Tíminn - 19.08.1933, Side 2
186
TÍMINN
í fjarveru minni annast dr. J)or-
kell Jóbannesson ritstjóm Tímans.
Gísli Gnðmundsson.
Atlantshaf norðanvert, en í erindum
>ess íélags kom Guðruundur Gríms-
son dómari iiingað í íyrravetur. —
Vegna aíreksverka sinna í flugferð-
um og glæsimennsku, er Charles
Lindbergh af ýmsum talinn frægasti
maður i Bandarikjunum og vinsæl-
asti næst sjálfum Roosewelt forseta.
Kona hans, sem er dóttir amerísks
miljónaeiganda, er útlærð í stjórn
ilugvóla. En þau Lindberghshjónin
hafa íleira fengið að reyna en
irægðina ,eina. Fyrir tv'eim árum
misstu þau barn sitt ungt á átakan-
iegan hátt og var naikið ritað í
heimsblöðin um þann raunalega at-
burð.
Marsvmaveiðin í Ólafsíirði, sem
getið var um í seinasta blaði heiir
orðið til mikilla erfiðleika íyrir rit-
snápa ihaldsblaðanna og gefur jaín-
l'ramt gott sýnishorn um hinn venju-
lega fréttaflutning Jjeirra. Morgun-
blaðið rann fyrst á vaðið og sagði
frá því 10. þ. m., að 300 höfrungar
hefðu verið rekmr á land i Ólafs-
iirði. S. d. segir Vísir, að þetta hafi
verið 200—300 marsvín. Næsta dag
segir Morgunbl., að þetta hafi verið
marsvin en ekki höfrungar og Visir
skýrir þá frá því, að þau hefðu verið
340 talsins. En það lét Morgunbl.
sér ekki nægja, og 13. þ. m. segir
það, að þau hafi verið 400. En sein-
ast þegar það segir frá þeim, 16. þ.
m., eru þau orðin 300, og er þá kom-
ið aftur þangað, sem byrjað varl
Friðrik rikiseríinyi er kominn aftur
til Reykjavíkur úr för sinni um
Norðurland. Fór haun austur að
Laugum í þingeyjarsýslu. Forsætis-
ráðherra o. fl. voru með í förinni.
Hafnarfjarðarhlaupið. Um iangt
skeið hefir verið árlega keppt í
hlaupi milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur. Er hlaupið í ár nýaf-
staðið og vann það Karl Sigurhans-
son úr Vestmannaeyjum. Illjóp það
á 41 min. 8 sek. og það met.
Brúin, sem var á vesturkvísl
Skjálfandafljóts brotnaði niður und-
an flutningabíl, sem var að fara yfir
iiana fyrir nokkru síðan. Komst bíll-
inn yfir um mað nainnindmn. Brú
þessi var orðin mjög gömul og ónýt,
og má það lán heita, að aldrei skuli
hafa hlotizt slys af. Nýja brú er nú
verið að byggja yfir kvíslina og
mun hún verða fullgerð í mánaðar-
lokin.
Iðunn, 1.—2. hefti þ. á., er nýkom-
in út. Efni: Jóhannes úr Kötlum:
Glókollur (kvæði), Poul-Louis Sau-
choud: Elzta guðspjallið. H. K. Lax-
ness þýddi. Sveinn Faxi: í öngþveiti
(saga), Jóhannes úr Kötlum: íslenzk
heimspeki, Jónatan Sigtryggsson:
Tvær stökur, Jóhannes V. Jensen:
Nautaatið (saga), þorbergur þórðar-
son: Á guðsríkisbraut, W. Múlhausen:
Hún (kvæði), Hjalmar Söderberg:
Misgáningssónatan (saga), Jón Leifs:
Kveðja, Sigurður Einarsson: Undir
krossi velsæmisins, Kristinn E. And-
résson: Eins og nú horfir við, Guðm.
