Tíminn - 27.05.1933, Qupperneq 3
TÍMINN
8ð
Stálljáirnir (norsku)
frá Brusletto eru komnir.
Þrjár lengdir. — Lækkað verð.
Samband isl. samvínnufélaga.
■ Húsg'ag'navinnustofa ■
Áma J. Ámasonar, Skólastræti 1B Reykjavík, sími 4423, smíðar alls-
konar húsgögn, svo sem í borðstofu- og svefnherbergi, úr furu, birki,
mahogni og satini. — Skrifstofuhúsgögn af öllum gerðum.
Aöeins unnið úr vel þurru efni. Áherzla lögð á fyrsta flokks vinnu.
Vörur sendar út um allt land.
Fréttir
Skýrsla um starfsemi Landsbank-
ans árið 1932 er nýkomin út. Skuld
bankans við erlenda banka hefir á
árinu lækkað úr 6,3 milj. kr. niður i
3,7 milj. eða um 2,6 milj. á árinu.
Meðal seðlaumferð ársins er 3%
minni en árið 1931. Innlendir víxlar
hafa lækkað um 4,2 milj. Innstæðufé
í hlaupareikningi hefir hækkað um
0,4 milj. og innstæðufó í sparisjóði og
gegn viðtökuskírteinum um 1,9 milj.
Úr 10. flokki veðdeildarinnar hafa
á árinu verið veitt lán að upphæð
kr. 1308800,00 (115 lán). — AUs hafa
nú verið veitt úr veðdeildinni frá
því að hún tók til starfa 20. júlí
1900 og til síðustu ársloka 6711 lán,
að upphæð samtals kr. 32 miljónir
956 þús. og 600. Útistandandi veð-
deildarlán voru víð siðustu áramót
3872 og eftirstöðvar þeirra samtals kr.
22.696.555,74. Flest eru lánin í 1.
ilokki (árin 1900—1906) 1427 að upp-
hæð samtals kr. 2.652.800,00. Hæst
er upphæðin i 4. flokki (árin 1014—
1926) kr. 4.995.500. — Frá 1. okt. 1926
til 7. okt. 1927 eru lánaðar út 6 mil-
jónir (5. og 6. flokkur) og veitt alls
788 lán. — Margskonar íróðleik ann-
an um þjóðarhagi er að finna í þess-
ari skýrslu Landsbankans.
Samninyurinn um viðskipti milli
Breta og íslendinga er í aðalatriðum
þessi: Flytja má til Bretlands og
seija þar sem nemur meðaltali inn-
ílutnings áranna 1929—31, að frá-
dregnu 10%. Verðtollurinn á fiski
10% helzt, en frekari tollar verða
eigi lagðir á. Um kjötinnflutninginn
loíar brezka stjórnin, að íslendingar
skuli eigi sæta verri kjörum en nein
önnui- þjóð. En frekari ákvörðun um
hann vilja Bretar ekki taka fyr en
síðar i sumar, að ákveðið hefir ver-
ið um kjötflutning frá nýlendum til
Bretlands. — Verðtollur á nokkrum
brezkum vörum skal lækkaður hér
úr 15% niður í 10% og um nokkrar
aðrar vörutegundir ákveðið, að tollur
á þeim megi ekki hækka. — 77% af
kolum, sem notuð eru hér á landi,
verður að kaupa frá Bretlandi. —
Samningurinn gildir fyrst um sinn
til þriggja ára. Deiluatriði út af
samningnum skal útkljá * fyrir al-
þjóóðadómstóli, ef annarhvor aðili
óskar.
Alþingi hefir nú samþykkt ábyrgð
fyrir Seyðisfjörð til að koma upp
síldarbræðslu. Til mála gat komið
að bræðslan yrði á Norðfirði, en hitt
verður þó úr. Tilgangurinn er að
iryggja með þessu sildveiði við
Austurland, og eiga bátar frá öllum
fjörðunum vitanlega að eiga jafnan
aðgang að þessu fyrirtæki.
