Tíminn - 28.06.1933, Blaðsíða 4

Tíminn - 28.06.1933, Blaðsíða 4
110 TIMINN Framh. af 1. síðu. hefir m. a. verið „glósað“ um „stolinn fisk“ í Skipaútgerðinni o. s. frv. En svo kynlega bregður við, að Mbl. hefir alveg forðast að gera grein fyrir þeim hluta end- urskoðunarinnar, sem um þetta efni fjallar. Þegar nánar er að gætt, er það engin furða, því að nú er það upplýst í málinu, að í þessu atriði er „endurskoðand- inn“ sekur um stórfellda fölsun staðreynda, sem opinberlega skip- aður endurskoðandi myndi vera iátinn sæta Jwngri fangelsisrefs- ingu fyrir, í hverju því landi, sem ekki hefði dómsmálaráð- herra á borð við Magnús Guð- mundsson. Og þótt almenningur við nánari kynni af „endurskoð- uninni" og fortíð Lúðvíks C. Magnússonar (sem lítilsháttar er drepið á á öðrum stað hér í blað- inu), sjái sjálfsagt ekki ástæðu til að taka endurskoðun hans al- varlega, þá er þess að gæta, að hann eigi að síður hlýtur að bera sömu refsiábyrgð og hver annar opinberlega skipaður endurskoð- andi, því að því sem hann stað- hæfir í endurskoðuninni, bar honum sem slíkum að vera reiðu- búinn að staðfesta með eiði, ef krafizt væri. En nú skal hér gert opinbert fyrir alþjóð, hvernig þessi skýrsla er, sem „endurskoðandinn" hefir gefið ráðuneyti Magnúsar Guð- mundssonar undir eiðstilboð og Mbl. notað sem undirstöðu hinna viðbjóðslegustu árása án minnstu saka. Skiptipokamir. í skýrslu Lúðvíks C. Magnús- sonar „endurskoðanda“ segir: „Nú aflaði „þór“ samkv. framan- greindu 117 skiptipoka af fiski, og með því að í einum skiptipoka 33 möskva á lengd er talinn vera fisk- ur, er samsvarar 4 skippundum af þurrum fiski, ætti aflinn úr skipinu 1932, miðað við skiptipoka 32 möskva á lengd, að hafa orðið af þurfiski 453 skippund". Og ennfremur: „Og þar sem ann- ars ekki er getið, í leiðarbókunum, verður litið svo á, að skiptipokam- ir hafi verið fullir af fiski“. Menn taki eftir tilhneiging- unni, sem í þessari síðustu rök- semdaleiðslu felst hjá „endur- skoðandanum"!: Af því að ekk- ert er tekið fram um það 1 leið- arbók skipsins, hvort skiptipok- amir voru fullir eða ekki fullir, þá verður litið svo á, að þeir hafi verið fullir! En þetta eru þó smámunir í samanburði við það, senr nú skal greint. Með því að tilgreina skipti- pokafjöldann og þungann í hverj- um skiptipoka, ætlaði endurskoð- andinn að sanna hvorki meira né minna en það, að Skipaútgerðin eða forstjóri hennar hefði stolið hér um bil öðrum hverjum fiski, sem aflaðist á Þór árið 1932, því að seldur fiskur úr „Þór“ hafði ekki numið nema ca. 250 skpd. það ár. Menn taki eftir því, að „endurskoðandinn“ notar orðalag- ið „er talinn vera fiskur, er sam- svarar 4 skippundum o. s. frv.“, rétt eins og þetta sé alviðurkennd staðreynd, sem óhætt sé að byggja á ákæru um að forstjóri opinberrar stofnunar hafi stolið 200 skippundum af fiski úr sjálfs sín hendi. Hitt myndi þó kannske sumum sýnast merkilegra, að ráð- herrann skyldi ekki hrökkva ó- notalega við út af þessari skýrslu og flýta sér að gera ráðstafanir. En það er nú öðru nær, því að M. G. hefir ekki einu sinni gert sér það ómak, að heimta skriflega greinargerð um þetta efni frá hr. Pálma Loftssyni. Vottorð togaraskipstjóranna, Jóns