Tíminn - 05.06.1931, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.06.1931, Blaðsíða 1
^.fgreifcsía CÍMians er í £œfjar<jötu 6 a. ©pin baglega fL 9—6 Sími 2353 ©faíbfcti og afijreiðslumaður ÍT i m a n s er K a n n u e i q, o r s t e i n s b ó t i i r, ícefjargötu 6 a. KeyfjaDÍf. XV. árg. Reykjavík, 5. júní 1931. Aukablað 5. Dýrtíðin í Eeytjayík Húsnæðismálið er stærsta heil- brigðismál þjóðarinnar. Með því að alþýða manna geti búið í björtum og hlýjum húsum getum við notið ódýrari birtu og yls en hins ódýrasta rafmagns — sjálfrai- sólarinnar. En við getum það sem þó er meira'um vert. Við eigum að geta tekið sárasta biturleikann úr sigð dauðans hér á landi, gert berkl- ana landræka og gefið líf öllu því unga fólki, sem aldrei hefði orð- ið berklaveikt, ef það hefði búið við góð húsakynni. Víðast í Evrópu er það viður- kennt, að ríkið og bæjarfélögin geti ekki látið byggingar af- skiptalausar. í Englandi styrkir ríkið bygg- ingar með um 10 milj. sterlings- punda á ári og þar er álitið, að húsbyggingar einstaklinga sé liðn- ar undir lok og muni ekki vakna aftur. Húsin eru byggð hundruð- um saman í einu og gengið frá þeim að öllu leyti og síðan seld eða leigð út. Hér hefir lítið verið gert til að hjálpa mönnum að byggja yfir sig. Veðdeild Landsbankans var eina hjálpin frá því í júlí 1900 og þar til lögin um Byggingar- og landnámssjóð voru samþykkt. Veðdeildin lánar út á 40% af virðingarverði húsa og verður því lánþegi að leggja sjálfur fram eða útvega sér annarsstaðar 60% af því fé sem hús hans kostar. Þetta þýðir það, að alþýða manna er þess naumast umkorn- in að byggja sér hús sín sjálf, og ef hún gerir það, þá eru byggð smáhús, sem eru óhæfilega dýr samanborið við stærð og gæði. Veðdeildin er hugsuð sem sam- vinnufélag þeirra, sem byggja, er hefir það markmið að útvega fé- lagsmönnum lán. 1 stað þess að hver þeirra gefi veðskuldabréf í húsi sínu og reyni að selja það, gefur hver húseigandi veðdeild- inni skuldabréf og fær í staðinn bankavaxtabréf. Þessi veðdeildar- bréf eru útgengilegri en skulda- bréf einstaklinga, því veðdeildin sér um að rétt sé gengið frá þeim, en auk þess eru allir hús- eigendur innan hvers félags, eða flokks samábyrgir útávið, ef tap- ast á einhverri húseign. Þessi bankavaxtabréf á húseig- andi síðan að selja með því gang- verði, sem gildir á hverjum tíma. Skeður þetta svo ytra, að bréfin eru skráð á kauphöll, og menn selja bréfin eftir því, sem þeim lízt á markaðinn í hvert skipti. Hér er peningamarkaðurinn svo fastur að almenningui* hefir ekki keypt veðdeildarbréf og átt, eins og víða annarsstaðar, aðallega vegna þess hve erfitt er að selja þau ef á peningum þarf að halda. Landsbankinn hefir keypt mikið af þeim sjálfur, en það hefir auð- vitað einnig farið eftir árferði, hvort hann hafði peninga. Á síðustu árum hefir verið byggt svo geysimikið, að eftir- spum eftir lánum út á fasteignir hefir aukizt óskaplega. Vegna þess hve leigan . hefir verið há, hafa menn byrjað að byggja stundum með tvær hendur tómar, og fengið allt lánað til bygging- Frh. arinnar — út á veðdeild. Menn hafa fengið gjaldfrest hjá verka- mönnum og iðnaðarmönnum, timburkaupmönnum og sements- sölum — allt út á veðdeild. Margir, sem búnir eru að búa lengi í húsum sínum eiga ógreitt málurum og öðrum og hafa lofað að borga þeim þegar þeir fái eitt- hvað úr veðdeild, þótt búið sé fyrir löngu að lána út á húsið. Þessir lánardrottnar skilja ekki hvernig stendur á