Tíminn - 06.07.1933, Qupperneq 1

Tíminn - 06.07.1933, Qupperneq 1
XVIL árg. Reykjavík, 6. júlí 1933. 32. blað. Lúdvíksmálid Guðmundur Sveinbjörnsson játar sekt sína. Það gagn hefir þó hafst upp úr ofsókn Morgunblaðsins á hendur hr. Pálma Loftssyni forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, að sann- ast hefir, að Guðm. Sveinbjöms- son hefir stórlega misnotað em- bættisaðstöðu sína sem skrif- stofustjóri í dómsmálaráðuneyc- inu. Þegar bent var á hér í blaðinu hverskonar persóna „endurskoð- andinn“ Lúðvík C. Magnússon væri, að hann var nýsloppinn und- an sakamálshöfðun, þegar þeir Magnús Gúðmundsson og G. Sveinbjörnsson skipuðu hann sem opinberan endurskoðanda á Skipa- útgerð ríkisins, þá var Lúðvík sendur í Morgunblaðið og látinn gefa þar borginmannlega yfirlýs- ingu hinn 28. f. m., sem endaði með þessum orðum: „Hafi því verið eitthvað at- hugavert af minni hálfu, þá er það sök fyrverandi dómsmálaráð- herra að eigi var höfðað málið. En trúi því hver, sem vill að Jónas Jónsson hafi af hlífð við mig úrskurðað, að ekkert skyldi frekara aðgert“. (Auðkennt hér). Menn taki vel eftir því, að hinn 28. f. m. er það sagt af- dráttarlaust í Morgunblaðinu, að það sé Jónas Jónsson, sem hafi látið svikamál Lúðvíks C. Magn- ússonar falla niður, og síðan hef- ir látlaust verið hamrað á því að það væri J. J., sem ætti hér sök. Tímanum var frá upphafi kunn- ugt, að þetta var ósatt. Jónas Jónsson hafði aldrei séð gögn þessa máls, og því enga ákvörð- un um það tekið. Síðastliðinn laugardag sýndi Tíminn fram á það, að auðvelt væri að fá skorið úr í þessu efni, og rakti gang • vinnubragðanna í dómsmálaráðu- neytinu, og taldi þá jafnframt skrifstofustjórann eiga þann einn kost að leggja fram skriflega ákvörðun J. J. um afgreiðsiu málsins, því hún lægi fyrir í ráðuneytinu, ef málið hefði verið undir hann borið. En þá gefst skrifstofustjórinn upp. Og í stað þess að koma með þessa áritun yfirmanns síns, ráð- herrans, þá birtir hann umsögn undirmanns síns, með ekki ákveðnari niðurstöðu en það, að „líklega“ megi málshöfðun falla niður. Og síðar birtir hann áritun sjálfs síns, sem ekki einungis sýnir að allt, sem sagt hefir ver- ið um þetta í Mbl. eru ósann- indi, heldur sannar að það er hann sjálfur, skrifstofustjórinn, sem lætur sakamálshöfðun niður falla á Lúðvík C. Magnússon. Jafnframt því, að hann gerir þessa játningu um sekt sína, birtir blaðið umsögn Magnúsar Guðmundssonar núverandi dóms- málaráðherra um „að það væri siður í málum sem þessum“, að væru skrifsofustjóri og fulltrúi sammála „væri venjulega þar með útkljáð um málið“. Er hér bersýnilega um mis- notkun á umsögn M. G. að ræða. Því það sem M. G. segir, er ekk- ert annað en það, að „venjulega“ fallist ráðherrann á álit skrif- stofustjórans og fulltrúans, séu þeir sammála, „og þar með sé útkljáð um málið“. Hinu dirfist enginn að halda fram, og sízt dómsmálaráðherra, að skrifstofu- stjóri hafi nókkra heimild til þess að taka endanlega ákvörð- un um slík mál sem þessi, þótt liann hafi orðið sammála full- trúa sínum um það „að líklega“ eigi að sleppa manni við saka- mál! Auk þess sem það er og á að vera ófrávíkjanleg regla, að skrifstofustjórinn leggi slík mál og það sem hér um ræðir fyrir ráðherrann, getur Tíminn fullyrt það, að það var