Tíminn - 20.12.1930, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.12.1930, Blaðsíða 3
TlMINN StŒL Bestu JólagJafirnar Mannskaðinn Kvæðin eftir Dayíð Stefánsson. Skáldsögurnar eftir Friðrik Brekkan og Guðmund Hagalín. Fást hjá ðllum bóksBlum Gleymið ekki »Myndonura« hana Ríkarðs þegar þér veljíð jólagjafirnar í bókinni eru ljósmyndir af öllum helztu verkum listamannsins. áfram að taka lán ár eftir ár, og ef atvinnnuvegimir þola ekki að útgjaldabyrðin sé lögð í þá, kem- ur að því, að skera verður niður framkvæmdimar hjá bæjarfélag- inu. Ef framkvæmdirnar hér í bæn- um verða hinsvegar stöðvaðar nú, framkvæmdir ríkisins minnka og framleiðendur við sjávarsíðuna reyna að bjarga sér með stöðv- un atvinnureksturs að meira eða minna leyti, verður afleiðingin stórfellt atvinnuleysi og sennilega einhver kauplækkun. Kaupgeta almennings þverrar. Verzlunar- fyrirtæki fara á höfuðið hrönnum saman. Húsaleigan greiðist ekki. Húseigendur hætta að geta staðið í skilum. Húsaverðið lækkar. — Eftir að þessi lækning háspenntr- ar dýrtíðar hefir átt sér stað og markað sín djúpu spor alla vega, koma aftur eðlilegir tímar. Verð- lagið verður eðlilegt, kaupgjaldið í samræmi við það, og framleiðsl- an gengur fyrst um sinn jafnan og eðlilegan gang. Það er augljóst mál, að hjá óþægindum af ki'eppunni, sem nú virðist fara í hönd, verður ekki komizt — og spumingin er því aðeins sú, á hvem hátt afleiðing- ar hennar geti orðið léttbærastar. Hér í Reykjavík er húsaleigan undirstaða og aðalorsök allrar dýrtíðar — á það ekki sízt við um leigu verzlunarhúsa. Vitan- lega liggur öll þessi háa leiga eins og mara á almenningi og at- vinnurekendum í þessum bæ. — Sumir greiða beinlínis háa húsa- leigu og allir greiða leiguna óbeint með okurháu vöruverði. — Mjólkurverðið hér í Reykja- vík, sem liggur í námunda við Suðurlandsundirlendið, þar sem skilyrði til mjólkurframleiðslu eru betri en nokkursstaðar ann- ars á landinu, er óeðlilega hátt eða 20% hærra en á Akureyri. — Margt fleira er eftir þessu. Til þess að draga úr erfiðleik- unum, sem virðast framundan hér í bænum, og menn munu sanna að kemur, ef ekkert verður aðhafst, virðist liggja næst sú lausn, að bæjarstjóm Reykjavík- ur með aðstoð Alþíngis, þvingi beinlinis niður með löggjöf verð- lag á húsaleigu og öðrum þeim lífsnauðsynjum, sem eru tilfinn- anlegasti útgjaldaliður hér í bæn- um og kleift þykir að lækka. Með því móti mundi kaupgjald og önn- ur framleiðsla kostnaðar bæði til lands og sjávar geta lækkað jafn- hliða, framleiðslunni yrði að miklu leyti bjargað og dregið úr hættulegustu afleiðingum krepp- unnar. Jeg skal ekki fjölyrða um, að svo stöddu, hvemig þetta við- fangsefni yrði leyst í einstökum a.triðum. Það er mál, sem þarf rannsóknar. Hér er bent á þetta sem leið, er mér virðist að verði að rannsaka. Það er staðreynd, að dýrtíðin í Reykjavík er, eins og fjárhags- áætlunin sýnir, að verða bænum og atvinnuvegunum ofurefli. Við höfum nú um það að velja að láta skeika að sköpuðu — láta kreppuna koma og valda því at- vinnuleysi, hruni og margvíslegu böli, sem af því leiðir; þeir sterk- ustu standast þá væntanlega brotsjóina, en hinir máttarminni falla í vahnn. Hin leiðin er sú, að gjöra til- raunir með opinberum ráðstöfun- um að draga úr sjálfri dýrtíðinni og bjarga á þann hátt atvinnu- vegunum og bæjarfélaginu. Hermann Jónasson. 