Tíminn - 03.05.1930, Blaðsíða 2
100
TlMINN
Nemandi
Duglegur sveitapiltur, sem hefir lönéun
til að læra mjólkurgerð, getur komist að
sem nemandi, frá maí mánaðar lokum þ, á.
Aldur 17-19 ára.
Heilbrigðisvottorð og ef til eru önn-
ur vottorð sendist fyrir 15. maí.
Mjólkurbú Ölvesínéa
Hveragerði
Stundakennarafélag Reykjavíkur.
Nýlega hefir verið stofnað félag hér
í bænurn með því nafni. Tilgangur
þess er að vinna að aukinni mennt-
un stéttarinnar og beita sér fyrir
hagsmunamálum hennar. Félagar
geta þeir orðið, sem hafa að atvinnu
stundakennslu við unglinga- og sér-
skóla í Rvík, eru ekki í föstu kenn-
araembætti og kenna minnst 10
stundir á viku. Er tilætlun félags-
manna, að skólastjórar leiti ráða fé-
lagsstjórnarinnar um val stunda-
kennara og semji við hana um kaup-
gjald fyrir þá. Hafa stundakennarar
í huga að fara fram á hækkun á
kaupi sínu á næsta hausti. Hefir
stjórn Stundakennarafélagsins sótt til
Alþingis um tatlsverða hækkun á
fé því, sem veitt er til stundakennslu.
Stjórn félagsins skipa: Einar Magnús-
son eand. theol., Sveinbjörn Sigur-
jónsson mag. art., Sigf. Sigurhjartar-
son cand. theol. og Brynjólfur
Bjarnason mag. art.
Horfurnar á flotamálaráðstefnunni
i London hafa skyndilega breyzt til
hins betra, og gera menn sér nú
vonir um, að árangur verði af ráð-
stefnunni. Franskir og brezkir sér-
fræðingar hafa liaft til athugunar til-
lögur um aukið öryggi fyrir Frakk-
land, án þess að þyngja hernaðar-
byrðar Bretlands og leggja þeim
meiri her-naðarlegar skyldur á herð-
ar. Munu Frakkar nú hafa gefið í
skyn, að þeir kynnu að fallast á til-
lögur i þessa átt. Byggja menn vonir
sinar á því, að þetta kunni að leiða
til samkomulags.
Fríríkisstjórain írska hefir beiðst
lausnar sakir ósigurs er hún bcið
við atkvæðagreiðslu í þinginu, um
frumvarp um ellistyrk, sem fram var
borið af De Valera flokknum, en
frumvarpið hefir í för með sér auk-
in útgjöld fyrir ríkið. Fiannafail-
flokkurinn írski hefir beðið De Valera,
sem nú er staddur i Bandaríkjunum,
að taka að sér stjórnarmyndun.
----0----
Kvenfélagasamband
Islands
Umræður uxn lög Sambandsins
tóku lengstan tíma. það var vandi
4ð gera lögin svo úr garði að öli
félög, bæði í bæjum og sveitum, gæti
gengið þar inn, hvaða mál sem þau
kynnu að hafa á stefnuskrá sinni.
— Niðurstaðan vai'ð sú, að það var
dæmt fullnægjandi að samband það
sem óskaði inntöku í Kvenfélagasam-
band Islands hefði húsmæðrafræðslu
og heimilisiðnað á stefnuskrá sinni,
og héti þeim málum styrk sínum.
Hvert einstakt félag innan sam-
bandsins þarf ekki að hafa það
ákvæði i iögum sínum.
þess ber að gæta, að kvenfélaga-
samböndum einum er ætluð inntaka
samböndum einum er ætluð inntaka
í It. I., en ekki einstökum félögum.