regla G. Svb., að bera öll mál sem nokkru skiftu undir Jónas Jónsson með- an hann var dómsmálaráðherra. Þótt G. Svb. brysti ef til vill samvizkusemi til þess, þá vita það allir kunnugir, að hann þorði ekki annað. En undantekn- ingin um mál L. C. M. er gerð með ráðnum hug og ekki lítilli slægð. G. Svb. veit að J. J. er á förum og M. G. er að koma í hans stað. Magnús er auðsjáan- lega flæktur í svikamylluna, vill ekki beinlínis bera ábyrgð á sak- aruppgjöf L. C. M. og þá er þessu svona fyrirkomið, að skrif- stofustjórinn tekur ákvörðunina nákvæmlega rétt fyrir stjórnar- skiptin. Þá fær hann áræðið í von um að ekki verði um feng- izt af flokksmönnum J. J., þar eð þetta gerist í hans ráðherra- tíð, og ekki hætta á því að í- haldsmenn færu að hrófla við málinu, svo sem það var undir komið. En þennan „greiða“ skrifstofu- stjórans launar svo L. C. M. með hinni alræmdu skýrslu sinni um Skipaútgerðina, sem átti að frið- þægja fyrir það, að Einar Ein- arsson var settur á land, að Guðm. Sveinbjörnsson var af- hent yfirstjórn landhelgisgæzl- unnar ásamt fjögur þúsund króna bitlingnum. En að sama skapi óx vegur Magnúsar Guð- mundssonar hjá þeim, sem mest- an hag hafa af lélegri landhelgis- gæzlu. Svikamyllan er því fullsönnuð. Skrif stof ustj órinn hefir sjálfur játað á sig það brot, sem hlýtur að varða embættismissi. Verður það því sjálfsögð krafa að Guðm. Sveinbjömsson víki úr embætti o g gjaldþrotamál Lúðvíks C. Magnússonar verði tekið upp á ný. ----o----- Snorri Sturluson i Reikholti. í vetur harst mér bréf frá einum af leiðtogum ungmennafélaganna norsku þar sem sagt var frá, að undirbún- ingur væri hafinn í Noregi um það Jijá endurvakningarmönnum þjóð- legra fræða þar í landi, að gefa ís- landi á sjö liundruð ára dánarafmæli Snorra Sturlusonar líkneski af hin- um nhkla sagnfræðingi, sem bjargað liefði hinni glæsilegu söguöld Noregs frá gleymsku. Leyfði hann mér að spyrjast fyrir hjá forráðamönnum Reykholts hvað þeir segðu um að myndastyttan yrði reist þar 1941. það leyfi var að vonum auðsótt hjá presti staðarins, skólanefnd og skólastjórn. Allir fögnuðu þeir vin- samlega boði frændþjóðarinnar. Allir fundu að norskt minnismerki um Snorra átti hvergi lieima nema í Reykholti, þar sem hann hafði ritað sögu Noregs og þar sem liann lét lífið, í sorglegum umbrotum norræna stjórninálalifsins. „Talað við dómarann“ Út af grein um Lúðvíksmálið, sem Mbl. birti á sunnudaginn var, hefir Tíminn snúið sér til Hermanns Jónassonar lögreglu- stjóra og spurzt fyrir um, hvort dómsmálaráðuneytið hafi „talað við“ hann um málið og hvort bann hafi lagt til við ráðuneyt- ið, að sakamálsrannsókn yrði lát- in niður falla. Sem svar við þessari fyrir- spurn hefir lögreglustjórinn leyft Tímanum að birta eftirfaranda bréf, sem liann ritaði dómsmála- ráðuneytinu í gær: „Hénneö leyfi ég mér virðingar- fyllst, að snúa mér ti 1 liins liáa dómsmálaráðuneytis út af eftirfar- farandi: Sunnudaginn 2. þ. m. birtist í Morgunblaðinu grein með fyrirsögn- inni „Úlfakreppa Tímans". í grem þessari er birt umsögn fulltrúans i dómsmáláráöuneytinu, ódagsett, um gjaldþrotamál Lúðvígs C. Magnús- sonar, með áritaði'i staðfestingu skrifstofustjórans í sama ráðuneyti dags': 21. maí 1932. í þessari um- sögn fulltrúans, sem hefir verið greind, er þess