Tíminn - 12.10.1929, Side 2

Tíminn - 12.10.1929, Side 2
216 TlMINN Nokkrar lögregluþjónsstöður eru lausar frá næstu áramótum hér í Reykjavík. Umsóknir sendist lögreglustjóranum í Reykjavík fyrir 1. nóvember næstkomandi og skulu fylgja þessar upplýsingar: 1. Vottorð héraðslæknis um heilsu umsækjanda. 2. Mynd af umsækjanda. 3. Vottorð um aldur hans og hæð. 4. Hvar umsækjandi hefir unnið síðustu 5 árin og við hvaða vinnu. 5. Hverrar mentunar umsækjandinn hefir notið og hvar. 6. Nöfn og heimilisfang tveggja manna eða fleiri, sem geta gef- ið upplýsingar um umsækjanda. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 10. október 1929. Hermann Jónasson tökum og má mikið læra af framburði hans og hljóðskipun. Nauðsyn væri að íslendingum skyldist það sem fyrst að söng- listarnám er mjög erfitt og út- heimtir þrotlausa vinnu og bjargfastan vilja. Ánægjulegt er það hverjum, sem sönglist ann, að hlýða á söngmenn, sem eru starfi sínu vaxnir og hafa til hlítar skilið hlutverk sín og starf- að með elju og atorku. Meðferð hr. Skagfield t. d. á óperu arium, er sannarlega ekki neitt hversdagsleg. Þó leitað sé í fjölmennum hópi erlendra ó- perusöngvara, þá munu flestir komast að raun um, að ekki séu mjög margir þar, sem leika sér efns léttilega í gegnum ramm þungar óperuariur, sem Skag- field. Söngmaðurinn er einnig þeim hæfileikum gæddur að snerta hjörtun með söng sínum og efla þannig hið fagra, göfuga og heilbrigða í tilfinningalífi ein- staklingsins. Það er engin til- viljun sem ræður laga- og efnis- vali hjá Skagíield. Lögunum er sýnilega skipað niður eftir íhug- un og athugun með því að tón- svið þeirra og eðli sé í fullu sam- ræmi við það efni sem röddin hefir yfir að ráða, á því tón- sviði sem hún nýtur sín best á. Má segja að hjá hr. Skagfield haldist í hendur fögur rödd, eðlileg framkoma og framsetning og mikil kunnátta í tónflutningi. Hr. Skagfield er ótvírætt sá yfir- burða söngmaður sem vér megum vænta mikils af í framtíðinni. En þjóðin öll þyrfti helst af öllu að skilja það strax og styðja hann eða örfa til starfa með almennri samúð og alúð. Hr. Skagfield virðist skilja svo vel sitt hlutverk, að hann þyldi vel það eftirlæti. Skilningur almenn- ings á því áhugamáli, sem ein- staklingurinn stefnir að, ber hann oft til sigurhæða. Söng- brautin er erfið, hjallamir háir og margir, en vér þolum ekki að missa vora efnilegustu söng- menn fram af snösinni fyrir þá sök, að að þeim sé vegið eða þeim ekki sint, er þeim er gang- an sem örðugust og þeir hafa sem mest að vinna. Vér þolum ekki lengur kalt fálæti og aftur- haldssemi á sviði sönglistárinnar fremur en annarsstaðar. Vér þuríum að róa að því öllum ár- um að þeir sem eru sjálfkjörnir málsvarar söngsins, sigli heilum knerri til hins þráða lands, .þar sem þeir geta neytt starfskrafta sinna og kunnáttu og nært og yljað söngþyrstar sálir þúsunda og aftur þúsunda þeirra, sem þekkja engan fegurri né betri ljós- og gleðigjafa í þessum heimi en fagran söng. Cantante. ---o--- Á víðavangi. Thors-„logik“. Greinagóður stúdent, sem var viðstaddur á mótmælafundar- nefnu stúdenta, lét svo um mælt við ritstj. Tímans, að fundurinn hefði verið aumlegasta samkoma, sem stúdentar hefðu nokkru sinni átt hlut að og raunalega háðu- legur vegna þeirra sjálfra. Hið eina sem áorkaðist var það, að Thor Thors gerði sig beran að því að vera jafnheimskulega æs- ingagjam og grunnfær eins og l Óiafur bróðir hans, Ámi Pálsson að klaufalegri frekju og dr. Alex- ander að frámunaniegri heimsku og ósmekkvísi í fundarstjórn. Þátttaka í atkvæðagreiðslu var sáralítil; um 30 (af fullu húsi!) með mótmælatillögunni og um 20 á móti. Sem sýnishom af hugs- anaskerpu og rökvísi Thor Thors má benda á þessi ummæli: „Ranglætið gagnvart kennurunum verður því augljósara þegar það er