Tíminn - 07.01.1933, Qupperneq 3

Tíminn - 07.01.1933, Qupperneq 3
TlMINN 3 Umsóknir um stypk H1 skálda og lisíamanna, sem veiHup ep á fjáplögum ápsins 1933 (kp. 5000,00) sendisf Menntamálapáði íslands á skpifstofu pitapa þess, Rusfupstpæfi 1, hép í bæ, fypip 1. febpúap 1933. Aluminíumhrifur og hrífuhausar verða aðeins búnir til eftir pöntunura. pið, sera viljið eignast þessi áhöld fyrir jiæsta sumar, ættuð að gera pantanir sem fyrst. Snúið yður til kaupfélags, kaupmanns eða beint til þess, sem býr þær til. það er IÐJA, Akureyri (Sveinbjörn Jónsson). Tilkynniug- Hórmeð tilkynnist heiðruðum viðslciptavinum, að ég hefi selt verzlun mína Vaðnes, þeim Erlendi Péturssyni fulltrúa og Ólafi Nielsen verzlun- armanni, og reka þeir verzlunina undir sama nafni. Um leið og ég þakka mínum mörgu viðskiptavinum fyrir viðskiptin, vænti ég þess, að þeir sýni hinum nýju eigendum sömu velvild og traust (jg þeir hafa sýnt mér. Virðingarfyllst, Viggo Þorsteinsson. Samkvæmt ofanrituðu erum við undirritaðir orðnir eigendur verzlun- arinnar Vaðnes, og munum vér kappkosta, að verzlunin hafi alltaf vand- aðar og góðar vörur eins og að undarförnu. Enn fremur sjá um af fremstá megni, að verzlunin sé ætíð birg af öllum þeim vörutegundum er heyra til matvöruverzlun. Vonum við að njóta áframhaldandi viðskipta hinna mörgu við- skiptavina verzlunarinnar. Jafnframt tilkynnist hér með að hr. Hjörtur Hansson umboðssali, er verzlunarstjóri verzlunarinar og hefir prókúru umboð fyrir hana. Með vinsemd og virðingu, Erlendur Pétursson. Ólafur Nielsen. Hvað kosta blððin? Eftir þvi sem kunnugir telja kost- ar Mbl. þjóðarbúið (be.inlínis) 200 þús. kr. árlega, Vísir 150 þús., Al- þýðublaðið 100 þús. og Tíminn 35— 40 þús. — þessi tvö bæjarblöð íhalds- ins kosta þessvegna ca. 350 þús. kr. eða tífalt meira en Tíminn. Lang- samlega mestur kostnaðurinn við þessi blöð leggst á fólk sem ekki hirðir um að styðja íhaldsstefnuna. — Aug- lýsingakostnaðurinn tekst af al- mennri neyslu í landinu. Kaupend- ur Tímans eru beðnir að athuga það, að hinn litli kostnaður við Tímann þarf að gjaldast skilvíslega á ári hverju, líka á kreppuárum. —..o--- s A Yíðavangí. Búnaöarmálastjórastaðan. Umsækjendur um búnaðarmála- stjórastöðuna voru fimm: Ámi G. Eylands, ráðunautur. Guðmundur Jónsson, kennari, Hvanneyri. Gunnar Árnason, landbúnaðarkandidat. Metú- salem Stefánsson, búnaðarmálastjóri og Sigurður Sigurðsson, búnaðar- málastjóri. — Meiri hluti stjórnarinn- ar, Tryggvi þórhallsson og Bjarni Ásgeirsson, ákváðu að núverandi búnaðarmálastjórar yrðu settir fyrst um sinn frá næsta nýári, með sömu starfsskiptingu og launakjörum og verið hefir og önnur ákvörðun ekki tekin að sinni. Minni hluti stjómar- innar, þ. Magnús þorláksson, lagði hinsvegai- til, að staðan yrði nú veitt. Nýi borgarstjórinm Borgarstjórakosning fór fram í bæjarstjórn Reykjavíkur 30. des si. Jón þorláksson, sem ekki hafði sótt um stöðuna, var kjörinn með at- kvæðum ihaldsfulltrúanna átta. Hin- ir sjö bæjarfulltrúarnir greiddu Sig- urði Jónassyni forstjóra atkvæði sitt. Mó fullyrða, að mjög margir hafi haft traust á Sigurði í þessa stöðu, þar