Högnasonar og Kolbeins Sigurðssonar. Hinsvegar byrjuðu íhaldsmenn í Rvik, sem virtust frá upphafi fylgjast prýðilega með endur- skoðuninni, þegar í stað á dylgj- um um „fiskstuldinn“ í Skipa- útgerð ríkisins. Þegar hr. Pálma Loftssyni barst þessi orðrómur til eyrna, þótti honum hart að búa undir slíku, þar sem þetta var fram borið af endurskoð- anda, sem yfirmaður hans hafði skipað, og P. L. hafði ekki einu sinni af ráðherra verið krafinn um skrifleg svör við þessum á- burði. P. L. leitaði því sjálfur sönnunargagna fyrir því, að með fals væri farið hjá „endurskoð- andanum", enda voru þau gögn auðfengin. Sneri hann sér þá fyrst til tveggja þekktra togara- skipstjóra, og bað þá gera athug- un um fiskafjölda í skiptipokum. Gáfu þeir um það eftirfarandi vottorð: „Eítir ósk þinni hefi ég látið fara fram talningu á fiski úr skiptipok- um. Ég lét telja tvisvar. Fyrra skiptið taldist úr pokanum 390 fisk- ar og síðara skiptið 315 fiskar. Fyrri pokinn var eins fullur og liann getur frekast orðið, en sá seinni linfullur. Fiskurinn var þorskur upp og of- an að stærð. Ég hygg að meðaltal, eins og pok- ar eru venjulegast, muni vera 320-- 330 fiskar. þessir pokar mínir voru 35 möskv- ar á lengd og 80 möskvar á breidd. Hiðill eins og á venjulegum enskum pokum. Pokinn var orðinn talsvert teygður, — búið að nota hann hálfa veiðiför. Á meðan pokamir eru nýir og lítið teygðir, höfum við þá alltaf 35 möskva, en þegar þeir fara að togna, minnkum við þá ofan í 30, það er færum þannig skiptigjörðina til á pokunufn. Með beztu kveðju. Reykjavík, 11. apríl '33. (Sign.) Jón Högnason." „Samkvæmt beiðni þinni hefi ég undirritaður talið fisk úr tveimur pokum af venjulegri gerð, sem sé 80 möskva niður í 60* 1) og kom talan út sem liér segir. Stroffupoki reyndist að hafa inni 398 fiska og skiptipoki 300, fiskur- inn var af Selvogsgrunni í meðallagi stór. (Sign.) Kolbeinn Sigurðsson skipstj.". Eins og menn sjá á vottorði Jóns Högnasonar, er skiptipokinn, sem hann hefir notað, dálítið stærri en á „Þór“ (35 í stað 32 möskva). Vottorð Árna Friðrikssonar fiskifræðings. Næst sneri hr. Pálmi Loftsson sér til Fiskifélags Islands og spurðist fyrir um það, hvað margir fiskar, að meðaltali myndu hafa verið í skippundi af venju- legum togarafiski árið 1932. Þessari fyrirspurn svarar hr. Árni Friðriksson fiskifræðingur á þessa leið: „Fiskifélag íslands P. O. Box 81 — Simi 462. Reykjavík, 27. apríl 1933. Skipaútgerð ríkisins. Mér skal ljúft að svara fyrirspurn þeirri, sem þér hafið beint til mín, um hve margir fiskar (þorskar) muni hafa farið í skippundið að meðaltali, aí fiski, sem veiddist á Selvogsbanka, og þar í grend síð- astliðna vertið. Eftir útreikningum, sem ég tel ekki ástæöu til að birta, er ég kominn tið þessari niðurstöðu: Á tímabilinu marz—apríl 1932 fóru af fiski, sem veiddist á togara: Við Vestmannaeyjar: ca. 140 í skipp. Á Selvogsbanka: — 150 - — Á Suðurköntum: — 124 - — í Jökuldjúpi: — 130 - — Ef þess þykir þörf, er ég reiðu- búinn til þess að gera grein fyrir livernig ég komst að niðurstöðu • þeirri, sem að framan er greind. Virðingarfyllst (Sign.) Árni Friðriksson". Með því að leggja til grund- vallar ofangTeindar