Tíminn - 09.11.1929, Qupperneq 2

Tíminn - 09.11.1929, Qupperneq 2
236 TlMINN Jónsson væri, ofan á alt annað, ekki greindari en Guðm. Jóhanns- son. En svo hefir það nú samt reynst í þessu máli, þvi í blaði sínu 12. okt. síðastl. vegur hann í þennan sama knérunn og kennir stjóniinni um ófarir og sjúldeik fyrverandi gjaldkera Brunabóta- félagsins. Veikindi þessa manns munu vera þess eðlis, að þau verða ekki sett í samband við þetta mál. Og síst verður stjóminni um þau kent né annan ófarnað hans, heldur fremur þeim mönn- um, sem kunna að einhverju leyti að hafa fært sér í nyt veikleika mannsins og misferli. Mælt er að Magnús nokkur Magnússon og fieiri slungnir bófar muni geta gefið skýringar á því, hvers vegna gjaldkeranum hafi orðið svo óhaldssamt á brunabótafénu við spilaborðið. — Sannarlega hrapa þeir menn til óhappanna og viija ósæmd sína og sinna manna sem mesta, er vilja halda á lofti slíku máli og draga það hvað eftir annað inn í um- ræður um almenn mál. VI. Þá skal loks minst á þau atvik úr opinberu lífi Áma frá Múla, sem eru líkiegust til þess að halda á lofti nafni hans til viðvörunar öllum þeim, sem eiga að gæta sæmdar landsins út á við. Ámi Jónsson hefir komist allra manna næst því, að gera að engu merki- lega frægð Kolumbusar, þegar svo bar við í lífi hans, að hann týndi úr tilvem meðvitundar sinnar heimsálfunni, sem Kolum- bus fann við mikla erfiðismuni og háskasemdir. Mun þess hvergi getið í frásögnum, að nein þjóð hafi eignast þvílíkan Anti-Kolum- bus, sem þann, er fyrverandi íhaldsráðherrar hafa klakið út með oftrausti sínu á Árna frá Múla og hirðuleysu um sæmd Is- lands „á erlendum vettvangi". Atburðir þeir, sem hér er bent til, eru áður kunnir og verð- ur því hér farið fljótt yfir þá smánarsögu. íhaldsstjóminni fyr- verandi hugkvæmdist það fráleita óráð, að senda Árna frá Múla á fund Bandaríkjastjórnar, til þess að leita samninga fyrir hönd Is- lands um tilslökun á ullartolli. Hafði han skotsilfur ríkulegt og fylstu meðmæli íslenskra stjórnar- valda. Lagði hann þannig út í leiðangur þennan með nokkurn hluta af ríkissjóðnum í öðrum Byltingabrölt læknaklíkunnar í Reykjavík. I. „Læknar nútímans ætla að gera klerka kaþólskunnar góða“, sagði sögufróður maður, er hann heyrði um byltingarbrölt nolckurra lækna í höfuðstaðnum og nágrenninu. Þeim manni var ljóst, að eins og barátta klerkanna á miðöldunum stefndi að því að gera hina svartklæddu stétt að ríki í rík- inu, svo hefir nokkur hluti hinn- ar íslensku læknastéttar um nokkurt undanfarið skeið stefnt að því að rjúfa ríkisheildina til að koma fram sérhagsmunum sínum, og að nú hafa þeir kveð- ið upp úr í Mbl. og öðrum íhalds- málgögnum, og játað tilgang sinn og áform. Ofsi miðaldakirkjunnar birtist í mörgum myndum, en niður- staða af baráttu klerkanna var sú, að kirkjan svældi undir sig meginhlutann af auði þjóðanna, og hélt almenningi í helfjötrum eymdar, fáfræði og hjátrúar. Og vopnið sem klerkastéttin notaði til að beygja almenning undir kirkjuveldið, var óttinn við kval- ir í öðru lífi. Almenningur hélt að