Tíminn - 01.05.1930, Page 1
©falbfert
og öfgrei6sluma6ur Cimans er
Hannoeig p o r s 1 < t n s bó 1t i r,
5amban6st)&siiui, &rffjar>if.
^.fgtEibsía
Cimans er i Sambanösljúsinu.
(Dpin baglega 9—\2 f. 4>
- Stmt H96.
JVttftadCad
I. ár.
Reykjavík í maí 1930.
3. blað.
Alþingishátíðin
á Þingvöllum
Af því að óðum nálgast sá
timi, er hátíðaköldin. heí'jast á
Þingvölium í surnar, þykir hæfi-
iegt að birta nú hér í blaðinu í
megin dráttum það, sem ákveðið
heíir verið um hátíðina, og stutt
yfiriit yfir það, hvers memi mega j
vænta að íyrir augu beri á Þing-
vöilum dagana, sem hátíðin fer
fram. Það, sem. sagt verður í
þessari grem, er tekið eftir orð-
sendingum hátíðanefndarimiar og
viötali við Magnús Kjaran fram-
kvæmdast j óra lxátíðahaldanna.
Hefir framkvæmdastjóriim góð-
fúslega gefið blaðinu skýrar upp-
lýsingar um það helsta er máli
skiftir viðvíkjandi hátíðinni.
Hátíðanefndin hefir viðbúnað
tii að geta tekið á móti og veitt
húsaskjól á Þing-völlum ca. 25
þús. mamis. I því skyni verður
reistur tjaldabær mikill á siéttri
flöt nokkuð innan við vellina,
suðaustan Almannagjár, og tekur
tjaldabærinn yfir rúml. 90 dag-
sláttur. Um tjaldabæinn liggja
götur og tjöldin sjálf verða tölu-
sett. Vatnsleiðsla verður um bæ-
inn allan, en gryfjur fyrir sorp
og skólp með því að fráræslu
verður eigi við komið. Hverri
sýslu og kaupstað er ætlað af-
markað hverfi í bænum og eitt
stórt tjald, sem samkomustaðm’,
þar sem eiga að geta verið ca.
200 manns. Niðri á völlunum
verða 20 veitingatj öld, og eru þau
sett þar af því að hátíðahöldin
eiga að fara fram í gjánni rétt
ofan við vellina.
Inni í tjaldabænum verður kom-
ið fyrir sölubúðum, lyfjabúð,
póstafgreiðslu og bankastarfsemi,
sem einkum er nauðsynleg til
þess, að útlendingar geti skipt
erlendum peningum fyrir ís-
lenzka. Nokkrar símalínm* verða
lagðar um tjaldabæinn með mið-
stöð í þingvallabænum. Lækna-
vörður verður til taks nótt og
dag, ef slys eða sjúkdóma ber a'ð
höndum.
Tjöldin, sem notuð verða á
Þingvöllum, eru búin til í Skot
landi beinlínis til hátíðahaldanna
og hefir hátíðanefndin tekið þau
á leigu, en skilar þeim aftur að
hátíðinni loldnnd. Fólk, sem ætlar
að búa í tjaldborginni, fær ekki
leyfi til að flytja með sér tjöld.
með því að ætla mætti, að þau
yllu ósamræmi. Þeir sem vilja
nota sín eigin tjöld verða því að
hafast við utan hátíðasvæðisins
Ilestageymsla verður á norður-
bakka Almannagjár, á Laugar-
vatnsvöllum og á Hofmannaflöt,
ef með þarf. Á öllum þessum
stöðum er gott grasiendi. Verða
hrossin geymd í girðingum. Bif-
reiðatorg verður gjört rétt við
mynni Almannagjár og verða að-
komumenn að stíga þar út úr
bifreiðunum, því að um sjálfan
þingvöll verður engin bifreiðaum-
ferð leyfð, meðan hátíðin stendur
yfir. Á milli tjaldborgarinnar og
hátíðasvæðisins verður vegur 5
metra breiður og verða bifreiðar
á ferð á honum vegna þelrra
sem lasburða eru og erfitt eiga
með gang.