1. desember. Hönnulegustu afleiðingar óveð- ursins um síðustu mánaðamót eru afdi'if togarans „Apríl'‘, sem farizt hefir í því veðri einhvers- staðar suxman við land á leið frá Englandi. Loftskeytasamband við skipið náðist sunnudagskvöldið 30. nóv. og var það þá statt 80 sjómílur suðaustur af Vest- mannaeyjum. Sömuleiðis má telja líklegt, að til þess hafi sést af björgunarskipinu „Þór“ kl. 10 á I mánudagsmorguninn 1. des., þá ! um 60 sjómílur suðaustur af eyj- unum. Hefir það þá sennilega farizt þann dag, enda sjór þá verstur. | Svo stór skarð sem nú hefir eigi verið höggvið í hina íslenzku sjómannastétt síðan „Jón For- seti“ fórst við Reykjanes á áliðn- um vetri 1929. Á Apríl voru 18 manns innan- borðs. Skipshöfnin var þessi: 1. Jón Sigurðsson skipstjóri, 29 ára, ókvæntur. 2. Ólafur Helgi Guðmundsson, 1. stýrimaður, 27 ára, ókvæntur. 3. Magnús Brynjólfsson, 2. stýri- maður, 55 ára, lætur eftir sig konu og 2 böm. 4. Einar Eiríksson, 1. vólstjóri, 32 ára, lætur eftir sig konu, 3 börn og 1 fósturbam. 5. Jón Ó. Jónsson, 2. vélstjóri, 38 ára lætur eftir sig konu og 5 börn ung. 6. Friðrik Theodor Theodors, loft- skeytamaður, 27 ára, ókvæntur. 7. þórður Guðjónsson, bryti, 26 ára, ókvæntur. 8. Einar Sigurbergur Hannesson, aðstoðarmatsveinn, 17 ára. 9. Kjartan Reynir Pétursson, háseti, 23 ára, lætur eftir sig konu og bam á 1. ári. 10. Pétur Ásbjömsson, háseti, 26 ára, lætur eftir sig konu og 3 börn. 11. Einar Axel Guðmundsson, há- seti, 20 ára, ókvæntur. 12. Páll Kristjánsson, háseti, 24 ára, ókvæntur. 13. Sigurgísli Jónsson, háseti, 38 ára, lætur eftir sig konu, 4 börn og 1 fósturbam. 15. Kristján Jónsson, kyndari, 43 ára, lætur eftir sig konu og 2 börn. 14. Magnús Andrésson, háseti, 34 ára, ókvæntur. 16. Eggert Snorri Ketilbjamarson, kyndari, 21 árs, ókvæntur. Auk skipshafnarinnar vom með „Apríl" tveir farþegar, er aætt hafa sömu örlögum: 1. Jörgen Pétur Hafstein, lögfræð- ingur og bæjarfulltrúi i Reykja- vik, 25 ára, ókvæntur. 2, Ragnar Júlíus Kristjánsson, 25 ára, ókvæntur. Þrjó sólarhring’a samfleytt sigldu varðskipin bieði öðinn og Ægir fram og aftur um það svæði, þar sem helzt voru líkur til að leit gæti borið árangur. Auk þeirra tók bátt í leitinni fjöldi fiskiskipa, sem leið átti um svæð- ið. En allt varð það órangurs- laust. Hann mun verða mörgum Reyk- víkingum minnisstæður, þessi síðasti óveðursdagur, af því að hann vekur svo margar sárar endurminningar og hefir búið svo mörgum heimilum dapra jóla- hátíð. Okkur, sem ekki þekkjum af eigin reynd hina þungu og þrot- lausu bai’áttu sjómannastéttar- innai' við óblíð náttúruöflin, mætti hann minna á þær fómir, er sú stétt færir, er sækir lífsviður- væri sitt og annara í skaut hins hvikula hafs, og hverjar kröfur hún á til hluttekningar af hólfu þjóðfélagsins. ——o--- Fréttir Silfurbrúðkaup eiga í dag skáld- konan Hulda (Unnur Benediktsdóttir írá Auðnum) og Sigurður Bjarklind kaupfólagsstjóri á Húsavík. Tíminn árnar þeim heilla og langra lífdaga. Tííðarfarið (vikuna 14. —20 