sem hann er alviðurkenndur hæfileika- og dugnaðarmaður og hef- ir lagt sig fram allra manna mest til að gera Sogsvirkjunina mögulega á ódýrara hátt en óður var ætlað. — En sumir segja nú, að vel fari á því, eins og yfirleitt er farið með mál höfuðstaðarins, að heildsölu- verzlanirnar, sem mestan hagnað- inn hafa af því, að bærinn er til, skiptist á um að fara með borgar- stjómina! Áður lagði Helgi Magnús- son & Co. til borgarstjórann, en nú Jón þorláksson & Norðmann! „Mátt- arstólpar" framleiðslunnar hafa hvort eð er ekkert við það að at- huga, þó að heildsalar og fasteigna- braskarar haldi við dýrtiðinni í bæn- um, á sama tíma, sem framleiðslu- tækjunum fækkar og vinna fer þverrandi hjá öllum almenningi. J. p. og kaupfélögiu. MbJ. hefir stundum látið eins og það væri hlynnt því, að létt yrði undir skuldabyrðina með bændum. En auðsætt mál er það, að fé sem til þess þarf, verður að taka einhvers- staðar. þjóðfélagið í heild verður að leggja það fram. Að tala um hjálp í þessu efni, án þess að gera sér grein fyrir, hvaðan hún geti komið og eigi að koma, er ábyrgðarleysi og barnaskapur. Nú þvertekur Mbl. fyrir það, að neitt af þessari hjálp megi koma frá eyðslustéttum bæj- anna. En hverjir geta létt undir með öðrum, ef ekki þeir, sem hafa efni á eyðslulifi? — Nú hefir hinn nýi borgarstj óri Reykj avíkuríhaldsins, stórkaupmaðurinn Jón þorláksson, tekið til máls um þetta efni í nýárs- boðskap sínum í Morgunblaðinu. J. þ. segir, að þeir, sem hafi lánað, eigi að gefa eftir skuldirnar. Flestir munu skilja, hvert miðað er með þessum orðum. Kaupfélögin, sem hafa útvegað bændum nauðsynja- vörur að láni í erfiðleikum eða létt undir með framkvæmdir, eiga að gefa eftir. þau eiga ekki að fá skuld- ir sinar greiddar og fara á höfuðið. — þá myndi rísa upp á ný gullöld „Verzlunarólagsins" og Bjöms Krist- jánssonar. — Séu orð íhaldsborgar- stjórans í Reykjavík rétt skilin á þessa leið, sem allt bendir til, mega þau heita í meira lagi köld nýárs- kveðja til samvinnumannanna í sveitum landsins. En það sannast á þeim Mbl.-mönnum, að ekki þýðir að leyna úlfshórunum. AfritiS. þegar lögreglustjórinn í Reykjavík kvað upp dóminn í máli M. G. og lét þeim blöðum, sem þess höfðu óskað, í té afrit af dómnum, ætlaði Mbl. að ganga af göflunum og taldi þetta óviðeigandi af dómaranum. En viti menn! Tæpum þrem stundar- fjórðungum eftir að hæstaréttardóm- urinn i sama máli var upp kveðinn, var búið að senda afrit af þeim dómi til blaðanna! þannig hefir hæstiréttur gert s.ig sekan um ná- kvæmlega sömu ósvinnu(!) og lög- reglustjórinn — að hafa afritið til- búið fyrirfram. Sannleikurimi er sá, að bæði lögreglustjórinn og hæsti- réttur hafa í þessu tilfelli gert alveg rétt. — þá hefir Mbl. nú í síðustu skrifum sínum fárast mjög um það, að Tíminn hafi fengið aðgang að réttarprófunum, til þess að geta skrifað um málið eftir frumheimild- um. En þeir, sem viðstaddir voru málafærsluna i hæstarétti, sáu ekki betur en að Jón Kjartansson rit- stjóri Morgunblaðsins þá þeg- ar hefði afrit af prófunum fyrir framan sig i réttarsalnum. — Og núna í vikunni hafa birzt í Mbl. greinar um málið, þar