Tíminn - 27.05.1937, Page 4
96
TIMSHB
þeim til við kjörborðið að leiða
hallæri og eymd yfir sjálfa sig
og börn sín.
Heildsalarnir brigsla okkur
Framsóknarmönnum um sam-
starf við verkamenn og sjó-
menn. En lítum á ræktarland
verkamanna og sjómanna ofan
við Iiöfn í Hornafirði. Lítum á
kartöfluakrana þar og kartöflu-
byrgin, þar sem á haustin er
geymdur mikill forði, uppsker-
an af erfiði fólksins í þorpinu.
Vel var unnið að þessu máli af
þeim heimamönnum undir for-
vstu Jóns kaupstjóra og Þor-
leifs í Iiólum. En öli fram-
kvæmdin var óhugsandi nema
undir stjórn Framsóknarfl. og
verkamanna, sem studdu á
tímabilinu 1928—31. Hvað
hefði mönnum í Höfn í Horna-
íirði orðið ágengt ef þeir hefðu
reynt að gera átakið 1924—27,
undir hæl íhaldsins? Og lítið
hefði orðið um atvinnutrygg-
ingu þessara nýræktarmanna og
bændanna uppi í héraðinu, sem
nú rækta sumir yfir 100 tunn-
ur af kartöflum á einyrkjabýli,
ef ekki hefði komið grænmetis-
verzlunin, sem núverandi stjórn
arflokkar settu á í fyrra, í
í'ullri óvild allra heildsalanna,
sem nú senda Brynleif til að
draga lokur frá hurðum fólks-
ins, sem berst af öllum kröftum
við að nota sér vernd núverandi
stjórnarílokka móti heildsölun-
um. Vel má minna forsvars-
menn Brynleifs á það, að Bjarni
á Reykjum er í mörg ár búinn
að berjast fyrir þessu skipulagi
p kartöflusölunni. Allur Fram-
sóknarflokkurinn studdi hann.
En Jón Þorl. og lið hans var
altaf á móti — vegna heildsai-
anna, sem létu erlendar kart-
öflur flæða yfir markaðinn.
Loks kom verkamannaflokkur-
inn og studdi þessa framkvæmd.
En heildsalamir hata skipulag-
io. Nú geta þeir ekki grætt
neitt sem heitir á kartöfluverzl-
uninni. Fólkið fær gróðann. Og
engir jarðræktarmenn á landinu
fá meira af þessum gróða —
sem leiddi af ósigri heildsalanna
1934 — heldur en fólkið, sem
vinnur að ræktun báðumegin
H ornaf j arðarf 1 j óts.
Engum manni er ljúfara en
mér að hrósa Jóni ívarssyni fyr
ir verzlunarstarf hans á Homa-
firði, og enginn hefir oftargert
það opinberlega. Eg hefi auk
þess þá ánægju að hafa valið
Jón Ivarsson, sem gamlan vin
úr ungmennafélögunum og
hinn einlæga andstæðing brask-
ara og fjársvikara, til að vera
kaupstjóri á Hornafirði, þegar
félagið var ungt og vanmátt-
ugt. Enginn maður í sýslunni
þekkti Jón þá. Hallgrímur
Kristinsson tók meðmæli mín
gild og réði Jón ívarsson aust-
ur. Sú mannráðning hefir gefizt
kaupfélaginu vel. Hún var líka
gerð af meiri drengskap og
meiri þekkingu, heldur en út-
gerð heildsalanna á Brynleifi
Tobíassyni í sama hérað.
En það mega þeir vita, kaup-
félagsmenn við Hornafjörð,
! sem kunna að leiða hugann að
því, að bregðast nú í vor í sam-:
1 starfi við kaupfélagsmenn
| annarsstaðar á landinu, að
í þeim mun verða kalt í flatsæng
‘ með Garðari og Fenger. Þeir
hafa fengið frá öðrum sam-
: vinnumönnum sína góðu verzl-
unarforustu. Þeir hafa fengið
' veltufé sitt í mörg ár vegna
baráttu okkar og sigra yfir
kaupmannavaldinu í bönkun-
um. Þeir hafa fengið sín góðu
innkaup og sölur fyrir vinnu
manna utan héraðs, sem Garð-
ar Gíslason hefir ofsótt og ó-
virt eftir getu alla þá tíð, sem
kaupfélag hefir starfað í
Hornafirði. Hver er nú sá
samvinnumaður í Hornafirði,
sem vill verða Þorbjörn rindill,
svíkja vini sína, draga lokur
i rá hurðum ? Harður myndi
dómur samvinnumanna um
land allt yfir þeim mönnum,
sem leiddu aftur haliærið frá
1932—34 yfir bændastéttina
og fátæka fólkið við sjóinn,
aí léttúð og vöntun á sjálfs-
virðingu og manndómi.