Um 1560 biireiðar voru samtals í
landinu í júlí 1932.
Hjónaefni. 17. þ. m. opinberuðu
trúlofun sina ungfrú Elín Jónas-
dóttir frá Eyvindarholti undir Eyja-
fjöllum, Freyjugötu 46 og Sigurberg-
ur Frímannsson, Fíflholtum i Hraun-
hreppi, Mýrasýslu.
Kristinn Stefánsson skólastjóri í
Reykholti ætlar i sumar að dvelja
viðsvegar á Norðurlöndum við að
kynna sér skólamál.
Fjársöfnun meðal Austflrðinga og
vina Austurlands, til að hjálpa til að
koma á sem fyrst akfærum vegi frá
Grímsstöðum á Fjöllum um Möðru-
dal og Jökuldal, gengur mjög vel.
Má telja fullvíst, að því verki verði
lokið eftir tvö sumur.
Röskir sjómenn. Fyrra sunnudag
lögðu 2 menn af stað á trillubát frá
Vestm.eyjum og var förinni heitið
norður að ' Langanesi. Komu þeir
þangað á miðvikudag og hafði geng-
ið ferðin vel. Má telja för þessa hina
rösklegustu. Formaðurinn heitir Mar-
ino Ólason (ekki Maríus eins og
stóð í Mbl.). Hann á heima á J>órs-
höfn, en var með bát sinn í Eyjum
í vetur, og aflaði sá bátur mest allra
trillubáta á vertíðinni.
Prestskosning fór fram i Húsavik
7. þ. m. Kjörfundur var fásóttur og
því eigi lögmætur. Sr. Friðrik A.
Friðriksson prestur í Vesturheimi
iilaut 200 atkvæði, en sr. Lárus Arn-
órsson i Miklabæ 46 atkv. Fleiri
sóttu ekki um brauðið.
porkell Teitsson, hinn ötuli fjall-
vegafari kom í dag ásamt konu
sinni Júlíönu o. fl. á bíl sinum frá
Borgarnesi. Kveður hann veginn
orðinn ágætan til Borgarfjarðar og
alla leið vestur í Saurbæ í Dölum og
til Stykkishólms, en ófæran á Holta-
vörðuheiði ennþá vegna 3ja skafla og
einstaka smá-aurkafla. En Holta-
vörðuheiðin muni verða góð íyrir
biia eftir mánaðamótin.
Rgils saga Skallagrimssonar, i út-
gáfu Fornritafélagsins, kom út á
mánudaginn var. Er þetta fyrsta
bindið, sem út kemur af þessari út-
gáfu, en Alþingi hefir ,eins og kunn-
ugt er, veitt til hennar styrk á fjár-
lögum. Sigurður Nordal hefir séð
um útgáfu þessa bindis og ritað inn-
gang um 100 bls. að lengd. Neðan-
máls eru orða- og efnisskýringar
margskonar. Sömuleiðis eru myndir
og kort af sögustöðum og héröðum.
Siíka útgáfu sem þessa hafa íslend-
ingar aldrei eignast af fornritunum,
og mun hún verða kærkomin öllum
lesíúsum mönnum. H. í. Kyeldúlfur
hefir lagt íram verulegan hluta aí
útgáíukostnaði Egils sögu, sem gjöf.
Er það gott verk, en hitt miður við-
kumianlegt, að láta nafn hlutafélags-
ins standa á titilblaðinul
Sr. Jónas Á. Sigurðsson forseti
þjóðræknfsfélags Vestur-íslendinga er
látinn. Hann var um sjötugsaldur.
Var einn af þeim, sem hingað komu
á Alþingishátiðina 1930.
Símon bóndi í Vatnskoti í þing-
vaiiasveit íami í vetur upp einfalda
aðferð til að hlaða rafgeyma með
ódýrri vindmyllu og gaíst aðferð
hans vel fyrir útvarpsnotendur í
sveitinni. Hann hefir nú í vor byrj-
að að flytja silung lifandi til Rvíkur,
60 iun. leið. Lætur Símon bílvélina
stöðugt dæla lofti inn i vatnsgeym-
inu til silunganna meðím hann er
a leiðinni og fær allt að því helm-
ingi liærra verð fyrir silunginn held-
ur en ella myndi.
