Tíminn - 09.05.1934, Side 1

Tíminn - 09.05.1934, Side 1
(Sfaíbbagi 6 ! q fc o t it ö ec I. Júnl. jÁtgangutlnn £ostat 10 ft. xnn. árg. Reykjavík, 9. maí 1934. Um fjármál. Eftír Eystein Jónsson. Erindi flutt á flokksþingi Framsóknarmanna 18. marz Hvað eru fjármál? Það má að vísu segja, og með nokkrum rétti, að flest þau málefni, sem um er fjallað á Alþingi og af ríkisstjómum, séu að öðrum þræði fjármál. Hér mun ég þó halda mig við að ræða um þau mál, sem venjulega eruköll- uð fjármál og óneitanlega eru það fyrst og fremst. Þó þau fjármál ein, sem jafn- framt eru stjórnmál, sem Alþingi ræður um beint eða óbeint — eða getur ráðið. Þeim finnst mér gleggst að skipta í þrennt: 1. Starfsemi ríkissjóðs og afkomu. 2. Starfsemi bankanna. 3. Viðskipti þjóðarinnar við aðrar þjóð- ir og afkomu hennar út á við. Meðferð þessara mála fer eftir því hverjir ráða á Alþingi og því sérstaklega áríðandi, að menn geri sér nákvæma grein fyrir viðhorfi stjórnmálaflokkanna til þeirra. I. Ríkissjóðurinn. Ríkissjóður er notaður til sameiginlegra ]>arfá þjóðarinnar. Úr honum er fyrst og fremst greiddur kostnaður við að stjórna landinu, halda uppi dómum og löggæzlu o. s. frv1. Þetta er hinn beini kostnaður við þjóðarbúið. Þá eru ennfremur úr ríkissjóði greiddar háar upphæðir til mennta- og heilbrigðismála, samgöngumála og margs- konar verklegra fyrirtækja. Þessi útgjöld eru yfirleitt annars eðlis en þau fyrtöldu. Þau miða einkum að því að bæta aðstöðu þegnanna, auka afkomumöguleika þeirra, er ei-fiðast eiga og styrkja þá í lífsbarátt- unni. Með þessari starfsemi ríkissjóðs er ]>ví unnið að jöfnun á kjörum manna. Eftir því, sem ríkissjóður rækir méira þessa starfsemi, þarf hann á meira fé að halda. I reyndinni og þegar til lengdar lætur, fer alltaf svo í lýðræðislöndum, að fé til þarfa ríkissjóðs er að meirahluta tekið hjá þeim, sem veruleg fjánáð hafa. Þannig verður hin síðamefnda starfsemi ríkissjóðs til þess að þeir, sem1 betur mega láta af höndum fé til ríkissjóðs, sem hann síðar ver almenningi til hagsbóta. Þessi staðreynd leiðir til þess, að í öllum lönd- um rísa þeir upp, sem miklu hafa úr að spila og krefjast þess, að sem lægst heild- arupphæð sé tekin í ríkissjóðinn — helzt ekki nema sem svarar beinum kostnaði við rekstur þjóðarbúsins. Um þessar kröfur eru myndaðir stjórnmálaflokkar — íhalds. flokkar. Hér á landi er það svokallaður Sjálfstæðisflokkur, sem hefir þetta hlut- verk. í lýðræðislandi má slíkur flokkur sjálfs sín vegna ekki túlka stefnu sína á réttan hátt vegna þess, að þeir, sem bíða tjón af framkvæmdum flokksins eru miklu fjölmennari en hinir, sem halda flokknum uppi í eiginhagsmunaskyni, og mundu ]>ví bera flokkinn ofurliði við kosn- ingar, ef þeir skildu.hvert stefndi. Þá er gripið til þess ráðs, að kenna þessa stefnu við sparnað. Sparnaðartalið lætur vel í eyrurn þeirra, sem daglega þurfa að neita sér um allt nema brýnustu lífs- nauðsynjar. Hinu hafa íhaldsmenn treyst, og óneitanlega með nokkrum árangri, að menn gerðu sér yfirleitt ekki grein fyrir 1-934. því, að „sparnaðurinn“ fyrirhugaði er í'ólginn í því að skera við nögl greiðslur iil verklegra framkvæmda, sem öllum al- menningi er lífsnauðsyn að hafa sem niestar. Sá eini raunverulegi „sparnaður", sem íhaldið framkvæmir, eru skattalækk- anir á þeim mönnum, sem eru kjarninn í þeirra