Tíminn - 12.05.1937, Síða 4
84
TlMlNN
Kristinsson bar þessar stað-
hæfingar Morgunblaðsins til
baka með yfirlýsingu, sem birt-
ist í blaðinu 19. júlí 1934. Vott-
orð þetta kallaði Morgunblað-
iö „falsvottorð“ og fór hinum
svívirðilegustu orðum um Sig-
urð Kristinsson forstjóra í
sambandi við málið. Taldi blað-
ið hann hafa gengið „í þjón-
ustu Iýginnar“, að hann hafi
vísvitandi gerzt „handbendi
liinna ófyrirleitnustu forystu-
rnanna, sem hafi tekið lýgina í
sína þjónustu“.------„Af því
leiðir, að enginn getur framar
treyst Sigurði Kristinssyni í
síjórnmálum4', segir Mbl. enn-
fremur.
Sigurður Kristinsson höfðaði
r.íðan meiðyrðamál gegn Morg-
unblaðinu út af þessum ó-
liróðri og var Morgunblaðið
óæmt í sektir, en þóttist vaxa
eigi lítið af málinu. Sannsýnir
menn munu þó hafa talið, að
blaðið hafi ekki í þessari deilu
vaxið að öðru en dálkafylli og
fyrirsögnum í venjulegum of-
sóknum þess gegn Sambandinu
og forráðamönnum samvinnu-
manna.
Blaðið „Framsókn“, sem kall-
ar sig samvinnublað, þóttist
nú komast í ekki litla krás. 1
málaferlunum höfðu þeir borið
vitni í málinu Jónas Jónsson og
Ólafur Thors. Út af framburði
þeirra birtist í 4. tbl. blaðsins
1935 smágrein, sem nefndist
„Svardagar“. Þar segir:
„Undanfarið hafa staðið yfir
mikil málaferli út af því, hvort
til orða hafi komið að taka
I-léðinn Valdimarsson fastan í
„garnadeilunni“ forðum. í til-
efni af skrifum Mbl. gaf Sig.
Kristinsson forstjóri út mót-
mælavottorð þar að lútandi, en
Mbl. lýsti það falsvottorð. Fór
S. Kr. þá í mál við blaðið fyrir
meiðyrði. Var formönnum
flokkanna stefnt til þess að
bera vitni, en tveir þeira, J.
Bald. »g Tr. Þ„ neituðu að
mæta þrátt fyrir ítrekaðar
stefnur, en Jónas Jónsson og
Ólafur Thors mættu báðir og
sóru framburði sína hver (sic)
gegn öðrum. Fengust því ekki
nógar sannanir og var Mbl.
dæmt I sekt.“*)
Þá segir ennfremur:
„Framsókn vill ekki blanda
sér í þetta alveg einstaka
hneykslismál, en það eitt virð-
ist einsætt, a. m. k. frá leik-
mannssjónarmiði, að svardagar
þeirra Ólafs og Jónasar geta
vart samrýmst og er því senni-
legast, að annarhvor þeirra
Ijúgi. Að vísu hafa ekki, að því
er vitað er, verið bornar brigð-
ur á framburð Ól. Thors, en
hinsvegar mjög sveigt að J. J.
um þá hluti.------------.“
1 grein þessari er það gefið
í skyn að af því að ekki feng-
ust nægilegar sannanir fyrir
því, að Sigurður Kristinsson
forstjóri hafi gefið falsvottorð,
þá hafi Mbl. verið dæmt í sekt-
ir. Þá er það ennfremur gefið
í skyn, að Jónas Jónsson alþm.,
sem með framburði sínum
síaðfesti vottorð Sig. Kristjáns-
sonar að efni til, hafi svarið
rangað eið, ér hann staðfesti
framburð sinn. Eru í þeirri ein-
stæðu og hraklegu svívirðingu
einnig fólgnar dylgjur .um það,
að framburður J. J. hafi verið
vísvitandi rangur og vottorð
Sig. Kristinssonar falsvottorð
þrátt fyrir allt.
Þessi eru þá ummælin, sem
máli skipta í umræddu starfs-
slitamáli Svafars Guðmunds-
sonar. Blaðamannsgagnrýni
Áma Jakobssonar hlýtur að
vísu, eftir þessari grein hans
að dæma, að vera nokkuð langt
J. p.
fyrir neðan meðallag. En
venjuleg og heilbrigð dóm-
greind ætti að nægja til þess
að sjá, að slík ummæli, birt á
ábyrgð eins af starfsmönnum
Sambandsins, voru ekki ein-
ungis ósæmileg heldur og þess
eðlis, að stjóm stofnunarinnar
gat ekki, vegna sæmdar hennar
og trausts, látið þau vera af-
skiptalaus. Enda var það hinn
gætni og grandvari maður,
fyrverandi formaður Sam-
bandsins, Ingólfur í Fjósa-
tungu, sem tók málið upp til
þeirrar meðferðar, sem það
hlaut og áður er lýst. En Svaf-
ar Guðmundsson kaus fremur,
að viðlögðum stöðumissi, að
styðja við bakið á lepp þeim,
sem notaður var til þess, að
bera fram þessar svívirðingar,
heldur en að votta Sig. Krist-
inssyni það traust sitt um
drengskap hans og heiðarleik,
sem í því hefði fólgizt, að taka
einfaldlega afstöðu gegn þess-
um svívirðingum ritstjórans, á
sama hátt og Tryggvi Þórhalls-
son gerði.