Daníelsson: Útsýn (kvæði), Skúli
Guðjónsson: Kirkjan og þjóðfélagið,
Frönsk spakmæli, Steinn Steinarr:
Gönguljóð, Oddný Guðmundsdóttir:
Eldhúsið og gestastofan (saga), Berg-
steinn Kristjánsson: Söfnun ömefna,
Benjamín Sigvaldason: Bókamarkað-
urinn, G. R.: Um rímnakveðskap.
Bókafregnir eftir ritstjórann og Jón-
as Jónsson frá Efstabæ.
Madsen-Mygdal. Á aðalfundi þing-
manna vinstrimannaflokksins í
Danmörku, sem haldinn var nú ný-
verið, skoraðist Madsen-Mygdal und-
an því, að vera formaður þingflokks-
ins, sém hann hefir verið um langt
skeið og tilkynnti jafnframt, að hann
myndi leggja niður þingmennsku.
Madsen-Mygdal hefir verið í fremstu
röð danskra stjórnmálamanna og er
álitið, að þetta geti haft slæmar af-
leiðingar fyrir flokkinn, því hann
er án efa hans langöflugasti mað-
nr. Madsen-Mygdal er 57 ára gamall,
lagði upphaflega stund á landbún-
aðarnám og var síðan um nokkur ár
forstöðumaður landbúnaðarskólans í
Dalum. 1920—1924 var hann landbún-
aðarráðherra. 1925 lagði hann niður
þingmennsku og ætlaði að draga sig
út úr stjórnmálalifinu, en fyrir ítrek-
aðar áskoranir gaf hann kost á sér
til þingmennsku árið eftir og varð
i'orsætisráðherra skömmu síðar og
gegndi því starfi um þriggja ára
skeið. — Vinstrimannaflokkinn skipa
aðallega bændur og meðal þeirra er
G-óðar og slæmar kýr
það eru ekki (enn komnar skýrsl-
• ur um starfsemi allra nautgriparækt-
arfélaganna fyrir árið 1932. Áttatiu
og fjögur hafa sent skýrslur, en frá
þrem vantar.
í þessum áttatíu og fjórum félög-
um eru 1938 bændur og eiga þeir
samtals 4985 fullorðnar og fullmjólk-
andi kýr.
Enn eru kýmar misjafnar, en frá
því verður ekki sagt til fullnaðar fyr
en skýrslur koma frá öllum félögun-
um. En af mismuninum leiðir það,
að þær eru mis arðsamar, og það
þarf að verða öllum kýreigendum
ijóst, því það er grundvallarskílyrði
fyrir því, að unnið sé að því að
bæta kýrnar.
Meðal nyt Feiti %
Slæmu kýrnar .. 1851 3,79
Góðu kýrnar. .. 3638 3,63
Vegna þessa bendi ég ennþá eiriu
sinni á arðmismun kúnna.
Ég vel nú til samanburðar þá 20
l^æi, sem ekki áttu nythærri kýr
1932 en það, að meðal kýrnyt heim-
ilisins var milli 1800 og 1900 kíló-
gröm og að ineðaltali 1851. þessar
kýr kalla ég slæmu kýmar.
Til samanburðar við þessar kýr
vel ég kýmar á þeim 21 bæ, sem
áttu svo góðar kýr 1932, að meðal
kýmyt heimilisins var á milli 3600
og 3700 kílógröm, og að meðaltali
3638. þessar kýr kalla ég góðu
kýrnar.
Samanburður á nythæðinni var
þessi:
Verð
Srnjörmagn Verð alls pr. litra
78 350,76 18,95
147 660,30 18,15
Mjólkin er hér reiknuð á 5 aura
fitueiningin. Með því verði hefir
fengist 309,54 kr. meira fyrir mjólk-
ina úr góðu kúnum.
En nú halda margir að góðu kýrn-
ar éti tiltölulega meira en hinar.
