Tíminn - 11.03.1933, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.03.1933, Blaðsíða 2
42 TÍMINN sunnanlands til Seyðisíjarðar og til baka sömu ieið eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði“. Viðvikjandi kjöttollsmálinu og samningum við Norðmenn, sem iagð- ir hafa verið fyrir þingið nú i vik- unni visast tii greinar Jóns Ámason- ar liór i biaðinu í dag. Jón þoriáksson og Jakob Möiier llytja frv. um, að rikið ábyrgist allt að 7 milj. króna íyrir Heykja- vikurbse, tii virkjunar Efra Sogs- ins. — Á þannig eftir frv. að binda virkjunina og ábyrgðina við Eíra Sogið, þó að raunsókn haíi sýnt, að miklu ódýrara er að virkja Sogið á öðrum stað. ÍJergur Jónsson og Jónas þor- bergsson tiytja írv. um bann við okri. Fimm þingmenu i ud. íiytja á- skorun til ríkisstjórnarinnar um innflutning karakulasauðfjár. Magnús Torfason iiytur frv. um fjölgun dýralœkna upp i fimin, og er œtlast til, að einn þeirra'sé bú- settur á Suðurlágfendinu. Jón þoriáksson iiytur irv. um að banna starísmönnum við stoínanir rikis, bæjarfélaga og sveitarfélaga, að taka við umboðslaunum fyrir sölu á vörum, sem seldar eru stofn- un þeirri, sem þeir starfa við. — „Öðruvisi mér áður brá", og furðar margan á siíku frumvarpi úr þeirri átt! Sveinn Ólafsson og Haraldur Guð- mundsson flytja írv. um greiðslu víxilskuida á Austfjörðum vegna Sildareinkasölu íslands 1931. Jónas Jónsson flytur frv. um eign- arnámsheimiid á ábúðar- og erfða- iesturótti á nokkrum býliun á Hval- eyri við Hafnarfjörð, til afnota fyrir Hafnarfjarðarkaupstað, tii garð- ræktar. Magnús Jónsson fiytur frv. um afnám laga frá 1920 um heimild fyrir landsstjórnina til að takmarka eða banna innflutning á óþörfum vamingi. En á þessum lögum er byggð reglugerðin um innliutnings- höit, sem gefin var út af fyrv. rík- isstjórn 23. okt. 1931. Steingr. Steinþórsson, Lárus Helga- son og Guðbr. ísberg flytja áskorun til ríkisstjórnarinnar um rýmkun á innflutningsleyfi fyrir sauðfé. Landbúnaðamefnd efri deildar flytur frv. til ábúðarlaga, eins og það var orðið eftir 3. umræðu í neðri deild i fyrra. Er þetta fimmta árið, sem þetta bráðnauðsynlega mál biður afgreiðsiu á Alþingi. Jónas Jónsson flytur frv. um bygging og ábúð á jörðum, sem eru almannaeign. Samkv. 1. gr. frv. skulu „allar jarðir og hjáleigur, sem eru eign ríkissjóðs eða kirkna landsins — — næst þegar þær losna úr ábúð, eða núverandi ábúandi óskar þess, verða byggðar á erfða- festu eftir lögum þessum. Undan- skildar eru þó þær jarðir, sem þeg- ar eru ákveðnar fyrir bústaði em- bættismanna, eða til annarar opin- berrar notkunar". — Afgjáld skal vera 3% af fasteignamati landsins og 2% af verði húsa. Leiguréttinn erfi fyrst elzti sonur en að honum frágengnum elzta dóttir, þá næst- elzti sonur o. s. frv. Tillaga um vantraust á núverandi dómsmálaráðherra, sem Héðinn Valdemarsson bar fram sl. mánu- dag í sambandi við Reykjahlíðar- kaupin hefir verið tvisvar til um- ræðu i sameinuðu þingi, en um- ræðum frestað .í bæði skiptin. Áskorun tii stjórnarinnar (flutt af Jónasi Jónssyni) um að leggja niður ríkisféhirðisembættið og fela störf hans Landsbankanum eins og áður var hefir verið vísað frá („til stjórnarinnar") í sameinuðu þingi,og fór atkvæðagreiðsla fram með nafna- kalli. Með niðurlagning embætisins greiddu atkvæði: Bergur Jónsson, Bjöm Kristjánsson, Haraldur Guð- mundsson, Héðinn Valdimarsson, Ingólfur Bjamarson, Ingvar Pálma- son, Jón Baldvinsson, Jónas Jónsson, Jónas þorbergsson, Steingrimur Steinþórsson, Sveinbjöm Högnason, Sveinn Ólafsson, Vilmundur Jónsson og þorleifur Jónsson — alls 14. Fjar- staddir