir séu ekki vaxnir upp úr því, að vera flokksforingjar. 1 fyrsta lagi hefir þetta við engin rök að styðjast. Hafa aldrei ver- ið stigin djarflegri spor til heilla íslenskum sjávarútvegi, en síðan núverandi stjóm tók við völdum. í öðm lagi munu slíkar umvand- anir hvergi eiga síður heima en í munni Jóns Þorlákssonar. Vita allir að hann er fyrst og fremst umsvifamikill stórgróðamaður hér í Reykjavík og hefir ávalt staðið á verði um sérhagsmuni þeirra stétta, sem hafa léð honum stj ómmálafylgi: Kaupsýslumanna og stórútgerðarmanna. Mun eng- inn sérgæðingur (egoisti) þvílík- ur sem Jón Þorláksson hafa kom- ið fram í íslenskri stjómmála- starfsemi. Þessvegna er það blátt áfram andstyggilegt, er slíkur kaldhyggjumaður og fépúki gerir sér upp þjóðmálavíðsýni og tekur að krefjast af öðrum almennr- ar þjóðfélagsumhyggju. Þvílík hræsni er einsdæmi í íslenskri stj ómmálabaráttu. Komforðabúr Eyfirðinga. Undanfarin ár hefir verið rætt um það á aðalfundum Kaupfélags Eyfirðinga, að áfátt væri nægi- legri fóður- og matvælatryggingu í héraðinu, ef ís kynni að loka siglingaleiðum fyrir ströndum landsins, með því að innflutning- ur komvara er nú víðast hvar á landinu miðaður fremur við örar samgöngur og þá viðleitni að firr- ast vaxtatap og geymslukostnað, heldur en við það að tryggja hér- uð og bæi, ef ísa og harðindi bæri að' höndum. Var einsætt talið að úr þessu yrði að bæta. — I Eyja- Hálfyrði um enska skóla. Rithöfundui- í Ameríku hefii* sagt, að svo væri farið í flestum efnum, að þegar England hefði gefið það sem þar væri best, þá væri venjulega ekki langt þaðan til þess sem best væri í öllum heimi. Eg hafði fyrir jólin tækifæri til að skreppa úr landi stutta ferð til að heimsækja nokkra skóla og skólamenn. Eg var ekki fjarri að trúa nokkuð á kenningu Ameríku- mannsins og notaði þessvegna tímann til að gista nokkra af þeim skólum í Englandi, sem mest nafn hafa getið sér, og sum- ir um langan aldur. Hér á landi er flest ungt nema málið, skáldskapariðkanir og fom- sögumar. Skólamir íslensku em flestir baraungir; flestir þeirra hafa átt í basli. Einn af helstu rithöfundum samtíðarinnai- hefir sagt, að 1 skólamálum okkar væri nálega ekkert frumlegt, helst einn skóli í sveit, sem þó er ekki nema 3—4 ára gamall. 1 Englandi er alt gamalt, þjóð- in, frelsið, þingið, venjuraar og skólarair margir eru furðugamlir. Fyrsti skólixm, sem eg heimsótti í Aberdeen var stofnaður þegar Snorri Sturluson var að fóstri hjá Jóni Loftssyni í Odda. Skólahús- firði er til allstór sjóður, sem er dánargjöf Jóns Sigurðssonar frá Göngustöðum í Svarfaðardal. Ætlunarverk sjóðsins er að varaa hungursneyð í héraðinu, ef hall- æri ber að höndum. Kf. Eyfirð- inga leitaði samvinnu við stjóra sjóðsins og jafnframt við bæ og sýslu, um fóður og matvæla- tryggingar fyrir héraðið. Hefir nýlega orðið samkomulag um að Kaupfél Eyfirðinga hefði jafnan fyrirliggjandi til vara 1600 tunnur af kornmat í þessu skjmi, en að hallinn og aukakostnaðurinn, sem af þessum ráðstöfunum leiðir verði greiddur af gjafasjóði Jóns Sigurðssonar og af bæ og sýslu. íslensk ull í Ameríku. Nýlegá flutti Vísir ýmsar versl- unarhugleiðingar