Tíminn - 19.09.1931, Blaðsíða 3
TlMINN
207
Tapast hafa:
1. Brúnn hestur 13 vetra mark: biti framan fjöður aftan hægra, biti
aftan vinstra.
2. Rauður hestur 14 vetra mark: biti aftan hægra.
3. Grár — 7 — — — — —
4. Brúnn — 7 — — — — —
5. Jörp hryssa 7 — — — — —
Þeir sem kynnu að verða varir við þessi hross eru vinsamlega
beðnir að gjöra undirrituðum viðvart við fyrsta tækifæri.
Gröf í Miðdölum í Dalasýslu, 15. sept. 1931.
I Klemeaz Samúelsson.
PYRIRLIGGJANDI:
Vatnsleidslupipup glv.
Dælur. Vatnslirútar. Kranar. Sambandshlutir.
Atli. Vegna hinna geysi stóru innkaupa get eg selt
vatnsleiðslupípur með sérlega lágu verði.
Midstöðvaptæki svo sem: Miðstöðvareldavélar.
Miðstöðvar katlar og ofnar. Kranar. Pípur. Sam-
bandshlutir. Heitavatnsgeymar. Einangrunarefni.
Hreinlætistæki svo sem: Vaskar. Handlaugar.
Baðker. W.C. Kranar. Skólprör asfalterað.
Eldavélap svartar og email. Þvottapottar ofnar
Veggventlar.
Paramount veggþyljurnar. Þær eru eldtraustar
geta ekki undist eða bólgnað. Mikill vinnusparn-
aður ódýrar.
Þakpappi.
Isleifur Jónsson
Aðalstræti 9. Reykjavík Símar 1280 & 33
fisksðlisanlði Reykjauikir
hefír síma S20 og 2266 (Klapparstíg S).
heldur af því að það bjó í sams-
konar nágrenni við Kveldúlfs-
valdið og það hafði búið í við
Bessastaðavaldið í fyrri daga.
Landhelgisveiðar Kveldúlfs í
Garðsjónum eru ekki vinsælar nú
fremur en dagsverk fátæku bænd-
anna á konungsjörðunum forðum.
En Kveldúlfur hefir verið stór-
veldi í útgerð og fiskverzlun í
þorpunum á Reykjanesi. Þess-
vegna skyldi enginn ámæla kjós-
endum í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu, þó að þeir hafi ekki hing-
að til getað búið fulltrúa Kveld-
úlfs sömu viðtökur og Vestur-ls-
firðingar, sem eiga heima í öðrum
landsfjórðungi, gjörðu síðastliðið
vor. En atkvæðatala frambjóð-
anda Framsóknarflokksins, sem
þó var veikur í kosningabarátt-
unni og ekki gat sótt fundina,
sýnir berlega, að almenningur í
þessu héraði er ekki í sjöunda
himni yfir því að eiga þann
fulltrúa, sem allra þingmanna
ónýtastur — að Halldóri Steinsen
undanteknum — hefir verið fyrir
hérað sitt bæði innan þings og
utan. En það er á allra vitorði,
að tæplega muni svo fróður mað-
ur finnast, að hann geti bent á
eitt einasta mál, sem Ölafur
Thors hafi beitt sér fyrir í alvöru
eða komið fram kjördæmi sínu til
hagsbóta. Hingað til hefir um-
bótaþrá þessa málhvata manns
fundið fullnægingu í því að græða
fé ó fiskinum, sem kjósendur
hans reita saman í slóð togar-
anna við Reykjanes. En nú eru
fullar horfur á, að sjómennimir
suður þar, vilji líka fá að vita,
hvað þeir hafi grætt á fulltrúa
sínum á Alþingi.
Allir forsetarnir bændnr.
Eins og skýrt hefir verið frá
hér í blaðinu var Einar Árnason
bóndi á Eyrarlandi kosinn forseti
sameinaðs þings í stað Ásgeirs
Ásgeirssonar. Fróður maður hefir
bent Tímanum á, að þetta sé 1
fyrsta sinn, sem allir forsetar Al-
þingis séu bændur. Þetta er líka
í fyrsta sinn, sem Framsóknar-
flokkurinn er í hreinum meira-
hluta á Alþingi og í fyrsta sinn,
sem allir bændur í þinginu, að ein-
um undanteknum, eru í Fram-
sóknarflokknum. Eini þingbónd-
inn, sem ennþá skipar sér í þann
flokk, sem sveitunum er fjand-
samlegur, er Pétur Ottesen þing-
maður Borgfirðinga.
