Tíminn - 30.11.1929, Page 1

Tíminn - 30.11.1929, Page 1
©faíbfcti oft afðrei&sluma&ur Cimans er Ha n n d e i 9 {> or s t ei n söóttir, Sambanbsljústnu, Hopfjaníf. ^fgtcibsía Cimans er i Sambanbsljúsinu. (Dptn baalega 9—(2 f. i). Simi ^90. XIII. ár. K3£S'.1MV?«I Reykjavík, 30. nóv. 1929. 72. blað. Verkin tala Skýrsla vitamálastjóra til atvinnumálaráðuneytisins um framkvæmdir á árinu 1929. Á árinu 1929 hafa þessi mann- , virki verið framkvæmd undir umsjón vitamálaskrifstofunnar. I. Bygging’nýrra vita. Á Tjörnesi í Þingeyjarsýslu. Vitabyggingin er hvítur tum, steinsteyptur, 9 m. hár, með sí- völu ljóskeri, sem neðst er úr potti, en rúðugrindur og þak úr kopar. Ljóstækin eru gasblossa- tæki með glóðarneti, ljóskrónan hringmynduð, 500 mm. í þver- mál og 700 mm. há. Ljósmagnið er 3900 kerta, og lýsir það um 18 sm. Ljósmetið er í 6 gashylkj- um, sem duga ljóstímann (1. ág. — 15 maí). Vitinn sýnir 2 blossa með stuttu millibili, á 15 sek. fresti. Á Rauðagnúpi á Melrakka- sléttu. Vitabyggingin er 4 m. há járngrind, klædd Etemitplötum, og ljóskerið eins og á Tjömesi. Ljóstækin era gasblossatæki með opnum loga, ljóskrónan hring- mynduð 800 mm. í þvermál, og 795 mm. há. Ljósmagnið er 2800 kerta og lýsir um 17 sm. Ljós- metið er í 14 hylkjum, sem duga ljóstímann. Vitinn sýnir 3 blossa með stuttu millibili, á 20 sek. fresti, miðblossinn er mun lengri (2 sek.) en hinir (l/z sek.). Á Alviðruhömrum í Álftaveri í Skaftafellssýslu. Vitinn stend- ur austast í hömrunum skamt vestan við Kúðaós. Vitabygging- in er Yiy% m. hár steinsteyptur turn, og ljóskerið er hið sama og fengið var til Dyrhólavitans 1910, en tekið var þaðan 1927, þegar nýi vitinn var gerður. Eins er gamla ljóskrónan þaðan notuð (750 mm. í þvermál), hún var töluvert skemd af sandfoki og grjótflugi úr bjarginu, og var því send út til viðgerðar. Ný. blossatæki voru sett í vitann (gastæki með opnum loga), sams- konar og á Rauðagnúpi, ljós- magnið er einnig mjög líkt, en 15 hylki eru í vitanum, enda er ljóstíminn mánuði lengri heldur en á Norðurlandi. Á Reykjanesi hefir verið skift um ljóstæki, bæði til þess að losna við kvikasilfrið, sem var í gömlu tækjunum og var ilt viður- eignar í jarðskjálftum, og til þess að auka ljósmagnið. Nýju tækin eru með gasglóðarneti, en ljóskrónan — sem var í vitanum — snýst kringum ljósið og varp- ar út 2 geislum með stuttu milli- bili, á 30 sek. fresti. Ljósmagnið er ca. 70.000 kerta, sem sam- svarar 29 sjómílum, en vegna hæðarinnar sést hann ekki nema 22 sm. Gaseyðslan mun verða úr 15 gashylkjum yfir ljóstímann (15. júlí — 1. júní). Vörður fyrir innsiglingar og legumerki, hafa verið reistar í Seley, Lambey, Steindórsey, öl- versskeri og Grímsey á Hvamms- firði, í Hafnarey við Flatey (2), á Sandi (2) og í Ólafsvík (3). I Höskuldsey á Breiðafirði er verið að byggja íbúðarhús handa vitaverðinum. II. Hafnargerðir og lendinga- bætur. I Borgarnesi var gerður hafn- arbakki á suðausturhomi Brákar- eyjar, 30 m. langur, úr jám- staurum. Á bak við hann er um 9500 m3 fylling, en myndar 3300 m2 stórt svæði milli Brákareyjar, hafnarbakkans og veggja, sem gerðir voru ýmist úr steypu, grjóthleðslu eða jámstauram. Verið er að dýpka 7000 m2 stóit svæði fyrir framan bakkann, með því að moka upp 8000 ten.m. úr botni, og mun verða 2 m. dýpi á svæðinu um lægstu fjöru. Kostnaðurinn mun að