Tíminn - 30.09.1936, Qupperneq 2
100
TlMINN
aðal-talsmaður og hollvinur
skólans út á við, bæði á hér-
aðsfundum og í sýslunefnd.
Meðan framtíð skólans var
óráðin, meðan óvíst var, hvort
fyrirhugaður héraðsskóli Vest-
fjarða yrði reistur á þeim
homsteini, sem bróðir hans,
séra Sigtryggur, hafði lagt eða
önnur ráðabreytni upp tekin,
var Kristinn Guðlaugsson ó-
missandi talsmaður skólans.
Fyrir hagkvæma atburði í
menntamálum, fyrir röggsam-
lega íhlutun fræðslumála-
stjórnar og vaxandi skilning al-
mennings varð héraðsskóla-
málum Vestfirðinga viturlega
í höfn komið.
Auk afskipta sinna af skóla-
málum, mundi nú enginn kjósa
að óhreyfð væru enn þau hin
mörgu hugðarefni til þjóðþrifa,
sem óðalsbóndi Núps hefir þeg-
ar unnið að, né ógerð væru öll
hin meiriháttar menningarmál,
héraðs og sveitar, sem hann
hefir veitt stuðning sinn.
Núverandi skólastjórí. — Ég
hefi ekki við hendina skýrslur
né reikninga um fjárreiður og
eínahagsaíkomu héraðsskóla
landsins. Samt býst ég við, að
Núpsskóli sýni minnstar stofn-
kostnaðarskuldir þeirra allra.
Undir þá fjárhagsafkomu
renna margar stoðir. Fyrst er
sú, að hægra er að styðja en
reisa. Þar næst má telja: höfð-
ingleg afhending fyirverandi
eiganda á eignum eldri skólans,
liagkvæmir samningar við jarð-
areiganda á jarðnæði nýja
skólanum til handa, hagsýni
skólanefndar og síðast en ekki
sízt atfylgja og verkliyggni
skólastjóra.
Þótt skólanefnd hafi gert á-
kvarðanir allar, sagt fyrir um
byggingar, tilhögun og skóla-
hald, hafa framkvæmdirnar
livílt á herðum skólastjórans,
og æðrulaus styi’kur hans, í
þessum efnum sem öðrum, hef-
ii aldrei brugðizt. öllu hefii-
hann afkastað með forsjá og
fyrirhyggju. Er þar ýmsu af
að taka: nýbygging skólahúss,
raforkustöð, miðstöð, baðstofa
og sundlaug innanhúss, upphit-
uð með rafmagni.
Þeim mun meira felst í fram-
kvæmd þessara verka, sem að-
drættir allir hafa verið erfið-
leikum bundnir, þar sem nú
fyrst á þessu ári er bílfært
þangað heim og samgöngutæki
á sjó af skomum skammti.
Við skólanefndarmenn telj-
um happ, hve vel tókst til um
eftirmann séra Sigtryggs í
skólastjórastöðuna, og hve vel
honum tókst að hafa á hendi
forstöðu og yfirumsjón með
þeim framkvæmdum, sem hér
eru taldar, um leið og við þökk-
um hlýlega skólastjóranum
Birni Guðmundssyni 30 ára
kennslustarf, sem af öllum, er
til þekkja, er viðurkennt að
unnið hafi verið af frábærri
skyldurækni og sannri prýði.
Niöurlag. — Meðan þessar
línur eru ritaðar, er opinber-
lega tilkynnt að Breiðadals-
heiðarvegur sé opnaður til um-
ferðar.
Um leið og þessi vegur teng-
ir saman ísafjarðarkaupstað og
hinar dreifðu byggðir sam-
nefndrar sýslu og greiðir götu
fyrir margskonar viðskiptum
þeirra, samgönguþægindum og
menningarlífi, verður hann ó-
hjákvæmiiega einnig til þess
að auka kynningu á héraðsskóla
Vestfjarða, kynningu á stofnun
sem þegar hefir unnið gott
starf í 30 ár, mest fyrir fórn-
fýsi og einstaklingsframtak
þeirra þremenninga, sem þessar
línur eru tileinkaðar.