sem tekið er upp úr prófunum, enda skiljan- iegt, þar sem einn af hæstaréttar- dómurunum hefir ritað greinarnár (nafnlausar). — En framkoma Mbl. er eðlileg. Slæmur málstaður verður að þrífast á slæmum rökum! Kommúmsminn á íhaldsheimilunum. Mbl. segir nýlega frá því að stúd- entaefni í Menntaskólanum hafi sam- þykkt tillögu í anda lcommúnista. Ekkert skal um það fullyrt, hvort þetta er rétt. En ef svo er verður það að teljast ný sönnun fyrir hinu nána sambandi, sem ér á milli íhalds og kommúnista, því að það er alkunnugt að í menntaskólanum eru nálega allir unglingarnir úr íhalds- heimilunum. Fróðlegt væri að nokkrir leiðtogar íhaldsins, sem afi- að hafa kommúnismanum liðsauka á lieimilum sínum vildu í Mbl. gera grein fyrir afstöðu þeirra til bolsé- vismans. Má hér nefna nokkra af þessum velgerðarmönnum byltingar- stefnunnar: þorleif H. Bjamason, Guðmund sýslumann í Borgarnesi, Jónas héraðslækni og Hólfdán prest á Sauðárkrók, að ógleymdum bless- uðum Sigurði mínum á Veðramóti. þá er helzt svo að sjá sem hver einasti nemandi í skóla Helga Her- manns sé æstur kommúnisti. P. S. Ný heiðursfylking. Hæstiréttur hefir fengið marga vaska menn til að rita um ágæti sitt í ilialdsblöðin. Eru þessir fremstir: Garðar þorsteinsson, Jó- hannes Jóhannesson, Einar Amórs- son og Magnús Stormsritstjóri. Hafa þeir eldri dulið nöfn sín, en Garð- ar og Magnús gengið fram fyrir skjöldinn. Nú bætist í hópinn mik- ill kappi, Guðmundur Benediktsson, fyrrum ritstjóri að hinu sjálfdauða blaði Sig. Eggerz, og ritar sá í Vísi. Virðist þarna vera ný „heiðursfylk- ing“ á uppsiglingu. Hvað gera lýðfrjálsu löndin? í Ameríku og Sviss kýs fólkið dómara sína eins og aðra trúnaðar- menn og hefir gert það öldum sam- an og gefizt vel. Sú tilhögun er sprottin af frelsisþró borgaranna í lýðstjórnarlöndunum. Einn frægur íslendingur, Guðmundur Grímsson, er þannig nýendurkosinn með 30 þús. atkv. í hæstarétt í sínu ríki, en í því eru 600 þús. 'íbúar. Sennilega liggur þarna fordæmi, sem Alþingi getur stuðst við, þegar það -tekur fimmtardómsfrumvarpið næst til meðferðar. Almenningi ætti að vera ljúft að endui'kjósa Pál Einarsson og Eggert Briem nokkrum sinnum, að ógleymdum Einari Arnórssyni. það hlyti að vera ánægjulegt fyrir þessa menn að finna aðdáun borg- aranna endurspeglast í vel heppn- aðri endurkosningu, þar sem fólkið veitti þeim trúnað sinn. Gfestur Ingjaldsson. „Stórþvotturinn“. Eitt af íhaldsblöðunum hérna í Rvík liefir birt stóra skopmynd af 1-iiðurstöðu Behrensmálsins. Réttvís- in er þar stórskorin konumynd, með andlitsmóti dómsforsetans. Hún hefir kastað frá sér sverðinu og metaskál- unum út í horn eins og hlutum, sem eklci þarf að nota. Sjálf hefir hún bundið fyrir augu og eru það Hvað geta Islendingar gert til að létta kreppunni af? Margt, en fátt fremur .en að nota alltaf íslenzkar vörur þegar hægt er, og að ferðast alltaf og flytja allt með íslenzkum skipum. einu menjar frá gömlum hugmynd- um um réttvísina. í stórum bala á miðju gólfi liggur M. G. og er býsna óhreinn. Allt um kring eru efni og áhöld til að ná af grómteknum óhreinindum. þar eru baukar með