Tíminn - 22.04.1933, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.04.1933, Blaðsíða 1
©jaíbfert 09 afgrci&sluma&ur Cimans tt HannDeis þ o rstxinsöóttit, Ccefjargötu 6 o. sKcyfjasíf. ^Xfgteibsía C f m a n s er t túrf jarijötu 6 a. ©pin öaglega fL 9—6 Sírai 2353 xm firg. Reykjavík, 22. apríl, 1933. 19. blað. Á sumardagiuu fyrsta Hvernig verður sumarið 1933? Margur mun spyrja svo, og jafn- vel lioría lengra fram í tímann. Hvernig mun hinu litla íslenzka þjóðfélagi farnast um næstu ár? 1 vetur hefir verið talað mest um kreppuna. Hún er mikfð mái, þó ekki það mesta er til léngdar líður. Kreppan íslenzka er innan- landsmál, um það hversu skipta beri skuldaþunga imdangenginna ára. Kreppuráðstafanir eru fyrst og fremst skattamál. Eiga fá- tæku og iðjusömu borgarar lands- ins að bera allan þungann eins og fyr, en iðjulítil og eyðslusöm stétt að hfa ríkra manna hfi eins og undanfarin ár? Eða á meiri jöfnuður að komast á um þessi efni. Á að verða lífsvenjubreyt- ing hjá þeim, sem nú eyða þjóð- arauðnum mest, en skapa minnst verðmæti? Alþingi átti og á að svara þess- ari spurningu. Það hefir nú setið á þriðja mánuð. Ekkert kreppu- frumvarp er enn komið fram frá samsteypustjórninni. Frá íhald- inu hefir engin leiðbeining kom- ið fram 1 þessum efnum, nema nefndarálit Jóns Þorlákssonar um frv. mitt um hámarkslaun. J. Þ. ræður til að fella það. Hann stg- ir að það sé byltingarstefna og brot á stjórnarskránni, ef ríkið taki í kreppuráðstafanir um næstu 3 ár, það sem menn hafi fram yfir 8000 kr. í hreinar neyzlutekjur. Alþingi hefir verið friðsamt og rólegt. Það hefir verið atkvæða- laust með afbrigðum. Þjóðin þurfti nú athafnamikið og úr- ræðagott Alþingi. 1 þess stað hef- ir mildur og rólegur svefn færzt yfir löggjöfina. Það er ekkert leyndarmál af hverjú þetta aðgerðaleysi stafar. í þinginu eru nú að mestu leyti sömu menn og störfuðu með svo miklum árangri að umbótum á þingi 1928, 1929 og 1930. Hver er munurinn? Þá var íhaldið í minni hluta. Þá beittu framfara- mennimir kröftum sínum til að bæta lífskjör þjóðarinnar. Ihaldið mótmælti, tafði, en gat sjaldan hindrað framgang málanna. Nú hefir íhaldið aðra aðstöðu. Nú getur það hindrað og eyðilagt hvert framfaramál. Umbótamenn þingsins koma engu áleiðis. Pét- ur Magnússon sagði að réttvísin hefði átt að sofa í máh Behrens. En íhaldið fær ósk sína uppfyllta bæði um réttarfar og póhtík. Réttvísin sefur, og íhaldið hefir getað látið Alþingi sofa í tvo mánuði. Nú er sagt að eigi að vakna innan skanxms. Ihaldið byrjar að láta ófriðlega. Það hyggur að nú sé hægt að ná góðum höggstað á bændavaldinu. íhaldið gerir sig líklegt að segja við bændur lands- ins. Við skulum vera með til að breyta nokkru af þeim skuldum, sem gengishækkun J. Þ. frá 1924 og 1925, og verðfall afurðanna skapar okkur, í rentulægri lán. En í staðinn verðið þið að afsala ykkur póhtísku valdi. Ihaldið ætlar eftir þessu að vera með einhverju lágmarki af kreppuráð- stöfunum gegn afsali byggða- valdsins. Mikill er drengskapur- inn? Góður er hann hvflunautur- inn, sem Framsóknarflokkurinn hefir haft síðasthðið ár. Stcrkur flokkur Flokksþing FramsöKnarmanna leit á þessi mál öðrum augum. Það mælti með sanngjarnri breyt- ingu á stjóruarskránni, álíka og þeirri, sem þingmenn flokksins lögðu til í fyrravetur. En í ki'eppumálunum lagði það til djörf og sterk úrræði. Og þeím kröfum mun verða fylgt fast i’ram. Kreppan er ekkert sérmál Framsóknarmanna. Heldur