vom fjórir: Einar Ámason, Guðm. Ólafsson, Magnús Torfason og Páll Hermannsson. Hinir 24 — íhaldsmennimir allir og 9 Framsókn- armenn — greiddu atkvæði með frá- vísun tillögunnar. Ritstjóri: Gísli GuSmundsson. Mimisveg 8. Sími 4245. Prentsmiðjan Acta. A víðavanyi „Ekki að skipta um menn í bændastétt“. Eysteinn Jónsson skattstjóri hefir manna bezt í fám orðum gert grein fyrir hinu réttmæta og eðlilega við- liorfi þjóðfélagsins gagnvart núver- andi erfiðleikum landbúnaðarins: „það á ekki að skipta um menn í bændastéttinni", sagði E. J. í út- varpsumræðunum 3. þ. m. En það er einmitt það, sem væri gert, ef þjóðféiagið þverskallist við að veita bændunum stuðning í vand- ræðum þeirra nú af völdum hins ófyrirsjáanlega og óvenjulega verð- falls. Eí bændur almennt yrðu látn- ir komast í þrot og hrekjast frá búum sinuni, myndi bústofn þeirra og jarðir lenda í annara höndum og hvaða tryggingu hefir svo þjóð- íélagið fyrir því, að hinir nýju „eigendur" myndu sjá íslenzkum landbúnaði betur borgið en þeir, sem nú reka búskap? Vitanlega enga. Árangurinn yrði aðeins sá, að uppfiosnað fólk úr sveitunum myndi hraðauka atvinnuleysishætt- una i bæjunum, og eftir stuttan tima yrði svo farið að gera ráð- stafanir til að flytja fólkið út í sveitirnar aftur, eins og talað er um í vestur-íslenzku greininni, sem birt var hér í blaðinu á dögunum. — Aðstoð til bænda nú er því eng- in ölmusa. það er skynsamleg og þjóðhagslega óhjákvæmileg ráðstöf- un, sem bændastéttin á kröfu til. Og slík aðstoð má ekki verða neitt handaliófskák. Hún á að vera myndarleg og réttlát, ekki miðað við, að einstakir menn geti grætt á henni fé, heldur að húr^ veiti þeim þúsundum manna, sem ennþá halda tryggð við sveitimar mögu- leilca til að afla sér sómasamlegs lífsviðurværis og v.era skilamenn á- fram eins og bændur hafa ávalt verið og vilja vera. Sjóðhneyksli Magnúsar Guðmundssonar. Við umræður um sjóðhneyksli Magnúsar Guðmundssonar í samein- uðu þingi í gær, sannaði J. J. að tilræði M. G. við ellihéimilissjóðinn hefði verið undirbúið frá því í sum- ar. þá hefði Vigfús Einarsson komið til hans, og beðið um umsögn hans um jörðina í sambandi við væntan- legt framboð á eigninni til Alþingis eða bæjarstjórnar. Kom V .E. með teksta, er hann hafði sjálfur skrifað, og var með rithönd hans, að vita hvort J. J. sæi sér fært að undirrita umsögn þessa. Hafði J. J. bent skrif- stofustjóranum góðlátlega á, að hon- um myndi verða lítið gagn að með- mælum, sem rituð væri með hans eigin hönd! Breytti J. J. þá orðalagi lítið eitt, en þóttist geta látið brð V. E. standa að mestu, og var plagg- ið siðan vélritað og undirskrifað. Nú kom í ljós, að hér hafði verið um að ræða launráð íhaldsins. M. G. hafði sent skrifstofustjórann með uppkast að meðmælum, eins og bezt gat hent- að þeim félögum m. a. með því að nefna, að þar mætti hafa gamal- menni. Tilgangurinn auðsýnilega sá, að reyna að binda J. J. fyrirfram til að ráðast ekki á sjóðránið. En hann kvaðst hafa verið því ákveðnari að berjast á móti þessu hneyksli, þegar hann vissi um það, og eyðileggja liin sviksamlegu kaup þeirra félaga. þar sem aðferð þeirrá var svo lævís. Minnti J. J. Magnús á viðureign þeirrá 1927 þegar M. G. var eigin- iega búinn að ræna Thorkilli-sjóðn- um lianda Oddfellowrcglunni, en J. J. bjargaði sjóðnum, svo að hann er enn óeyddur og starfar samkvæmt tilgangi sínum. Jafnframt sannaði J. J., að M. G. hefði lokið við sjóðrán sitt, rétt áður en dómur féll í Behr- ens-málinu, auðsýnilega til að enda geíið lieit. M. G. væri orðinn marg- saga í málinu; fyrst sagt H. V., að kaupin væru