Tjöldin inni í borginni, þau
sem ætluð eru til íbúðar, eru öll
af sömu gjörð, með íslenzku
bæjarburstasniði, öll 6 feta há og
8 feta breið, en 10—13 0g 20 feta
löng. Minnstu tjöldin rúma 4—5
menn, miðlungstjöldin 8—10
menn og þau stærstu 12—15
menn. Leigan fyrir tjöldin, allan
tímann, verður 40, 60 og 85 kr.,
eftir stærð, eða sem svarar kr.
,50 á mann, ef miðað er við 4
daga dvöl. En þeim, sem vilja,
eru tjöldin heimil til afnota viku-
tíma, án aukagjalds. í tjöldunum
verður vatnsheldur botn og uliai-
teppi geta menn fengið leigð h'já
hátíðanefndinni, en vei’ða að öðru
leyti að hafa með sér rúmfatnað.
Auk tjalda þeirra,
sem pöntuð eru
af kaupstöðum
og sýslufélögum
verða æði mörg
Hátíðarmerkið.
lantshafsskipinu Ilellig Olav.
Ennfremur koma hingað tvö
skemmtiferðaskip norsk, Meteor
og Stella polaris. Verða á þess-
um 3 skipum um 1000 manns alls.
Vestur-Islendingar koma hingað
á tveim skipum, er flytja 800
manns bæði saman og verður þar
í för með Vestur-íslendingum
margt Ameríkumanna. Þá er
væntanlegt þriðja skipið frá
Ameríku og með því 500 manns.
Norðmenn og Svíar hafa ákveðið
að senda hingað sitt herskipið
hvorir, og mun í ráði, að ríkis-
erfingjar þessara landa verði í
þeirri för. Einnig eru líkur til,
að herskip verði senda hingað frá
Englandí og Frakklandi. Meðaí
ganga þaðan í fylkingu að
Lögbergi.
10'/2 Hátíðin sett:
1. Þingvallakórið syngur: Ó,
guð vors lands.
2. Forsætisráðherra setur
liátíðina.
3. Hátíðaljóðin sungin(fyrri
hlutinn).
II1/) Þingfxmdur:
Forseti sameinaðs þings
heldur ræðu.
1214 Hátíðaljóðin sungin
(síðari hlutinn).
Matarhlé.
Móttaka gesta á Lögbergi:
1. Forseti sameinaðs þings
býður gesti velkomna.
2. Fulltrúar erlendra þinga
1
3
tjöld, sem ekki er
sérstaklega ráð-
stafað, og geta menn þar fengið
keypta gistingu, ef þeir hafa ekki
trvggt sér samastað, svo lengi
sem rúm leyfir.
Þeir, sem nú hafa pantað tjöld
hjá hátíðanefndinni, skiptast svo
eftir héruðum:
Reykjavík 11400.
Hafnarfjörður 1125.
Vestmannaeyjar 585.
Norðfjörður 100.
Akureyri 310.
Siglufjörður 100.
ísafjörður 280.
Gullbringusýsla 295.
Kjósarsýsla 465.
Ámessýsla 1265.
Rangárvallasýsla 475.
Skaftafellssýslur 195.
Suður-Múlasýsla 145.
N.-Múlasýsla og Seyðisf. 155.
Þingeyjarsýslur 110.
Eyjafjarðarsýsla 70.
Skagafjarðarsýsla 260.
Húnavatnssýsla 345.
Strandasýsla 100.
Norður-lsafjarðarsýsla 190
Vestur-ísafjarðarsýsla 185.
Barðastrandarsýsla 50.
Dalasýsla 70.
Snæfellsnessýsla 85.
Mýrasýsla 425.
Borgarfjarðarsýsla 725.