rannsóknir skipstj óranna og fiskifræðingsins, er niðurstaðan sú, að í einum | poka á Þór muni hafa verið um 300 fiskar eða eftir því sem fiski- | fræðingurinn segir um tvö skip- pund eða rúmlega það, eftir því x) Hér er átt við breidd pokans. hvar fiskað hefir verið í hvert sinn, en ekki 4 skippund eins og „endurskoðandinn“ talar um eins og viðurkennda staðreynd. Vottorð Þorsteins Jónssonar. Þó að þess út af fyrir sig sé ekki þörf, skal hér ennfremur birt eftirfarandi vottorð frá hr. Þorsteini Jónssyni bátsmanni á „Þór“, sem sýnir til frekari áherzlu því, sem áður er fram tekið, hve blygðunarlausar þær staðhæfingar eru, sem „endur- skoðandinrí“ leyfir sér að fara með. „Vottorð. Af gefnu tilefni er mér ljúft að votta það, að ég álít það illmögulegt að ókveða afla á þór með því að telja trollpokana, sem skipið fékk. Pað er að vísu hægt að telja í full- um og linfullum poka á togara og fá þannrg út meðalpoka, en þá kem- u r það til greiríá, að þó pokinn sé halaður fullur inn er oft mikill part- ur aí innihaldinu ónothæfur fiskur og ýmislegt rusl1). þá verður einnig að taka tillit til þess, að á þór voru færri menn1) en vanalega eru á togur- um og þó ekki hægt að draga netið urídan eins og þarf til þess að pok- arnir' verði vel fullir. (Sign.) þorsteinn Jónsson". Lifrarmagnið. Og þó er eitt enn, sem benda verður á ,í þessu sambandi, og leiðir sterkar líkur að því, sem raunar liggur í augum uppi, að „endurskoðandinn“ hefir notað sidptipokaútreikninginn í ákveðnu augnamiði. Yfirleitt er afli tog- ara miðaður við fjölda lifrarfata. Það var engin ástæða til að ganga fram hjá þessari almennu reglu, þegar reiknaður var út afli „Þórs“, ef ekki bjó eitthvað annað undir. Um lýsismagnið lágu fyrir skýrslur, og engin ástæða. var til að ætla, að lifr- in hefði ekki verið vel hirt, því að yfirmenn skipsins áttu hana sjálfir. Lýsið úr afla Þórs 1932 var 1789 kg., sem miðað við 30% bræðslu samsvara 39 tn. lifrar (166 1. hver tunna). Þetta lifrar- magn samsvarar, eftir venjuleg- ujn reikningi, 45—46 tonnum, en afli „Þórs“ var 49 tonn miðað við fullstaðinn fisk. Svona útreikn- ingur er vitanlega ekki alveg ná- kvæmur (fer eftir lifrarmagni fiskjarins),en reynslan hefir sýnt, að aldrei munar mjög miklu til eða frá. I þessu tilfelli er seldur fiskur ívið meiri en lifrarmagnið bendir til, og því forðast „endur- skoðandinn“ sýnilega eins og heitan eld að minnast á þetta í skýrslunni. En fyrir þessa skýrslu hefir Magnús Guðmundsson dómsmála- ráðherra látið borga hátt á fjórða þúsund krónur í stað þess að hún í hverju öðru siðuðu ríki myndi verða borguð með tugthúsvist handa hverjum þeim opinberlega skipuðum endurskoðanda, sem þannig leyfði sér að fara með dylgjur og falsa staðreyndir í endurskoðunarskýrslu, sem gefin er ráðuneyti undir eiðstilboð. „Svikamyllan“. í upphafi þessarar greinar er vakin athygli á þeirri furðu- legu ráðstöfun, að einmitt Lúð- vík C. Magnússon, sem nýlega var sloppinn undan sakamálsrannsókn fyrir sviksamlegt gjaldþrot, skyldi vera valinn til þessa starfa. Það atriði málsins út af fyrir sig krefst algerlega sérstakrar rann- sóknar. Eins og getið er um á öðrum stað hefir Guðmundi Sveinbjörns- syni