ekki sérmál bænda, sem þeir þurfi að verzla með í sambandi við lög og rétt. Kreppan kemur öhum við. Ástæðan til þess að Framsóknar- flokkurinn hefir haft þar for- göngu er hin sama og endranær. Hugkvæmnustu og athafnamestu mennirnir sjá beztu leiðirnar, og mátu mest meðferð málanna. Bændastétt landsins má vera viss urn eitt, jafnvel þótt íhaldið stingi Alþingi svefnþorn í 113 daga árlega. Það verður ekki skipt um bændastétt í landinu. Hvaða kraftur getur rekið helminginn af bændum lándsins af býlum sín- um? Hverjir aðrir geta tekið við jörðunum? Eða hvaða vit væri í að leggja jarðimar í eyði, og láta þúsundir manna bætast við þá atvinnulausu við sjóinn. Nei. Bændastéttin þarf ekkert að óttast sérstaklega í sambandi við kreppuna. Bændumir hafa gert það eina mikilvæga, sem unnt var að gera. Þeir hafa fram- kvæmt stórfellda lífsvenjubreyt- ingu. Eyðslustéttin í bæjunum vih ekki fylgja þeim eftir í því. Og hún vill ekki þola 8000 kr. há- markslaun. Hún vill fá að vera í friði og njóta ávaxtanna af striti og elju annara á meðan þeir eru til. Ef Alþingi leysir ekki kreppu- málin nema að htlu leyti, þá leys- ir veruleikinn þau. Tíminn hefir sagt hið rétta orð í þessu máli: Það verður ekki skipt um bænda- stétt í landinu! Kreppan er erfitt augnabhks- mál. En framundan er hið langa líf þjóðarinnar. Landið á nógan náttúruauð handa öhum bömum sínum. Og mikill meirihluti þjóð- arinnar vill vinna, og vinna mikið. Vandkvæðin stafa af skipulagi og stjórn íhaldsins, af hinni blindu, heimskulegu samkeppni, sem nú er að sigla skipi sínu í strand. Þá er ekki nema einn vegur fær, vegur samvinnunnar. Því meir sem íhaldið leggur í rústir, því stærra og ábyrgðarmeira mun verða hlutverk samvinnunnar. Vegna hennar mun verða bjart yfir íslenzkum framtíðarsummm. J. J. Flokksmál. Tíminn vill endurtaka það nú, að frásagnir íhaldsblaðanna um, á hvern liátt mál verði gerð að flokksmáli á Aiþingi í Framsóknarflokknum eru algerlega rangar. Til þessa þarf sam- þykki meirahluta allra miðstjómar- manna (ekki meirahluta fundar), en þeir eru 25 (og 35 á aðalfundi). — En þar að auki þarf fullur helming- ur af þingmönnum flokksins, að vera samþykkur. þetta kallar Mbl. að svifta þingmennina „skoðana- og sannfæringafrelsi" (sicl). En í siðuð- um stjórnmálaflokkum er þetta nefnt iýðræði. ----o---- Nafnaskráin, sem Tíminn birti á laugardaginn var, varð mörg- um Reykvíkingi eftirminnilegur páskalestur. Ýmsum varð hún gleðiefni, því að einnig hér í höf- uðstaðnum á Framsóknarflokkur- inn nú orðið eigi lítilli hlýju aö mæta. En hinir voru þó fleiri, sem setti hljóða við lesturinn. Svona var þá „Mosaþingið“, sem Mbl. og Heimdahur höfðu haft í spottsyrðum! Tvö hundruð og þrjátíu kjörnir fulltrúar. Hvert einasta sveitakjördæmi átti þarna sína menn — ekkert einasta und- anskilið, og þrjú af kaupstaða- kjördæmunum. Flokkurinn um allt landið skipulagður til sam- vinnu. Af hverju setti þá hljóða við þennan lestur, hina reykvísku í- haldsmenn? Það var af því, að þeir sáu í þessum tíðindum tákn hinnar nýju aldar í íslenzkum stjórnmálum. Þeir sáu, að á bak við þessi 230 nöfh var meira en mennirnir, sem nöfnin eiga. Það er kraftur á bak við þessi nöfn, kraftur hins dreifða mannfjölda um allar byggðir landsins, kraft- ur félagsvinnunnar um áratugi, kraftur manndóms og hörku, kraftur ósérhlífni og þrautseigj- unnar. Það getur engum leynst, jafnvel ekki hinum allra sljó- skygnustu broddborgurum, að ferðalög