prestar, munkar, biskupar, kardinálar og páfar hefðu í höndum sér lyklana að hliðum vasanum, en traust þjóðarinar og sæmd upp á hinn. En Árna fór svipað og öðrum þeim, sem skort- ir sjálfan manndóminn og ábyrgð- arkendina í skapferð sína. Hann svignaði fyrir þunga traustsins sem á hann var lagt. Áður er hann komst í næstu landsýn, var hann orðinn ófær, til þess að reka sín eigin erindi, gæta eigin sæmdar, hvað þá að mæta á er- lendum vettvangi fyrir hönd þjóðarinnar. Ekki verður rakin hér saga þessa ferðamanns landsins meðan hann dvaldi er- lendis. En eftir nokkrar vikur var hann fluttur heim, veikur á sál og líkama. Hafði hann þá eytt öllum farareyri sínum, Um 10 þús. kr. gleymt hversu heims- álfum er skipað niður á „vorri jörð“, týnt erindi sínu og gert landinu varanlega ósæmd sem sendimaður þess. Ámi frá Múla hefir lagt mikla stund á gleiðgosalegar fyrirsagn- ir yfir níðgreinum sínum. Fyrir skemstu taldi hann i’ektorsvalið bera vott um „andþróun“ í þjóð- lífinu og nokkru áður var í blaði hans deilt á dómsmálaráðherrann fyrir að hann væri að stofna á- liti landsins í voða „á erlendum vettvangi“. Meiri fjarstæðu get- ur ekki. En í þessu efni fer Árna sem öðrum þeim, sem eiga til margs að svara, fyrir undan- gengin misferli, að hvert högg, sem þeir hyggjast að greiða öðr- um verður fyrst og fremst snoppungur á sjálfa þá. Jafnvel fyrirsagnirnar fela í sér ótví- ræðan áfellisdóm; því hvenær skyldi íslensk „andþróun“ hafa orðið skammarlegri „á erlendum vettvangi“, heldur en þegar Ámi frá Múla var að kynna sig meðal hótelgesta í Kaupmannahöfn, sem sendimann íslenska ríkisins? Frámunaleg ófremd Áma frá Múla verður því furðulegri, þeg- ar þess er gætt með hvílíkri kostgæfni forsprakkar Ihalds- manna hafa dregið hann upp úr hverju foræði og haldið honum fram til einnar vegtyllu og trún- aðarstarfs af öðru. Þegar haxm ekki dugði sem verslunarstjóri, þótti flokknum, sem hann mundi duga vel til þingmensku. En þeg- ar hann brast dug og traust til þingmenskunnar, var hann álit- inn fyrirmyndar sendimaður rík- isins vestur í Hvítahúsið. En er sú tilraun hafði mishepnast með þeim atburðum, sem að framan er lýst, var hann álitinn himnaríkis. Prestastéttin ógnaði mótþróafullum mönnum með því að sálir þeirra skyldu tortímast, sem ekki beygðu sig fyrir sér- hagsmunakröfum kirkjunnar. Hin ofsafengna barátta ka- þólsku kirkjunnar var nieginor- sök hins pólitíska skipulags- leysis á miðöldunum. Uppreisn kirkjunnar veikti ríkisvaldið, en það fæddi aftur af sér réttleysi og eymd borgaranna. Hér á landi átti sérhagsmunabarátta klerkanna einna drýgstan þátt- inn í að landið týndi frelsi sínu, og allri þeirri óhamingju sem af því leiddi. II. I þeim hluta Norðurálfunnar, þar sem persónulegur manndóm- ur og félagsþroski var á hæsta stigi, gerðu þjóðimar í lok mið- aldanna uppreist móti kaþólsk- unni, hinu óeðlilega ríki í ríkinu. Aðalþýðing siðabótarinnar lá í því, að skapa kirkjustarfsemi eðlilegt valdsvið. Kirkjan varð þýðingarmikill þáttur í lífi þjóð- anna, en ekki sjálfstæð, óháð ræningjaborg, mitt inni í frið- sömu