líkindum verða um 115000 kr. — Á Sandi á Snæfellsnesi var gerður skjólgarður í Krossavík, á móti þeinr, sem gerður var 1924. Garðurinn er úr stein- steypu, 79,3 m. langur. Gamli norðurgarðurinn var endurbætt- ur og lengdur um 19 metra upp í land. Kostnaðurinn varð um 16000 kr. — Á Ólafsfirði var gerð ný bryggja í stað gömlu bryggjunn- ar, sem að nokkru leyti var hrun- in. Bryggjan var gerð úr steypu, sem sett var í mót úr timbur- staurum, sem reknir voru niður. Kostnaðarskýrsla hggur ekki fyr- ir enn. Á Skálum á Langanesi var gerður 67 m. langur brimgarðs- stúfur frá landi út í skerið Hnall. I-Iann er steyptur að nokkru leyti á þurru, og nokkra leyti í pok- um í sjó. Garðurinn ver lending- una sem er rétt innan við hann. Kostnaðurinn varð um 29500 kr. Á Norðfirði var frá tangaodd- anum steyptur 35 m. langur garður fram í sjó, til þess að verja tangann fyrir sjávarágangi. Kostnaðarskýrslan er ókomin enn. í Vestmannaeyjum var norður- garðurinn fullgerður og innsigl- ingaviti settur á garðhausinn. — Jafnframt var unnið að því að tryggja enda ytri garðsins. — Á Básaskeri, inst í höfninni, var gerð ný bátabryggja, 10 m. breið og 70 m. löng. Fyrir ofan bryggj- una er uppfylling á 20X25 m. stóru svæði. í Þorlákshöfn var unnið að lendingabótum fyrir ca. 9500 kr. Vörin var löguð, þröskuldur og klappir meðfram henni sprengt o. fl. Th. Krabbe. Búnaðarskólar og lýðskólar. Telefunken félagið í Berlín hef- ir bygt á þessu ári gríðarstóra sendistöð í Japan Nagoya (600 Kw.), 20 kw. stuttbylgju send- ara, Bankok, Siam stór útvarps- stöð í Santiago, Chile, 20 kw. stuttbylgjusendara, í Prag 10 kw. stuttbylgjusendara í Nord- deich. Ennfr. hefir Telefunken- félagið fengið pöntun á útvarps- stöð fyrir Japan. Sala á útvarps- tækjum Telefunkens hefir aukist svo gífurlega, sérstaklega í Asíu og yfirleitt á erlendum markaði, að félagið á erfitt með að full- nægja eftirspurninni, þrátt fyrir liina miklu framleiðslu. Það er Grav v. Arco, hinn heimskunni uppfindingamaður, sem er einn af aðalforstjórum Telefunkens, og hefir gefið félaginu það nafn og traust, sem er fyrir löngu orð- ið heimsfrægt, enda viðurkenna allir fagmenn, að Telefunken sé brautryðjandi á sínu sviði, vegna þeirra afburða manna, sem það hefir á að skipa. (Augl.). D. Bændaskólamir eru hvort- tveggja í senn, búnaðarskólar og lýðskólar. Er eðlilegt að svo hafi verið hingað til, því að fram að þessu hafa lýðskólar verið fáir og smáir hér á landi. Nú eru, aftur á móti, að rísa upp lýð- slíólar, sem án efa verða fram- tíðarstofnanir Samtímis hefir að- sókn að bændaskólunum rénað, °g má telja fullvíst að hinir uýju lýðskólar valda hér nokkra um, vegna þess að samkepni um nemendur á sér, því miður, stað með þessum skólum. Að mínum dómi má enginn reipdráttur eiga sér stað milli lýðskóla og bænda- skóla og tel eg þess vegna nauð- synlegt að koma á sambandi og samstarfi með þeim. Skal hér gerð gi-ein fyrir því, hvemig eg álít að þessu sambandi gæti ver- ið háttað. Svo hagar til á bændaskólun- um, að auk þess, sem í þrengri merkingu getur kallast búfræði, eru kendar þessar námsgreinar: íslenska, stærðfræði, steina- og jarðfræði, efnafræði, eðlisfræði, grasafræði, leikfimi og' söngur. Flestar af þessum fræðigrein- um eru einnig kendar á lýðskól- um, og allar eru þær vel til þess fallnar. Það er því svo að báðir skólar