Vænta má, að sú kynning
bæti og skilyrðin fyrir öflugum
samtökum héraðanna, Barða-
strandar- og ísafjarðarsýslna,
sem að þessum skóla standa og
nú er þeirra eign, til þess að
hlynna að framförum og við-
gangi þessa menntaseturs. Með
bættri aðstöðu og aukinni að-
sókn gæti á komandi árum
verið um það að ræða að stað-
urinn yrði sjálfkjörinn gisti- og
dvalarstaður, sumardvalarstað-
ur þeim, er í skjóli angandi
skógar þrá meiri gróður og ís-
lenzka sveitasælu.
3. sept. 1936
Ólafur Ólafsson
í Dýraíirdí og
að Núpi
Enda þótt ég sé Vestíirðing-
ur, er nú langt síðan að ég hefi
lágt leið mína að Núpi í Dýra- !
firði, þar til í sumar. Það er
ýmislegt, sem er því valdandi,
að ég skrifa nú nokkrar línur •
um komu mína í Dýrafjörð og |
einkum að Núpi.
Ég hefi jafnan metið allar fs- j
lendingasögur mikils, en það er
máske af því, að ég er Vest-
firðingur, að mér finnst einna
mest til Gísla sögu Súrssonar
koma, og það engu síður vegna
Auðar en Gísla.
Enginn, sem kann og ann
Gísla sögu, getur farið svo yfir
Gemlufallsheiði, að ekki nemi
hugurinn staðar við Véstein á
vesturbrún heiðarinnar, er
hann fær boðin frá vini sínum
og fóstbróður, Gísla Súrssyni,
um að koma ekki í Hauksdal,
og handleikur sönnunargagn
þess að líf hans liggi við. Hann
setur eðlilega hljóðan, athugar
sitt mál, sér lækina, eflda
l.austrigningum, streyma í átt-
ina suður yfir, og það er eins
og hreyfing þeirra í áttina. til
vinanna, grípi hugann og vilj-
ann og leiði með sér. Þá skap-
ast þessi stutta og ákveðna
setning, sem ríður baggamun-
inn um ferðalagið og lífsskeið
Vésteins : Nú falla vötn öll til
Dýrafjarðar, og er of seint aft-
ur að hverfa. —
A þessum sögustað eru ung-
mennafélögin í Dýrafirði og
önundarfirði að koma sér upp
skíðaskála. Virðast ágætar
skíðabrekkur á báða vegu í
dalnum og skammt að fara til
skíðamóta úr fjörðunum. Spái
ég því, að margir æskumenn
Vestfjarða sæki sér þangað
ji holla gleði, sannan metnað og
j þrótt.
Á næsta leiti blasir við ein-
kennileg landsýn, sem minnir á
: sögu Snorra um Sjáland og
j; Löginn í Svíþjóð, því Þingeyri
i virðist eins og dregin úr
Gemlufallsdalsmynni. — Ofar
l.enni rís Sandfellið, líkt og
Ijón, er liggur á lappir fram og
horfir til hafs. En yfir fellið
gnæfa tindar í ótal myndurn
! Alpanna, og út frá þeim lárétt-
ar, þráðbeinar fjallabrúnir
með hamrabeltum. Er þessi
fyrsta sýn Dýrafjarðar mjög
sérkennileg og fögur. Vegur
J hefir nú verið lagður yfir
! Gemlufallsheiði og ruddur út
með firðinum, svo bílfært er að
! Núpi. Frá höfuðbólinu Mýrum,
er fagurt að líta inn yfir
fjörðinn og Ilöfðann, Melinn
og varplöndin.
Mýrafellið er hliðstætt Sanda-
fellinu og minna þau ásamt
Ilöfðanum á tröllaukna risa-
vætti á verði, um heill héraðs-
búa. Gott að tröllkonunni tókst
ekki að loka firðinum með fell-
um, eins og hún ætlaði sér.
Dagur rann og — enn situr
Sandakerlingin á sama stað.
Þéttbýlt er út með sveitinni
en frekar smábýlt að því er
Fimmtugsafmæli
Guðmundur Jónsson frá Mosdal (Brjóstlíkan eftir Ríkarð Jónsson)
Fimmtugsafmæli átti Guð-
mundur Jónsson frá Mosdal,
myndskeri og kennari á Isafirði,
þann 24. þessa mán.