landi. Og frá þessum þjóðum, þeim sem létu ríkisvaldið skipa hærri sess en sérhagsmuni einstakrar stéttar, hafa runnið, síðan um siðabót, nálega allar þær um- bótahreyfingar sem mestu hafa orkað um frelsi og félagsmenn- ingu nútímans. hafa hlotið nægilega verðleika til þess að takast á hendur yfir- stjóm og siðferðislega og fjár- hagslega ábyrgð á einni af stofn- unum ríkisins. Hefir því verið lýst hér að framan, hversu sú ráðstöfun gafst. Og að öllu þessu undangengnu, þótti forsprökkun- um hann vel hæfur, til þess að takast á hendur aðalritstjórn fyrir flokkinn og koma þannig fram sem helsti fulltrúi íhalds- málstaðarins. VII. Nú hefir hér að framan verið gefið nokkurt yfirlit um opin- bera framkomu Árna frá Múla. Mun fáum blandast hugur um, að enginn sæmilegur stjórnmála- flokkur gæti talið slíkan mann hæfan til þess að gerast aðal- fulltrúi málstaðarins í opinber- um umræðum. Eins og' ljóst má vera, er Árni frá Múla eitt hið furðulegasta rekald, sem borist hefir upp á fjörur nokkurs stj órnmálaf lokks. Rúmi blaðsins hefir ekki verið eytt til þessara umræðna vegna Árna sjálfs, heldur til þess að sýna fram á, hversu háttað muni vera um málstað íhaldsflokksins og afstöðu hans til þjóðarinnar. Sérhver óspiltur og sómakær maður fyrir hönd þjóðar sinnar myndi álíta það skyldu flokksins, að hafa slíkan mann, sem Áma frá Múla í fjórðu stofu frá aðal- inngangi og sem lengst frá al- mannafæri, í stað þess að skáka honum fram í opinberum skilm- ingum um þjóðmálin og bjóða hann fram til fulltrúastarfs á Alþingi. En umkomuleysi Ihalds- flokksins, ófremd hans og óverj- andi málstaður verður best skil- ið þegar litið er á þær stað- reyndir, að enginn dugandi mað- ur er fáanlegur til þess að standa þar til vamar, hvað þá að sókn sé af hálfu flokksins. — Stjóm- málaflokkur, sem getur notast við Magnús ræfilinn „einskis- virta“ og Jóhannes flakkara, hann er um málstað og brautar- gengi fullsæmdur af því, að hafa Áma frá Múla í fremsta sæti. —.—o------------------- Andrés Böövarsson miðill flytur er- indi í Nýjabíó á morgun kl. 3^2 a8 tilhlutun Sálarrannsóknarfélags Is- lands. Mun hann þar greina frá langri og margvíslegri reynslu sinni í sálrænum efnum. Ágóðanum verð- ur varið til styrktar fátækum og heilsulausum manni. m. Síðastliðið sumar fóra Ihalds- menn víðsvegar um land að tæpa á því sín á milli að nú væri að byrja uppreist í landinu. Heil- brigðisstjórnin væri afsett. Land- læknir og stjórnarráðið skyldu ekki lengur spurð um hvað gera skyldi um skipun heilbrigðis- mála. Þeir sem meira þóttust vita bættu við, að í hinni nýju heilbrigðismálastjóm væru ein- tómir íhaldslæknar, og í þeim hópi sumir æstustu samherjar Mbl. Læknamir hefðu bundist órjúfandi samtökum um að brjóta ríkisvaldið á bak aftur í sínum lögbundnu framkvæmdum. Hin nýja byltingarmiðstjóm átti að hafa lokkað og kúgað nálega alla lækna undir sig. Ef einhver læknir gerðist svo djarfur, að ráða sig til starfs hjá lands- stjóminni, þá skyldi' sá læknir „bannfærður“ þegar í stað. Upp- reistarmiðstjórnin ætlaði að setja tvo