Kjarval málar ValhölL Kjarval
er einn af þeim íslenzku listamönn-
um, sem málað hafa mörg og fögur
málverk á þingvöllum. Nýlega hefir.
liann málað mynd af Valhöll, Al-
mannagjá og Súlum i baksýn og er
sú mynd i veitingasalnum á þing-
vöiium. Er málverk þetta án efa eitt
hið glæsiiegasta listaverk sem gert
hefir verið hér á landi, og ættu all-
ir þeir, sem til þingvalla koma, að
lita um leið inn í Valhöll til að
sannfærast um það hvað íslenzku
listamennirnir eru að gera fyrir land
sitt.
Tveir af merkustu rithöfundum
landsins, Halldór Kiljan Laxness og
Kristmann Guðmundsson, dvelja nú
á Laugarvatni og vinna að því að
rita þar næstu skáldverk sín. —
Kristmann er nýkominn heim frá
Noregi eftir margra ára útivist. Héð-
an fór liann umkomulaus ungling-
ur, en er nú frægur um öll Norður-
lönd og víðar fyrir rit sin, sem skrif
uð eru á norska tungu, en um ís-
lenzk efni.
Cfistihús á Hreðavatni. Svo sem
kunnugt er þykir jörðin Hreðavatn i
Norðurárdal einn f.egursti staður á
landinu. Bærinn liggur i skjóli fyrir
norðanátt. Fyrir neðan túnið er
stöðuvatn, og ásarnir í kring klædd-
ir skógi. Veiði er i þrem vötnum í
landareigninni og mikil stangaveiði
i Norðurá. Hreðavatn er að verða
einn af vinsælustu sumargististööum
sunnanlands. Eru þar húsakynni
góð' og aðbúð hin bezta. En nú í
sumar ætla þeir feðgar þar og Vigfús
Guðmundsson i Borgamesi að byggja
nýjan veitingaskála við. þjóðveginn
hjá Hreðavatni, vegna langferða-
manna. Má búast við að þá vaxi
enn til muna gestakoma á staðinn.
Nazistar og bömln. Síðan Gísli
Sigurbjörnsson byrjaði að prédika of-
beldiskenningar þýzku nazistanna
hér á landi, hefir framkoma bama í
Reykjavík stórum spillst. Hafa börn-
in tekið upp hið hroðalega orðbragð
og ruddaskap, sem leiðtogamir hafa
i daglegri orðræðu. Stendur for-
eldrum og kennurum stuggur af
þessari siðspillingu. Starfar nefnd
frá lcennurum bæjarins að því að
verja börnin fyrir kommúnistum og
nazistum.
Bruggari var tekinn í Vestmanna-
eyjum nú nýlega, Hallgrimur nokk-
ur frá Felli í Mýrdal, og sat hann i
gæzluvarðhaldi. FyrVerandi skrif-
stofumaður hjá Linnet, og forkólfur
nazistanna í Eyjum, safnaði liði,
braut upp fangelsið og sleppti brugg-
aranum út. Hvað gerir dómsmála-
ráðuneytið nú? Lætur það slíka
framkomu viðgangast án hegningar.
Norsku ungmennafólögiu hafa nú
sent um 800 trjáplöntur að Reykholti,
til að prýða kring um væntanlegan
minnisvarða Snorra Sturlusonar.
Friðrik þorvaldsson, formaður ung-
mennasambands Borgarfjarðar beitir
sér fyrir því að ungmennafélagar
ígímtmi
Tíminn kostar 10 kr. árgangurinn-
Gjalddagi 1. júní. Afgreiðsla og inu-
heimta á Laugavegi 10, Reykjavík.
Sími 2363.
g:óðursetji þessar plöntur og haldi
síðan verndarhendi yfir trjárœktinni
i Reykholti.