des.). Upp úr síðustu helgi gekk til S-átt- ar og hláku um allt land. Hélst su veðrátta, þvi nær óslitiu til fimmtu- dagskvölds, að áttin varð veatlægari og fór að ganga á með slydduéljum og gerði loks snjóföl vestan lands á laugardagsnóttina. Á mánud. og mið- vikud. var hvöss S-átt viða um land, en annars hefir ekki verið stórviðra- samt eftir því sem gengur og gerist um þetta leyti árs. Snjór var all- mikill um síðustu helgi, hjarnsnjór nyrðra en nýfallinn suðvestanlands. Mun nú vera því nær örísa í lág- sveitum, hvar sem er á landinu. í Reykjavík varð hitinn mestur 6 st. en lægstur -í- 1. Úrkoma 25 mm. Jóhannes Sfgfússon yfirkennari við menntaskólann í Rvík andaðist 18. þ. m. Frá Búnaðarbankannm. Verðlaun fyrir uppdrætti af sveitabæjum hafa hlotið: Halldór Halldórsson bygg- ingafulltrúi Akureyri, önnur verð- laun í öðrum flokki, og Ágúst Páls- son tvenn önnur verðlaun í sama flokki, Verðlaun í fyrsta og þriðja flokki, þ. e. fyrir smábýli og stór- býli, voru ekki veitt, en teikningar af stórbýli, eftir hr. þorlák ófeigsson byggingameistara í Rvík hlutu lof- samleg ummæli og viðurkenningu. í dómnefndinni áttu sœti: Bjarni Ás- geirsson bankastjóri, form., Guðm. Hannesson prófessor, Jónas Jónsson ráðherra, Jóhann Kristjánsson bygg- ingaráðunautur og Sigurður Guð- mundsson byggingameistari. Til samkeppninnar voru sendir 14 upp- drættir gjörðir af áttamönnum. Ágúst Pálsson, sem hlotið hefir tvenn verð- laun í þessari samkeppni, er sá sami sem i fyrra gjörði verðlaunaupp- dráttinn að dómkirkju í Reykjavík. Nýjar bækur. Eftir Jón Trausta kemur út ný bók í dag. Heitir lnin „Ferðasögur" og hefir inni að halda frásagnir af ferðum höf. um íslnnd. Hafa flestar ferðasögurnar birzt í blöðum og tímaritum. Prýdd er bók- tn teikningum eftir höf. sjálfan. Aðal- steinn Sigmundsson geíur bókina út. — Jón Trausti er svo kunnur og vin sæll, að líklegt er, að þéssari síð- ustu bók, er frá honum birtist, verði vel fagnað. — þá er að koma út önnur ný bók: „Örlög“, eftir Indriða Indriðason á Fjalli. Er það fyrsta bók höf., sex smásögur. Landspítalinn er tekinn til afnota í dag. Viðurkeuningu fyrir fyrirmyndar- uppdrætti að verkamannabústöðum hafa hlotið Ágúst Pálsson Rvík, Hall- dór Halldórsson Akureyri, Niels Fin- sen Rvík og þórir Baldvinsson frá Granastöðum í þingeyjarsýslu. í nefnd þeirri sem uppdrættina dæmdi áttu sæti Guðjón Samúelsson húsa- meistari ríkisins, Georg Ólafsson bankastjóri og Vilmundur Jónsson læknir á ísafirði. Frumvarp um afnám bannlaganna hefir verið fellt í finnska þinginu. KartöRuræktin á vinnuhælinu á Litla-Hrauni lánast vel síðastl. sum- ar. Uppskeran í haust var 146 tn. Var það "S^-föld uppskera. Hælið hefir selt Laugarvatnsskólanum S5 tn. og Skipaútgerð ríkisins 25 tn. Nokkrir menn hér í Reykjavik hafa einnig fengið kartöflur frá hæliuu. þykja þær mjög góðar, og getur hæl- ið nú ekki • fullnægt eftirspurninni i þetta sinn, en ætlunin er að auka kartöfluræktina að miklum mun í framtíðinni. þykja kartöflur frá Eyr- arbakka og Stokkseyri yfirleitt ágæt- ar. margar og fjölbreyttar. Ég sá þar stundaða prentiðn, skraut- ritun, teikningu til iðnaðar, smíði, vefnað, sauma, smíði ferðakofforta, leturiðju