IV.
Ámi Jakobsson gerir þá
kröfu til varaformanns Sam-
bands ísl. samvinnuféiaga, að
hann beiti sér fyrir því, að
Jónasi Jónssyni verði bægt frá
cilum afskiptum af þeim blöð-
um, sem styðja samvinnumál,
af því að hann hafi sveigt að
bræðrum hans í innanhéraðs-
máli Þingeyinga. Og þetta tel-
ur hann vera sjálfsagða skyldu,
af því að bræður hans eru í
Kaupfélagi Þingeyinga, enda
þótt fyrnefnt innanhéraðsmál
Þingeyinga sé samvinnumálum
^ óviðkomandi. Með öðrum orð-
um sagt: Af því stjórn Sam-
bandsins gerir ráðstafanir til
þess að fá hrundið glæpsam-
legu illmæli, sem varðar starfs-
heiður og mannorð forstjór-
| ans, eiga bræður Árna Jakobs-
sonar að vera friðhelgir fyrir
aðkasti í hverskonar efnum og
' ekki síður þeim, sem eru sam-
^ vinnumálum óviðkomandi. Og
ef Sambandið lætur undir höf-
' uð leggjast, að gera mjög rót-
tækar refsiaðgerðir gagnvart
Jónasi Jónssyni vegna bræðra
Árna Jaftobssonar, þá er skylt
a.ð taka upp hlutfallskosningár
í samvinnufélögum, til þess að
unnt sé að efna þar til pólit-
ískrar styrjaldar út af þessum
margnefndu bræðrum.
Árni Jakobsson þykist án efa
’ eiga um sárt að binda vegna
bræðra sinna, og skal ég ekki
blanda mér í þau deilumál. En
þessar framangreindu hugsana-
samstæður hans munu vissu-
lega þykja nýstárlegar frá
sjónarmiði hinnar „gjörhugulu
blaðamannagagnrýni". Pólitísk
deilumál milli samvinnumanna
skipta vitanlega meira og
minna máli fyrir þá sjálfa. En
að þau snerti á þann hátt, sem
Árni Jakobsson vill vera láta
eða komi í bága við skyldur
Sambandsstjórnarinnar, að láta
sig varða sæmd og mannorð
: iorstjórans, samrýmist ekki
réttum rökum. Slíkar firrur
verða til aðeins þar, sem skort-
! ur er á gerhygli eins og í
þetta sinn hefir átt sér stað í
Skógarseli í Þingeyjarsýslu.
Reykjavík, 4. maí 1937.
Jónas Þorbergsson.
Sparífjárínnstæður í bönkun-
um hafa aukízt um 2 mílljónír
króna á árínu sem leíð
Annar endurskoðandi Landsbankans heíir vakið eítirtekt Tímans
á eftiríarandi staðreyndum.
Samkvæmt reikningum bankanna þriggja, Landsbankans, Útvegs-
bankans og Búnaðarbankans, og meðtöldum úiibúum þeirra, hafa
breytingar á sparifé landsmanna á síðastliðnu ári, oröið sem hér segir,
og er þá einungis talið innstæðufé i sparisjóði og sparifé gegn innláns-
skírteinum.
Landsbankinn:
Innstæður 31. des. 1936 .kr. 35.637.352,22
Innstæður 31. des. 1935 .kr. 34.939.891,59
Aukning á árinu 1936 kr. 697.460,63
Útvegsbankinn:
Innstæður 31. des. 1936 .......kr. 8.527.523,46
Innstæður 31. des. 1935 .......kr. 7.460.916,66
Aukning 1936 kr. 1.066.606,80
Búnaðarbankinn:
Innstæður 31. des. 1936 .......kr. 2.312.963,33
Innstæður 31. des. 1935 .......kr. 2.047.784,63
Aukning 1936 kr. 265.178,70
Samtals nemur sparifjáraukningin hjá öllum bönkunum sam
kvæmt framansögðu
Kr. 2.029.246.13
Sparifjáraukningin á þessum liðum einum svarar því til að eng-
inn maður hafi þurft að taka út vexti af sparifé sínu síðastliðið ár,
heldur hafi verið hægt að leggja þá alla við höfuðstólinn, og þó nokk-
urum hundruð þúsundum til viðbótar.