eftir amerískan kaupahéðinn, sem telur vandalít- ið að opna nýja markaði fyrir ís- lenskar framleiðsluvörur, ef eftir því væri leitað. Meðal annars tel- ur hann nauðsynlegt að taka upp þann hátt að senda íslenska ull til Bandaríkjanna! Brestur sýni- lega nokkuð á þekkingu manns- ins um þessi efni, ef honum er ókunnugt um það, að íslensk ull hefir um langt skeið verið seld að meira og minna leyti til Banda- ríkjanna og ávalt beint, síðan Samband íslenskra samvinnufé- laga tók að annast ullarsöluna fyrir kaupfélögin. — Hefir víðar í blöðum brytt á þessum ókunn- leika og er hann kynlegur, þegar minst er röggsemi Ihaldsstjóraar- innar fyrverandi: að hún gerði út mann með nesti og nýja skó vest- ur í Hvíta húsið, til þess að fá lækkaðan toll á íslenskri ull. Og þó förin bæri ekki árangur, var hún nægilegur vottur um það, að í Bandaríkjunum var markaður fyrir íslenska ull. Hversvegna rannsókn? Mbl. lætur á veðri vaka, að Tíminn óttist afleiðingar af hugs- anlegri rannsókn á rekstri Áfeng- isverslunar ríkisins og haldi þess vegna á lofti að afleiðingar slíkr- ar rannsóknar myndu skella fyrst og fremst á M. Guðm. Þetta er fjarri til getið. Tíminn gæti ekki óttast slíka rannsókn. En hennar virðist engin þörf. Hefir núver- andi forstjóri gefið ítarlega skýrslu um reksturinn og hefir þeirri skýrslu í engu verið mót- mælt. — Aðeins virðist skorta á fulla skýrslu um fjárhagslega ið er geysistórt, með tumum og tindum, eins og riddaraborg. öll var byggingin úr granít. Skóla- sveinar vora um 1000. Miklir vell- ir voru í kring um skólann, inni í miðri borginni, en meiri þó utan- bæjar, og fóru piltar þangað dag- lega með járnbraut og sporvögn- um, til íþróttaiðkana. Þrír af kunnustu mentaskólum í Englandi era Eton, Rugby og Harrow. Þeir eru allir í nánd við London, en þó í sveit, og hafa smábæir myndast umhverfis þá. Eton er þeirra stærstur og elst- ur, talinn vera stofnsettur 1440, Stofnskrá hans, rituð á prýðilegt pergament er enn til í bókhlöðu skólans. Innsigli konungs, nálega eins stórt og undirbolli var við fest, og óskemt, eins og slit ald- anna hefði aldrei til þess náð. Rugby og Harrow eru báðir frá tíma Guðbrandar biskups, og hafa líka margar fornmenjar og dýra dóma, sem bætt hefir verið við öld eftir öld. Nemendur í Eton era nú um 1100 en 6—700 í hvorum hinna. Þessir þrír skólar eru sjálf- stæðar stofnanir og fá engan stuðning úr ríkissjóði og era líka að mestu leyti lausir við aðhald og eftirlit ríkisvaldsins. Tekjur sínar fá skólar þessir að mestu af eignum sínum, en það era að- allega gamlar og nýjar dánar- gjafir, en sumpart frá nemend- um. Heimavist er fyrir nálega alla ágengni sumra máttarstólpa Ihaldsins á hendur versluninni og hneykslanlega eftirlátssemi fyr- verandi stjómar við hina gráðugu menn. Verður væntanlega úr því bætt áður langt um líður. Að öðru leyti er ekkert á huldu um versl- unina. Æsingatilraunir Mbl. út af vínblönduninni hafa alveg mis- hepnast, með því að það orð hvíl- ir á, að sú ráðstöfun hafí verið til bóta. — Eigi er enn séð hvera árangur bera landráðatilraunir blaðsins, þar sem það leitaðist við að fiska eftir erlendum