athugað, að það var fyrir fram ákveðið, að Pálnii Hannesson hlyti embættið, áður en nokkuð var nm það vitað, hverjir sæktu gegn hon- um. pað er óræk sönnun þess, að þeir voru fyrirfram hundsaðir". Svona „logik“ gæti verið dálítil skýring á því, að fundurinn mis- hepnaðist fyrir íhaldsmönnum og að fundarmenn sáu ekki ástæðu, til þess að virða frummælanda svars. Eða hversu skyldi vera unt að taka tillit til ákveðinna einstakiinga áður vitað er, hverjir mmii gefa sig fram! Slík hunda-„logik“ vottar vissu- iega um meiri grunníæmi en ætla mætti að samrýmdist forustu- mensku „akademiskra“ borgara í iandinu. Ætti slíkt foringjaval studenta að gera mönnum ljóst að eitthvað hafi brostið á æski- iegt uppeldi mentamanna að und- anförnu. — Mbl. 10. þ. m. ber sig hörmulega út af hrakförum sínum og sinna manna í þessu máli. Er hreint kjökurhljóð i blaðinu yfir hinum aumlega funai. Skal blaðinu síst láð, að það kveinkar sér. En >á ætti Mbl. að læra af reyhslunni og halda sér hlutlaust 1 öllum málum, þar sem vitsmunum þarf að beita, því að reynslan sýnir að bestur kostur blaðsins er að flýja af hólmi í hverri viðureign. Mbl. og landhelgisgæslan. Mbl. segir nýlega að land- helgisgæslan sé slæm, þótt 4 séu gæsluskipin. Séu skipin sífelt að flytja ferðamenn fyrir stjómina. Að sögn kunnugra er strokumað- ur íhaldsins Jóh. Jóh. um það bil eini maður, sem stjómin hefir trjrgt far með varðskipinu síð- ustu mánuðina, svo að ósannar eru þessar dylgjur Mbl. — Kými- legt var fyrir „moðhausixm“ að í sama blaði og hann bar skip- stjórum varðskipanna ódugnað á brýn varð blaðið að geta þess, að Ægir kom með tvo seka togara til Reykjavíkur. Hefir einmitt það skip, sem núverandi stjóm lét smíða, og valdi menn á, sí- felt verið að taka brotlega tog- ara, og bjarga mönnum úr sjáv- arháska. Síðustu viku lítur út fyrir að moðhausaliðið ætli að tryggja sér varanlega ósæmd í landhelgismálunum, með því að bæta nýjum álygum a skipstjór- ana í ofanálag á skröksögur ól. Thors. n. „Saga heimferðarmálsins“ nefnist rit, er Hjálmar A. Berg- mann lögfræðingur í Winnipeg hefir samið og gefið út. Hefir Tímanum borist rit þetta, enda mun það vera sent í stórskömt- um út um alt land. Fyrirsögn ritsins segir til um efni þess og er þar rakin raunasaga þess hörmulega ósamlyndis og" stór- rifrildis, sem geysað hefir með- al landa okkar vestanhafs á ann- að ár út af heimferðarmálinu. Hjálmar Bergmann hefir verið einn höfuðdeiluaðili og er því ekki að vænta þess, að hann, í riti þessu, greini óhlutdrægt frá málsefnum öllum, meðan hiti bar- dagans er sem mestur. — Tím- anum hefir jafnan virst að þess- ar deilur hefðu minna tilefni en svo, að landar vestra mættu við því að setja varanlegan blett á glæsilega landnámssögu sína með slíkum stórdeilum út af svo sár- viðkvæmu máli, sem heimsókn til ættlandsins 1930. Fjárbeiðni virtist í öndverðu styðjast við litlar ástæður, því Islendingar vestra eru margir nokkuð fjáðir, örir á fé og rausnarsamlegir í tiltektum er rík tilefni gefast. Hinsvegar munu fáir íslendingar hér heima verða auðtrúa á það, að mikill sé munur þjóðrækni landa okkar vestra, ef verulega reyndi á og munum við bera mik- ið og gott traust til þeirra í því efni yfirleitt. Munu Islendingar heima verða tregir til að taka afstöðu í þessu ófrægilega deilu- máli vestra. Hinsvegar mun flestum vera . sú ein kend í ‘brjósti, að vilja geta af alhug og sem hjartanlegast fagnað heim- sókn landa okkar og harma það, að Islendingar vestra hafa látið svo merka hátíð í lífi sínu kafna að hálfu leyti fyrirfram í slíkum illindum sín á milli. — Vill blað- ið Tíminn frábiðja sér allan á- róður landa vestra um að leggja dóm á þetta einkamál þeirra og vottar, fyrir sitt leyti, Hjálm- ari Bergmann fulla óþökk fyrir sendinguna. Moðhausinn svívirðir