praktiserandi lækna við hlið hins bannfærða, til að svifta hann öllum bjargráðum. Félag lækna átti að kosta þessa tvo varðmenn. Ef hinn bannfærði læknir dirfðist samt að halda á- fram og taka móti sjúklingum, þá áttu hinir frómu og velþenkj- andi sérfræðingar í læknisment í höfuðstaðnum, að neita að taka við nokurri þeirri persónu, sem kom. úr höndum hins ba,nnfærða. Að síðustu var talað um, að ef | Páll Bjarnasson | frá Steinnesi. Páll Bjamason lögfræðingur frá Steinnesi andaðist á heimili sínu hér í Reykjavík 4. þ. m. Páll var sérlega vinsæll maður og virtur af þeim, sem höfðu af honum náin kynni. ----o^--- Eggert Stefánsson söngvari. Hann hefir verið í kynnisför hér heima í sumar og haldið nokkra hljómleika hér í Reykja- vík og á ísafirði við góða að- sókn. I haust voru liðin tuttugu ár síðan Eggert fór utan til söng- náms. Hafði hann áður verið smali í Þingvallasveit, og blaðadrengur og búðarmaður í Reykjavík. Þótti tiltæki hans ekki álitlegt í þá daga og höfðu margir ótrú á því, að íslendingur sigldi til þess að Iæra söng, sem þótti mörgur list þótt fögur væri. En Eggert lét ekkert aftra sér. Hann átti þá djörfu listamannslund, sem hefir verið mörgum efnilegum Islend- ingi því nær hið eina vegarnesti, er þeir hafa lagt út á torsótta braut listar sinnar. — Eggert gat sér strax hið besta orð á Sönglistarskólanum í Kaup- mannahöfn, fór síðan til Svíþjóð- ar og var þar vel tekið sem söngvr- ara. Eftir það lagði hann, fyrst- ur íslenskra söngvara, leið sína til Ítalíu til náms. Eggert hefir sungið mjög víða, í Ameríku, í London, París og víðar. Hér heima er hann mjög kunnur söngvari og mjög vinsæll. Hann syngur á morgun í Gamlabío og er það sjötti hljómleikur hans hér á þessu hausti. \ í harðbakka slægi fyrir byltingar- forkólfunum, skyldi miðstjórn uppreistarinnar í höfuðstaðnum heimta af héraðslæknum, að þeir gerðu allsherjarverkfall, og létu dauðveika menn og sængurkonur í lífshættu vita af því hvað það þýddi á íslandi, ef Bjarni Snæ- bjömsson „praktiserandi" lækn- ir í Hafnarfirði fengi ekki nægi- lega mikið fyrir berklasjúklinga landsjóðs frá heilbrigðisstjóm- inni eða ef Níels Dungal kæmist ekki nema ofurlítið á fjórtánda þús. í landsjóðslaunum, og bit- lingum úr ríkissjóði. öll þessi hemaðarráðagerð, bygðist á því, að nútímamenn væru í jafnmik- illi hættu, með líkama sinn, ef læknar neituðu þjónustu, eins og sálir miðaldamanna í höndum bannfærandi klerkalýðs. IV. Flestir menn hafa tekið þessu háværa upphlaupsbrölti með góð- látlegu brosi. En þó að tilefnið sé broslegt, og margt í framkomu þeirra manna, sem mest láta á sér bera í þessu uppreistarskrafi, þá er þó það mikil alvara í hreyf- ingu þessari, að það er ómaks- ins vert íyrir alla skynberandi menn í landinu að skilja hvað hef- ir komið dálitlum hóp af mönn- um, sem sumir hafa meðalgreind eða meira, til að byrja á athæfi, .sem aldrei getur endað betur fyrir þeim, heldur en ef þeir Á vfðavanöí. Velgerningur læknaklíkunnar. Sigvaldi Kaldalóns læknir og tónskáld var mjög heilsulítill á stríðstímunum og þoldi ekki erf- íð landferðalög