skaða- bótakröfum á hendur íslenska rík- inu. Eigi að síður er svívirðing blaðsins fullkomin fyrir að leita slíkra klækisbrágða í pólitísku æsingaskyni. Frá breskri landhelgisgæslu. Þann 11. sept. síðastl. haust tók ! enskt varðskip franskan togara í breskri landhelgi. Togarinn hafði vörpuna lausa á þilfari og var í henni nokkuð af nýveiddum fiski, er líkur þóttu til, að veiðst hefði í landhelgi. Auk þess var fram- ferði togarans nokkuð grunsam- legt, með því að hann hlýddi ekki fyrirskipunum varðsskipsins, fyr en það sýndi sig í því, að beita valdi. — Framburður skipverja á varðskipinu hneig mjög í þá átt, að styrkja grunsemdir um fulla sekt hins franska togara. Og eigi munu stjóraendur varðskipsins hafa orðið að notast við nagla, sem hið eina athugunartæki, eins og landhelgisgæslumenn M. Guðm. á varðbátnum Trausta. — Eigi að síður þótti breskum rétti málið vafasamt og sýknaði togarann. Má af því sjá, að Bretum muni eigi þykja hyggilegt að leggja út í vafasöm mál, þegar erlend ríki eiga 1 hlut. — En hér heima haf a Ihaldsblöðin kynt hið mesta æs- ingabál út af því, að dómsmála- ráðherrann vildi ekki leggja nagla-skráðai- löggæsluathuganir á varðbát M. Guðm. undir álit breskra réttarfarsfræðinga! „Fyrirmyndareldhúsið“ og mat- urinn. 1 ónefndu blaði hér í bænum hefir nýlega birst löng lofgrein um eldhúsáhöldin á Vífilsstöðum en hvergi minst á matinn, sem úr eldhúsinu hefir komið. 1 á- íramhaldandi umræðum um mál- ið verður óhjákvæmilegt að færa umræðurnar yfir víðara svið. — En að þessu sinni lætur Tíminn í skólum þessum og æði dýr eftir okkar mælikvarða, 3600—6000 kr. á ári fyrir hvern pilt. I Harrow þekti eg áður kennara, nú við mentaskóla í London, sem átti dreng í Harrow-skóla, er var þar í heimavist, þótt ekki væri nema 5 mínútna gangur heim til föður- húsanna. Tilgangur þessara fornu og frægu skóla er að skapa með heimavistinni nokkurskonar yfir- heimili, fullkomnara en foreldra- garðinn sjálfan. Tilhögun í öllum þessum þrem skólum er að mestu hin sama. Skólamir hafa vaxið smátt og smátt, og eiga mikil lönd og fjöl- margar sérstæðar byggingar. 1 Rugby var eggslétt tún, á að giska 10 dagsláttur bak við meg- inbyggingamar. Alt var svæðið innilukt af byggingum og háum steingarði. Fjórir flokkar gátu leikið þar knattleik í einu. Skóla- stjórinn hefir mest húsakynni og hefir umsjón með 70—80 piltum, en annars eru oftast um 40 svein- ar í húsi sér og býr einn af kenn- urum skólans með þeim til að hafa eftirlit með flokknum. Þeir sem búa í sama húsi skoða sig alveg sérstaklega sem skólabræð- ur. Er kepni á milli húsanna í íþróttum og námi. Borðsalur er fyrir hverja heimavist, en kenslu- stofur, kirkja og bókasöfn sam- eiginleg. Mikil er aðsókn að skólum • þessum og þó mest að Eton. — nægja að mælast til þess, að þeir, sem virðast ætla að hefja illdeil- ur um málið, birti næst athugan- ir sínar um það, hvort ánægja og vellíðan sjúklinga á Vífilsstöð- um muni vera að fullu trygð með eldhússáhöldunum, eða hvort maturinn komi þar einnig til greina. Hnífsdalsmálið. Lárus Jóhannesson hæstarétt- arm.fl.m., sem er verjandi eins af hinum ákærðu í málinu, hefir léð