skrifstofustjóra í dómsmála- ráðuneytinu, nokkrum dögum áð- ur en stjórnarskiptin urðu og af því, að málið hafði ekki verið bú- ið að vekja almenna athygli eða umtal, tekizt að koma því svo fyrir, að lögregluréttar- rannsóknin, sem hafin var út Heyvinnuvélar. Nú er farið að veita styrk úr verkfærakaupasj óði til kaupa á heyvinnuvélum, — allt að einum þiríðja verðs. — Athngið það og minnist þess að beztu vélarnar eru: IHERKULES sláttuvélar DEERING rakstrarvélar LUNA snúningsvélðr Samband ísl. samvinnufélagít. Stálljáirnir (norsku) frá Brueletto eru komuir. Þrjár lengdir. — Lækkað verð. Samband isl. satnvinnuféiaga. af gjaldþroti L. C. M. skyldi nið- ur falla og sakamál ekki höfðað. Ef til vill getur Mbl. gefið al- menningi upplýsingar um það, hverskonar „svikamylla“ hafi ver- ið í gangi í dómsmálaráðuneyt- inu þessa dagana fyrir og um ráð- herraskiptin, þegar skrifstofu- stjórinn, í annríkinu fyrir stjórn- arskiptin, var að þvo hinn væntan lega endurskoðanda handa Magn- úsi Guðmundssyni og hinn til- komandi dómsmálaráðherra var að búa sig undir að útvega skrif- stofustjóranum aftur 4000 kr., landhelgisgæzlubitlinginn, sem hann hafði misst, af því að Skipa- útgerðin vann verkið betur fyrir ekki neitt! Og þegar athuguð er sú aðferð, sem beitt hefir verið við „endur- skoðunina“, er ekki alveg víst, að þeim M. G. og G. Svb. hefði tek- izt að fá annan mann, jafn vel fallinn til þess verks, sem „end- urskoðandanum“ virðist hafa ver- ið ætlað að vinna. En allt þetta mál þarf rann- sóknar við og skal verða rann- sakað á sínum tíma. Gjaldþrotamál „endurskoðand- ans“ Lúðvíks C. Magnússonar, sem rifjast hefir upp vegna þess- ara atburða, og skrifstofustjórinn í fullu heimildarleysi hefir látið niður falla, á að taka upp aftur og láta ganga til dóms. Hver afleiðingin ætti að verða fyrir skrifstofustjórann og ráð- herrann, sem sett hafa „svika- myliuna“ af stað, er of augljóst til þess að þörf sé að eyða að því orðum. En það verður meðal annars að telja alveg sjálfsagt mál, að heimta af Magnúsi Guðmunds- syni, að hann sjálfur endurgreiði Skipaútgerð ríkisins þá peninga, hátt á fjórða þúsund króna, sem hann í fullu heimildarleysi hefir látið borga af almannafé, alger- lega óhæfum manni, fyrir óþarfa vinnu og falsaða skýrslugerð í embættisnafni. x) Leturbr. Tímans. Ritstjóri: Gísli Guðmundsson. i Tjarnargötu 39. Sími 4245 Prentsmiðjan Acta. EFLING KOMMÚNISMANS og andóí JÓNASAR frá HRIFLU — heitir bæklingum eftir Einar 01- geirsson. Er hann s'var við grein J. J„ sem birtist í Samvinnunni síð- asta hefti. Bæklingurinn er sérprent- un úr „Rétti" — 40 síður — kr. 0,50. Afgreiðsla Verklýðsblaðsins, Rvík. Kaupið innlenda framleiðslu þegar hún er jöfn erlandri og ekki dýrari. framieiffir: Kristalsápu, grænsápu, stanga- sápu, handsáiTU, raksápu, þvotta- efni (Hreins hvítt), kerti a!Us- konar, skósvertu, skógulu, leóur- feiti, gólfáburð, vagnáburð, fmgi- )ög og kreólín-böðlðg. Kaupið H R E I N S vörur, þser eru löngu þjóðkunnar og fást í ílestum vrrziunum landins. Hi. Hreifín Skúlagötu. Reykjavfk. Sími 46S5. Mynáa- og; rammaverzlmi Islenzk málverk Frevjugötu 11. Sími 2105.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.