flokki. En það er ekki sá sparn- aður, sem horfir til gagns almeriningi. Lýsing Jóns Þorlákssonar 1908 á tilgangi og starfsaðferð íhaldsflokka. Núverandi foringi íhaldsmanna hefir lýst núverandi stefnu sinni mæta vel í grein, sem hann skrifaði í Lögréttu 1908. Get ég ekki stillt mig um að leiða hann sem vitni í þessu máli. Ilann lætur svo um mælt: -pað ern venjulega hinir efnaðri borgarar í hveriu þjóðfélagi, sem fylla íhaldsflokkinn. peir eru ánægðir nieð sinn hag, og finna þess vcgna ekki að þörf sé breytinga eða bóta á hag þjóðarinnar og vilja ekki láta heimta af sér skatia í því skyni. Framfara- og umbóta- íli)l;kana skipa aftur þeir efnalitlu, sem finna, að þjóðfélagið þarf að gera margt og mikið til þess að bæta lifsskilyröi alþýðunnar; sömu stefnu f.vlgja og þeir meðal efnaðri manna, sem einblína ekki á sína eigin pyngju, heldur iiafa hag þjóðarinnar í heild sinni fyrir aug-. um. íhaldsmenn semja í öllum löndum stefnu- skrár sínar þannig, að þær gangi sem bezt í angn atmennings. því að á því veltur fyigið. þess vegna segja þcir ekki: Við viljum enga nýja vegi, ekki talsíma, ekki járnhrautir, ekki hafnir, kærum okkur ckki um alþýðuskóla o. s. frv.; ef þeir segðu þeitta, fengju þeir sem- sé lítið fylgi. þeir scgja sem svo: Við viljum fara sparlega með landsfé, við viljum styðja gætilega fjármála- slefnu, við viljum ekki hleypa okkur i skuldir. Jieir vita það ofur vel, að ef þeir geta passað, að 'þjóðin komist ekki i landssjóðinn, þ;i fær þjóðin hvorki alþýðuskóla, járnbrautir, hafnir eða annað slikt, sem hún telur sig þurfa, en þeir, ínaldsmennirnir, halda, að hún geti án verið. I'etta er evrnamark reglulegs afturhalds- flokks, hverju nafni sem hann ltýs að nefna sig, vantrú á landinu, að það svari arði, ef svnir þess vilja kosta upp á að hlynna að því og vantrú á þjóðinni, að hún sé fær um að nota sér þær lyftistengur á leiðinni til hag- sældar og sjálfstæðis, sem aflmestar hafa reynzt annarsstaðar. ------“ íhaldsmenn vllja gefa kaupmönnum gróðann af ríkisfyrirtækjimum. Eitt af g'leggstu dæpiunum um fjár- málaviðhorf ómengaðs íhaldsflokks er f-yrirheit íhaldsmanna um að komist jteir til valda leggi þeir niður fyrirtæki, sem ríkissjóður græddi á samtals kr. 766 þús. árið 1933, samkvæmt skýrslu fjár- málaráðherra*). (Sbr. samþykkt lands- furidar íhaldsmanna 1933, sem birt hefir verið). Nú vita menn, að þrátt fyrir þess- ar tekjur var greiðsluhalli ríkissjóðs 1988 um 1 milj. króna. Missti víkissjóður því þessa tekjustofna og væri skattar þar að auki lækkaðir, eins og- íhaldið þykist lka ætla að gera, væri gjörsamlega óhugsandi annað en að fram- kvæmdir ríkissjóðs væru stórlega minnk- aðar og jafnvel felldar með öllu niður. *) Gróði Tóbaksv. kr. 556 þús., Viðtækja- ssölu 175 þús., Prentsm. 70 þús. = 801 þús. -F tap á Vélsmiðju 35 þús. = 766 þús. Til þess að nokkrir kaupmenn í Reykja- vík geti grætt á tóbaki, viðtækjum o. fl. ættu landsmenn að vera án nýn-a sam- göngubóta og framlaga til verklegra fyr- irtækja, sem afkoma fjölda manna velt- ur á. Geta menn búizt við því, að árasir íhaldsins á afkomumöguleika manna verði berari en þetta? Ilvernig líst mönnum á að taka upp fjármálastefnu þessa á sama tíma, sem það liggur ljóst fyrir, að eigi fjöldi æslcumanna víðsvegar um land- íð ekki að fara á vonarvöl, verður ríkið að .styrkja þá til