svona margra manna hlutu að hafa haft mikla örðug- leika í för með sér, að það er enginn venjulegur kraftur, sem getur komið slíkum mannfjölda, jafnvel úr hinum afskekktustu og veglausustu héi’öðum, til að tak- ast á hendur vetrarferð frá heim- ilum sínum og það svo dýra ferð, sem hér er um að ræða í mörgum tilfellum, á slíkum krepputíma, og það alveg sérstak- lega eins og nú standa sakir, þegar margir hlutir hjálpast að og sumir þeir, er sízt skyldu, að draga kjarkinn úr bændastéttinni. Það er almennt viðurkennt nú, að enginn flokkur hér á landi annar en Framsóknarflokkurinn hefði getað háð svo fjölmennt landsþing nú og með svo ai- mennri þátttöku, sem hið nýaf- staðna flokksþing Framsóknar- rnanna. Margir hafa látið orð falla um það núna síðustu dagana, að flokksþing Framsóknarmanna væru þær mei’kilegustu allshei’j- ar samkomur, sem nokkurntíma hafi verið haldnar í Reykjavík, og þó einkum þetta hið síðasta. Og það gera þeir sér líka ljóst, andstæðingar Framsóknarmanna hér í Reykjavík, að aðgerðum og ákvörðunum slíkrar samkomu fylgja mikil áhrif og mikið vald, sem engum þýðir að skella skoll- eyrum við og engum myndi verða þolað að virða að vettugi. Sú festa og alúð, sem einkenndi öll störf flokksþingsins þá 7 daga, sem það sat að störfum, er full- komlega einsdæmi. Og ábei’andi mátti þykja sá munur, hversu þeir menn, sem þama voru að verki, tolldu betur í sætum sínum við umræður, en títt er á hinu „virðulega" Alþingi. Nefndir voru hvað eftir annað önnum kafnar við sérstörf sín langt fram á nætur. Og um marga fulltrúana var það svo, að þeir gáfu sér naumast tíma til að sinna þeim verkum, er þeir þurftu að ljúka fyrir sjálfa sig í höfuðstaðnum. Svo eindreginn var áhugi manna fyrir því, að árangur þingsins mætti samsvara þeirri fyrirhöfn, sem til þess var kostað og þeim kröfum sem til þess höfðu verið gerðar af umbjóðendum fulltrú- anna lxeirna í héi’öðunum. Og' hvað hefir svo áunnizt? í tveimur af stærstu þjóðmálunum, skuldamálum bændanna og í kjör- dæmamálinu, hefir stefna Fram- sóknarflokksins verið mótuð á- kveðnum línum á flokksþinginu. Bæði þessi stórmál voru nákvæm- lega yfirveguð, eftir þeim gögn- um, sem fyrir liggja, f nefndum, sem skipaðar voru hinum sérfróð- ustu og athugulustu mönnum flokksins á þessu sviði, og síðar rækilega tekin til meðferðar með mjög mikilli þátttöku í hinum almennu umræðum. Þá ber og að telja í fyrstu röð það málið, sem frá flokkslegu sjónarmiði mátti telja þýðingai’- mest. Það er sjálft skipulagsmál flokksins. Héðan af á flokkurinn starfsreglur og starfsstjórn, sem sniðin er að samvinnuháttum, og sameinar til heildarátaka í fyrsta sinn flokksmennina í öll- um héröðum landsins. Skipulagslög Framsóknarflokks- ins hin nýju, eru hið sýnilegasta tákn þess, hvei’su samstæð heild flokkurinn nú er orðinn eftir 17 ára baráttu og þroska. Svo frjálslynt lýðræðisfyrir- komulag leyfa sér þeir stjórn- málaflokkar einir, spm svo völdu liði og pólitískt þroskuðu hafa á að skipa, að betur fari á að mál- um flokksins sé stjórnað með samráði hinna mörgu en forsjá hinna fáu. Ýmsir andstæðingar Framsókn- arflokksins hafa lifað í þeirri trú, að Framsóknarflokkurinn væri næsta sundurleitur hópur, sem tylldi saman á persónulegu fylgi við einn eða tvo mikilhæfa forystumenn. Þessa skoðun hefir flokksþing- ið afsannað með framkomu sinni og stai’fi. — Sú kynslóð, sem þroskast þefir í samvinnufélög- unum 0g flokksstarfinu í 17 ár, og hin ennþá yngri kynslóð, sem nú skipar sér undir mei’ki flokks- ins, á ekki sina pólitísku framtíð undir nokkurs manns forystu. Lífsskoðun samvinnunnar á landi hér hefir kjörið sér þá sveit, sem eigi vei’ður simdrað. Og verkefni munu á hverjum tíma knýja fi’am foi’ingjana í flokki okkar Fi’amsóknarmanna. Krðfur íhaldsins tii Framsóknarflokksins Þrisvar sinnum hefir Framsókn- arflokkurinn átt samstarf um landstjórn við Mbl.