getið, að talað hafi verið við dómarann, og hafi hann eigi talið sig liafa fundið neitt „sér- staklega fellandi fyrir gjaldþrota". — Blaðið gefur svo á þessu þær skýringar, að það hafi verið taiað um málið við mig og þetta sýni, að ég hafi verið þeirrar skoðunar, að inálið ætti að falla niður. Ég hafði búizt við, að ráðuneytið mundi ótilkvatt leiðrétta þá missögn, sem hér er um að ræða, með þvi að skjölin, sem missögninni valda, voru fengin frá ráðuneytinu. En það hef- ir enn eltki verið gert, mér vitan- lega. Ég geri ráð fyrir, að þetta kafi af vangá, og ráðuneytið hafi ekki veitt missögn blaðsins eftir- tekt, því að bitt hlýtur ráðuneytinu að vera fullkunnugt, að það átti aldrei tal við mig um þetta mál. þess vegna hefi ég aldrei látið í ljós það álit, að málið ætti að falla niður. Hin tilfærðu orð, sem talin eru höfð eftir dómaranum, geta því ekki ver- ið höfð eftir mér. Ég leyfi mér því að óska þess, að ráðuneytið, þegar í stað, gefi mér bréflega skýringu á því við hvað er átt í umsögrj þeirri, sem ráðuneyt- ið hefir látið birta, þar sem skýrt er frá að ráðuneytið hafi „talað við dómarann". (Sign) Hermann Jónasson. Til dómsmálaráðuncytisins, Reykjavík". Eins og fram kemur í þessu bréfi lögreglustjórans, er það al- gerlega tilhæfulaust hjá Mbl., að dómsmálaráðuneytið hafi' nokk- urntíma „talað við“ hann um gjaldþrotamál Lúðvíks C. Magn- ússonar. Því síður er nokkuð hæft í því, að hann hafi viljað láta málið falla niður. Nú hafa norsku ungmennafélögin sent íslenzkum ungmennafélögunum mikið af trjáplöntum, sem þau óska að verði gróðursettar i Reykholti á þeim stað, þar sem líkneski Snorra er búinn staður. Ungmennasamband Borgfirðinga, sem á svo mikinn þátt í liyggingu skólans í Reykholti ætl- ar að gróðursetja trén og annast um trjágarðinn framvegis. Guðjón Samúelsson húsamcistari mun í sam- ráði við forráðamenn staðarins hafa ákveöið stað, framan við skólann fyr- ir trjágarðinn og væntanlegt líkneski liins frægasta manns, sem lifað hefir á íslandi. Mynd Snorra í Reykholti verður tákn þess vinarhugar, sem jafnan þarf að sameina Norðmenn og i íslendinga. J. J. Hverjir hafa stofnað ríkisskuldirnar? 2. 6 rr* i // . l] ynilf. 2.6 Z.+ É j Z-4 2.Z. zz 2. O 2.0 ia ia 16 1<o i-t 14 m 12. lo 1o 8 8 ' b - 6 4- 4 *. I 2 o Hl l o Svörtu súlurnar í línuritinu sýna: I. Ríkisskuldir 1916: Tvær miljónir. Mestmegnis vegna símalagninga. II. Tuttugu og sex miljónir ríkisskulda, sem urðu til á stjórnar- tíma íhaldsráðherranna Jóns Magnússonar, Sigurðar Eggerz og Jóns Þorlákssonar, til að borga: a. Embættiseyðslu. b. Skuldatöp íslandsbanka. c. Skrauthýsin í Reykjavík. III. Tólf miljónir ríkisskulda, sem urðu til árin 1928—1930 undir stjórn Framsóknarflokksins. Til að borga: a. Stofnfé til banka: Búnaðarbankans (3,6 milj.), Landsbank- ans (3 milj.), Útvegsbankans (1,5 milj.). b. Umbótafyrirtæki: Síldarverksmiðjuna á Siglufirði, Lands- spítalann, Arnarhvol, Súðina, útvarpsstöðina, landssímastöð- ina nýju. A víðavanúi. Kosningin í Reykjavík. FuRtrúaráð Framsóknarfélaganna í Réykjavík tók ákvörðun um það nokkrum dögum áður en framboðs- frestur rann út, að eigi yrðiyaf Frám- sóknarflokksins liálfu hafður í kjöri framboðslisti í Rvík að þéssu sinni. Astæðurnar eru augljósar. Framsókn- arflokkurinn hefir enn