Guðmundur er fyrir löngu
orðinn þjóðkunnur maður fyrir
margháttuð störf sín. Hann
nam myndskurðarlist hjá Stef-
áni Eiríkssyni 1911—1916, en
settist að á ísafirði að loknu
námi og hefir stundað list sína
þar síðan og margvíslega
handavinnukennslu. Hefir hann
haldið fjölda tréskurðarnám-
skeiða á Vestfjörðum og víðar,
en auk þess hefir vinnustofa
hans jafnan verið opin fyrir
i’ngu fólki, sem koma vildi og
læra. Allmörg undanfarin ár
l efir hann verið fastur kennari
við barnaskóla Isafjarðar.
Margt ágætra útskorinna
muna liggur eftir Guðmund, í
eigu íslenzkra og erlendra
manna og stofnana, allt sér-
kennilega persónulegt og ramm-
íslenzkt, eins og höfundurinn.
Tvisvar hefir Guðmundur farið
utan til þess að afla sér frekarí
menntunar í listgrein sinni og
heimilisiðnaði. Hefir hann séð
og lært margt, en notað það
eitt, sem samrýmanlegt var
hans eigin íslenzka eðli. Heim-
ilisiðnaðinn hefir hann mjög
látið til sín taka, enda er hann
flestum íslendingum betur að
sér í þeim málum.
Kunnastui’ er þó Guðmundur
og lengst mun hans verða
minnzt fyrir afskipti hans af
félagsmálum æskunnar í land-
inu. Hann stofnaði fyrsta ung-
mennafélagið á Vestfjörðum
1908, og síðan hefir hann verið
í fremstu röð forystumanna í
þeim félagsskap. Á námsárum
hans í Reykjavík bar mikið á
honum í U. M. F. R. Voru hon-
um falin þar manna flest
trúnaðarstörf, vegna áliuga
hans, ósérplægni og fjöl-
breyttra hæfileika. Var félagið
þó óvenjulega vel mönnum
skipað um það leyti, því að
þar voru þá margir þeirra
manna, sem mest hefir borið á
í framfarabaráttu þjóðarinnar
undanfarin ár.
A ísafirði hefir Guðmundur
\erið lífið og sálin í ungmenna-
félagsskapnum, lengst af for-
maður. Hann var sambandsrit-
ari U. M. F. I. 1924—1933, gaf-
út Skinfaxa í tvö ár og var
kjörinn heiðursfélagi U. M. F.
í. —
1 Þá hefir hann og unnið af
miklum áhuga fyrir íþrótta- jg
binnindisfélög vestra.
Guðmundur er óvenjulegur
maður og gleymist ekki þeim,
sem kvnnzt hafa honum. Hann
ei hinn sístarfandi hugsjóna-
maður, góður og skemmtilegur
íelagi og manna trygglyndast-
ur.
Guðmundur er flestum mönn-
um vinsælli, og kom það glöggt
i ljós á fimmtugsafmælinu.
Fékk hann þá fjölda heimsókna
að Sóltúnum, vinakveðjur,
heillaskeyti og gjafir. T. d.
sendu féiagar og vinir hans,
búsettir sunnanlands, honum
Flateyjarbók, í hinni merkilegu
1 jósmyndaútgáfu Munksgaards,
með skrautrituðu ávarpi og eig-
! inhandar undirskrift 42 manna.
I Ilafa þó fæstir vitað um dag-
inn, sem gjarna hefðu viljað
heiðra Guðmund frá Mosdal.
Guðm. Kr. Guðmundsson.
virðist. Núpur blasir við undir
háum og tignarlegum hamri —
Gnúpi, og fjöldi býla umhverf-
is. —
Skrúður, garður séra Sigtr.
Guðlaugssonar og frú Iijaltlín-
ar, er í hvammi í Núpsdals-
mynni, vestanvert undir brattri
fjallshlíð. Er þar skjól nokkurt
fyrir liafvindum, en fann-
þ.vngsli mikil og hvassir norð-
anbyljir á vetrum.
