Tíminn - 06.07.1929, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.07.1929, Blaðsíða 1
©)a£bícri afeMÍÖ&inmaðnr (<man$ er Hjjnnectg þ o r s t c t n s 6Ó tli r, SÖftihanCeljrösirai. SgföcaM. Stf^tef&sía Simans er i SorrtbantiSÍjúSUie, (Dpín daglíga 9—(2 f. 4. Shirt <06. XIE ftr. Reykjavík, 6. júlí 1929. 45. blað. Landsmálafundir í Borgarfirði og á Snæfelisnesi Fundir þeir, er auglýstir höföu verið á Vesturlandi að tilhlutun Framsóknarflokksins, hófust á Akranesi 20.júní. Af hálfu flokks- ins mættu á þessum fundum Hannes Jónsson dýralæknir og Jónas Þorbergsson ritstjóri; af hálfu íhaldsflokksins Sig. Eggerz alþm. og Pétur Ottesen alþm. Á Akranesi mætti og af hálfu Jafn- aðarmanna Sigurjón ólafsson alþm. Aikranesfundurinn hófst um kl. 7 síðdegis og var vel sóttur. Fundarstjóri var séra Þorsteinn Briem. Voru þau fundarsköp sett, að allir flokkar hefðu jafna að- stöðu og var ræðutími takmark- aður eftir samkomulagi. Jónas Þorbergsson hóf umræð- ur á öllum fundunum með yfir- litsræðu um uphaf, eðli og stefnu núverandi stjómmálaflokka í landinu. Benti hann á, að þar sem frelsisbarátta einstaklinga og þjóða hefði einkent öldina, sem leið, virtist það mundu verða ætl- unarverk 20. aldarinnar, að leysa æfagömul þrætumál um skiftingu þeirra verðmæta, sem dregín væru úr skauti náttúrunnar með sam- starfi þeirra aðila, sem þar eiga sameiginlegt verkefni. — Með bráðabirgðaúrslitum á ríkisréttar- deilu okkar við Dani árið 1918 féll sú deila niður um skeið. En áður en þau úrslit fengust, var hafin stórfeld atvinnubylting í landinu, með þeim atburðum, að Islendingar taka upp stórvirk verktæki við sjóinn, taka að sækja á djúpmiðin og draga feiknarmik- inn arð úr gullkistum hafsins um- hverfis strendur landsins. — Bæir og þorp rísa upp á ströndum landsins méð fátíðum skjótleik, fullur helmingur þjóðarinnar tek- ur sér bólfestu við sjóinn. Og með atvinnubyltingunni skapast nýr grundvöllur undir flokkaskipun í landinu. — Verkalýðurinn, sem áður hafði verið dreifður um bygðir landsins, átt meiri og minni rótfestu í heimilunum, ver- ið einskonar hluthafar í búrekstr- inum og oft hluti af fjölskyld- unni, verður nú með öllu sviftur sllkri aðstöðu og gerist daglauna- lýður í sjávarþorpunum. Með þessum stórbreytingum skapast grundvöllur undir nýja flokka- skipun. Verkamenn skipa sér, að hætti verkalýðs annara þjóða, saman í flokk til vamai’ og til fremdar hagsmunum sínum, til hækkunar kaupgjaldsins og til þess að beita áhrifavaldi sínu á atvinnuskipulagið og stjómmál landsins og til þess að fá orkað þeim breytingum í löggjöf, er þeir telja best henta verkalýðsstétt- inni. — Til andstöðu þessum skipa sér til varnar fjáraflamenn kaupstaðanna, stónitgerðarmeim og kaupsýslumenn landsins. Fylgir þeim og að málum þorrinn af embættismannastétt landsins. Em hér taldar þrjár meginstoðir, sem renna undir Ihaldsflokkinn, bera uppi blöð hans og halda fram málstaðnum í ræðu og riti, enda allir forvígismenn flokksins úr liði þessara stétta. Og fylgja þeim síðan að málum margir áhangend- ur peningavaldsins og þeir bænd- ur, sem ekki hafa enn vaknað til skilnings á því, að landi þeirra, eigi síst sveitunum, muni vera á öðru meiri þörf, en að styðja svo einsýna hagsmuna- og aðstöðu- verndun fésýslumaima ' landsins, sem hafa þá einkastefnu að halda fast í aðstöðu sína til fullra um- ráða yfir veltufé bankanna og at- vinnutækjunum við sjóinn. Þannig hefir hin mikla atvinnu- bylting skapað þessa tvo nýju flokka í kaupstöðum landsins. Má og telja hana frumorsök til mynd- unar