-menn. Fyrst var Sigurður í Ystafelli með Jóni Magnússyni og Bimi Iíristjáns- syni í landstjóm. í öðru sinni voru Klemens Jónsson og Magnús Jónsson með Sigurði Eggerz. Og loks hafa þeir Ásgeir Ásgeirsson og Þoi-steinn Bi’iem um eins ái*s skeið átt sambýli við Magnús Guðmundsson og ólaf Thors. Þessi sambúð hefir jafnan ver- ið erfið og ógeðfeld Framsóknar- mönnum. Blöð Mbl.-manna héldu uppi stöðugum fjandskap við Sig- urð Jónsson, Klemens Jónsson og Magnús Jónsson. Allt sem þessir menn og flokksbræður þeirra á þingi og utan þings gei’ðu til gagns landi og lýð, var gert að árásarefni á Framsóknarmenn. íhaldsblöðin stóðu með sínum mönnum í sambræðslustjóminni, studdu þeirra mál og þeirra vinnu, en deildu sífelt á Fi-am- sóknarfl. út af stefnumálunum. Á sama hátt stóðu Tíminn og Dag- ur með málstað sinna manna, og stefnu flokksins. Ef Klemens Jónsson hefði far- ið fram á það við ritstjóra Tím- ans 1922 og 1923, að hann tæki í blaðið væmið lof um Sigurð Eggerz, eða hrós um ágæti þess að mega vera í sambýli við slík- an mann, þá hefði ritstjórinn ái'eiðanlega neitað slíkri grein, eða greinum, með þeim rökum að Tíminn væri blað samvinnu- manna og bænda. Hans hlutverk væri að sækja og verja þeirra mál. Sigurður Eggerz tilheyrði öðrum flokki; hefði aðra stefnu | og blöð, sem styddu hans mál. 1 Þar ætti að birta greinar um ágæti hans og áhugamál iðjuleys- ingjanna. í stjórnartíð Sigurðar Jónsson- ar og Klemensar Jónssonar datt engum Mbl.-manni í hug að Tím- inn yrði málgagn íhaldsstefnunn- ar. En svo mjög hefir Morgunblað- inu aukizt frekja síðan Magnús Guðmundsson og Ólafur Thors kornu í stjórn með Framsóknar- mönnum, að bæði Morgunblaðið og fylgihnettir þess gefa nú í skyn að Tíminn eigi áð styðja alla stjórnina, líka íhaldsmenn- ina. Jafnhliða þessu hefir Morg- unblaðið gert meir að því en áður að ráðast á Framsóknarflokkinn, einstaka menn, stefnu hans og áhugamál. Alveg sérstaklega hafa íhaldsblöðin ráðist á kaupfélögin og Sambandið. Eins og Morgun- blaðið og Jón Þorláksson tóku í ki’eppumál bænda var auðséður tilgangurinn að láta bændúr gefa sjálfum sér upp skuldir. Var auð- séð að þar var að verki kaup- mennskan, sem komið hefir 30 miljónum af skuldum yfir á bank- ana og almenna skilamenn. Sam- vinnufélögin áttu að borga fyrir kaupmenn, gengishækkun Jóns Þorlákssonar og verðfall afurð- anna. Tíminn heldur sömu stefnu og frá byrjun. Hann sækir og ver landsmálin frá sjónanniði sam- | vinnumanna, og þá alveg sér í , lagi gegn erfðaandstæðingum | samvinnunnar — flokki hinna 1 óþörfu milliliða. Framsóknarmeim í landinu hafa fyr og síðar haft ótrú á stefnu Magnúsar Guðmundssonar og ólafs Thors. Og verk þeirra í landstjórninni hafa öll verið í sama anda og fyr. Ef Tíminn hefði átt að verða við þeirri ósk að hæla þessum mönnum, stefnu þeirra eða verkum, þá hefði hann orðið að snúast, segja það sem ' hann ekki vildi segja eða láta ' sannleikann ósagðan, villa lesend- * um sýn, og bregða trúnaði við

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.