Jón Magnússon í gröfinni. Þau fádæmi hafa gerst hér í bænum, að hinn aumasti meðal hinna aumu, moðhaus Mbl., leyf- ir sér að óvirða Jón Magnússon fyrir það, sem Mbl. vill telja lög- fræðisafglöp. Jón Magnússon fyr- irskipaði svo, að í dómsmálaráðu- neytinu skyldu fulltrúarnir und- irrita allan þorra mála, sem skrif- stofustjórar gera hér í öðrum stjórnardeildum. Moðhausinn gerist því svo djarfur, að freista borgaranna til að gera samanburð á lagaviti Jóns Magnússonar og hans sjálfs. A. Eyðimerkurstrá Sig. Eggerz. Þegar frá er talinv sæmileg þátttaka Sig. Eggerz í sjálf- stæðismálefni landsins á stjórnar- farsbaráttuárunum, getur hvergi slíka auðn umhverfis nokkurn stjórnmálamann eins og hann. Þrisvar hefir Sig. Eggerz verið ráðherra, tvisvar farið með æðstu ráð í stjórn landsins, haft öflug- an flokk að baki sér og ekki skort hvatningar. En þrátt fyrir þessa glæsilegu aðstöðu liggur ekkert, — ekki skapaður hlutur eftir þennan mann í innanlands- málefnum þjóðarinnar. Hann hangir í valdasessi hvað eftir annað, hugkvæmarlaus, eins og dauðyfli og hugsar um það eitt að skorða sig í sessi og þegar það tekst ekki lengur, þá að veita sér sjálfur mjög feita stöðu við danska peningastofnun hér á landi. — Af þessum frá- munanlega skorti á manndómi, einlægni og nýtilegri þjóðmála- viðleitni, drap Sig. Eggerz smám saman af sér allan flokk sinn, braut af sér fylgi og álit lands- manna og endar með því að svíkja leifarnar af liði sínu og skríða ofan í vasa Jóns Þorláks- sonar í von um vemd og fríð- indi. Að baki Sig. Eggerz er hin ömurlegasta eyðimörk, þar sem ekki stendur neitt leiðar- merki, engar minjar nýtilegar athafnar í ótölulegum nauðsynja- málum þjóðarinnar. — I eyði- mörkinni er aðeins eitt vesælt ýlustrá, sem vælir ömurlega yfir hörmulegum örlögum Sig. Egg- erz. Þetta eyðimerkurstrá Sig. Eggerz er lögfræðingstitja ein, er virðist reyndar vera hlað- in eðlilegum sektarþunga fyrir að verða að leggja sig niður við jafn- lélega atvinnu eins og þá, að lesa, og pára niður á hálfgerðu hrogna- máli fomfálegar hugsanir Sig. Æskan í landinu íhaldið og Framsóknin. Frh. ---------- I síðasta blaði var sýnt fram á hvílíkur styr hafði staðið um undanfarin ár út af umbótum á 8 skólum víðsvegar um land. I öllum tilfellum hafði Mbl. og fylgilið þess gert alt sem það gat til að hindra, tefja eða eyði- leggja þessar umbætur. I öllum tilfellum hafði stefna Framsókn- ar sigrað svo gersamlega að Ihaldið, og blöð þess hafa skömm eina og skaða af framkomu sinni. I hverju einstöku af þeim tilfell- um hafa íhaldsmenn nú orðið gefið upp alla vöm og óska einsk- is fremur en að framferði þeirra verði grafið og gleymt í varan- legri þögn. Þessi átta dæmi eiga að sýna öllum landsmönnum, að það er mjög mikill munur á framsýni og góðvild tveggja stærstu stjómmálaflokkanna til æskunn- ar í landinu. Það getur ekki ver- ið sómasamlegur flokkur, sem á þá sögu að baki sér, og það aðeins sögu nokkurra missira, sem rakin var í síðasta blaði. Fjandskapur Ihaldsins gegn skól- anum á Hallormsstað, Eiðum, Laugum, Akureyri, Hólum, Staðarfelli, Reykholti og Laugar- vatni hefir verið íhaldsmönnum sannfæringarmál. Framkoma þeirra í öllum þessum málum hefir sprottið af lífsstefnu þeirra. Tveir verkfræðingar í liði íhalds- ins létu svo um mælt fyrir nokkrum árum, að ekki sakaði þótt barnaskólinn í höfuðstaðn- um væri lélegur. Almenningur þyrfti hvort sem er ekki að verða nema læs og skrifandi. Hugsjón slíkra manna er að all- ur þorri þegnanna megi og eigi að vera skynsemdarlítil vinnudýr, sem strita undir forustu verk- fróðra fjárbrallsmanna, er leiða til fámennrar fjárdráttarstéttar arðinn af striti alþjóðar. Stefna framfaramanna í öllum löndum er alveg gagnstæð þess- ari svarttrú Mbl.