Tíminn - 23.10.1935, Blaðsíða 4
80
TÍMIWN
Freyju kaffibætirinn
þykir bezti og drýgsti kafflbætirinn
mNú hlækka ég til að i4 mér kaffisopa meö
Freyjukaífibæti. því þ& veit ég aö kaifið
hresslr mig“.
John Ioidis & Sons L
td.
Millers,
Leith Edinburgh 6.
Vörur vorar eru alþekktar á íslandi FYRTR O ÆÐ I:
INGLIS — blandað hænsnafóður.
INGLIS — alifuglafóður.
INGLIS — maísmjöl.
INGLIS — maís kurlaður og fleiri fóðurvörur.
Alltí „Blue Staru-sekkjum.
Pantanir annast.
Samband ísl. samvinnufélaga.
P. W. Jacobsen & Son
Timburverziun
Simnefni: Granfuru. Stoínað 1824.
CjltI Limdsgade KObanhavn.
Afgreiöum trá Kaupmannahöfn b®öi stórar og liti&r pont&nir &g
heila ■kipsfarm& frá Sviþjófl. — Sia og umhoflsa&l&r annaat p&nt&nir.
:: :: :: :: EÍK 06 EFNI f ÞILFAB TIL SKIPA. :: :: :: ::
Kjötverð hækkar
i Englandi
FramJa. af 1. síðu.
að megi gera sér um verð
á því freðkjöti, sem enn er
ekki flutt út?
— Um það verður ekkert
sagt að svo stöddu. Óheimilt
er að flytja héðan meira kjöt
til Englands á þessu ári og ó-
mögulegt að segja fyrir hverj-
um breytingum markaðurinn
kann að taka næstu mánuðina.
Á Norðurlöndum hefir S. í. S.
selt töluvert af freðkjöti und-
anfarin ár, en þar selst nálega
ekkert af íslenzku freðkjöti
fyrr en að áliðnum vetri, — fe-
brúar og marz.
— Hver áhrif er líklegt að
þetta hafi á kjötverð hér inn-
anlands ?
— Að sjálfsögðu má búast
við að þetta verði fremur til
þess að hækka verðið hér inn-
anlands, en að öðru leyti er
ekki hægt að svara þessari
spumingu fyrr en skýrslur
liggja fyrir um það hve mik-
ið kjöt þarf að selja á inn-
lendum markaði, því að eins og
kunnugt er, er kjötinnflutning-
ur frá Islandi takmarkaður
bæði til Noregs og Englands,
þar sem aðalkjötmarkaður
okkar er, og verður því ekki
hjá því komizt að selja mjög
mikið af framleiðslunni á inn-
lendum markaði. Og í öðru
lagi er enn óvíst hversu mikið
fæst fyrir þann hluta kjötsina,
sem eftir er að flytja út.
Jóhann Skaptason lögfræðingur
hefir verið skipaður sýslumaður í
Barðastrandarsýslu. Jóhann er
ungur maður, en hefir getið sér
ágætt orð. — Einn umsækjandinn,
Jón Steingrímsson sýslumaður,
tók umsókn sína aftur.
Sildarsöltunin nam orðið í viku-
lokin seinustu 116.789 tn., en var
22. sept. í fyrra 216.760 tn., en eft-
ir þann tíma var engin síld sölt-
uð þá. En frá þeim tíma í haust
hefir söltunin numið 24.667 tn., og
hefir hún öll verið hér við Faxa-
flóa.
- Sjólfsmorð. Árið 1929 voru fram-
in 7 sjálfsmorð hér á landi, 1930
voru einnig framin 7 sjálfsmorð,
1931 voru þau 6, 1932 voru þau 4
og 1933 eru þau 16. (Heilbrigðis-
skýrslurnar 1933).
Rjúpur. Gangnamenn í Norður-
þingevjarsýslu segja að óvenju
mikið hafi v.erið af rjúpum í af-
réttum í haust.
ingar, auk þess að nema höf-
uð tungur álfunnar, hafa lagt
mikla vinnu í að nema tungu
Dana, að þá gæti Danir þess að
hafa við hvert af helztu dag-
blöðunum að minnsta kosti
einn blaðamann, sem kann ís-
lenzku og getur séð blaði sínu
fyrir viðunandi og áreiðaniegu
fréttaefni frá íslandi.