Hinir mörgu vinir kaupfé-
lagsins í Hornafirði austur þar
geta á einn hátt og aðeins einn,
svarað flugumennsku heildsal-
anna og ódrengskap þeirra sem
dylgja um að trúnaðarmenn
þeirra séu að grafa leyniskörð
i varnarvegg þann, sem byggð-
ur hefir vei'ið upp um efnahag
og menningu í héraðinu, með
því að endursenda Brynleif
heim til þeirra sem gera hann
nú út. Heildsalarnir leggja þá
aldrei aftur fé í að gera út
leiðangra í blöðum og á annan
liátt, til að fá í Austur-
Skaftafellssýslu liðskost til að
leiða hallæri yfir hinar stóru
atvinnustéttir og þar með land-
ið allt.
Ilinir mörgu vinir Jóns Iv-
arssonar í héraðinu geta hjálp-
að til að venja óvini hans af að
misnota nafn hans eins og í
umræddri grein. Hann er síðan
í fyrravor í stjórn Sambands
ísl. samvinnufélaga. Hann var
kosinn þangað af fulltrúum
þúsunda bænda, sjómanna og
verkamanna, sem hinn öruggi
andstæðingur braskaranna. í
þeim hóp hefir aldrei fallið
skuggi á þegnskap nokkurs
manns um trúnað við samvinn-
una og þrek til að standast á-
i'ásir andstæðinganna. í fyrsta
sinn leyfir blaðsnepill, sem
prentaður er fyrir fé frá verstu
cvinum samvinnumanna, sér
að nefna einn af hiiium gömlu
cg góðu trúnaðarmönnum sam-
vinnunnar á þann hátt, að blett-
ur fellur á skjöld hans. Þann
blett á að þvo af 20. júní n. k.
Jón ívarsson á það skilið fyrir
sitt góða starf, að verzlunar-
umbótum í sýslunni. Sam-
vinnumenn um allt land eiga
það skilið fyrir það sem þeir
hafa gert um mörg undanfarin
ái til að styðja samvinnufólkið
í Austur-Skaftafellssýslu til að
gera hið fagra, en liarðbýla,
samgöngulausa og vanrækta
hérað, að þeirri miklu fram-
íarabyggð, sem það er nú.
Þegar Brynleifur Tobíasson
lauk námi i menntaskólanum,
\ ar hann hátt á þrítugsaldri,
þroskaður maður og um margt
á undan yngri skólabræðrum.
Hann hafði þann metnað, sem
ekki var óeðlilegur, að verða
formaður í skólafélagi þriggja
þroskaðri og hærri bekkjanna.
Það mistókst að vísu, sem mun
hafa verið óverðskuldað. Þá
tók Brynleifur það fáheyrða
láð að ganga í félag yngri
bekkjanna, þar sem voru krakk-
ar, nýsloppnir frá stafrófskver-
inu, til að fá þar þær mann-
\ irðingar, sem hans eigin jafn-
ingjar vildu ekki fela lionum.
„Sagan endurtekur sig“, var
kjörorð Tr. Þ. Framboðssaga
Brynleifs staðfestir það. Hann
ieitar fyrst eðlilegra mann-
virðinga hjá samsýslungum sín-
um. Hann berst á mörgum
fundum við stefnu heildsalanna
með góðum árangri, en nær þó
ekki þeim mannvirðingum, sem
hann óskar eftir. Þá yfirgefur
hann skyndilega félaga sína í
hinu hærra skólafélagi lífsins.
Hann yfirgefur samvinnumenn-
ina og flytur inn í félag þeirra,
sem sitja á lausabekk í öllurn
félagsmálum. Þar leitar hann
að þeim sigri, sem hann, því
miður, bar ekki giftu til að
vinna, þar sem honum hefði
verið sæmd að sigra.
Brynleifur Tobíasson og hin-
ií nýju húsbændur hans, heild-
talarnir, munu að vísu líta svo
a, að hið nýja baráttuland hans,
Austur-Skaftafellssýsla, sé hon-
um að sama skapi auðunnara
en Skagafjörður, sem barna-
bekkir menntaskólans áttu að
vera honum auðsveipari en lær-
dómsdeildin. En ég hygg að
heildsalarnir hafi á þessu rang-
an skilning. Ég álít að ekki sé
hægt að gera neinn mun á
Skagafirði og Skaftafellssýslu
um fegurð landsins eða mynd-
| ai'skap fólksins. Brynleifi
myndi fráleitt verða það raun-
| veruleg hamingja þó að hann
j fengi einhvem augnabliks-
metnað að launum fyrir að
bregðast fortíð sinni, fyrir að
gerast verkfæri sinna fyrri ó-
vina, og fyrir að eiga þátt í að
leiða yfir Austur-Skaftafells-
sýslu þá erfiðleika sem fólkið
atti við að búa meðan það var
j í einu vanrækt og féflett og
j lítilsvirt af þeim mönnum og
þeirri stétt, sem nú sendir
Brynleif Tobíasson til að draga
lokur frá hurðum sustur í
llornafirði á þeirri glæsilegu
byggingu, sem samvinnumenn
hafa verið að reisa þar síðan
7 eimsstríðinu lauk.