þriðja flokksins, Fram- sóknaiflokksins. Fyrstu tildrög hans em samtök bænda árið 1916 og á næstu ár- um er flokkurinn stofnaður og blöð hans tvö. Árið 1919 heldur hann landsfund á Þingvöllum og markar að fullu stefnuskrá sína. Stofnandi og foringi flokksins frá öndverðu er Jónas Jónsson frá Hriflu. Lið hans er einkum sam- vinnubændur úr sveitum landsins, en flokknum fylgja að málum ýmsár frjálslyndir og hófsamir umbótamenn. — Ríkisréttardeila okkar við Dani hafði einbeitt orku þjóðarinnar út á við um áratugi með þeim af- leiðingum, að fjöldi verkefna lágu óleyst og vanhirt innanlands. Hvergi var þó sú vanrælksla jafn- augljós og háskaJeg sem á sviði landbúnaðarins og sveitanna. Ný- myndunin við sjóinn, uppgripin þar og hin mikla sókn á miðin, hafði af eðlilegum ástæðum, dreg- ið til sín æskulýð sveitanna, jafn- hraðan og hann óx til þroska og öðlaðist þrá, til þess að eignast eigin heimlli, vegna þess að í sveitunum voru nýir bjargræðis- vegir lokaðir og heimilafjölgun óhugsanleg. Þannig tæmdist hin lifandi orka sveitanna til sjávar; eftir verða einyrkjar víðast hvar: hjón, sem leitast við að halda velli á fornum stöðvum, með bömum sínum ungum og gamalmennum. Heimilin ganga saman og bygðin tekur að falla í afskektustu lands- hlutum. Má svo að orði kveða, að sveitunum væri víða að blæða til ólífis. Framsóknarflokkurinn er risinn upp á morgni nýrrar þjóðmálaald- ar á Islandi, þegar hugir manna taka að snúast að innanlandsverk- efnum. Brýnustu verkefnin, sem fyrir lágu, voru þau, að orka hugarfarsbreytingu þjóðarinnar, að hún taki að beina orku sinni að nokkru til varnar algerðu hruni sveitanna og þeim til við- reisnar. Forvígismönnum hreyf- ingarinnar blæddi í augu sú ein- hæfa, forsjárlausa sókn til rán- yrkjunnar við sjóinn, þar sem til þess stefndi að þjóðin, sem hafði um allan aldur sinn verið bænda- þjóð, vaxin upp frá vöggunni við gróðurlíf og dýralíf og náttúru- fegurð íslenskra sveita, ætti á fá- um áratugum að slitna upp af fomri rót og taka upp algerlega ný vinnubrögð og nýja siði við rányrkju hafsins og iðnað í borg- um landsins. Forvígismönnum flokksins er það ljóst að ekki er einhlítt til þroskunar og ham- ingju þjóðarinnar, að upp vaxi blómlegir bæir og öflugir atvinnu- vegir við sjóinn, heldur þarf til jafnvægis í lífi þjóðarinnar, að nema sveitir landsins að nýju, reisa þar varanleg húsakynni, ný- bygð og veita sveitunum aðstöðu, til þess að njóta þeirra menning- artækja og menningaYlífs, sem vaxandi framfarir hafa að bjóða. Með stefnuakrá sinni tók flokk- urinn sér fyrir hendur að leysa þessi meginverkefni: 1. Að efla samvinnufélög lands- ins, sem höfðu, bókstaflega talað, reist bændur af knjám frá búðárborði selstöðukaupmannanna dönsku, orkað verðlækkun á er- lendum vörum, sem nam um 25—30%, komið til leiðar stór- bættri vöruvöndun og álitsauka á búsafurðum bænda og fylkt bænd- um saman til sjálfsvamar og skipulegra vinnubragða í félags- skap. 2. Að efla Búnaðarfjelag Js- lands. 8. Að leysa lánsfjárþörf land- búnaðarins á þann hátt, er sam- rýmdist þörf hans og eðli at- vinnuvegarins, þ. e. með vaxta- vægum, löngum lánum (veðbanka- lögin, búnaðarlánadeildin, er áður var breytt í ræktunarsjóðinn, byggingar- og landnámssjóður og loks búnaðarbankinn). 4. Efling landbúnaðarins með hverjum öðram hætti er verða mætti (áburðarmálið, verkfæra- sjóðurinn, búfjártryggingar, vís- indaleg rannsóknarstofnun, bú- fjái’ræktarfélög o. fl.). 