Líklega næstl
Saga, sem hingað hefir borizt
norðan úr Skagafirði, hermir frá
svofelldum atvikum í sambandl
við atkvæðatalninguna á Sauðár-
króki s. 1. vor: Viðstaddir taln-
inguna voru frambjóðendumir
Brynleifur Tobiasson, Magnús
Guðmundsson og Steingrímur
Steinþórsson, en Jón á Reynistað
fann feigð á sér og reið heim, um
það leyti, sem talning byrjaði.
Framan af degi, meðan talin voru
atkvæði úr austurhluta sýslunnar,
var atkvæðatala Framsóknar-
manna stórum hærri, en þegar að
Sauðárkróki kom, réttist hlutur
Magnúsar svo, að hann mjakaðist
inn sem 2. þingmaður með 13 at-
kvæða meirahluta. Þegar séð var
um úrslitin, reis Brynleifur
Tobíasson úr sæti sínu og óskaði
hinum nýkjörnu þingmönnum til
hamingju með sigurinn. Varð M.
G. þá fár við, og fórust honum
orð eitthvað á þessa leið: Mér
þarf ekki að óska til hamingju,
því að ég er fallinn (átti víst við
að hann væri fallinn úr 1. þing-
sæti kjördæmisins niður í 2.).
„Ekki núna, en líklega næst“,
svaraði Brynleifur. Er Skagfirð-
ingum minnisstætt svar Bryn-
leifs og ógleði Magnúsar.
Liðsauki templara.
Valtýr Stefánsson hefir í blaði
sínu 17. þ. m.tekið upp þykkju
fyrir templara og þykir þeim ekki
vera nægilegur sómi sýndur í
meðferð útvarpsfrétta. Það hlýt-
ur að vekja eftirtekt er templar-
ar hljóta liðsauka úr þeirri átt og
mun ekki þykja spá góðu um
framtíð Goodtemplarareglunnar.
Stjórnmálaflokkur sá, er Valtýr
hefir ritað fyrir undanfarin ár
vottar með dapurlegri reynslu
sinni um það, hversu liðsemd Val-
týs hefir gefist. — Sjálfur hefir
Valtýr ávalt ofsótt og svívirt
hverja viðleitni löggjafar- og
framkvæmdavaldsins um að koma
í veg fyrir ofnautn áfengis. Þeg-
ar slíkir menn, sem sjálfir
ganga með hrikalegustu gler-
augu, til þess að dylja glóðaraugu
sín og músabrynningar, fara að
viðra sig upp við templara, þá
hefir fólk sannarlega ástæðu til
þess að óttast um örlög Good-
templarareglunnar. K.
Valtýr á Laugarvatni.
I tilefni af sögunni um Laug-
arvatnsför Valtýs og frægð þá,
sem gleraugu hans hafa hlotið
(Valtýr sjálfur hefir aldrei orðið
frægur), birtir Vísir sl. fimmtu-
dag svofellda klausu:
„— — Einum hinum allra-montn-
asta, lítilmótlegasta og spaugilegasta
framsóknarsnáða*) varð svo mikið
um, er Jónas leyfði honum af náð
sinni og höfðingdómi að „ganga i
vatnið" þar á staðnum, að hann
gleymdi að taka af sér gleraugun og
lenti í mikilli mæðu og basli. — —
— Að lokum krafsaði hann þó af
sér gleraugun og skreiddist á þurrt
land við lítinn orðstír" - ,
Eftir þessu hefir Valtýr ekki
dottið í laugina, þó að honum
hinsvegar, eftir því sem blaðið
skýrir frá, hafi mjög förlast
sundfimin. Til sanns vegar má
það færast, að kalla Valtý
„snáða“ í Framsóknarflokknum,
því að hann náði þar aldrei mikl-
um þroska og hröklaðist til í-
haldsins á meðan Framsóknar-
flokkurinn var á bernskuskeiði.
