Tíminn - 22.09.1937, Síða 3
131
T 1 M I N N
í viðskiptum við þessa sérstöku
sðilja, togaraeigendurna.
Og menn skulu ekki halda
það, að tillögur Framsóknar-
manna í þessum efnum .séu
fordæmalausar hvað togaraút-
gerð snertir.
í merkilegri bók, sem heitir
„Saga togaraútgerðarinnar“,
eftir hinn nafnkunna norska
skipstjóra og fiskirannsókna-
mann, Thor Iversen, en bókin
er gefin út af fiskimálastjóra
Norðmanna, er sagt frá því,
að á norskum togurum, eins
og yfirleitt á norskum veiði-
skipum, eigi sér stað hluta-
skipti.
Þá er þar ennfremur skýrt
frá því, að á enskum togumm
séu skipstjórar og stýrimenn
eingöngu launaðir með hlut í
nettóandvirði afla, en ekki
brúttóandvirði hans, eins og
hér hefir átt sér stað.
Loks hefir véstur-íslenzkur
s-kipstjóri, Magnús Magnússon,
skýrt frá því. nýlega opinber-
lega, að á togurum í Banda-
ríkjunum eigi sér eingöngu
stað hlutaskipti.
Ráðningarkjörin í Englandi,
Noregi og Bandaríkjunum eru
sem hér segir:
England.
Ráðningarkjör á enskum
togurum eru þessi: Skipstjóri
og stýrimaður eru eingöngu
launaðir með hluta af nettó-
andvirði afla og greiða þeir
sjálfir fæði sitt. Allir aðrir af
skipshöfninni hafa fast viku-
kaup auk lítils hundraðshluta
af nettó hagnaði, en útgerðin
leggur þeim til fæði.
Nánar tiltekið eru ráðningar-
kjörin á ensku togurunum
þessi:
Nettóandvirði aflans er skipt
í 14 staði, fær skipstjóri l3/8
hlutar, en stýrimaður 1 hlut,
en fæða sig svo sem áður var
sagt.
Bátsmaður fær sh. 59/9 á
viku, og 4 d. af sterlingspundi
nettóaflans. Annar stýrimaður
47/8 og 2 d. af pundi. Mat-
sveinn og hásetar 43/9 á viku
og 2 d. af sterlingspundi. Séu |
teknir hásetar umfram það,
sem lög ákveða um tölu skips-
hafnar, fá þeir 42 sh. á viku.
Fyrsti vélstjóri fær 68/4 og 4
d. af sterlingspundi. Annar
vélstjórish. 59/6 og 2 d. af
sterlingspundi nettoafla Kynd-
arar á langferðum 45 sh.
og 1 d. af pundi, en við veiðar
í Norðursjó 42 sh. á vku og 1
d. af sterlingspundi.
Allir hafa þessir menn frítt
fæði.
Sh. eða shillings er kr. 1.10,
en denis eða penny 9 aurar |
ísl.
Þessi voru launakjörin í IIull
í aprílmánuði þessa árs.
Noregur.
Á togurum Norðmanna eru
hinsvegar sömu ráðningarkjör
eins og á öðrum venjulegum
fiskigufuskipum og selveiður-
vm þar .í lanai. Þ. e. að vél-
stjórar og þeir menn aðrir, sem
vinna í vélarúmi, svo og mat-
sveinn og aðstoðarmenn hans
hafa fast kaup án hluttöku
í andvirði veiðinnar. Aðrir yfir-
menn hafa að jafnaði föst laun
og hlutdeild í afla. Aðrir skips-
hafnarmenn (hásetarnir)
hafa engin föst laun, en ein-
göngu aflahlut. Allir hlutamenn
greiða sjálfir fæðið, en mat-
reiðslu- og vélamenn hafa frítt
íæði. Af brúttoverði aflans er
greiddur svonefndur sameigin-
legur kostnaður, svo sem salt,
ís, uppskipun, vátrygging afl-
ans og laun matreiðslumanna.
Eftir að þessir kostnaðarliðir
hafa verið dregnir frá heildar-
afla, fá hlutarmenn 27% af
aflaverðmætinu til skipta.
Bandaríkin.
í Bandaríkjunum eru hluta-
skipti á togurum.