Mbl. til birtingar útdrátt úr einu af réttarhöldum í málinu. Þykist blaðið hafa komist þar í krás og telur yfirheyrsluna votta um, hversu mjög bresti á hæfileika rannsóknardómarans til starfsins, af því að spumingar dómarans falla á víð og dreif um efni, óvið- komandi málinu sjálfu og sér- staklega um einkamál vitnisins. — Afsakanlegt er það, þótt rit- stjórar Mbl., sem eru viðbrigða sljóskygnir á alt, sem þeir fara höndum um, flaski í þessu efni. Hins mætti fremur vænta, að Lár- us Jóhannesson, sem telst vera lögfræðingur, sæi, að yfirheyrslan ber einmitt vott um rannsóknar- hæfileika dómarans. — Lítum á málavöxtu: Vitnið, sem í hlut á, byrjar á því að játa, að það hafi áður sagt ósatt fyrir réttinum vegna hræðslu! Aðferð dómarans, bygð á sálfræðislegri athugun, til þess að gera vitnið rólegt og útrýma hræðslu þess, hlaut því að verða sú, að hefja góðlátlegt rabb við vitnið, um þau efni er næst lágu vitninu og það gat talað um af eigin reynd og fullri þeklsingu. Ætlunarverk rannsókn- ai'dómara, sem vel kann til starfs síns verður ekki einungis það, að knýja fram vitnisburð, heldur og að tryggja eftir föngum, skilyrði fyrir því, að vitnisburður verði áreiðanlegur. — Og það gerði Halldór Kr. Júlíusson í þessu sér- staka falli. Þetta vita ekki hinir fáfróðu og þröngsýnu menn við Mbl. En þeir, sem að baki standa og teljast lögfróðir, hefðu átt að bera vit fyrir blaðinu og varna því, að það yrði sér enn einu- sinni til minkunar fyrir heimsku ritstjóranna. „Tiúarhetjan“ á ósi. Maður nokkui', sem hefir getíð sér sérstakt orð fyrir trúhræsni, Eggert Levy bóndi á ósi, sendir ritstjóra Tímans kalda kveðju í Liggja þar fyrir umsóknir svo að nálega er fullskipað í inntöku- bekki fram til ársins 1941, eftir því sem einn af starfs- mönnunum tjáði mér. Þola Englendingai- betur en sumir Reykvíkigar „takmarkanir“ í skóla, eftir því sem stærð og hús- rúm segir til. Falla menn unn- vörpum við inntökupróf í skóla þessa, og duga ekki gamlar um- sóknir, nema hæfileikar fylgi. Ivirkjur era sérstakar fyrir hvern slíkan skóla, og er mikið til þeirra vandað um fegurð og smekk. Enskar kirkjur líkjast að smekk og skrauti kaþólskum kirkjum. Mikil og hljómfögur orgel eru í hverri kirkju, glugg- amir með foraum málverkum brendum í glerið. Og veggir og borð úr eik. Nemendur eru vakt- ir bráðsnemma, um kl. 7, og ganga þá í kirkju til söngs og bænahalds. Hafa kennarar auga á að ekki sé sofið eða bænir van- ræktar. Síðan byrja kenslustund- ir, og standa til kl. 2—3 með hæfilegum hvíldum. Síðari hluta dags lesa piltar í heimavistum sínum eða í bókasafni skólans, en að jafnaði gengur þó eigi lítill tími til íþrótta. Era það einkum allskonar knattleikir, simd og róð- ur. 1 Rugby er upprannin sú teg- und knattspymu sem mest er þekt og stunduð um allan heim. Er þar enn sýndur eins og helgi- staður blettur sá í skólagarðin- Verði 22. des. síðastl. Levy þessi vakti á sér eftirtekt síðastl. ár, er hann tók sig upp frá búi sínu í þeim nauðsynjaerindum suður í Reykjavík, að predika mönnum þröngsýni og hræsni í trúarefn- um! Sjálfur er hann, eins og grein hans vottar, aílra manna haturs- fylstur