persil, wim, rinso, sápa frá Hreins- verksmiðju, vikur, benzín frá Shell (mjög vel við eigandil), chlor og og fjöldi annara efna, sem notuð eru í samskonar skyni. Réttvisinni býður auðsjóanlega við hlutverkinu og er fýluleg í yfirbragði og tekur sem lauslegast í hárið, til að koma ekki of nálægt viðfangsefninu. Er auðséð, að þessum virðulega kven- manni er skipað að standa í þessum leiðinlega stórþvotti, en að þrátt fyrir öll hjólpartækin og dugnaðinn er Magnús jafn óhreinn og fyr. — þessi mynd sýnir innstu skoðun í- haldsmanna um M. G. — þeir, sem að myndinni standa, vita að engir heíðu keypt blaðið, ef M. G. og Behrens hefðu verið sýndir eins og forkláraðir englar í hví-tum hjúp. Al- mannadómurinn hefir haft sín áhrif á þessum stað sem öðrum. B. P. Helgi Tómasson og almennings- álitið. Hvar sem fréttist.er sama fordæm- ingin á íhaldsflokknum í sambandi yið Ilelga Tómasson. Dæmi um þetta er tillaga, sem samþykkt var á ílokksfundi Framsóknannanna í liér- aði fyrir norðan skömmu fyrir jól: „Fundurinn vítir liarðlega þær gjörðir dómsmálaráðherra að setja Helga Tómasson i læknisemhættið á Kleppi, þar sem honum var áður réttilega vikið frá starfi sem óhæf- um, enda þótti hann heldur ekki hæfur til sama starfs í öðru landi. Krefst fundurinn þess, að Helga Tóm- assyni verði þegar vikið úr embætt- inu aftur“. jictta virðist vera dómur heiðar- legra borgara um land allt.. „Jafnir fyrir lögunum“. Blað socialista á ísafirði vill halda því fram, að J. J. hafi farið í mann- greinarálit um framfylgd laga eitt- livað svipað og eftirmenn hans. Skut- ull telur sig geta nefnt eitt dæmi. Soeialista hafi verið rænt í Kefla- vík og engin eftirmál orðið, og jafn- gildi það þvi, er íhaldið rændi Ilannibal i Bolungavík og Socialist- ar Sveini Benediktssyni á Siglufirði. Timinn hefir aflað sér upplýsinga um, að þessi árás Skutuls á J. J. er alveg rakalaus. Hann fól sýslu- manninum í Keflavik að rannsaka nauðungarflutning Axels, og þegar sýslumaður sendi skýrslu um frum- rannsókn sína, lagði stjórnarráðið fyrir hann, að rannsaka enn ítarleg- ar málið, áður en það gengi til dórns. Sömuleiðis rannsakaði lög- reglustjórinn í Rvík allar kærur Iíeflvíkinga ó hendur leiðtogum-socia- lista í Rvík. En þegar íhaldið tók við dómsmálunum, stakk það þess- um málum öllum undir stól, eins íslandsbankamálinu, síldarmálinu, Knútsmálinu o. fl. — Skutull hefir gert Framsóknarfl. greiða með því að reyna að finna dæmi um yfirhilm- ingu lögbrota hjá fyrverandi stjóm. Munurinn á réttarfarinu sézt glögg- legar við það. ísafold og pósthúsið. Nýlega kom að sögn sendimaður frá ritstjórum Morgunbl. niður á pósthús og fór hann þess á leit við póstmenn, að þeir veittu „ísafold" móttöku eftir lokunartíma pósthúss- ins, en póstmenn munu hafa færst undan því, þar eð vinnudagur þeirra er að jafnaði nógu langur og þó einkurn er jólapóstar fara eins og hér stóð á, morguninn eftir. Var blaðið að sögn ekki tilbúið fyr en á miðnætti og urðu því póstmenn að veita því móttöku þá, sökum þess að póstmálastjóri óskaði fastlega eftir því, vegna Jóns Kjartanssonar rit- stjóra tengdasonar síns. Urðu því póstmenn að