íslenzkt einangrunareíni til húsa-
gerðar. Fyrir skömmu var þess getið
í þessu blaði i sambandi við hið
nýja þjóðleikhús, að húsameistari
rikisins, Guðjón Samúelsson, væri að
gera tilraumr með þurkað og press-
að torf gegnvættu af karbólin, í
stað korks innan á steinsteypuveggi
og mundi það valda stórfelldum
sparnaði. Nú hefir blaðinu borizt
vitneskja uip það, að byggingameist-
ari Jóhann Fr. Kristjánsson hefir áð-
ur gert tilraunir með torf og notað
til liúsagerðar. T. d. sýndi hann á
iðnsýningunni, sem hér var haldin
í fyi'iasumar, m. a. níu sýnishorn
aí torfi, sem með var farið sitt
með liverju móti, mismunandi press-
að og sumt tjöruborið. Reiknaðist
Jóhanni, að væri sú aðferð tekin al-
ínennt upp hér á landi, að nota torf
til einangrunar i stað koi'ks og alls-
konar þiljuefnis, hefði landinu spai'-
ast i erlendum gjaldeyri árið 1929
500 þús. kr. — Búnaðarþingið veitti
Jóhanni á þessu ári 300 kr. til áfram-
haldandi tilrauna.
Á iðnsýningimni i fyrrasumar
sýni Jóhann ennfremur steypusteina-
mót, sem. hann fann upp árið 1923
og notað hefir verið við skólana á
Laugum og Laugarvatni. Má i þeim
steypa marga steina i senn, ýmist
þykka eða þunna, hola eða einfalda.
Sjálfsagt er mikill sparnaður að því
að steypa steina, sé það verk unnið
á hentugum tíma og steypumót eru
að öllu leyti spöruð. Telst Jóhanni
svo til, að gengið hafi i súginn af
mótatimbri, miðað við innflutning
1929, hálf milj. — Jóhann fór þess
á leit við Búnaðarþingið í vetur, að
það gengist fyrir námskéiðum í
steinagerð og steinahleðslu. Búnaðai'-
þingið vísaði málinu til Búnaðai-
bankans, þar eð hann hefði betri að-
stöðu til að halda slík námskeið.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Guðnln Jónsdóttir
frá Fagurey á Breiðafirði og Gísli
Loftsson frá Steinsholti í Eystri-
Hrepp.
íbúum sveitanna í Bandaríkjunum
hefir fjölgað um 2 miljónir siðan
1930. — Siðan 1910 hafa íbúar sveit-
anna þar í Iandi aldrei verið eins
margir og nú. Fólksstraumurinn er
að snúast við.
Rússar kváðu vera að selja Japön-
um hluta sinn i Mansjúríubrautinni,
en Kinverjar mótmæla og þykjast
eiga forkaupsrétt.
Gyðingaofsóknimar. því er haldið
fram af ýmsum að meðferð Gyðinga
í þýzkalandi komi í bága við ákvæði
þjóðabandalagsins um minnihluta-
þjóðerni og rétt þeirra, og beri þjóða-
bandalaginu að taka mál þetta til atr
hugunar.
Hugenberg. Hann er foringi í flokki
þýzkra þjóðernissinna (ekki Nazista),
en sá flþkkur gerði bandalag við
Nazista um stjórnarmyndun og
Hugenberg er sjálfur atvinnu- og
verzlunarmálaráðherra. Hann hefir
því mikið vald innan ráðuneytisins,
en ýmsir hafa spáð, að til sundur-
þykkju myndi draga með honum og
Nazistum, er til lengdar léti. Hugen- !
berg er stórauðugur og talinn einn
slyngasti fjánnálamaður þýzkalands.
Fylgismenn hans segja, að hann viti
alla atburði löngu fyrirfram. En ætíð
hefir hann sem stjórnmálamaður ver-
ið i stjórnarandstöðu þangað til nú.