bjóða, að nokkra leyti, samskonar fræðslu, og kepnin um nemendur er því í raun og veru eðlileg, eins og sakir standa. Aðalmarkmið bændaskóla og lýð- skóla — mentun bændastéttar innar — er að vísu hið sama, en þeir eiga að stefna að því hvorir með sínum hætti. Bænda- skólarnir eiga að hverfa frá al- mennu fræðslunni og gerast hreinir sérskólar — búnaðarskól- ar. Hina almennu mentun eiga menn að sækja í lýðskólana. — En þá er nauðsynlegt að þeir lýðskólanemendur, sem ætla sér að stunda búnaðarnám, geti, á fyrsta vetri, fengið svo mikla til- sögn í þeim fræðum, er áður voru nefnd (íslensku, stærðfræði o. s. frv.), að aðeins þurfi að eyða mjög litlum tíma til'þeirra á búnaðarskólunum. Ef menn hefðu þennan undirbúning þegar á búnaðarskólana kemur, hygg eg að hægt væri að komast yfir þá búfræði, sem nú er kend á bændaskólunum, á einu skólaári í stað tveggja. Eg geri þó ráð fyr- ir, að lengja þyrfti skólaárið um 1—2 mánuði. Ef þetta fyrirkomu- lag kæmist á, myndu nemendur geta áflað sér þeirrar þekkingar, sem bændaskólamir veita nú og nokkuð að auki, með eins vetrar- dvöl á lýðskóla og einu skólaári á búnaðarskóla. Inntökuskilyrði á búnaðarskólana yrðu þá lýðskóla- próf í framangreindum náms- greinum, eða inntökupróf, sem jafngilti því. Enginn má skilja orð mín svo að jeg vilji sníða lýðskólanum stakk eftir þörfum búnaðarskól- anna eingöngu. Lýðskólarnir eiga að búa nemendur sína undir hvern þann sérskóla, sem þeir óska að sækja. Þess vegna er nauðsynlegt, að þar sé hægt að breyta nokkuð til með námsgrein- ar, eftir því hvað nemandinn ætl- ar að stunda að afloknu lýðskóla- námi. — Eg vil að væntanlegir búfræðinemar geti aflað sér nauðsynlegustu undirbúnings- mentunar með eins vetrar dvöl á lýðskóla, en að sjálfsögðu er, fyrir því, engin þörf á að miða kensluna í Jýðskólunum við einn vetur. Þeir, sem vilja afla sér frekari almennrar mentunar þurfa að eiga kost á tveggja eða jafn- vel þriggja vetra kenslu í lýð- skólum. Þó geri jeg ekki ráð fyr- ir, að þeir, sem ætla sér að stunda búnaðarnám, sjeu þar lengur en tvo vetur. Þá hygg eg að einnig sé nauð- synlegt að gefa mönnum kost á auknu búfræðinámi. Rökstyð jeg þetta með því, að þörfin fyrir menn mð traustri búnaðarþekk- ingu vex með búnaðarframförun- um. Það • væri því æskilegt að búnaðarskólarnir störfuðu í tveimur deildum og að- tveir flokkar búfræðinga væru útskrif- aðir frá þeim. I öðrum flokknum væru rnenn með eins vetrar bún- aðarnám að baki og geri eg ráð fyrir, að þeir ætli sér að verða bændur eða stunda búskap, án þess þó, að hafa veruleg leiðbein- ingastörf með höndum. í hinum flokknum væru menn, sem hefðu stundað nám í báðum deildum búnaðarskólans og hefðu meiri sérþekkingu en þeir fymefndu. Úr þessum flokki mætti fá trún- aðarmenn Búnaðarfélags íslands, starfsmeim eftirlitsfjelaga o. þ. u. 1. Breytingar þær, sem eg hefi drepiö á hér að íraman, eru þá í stuttu máli þessar: 1. Kensla í þeim námsgreinum bændaskólanna, sem veita al- menna mentun, sé flutt til lýð- skólanna og faii þar fram á fyrsta vetri. 2. Inntökuskilyrði í búnaðar- skólana sjeu lýðskólapróf í sömu fræðum. 