vinna við sundurlesn- ingu blaðsins fram á nótt. Morgun- blaðið lilýtur því að verða krafið greiðslu á þeirri upphæð er pósthús- ið hefir hér greitt að ástæðulausu fyrir eftirvinnu til póstmannanna. Nema Morgunbl. ætlist kannske til þess að pósthúsið borgi. Dánardægur Á gamlársdag s. 1. andaðist Guð- mundur Bjarnarson að heimili sínu í þórhöfn í Færeyjum. Hann var gamall maður, á áttræðisaldri, ætt- aður frá Haga í Aðaldal, en fluttist ungur austur í Múlasýslu, en þaðan til Færeyja og gekk að eiga færeyska konu, Malvínu að nafni. Eiga þau nokkur mannvænleg börn, uppkom- in. — Um skeið var Guðmundur lög- regluþjónn í þórshöfn, en stundaði síðan daglaunavinnu, þar til í fyrra- vetur, að hann veiktist af sjúkdómi þeim, er dró hann til bana. Hann var meðalmaður á vöxt, en orðlagður kraftamaður, og heyrði ég tekið til dugnaðar þess og seiglu, er hann sýndi til hins síðasta. Jafnan talaði Guðmundur islenzku, við hvem sem liann átti, og blandaði hana furðu litið færeysku, svo sem löndum hætt- ir þó mjög til, þeim er langdvalir liafa í eyjunum. Enda las hann alltaf mikið íslenzkar bækur og blöð og fylgdist vel með því, sem gerðist hér heima. Aldrei varð ég var við mik- inn áhuga á færeyskum stjórnmálum hjá honum, én í íslenzkum stjóm- málum var hann logandi heitur Framsóknarmaður. Guðmundur heitinn bjóst við dauða sínum, er ég heimsótti hann síðast, í ágúst s. 1. Bað hann mig þá bera kunningjum „heima“ kveðju sína og geta láts síns í „Tímanum“. Er hvort tveggja gert hér með. Aðalsteinn Sigmundsson. ----o---- Framsóknarfélag Reykjavíkur held- ur fund í Sambandshúsinu á mánu- dagskvöldið kemur, og hefst hann kl. 8 síðdegis — en ekki kl. 8y2 eins og venjulegt er. Jónas Jónsson hefur umræður um skuldamál bænda. Hjúskapur. Á gamlársdag s. 1. voru gefin saman í hjónaband af lög- manni ungfrú Níelsina Ósk Daníels- dóttir og Sigurður M. Wíum, loft- skeytamaður. „í tröllahöndum", æfintýri fyrir börn og unglinga, eftir Óskar Kjart- ansson, hefir „Tímanum" nýlega bor- Bændur, sem kynnu að vilja lána ár og vötn til lax- og silungsveiða næsta sumar ættu sem fyrst að snúa séi' til Ferðaskrifstofu íslands í Reykjavík. Sigurþór verða alltaf ánægðir. Sendið nákvæmt mál, og við sendum gegn póstkröfu um land allt. Leví’s fötin farg bezt. Frækinn margnr í þeim sést. Sýnishornasafn þar flest. Sanng-jarnt verð ag gæði mest. Kirkjujörðin Sævarendi í Loðmund- arfirði er laus til óbúðar í næstu fardögum. Umsóknir, skriflegar, séu komnar til mín fyrir 1. marz n. k. Stefán Baldvinsson. FERÐAMENN sem koma til Rvíkur, fá her- bergi og rúm með lækkuðu verði á Hverfisgötu 32. Koiaverzlun SIGURÐAR ÓLAFSSONAR Símn.: Kol. Reykjavík. Sími 1933. Kaupið íslenzkar vörur! Styðjið innlendan iðnað! Ferðist alltaf með íslenzkum skipum! Gefið íslenzka bók, farbréf með is- lenzku skipi, íslenzka húsmuni, ís- lenzkt málverk eða einhvem góðan hlut unninn af íslenzkum höndum í tækifærisgjöf. izt. það er vel við hæfi barna, skemmtilega skrifað og prentað með skíru letri. Ritstjóri: Gísli Guðmundsson. Mímisveg 8. Sími 4245. Prentsmiðjan Acta.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.