Er þeim þannig fyrir komið:
Fyrst eru teknir 200 dalir aí
undvirði aflans úr hverri veiði-
för. Fer þetta í kostnað við
loftskeytatæki, kaup loft-
skeytamanns og kaup kyndara,
ef um kolatogara er að ræða.
Það sem eftir er, skiptist til
Husqvarna-
prjónavélar
eru viðurkeud
ar Syrir gœði
Þó er verðið
ótrúlega lágt
Samband ísl samvínnufélaga
M
helminga. Annar helmingurinn
fer til skipshafnar að undan-
skildum loftskeytamanni og
kyndurum. Hitt er skipshlutur.
Skipshafnarhlutur skiptist í 15
jafna staði, milli skipstjóra,
stýrimanns, 10 háseta, 2 véla-
manna og matsveins. En af !
skipshlut fá skipstjóri, stýri-
rnenn, vélamenn og matsveinn
uppbótarhluti mismunandi
mikía.
Mannráníð
Brezka stjórnsn
bíðst afsökunar.
Samkvæmt skeyti írá utanríkis-
málaráðuneytinu danska, hefir
lirezka stjórnin nú svarað mála-
icitun íslenzku ríkisstjórnarinnar
út af landhelgisbroti og mannráni
brezka togarans „Visenda".
Er það tekið fram í svari brezku
stjórnarinnar að henni þyki miður
að brezkur skipstjóri hafi sýnt svo
vítavert framferði, og að hún muni
snúa sér til brezka togaraútgerð- j
armannafélagsins til þess að reyna j
að koma í veg fyrir endurtekningu \
á slíkum athæfum.
Brezka stjórnin mun rneð hlið-
sjón af framburði skipstjórans á
„Visenda" líta svo á að um land-
hclgisbrot hafi ekki verið að ræða,
cn frckari sannanir fyrir landhelg-
isbrotinu verða nú færðar brezku
stjórninni, samkvæmt því sem
skýrsla skiphcrrans á varðbátnum
, Gautur" ber með sér, og í sam-
liandi við það, á sama hátt og
þegai' hefir verið gert útaf hlið-
stæðu broti dragnótaveiðiskipsins
„Desert Song“, gengið eftir frekari
svari um möguleikana fyrir að
skipstjórinn á Visenda verði lát-
i mn sæta ábyrgð í Bretlandi.
Fyrsta flokks.
Dynamóa og Lugtír
Battery og Perur
kaupið pér í
Ö R N I N N
Laugaveg 8 Reykjavík.
Ritstjóri: Gísli Guðmundsson.
Prentsm. EDDA h.L
Á Alþýðuflokkinn og kjós-
endur hans höfðu vonbrigði
kosninganna líka sín áhrif. —
Gætti þar, a. m. k. í upphafi,
nokkurrar gremju í garð þeirra
manna innan flokksins, er staðið
höfðu fyrir samvinnuslitunum
\ ið Framsóknarf lokkinn og
sett sinn (Svip á kosningaað-
stöðuna. En til þess að fá
flokknum önnur umhugsunar-
rfni, var af hálfu þeirra manna
snúist að því, að hefja viðræð-
ur við kommúnista um samein-
ingu flokkanna í einn allsherjar
jafnaðarmannaflokk. Hafa blöð
beggja rætt þetta sameiningar-
mál öðru hvoru í sumar og
nefndir verið kosnar til sam-
komulagsumleitana. Ekki mun
þó almennt búizt við árangri
að svo stöddu. Kommúnista-
flokkurinn er, eins og kunnugt
er, til orðinn með þeim hætti,
að árið 1980 klofnaði Alþýðu-
flokkurinn og myridaði minni-
hlutinn nýjan flokk, sem leit-
aði í skjól alþjóðasambandsins
í Moskwa, en rak að öðru leyti
sams konar starfsemi gagnvart
Alþýðuflokknum meðal verka-
manna og Bændaflokkurinn síð-
ar reyndi að reka gagnvart
Framsóknarflokknum í sveitun-
um. En vinnuaðferð beggja
þessara sprengiflokka byggðist
á yfirboðum og kröfupólitík,
þar sem neitað var að taka til-
lit til þess, sem raunverulega
var framkvæmanlegt.