Um fjölda erlendra aðkomu-
manna verður enn ekkert sagt
með vissu. Af hálfu hins opin-
bera hefir ekkert verið gjört til
þess að hvetja hingað erienda
ferðamenn. Einungis hafa að til-
hlutun hátíðarnefndar verið
gefnir út leiðarvísar á eriendum
málum handa þeim, sem ætla sér
að koma. Þeir aðkomumenn er-
lendir, sem vitað er um með vissu
eru fyrst og fremst boðsgestir
Alþingis, um 40 að tölu, þá þing-
menn frá Norðurlöndum, sem
hingað koma til að sitja norrænt
þingmannamót, hið fyrsta, sem
haldið er á Islandi. Eru þing-
mennimir um 60 og konur flestra
með í förinni. Þá eru erlendu
þátttakendurnir í norræna stúd-
entamótinu, sem verða a. m. k.
250. Þingmennimir og stúdent-
arnir koma hingað á danska At-
Almannagjá, Öxará og Ármannsfell.
aðkomumannanna er gjört ráð
fyrir 50—100 blaðamönnum, sem
ætla sér að flytja fregnir af
landinu og hátíðinni út um heim-
iim.
Sem boðsgestir Alþingis verða
mætth- fulltrúar frá eftirfarandi
löndum: Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð, Finnlandi, Bretlandi, Hol-
landi, Frakklandi, Þýzkalandi,
Tékkó-Slovakíu, Austui'ríki, ftalíu,
Bandaríkj um Norður-Ameríku,
Canada, Færeyjum, eynni Mön
(sem einnig á eitt af elztu þing-
um heimsins), Norður-Dakota,
Mimiesota, Saskatschewan og
Manitoba. Fjögur þau síðasttöldu
eru aðal Islendingafylkin í Banda-
ríkjunum og Canada.
í Reykjavík búa boðsgestimir
á Hótel Borg og Vestur-íslend-
ingar í Landsspítalanum og á
elliheimilinu nýja. Á Þingvöllum
er boðsgestunum ætlaðm' bústað-
ur í gistihúsinu Valhöll, en þing-
menn innlendir og eriendir búa í
tjöldum á Þingvaatúninu.
Hátíðahöldin á Þingvöllum
standa í þrjá daga, hefjast
fimmtudaginn 26. júní kl. 9 að
morgni og verða úti laugardag-
inn 28. júní kl. 8 að kvöldi. Há-
tíðarnefndin hefir ákveðið eftir-
l'arandi
D AGSKRÁ:
1. dagur
(fimmtudaginn 26. júní 1930).
Kl.
9 Guðsþ jónusta:
Athöfnin taki 30 mínútur
og fari fram í gjánni fyrir
norðan fossinn.
Lögbergsganga:
Menn safnast saman undir
fána síns héraðs á flötunum
suður af Gróðrarstöðinni 0g
flytja kvéðjur af Lög-
bergi. Ilverjum fulltrúa
ætlaðar 5 mínútur.
41/2 Hljómleikar, sögulegir.
6 Miðdegisveizla.
9 Íslandsglíma.
2. dagur.
Kl.
10
fagnað
flytja
Minni fslands
flutt á Lögbergi.
Kappreiðar í Bolabás.
12 Matarhlé.
2 Þingfundm'.
2:V4 Vestur-fslendingum
á Lögbergi:
V estur-íslendingar
kveðjur á Lögbergi.
3(4 Söguleg sýning.
4(4 Hljómleikar, nýtísku.
6 Matarhlé.
8 Fimleikasýiting,
úrval, 16 stúlkur og 16 pilt-
ar.
3. dagur.
91/2
Kl.
10 Þingfundur, þingi slitið.
11 Einsöngur.
1 Matarhlé.
3 Fimleikasýning, 200 manna.
5 Landskórið syngur.
5 Söguleg sýning.
6 Matarhlé.
8 Hátíðinni slitið á Lögbergi,
forsætisráðherra.
Frá kl. 9—11 á hverju kvöldi:
Héraðsfundir, bændaglíma, viki-
vikar, bjargsig, rímur kveðnar,
söngur, hljóðfærasláttur, dans.