að svo lengi getur staðið á veðdeild og hyggja, að hún hljóti alveg að vera stöðv- uð og dagblöð hér í bænum eru beinlínis farin að tala um að Framsóknarstjórnin hafi stöðvað veðdeildina. Héðinn Valdimarsson talaði jafnvel um það í bama- skólaportinu að það væri eixrn Framsóknarmaður, Jón Árnason bankaráðsformaður, sem hefði stöðvað veðdeildina. Eins og áður er skýrt frá, er það ekki á nokkurs manns færi að stöðva veðdeildina. Ef markað- ur er fyrir þessu bréf verða þau keypt, ef þau annars eru á boð- stólum, hvað sem J. Á. segir. Er það einkennilegt, að bankaráðs- maðurinn Héðinn Valdimarsson og bankaeftirlitsmaðurinn Jakob Möller skuli hvorugur vita hvem- ig veðdeildinni er ætlað að starfa. Þó er einkennilegra að hvorug- ur þessara fjármálaspekinga skuli vita hve mikið veðdeildin starfar, að hún hefir lánað jafnmikið á rúmum tveimur árum í stjórnar- tíð Framsóknar eins og 25 fyrstu árin, sem hún starfaði. Bankavaxtabréf í umferð 31/i2 1925 .. . . 7.754.700 kr. 1926 . . . . 10.350.400 — 1927 . . . . 14.505.100 — 1928 .. .. 17.718.500 — 1929 . . . . 20.081.600 — Þessar tölur era teknar úr Ár- bók Hagstofunnar (tafla 84), en eru þar að auki birtar í ái’sreikn- ingum Landsbankans. Eins og menn sjá hefir veð- deildarbréfaumferð nærri þrefald- ast á 5 árum. Af þeim 5 áram, sem skýrslan í Árbókinni nær yfir hefir íhaldið stjómað í 2 ár og nokkuð á 8. mánuð. Fram- sókn hefir farið með völdin í 2 ár og nokkuð á fimmta mánuð. Til að vera viss um að gjöra íhaldinu ekki rangt til, ætla ég að telja þá stjóm hafa setið, unz 6. flokki vai’ lokið, en það var 7. október 1927, segir í reikningi Landsbankans það ár bls. 8. Sjö- undi fiokku tók til starfa 13. október og voru veitt úr honum lán að upphæð kr. 1.499.800, til ársloka. í stjórnai’tíð íhaldsins hefir veðdeildarbréfaútgáfa vaxið úr 7.750.000 upp í 13.000.000 eða um 51/4 miljón á 23/4 ári. I stjórnartíð Framsóknar hefir veð- deildarbréfaútgáfan vaxið úr 13 milj. upp í rúmar 20 miljónir eða um 7 miljónir á 2*4 ári. Á árinu 1930 voru gefin út bréf fyrir á þi’iðju miljón kr., samkv. reikn- ingnuni fyrir það ár. Veðdeildin hefir því verið studd alldi’engilega af Framsókn- arstjómixmi og var það að von- um. Hitt er annað mál að Fram- sóknai-menn sjá vel að veðdeildin getur aðeins fullnægt lánsþörf efnamanna. vTvær tilraunir hafa komið fi-am til að hjálpa alþýðunni að eignast þak yfir höfuðið. Bygg- ingar- og landnámssjóður átti að hjálpa fólki til sveita en lög um verkamannabústaði í bæjum. Samkvæmt lögum um Bygg- ingai'- og landnámssjóð vora veitt 160 lán þau tvö ár, sem hann hefir stai-fað. Áiið 1929 voru veittar úr honum 365.300 kr., en ái’ið 1930 776.200 kr. Lögin hafa reynst vel. Þó upphæðimar hafi ekki veiið stórar, hafa íögin vei*- ið mönnuin mikil hjálp, enda er mun ódýi’ai’a að byggja í sveit- um en hér í Reykjavík. Fi’umvarpið um verkamaxma- bústaði flutti Héðinn Valdimars- son á þingi 1928. Það dagaði uppi á því þingi og kom aftur fram ái’ið 1929. Frumvarpið er sniðið eftir lög- unum um Byggingar- og land- námssjóð, en þó svo frá því gengið, að það varð óaðgengilegt fyrir samvinnumenn. Til dæmis var ætlast til að bæjarfélagið kæmi upp byggingunum. Við samvinnumenn búumst við að einhvemtíma hætti hafnar- garðar hér að hrynja. En jafnvel þó bregði til betra um verklega þekkingu í bæjarstjóm, viljum við ekki að bæjarfélagið byggi yfir verkamenn. Við ætlumst til að vei’kamenn þroskist á að glíma við. slík mál