5. Stórbættar og auknar sam- göngur á sjó og landi og má þar til nefna, að flokkurinn tók á stefnuskrá sína, að koma til leið- ar nýju póstgangnakerfi með ör- um samgöngum á allar hafnir landsins og stórflutningum upp frá höfnum. Falla síðan bílpóst- flutningar milli héraða og lands- fjórðunga inn í þetta kerfi. Verð- ur og eigi þörf ýmsra landbún- aðarhéraða til skjótra flutninga á markað í bæjum landsins og til útlanda leyst með öðrum hætti, en að hafa í förum hæfilega stórt skip með nokkru kælirúmi. 6. Héraðsskólar, þar sem æsku- lýð sveitanna veitist aðstaða til hagnýts náms, samvista, félags- lífs, íþrótta (þar á meðal sund- laugar) og verkbragða. Er stefn- an sú að leitast við að reisa hér- aðsskólana á grundvelli fornar heimilismenningar með aðstöðu til þess að tileinka sér hverskon- ar menningartæki og umbætur, sem lífið hefir að bjóða. Tryggvi Þórhallsson hefir verið aðalgrjótpáll flokksins í landbún- aðarmálefnum, en Jónas Jónsson á öðrum sviðum. Síðan flokkurinn komst til valda og þjóðin fékk þessum mönnum stjóm landsins í hendur, hefir orðið geysimikið ágengt um að koma á rekspöl um- bótamálum landbúnaðarins, hér- aðsskólunum og tilhreinsun í opin- berri starfrækslu í landinu. Má vænta þess, ef flokkurinn heldur völdum næsta kjörtímabil, að hann fái til leiðarkomið landbún- aðarbyltingu, sem verður á sinn hátt jafnstórvægileg og jafn- mikilsverð fyrir framfarir lands- ins. Má vænta þess, ef flokkur- inn heldur völdum næsta kjör- tímabil, að hann fái til leiðar komið landbúnaðarbyltingu, sem verður á sinn hátt jafnstórvægi- leg og jafnmikilsverð fyrir fram- farir landsins, eins og sjávar- útvegsbyltingin var á .sínum tíma; stórkostlegum umbótum í skóla- málum landsins, kirkjuskipun, opinberri starfrækslu og almennri siðmenningy. — Framsóknarflokkurinn er eink- um skipaður samvinnubændum úr sveitum landsins. Þeii’ hafa um skeið verið einyrkjar flestir og því hvorttveggja sínir eigin vinnu- veitendur og eigin verkamenn. Þeir eru því mitt á milli öfga- flokkanna í landinu sem tog- ast á, sinn til hvorrar handar Ihaldsflokksins og Jafnaðar- mannaflokksins. Milli þeirra er engin brú hugsanleg og bilið milli þeirra verður oft geigvænlegt, þegar atvinnudeilur rísa og verk- bönn eða verkföll banna heilbrigt starfslíf í landinu. Vegna afstöðu sinnar og lífs- skoðana hafa samvinnumenn, sem skipa Framsóknarflokkinn, að- stöðu, til þess að skilja að nokkru báðar þessar öfgar. Þeir telja það vera hlutverk sitt, að gerast öfl- ugur miðflokkur, sem eigi að sverfa broddana, af öfgunum til beggja handa, brúa bilið, draga til sátta, stýra hjá óhöppum og leysa þrætumál atvinnuveganna hóf- samlega og með samvinnu. Sam- vinnumenn vilja styðja að því, að sem flestir borgarar í landinu gerist sjálfstæðir atvinnurekend- ur, sem skipi sér í fólagsfylking- ar, til aukinnar velsældar og menningar alþýðu manna. — Þeir afneita ekki einstaklingsframtak- inu, vegna þess að það er órjúf- andi lögmál í manneðlinu, en þeir vilja að hver beri úr býtum sinn rétta skerf og spoma þess vegna gegn yfirtroðslum fépúka, sem öðlast vald yfh’ atvinnutækjum og veltufé þjóðannna og skamta alþýðu manna lífskjörin úr hnefa. I stuttu máli er stefnumunur stjórnmálaflokkanna skýrgreindur á þann hátt er nú skal greina. Jafnaðarmenn heimta ríkis- framtak og þjóðnýtingu á stór- atvinnurekstrinum við sjóinn (togaraflotinn). Ihaldsmenn eða samkepnismenn halda fram einstaklingsframtaki og ótakmarkaðri samkepni, Framsóknarmenn eða sam- vinnumenn halda og fram einstak- lingsframtaki, en ótakmarkaðri s a m v i n n u, þar sem hverjum er trygð sín rétta hlutdeild eftir atorku, hæfileikum