fullger, síðar, að hér væri um tilboð eitt að ræða. J. J. íullyrti að sjóðrán M. G. væri for- dæmt af öllum þingmönnum, og utanþingsmönnum — nema einum. það er íhaldinu til sóma að það af- sakar ekki M. G. i þetta sinn. X. Undarleg samþykkt. Blaðasölupiltur, sem hefir bækistöð sína á Lækjartorgi hefir skýrt veg- farendum frá því fullum rómi, að hætti erlendra blaðsala, hvert sé aðalefni blaða þeirra, er hann selur og hefir með þessu talsvert aukið stórborgarbrag Reykjavíkur. Jón þor- laksson bar fram þá tillögu á síð- asta bæjarstjómarfundi, að pflti þessum skyldi bannað að tala hátt meðan hann starfar að blaðasölunni á Lækjartorgi. Samþykktu flokks- menn Jóns þessa tillögu. Er þetta eina tillagan, sem Jón hefir borið fram siðan hann varð borgarstjóri og sem miðar að því að breyta bæj- arbragnum. — Pilturinn, sem beittur er þessum rangindum, heitir Jón þorsteinsson. Er hann sagður and- stæðingur nafna síns í stjórnmálun- um og þess því getið til, að hér sé um að ræða pólitíska ofsókn afhendi Jóns þorlákssonar! A. -----o---- Fiskmarkaðurinn á Spáni Eftir Helga P. Briem fiskifulltrúa ------------------- Frh. FiskmatiS. Menn kunna nú að segja sem svo að þetta eigi matið að sjá um. Siikt er misskilningur. þegar búið er að verka fiskinn og ganga frá honum mikið til, kemur matið til skjalanna og aðskilur góðan fisk og lélegan. Aðalþýðing þess er að það gerir verzlun með óséðan fisk mögu- lega, bæði innanlands og milli landa. það lijálpar fiskútflytjanda í Reykja- vík, sem ekki hefir séð fisk-sendingu, tii að selja hana, því hann getur síinað til viðskiptamanna suður við Miðjarðarhaf, að hann hafi svo mik- íð aí íyrsta flokks fiski og svo mikið af annars flokks, og spurt, hvað þeir vilji gefa fyrir hann. Kaupandinn veit um hverskonar vöru er að ræða af flokkuninni og getur keypt fisk- inn, þótt hann sjái hann ekki fyr en mörgum vikum seinna og ef til vill aldrei. Hann getur aftur farið til sinna \ iðskiptamanna og selt þeim fyrsta flokks fisk frá íslandi, sem þeir vita hvernig er og geta boðið í. Matið gerir fiskverzlun mögulega i því formi sem hún er nú. Er það afar þýðingarmikið, sér- staklcga fyrir smáframleiðendur úti um land. Stóru framleiðendurnir eru svo vei þekktir, að ef þeir flokkuðu sína vöru sjálfir, gætu þeir fengið það mat viðurkennt af viðskipta- mönnum sínum. Smáframleiðandi getur það ekki. Hans eina traust er matið og ef hann hefði það ekki, mundi hann eiga mjög erfitt með að seija vörui' sínar nema í umboðssölu, eða til manna, sem ferðast um til að kaupa fisk. Á hann þá mjög illtmeð að gæta réttar síns. Er það því allra hagur, að matið sé vandað sem allra bezt. Að sjálísögðu geta matsmennirnir cinnig kennt mönnum margt um verkun, og gera það, en aöalatriöi er það, að matið getur i sjálfu sér ekki verið nema neikvætt. það getur sett mikið af fiski í annan flokk og sýnt mönnum þannig mjög áþreifanlega, hver skaði er að því að verka ekki vei. En það nær ekki nema til loka- þáttar verkunarinnar. Mér hefir dottið i hug, hvort ekki væri reynandi að vekja áhuga fyrir bættri fiskverkun, með því að Fiski- félagið gengist fyrir sýníngum á helztu verstöðvum og verðlaunaði vel verkaðan fisk. þó verðlaunin væru ef til vill ekki mikil, mundi bæði heiðurinn og bættir sölumögu- leikar vera mönnum hvöt, — en meiri hvöt mundi það þó vera, að meira af fiskinum færi í fyrsta flokk cn áður. Mundi það verða gróði bæði þjóðarinnar og einstaklingsins. Mest yrði þó vert ef augu manna opnuð- ust fyrir því, að það svarar kostnaði að vanda framieiðsluna. þó ekki séu gefnar stórar fúlgur á búfjársýning- um, fyrir að