3. Búfræðikenslan sé aukin þannig að menn eigi kost á að afla sér meiri sérþekkingar í bún- aði hér heima, en nú er. Kostir þesa skipulags, fram yf- ir núverandi ástand, eru í mín- um augum þessir: 1. Allur þorri búfræðinga mundi stunda nám á tveimur skólum og ef kennarar eru góðir við báða skóla mun námsmönnum fengur í að kynnast þeim. Hvor skóli hefir jafnan nokkuð til síns ágætis, og þess vegna munu tveir skólar oftast veita námsmanni meiri þroska en einn. 2. Búnaðarneminn verður frjálsari í vali um samræmdan námsferil en nú. Ilann hefði um þetta 'að velja: a) Eins vetrar lýðskólanám + eins vetrar búnaðarnám. b) Eins vetrar lýðskólanám -j- tveggja vetra búnaðarnám. c) Tveggja vetra lýðskólanám + eins vetrar búnaðarnám. d) Tveggja vetra lýðskólanám + tveggja vetra búnaðarnám. 3. Bændaskólamir verða að sérskólum og samkynnin um nemendur milli þeirra og lýðskól- anna hverfur úr sögunni, en slík samkepni hlýtur ávalt að eiga sér stað meðan verksvið skólanna er að nokkru leyti hið sama. Samband það á milli lýðskóla og búnaðarskóla, sem nú hefir verið drepið á, er að sjálfsögðu því aðeins framkvæmanlegt, að starfsmenn bændaskólanna skilji þýðingu lýðskólanna, og starfs- menn lýðskólanna viðurkenni nauðsyn búnaðarfræðslunnar, en eg býst við að engin ástæða sé til þess að efast um að svo sé. — I lýðskólanum ætti að hvetja þá nemendur, sem ætla sér að stunda búskap, til þess að sækja búnaðarskóla að loknu lýðskóla- námi. Skólastjórar og kennarar bændaskóla og lýðskóla ættu að ræða væntanlegt samstarf og koma sér saman um skipulag þess. Hvanneyri, 11. október 1929. Þórir Guðmundsson. Athugasemd. Hr. ritstjóri! Viljið þjer gera svo vel að veita þessum línum rúm í blaði yðar. Hr. próf. Halldór Hermannsson segir svo í grein sinni í Skími 1929: „Skýrði eg þá formanni Árnanefndarinnar, hverjar breyt- ingar mér þættu æskilegar á henni, svo að hún stuðlaði að samvinnu milli Dana og Islend- nga og jafnframt færði út kví- arnar“ [þetta hefði nú þurft skýringar]. Það sem hér segir er satt. Við H. H. höfum talað eins- lega um þetta mál. En svo bætir hann við: „eg gerði jafnvel að skilyrði, að þessar tillögur mín- ar um breytingu væru að ein- hverju leyti teknar til greina, ef eg ætti framvegis að vera við safnið. Nefndin m u n (gleiðletr- að hér) hafa tekið þessu dauf- lega og þar með skildi með okk- ur“. Það má misskilja þessi orð. Eftir þeim skyldi ætla, að H. H. hefði gert þetta skilyrði (sem hann svo nefnir) andspænis nefndinni sjálfr. En það hefir hann aldrei gert, og nefndin hef- ir aldrei haft þetta mál til með- ferðar. Þessa hefði H. H. vel getað orðið vís (sbr. orðið ,,mun“). Hann hefir aldrei skor- að á mig að gera málið að nefnd- armáli. Iiann hefði sjálfur getað gert það með því að hann var í nefndinni þennan tíma, sem hann vann við stofnunina. Honum var því innan handar að koma þar fram tillögum sínum. Eg skal ekki hér fara frekari orðum um þær. H. H. hefir þannig engan rétt til að segja, að hann hafi horfið frá stöðu sinni, vegna þess að nefndin hafi tekið dauf- lega í tillögur hans. Annarsstaðar segir II. H. um „Samfunds" útgáfuaðferð, að hún sé „nú næsta úrelt“. Slík orð eru óskiljanleg. Aðferðin er sú sama sem alstaðar tíðkast á bygðu bóli, þar sem um útgáfur eldri rita er að gera, og sú einasta, sem er möguleg, sú sama, sem H. H. hefir sjálfur fylgt í öllum sínum útgáfum. Annars er margt og mikið að athuga við þessa grein H. H., en eg skal ekki nú fara frekar út í það mál. K.höfn, í okt. 1929. Finnur Jónsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.