En eins og nú er komið mál-
um, virðist vera gerð frá hálfu
danskra blaða mjög alvarleg
tilraun til að loka Danmörku
íyrir vitneskju um íslenzk mál-
efni, og í stað þess að leitast
við að fá íslendinga til að taka
þátt í norænni samvinnu, getur
aðstaðan orðið sú, að íslending-
ar verði neyddir til að leita til
annara en nákomnustu frænda
sinna um andlega samvinnu.
Ef svo fer, er það ekki sök Is-
iendinga, sem einmitt hafa lagt
mikið í sölumar til að geta bæði
í andlegum málum og fjárhags-
efnum haft náin samtök við
hinar norænu frændþjóðimar.
Ég vil nefna dæmi úr danskri
blaðamennsku frá seinni árum
til að sýna hve óheppilegar af-
leiðingar geta orðið fyrir dönsk
blöð af þessari vantandi þekk-
ingu á íslenzku máli og stað-
Prentvillur. I ólesiimi próförk
höfðtt orðið nokkrar prentvillur í
gj'ein Jónasai' Jónssonar alþm.,
„Fórn moðhausanna", i síðasta
tölublaði Tímans.- Seint i næstsíð-
ustu grein stendur t. d. „að hvorki
séra Sigfús Jónsson né Magnús
Guðmundsson hafa enga andúð, o.
s. frv.“, en ó að vera „hafa nokki’a
andúó, o. s. frv.“. Og neðanlega i
sama dállti stendur „... vantaði
ckki nema einn lið til að ná þeirri
liæstu fullkomnun, sem unnt er að
ná í jarðneskri fullkomnun hér ó
landi ..en á að vera „í jarð-
neskri framþróun hér á iandi".
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Guðbjörg Alexandersdóttir og
Ágúst Ásgrímsson að Ásgi'imsstöð-
um i Hjaltastaðaþinghá.
„Búfræðingurinn'*1 fæst hjá
Guðmundi Jónssyni Hvanneyri
og Ásgeiri Jónssyni Búnaðar-
félagi Islands.
Ferðamenn
ættu að skipta við Kaupfélag
Reykjavíkur. — Þar hafa þ«ir
tryggingu fyrir góðum og ó-
dýrum vörum.
Kolaverzfun
SIGURÐAR ÓULP880NAR
Simn.: KOL. Reykjavik. Síml 1U1
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsmiðjan Acta.
háttum einmitt í sambandi við
þá litlu vitneskju, sem blöðin
flytja annars frá íslandi. Árið
1980 símar blaðamaður frá einu
stærsta blaði Kaupmannahafn-
ar til bláðs síns um þúsund ára
afmælishátíð íslendinga, að hún
sé hreinn og beinn óskapnaður,
öll hátíðahöldin hafi misheppn-
ast, gestirnir streymi burt frá
Þingvöllum eins og flóttamenn
í styrjöld. Og nú í sumar ritar
sami blaðamaðurinn dánarminn-
ingu um einn þekktasta stjórn-
málamann Islendinga á þessari
öld, þann mann, sem vegna
stöðu sinnar bar höfuð ábyrgð-
ina vegna lands síns á Alþingis-
hátíðahöldunum 1930. Fyrir
utan annað, sem er rangt í
dánarminningunni, gefur blaða-
maðurinn í skyn, að forsætis-
ráðherrann og frú hans hafi
við þetta tækifæri ekki staðið
í stöðu sinni svo, sem gestirn-
ir hafi mátt vænta. Að lokum
gerir blaðamaðurinn gys að því
að hinn dáni stjómmálamaður
hafi talað með eldmóði um ís-
lenzku klettana og fjöllin!
Athugum nú sannleiksgildið
í frásögn þessa blaðamanns og
tökum þá fyrst Alþingishátíð-
ina og flóttamepnina. Móti
staðhæfingu þessa eina manns
j stendur dómur 30—40 þúsund
raanna, sem tekur þátt í há-
tíðinni í þrjá daga og viður-
kenndu að hátíðin væri í huga
þeirra glæsileg endurminning
og mikill sigur fyrir þá, sem
höfðu undirbúið og stýrt þess-
um mannfagnaði. Og um fram-
komu og stjórn þess manns,
sem þá var forsætisráðherra á
hátíðahöldunum, eru til lýsing-
ar á flestum tungumálum Ev-
rópu frá öðrum gestum, frá
mönnum, sem að andlegum
hæfileikum og menningu stóðu
hærra en sá blaðamaður, sem
hér er um að ræða, og þar sem
sá dómur er hiklaust felldur, að
forstaða hátíðarinnar hafi í alla
staði verið eins og vera bar.