eiga kjörgripi, hafa þær samt vakið bændur til umhugsunar um að það svarar kostnaði að vanda valið á búfé sínu og þannig auðgað þjóðina stórkostlega. Ef álitið er að sýningar gerðu gagn, má alltaf finna heppilegt fyrir- komulag. Mætti hafa það svo, að verðlaun væru veitt fyrir bezt verk- ; aða fisk í hverri verstöð, af þeim þurkstig-um, sem þar eru vanaleg- ust. Önnur verðlaun þyrftu að vera fyrir bezta heildarafla skips á hverri verstöð, er skiptust jafnt milli sjó- manna og landmanna, sem unnið hafa að verkun afla þess skips. þyrftu þaú að miðast við hverja vætt af afla, svo að togari fengi að sínu leyti jafnt og smærri fleyta, sem færri landmenn helði. Auk Alríkisstefnan Eftir Ingvar Sigurðsson. „Mannkærleikurinn, ástin til alls mannkynsins, veröa menn að skilja, að er mest virði og allt annað, jafnVel vitsmunir, gáfur og dugnaður, verður að lúta honum og fær því að eins gildi, að það starfi í hans þjónustu og hans anda“. (Bls. 116). Bókin fæst í bókaverzlunum. þessara verðlauna þyrftu að vera fimm heiðursverðlaun, svo aö ein fjellu til hvers yfirfiskimatsumdæm- is, fyrir bezta fisk þess umdæmis. þau þyrftu að vera svo veruleg, að menn munaði eitthvað um. Dómararnir yrðu að sjálfsögðu að vera fiskimatsmenn á næstu ver- stöðvum og yfii’fiskimatsmennirnir. Virðist mér sem þeir fái í einu gott tækifæri til eftirlits með fiskimats- mönnum sínum, á hverjum stað, og einnig tækifæri til að samræma álit sitt og undirmanna sinna á matinu. Á Norðfirði gætu dæmt með yfir- iiskimatsmanninum austanlands fiskimatsmenn t. d. frá Seyðisfirði, Mjóafirði, Eskifirði og Reyðarfirði. Á Eskifirði kæmi maður frá Norðfirði, eða Fáskrúðsfirði í stað þess, sem er þaðan af staðnum o. s. frv. Hygg ég að naumast gæti hjá þvi farið að góðar aðferðir breiddust út, en slæm- ar legðust niður, og að matið sam- ræmdist við sýningar. Ef yfirfiski- matsmenn frá öðrum umdæmum gætu verið með i förinni og forseti Fiskifélagsins, að minnsta kosti þar sem samgöngur eru beztar, mundu áhrif þeirra ná víðar og samrænm matið i meira en einu umdæmi. Er það og alvanalegt að dómneíndir séu skipaðar allt að 15 mönnum og er það kostur, að hafa sem flesta, svo að álit margra manna komi í ljós. Fengi Fiskifélagið, sem hefði yfir- umsjónina, síðan skýrslu frá yfir- fiskimatsmönnunum um það, hvern- ig fiskurinn væri á hverjum stað. þó að hún væri ekki birt fyr en að útflutningi þess árs loknum, ellegar alls ekki, ætti hún að vera til sýnis fyrir útflytjendúr og aðra, er leituðu að sérstökum eða sérstakri verkun. Fengist með þessu yfirlit yfir hvern- ig gæði fiskjarins væru, sem byggja mœtti á verðskráningu, sem nú er mikið til út í loftið. Einnig ætti hún að geta aöstoðað til þess að tryggja að fiskur farí á þann stað, sem hann er heppilegur fyrir. Á þvi hafa verið löluverð vandkvæði, enda erfitt um, þegar fiskurinn er tekinn til útflutn- ings eftir umsögn manna, sem ef til vill ekki vita hvernig fiskurinn á að vera handa þeim stað, sem hann er ætlaður fyrir, enda þótt bæði yfir- matsmaðurinn og kaupandinn viti hvemig hann þyrfti að vera. Kostnaðinn tel ég varla muni geta orðið nema brot úr eyri fyrir hverja krónu, sem bætt verkun mundi auðga iandið, beint og óbeint, og ekki nema örlítill hluti af því, sem sjávarútvegurinn hefir goldið til þess opinbera beint og óbeint. Ferðakostn- aður verður aldrei mikill, enda þurfa yfirmatsmenn að fara í eftirlitsferðir livort sem er. Aðalkostnaðurinn verð- ur þá verðlaunin. Viö skulum segja að aðalverðlaunin verði svo há, að menn muni eitthvað um þau og þau nemi á öllu landinu 35—40 þús. kr., er skiptast