sjálfir. Enda er það í sami’æmi við vilja alþýðu allsstaðar annarsstaðar. Lög um verkamamiabústaði voi-u samþykkt þ. 14. júní 1929, eða fyrir réttum tveim áram. Síðan hefir lítið gerst í málinu, og ekkert hús komist upp ennþá. Allt er upp í loft út af því hvernig húsin eigi að vera, og ekkert samkomulag um það. Héðinn kveinar yfir því í Alþýðu- blaðinu að í’íkisstjómin hafi ekki lagt honum til hluta af enska láninu, en við athugun komst það upp, að stjórn sjóðsins hafði aldi’ei beðið um eyri af því láni. Nú er lán fengið, en vegna ó- samlyndis og simdurþykkju eru allii’ aðilar fegnir að slá máhnu á fi-est. Helgi P. Briem. ----o---- „Af verkunum skuluð þér þekkja þá“. Jakob Möller hefir svarað fyr- irspum Tímans um það hvað hann hafi gei’t fyrir Reykjavík. Hann svai’aði í Vísi í gær, hátíð- lega og undir eigin nafni. Og nið- urstaðan var þessi, að meðan J. J. var að glíma við það í efri deild 1925 að fá hugmyndinni um landsspítala stilit í hóf, „þá kom ég fyrstu fjárveitingunni til landsspítalabyggingarinnar inn í fjái’lagafrumvarpið". Þetta er allt. En mundi nú hafa tekizt að útvega fyrstu fjái’veitinguna, ef ekki hefði verið haft vit fyrir Guðrn. Iiannessyni og þeim sem voru með uppdrætti að þrisvar sinnum stæiri spítala? Jakob hefir nú tíundað „sín verk“ fyrir Reykjavik. En þá skal spurst fyrir um það, hvað þeir hafa gert Einar og Magnús fyrir bæj- axfélagið, sem þeir ætlast til að veiti þeim umboð á Alþing. * Sogfsi Sogsvirkjunin er annað af þeim tveim málum, þar sem í- haldið hefir gengið frá sixmi fýxri skoðun til að fá socialista sem bandamenn, í því skyni að komast sjálfir til yfirráða um veltufé bankanna og geta athafn- að sig þar eins og meðan bank- arnir voru að tapa 33 miljónun- um. Flokkarnir hafa misjafna að- stöðu til þessa máls. Socialistarnir hafa barizt fyrir Sogsvii’kjuninni, og einkum einn maður úr þeii’ra hópi, Sigurður Jónasson bæjarfulltrúi. Vinna hans í því máli er eixm af hinum 'frémur fáu myndarlegu þáttum félagsmálaframkvæmda, sem liggur efth’ sócialista í Reykja- vík. En flokkur hans hefir fylgt forgöngu hans sæmilega, en ekki meira, eins og sézt á því, að þeir setja sem efsta mann á lista sinn manninn, sem selur olíu á lamp- ana gömlu, en ekki forgöngu- mann rafmagnsmálsins. íhaldið hefir um mai-gra ára skeið gert allt sem það hefir get- að til að spilla fyrir framgangi þess að Sogið yrði virkjað fyrir bæinn. Einkum hefir Knútvn’ borgaistjóri verið skæður and- stæðingur. Sextán sinnum segir Ólafur Friðriksson að íhaldið í bæjai’stjórn Reykjavíkur hafi tafið eða fellt málið. En allt í einu snýst íhaldið í málinu og þykist vera með því, og þá með jafnmikilli fx-ekju eins og’ það hafði áður hamast á foi’göngu- manni málsins, Sigurði Jónas- syni. Framsóknarmenn í Reykjavík hafa frá byrjim lagt Sigurði Jón- assyni hðsyrði í baráttu hans fyrir virkjvm Sogsins. Þeir liafa álitið að Rvík fengi rafmagn til simia þai’fa úr Soginu, eins og sveitabóndinn úr bæjarlæknum. Þeir liafa talið málið eðlilegt framfaramál, en ekki neinn alls- hei’jar kínalifselixír, sem væri allra meina bót fyrir Reykjavík. Ef fjármálum Reykjavíkur hefði verið stjórnað með greind og gætni myndi bærinn hiklaxist hafa getað fengið lán til rafveit- unnar. En eymd og vesöld í- haldsins er búin að leika Reykja- vík svo grátt, að þegar Jakob Möller var sendur út í peninga- leit í haust sem leið, fór hann algerða fýluferð, eins og Eggert Claessen, sem stuttu áður var í peningaleit