En óþarfi er það af Jakob Möll-
er að núa Valtý um nasir flokks-
svikum hans og liðhlaupi. Sjálfur
ætlaði Jakob að selja íhaldinu
heilan stjórnmálaflokk, en Val-
týr gat ekkert selt nema sjálfan
sig. Hefir oft verið þagað um
meiri kaup.
Frá „vesturvígstöðvunum“.
Eins og kunnugt er, heldur í-
haldið í Reykjavík uppi einskonar
pólitískum sunnudagaskóla fyrir
„heldri manna böm“, og gengur
sú stofnun undir heitinu: Félag
ungra sj álfstæðismanna í Reykja-
vík (öðru nafni Heimdallur). öl-
afúr Thors, Jón Þorláksson og
Magnús „dósent“ halda mánaðar-
lega vakningarsamkomur meðal
þessara ungu sálna. Stefnuskrá
félagsins er mjög í anda sósía-
lista (því að „fræðararnir“ vita
að lítið spilltum unglingum býð-
ur ósjálfrátt við íhaldsstefnunni
eins og hvítvoðungi við „skraa“-
tóbaki) nema niðurlagið, sem
hljóðar um það, að félagið ætli
sér að framkvæma sósíalismann
með því að láta kjósa íhalds-
menn á þing! Tvö „smárit“ hef-
ir gamla íhaldið kostað, sem ætl-
uð eru ungdóminum til frekari
uppfræðingar: Vikublaðið Heim-
dall (sem er á stærð við Norður-
ljósið og flytur einkum lögfræði-
legar skýringar á stjórnarskránni
og smásögur um lagabrot Fram-
sóknarflokksins) og pésann, sem
Páll Kolka skrifaði um Helga á
Kleppi. Var félagið látið dreifa
þessum bókmenntum út um land-
ið fyrir landskjörið í fyrra í 9000
eint. Eitt af því sem Heim-
dellingum er trúlega innrætt,er að
drengskap í opinberri baráttu sé
hvergi að finna nema í íhalds-
flokknum. Mestu hátíðisstundir í
„skólanum“ eru, þegar elztu
„bræðurnir“ fá að vitna um
„drengskapinn“. Birtist vitnis-
burður þeirra stundum í Mbl. á
eftir. Svo var um ræðu, sem
Guðni nokkur Jónsson kvað hafa
flutt snemma á sauðburði í vor,
þar sem hinir ungu hermenn
voru hvattir til að temja sér
*) Leturbr. Tímans.
fagran vopnaburð eins og for-
ingjar ■ íhaldsflokksins jafnan
hefðu g j ört (!!). önnur grein,
svipuð er nú að koma út í Mbl.
eftir dreng, sem heitir Jóhann
Möller og er norðan af Sauðár-
króki. Sem dæmi um ástundun-
arsemi þessa unglings er það
sagt, að hann hafi tileinkað sér
málróm Jóns Þorlákssonar svo
vel, að Jóni sjálfum þyki nóg
um. Sagt er, að suma íhaldsfor-
eldra, sem muna þann tíma, þeg-
ar „foringjarnir“ skiftust í
Heimastjórnar- og Sjálfstæðis-
flokk, setji stundum hljóða,
þegar unglingarnir eru að tala
um „drengskapinn“ í heimahús-
um. En maðurinn, sem valinn
hefir verið til að veita fyrirtæk-
i inu forstöðu, er enginn aukvisi í
; „drengskapnum“, því að það er
hvorki meira né minna en Thor
Thors, hetjan frá „vesturvíg-
stöðvunum“!
Nýr rithöfundur.