Raunverulegi hagurinn við þær verði
því enginn. Hve fjarri sanni þetta
er, sést bezt með því að athuga fóð-
ur' beggja, og sést það af eftirfarandi
samanburði:
Fóðurkostn-
Vetrarfóðrið var Gefið í aður
Taða Úthey Vothey Fóðurbætir daga Alls Á dag
Slæmu kýrnar.. .. 2027 498 66 46 239 190,11 0,80
Góðu kýrnar .. .. 2302 279 1124 344 250 285,20 1,14
Taðan er virt á 8 aura, útheyið
á 3%, votheyið á 2 og fóðurbætirinn
á 20, allt pr. kiló. það sést þá, að
víst. kostar þeð meira, fóðrið góðu
kúnna en þeirra slæmu, en sá mis-
munur svarar hvergi nærri til mis-
munarins á verði mjólkurinnar. þetta
kemur til af þvi, að ekki þarf að
halda lifi nema í einu höfðinu á góðu
kúnni, til þess að fá hartnær sömu
mjólk og tvö höfuðin gáfu á þeim
slæmu. Tveggja manna makar hafa
alltaf þótt eftirsóttir til vínnu og
tveggjakúa makar eru eftirsóttir á
básana.
Til glöggvunar á samanburðinum
má enn taka tölumar:
Mismunur
375,10
160,65
Verð mjólkurinnar
Góðu kýmar gerðu............... 660,30
Slæmu kýrnar gerðu............. 350,76
Verð fóðursins
285,20
190,11
Mismunur er því
309,54
95,09 204,45
það er því blákaldur sannleikur,
sem ekki verður hrakinn, að mis-
munurinn á meðalkúnni á þeim 20
bæjum innan nautgriparæktarfélag-
anna, sem áttu svo slæmar kýr 1932,
að meðal kýmytin var á milli 1800
og 1900 kg., og meðalkúnni á þeim
21 bæ, sem sama ár áttu svo góð-
ar kýr, að meðalnyt þeirra var milli
3600 og 3700 kg., er svo mikill, að
hann nemur kr. 204,45 á meðal kú.
það eru hér um bil 3 kýr á meðal
bóndabæ og yrði þá arðmismunur-
kúabúanna um 600 krónur. það má
finna minna grand í mat sínum, og
einkum þegar sparlega þarf að
skammta.
Og geti það, að rnönnum verði
þessi mismunur vel ljós, ekki orðið
til þess, að menn vilji eiga góðar
kýr og vilji vinna að því að þær
verði það, þá veit ég ekki hvað
þar getur haft áhrif og fengið alla
kýreigendur til að vinna að þvi, að
auka arðinn af kúabúunum og kyn-
bæta kýrnar.
Reykjavík, 6. ágúst 1933.
Páll Zóphónlasson.
Madsen-Mygdal mjög vinsæll. Mun
iiann halda áfram að vera formað-
ur landsambands vinstrimanna þó
hann hverfi úr þingsalnum. Dr. Krag
hefir verið kjörinn formaður þing-
flokksins.
Esperantistamót. Esperantistar hafa
nýlega haft með sér mót i Stokk-
hólmi og voru þar mættir fulltrúar
frá 14 löndum. Esperantómælendum
fer alltaf fjölgandi og eru þegar orðn-
ir nokkuð margir hér á landi, sem
hafa lært það mál.
Frá Noregi. Sökum minnkandi
flutninga hefir stór hluti norska
kaupskipaflotans ekki verið starf-
ræktur, síðan kreppan hófst. í apríl
f. ár lágu 372 skip, sem áður höfðu
verið notuð til flutninga í höfn. Smá-
lestatala þeirra var samanlögð 1600
þús. Nú er þetta að lagast. 1. ág. s.l.
| voru aðeins 191 skip ónotuð og var
í smálestatala þeirra alls 950 þús. Mun
!áta nærri að það sé 16% af flotan-
um. Hefir sú tala aldrei verið eins
lág síðan i árslok 1931. Norsk skip
kaupa talsvert af íslenzku kjöti, og
mega þetta m. a. þess vegna teljast
góðar fréttir hér á landi.
Óaldarflokkur með Nazistasniði er
nú risinn upp í Irlandi, nefnir sig
„bláa liðið" og gengur í bláum ein-
kennisbúningum. Foringi þessara
írsku ofbeldismanna er O’Duffy hers-
höfðingi. Ríkisstjómin hefir gert
strangar ráðstafanir til að taka fyr-
ir kverkamar á ófögnuði þessum.