og framtaki, en spornað gegn yfirtroðslum ótakmai’kaðrar samkepni, þar sem fjármunir, erfðir, ættarhefð, fjár- gróðahyggindi, eða annarskonar yfirburðir af líku tæi skapa að- stöðu til fjárafla* og yfirdrotn- unar alþýðu manna. — Eru nú raktir höfuðdrættir úr ræðu frummælanda nokkru fyllri en unt var að gera í hálftíma- ræðu. Hannes Jónsson dvaldi í sinni frumræðu einkum við það, hversu yrði til leiðar komið því megin- stefnumáli flokksins, að skapa sem flesta sjálfstæða atvinnurek- endur í landinu og benti á, að slíku yrði ekki til leiðar komið 6 annan hátt, en með hæfilegri dreifingu veltufjái-ins, sem hefir hingað til verið nálega einbeitt til stóratvinnurekstrar við sjóinn í útgerð, óg í verslun. Benti hann ljóslega á og með margháttuðum rökum, hversu stórvægilegt höfuð- skref væri stigið í þessa ótt með stofnun búnaðarbankans og þeim mörgu deildum, sem þar starfa. Mun Hannes Jónsson sjálfur gera grein fyrir máli sínu hér í blað- inu og verður því þetta látið nægja að sinni. Pétur Ottesen eyddi nálega öll- um tíma sínum í það að verja ímyndaðan heiður Ihaldsflokksins í landbúnaðarmálefnunum og skreyta sig og sinn flokk með fjöðrum Framsóknar. Gekk hann mjög á snið við upphaf og aðal- baráttu í þeim málum, en dvaldi við ú r s 1 i t i n og gat þar með réttu eignað íhaldsmönnum nokkra þátttöku. Var honum Ijóslega bent á, að andstaða Ihaldsins gegn viðreisnarmálum landbúnaðarins hefði jafnan verið illvíg og látlaus uns málin hefðu verið svo rík í huga fólksins, að mótstaða hefði beinlínis verið hættuleg kjörfylgi sveitaþing- manna og að samviskustunga þeirra, fyrir kosningar, hafði haft heilsusamleg áhrif á afstöðu þeirra til málanna. Var honum jafnframt bent á þau höfuðrök, að allir forvígismenn íhaldsflokks- ins væru úr hópi stórútgerðar- mamia og embættismanna, sem hefðu alt önnur áhugamál og öim- ur mikilsverð mál með höndum. Þá var honum og bent á, að allir þingmenn Framsóknar væru full- trúar sveitakjördæma og að flokk- urinn ætti hvergi verulegu fylgi að fagna í kaupstöðum landsins nema á Akureyri, þar sem eitt öflugasta samvinnufélag landsins hefði mótað hugsunarhátt manna. — Þó var hann beðinn að skýra það fyrirbæri, hversvegna aldrei hefði sést í blöðum íhaldsmanna frumkvæði eða stuðningur til handa neinu hagnýtu málefni lándbúnaðarins, heldur aðeins lát- laus tortrygni og rógur um þá Jónas Jónsson og Tryggva Þór- hallsson, þrotlaus niðurrifspólitík, ef áhugi flokksins fyrir landbún- aðarmálefnum hefði verið slíkur, sem hann vildi láta mönnum skilj- ast. Vai- á hann skorað, að benda á eitt einasta málefni, sem hefði átt upptök sín í umræðum þess- ara blaða, án þess að hann sýndi minstu viðleitni, að verða við þeím tilmælum. Loks var hann spurður hversu landbúnaðaráhugi Ihalds- manna yi’ði samrímdur þeirri staðreynd, að eigi færri en tíu af mikilsverðustu landbúnaðarmál- efnum flokksins hefðu náð fram að ganga fyrst e f t i r að núver- andi stjórn og flokkar hennar hefðu komist til valda. Gat hann ekki mælt á móti því, að sum þau málefni hefðu ekist undan fyrri þingum og átt við mótstöðu íhaldsmanna að etja, en önnur væru upp tekin af núverandi at- vinnumálaráðherra, Tryggva Þór- hallssyni, eftir að hann tók við völdum. — En mál þau, sem hér um ræðir, eru þau, er nú skal greina: 1. Landnámssjóður. 2. Áburðarmálið. 8. Verkfærakaupasjóður. 4. Búnaðarbankinn. 5. Búfjártryggingar. 6. Vísindaleg rannsóknarstofn- un fyrir atvinnuvegina (búfjár- sjúkdómar). 7. Nautgriparæktarfélög.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.