Beri maður jafnframt saman alla innstæðureikninga þessara sömu
banka í árslok 1935 og árslok 1936, þ. e. taki með innstæðufé á hiaupa-
reikningi og innstæðufé á reikningslánum, verður niðurstaðan þessi:
L andsb ankinn:
Allt innstæðufé 31. des. 1936 ... kr. 44.276.997,52
AUt innstæðufé 31. des. 1935 ... kr. 42.376.726,53
Mismunur, aukning á árinu kr. 1.900.270,99
Útvegsbankinn:
AUt innstæðufé 31. des. 1936 ... kr. 12.038.673,65
Allt innstæðufé 31. des. 1935 ... kr. 10.764.300,15
Framsóknarmenn
um land allt
Gætið þess nú þegar, hvort þið
eruð á kjörskrá.
I '
KæruSrestur er til 29. maí,
Framsóknarmenn, sem Sarið að heiman Syrir kjördag 2O.
j ú n i, munið að kjósa áður en þið Sarið, hjá næsta hreppstjóra
eða sýslumanni.
Framsóknarmenn, sem eruð Sjarverandi og verðið það Sram yfir
kjördag 2 0. j ú n í, rnuníð að kjósa hjá næsta hreppstjóra, sýslu-
manni eða hjá skipstjóra ykkar, svo að atkvæðið komist heim
sem allra Syrst eStir 22. maí, en þá heSjast atkvæðagreiðslur
utan kjörSunda.
Leíiið allra upplýsínga og aðstoðar hjá Sulltrúum
filokksins og
KosningaskriSstoSunni í Reykjavík
Sambandshúsinu 3. hæð, símar 10 2 9 og 15 2 9«
KosningaskriSstoSunni, Akureyri og
KosningaskriSstoSunni, SígluSirði.
Allt meö islenskum skipum!
T* | ¥ R ¥"¥ ¥¥ ^sl£a8t um hvítt kvarz, einnig “ * aðrar fallegar steinategundir. Sýnishorn, ásamt verði, sendist til Egíls Árnasonar, ;< Laufásvegi 25, sími 4310, Reykjavík. w
Tíl athugunar fyrir kjóscndur: Fraxnh. af 1. síðu. ur á þann orðróm, að yfirlýs-
Samvinnumenn!
iiig- kommúnista hér hafi verið gefin samkvæmt pöntun frá ,;breiðfylkingunni“. Það væri ekki nema í góðu samræmi við það, þegar Brynjólfur Bjarna- son og Helgi S. Jónsson stóðu saman verkfallsvörð í bílstjóra- verkfallinu og Einar Olgeirsson minnkaði mjólkurkaup sín á- samt Pétri Magnússyni í m j ólkurverkfallinu“. En það má um framan- greinda kosningalygi Isa- foldar segja, að hún er álíka frumleg og þjóðleg og eftiröpun þess á hinum nazist- isku vígorðum að íhalds- menn einir séu íslendingar og allir aðrir séu óþjóðlegir og batursmenn íslenzks þjóðernis. Sendið oss allt sem þér þurfið að láta prenta. Allskonar prent- un fijótt og vel af hendi leyst. Höfum eigín bókbandsvinnustofu PRENTSMIÐJAN EDDA H.F. Talsímí 3948. Laugavegi 1. Pósthólf 552. Reykjavík.
Bráðapestarbóluefni Eins og að undanförnu hefi óg bráðapestarbóluefni til sölu. — Sendi um allt land gegn póstkröfu. Ásta Emarsson, Hávailagötu 41, Reykjavík, sími 2212, pósthólf 226.
Búnaðarbankinn:
AUt innstæðufé 31. dcs. 1936 ... kr. 3.522.295,81
Allt innstæðufé 31. des. 1935 ... kr. 2.909.146,44
..
l!
Mismunur, aukning á árinu kr. 613.149,37
Innstæðufé hjá öllum þremur bönkumim hefir þannig aukizt á
árlnu um
Kr. 3.787.793.86
í
Nú kynnu einhverjir að álykta, að þessi mikla aukning innstæðu-
, íjárins stafaði af óvenjulegum yfirfærsluörðugleikum á síðasta ári, en
: það getur ckki átt sér stað, þar eð fullkominn greiöslujöfnuður náðlst
við útlönd á því ári, og meira en það.
Ágæt herbergi
til leigu á Hverfisgötu 82
yfir lengri eða skemmri
tíma. — Hentugt fyrir
ferðafólk. — Sími 3454.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
*) Leturbreytingin mín.
Mismunur, aukning á árinu kr. 1.274.373,50
Prentsm. BDDA h.f.