og hús- gagnagerð. Ég spurði yfirlækn- inn, er hann sýndi mér hús- gagnagerðina, hvort fólk væri ekki hrætt við að kaupa djúpa, mjúka fjaðrastóla og sófa af verkstæði hans. Hann hló, og kvað hættuna enga og hluti þessa eftirsótta. Ég þagði og hugsaði heim til sumra góðkunnugra lækna á ísiandi, sem höfðu reynt að fæla menn frá að kaupa geril- sneydda mjólk frá búinu í öflusi,- af því að landsstjóniin ætlaði að bafa hressingarhæli í kílómetra- fjarlægð hinumegin við Varmá. Yfirlæknirinn í Papworth dró engar dulur á, hvílík stefnu- breyting væri að gerast í Eng- landi í berklamálunum. 1 stað iðjuleysis kæmi iðja. Þar sem sjúklingarnir hefðu áður verið geymdir í dvalakenndri ró, væri nú látin koma vinna, eftir kunn- áttu og þoli hvers manns. III. Þegar ég byrjaði að beita mér fyrir kaupum á Reykjaeigninni hafði ég fyrst og fremst í huga óhjákvæmilegabreytingu í berkla- miálunum. Þingið hafði 1921 tek- ið trúanlegar hinar grunnfæru og fávíslegu tillögur Sigurðui' Magn- ússonar og Magnúsar Pétursson- ar um að bezta lausn berkla- málsins væri sú, að koma kostn- aðinum við nálega alla hina sjúku á landið. Þá myndi smátt og smátt verða unnt að útrýma hvíta dauðanum. Þingið tók á þjóðina byrðina. Um nokkur ár óx byrði ríkissjóðs um 100 þús. kr. árlega. Auk þess fjölgaði sjúkhngunum árlega, og áhrifin af langvaranda iðjuleysi þeirra varð enn meira áberanda. Ríkis- sjóður var á góðri leið með að sligast undir gjöldum, við fram- kvæmdir, sem að vísu drógu úr neyð margra berklasjúklinga, en læknuðu ekki þetta mikla vanda- mál þjóðarinnar. Hinum sjúku var hrúgað saman í sjúkraskýli inn í helztu kaupstöðunum, einu stöðunum á Islandi, þar sem loft- ið var ekki gott, og á þeim stöð- um, þar sem dýrtíðin var allra mest. Geymslustaðirnir voru yfir- leitt valdir þannig að sem minnst batavon væri fyrir sjúklingana, mestur möguleiki að þeir smituðu heilbrigða og dýrast fyrir ríkið eða vandamenn að standa straum af dvöl þeirra. En þessi ráðstöf- un jók atvinnu í bæunum, og ekki síst fyrir læknana, sem fengu meiri aukatekjur af þessum mjög misheppnuðu framkvæmdum. Mér var ljóst, að í berklamál- unum var mjög lítið að leggja upp úr sérþekkingu læknanna um almennar aðgerðir. Hitt var ann- að mál, að sumir þeirra eru nauðsynlegir handverksmenn við að stunda einstöku sjúklinga. Af undangenginni reynslu var auð- séð, að straumhvörf hlutu að verða í berklamálinu. Landið reis tekki undir að hafa sívaxandi fjölda sjúklinga á alþjóðar kostn- að, þar sem dýrtíðin var mest. Og þjóðin gat ekki heldur þolað, að félagslega ómenntaðir menn eins og Sigurður Magnússon eða Jónas Kristjánsson bættu böli langvarandi kennslu í iðjuleysi ofan á hönnungar sjálfrar berkla- veikinnai’. Alveg eins og leik- mexm höfðu orðið að taka fang- elsismálin úr höndum löglærðra fávita í þeim efnum, og leysa þau mál samkvæmt boðum heil- brigðrar skynsemi, þannig varð líka að taka berklamálið úr um- sjá manna, sem að vísu höfðu nokkra þekkingu á eðli einstakra sjúkdóma, en sem voru blindir fyrir böli eins og því, að geyma tugi sjúklinga ár eftir ár á rík- isins kostnað í gömlum hjálpræð- isherkastala í einum af kaup- stöðum landsins. Síðastliðinn