Fyrir stríð var hann andstæðingur
Vilhjálms keisara en síðan lýðveldis-
stjórnanna. Skömmu fyrir strið varð
hann forstjóri hinna miklu þýzku
Kruppsverksmiðja, sem smíðuðu hin-
ar ægilegu fallbyssur þjóðverja, sem
mest orð fór af. Siðan varð hann
formaður í félagsskap þýzkra námu-
eigenda og hefir verið til þessa, en
þau samtök eru geisivoldug og ráða
yfir feikna auðmagni. Hugenberg er
nðalmaður í hinu mikla þýzka kvik-
myndafélagi „Ufa“, og 1600 blöð hefir
liann í sinni þjónustu víðsvegar um
landið. En almenningshylli hefir
hann aldrei notið. Aðalsmennirnir,
sem ráða yfir hinum stóru jarðeign-
um i Prússlandi, telja hann hins-
vegar sína aðal stoð og styttu, þótt
eigi sé hann sjálfur aðalsmaður.
Útvarpið. Fá menningartæki hafa
náð jafnfljótri útbreiðslu sem út-
varpið, og liggja til þess margar
ástæður. þrátt fyrir kreppu og fjár-
liagsvandræði nú seinustu árin fer
notkun þess vaxandi hlutfallslega,
lx)rið saman við árin þar á undan.
Frá því á miðju ári 1931 fram á mitt
árið 1932, hefir tala útvarpsnotenda
i 26 Evrópulöndum, sem skýrslur eru
frá, aukizt uiu 2,5 milj. eða 16%.
Mest var aukningin í Sviss, um 64%
og þarnæst i Englandi um 26%. í
Damnörku, Póllandi og Ungverja-
iandi var aukningin minni en næsta
ár á undan og er landbúnaðarkrepp-
unni kennt um. Alls voru talin á
miðju árinu 1932 38,5 milj. útvarps-
tækja í notkun. Ef gert er ráð fyrir
4 hlustendum á hvert .tæki, verða
alls 150 milj. útvarpshlustenda í
heiminum, eða 14% af ibúum jarðar-
innar. Danmörk hefir flesta útvarps-
notendur eða 146 af hverju 1000.
Næst koma Bandarikin með 131 og
Stóra-Bretiand með 104
Nazistar í Austurriki. í sambandi
við hátíðahöld, sem fóru fram fyrir
skemmstu í Austurríki, reyndu naz-
istar að koma á óeirðum, en tilraun-
ir þeirra mistókust. Eftir því, sem
seinast hefir fréttst, hefir á þriðja
þúsund þeirra verið handteknir þ. á
m. 100 þjóðverjar, sem mun eiga að
vísa úr landi. Skýra austurrísk blöð
frá þvi, að valdhafamir þar hafi í
hyggju að gera útlæga alla þá, sem
eru í árásarliði nazista og banna
merki þeirra.
Norræn samvinna. 1918 stofnuðu
samvinnuheildsölumar á Norðurlönd-
um með sérsamband, Nordisk An-
delsforbund, sem annast skyldi inn-
kaup á vörum handa þeim, eftir þvi,
sem við yrði komið. Eru heildsölurn-
ar fimm í sambandinu: 1 frá Noregi,
Danmörku og Svíþjóð og 2 frá Finn-
landi. Aðsetur sitt hefir það í Kaup-
mannahöfn. Aðallega hefir það enn
sem komið er, fengizt við innkaup
á nýlenduvörum, og sparað heildsöl-
unum við það drjúgan skilding, því
milliliðirnir við verzlun þeirra vara
eru óvenju margir. — Nýlega hefir
N. A. haldið aðalfund sinn á þessu
ári. Umsetning þess á síðastliðnu ári
var 29,2 milj. kr. og er það 1,2 milj.
kr. meira en árið þar á undan. Mestu
viðskiptin við það hefir sænska heild-
salan. N. A. er einn fyrsti vísirinn
til alþjóðalegra verzlunarsamtaka
samvinnumanna og spáir það sem af
er góðu um framtíðina.
---O----
Vidvörun.