Gandhi fangelsaður. Hér í blaðinu
var fyrir skömmu sagt frá föstu
þeirri, sem Gandhi lagði á sig í vor.
Nú nýverið ætlaði hann að hefja
einskonar mótmælagöngu fram og
aftur um Indland og hvetja þjóðina
til samtaka á móti Englendingum.
í förinni átti að vera 32 menn, og
voru þar á meðal ýmsir hans helztu
fylgismenn. En áður en hann lagði á
stað, var hann handtekinn og allir
hans væntanlegu ferðafélagar. —
Ég þakka söfnuðinum í Húsavík
heiðursgjöf þá, er hann sendi mér
á þritugsafmæli mfnu 7. þ. m., og
vil ég um leið þakka allt það vin-
arþel, er mér var sýnt í þeim söfn-
uði þau fjögux ár, er ég gegndi
prestsstarfi þar.
Knútur Amgrímsson.
wummmmmmmumm^mmmmmmmmmma
Nokkru síðar var hann kallaður fyr-
ir rétt og boðið að hann yröi látinn
laus, ef hann lofaði að hafa enga
stjórnmálastarfsemi með höndum.
því neitaði hann ákveðið og var þá
réttarhaldinu lokið, eftir að það hafði
staðið í eina mínútu. Að því aí-
stöðnu var hann dæmdur í 1 árs
íangelsi. Búist er við að hann muni
taka á sig nýja föstu, í mótmæla-
skyni.
Hveitiuppskera i Bandaríkjunum.
Ilveitiuppskera í ár í Bandaríkjun-
um er sögð svo lítil, að hún hafi
aldrei verið minni síðan 1893. Er
talið að framleiðslan verði ekki
meiri en 500 milj. mæía, en til
neyzlu í landinu þarf 600 milj. mæla.
En frá fyrri árum eru til 360 milj.
mæla af hveiti, svo samt vérða til
útflutnings yfir 200 milj. mæla. —
Ilafra-, bygg-, rúg- og hörframleiðsl-
an er líka talin verða mjög lítil. Er
útlit fyrir, að uppskeran verði 25%
minni en hún hefir til jafnaðar
verið 5 til 7 undanfarin ár. Orsökin
til þessarar rýmunar á uppskerur.ni
er of miklir hitar og skemmdir af
oíviðrum.
Ný iðngrein. í fyrri viku byrjaði
nýtt fyrirtæki starfsemi hér í .Reykja-
vík og heitir það Veiðarfæragerð ís-
lands. Eins og nafnið ber með sér, er
þar unnið að veiðarfæragerð. Er
þegar byrjað að gera allskonar línur.
Vélar þær, sem notaðar eru, geta
snúið línur með allt að 36 þráðum.
Línumar eru síðan hertar (léttbikað-
ar) og gerir það þær miklu endingar-
betri og ver þær fúa. Maður sá, sem
Laus slaða
Framkvæmdarstjórastarfið við 'Kaujffélag' Sigl-
firðinga er laust um næstu áramót.
Umsóknarfrestur er til 15. október n. k.
Umsækjendur skulu tilgreina þekkingu sína ög
reynslu á verzlúnarmálum, ásamt launakröfu.
Trygg'ingar verður krafist fyrir starfinu.
Umsóknii sendist til Bergs Guðmundssonar, Suð-
urgötu 20.
Siglufirði, 28. júlí 1933.
Kaupfélagsstjðrnin
K andid ats st aA a»
á Landspítalanum verður laus 1. okt. næstkomandi.
Staðan er til 1 árs, 6 mánuði á lyflæknisdeild og 6
mánuði á handlæknisdeild.
Umsóknir sendist stjórn spítalans fyrir 10. sept-
ember n. k.-
Stjórn spítalans
ÍOO
nngar
endnr
til sölu. — Lágt verð.
FRANS BENIDIKTSSON,
Traðarkotssundi 6. Reykjavík.