vetur bar ég fram tillögu á Alþingi um að stjómin mætti verja allt að 50 þús. kr. til að reisa hressingarhæli fyrir berklaveika menn að Reykjum í ölfusi. Þessi tillaga var studd af Framsóknarmönnum og jafnað- armönnum í deildinni og sætti fremur litlum mótmælum frá í- haldsmönnum*). Afráðið var að *) Rétt er að geta þess, að J. þorl. og B. Kr. greiddu báðir atkvæði með tillögunni. Eftir atkvæðagreiðsluna sagði B. Kr. við mig: „Hversvegna talið þér aðeins um Reyki í sam- bandi við berklaveiki en minnist ekki á gigt?“ Ég svaraði að ég von- aði að síðar yrði þar stundaðar byggja með allt öðrum hsetti en venjulega spítala. Hafa húsin eina hæð, lágt þak, og engan kjallara, og byggja úr timbri og járni, en ekki úr steini. Þar sem hitinn er nægur, þarf ekki á sama hátt að útiloka kuldann, eins og þar sem hita verður við dýr kol úr fjarlægu landL I venjulegum sjúkrahúsum, sem eiga að standa lengi, kostar hveit sjúkrarúm um 10 þús. kr. Á Reykjum er þess vænst að stofnkostnaður fyrir hvern maxm fari ekki fram úr 1500 krónum. Kemur sá sparnaður sér vel í íj ármagnslitlu landi. Þó er þess vænst, að ennþá meira muni mega spara á sjálfri starfræksl- unni. Svo sem kuxmugt er kostar veran fyrir berklasjúkling á venjulegum sjúkrahúsum í kaup- stöðunum 6—6 krónur á dag. Fyrir skólafólk í Rvík kostar vetrardvöbn fyrir hvem ungling minnst frá 1000—1200 kr. 1 heimavistarskólum, sem reistir hafa verið á hverastöðum, er kostnaðurixm fyrir hvem dag helmingi minni en fyrir náms- fólkið í Rvík. Á Laugaxwatns- skólanum, sem hefir nú um 120 nemendur, spara aðstandendur og þjóðin a. m. k. 60 þús. kr. érlega á því að mennta fólkið á svo ódýmm stað, en ekki í Reykjavík. Reynslan hefir sannað að dvöl- lækningar á miklu fleiri sjúkdómum en berklaveiki, en þar myndi þó byrjað. 1 <*• in fyrir námsmenn er hálfu 6- dýrari á Laugum og Laugar- vatni, heldur en í höfuðstaðnum, og í dýrtíð kaupstaðamia yfir- leitt. Þá hlýtur að vakna sú spurning: Hvei'svegna látum við vera að spara kostnað við berkla- sjúklinga eins og námsfólk? Hressingarhælið sem nú er ver- ið að reisa að Reykjum í Ölfusi er tilraun í þessa átt. Það er til- raun um algjörða stefnubreyt- ingu í berklamálinu, að koma upp góðum hýsum fyrir þá sjúku með miklu minni stofnkostnaði en áður, að hafa reksturskostn- aðinn miklu minni en áður, og að lokum að gefa sjúklingunum færi á að viima sér til gleði og heilsubótar, og síðar meir þeim til ávinnings og undirbúnings fyrir framtíð þeirra. Eftir Alþingishátíðina átti landið töluvert af timbri á Þing- völlum. Nokkuð af því var flutt að Reykjum, og hefir nú verið byggt úr því fyrsta húsið þar fyr- ir berklaveika menn. Það er ein- lyft, klætt með bárujámi og engin skrautbygging tilsýndar. En það er í skjóli á miðju tún- inu á Reykjum, í skjóli við hæðir og hlíðar, sem verja móti norð- aimæðingum. Framundan brosir blómleg sveit. örakammt fyrir ofan húsið koma upp tvær lindir og eru svo sem 100 metrar á milli. Ur annar lindinni koma á hverri sekúndu nokkrir lítrar af sjóðanda vatni, og mikið af gufu. Úr hinni lindixmi kemur kalt og tært uppsprettuvatn. Ekki þarf

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.