Maður, sem heitir Victor
Helgason og segist vera formaður
Veggfóðrarafélagsins hér í bæn-
um, hefir í Vísi 17. þ. m. veitst
að ritstjóra Tímans af mikilli
vanstillingu út af greinarkorni
sem birtist hér í blaðinu í sum-
ar viðvíkjandi dúkalagningu í
Landsspítalanum og nýju síma-
stöðinni. Þó að Tíminn hafi enga
sérþekkingu á gólfdúkalagningu,
verður ekki hjá því komizt, jafn-
vel þó reiði Victors Helgasonar
liggi við, að benda á eftirfar-
andi atriði: Að tilboð Sigurðar
Ingimundarsonar var lægra en
tilboð Victors og því eðlilegt að
hann yrði látinn setja fyrir
þeirri vinnu, sem hann gat annað,
að dúkalagning, sem Victor lét
framkvæma í . Landsspítalanum
hefir reynst talsvert ábótavant
og að tilraunir, sem gjörðar hafa
verið í nýju símastöðinni með
„rúgsigtiklísturlími“ benda á að
ekkert sé athugavert við það, ef
rétt er með það farið. Kunnugur
maður hefir tjáð Tímanum, að
Victor muni ekki hafa kunnað
að fara með þetta lím, e. t. v. af
óvana, m. a. notað of lítið þurk-
efni. Málsókn er Victor auðvitað
heimil, hvenær sem hann telur
sér þörf á, og mælist Tíminn á
engan hátt undan slíkum að-
gjörðum af hans hálfu. En ef
dúkalagning hans er álíka vönd-
uð og munnsöfnuður hans í á-
minnstri Vísisgrein, skiftir það
víst litlu máli, hvort það er
„rúgsigtiklísturslím“ eða eitt-
hvert annað lím, sem honum er
fengið í hendurnar. Það er mis-
skilningur hjá V. H. að smágrein
sú, sem ýft hefir skapsmuni
hans, hafi komið út 7. septem-
ber. Greinin birtist í blaðinu
snemma í ágúst, og hefir hann
því haft röskan mánuð til um-
hugsunar.
Niður með dýrtíðina!
Sem betur fer, virðast skrif
Tímans um dýrtíðina í Reykjavík
og viðleitni sú, sem hér er hafin
til kaupfélagsmyndunar vera í
þann veginn að byrja að hafa
áhrif á verðlagið í bænum. Fisk-
sölusamlag Reykjavíkur, sem
hefir á boðstólum fisk frá sam-
vinnufélagi smábátasjómanna og
varðskipinu Þór, tók til starfa
nú í vikunni og hefir nú þegar
lækkað fiskverðið stórkostlega
eins og frá er skýrt á öðrum stað
í blaðinu. Önnur verðbreyting,
sem orðið hefir nú í vikunni, er
verðlækkun á brauði um 20%.
Er enginn vafi á, að sú verð-
lækkun er knúin fram beinlínis
af þeim opinberu umræðum, sem
orðið hafa um brauðverðið og því
umtali, sem orðið hefir um að
gjöra sérstakar ráðstafanir til að
létta af almenningi í Rvík ein-
hverju af hinu okurháa brauð-
verði. Engin önnur ástæða getur
verið til þess, að brauðbúðirnar
hafa lækkað verðið svo stórkost-
lega einmitt nú, því að vinnu-
laun eru hin sömu og áður og
ekki sú lækkun á kornvöru í inn-
kaupi, að hún gefi tilefni til
svo skyndilegrar lækkunar. Þau
tvö atriði, sem hér hefir ver-
ið bent á sýna áþreifanlega, að
hægt er að draga úr dýrtíðinni.
Hér má ekki láta staðar numið.
Allar lífsnauðsynjar almennings í
Reykjavík verða að lækka. Það er
lífsnauðsynjamál bæjarins. Það
er mál allrar þjóðarinnar, sem
nú ber sameiginlega afleiðing-
arnar af hinu háa reykvíska
verðlagi . Það er réttlætismál,
sem hinar vinnandi stéttir eiga
að bera fram til sigurs með fé-
lagslegum samtökum og sleitu-
lausri baráttu við þau öfl, sem
til tálmunar eru heilbrigðu við-
skiptalífi.