Ef til vill er þó bezta sönnun-
in um vöntun þessa blaðamanns
á skilningi á íslenzkum hugs-
unarhætti og aðstöðu til mála
í hinni kaldranalegu kýmni
hans um klettana íslenzku. Sem
betur fer vita íslendingar sjálf
ir betur um þýðingu íjallanna.
Þeir vita, að klettarnir á Borg-
undarhólmi færa íbúum þessar-
ar eyjar nokkrar miljónir króna
í tekjur árlega og að fjöllin og
jöklamir 1 Sviss og Noregi
araga mikil auðæfi árlega til
þeirra þjóða, sem löndin byggja.
Ilvers vegna skyldu Islendingar
ekki koma að fegurð sinna
fjalla og þýðingu þeirra fyrir
ferðamannalíf á ókomnum ár-
um?
VII.
Þegar Islendingar og Danir
byrja í félagi að vinna að sam-
eiginlegri lausn einhvers máls,
gengur verkið venjulega vel, en
í hin eiginlega samvinna milli
/ þjóðanna byrjar fyrst eftir að
sambandsiögin höfðu verið
gerð. Það er varanlegur heiður
fyrir þá menn, sem gerðu þenn-
an sáttmála, að þeir mynduðu
með honum undirstöðu, sem
unnt hefir verið að byggja á
gagnlegt samstarf tveggja
þjóða. Með vaxandi reynzlu
munu Danir og íslendingar
finna, að um ærið margvísleg
efni er báðum þjóðum hagur að
aukinni samvinnu, en að um
önnur málefni verði samstarfið
að minnka. En vonandi tekst
báðum þjóðunum í framtíð-
inni að finna fleiri og fleiri
verkefni, þar sem skilyrðin eru
heppileg til sameiginlegra á-
taka. J. J.
Tilkynning
frá GJaldeyris- og innflntningcnefnd.
Allir þeir, sem óska að flytja vörur til landsins á
fyrstu 4 mánuðum ársins 1936, skulu senda Gjaldeyris-
og innflutningsnefnd umsóknir um innflutnings- og gjald-
eyrisleyfi, fyrir 15. nóvbr, næstk, Er áríðandi að allar
umsóknir um vöruinnflutning á framangreindu tímabili
berist nefndinni fyrir hinn ákveðna dag. Umsækjendur
eru beðnir að flokka vörurnar á þann hátt, sem gert er
á þeim eyðublöðum fyrir umsóknir, er nefndin hefir
látið prenta.
Reykjavík 18. okt. 1933.
GJaldeyris- og iunfletRlegsRefrd.
er viðurkennt að fullnægi hinum ströng-
ustu kröfum.
YOUNG’S baðduft: Drepur algerlega lús
og annan óþrifnað.
YOUNG’S »Red Label Pa*te«-baðlyf:
Auk þess að lækna kláða og drepa öll
snýkjudýr, hefir það þann mikla kost, að
að útrýma algerlega nit (færilúsaeggjum)
YOUNG’S „Springboku-baðlyf: Er fram-
úrskarandi gott til allra venjul. notkunar.
Allar nánari upplýsingar gefur
Samband ísl. samvínnufélðga
Búið til hjá:
Robert Yoimg & Company Limited,
Glasgoiv, Scotland.
Ganiir
Kaupum vel verkaðar kindagarnir hæsta verði.
Einnig stórgripagarnir, langa og svfnagarnir.
Garnirnar verða að vera hreinstroknar og vel
pækilsaltaðar.
Verða þær metnar við móttöku og fer verðið eft-
ir gæðum.
Allar upplýsingar um verkun garnanna gefur Ari
K. Eyjólfsson, verkstjóri.
Móttöku annast Garnastöðin, Rauöarárstig 17,
Reykjavlk. — Sími 4241.
Samband Isl. samvínnufélaga
Simi1080
B e z t a
Munntóbakið
er frá
Brödrene Braun
KAUPMANNAHÖFN
Biðjið kaupmann yðar um
B.B. munntóbakið
Fsst allsstaðar.