Ég hefi orðið þess var, síðastliðna
tvo daga, sem ég hefi verið hér í
Reykjavík, að börn og hálfþroskaðir
unglingar taka talsverðan þátt i
tjtjórnmáladeilum — einkum þó deil-
um milli kommúnista og nazista.
Ég hefi líka orðið var við sögur
■um það, að menn sem framarlega
standa í þessum flokkum, lokki
börnin með sælgætisgjöfum, til fylg-
is við sig og sitt málefni.
Ég veit ekki hvort þessar söguv
eru sannar, eða hversu mikil brögð
eru að þessu, — en deilur barnanna
liefi ég heyrt og séð. — En ef svo
er, — ef einhver fótur er fyrir þess-
um umgetnu sögum, þá lýsir slíkt
atliæfi vítaverðu ábyrgðarleysi.
Hversu hjartanlega, sem menn eru
sannfærðir um ágæti þeirrar stjóm-
málastefnu, sem þeim er hugþekk-
ust, hver sem hún er, og hversu
miklu sem þeir vilja fóma fyrir
hana, þá ættu allir góðir og gætnir
menn að forðast eins og heitan eld-
inn, að draga böm og unglinga inn
Kennarastaða
við barnaskólann á Akranesi er
laus 1. okt.
Umsóknarfrestur til 15. Ágúst.
Viðkomandi þarf að geta kennt
söng og leikfimi.
Skólanefndin.
Ko laverzlnn
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Siinn.: Kol. Reyktavik. Sinl 16M.
Reykjavik. Simi 1249 (3 línur).
Símnefni: Sláturfélag.
Askurður (á brauð) Avalt fyrir-
liggjandi:
Snlami-pylsur.
Ilangibjúgu (Spegep.) nr. 1, gild
Do. —
Do. —
Sauða-IInngibjúgu, gild
Do. mjó,
Soðnar Svina-rnllupylsur,
Do. Kál f a-rul lupy lsur,
Do. Sauða-rullupylsur,
Do. Mosaikpylsur,
Do. Malacoffpylsur,
Do. Moi'tadelpylsur,
Do. Skinkupylsur,
Do. Ilamborgarpylsur,
Do. Kjötpylsur,
Do. l.ifrarpylsur,
Do. Lyonpylsur,
Do. Cervelatpylsur.
Vörur þessar eru ailar búnar
til á cigin vinnustofu, og stand-
ast — að dómi neytenda — sam-
anlmrð við samskonar erlendar.
Verðskrár sendar, og pantanir
afgreiddar um allt land.
á þá braut, að deila um stjórnmál.
það er sannarlega nóg af deilum
meþal fullorðnu mannanna, þó
blessuð börnin séu hlmtlaus.
þó ég hafi enga löngun til að
blanda mér inn í bæjarmál Reyk-
víkinga, vil ég samt beina þeim til-
mælum til allra þeirra manna í
bænum, sem umgangast börn og
unglinga, að reyna af fremsta megni
að konm í veg fyrir þá spillingu,
sem hér hefir verið drepið á.
8. maí 1933.
Sigurjén Kristjánsson
frá Krumshólum.
-----o-----
Nazistamir
íslenzku, Gísli frímerkjasali, son-
ur Sigurbjörns Gislasonar og Guð-
rúnar alþingiskonu og Gísli Bjarna-
son frá Steinnesi hafa nú veriÖ á
ferð fyrir norðan og vestan, til að
reyna að framkvæma heimatrúboð
fyrir íhaldið. Er margt spaugilegt
um ferð þeirra. Frá Akureyri höfðu
þeir sent langt skeyti með botnlaus-
um óhróðri um norðlenzku kaupfé-
lögin, til Mbl. Var þar ennfremur
með miklu yfirlætisleysi(!) skipun til
þingmanna íhaldsins um að afgreiða
ekki sum þingmál fyr en þeir kæmu
í bæinn! Ekki óeðlilegt áframhald
af kröfunni um að Jón Ámason og
Svafar Guðmundsson væru reknir úr
stjórn bankanna, af því þeir væru
samvinnumenn. Mbl. og Vísir neit-
uðu að birta skeytið.