heimilamyndunar? Umbótastefnan I fjármálum. Gegn þeim ófagnaði, sem nú hefir ver- ið lýst — íhaldsstefnunni í_ fjármálum — hafa í öllum löndum myndast samtök manna, til þess að fá því framgengt, að starfsemi ríkissjóðanna væri beint hæfi- lega að jöfnun lífskjara þegnanna. Hér á landi hefir Framsóknarflokkur- inn haft forystu í baráttunni fyrir þessu, og átt að sækja, eins og- eðlileg rök liggja til, gegn íhaldinu. Fyrir hverri verulegri fjárveitingu til almenningsþarfa hefir flokkurinn þurft að berjast. Eins og aðrir umbótaflokkar gerir Framsóknai’flokkur- inn skarpan gieinarmun á greiðslum rík- issjóðs eftir því, hvort þær eru almenn- ingi til styrktar eða beinn kostnaður við þjóðarbúið. Hinar fymefndu reynir flokkurinn að hafa sem rífiegastar, með bliðsjón af tekjuöflunarmöguleikum rík- issjóðs, hinar síðarnefndu sem lægstar. Eftir því, sem beinh reksturskostnaður er lægri, eftir því er úr meiru að spila til gagnlegra framfara. íhaldsmenn byggja fylgisvonir sínar á hví, að menn skilji ekki eðli þessara mála, og leggja því allt kapp á að leyna hinni réttu stefnu með sparnaðarhjalinu. Fram- sóknaiTlokkurinn leggur hinsvegar áherzlu á að flytja stefnu sína sem greinilegast, til þess að menn sjái tilgang flokksins — liann hefir allt að vinna við það, að menn setji sig sem bezt inn í þessi mál. Ilvernig á að afla ríkissjóði tekna? Nú hefi ég- eytt nokkrum tíma til þess að gera giein fyrir ágreiningnum um það, hvernig ríkissjóður skuli rækja hlutverk sitt og hve miklu fé hann skuli hafa yfir að ráða. Þá verður að minnast þess, að einnig er mikill ágreiningur um það, hvernig ríldssjóður skuli afla þess fjár, sem honum er ætlað til afnota. Þessi ágreiningur er kunnari og meira ræddur en sá, sem ég hefi telcið til með- ferðar nú þegar, og get ég því verið um hann stuttorðari. íhaldsmenn krefjast þess, að tekjur . ríkissjóðs séu sem mest teknar með toll- um. Af þessu leiðir vitanlega, að eftir þeirra aðferðum yrðu greiðslurnar í ríkis- sjóðinn að verulegu ag jafnvel mestu leyti telaiar af þurftartekjum manna. Vitan- legt ætti að vera öllum hugsandi mönn- um, að þessi stefna íhaldsmanna í skatta- . málum er til orðin vegna þess, að með tollaaðferðinni greiða þeir minnst tiltölu- lega, sem mesta hafa getuna, en það eru einmitt þeir sem halda uppi stjórnmála- stefnu íhaldsmanna. Framsóknarmenn krefjast þess hins- vegar, að sem mests af tekjum ríkissjóðs sé aflað með beinum sköttum á tekjur og eignir, eyðsluvörutollum og gróða af verzlun með álagningarmiklar vöruteg- undir. Þeir krefjast þess og stefna að því, að sem mest af greiðslum til ríkissjóðs sá tekið af tekjum þeim, sem umfram eru þurftartekjur. Þessi stefna Framsóknar- manna er í fullu samræmi við þá skoð- un þeirra, að með starfsemi ríkissjóðsins eigi að vinna að jöfnun lífskjara í land- inu. . ) ^ ] V Frv. um tekju- og eignaskattsauka á Alþingi 1933. Ég hefi áður minnst á afstöðu íhalds- manna til ríkisverzlananna og tekjuöfl- unai’ ríkissjóðs með rekstri þeirra. Nú vil J^feteifesla inn^elnita d Caugaoeg 10. ©itai 2553 - Póstbólf 961 22. blað. ég minna á eitt dæmi, til þess að mönn- um gangi betur að glöggva sig á stefnu meginflokkanna í skattamálum: Á Alþingi 1933 flutti Ásgeir Ásgeirs- son fjármálaráðherra frumvarp um að leggja á 40—100% tekju- og eignar- skattsauka vegna þess að