á hesti eða skíð- um. Var hann þá um langt skeið atvinnulaus í Rvík. Margir aðrir læknar seldu þá brennivínsresept sér til gróða, en Sigvaldi þoldi heldur erfiðleika fátæktarinnar og heilsuleysis, en að bletta nafn sitt. Læknaklíkan studdi á engan hátt þennan „bróður“ þá. Þegar Bolungarvíkurhérað losnaði sótti Kaldalóns um þorpið. En lækna- klíkan vildi ekki unna honum þess, og fékk settan þangað ung- an lækni, sem gat ferðast hvar sem var. En að lokum fékk Sig- valdi Flateyjarhérað, þar sem öll ferðalög gerast í vélbátum. Ekkert læknishérað á landinu er •betui' fallið tíl að seigdrepa mann með líkamsþoli Kaldalóns, heldur en Flatey. Sífeldar ferðir í ólofti vélbátanna, og ósjó á smákænum. En Keflavíkurhérað er eitt hið minsta á landinu, og bílvegir um það alt. Ekkert héi*að er betra fyrir Sigvalda en Keflavík, ekk- ert verra en Flatey. Sigvaldi hafði beðið vini sína og vanda- menn að sækja um héraðið. Þar vill hann starfa helst af öllu. Hann fær veitingu, og missir um leið Flatey. En þá rísa upp nokkr- ir „vinir“ hans, í læknastétt, elta vandamenn og velunnara Kalda- lóns á röndum til að lokka þá og hræða til að hafa áhrif á lækn- inn, til þess að neita því starfi, sem hann þráir mest að hafa. Altaf þangað til Kaldalóns fékk Keflavík, gleymdi læknaklíkan honum. Nú á að hrekja haxm út í vélbátaferðimar aftur. Og að því starfa aðallega praktiserandi læknar í kauptúnum, sem ekki hafa þorað að taka á sig vosbúð héraðslækna. X. Vígslusöngur Laugarvatnsskóla. Á öðrum stað í blaðinu eru birtar vísur, sem Jak. Thoraren- sen skáld hefir ort til Laugar- vatnsskóla. Á leiðinni frá Minni- boi'g að Laugarvatni gerði Emil Thoroddsen slaghörpuleikari lag við kvæðið, ritaði það niður jafnskjótt og hann kom að Laug- arvatni um kvöldið, síðan lærði Skagfield lagið og söng það með aðstoð Emils við vígsluna daginn eftir. Er lagið tilþrifalag mikið byrjuðu að láta Þjórsá renna öf- uga upp farveg sinn frá ósum og inn í Hofsjökul. V. I þróun hinnar íslensku lækna- stéttar er samskonar ósamræmi og í líkama Byrons. Hann hafði frítt höfuð en nauðaljótan og vanskapaðan fót. Margir íslensk- ir læknar hafa stundað nám sitt með alúð, og haldið þekkingu sinni betur við en margar aðrar stéttir. Og 1 hópi héraðslækn- anna, og einstakir mexm meðal „sérfræðinganna“ í höfuðstaðn- unx hafa sýnt mikla elju og ekki ósjaldan mikinn drengskap við að hjúkra og lækna sjúka menn. En fyrir þetta hefir læknum yfirleitt verið vel borgað, betur en nokkurri axmari stétt, sem launað er af ríkisfé. En þegar litið er á lækna lands- ins sem borgara í þjóðfélaginu, þá eru afrek þeirra miimi. Ef frá eru teknir nokkrir gáfuðustu og best mentu menn í stéttinni, sem samhliða læknisstörfunum hafa beitt sér fyrir almennum. umbót- um bæði í heilbrigðismálum, og félagsmálum yfirleitt, þá eru verk stéttarinnar, „sem slíkx*ar“ litlu aðdáanlegri en hinn van- skapaði fótur Byrons. Nokkur dæmi skulu nefnd þessu til söxrn- unar. Hinir mörgu lækngr, höfuðstað- arins hafa þolað þá smán og

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.