J. J.
Leíðréttmg-
Ut af villandi ummælum Egg-
erts Claessens og Schevings lyf-
saia um fjárútvegun til síldar-
bræðslunnar á Húsavík vil ég taka
fram eftirfarandi:
1. Fulltrúar úr öllum hreppum i
Suður-þingeyjarsýslu ákváðu á
fundi hér í Reykjavík meðan stóð
a flokksþingi Framsóknarmanna
að safna 25—30 þús. kr. hlutafé í
síldarbræðsluna hjá þingeyingum,
l'úsettum innan og utan sýslu.
2. Nokkru scinna símaði ég
Sveini Björnssyni sendiherra og
liað hann að leitast fyrir um lán
hjá dönsku firma, sem ótti hér
innfrosna peninga. Sendiherra
kom málinu á rekspöl og fengust
þar 50 þús. kr.
3. Næstu 50 þús. kr. útvegaði
sýslumaður þingeyinga af inn-
irosnu fé annars dansks firma.
A. Lcyfi til að ráðstafa þessum
100 þús. kr. af erlendu fé og heit-
orð um nauðsynlcgar yfirfærslur
íengust fyrir mina milligöngu.
Clacsscn og Scheving gótu ekki
fengið slikt leyfi, enda hefðu þeir
þ;i báðir verið búnir að flytja féð
úr landi. Heimildin til að nota hið
innfrosna fé var þýðingarlaus
nema mcð notkunarheimild gjald-
eyrisnefndar og Landsbankans.
5. Síðustu og torl'cngnustu upþ-
bæðina, 40. þús., útvegaði Eysteinn
Jónsson ráðherra innanlands. —
Claessen og Scheving geta þess-
vegna verið rólegir út af síldar-
hræðslunni á Húsavík. þeir gátu
ekki lagt í hana svo mikið sem
einn stein.
Jónas Jónsson frá Hriflu.
sýslunnar, sem misst hafa fót-
festu við hið sjúka brölt Jóns
í Stóradal. Hannesi hefir orðið
vel ágengt. Aðferð hans er hin
sama og Guðmundar í Ási, hið
rólega og trygga starf fyrir al-
menna hagsmuni, án tillits til
eigin hagsmuna. Og sú aðferð
mun verða sýslunni giftu-
drýgri, en hin persónulega
valdabarátta nafnanna í Dal og
Akri, sem skaðar þá sjálfa,
sýsluna og landið.
Loks koma tveir bræður úr
Mývatnssveit, dóttursynir Jóns
á Gautlöndum, þeir Þórir bóndi
og kennari í Reykholti og
Steingrímur búnaðarmálastj óri.
Annar sækir fram gegn íhald-
inu á Snæfellsnesi, hinn við
hlið sr. Sigfúsar í Skagafirði.
Þórir Steinþórsson byrjaði ung-
ur einyrkjabúskap í margbýli
á lítilli jörð norður i Mývatns-
sveit. En þar sýndi hann þann
manndóm, að þegar byrjað var
á hinum stóru héraðsskólum,
varð hann þegar í stað einn af
fremstu mönnum í hópi þeirra
mörgu óvenjulega duglegu
manna, sem starfa við þær
stofnanir. Nemendur hans eru
um 90 vetur eftir vetur, og
þeir bera allir með sér burtu
varanlega mynd af hinum karl-
mannlega, svarthærða bónda
og kennara í Reykholti, sem er
sjálfur ímynd þess lífs og þess
starfs, sem bíður þeirra sjálfra
á ókomnum árum. Þórir Stein-
þórsson sannar með starfi sínu
að einyrkinn þarf ekki að bogna
af stritinu eða verða þröng-
fiýnn og lokaður andlega af fá-
um viðfangsefnum. Þórir er
hár maður og þrekinn, höfðing-
legur í öllu fasi og framgöngu,
hógvær maður og kurteis, en
harðfengur ef á reynir. Hann
er einn af áhrifamestu ræðu-
mönnum, sem nú taka þátt í
opinberu lífi og ritfær að sama
skapi. Hann er prýði í hópi ein-
yrkja-bænda og kennara. Sú
kynslóð, sem héraðsskólarnir
móta á að líkjast honum í al-
vöru, menningu og þreki, bæði
til líkamlegra og andlegra
starfa.