Raðir reynitrjánna gnæfa
hátt yfir skjólgarða beggja
megin. IJér skiptast á sáðreit-
ir, matjurtablómbeð með afar
fjölbreyttum tegundum, rósa-
runnar og trjáreitir. Unaðs-
iegt er um að litast og sjá hvað
íslenzk náttúra getur framleitt,
þegar skilningur o g fórnfús
hugur og hönd hjálpa henni.
Allir þeir, sem eitthvað
þekkja til garðyrkju, skilja vel
hvílíkt starf, elja og ástundun
liggur hér að baki. Auk jurta-
gróðursins prýðir garðinn mjög
mvndarlegt gróðurhús, gos-
brunnur og skrauthlið mikið,
sem reist er af voldugum hval-
heinskjálkum fullorðins reiðar-
hvals, er veiddur var fyrir alda-
mót á hvalveiðistöðinni í Fram-
nesi. Verður mörgum fyrst
ljóst, er þeir standa í gini
þessu, hvílíkt risabákn að
stærsta spendýr jarðarinnar er,
og undrast ekkert, að Jónas
spámaðu? hafi komizt í heilu
líki inn í hvalkviðinn forðum.
Happdrætti Háskóla Islands
Tílkynníng.
Vinninga þeirra, sem féllu árið 1935 á neðantalin númer, hefir
ekki verið vitjað.
1. flokkur. B 2151. A 2978. C 3424. A (3421. A 8819. A 16463.
2. ---- B 21350. C 21623.
3. --- A 5773. C 12437.
4. --- A 7506. ’
5. --- B 1644. C 12738. A 15897. B 20755. A 21200. B 24798.
6. ---B 7438. C 8044. A og B 14588. C 18106. B 18639. A 19929../
7. --- C 4995. 5173. A og B 5774. C 8672. C 22048.
8. ---A 1547. A 10685. C 12280. A og B 15800. A 17152. A 19293.
B 24974.
9. --- C 7406. B 7483. A 12183. A 14235. A 17802. B 19672. C 23779.
A 24520.
10Á 101. A 760. A og B 1211. B 1220. B 1309. B 1450. B 1592.
C 1682. A 1741. C 1859. B 2272. C 2867. A 2978. A 2982. A 3134.
C 3227. A 3649. C 3655. C. 3684. B 3777: B 3909. B 3982. A 4078.
C 4303. A 4440. B 4489. B 4530. B 4717. C 4878. B 4899. B 586S.
A 6251. B 6552. B 6628. C 6694. A 6763. B 6845. B 6914. A 6992.
B 7235. A 7427. C 7449. C 7552. C 7647. B 7839. C 8005. A 8055.
B 8067. A 8584. A 8717. B 8737. B 8867. B 8962. A 9112.
A og B 9318. B 9336. B 9361. A 9447. C 9546. B 9631. A 9810.
B 9869. A 9929. 10302. A 10779. A 10825 A 10844. B 11062.
B 11466. B 11641. C 11905. A 11901. B 12257. A 12500. A 12505.
C Í2628. A 12723. B 12862. B 13146. B 13321. B 13381. B og C
13435. C 13519. A 14221. 15489. 15498. B 16121. B. 16384.
A 16549. A 17037. A 17059. B 17342. A 17578. B 17928. B 18006.
C 18084. A 18150. A 19306. B 19326. A 19460. C 19669. B 19704.
B 20690. B 20770. B 20818. B 21151. A 21373. A 21510. B 21512.
B 22548. B 23087. A 23103. A og B 23386. C 24663. A 24880.
A 24932. A 24989.
Samkvæmt 18. grein reglugerðar happdrættisins verða þeir vinn-
ingar eign happdrættisins, sem ekki er vitjað innan 6 mánaða frá
drætti. Happdrættið vill þó að þessu sinni greiða vinninga þá,
sem að ofan getur, til 1. desember 1936. Eftir þann tíma verða
yinningarnir ekki greiddir. Vinningsmiðarnir séu með áritun
umboðsmanns, eins og venja er til.
Reykjavík, 18. sept. 1936.
Happdræfttí Haskóla ísiands.