og fjarst staddur því, að þekkja og skilja kristilegt hugar- far. Verður trúhræsnin annars- vegar og illvilji hans og ofstæki hinsvegar varanlegt tákn þeirrar háðungar, sem hann hefir getið sér. — Grein Levys er reyndar að mestu tilraun að berja í bresti framkomu sinnar á póli- tískum fundum í Húnavatnssýslu síðastl. sumar og rétta hlut sinn eftir hrakfariraar þar. Munu slík mál þegar útkljáð í héraði og lætur því Tíminn þeim ósvarað. Enda telur blaðið rétt, til verk- og rúmsparnaðar, að veita slíkum mönnum sem Levy skjóta af- greiðslu. — Er og fljótsvarað því, sem snertir ritstjóra Tímans í ádeilu hans. Hann kvartar sár- lega fyrir hönd íhaldsbænda 1 samvinnufélögunum, sem hann telur til knúða að taka á sig þungar byrðar vegna Tímans, en verði síðan að sitja fyrir aðkasti hans. Hann segir: „Finst yður sæmilegt, að ausa auri og ósannindum yfir þá menn, sem neita sér margir hverjir um flest lífs- þægindi — sem svita (sic) og strita — til þess að leggja fram svo mikið fé í Tímann, sem þarf til þess að þér getið lifað í „vellystingum praktuglega" og í góðu næði svívirt okkur, sem höfum aðrar stjómmála- skoðanir — — —“. Athugum nú málavexti: Sam- bandið hefir á síðustu ái-um greitt Tímanum um 6000 kr. ár- lega fyrir birtingu greina um samvinnumál. I öllum kaupfélög- unum, sem mynda Sambandið, eru á áttunda þúsund félags- menn. 1 fyrsta lagi er þess að gæta, að greiðsla Sambandsins er tekin af allsherjarrekstursfé þess og leggja félögin né kaupfélags- menn ekki fram í beinum fram- lögum svo mikið sem einn eyri. Eigi að síður má telja, að féð sé greitt af sameiginlegri eign allra félagsmanna í Sambandinu. Og hvað kemur þá á hvem? Um kr. 0.75 — Segi og skrifa sjö- tíu og fimmaurará hvern félagsmann árlega! Nú segir Egg- ert Levy, að Ihaldsbændur í sam- vinnufélögunum „sviti og striti“! og neiti sór um flest lífsþægindi, um, þar sem uppgötvun þessi var gerð endur fyiir löngu. Knattspyrnan er langalgengust skólaíþrótt í Englandi, og eru veðui' þar svo mild, að auðvelt er að stunda þann leik allan vetur- inn. En þegar vorar byrja nem- endur að þreyta kappróðra og sund. Eton stendur á bökkum hins sama fljóts, sem er kolmó- rautt og gruggugt af kolasóti í London. En 20 mílum ofar, þar sem konungshöllin foraa, Wind- sor, gnæfir yfir leikvelli Eton- skóla, er áin nálega tær eins og bergvatn. Miklir vellir, varla minna en 100 dagsláttur tilheyra Eton, enda þarf mikið útrými fyrir liðuga 1000 fjörmikla í- þróttamenn. Bátahúsið var úr bárujárni, sem annars er sjaldan notað í Englandi, niður við ána. Og víða voru þar sundstæði, sem biðu vordaganna. Kenslustofumar í skólum þess- um eru tvennskonar. Sumar nýj- ar og með öllum þægindum og tilbreytni nútímans, en aðrar eld- gamlar, og fullar af sögulegum minningum. I Eton eru skólaborð og bekkir úr siglutrjám spán- verskra herskipa úr „flotanum ó- sigrandi“. Elisabet drotning bjó oft í Windsoi', og skólapiltarnir ortu tíðum lofkvæði á latínu um hinn lærða og tigna nábúa. Drotn- ing kunni vel að meta aðdáun ungra manna, og þá ekki síður hitt, að gera leiðtogum þjóðar- v.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.