Um fjárfi-amlag tii Kvenfélagasam-
bands íslands frá félögum eða fé-
lagasamböndum, sem í það ganga, er
vitanlega ekki að tala, heldur þvert
ó móti styrkir K. I. sambönd þau,
sem i það ganga, ef fé fæst til starf-
seminnar úr ríkissjóði. Sá styrkur
veitist aðallega þannig að umferðar-
kennarar i ýmsum vorklegum fræð-
um verða sendir samböndunum. Enn-
fremur gerir K. í. ráð fyrir að bera
allan kostnað af Kvennaþingunum,
sem verða haldin annað hvoi-t ár,
þar með talinn fei’ðakostnaður full-
trúanna. í þriðja lagi verður unnið
að því af kappi að koma sem fyrst upp
skóla fyrir kennslukonuefixi, fyi'ir þær
stúlkur sem ætla að vei’ða umferða-
kennarar, svo menntum þeirra vei'ði i
fullu samræmi við íslenzka hætti í
hvívetna.
þetta munu verða ærin verkefni
fyi’st um sinn, og mun engum dylj-
ast, að þau yrðu íslenzkum heimilum
til gagns og gengis, ef þau næðu
fram að ganga en heimilin þarf að
st.yðja og efla á allan hátt.
Nú verður það verkefni stjórnar og
fullti’úa að skýra mál þetta fyrir
þeim samböndum, sem þegar eru til
og hvetja þau til að ganga inn í
Kvenfélagasamband íslands, og svo
á hinn bóginn að leggja smiðshögg-
ið á þau sambönd, sem þegar eru i
stofnun, eins og Kv.enfélagasamband
Vestfjarða og Breiðfirzka sambandið.
í stjórn Kvenfélagasambands ís-
lands voru þessar konur kosnar:
Frú Ragnhildur Pétursdóttir, Ilá-
tegii, formaður.
Frú Guðrún J. Briem, Tjarnargötu
28.
Frú Guðrún Pétursdóttir, Skóla-
vöi’ðustíg 11.
Varastjórn skipa:
Ásta Jónsdóttir, Reykjum i Mos-
fellssvcit.
Halldóra Bjarnadóttirf, Háteigi.
Marta Einarsdóttir, Laugavegi 20.
Stjórnin sækir um 15 þús. kr. fjár-
styrk frá Alþingi til að koma ætl-
unarverkum sínum í framkvæmd, og
væri óskandi að Alþingi sæi sér fært
að verða við þessari beiðni.
þingmenn eru oft i vanda staddii’,
þegar skera þarf úr um veitingu smá-
styrkja til ýmislegrar starfsemi:
námsskeiða, umferðarkennslu, náms-
stvrkja o. s. frv. — Væri oft þægilegt
fyrir þá að geta vísað styrkbeiðnum
þessum til Kvenfélagasambands, sem
hefir fulltrúa um land allt, og því
góð skilyrði til að þekkja ástæður og
staðhætti
það er og mjög mikils um vert að
verklega kennslan komi jafnt niður
og sé leidd eftir ákveðnu skipulagi
— Kvennaþingið, sem er skipað full-
fulitrúum fx’á öllu landinu, og miðl-
ar styrk þeim, sem Alþingi veittv,
hefir öll skilyrði til að sjá um að
enginn verði út undan og að kennsl-
an verði við hæfi á hverjum stað.
Konurnar hafa sýnt það í félags-
skap sínum, að þær kunna að fara
með fé. það hefir orðið drjúgt í hönd-
um þeirra. Mörg kvenfélög hafa afl-
að mikils fjár og hafa sýnt með
starfsemi sinni að þau kunna að
gæta fengins fjár hyggilega. það er
víst alveg óhætt að lofa konunum
að hafa allan veg og vanda af um-
ferðarkennslunni
Búnaðarþingsnefndin, sem fjallaði
um þctta mál, réð konunum til að
sækja beint t.il Alþingis, fara þar
engar krókaleiðir, konunum væri
treystandi til að hafa sín fjármál
sjálfar. Hafi nefndin þakkir fyri.r það'
traust, sem hún sýndi konunum með
þessu, þær munu ekki láta það til
skammar vei’ða.