Steingrímur búnaðarmálastj.
fór ungur úr föðurgarði í Mý-
vatnssveit á Hvanneyrarskóla
cg landbúnaðarskólann í Kaup-
mannahöfn. Varð síðan kennari
á Ilvanneyri, skólastjóri á Hól-
um og búnaðarmálastjóri, eftir
að félagið fór að rétta við.
Ilalldór á Iivanneyri sagði í
ræðu yfir piltum, að hann vildi
ciga slíkan son sem Steingrím-
ur væri. Svo hefir fleirum
fundizt. Steingrími hefir orðið
auðfengið traust til almennra
starfa og mannvirðinga. Hann
er mikill á velli, svo sem verið
hafa margir forfeður hans í
Mývatnssveit, prýðilega gefinn,
vel menntur, ræðumaður einn
hinn mesti sem nú er uppi á
landinu. í Búnaðarféiagi ís-
lands hefir honum telcizt með
mildi og elju að deyfa ófrið og
deilur. Sjálfur er hann elju-
maður hinn mesti og á mikiim
þátt í þeirri margháttuðu bún-
aðarlöggjof, sem.sett hefir ver-
ið á valdatíma Hermanns Jón-
assonar.
Ég hefi nú lauslega getið
þeirra manna, sem nú sækja
fram fyrir hönd Framsóknar-
flokksins við hlið hinna eldri
15 þingmanna við kosninguna
20. júní. Enginn annar flokkur
hefir svo mikinn liðsauka, og
svo marga viðurkennda hæfi-
leikamenn í boði við hlið hinna
eldri starfsmanna. Kjósendur
um allt land, í hvaða flokki
sem þeir eru, gera sér sjálfum
mikið gagn með því að bera
þessa menn, hæfileika þeirra,
menntun, áhuga, manndáð og
lífsstörf saman við keppinauta
þeirra frá öðrum flokkum. Þá
skilja menn hversvegna Fram-
sóknarflokkurinn stjórnar land-
inu og á að gera það fram-
vegis, eins og hann meira og
minna hefir gert síðan 1917, að
hinn fyrsti bóndi á íslandi sett-
ist í ráðherrastól. Síðan þá
hefir þjóðin tekið mestum
framförum, því að fólkið sjálft
tók við stjórn sinna eigin
málefna úr höndum „breiðfylk-
ingarmanna“ fyrri tíma.
J. J.
Prentsm. EDDA h.í.
Samvinnumenn!
Sendið oss allt sem pér þuriið
að láta prenta. Allskonar prent-
un iljótt og vel ai hendi leyst.
Höium eigin bókbandsvinnustoíu
PRENTSMIÐJAN EDDA H.F.
Talsími 3948. Laugavegi 1.
Pósthóli 552. Reykjavík.
Bezta
Munntóbakið
er frá
Brödrene Braun
KAUPMANNAHÖFN
Bíðjið kaupmann yðar um
B. B. munntóbakið
Fæst allsstaðar.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.
Hinir búfróðustu menn telja að notkun góðra stálljáa -
Eylandsljáanna — só ein hin nytsamasta nýjung, á
sviði landbúnaðaiins, á síðari árum.
Hafa bændur efni á því að láta þessa nýjung ónotaða?
Notkun tjáanna er
enginn tilraun núoröið
því á síðustu 5 árum
hafa selst 21 660 „Ey-
landsljáir11.
Pantið Ijáina í tæka tíð, því fraraleiðslan er takmörkuð.
Samband ísl. samvínnufélaga
ÁjtíO 1004 rmi
1 fynU Érn
þakla«t 1 Du-
mðrka <ur
ICOPAL
Besta og ódýraata efni f þök. Tíu án ábyrfS á þökwram.
Þurfa ekkert viðhald þans tlma.
Létt. ------- Þétt. -------- Hlttt.
Betra en bárujám og málmar. Endiat ains val of aklfaþðk.
Fmt alat&ðar á Islandi.
Jens Vílladsens Fabriker
Katvebodbrygge 2. Köbenhavn V.
Biöjið una verðekrá vora og ■ýniahorn.
P. W. Jacobsen & Sön
Timburverzlun
Símn.: Granfuru. Stofnað 1824
Carl Lundsgade. — Köbenhavn
Afgr frá Kaupmannahöfn bæði stórar og litlar pantanir og
skipsfarma frá Svíþjóð. Sís og umboðssalar annastpantanir
Eik og efni í þilfar til skipa