Á Núpi hefir nú starfað
æskulýðsskóli í 30 ár, nær ald-
arfjórðung á vegum stofnanda
og eiganda skólans, sr. Sigtr.
Guðlaugssonar, en frá 1929
sem héraðsskóli Vestfjarða,
undir stjórn Björns Guðmunds-
sonar frá Næfranesi, er áður
um 20 ár var aðalkennari ung-
mennaskólans.
Það er ekki nema þriðji eða
fjórði hluti fyrir-hugaðrar hér-
aðsskólabyggingar, sem búið er
að reisa á Núpi, en það virðist
allt prýðilega vandað og vel frá
gengið, sem komið er. í kjall-
ara hússins er sæmilega stór
sundlaug, sem líituð er upp með
kolamiðstöð hússins, en rafafl
er nægilegt til að halda hitan-
um við. Þar er og búningsklefi
og gufubaðstofa í fornum stíi,
þó með nýrri gerð hitunar, því
halda má áfram að kynda, þó
bað sé tekið. Ibúð er í öðrum
enda kjallarans. Á 1. hæð eru
2 kennslustofur, ásamt rúm-
góðum gangi og áhaldaherbergi.
Á efri hæðinni eru íbúðarher-
bergi nemenda, eins kennara og
snyrtiherbergi, ásamt salern-
um.
Húsið er byggt í kastalastíl
og notast rúm þess ágætlega.
Niður við Núpsá er 40 hest-
afla rafstöð og notast afl henn-
ar til matsuðu, ljósa og hitun-
ar að nokkru leyti. —
Héraðsskólinn notar öll gömlu
skólahúsin jafnframt þessu
húsi. Gaf séra Sigtryggur
hinni nýju skólastofnun meiri-
hluta þeirra bygginga; hitt var
keypt.
Jarðnæði á skólinn talsvert,
bæði mýrlendi og tún, neðan
við Núp. Virðist það vel fallið
til ræktunar og líklegt til að
geta orðið mikið nytjaland.
Ég spurðist fyrir um horf-
urnar um rekstur skólans og
voru mér sagðar þær góðar.
Skólinn vel sóttur síðastliðin
ár, enda mjög góðir kennslu-
kraftar. Tveir kennaramir ut-
anlands að sækja nýjan starfs-
mátt, annar i Svíþjóð, hinn í
Kolaverzlun
SIOURBAR ÓUniOHU
KOU Rsykjavlk. «fan* tBS3
Ágæft herbergi
til leigu á Hverfisgötu 32
yfir lengri eða skemmri
tíma. — Hentugt fyrir
ferðafólk. — Sími 3454.
Þýzkalandi. Skólinn myndi nú
starfa að einhverju allt árið:
námskeið að vorinu i sundi og
verklegu námi, en óhjákvæmi-
legt myndi, þar eð bílleið yrði
nú bráðum opnuð til ísafjarð-
! ar, að hafa skólann sem gisti-
j hús nokkurn hluta sumarsins,
; enda myndi aðsókn verða mik-
ii að sundlauginni, gufubaðinu,
Skrúð og dvöl í sveitinni í sum-
arleyfi o. s. frv.
Ég þykist vita, að Núpsskóla
muni berast margar hlýjar
kveðjur á afmæli hans 30. sept.
næstkomandi, og ekki munu
Vestfirðingar láta undir höfuð
leggjast að fullskipa skólann á
þéssu liátíðaári hans. Það er
bezta afmælisgjöf skólans og
um leið giftudrjúgt spor inn í
4. áratuginn.
Vestfirzkur ferðalangur.
Dvöl, 7. -8. hefti 4. árg., er ný-
komin út, og er fjölbreytt aö
vanda. Fimm stuttar skáldsögur
i'lytjá þessi hefti, eftir kunna
beimshöfunda, þá: Collins, Fench-
twanger, Engström, O’Henry og
Zwcig. pá er sönglag- eftir Sig-
\alda Kaldalóns, kvæði eftir Guðm.
Böðvarsson, ritgerð eftir Brands,
Um undralönd eftir Guðm. Da-
\íðsson, Ferðasaga frá Korsiku
eftir Björn L. Jónsson, kýmnisög-
ur o. fl.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsm. Aeta.