-manna. Þeir álíta hina mestu nauðsyn að menta hvern einstakling í þjóðfé- laginu sem best, til að gera hvern borgara sem styrkastan og þjóðlífið sem fegurst og heil- brigðast. Á Islandi er þess alveg sérstök þörf, vegna þess hve þjóðin er lítil og þar af leiðandi veik. Frá sjónarmiði framsýnna umbótamanna er nálega óhugs- andi að þjóðin geti fram- kvæmt þá draumsjón sína að verða alfrjáls, og að lifa á ókomnum öldum alfrjáls, nema með því að skólamir, hin nýja og óhjákvæmilega viðbót heim- ilismentunarinnar, séu margir, góðir og gagnlegir. Islenska þjóð- in er ekki nógu mannmörg og rík til þess að geta látið þá gleði eft- ir íhaldinu að vanrækja þannig mentastofnanir þjóðarinnar og fjölmörg af bömum hennar. Eftir stjómarskiftin 1927 tók eg að kynna mér með eigin aug- um flestar þær almannastofnan- ir sem tilheyrðu þeirri stjómar- deild, þar sem eg átti að vinna. Að vísu var állvíða pottur brot- inn, en þó varð mér fljótt ljóst, að merkin eftir langvarandi dauða hönd íhaldsstefnunnar voru greinilegust á útliti tveggja stofnana í höfuðstaðnum. Annað vár hegningarhúsið. Hitt var mentaskólinn. *I aðra stofnunina höfðu Ihaldsmenn látið þá af uppvísum lögbrjótum landsins, sem hvorki höfðu flibba um háls- inn né áttu vini eða vandamenn 1 herbúðum Ihaldsmanna. En í Mentaskólann létu Ihaldsmenn börn sín til forfrömunar, og vanræktu hann samt. Fyrir meir en aldarfjórðungi fór úr fangahúsinu í Rvík mað- ur, sem hafði verið þar um all- langa stund. En síðustu missirin sem hann var í fangahúsinu óttaðist lækuir sem stundaði hann, að maðurinn fengi brjóst- veiki, er draga- myndi hann til dauða um það leiti sem hann yrði frjáls maður. Þá var fanga- húsið orðið svo slæmt, að lífi og heilsu manna var þar hætta bú- in með stuttri dvöl. Hver dóms- málaráðherrann tók við af öðr- um, Sigurður Eggerz, Einar Arn- órsson, Jón Magnússon og Magn- ús Guðmundsson og engum þeirra datt í hug að það snerti neitt verkahring þeirra, þó að grautfúið trégólf væri í fanga- klefunum, þó að rottur hlypu fram og aftur yfir andlit hinna ógæfusömu innibyrgðu manna, er þeir áttu að sofa, þó að ýldu- fýluna úr rottugöngunum og rökum og fúlum jarðveginum legði upp um klefann, þó að gluggi á hverjum klefa væri upp við loft, og ekki unt að opna nema lófastóra rúðu. Hinir um- svifamestu dómarar landsins, Jóhannes fyrverandi bæjarfógeti og hæstaréttardómararnir, áður fimm, nú þrír, störfuðu á öðrum stað í húsinu að því að dæma menn inn í þetta fangelsi. Eng- inn þeirra beitti sér fyrir að afmá af þjóð sinni þennnan blett. Allir dómararnir geta sjálf- sagt sagt með góðri samvisku, að þeim komi ekki við vistin í dýfljssunni. Það séu hinir póli- tisku vinir þeirra, Einar, Sigurð- ur, Jón og Magnús, sem eigi þar að hafa augun opin. Niðurstaðan á þessu hörmungar ástandi var því sú, að fangamir reyndu að gera sitt til að bæta úr raunum sínum. Það er skjallega sannað fyrir rétti, að þeim tókst eitt sinn á blómaöld íhaldsins að ná sér í nógu mikið áfengi til að vera ölóðir marga daga í klefun- um,- og gleyma þannig hörmung- um sínum. Að lokum var svo komið, að læknir fangelsisins varð að skipa að hleypa hverj- um fanganum eftii' annan út úr steininum, til að forða heilsu þeirra. Á þann hátt var málum komið þegar Ihaldið skyldi við. Hér um bil tveir árgangar af þeim „flibbalausu“ dæmdu mönn- um voru yfirleitt frjálsir af því að ekki var rúm í steininum. En auk þess voru jafnan all- margir sem veifuðu læknisvott- orði framan í lögregluna og neituðu að fara inn í hið pestar- þrungna rottubæli, af því að þeim væri þar bráður bani bú- inn. Og lögreglan varð að beygja sig fyrir þessum rökum. Fyrir tilverknað þeirra sömu manna, sem eru að umbæta skólamál landsins var sjúkra- húsið á Eyrarbakka, eitt af minnismerkjum Ihaldsins aust-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.