Sunnudagur.
Kl. 12 lokaveizla fyrir fulltrúa
allra stjetta í landinu.
um. Til þess að hafa hemil á um-
íerðinni, tekur hátíðanefndin í
sínar hendur yfiimnsjón með öll-
um bifreiðaflutningi, sem fram
fer milli Reykjavíkui' og Þing-
valla vegna hátíðarmnar og
ákveður fargjöld, svo og hverjar
bifreiðar megi hafa í notkun til
Þingvallaferða, að undangengimii
nákvæmri skoðun. Umferðinni
verður þannig hagað, að bifreið-
arnai' fara austur gamla veginn,
en suður nýja vegiim og mætast
því aldrei*). Verðir verða settir
með veginum til írekara öryggis,
svo þétt, að hver sjái til annai's.
Nefndin hefir m. a. fengið til um-
ráða 150 vöruflutningabifreiðar
og lætur setja í þær yfirbyggð
sæti. Fargjöld með þeim
j bifreiðum verður 6 kr.
hvora leið, en með fólks-
flutningabifreiðum 10 kr.
hvora leið. Gjört er ráð
lyrir, að hægt verði að
nytja 1000 manns á
kiukkutíma eða allt fólkið
á rúmum sólarhring. En til
þess að flýta fyrir vei'ður
skólafólki 0. fl. gefhm
kostur á fari til Þingvalla
þann 24. júní fyrir hálfu
iægra gjald en ella. Vega-
iengdin milli Reykjavíkur
og Þingvalla er ca. 50 km.
Ný símalína hefir verið
iögð frá Reykjavík til
Þingvalla, en auk þess
iiamlengd .lína frá Ölfus-
árbrú upp yfir Grafning til
Þingvalla. Verða því þrjú
símasambönd til Þingvella
til taks í eiiiu.
Á Þingvöllum verður 100
manna lögreglusveit imdir stjórn
Bjarna Bjarnasonar skólastjóra
á Laugarvatni.
Auk þess, sem nú hefir verið
neínt hefir verið gjörður og er
verið að gjöra á Þingvöllum
margháttaðan undirbúning undir
hátíðahöldin. Vellirnir, sem áður
voru kargaþýfi, hafa verið slétt-
aðir. Gistihúsið Valhöll og hið
svonefnda Konungshús, sem bæði
voru til stórra lýta á völlunum,
hafa verið flutt þangað sem lítið
ber á þeim. Yfir Öxará eru
byggðar fjórar trébrýr, ein 30
metra löng. Slegið hefir verið upp
til bráðabirgða um 250 salemum
í tjaldborginni og á hátíðasvæð-
inu. Keyptur hefir verið mótor-
bátur, sem á að gjöra þeim, er
þess óska mögulegt, að fara um
vatnið sér til skemmtunar. Bát-
urinn mun rúma um 50 manns
á þilfari og er smíðaður í Liibeck
á Þýzkalandi, en upphaflega til
annars ætlaður, og því seldur
hingað fyrir hálfvirði.
Aðalhátíðahöldin fara fram i
Almannagjá og á eystra bai'mi
hennar. Á gjárbarminum verða
fundir Alþingis og þar fer fram
hin sögulega sýning á Alþingi
hinu foraa. Verður slegið upp tré-
pöllum á tveim stöðum á gjár-
barminum í þeim tilgangi. Niðri í
gjánni syngur Þingvallakórinn.
Guðsþjónustan fer sömuleiðis
fram í gjánni, rétt innan við
Öxarárfoss, og verður klettur í
gjánni notaður sem ræðustóll.
Með því að ekki er hægt að búast
við, að ræður manna eða söngur
Tveir vegir liggja nú frá
Reykjavík til Þingvalla, annar
nýr, gjörður á tveim síðustu ár-
*) Sú ráðstöfun að láta fara aust-
ur gamla veginn, en nýja veginn til
baka, er gjörð meðfram vegna út-
sýnis. •