sem komið er enga von um að koma að einum þingmanni af fjórum í Reykjavík. Úrslit síðustu kosninga sýndu, að flokkurinn þá myndi hafa komið að einum, ef þingmenn Rvíkur hefðu verið sjö. Hinsvegar hefir fylgi flokksins vaxið það mikið siðan, að beztu vonir eru um, að koma að ein- um af sex, ef stjórnarskrárbreytingin gengúr í gildi. Fulltrúaráðið taldi al- veg ástæðulaust að baka flokknuin kostnáð og fyrirhöfn við kosninga- þátttöku nú. Enda standa nú fyrir dyrum bæjarstjómarkosningar á næsta vetri og þar að auki væntan- legai’ alþingiskosningar á næsta vori. Mun því flokkurinn hafa ærið starf uð vinna í höfuðstaðnum nú á næstunni, þótt hann sitji lijá að þessu sinni. Hrakleg málnlok. Kosnin’gabomba Morgunlilaðsins að þessu sinni vor ofsókn sú, sem hafin var á hendur hr. Pálma Loftssy.ni forstjóra Skipaútgerðar rikisins. Til- efnið átti að viera það, að P. L. hefði verið meðeigandi í Fisksölufélagi Reykjavíkur og uppistaðan í 10—20 dálka greinum blaðsins var sú, að P. L. hefði selt P. L. fisk (sbr. þeg- ar .T. þorl. verzlar við borgarstjó!’- ann í Reykjavík, Th. Krabbe verzl- ar við vitamálastjórann o. s. frv.). En Adam var ekki lengi í Paradís. Eftir að birt voru félagsiögin sem sönnuðu að Pálmi gat ekki verið meðeigandi i, félaginu og auk þess vottorð frá félagsstjórninni, sem sannaði að hann liefði heldur aldrei verið það, þá sjá ritstjórarnir þann t kost vænstan að éta allt ofan í sig. — pá var farið í það að deila á P. L. fyrir það að þórsútgerðin mundi tapa 8 þús. hjá Fisksölu- samlaginu, en þá sannaðist, að þetta var sök Magnúsar Guðmundssonar, sem gefið liafði félaginu gjaldfrest., sbr. bréf frá félaginu í vörzlum P. L. Og lokaniðurstaðau af öllu bröit- inu er orðin sú, að nú er megp- inu af lesmáli Mbl. varið til þess, að koma af íhaldsflokknum ábyrgð- inni á því að ekki skyldi vera höfð- að sakamál á Lúðvík C. Magnússon, einmitt á sömu stundinni sepi í- haldið gerði hann út sem opin- beran endurskoðanda á Skipaútgerð ríkisins! Á raupsaldrinum. það hendir oft gamla menn, að látast hafa verið meiri á sinum yngri árum, en þeir voru í raun réttri og segja af sér ýmsar ósannar grobb- sögur, eins og til sönnunar. Er þá sagt að þeir séu komnir á raups- aldurinn. — Slíkt vill þó einkurn koma fyrir menn, sem eru lítilsigldir og liafa litlu til leiðar komið um dag- ana. þannig er t. d. með ritstjórann við blað ungra íhaldsmanna fyrir nokkru. þó liann ætti að vera ung- ur maður, eftir stöðunni að dæma, er hann kominn á gamalsaldur, einmitt á þann aldur, þegar menn fara að raupa og hæla ^sér af verkum, sem þeir hafa aldrei unnið. Maður þessi sem heitir Sigurður hefur unnið við allmörg ihaldsblöð, og þó amlóða- hátturinn og aulabárðarmennskan sé þar höfð í liávegum, þá liefir hann hvergi þótt nýtur og alltaf verið lát- inn fara frá þeim. Nú er hann lát- inn dingla við ómerkilegasta blað iandsins. þrátt fyrir þetta, að íhald- ið, sem , ekki er mannvant, haíi svona vesælt álit á manninum, þá íinnst honum ákaflega mikið til um o.igin persónu, og skrifar í blað sitt fátt annað en lofgreinar um sjálfan sig. Skulu hér tilfærð nokkur um- n.æli úi' einni hólgrein ritstjór- yns, sem sýna hvert er eðli manns- ins og á hvaða aldur hann er kom- \

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.