ríkissjóður var mjög tekjuþurfi. Ihaldsmenn höfðu þá stöðvunarvald i efri-deild, ásamt Alþýðu- flokknum. Þeir fengu þá Alþýðuflokks- manninn í efri deild í lið með sér og neit- uðu frumyarpinu um framgang. íhalds- menn tjáðu sig hinsvegar tilleiðanlega að g-anga inn á 40% hækkun, ef það, sem á vantaði, yrði tekið með kaffi- og sykur- tclli. Svo var gert. Hvað var það, sem gerðist? Hér gerðist það, að í stað þess að þeir, sem höfðu 1932 4500 kr. hreinar tekjur og þar yfir, greiddu ríkissjóði það, sem hann þurfti í viðbót við tekjur sínar, voru allir, sem kaupa kaffi og syk- ur, skyldaðir til þess að greiða upphæð- ina. Af því að allmikið skortir á að menn géri sér grein fyrir eiginhagsmunapóli- tík íhaldsmanna, skal þess getið, að sam- livæmt skattskrá Reykjavíkur „sparaði" einn af forvígismönnum þeirra sjálfum sér kr. 2404.02 skattgreiðslu með því að koma i veg fyrir, að frumvarpið yrði að lögum. Ýmsir aðrir, sem minna ber á í stjórnmálum „spöruðu“ þó hærri upp- liæðir. Upphæðirnar, sem þannig spöruð- ust, voru greiddar af neytendum kaffi og sykurs — hæstar upphæðir af þeim, sem flesta höfðu fram að færa. Fjármálastjórn íhaldsmanna og fjármála- stjórn Framsólínarmanna. — Samanburður. íslendirigar hafa nú reynt stjórn í- haldsmanna og stjórn umbótamanna. Nú á mönnum því að vera vorkunnarlaust að átta sig á þessum málum. Mun ég nú rekja í örstuttu máli fjármálastjórn hvorráRveggja. Allt frá 1916—1927 voru framherjar í- haldsmanna við völd á íslandi. Oftast einráðir, en alltaf mestu ráðandi. Á þessu tímabili náðu umbótamenn aldrei svo miklum yfirráðum, að þeim tækist að framkvæma fjármálastefnu sína. 1 lok ]>essa tímabils voru ríkisskuldirnar 28 rniljónir, samkvæmt skýrslu Hagstofunn- ar. Á umræddu tímabili (1916—1927) l’.afði verið stofnað til 26 miljóna af þessum skuldum. Fram að 1924 var stöð- ug skuldasöfnun. Þá voru skuldirnar orðnar svo iráar, að flokkarnir samein- uðust um að auka skatt-tekjur ríkissjóðs, og næstu ái' var svo greitt töluvert af skuldum. Þá fór Jón Þorláksson með. fjár- málastjórnina og íhaldsmenn fóru með meirahlutavald á Alþingi. Þegar þeir liöfðu farið með völdin í tvö ár, tóku þeir að lækka skattana aftur og síðustu 2 árin, sem þeir fóru með völd, var tekju- halli fíkissjóðs 1.7 millj. króna. Af þeim 26 millj. króna skuldum, sem söfnuðust undir forustu íhaldsmanna, voru um 10 millj. króna vegna halla á víkissjóðnum sjálfum. 16 milljónir aðal- iega vegna framlaga til bankanna, og bankavaxtabréfakaupa, þar á meðal 3 millj. króna, sem ríkið varð að taka á sig að standa undir 1-930, þegar Islands- banki gafst upp. Fjármálastjórn tímabilsins 1916—1927 hefir á sér öll einkenni íhaldsstefn- unnar, sem eðlilegt er. Framkvæmd- ir sáralitlar, en samt skuldasöfnun vegna þess, að íhaldsmenn hlífðu mjög við skattaálögum, sem harðast hefðu hlotið að koma niður á kjarna flokks þeirra. Þegar út yfir tók skuldasöfnunin, var Jón Þorláksson látinn bregðast við, skattar hækkaðir og byrjað að greiða af skuldurri. En það var aðeins til bráða- birgða, til þess að fleyta ríkissjóðnum yf- *ir bráðustu hættuna, sem af skuldunum stafaði. Fljótlega voru skattar lækkaðir á pý og byrjað að safna aftur eyðslu- Iskuldum. Þegar J. Þ. lætur af völdum, 1927, er stjórnað nákvæmlega eftir „pró-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.