Eldsvoði á Hólmavík. Að kveldi
17. þ. m„ eftir háttatíma, kom upp
eldur í húsum kaupfélagsins á
Ilólmavik. Kviknaði út frá raf-
magnsþræði í íbúð kaupfélagsstjór-
ans, Sigurjóns Sigurðssonar. Vindur
var hraðhvass af suðvestri, svo að
eldurinn læst.i sig um húsin á svip-
stundu, og björgun reyndist ókleif,
en hitt tókst, að hindra frekari út-
breiðslu eldsins um þorpið. Öll hús
félagsins brunnu nema eitt, sem er
á öðrum stað, ennfremur mestallar
vörubirgðir þar, þ. á m. 80 sekkir
ullar og mikið af fiski. Úr ibúð
kaupfélagsstjórans varð engu bjarg-
að nema lítilsháttar af rúmfatnaði,
og slapp fólkið með naumindum út
á náttfötum einum. — Húsin, sem
voru úr timbri, voru vátryggð,
sömuleiðis útlendar vörur, en inn-
lendar vörur óvátryggðar. Innan-
stokksmunir kaupfélagsstjórans voru
óvátryggðir. Afleiðingar eldsvoðans
eru því mjög tilfinnanlegar bæði
fyrir félagið og kaupfélagsstjórann.
Garðar porsteinsson og Einar
Kristjánsson sungu, i Nýja Bíó á
fimmtudagskvöldið var. Var hvert
sæti skipað og meira til. Söng hinna
ungu stúdenta var ágætlega tekið og
voru þeir „klappaðir fram“ hvað
eftir annað. Ungfrú Anna Péturss
lék á hljóðfærið. Eftir því sem blað-
ið hefir frétt, syngja þeir Garðar og
Einar aftur á sunnudaginn. Verður
það í síðasta sinn, sem bæjarbúum
gefst kostur á að hlýða á söng þeirra
í haust, því að þeir eru á förum
til útlanda nú á næstunni.
AUGLÝSING.
Ljósberinn heitir barnablað, sem
komið hefir út nú í 10 ár í Rvík.
Hann kemur út á hverjum laugar-
degi í stóru áttablaðabroti. Hann er
kristilegt barnablað, sem vill með
fallegum hugleiðingum við barnahæfi
og skemtilegum sögum vekja og
glæða alit hið góða og göfuga hjá
börnúnum. Blaðið kostar aðeins fimm
krónur um árið, 52 tölublöð. Og geta
menn fljótt séð hvað það er ódýrt.
Allir, sem senda pantanir að næsta
árg. (1932) fá blaðið fritt sent frá 1.
okt. nú í haust til nýárs (12 tölu-
blöð og þar í fallegt jólablað).
Foreldrar! Reynið Ljósberann eitt
ár handa börnunum yðar. Skrifið
strax til afgreiðslunnar í Bergstaða-
stræti 27. Pósthólf 304. Reykjavík.
Heimilisblaðið hefir nú komið út i
samfelt 20 (um næstu áramót). það
kemur út í stóru sextán blaða broti
einu sinni á mánuði og stundum í
tuttugu síðum og kostar fimm kr.
árgangurinn. pað flytur aðallega út-
iendar fréttir og fróðleik mcð mynd-
um og fallegar, spennandi sögur.
„Örlög ráða“ heitir aðalsagan, sem í
því birtist núna. — það mun og vera
eina íslenzka blaðið, sem flytur hann-
yrðir með myndum handa kvenfólk-
inu. — Falleg sögubók, sem er 363
bls. að stærð fylgir í kaupbæti, ef
blaðgjaldið er sent og 50 aurar að
auki í burðargjald.
Reynið Heimilisblaðið í eitt ár. —
Sendið pöntunina til afgreiðslunnar í
Bergstaðastræti 27. Pósthólf 304. Rvík.
Grammófónplötur
Ef ykkur þykja falleg lögin sem
spiluð eru i Útvarpið, þá skrifið upp
númerið á plötunui og sendið okkur
pöntun. — Ný og skemmtileg fiðlu-
plata, sem allir þuría að eignast. —
Vörur sendar gegn póstkröfu um allt
land.
KATRÍN VIÐAR,
hljóðfæraverzlun. Lækjargötu 2.
Reykjavík.
Sigurður Kristinsson forstjóri kom
úr utanför um síðustu helgi.
Hallgrímur Jónasson kennari í
Vestmannaeyjum er fluttur til Rvik-
ur og er settur kennari við Kennara-
skólann.