Sími 4174.
■■■■■HnSBSBBaHMRV
Reykjavik. Sími 1249 (3 llnur).
Sfmnefni: Sláturfélag.
Áskurður. (á brauö) ávalt tyfkr-
liggjandi:
Salami-pyiaur.
Hangibjúgu (Spegep.) nr. 1, gild
Do. — 2. —
Do. — %, mjó
Sauöa-Hangibjúgu, gild
Do. mjó,
Soðnar Svína-rullupylsur,
Do. Kálfarullupylsur,
Do. SauÖa-rullupyl»ur,
Do. Mosaikpylsur,
Do. Malacof f pylsu r,
Do. Mortadelpylaur,
Do. Skinkupyleur,
Do. Hamborgarpylaur.
Do. KjðtpylBur,
Do. Lifrarpylaur,
Do. Lyonpylour,
Do. Cervalatpylsur.
Vörur þessar aru allar búnar
til á eigin vinnustofu, og stand-
así — aö dómi neytonda — sam-
anburð við samskonar erlendar.
Veröskrár sendar, og pantanir
afgreiddar um allt land.
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUS
Bankastræti 2, simi 4502.
Ferðamenn! Gerið viðskipti ykkar
við kaupfélagið, þegar þið komið
til bæjarins. Það er trygging fyrir
góðum vörum með hæfilegu verði.
stofnað hefir fyrirtækið er frá Kirkju-
bóli í Önundarfirði og heitir Skúli
Pálsson. Hefir hann unnið að undir-
búningi þessa fyrirtækis um tveggja
ára skeið, því miklir erfiðleikar hafa
orðið á því fyrir hann að afla fjár til
þess að byrja. En fyrir sérstaka þraut-
seigju og dugnað hefir Skúla nú tek-
ist að koma þessu fyrirtæki á laggirn-
ar. Hefir hann fengið sérfræðing frá
Noregi, Fr. Petersen, til þess að
stjórna verkinu. Línur þær sem þegar
eru tilbúnar, líta mjög vel út, og má
óhætt gera ráð( fyrir, að fyrirtæki
þetta eigi góða framtíð, því að gera
má ráð fyrir, að ísl. útgerðarmenn
noti frekar íslenzkar línur en útlend-
ar, þegar gæðin eru þau sömu.
Hálft blað af Timanum kemur út
öðru hverju nú um mesta annatím-
ann. Verður bætt upp í haust — og
vetur.
TAPAST
hefir brúnstjörnóttur hestur.
Vetraraffextur. Mark: gagnfjaðr-
að hægra, gagnbitað vinstra.
Hesturinn tapaðist frá Hafnar-
firði laust fyrir miðjan júlí síð-
astliðinn.
Þeir; sem kynnu að verða varir
við hestinn eru vinsamlega beðnir
að tilkynna það Jens Pálssyni í
kjötbúðinni Heklu, Reykjavík,
sími 2936.
Slálfs er hðedin
hollust
Kaupið innlenda framleiðslu
þegar hún er jöfn erlendri og
ekki dýrari.
framleiðir:
Kristalsápu, grænsápu, stanga-
sápu, handsápu, raksápu, þvotta-
efni (Hreins hvítt), kerti alls-
konar, skósvertu, skógulu, leður-
feiti, gólfáburð, vagnáburð, fægi-
lög og kreólín-baðlög.
Kaupið H R E INS vörur, þær
eru löngu þjóðkunnar og fást í
flestum verzlunum landsins.
Hi. Hreinn
Skúlagötu. Reykjavík.
Sími 4625.
99
Ko la’verzln.ii
SIGURÐAR ÓLAFSSONAR
Simn.: Kol. Reykjavik. Sfani 1033.
mtmmBsammmxmuKmmaammammm
Mynda- og ramm&verzlun
Islenzk: málverk
Frevjugötu 11. Sími 2105.
Ritatjóri: Giall BiIbibísisb.
TJaraae^ttu 30. Rimi' 4*45.
Prentamiöjan Aota.