Konur eru orðnar þó nokkuð æfð-
ar í að vinna saman i félagsskap og
hafa þegar unnið stónnikið gagn í
íslenzku þjóðlífl. En þær finna æ bet-
ur máttinn í samtökunum eftir því
sem starfssviðið víkkar og félags-
skapurinn getur meiru og fleiru
áorkað til nytja fyrir land og þ.jóð.
Hið nýstofnaða Samband hefir skil-
yrði til að Ivfta þungum byrðum, og
vér væntum mikils góðs af því, og
vonum að það beri gæfu til að vinna
landi og þjóð mikið gagn eins og for-
göngukonur félagsskaparins hafa
áhuga á.
Halldóra Bjaraadóttir.
----0------
Sauðatólg
í tunnum,
kössum, skjöldum og
V* kg*. bitum,
seljum vér ódýrt.
S. í. S.
Simi 496. '
MbO hlnnl gömla, viOurkandu
og ágsetu gæðavöru.
Herkules þakpappa
sem framkidd er á ▼wrkamlðja
vorri „Dorthetsminde" frá J>vl
1896 — J>. e. í 80 ár — hefa
nú verið þaktir í Danmörira og
lalandi
e. 80 mflj. fermetra JmkIsl
Pœst Bktafiar á laiandL
Hlntafúlagifi
]eiis iðds fðSrier
Kalvebodbryggo B
Köbenhavn V.
•¥\J
♦8
♦í
n,
♦8
♦8
Tryggið aðeins hjá islensku fjelagi
Pósthólf:
718
Símnefni:
Incuranoe
BRUNATRY GGINGAR
(hús, innbú, vörur o.fl.). Sími 254
JÓVATRYGGINGAR
(skip, vörur, annar flutningur o.fl.). Sími 542
Framkræmdastjóri: Sími 309
Snúið yður til
Sjóvátryggíngaíjelags Islands h.f.
Eimskipafjelagshúsinu, Reykjavík
n
ijv vf jf. jf j-f vfi
p a..---------
JiS, J{V J£*
Sement - tímbur
og aðrar byggingarvörur fæ ég til Eyrarbakka fyrri hluta maí-
mánaðar.
Allt til hússins á einum stað,sparar yður ómak.
Girðingarefni: Sérlega ódýrir tréstólpar.
Álaborgar rúgmjöl verður hvergi betra að kaupa.
Annast flutninga svo langt sem bílar komast.
Sigtunum, 23. apríl 1930.
Egili Gr. Thorarensen.
M0LLEN
KAUPMANNAHOFN
mælir með sínu alviðurkennda RÚGMJÖLI og H VIITI.
Meiri vörugæði ófáanleg
S.I.S. elciftir ©in.g’örxg-UL Y*ið o3ádkr\ir
Seljum og mörgum öðrum íslenzkum verzlunum.
MILLUR og alt
til upphluts.
Skúfhólkar,
úr gulli og silfri
Sent út um land gegn póstkröfu.
Kjöttunnur,
L. Jacobsen,
KÖBENHAVN Sixna,: Coopenig® VAIJT
alt til beykiaiðnar, smjörkvartei o. s. frv. frá atærstu beykiaKuiðj-
um í Danmörku. Hðfum 1 mörg ár selt tunnur til Sambandnius
og marcrra kaupmanna.
Jón Sigmundsson, gullsmiður
Sími 383. — Laugaveg 8.
Hvað er mest áriðandi
áður en iarið er i ferð?
Að tryggja sig í
A N D V Ö K U
Sími 1250.
Allii' geta tekið góðar myndir
xneð Zeiss Ikon myndavélum.
Munið það á aiþingishátíðinni i
sumai'. Verð frá 15 lcr.
Verðlistar sendir ókeypis.
Sportvöruhús Reykjavíkur
Bankastr. 11. (Box 384).
Ritstjóri: Gisli Guðaaundason,
Hólatorgi 2. Sími 1845.
í
Prentsmiðjan Acta.