milli þeirra nálægt 35 staða, sem flytja út fyrir meira en 100 þús. kr. á ári. Nemur þessi upp- liæð þremur og hálfum til fjórum íiurum á vætt, sem út er flutt. Mega sýningamar gera lítið gagn, ef þnð verður ekki fjögra aura virði á vætt. Hér er því ekki verið að fara fram á stóra hjálp, sem mörg ríki veita þó , atvinnugreinum þeim, sem illa eru staddar, en þó nauðsynlegar fyrir þjóðina, heldur að nokkuð af því fé, sem atvinnuvegurinn greiðir beint til ríkisþarfa, sé notað honum til stuðn- ings og hvatningar, en um leið til beins hagnaðar fyrir landiö í heild. það er heldur ekki svo sem því eigi að fleygja í sjóinn. Allt rennur það til landsmaima sjálíra, og ef ég þekki nokkuð til afkomu sjó- manna og útgerðarmanna síðustu tvö árin, fer það naumast í óþarfa, heldur til að létta lífsbaráttuna ör- lítið fyrir mönnum, sem hafa sýnt Mynda- og rammaverzlun Islenzk málverk Freyjugötu II. Sími 2105. FR0 Alt til haven! Velledenúe katalog erholdes dA anmodnlng gratls tiUendl. Herloíson’s Frohandel, Osio. sig iramúrskai’andi verkmenn og hirðumenn. Slíkir menn eru land- stólpar og eiga allt gott skilið. Læt ég þvi útrætt um þetta að sinni, en vonast til að þeir menn, sem ekki lízt á þetta ráð, bendi á annaö væn- legra til að bæta verkun, svo að framför komi i stað afturfara, og við verðum ekki hraktir af okkar gömlu mörkuðum fyrir eigin tilstilli. Nl, ------------------o----- Bjarai Magnússon Hinn 7. þ. m. andaöist á Land«- spitalanum í Reykjavík eftir skanunn legu, Bjarni Magnússon skrifstofu- maður hjá Skipaútgerð ríkisins, bróðir Guðbmnds Magnússonar, for- stjóra. Bjami var iæddur í Vestdal við Seyðisíjörð, þann 10. ágúst árið 1891, en íluttist í bernsku að Fossi við Seyðisfjörð, þar sem foreldrar hans ræktuðu sér býli og ólst hann þar upp með þeim. Um tvitugt fluttist Bjami til Reykjavíkur og dvaldi þar það sem eítir var æfinnar. Fyrst (eftir að hann kom til Reykjavíkur) vann liann að ýmsum verzlunar- og skrif- stofustörfum. Síðan var hann um margra ára skeið fastur starfsmaður í Landsbankanum. En síðustu tvö árin vann hann á skriístofu ríkis- skipanna. Laust fyrir þrítugt gekk Bjarni að eiga Helgu dóttur Hans Andersen klæðskerameistara í Reykjavík og var hjónaband þeirra hið ákjósanleg- asta. Lifir hún mann sinn, ásamt fjórum ungum börnum þeirra, Alstaðar þótti Bjami heitinn ágæt- ur starfsmaður og hvers manns hug- ljúfi var hann í allri framkomu. Sá, sem þetta ritar þekkti ekki Bjarna heitinn, nema af samstarfí hin seinustu árin. En það nægði til að kynnast honum og þykja vænt um hann, því að hann var síglaður og einlægur eins og barn. E. t. v. var barnsLjgurinn það sérkennilegasta í fari Bjarna. En hann var líka lista- maður. Aldrei hafði hann fengið neina tilsögn í smíðum, en hann var smekkvís og auðugur að hugmynd- uhi, svo að allt lék í liöndum hans. í fristundum sínum fékkst hann jafnan mikið við smíðar og bjó til ýmsa hina furðulegustu hluti, suma alveg frumlega og það var engin tilviljun, að hann skyldi hafa mesta ánægju af að smíða bamaleikföng. Hann hafði tekið bamssálina meö sér til fullorðinsáranna og skildi börnin svo vel. En til merkis um fjölhæfni Bjama má geta þess, að í islenzku vikunni s. 1. ár, þegar efnt var tii samkeppni um sýningar í búðargluggum, þá þótti sú bezt, er hann sa um og hlaut 1. verðlaun. Við samverkamenn, vinir og kunn- ingjar Bjarna, kveðjum hann nú með þakklæti fyrir vel unnin störí og ánægjulegar samvemstundir. Við geymum áfram minningu þessa prúða og skemmtilega listamann* með barnshjartað. Guðjón F. Teitsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.