fyrir „veðdeild“ sína. Báðum var svarað því, að hvorki „veðdeild“ E. Cl. né rafveita Zimsens gæti fengið lán nema íslenzka ríkið ábyrgðist víxilinn. Nú var málið komið í nýtt horf. Framsóknarmexm í Reykjavík vildu virkja Sogið fyrir Reykja- vík og Hafnai-fjörð, ef það væri kleift fyiir bæjai’félögin án afar- kosta. En nú er beðið um meira. íslenzka ríkið verður að eyða 7 miljónum af lánstrausti sínu fyrir rafmagn handa tveimur bæjarfélögum. Og í kjölfar þess átti svo að koma leiðslu um allan Reykjanesskagann, til ‘ Vest- mannaeyja og jafnvel vestur í Ólafsvík og Sand, eftir því sem Jón Þorláksson lýsti yfir í ræðu í þessum tveim f jarlægu kauptún- um. Þessar leiðslur var óhugs- nálið andi að gera öðruvísi en með ríkisláni, og hvað sem Reykjavík leið, var meir en vafasamt að þessar nýju leiðslur yrðu ekki landinu til byrði. 1 stuttu máli: Ef landið gekk í ábyrgð fym- rafveitu Reykjavíkur og Hafnar- fjarðar, þá varð það að ganga í ábyrgð fyiir öllum samskonar rafvii’kjunum sem aðrir kaup- staðii’, kauptún eða sveitir vildu gera. Og þegar svo var komið, mátti gera ráð fyrir, að fjár- málasjálfstæði hinnar íslenzku þjóðar væri orðið lítils virði. Eftir hinum lauslegu og miður ábyggilegu áætlunum verkfræð- inga íhaldsins myndi, auk þeirra 7 miljóna, sem landið á að út- vega í Sogið, verða að kosta hálfri miljón í leiðslur suður á Reykjanes, nálega tveim miljón- um í leiðslu til Vestmannaeyja, 300 þús. í leiðslu til Eyrarbakka, og væntanlega hálfri miljón í Akx-anesleiðslu. Vestur í Ólafsvík og Sand hlyti leiðslukostnaður að skifta miljónum. Nú er víst að gætnir menn í öllum þessum kauptúnum telja alveg ómögulegt að hlutaðeigandi þorp geti staðið undir þessum stofnkostnaði, hvað þá ef hflm? yrði meira, auk alls annars kostn- aðar sem af þessari íramkvæmd myndi leiða. Á öllum þessum stöðum er málið gersamlega ó- undirbúið og enginn áhugi fyrir því, nema sá sem Sigurður Jón- asson hefir skapað í Reykjavxk hjá nokkrum hiuta verkamanna. Abyrgó ríkisins fýrir 7 miljón- um handa Reykjavík myndi minnka sem því svarar láns- traust ríkisins. Ofan á það bætt- ist svo ef áðurneínd kauptún íæru að heimta i’afmagn lagt til sín. Þá yrði að taka til þess ný og stór lán. Og um hverja slíka einstaka veitu mætti fullyrða að hún bæri sig lakai’ en Reykjavík- uiveitan. En fordæmið væri gefið, og allt að því loforð fi’á socialistum og íhaldsmönnum að leiða rafmagn til allra þessai’a staða. Og svo kæmu önnur kauptún og aðrar bygðir í kjölfarið. Allt væri heimtað af ríkinu. Ný lán, nýjar ábyrgðir, meðan nokkur vildi lána íslandi. Erlendis er það óþekkt, að rík- in gangi á þann hátt sem hér um ræðir, 1 ábyrgð fyrir fram- kvæmdum sveitarfélaga, alveg eins og það er óþekt, að ríkin gangi í ábyi-gð fyrir veðdeildar- lánum, eins og því sem Jón Þorl. tók 1926—27, alls um 7 miljónii’ ki’óna. Þegar erlendir fjármála- menn sjá að íslenzka ríkið geng- ui’ í ábyrgð fyrir hverju láninu á fætur öðru, og að sendiboðar eru út um allt, að slá peninga til einstakra fyrirtækja upp á ábyi'gð i’íkisins, þá verður þetta til að skapa þá trú, að íslenzka ríkið sé einskonar undur meðal ííkjana, það kunni engu manna- siði í fjármálaefnum. Tvö dæmi skulu tilgreind um almenna þýðingu þessa máls. Tveir eða fleiri íhaldskaupmenn í Reykjavík blönduðu sér alveg ó- tilkvaddir og á miður menningar- legan hátt í það, að fara að út- vega íslenzka ríkinu lán, í sam-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.