Þegar eftir kosningarnar lá
það verkefni fyrir, að gera á-
kvörðun um stjórn landsins
fyrst um sinn. Meirihluti sá,
sem í upphafi hafði myndað
stjórnina, var enn til staðar í
þinginu. Fóru því fram viðtöl
í júlímánuði milli stjórna Fram-
sóknarflokksins og Alþýðu-
flokksins. Varð þá að sam-
komulagi, að flokkarnir gæfu
út yfirlýsingu um stuðn-
ing við stjórnina fram á næsta
Alþingi, og að athugaðir yrðu
möguleikar til áframhaldandi
samstarfs.
Ástæðan til þess, að frekari
samkomulagstilraunum var
írestað til haustsins, var m. a.
sú, að réttara þótti að doka við
þangað til nánar yrði vitað um
afkomu atvinnuveganna á árinu
og þar með gleggri yfirsýn
fengin um afkomu í fjárhags-
og viðskiptamálum. Því að
væntanlegir samningar milli
flokka urðu, að öllu eðlilegu,
að miðast við það ástand, sem
ríkjandi yrði í landinu við
næstu áramót. Var um þau
efni nánar rætt í grein, sem
íormaður Framsóknarflokksins
ritaði í Tímann um þessar
mundir.
Ef síldarvertíðin hefði brugð-
izt að þessu sinni, var næsta
alvarlegt ástand framundan.
Þorskveiðin syðra hafði, eins
og áður er sagt, verið hin
hörmulegasta og stöðug verð-
hækkun á erlendum vörum, á
saltfiskinum hinsvegar engin
verðhækkun. Óvenju mikið
hafði verið lagt í kostnað við
undirbúning síldarvertíðarinn-
ar, síldarflotinn stærri en
nokkru sinni fyrr og verk-
smiðjur auknar með ærnum til-
kostnaði.
Það verður ekki annað
sagt nú, en að útkoma sumars-
ins hafi orðið sæmileg, miðað
við það erfiðleikaárferði, sem
verið hefir undanfarið. Síld-
veiðin er mikil og ekki annað
sýnt en að hún komist öll í
sæmilegt verð. Fyrr á árum
hefði slíkt veiðimagn orðið
ærið áhyggjuefni. En hin mikla
aukning síldariðnaðanns og
skipulag saltsíldaríramboðsins,
áorkar því nú, að framleiðslan
öll verður landsmönnum verð-
mæt. Fyrir landbúnaðinn hefir
sumarið hins vegar ekki verið
alstaðar sem ákjósanlegast.
Gífurlegir óþurrkar voru á stór-
um hluta landsins og heyfeng-
ur þar bæði rýr og stór-
skemmdur. Og sauðfjárplágan
borgfirzka herjar enn í mörg-
um blómlegustu sveitum lands-
ins, svo til auðnar horfir í bú-
fénaði, og óséð enn, hversu út
kann að breiðast. Er þó búið að
verja um y2 millj. kr. til að
stemma ' stigu fyrir vágesti
þessum og voru sl. vor gerðar
varnargirðingar samtals að
lengd nokkuð -á fimmta hundr-
að kílómetra. A. m. k. á
sumum tegundum landbúnaðar-
framleiðslu hefir verðhækkun
orðið til nokkurra muna. Ráð-
stafanir hafa nú verið gerðar
i>í ríkisstjórninni til að tryggja
bændum síldarmjöl til fóður-
bætis við kostnaðarverði.
Vegna verðhækkunarinnar og
hins mikla vaxtar í síldarútgerð
og síldariðnaði, ’nefir innflutn-
ingur erlendra vara, í krónum
talinn, orðið nokkru meiri en í
fyrra. Innflutningstakmörkun-
um hefir þó verið beitt á sama
hátt, þannig, að hindraður hefir
verið, eftir því sem frekast var
unnt, innflutningur þeirra vara,
sem hægt er að komast af án,
en brýnar nauðsynjar til neyzlu
og framleiðslu leyfðar nokk-
urnveginn eins og um hefir ver-
ið beðið. í sumar hafa sum
Reykjavíkurblöð gert hark
mikið út af því, að ekki hefir
verið leyfður innflutningur suð-
íænna. aldina. Og alltaf er urg-
ur í málgögnum kaupmanna út
af framkvæmd haftanna. Sér-
staklega hafa þau lagt fast að
innflutningsnefnd að hindra á-
íramhaldandi vöxt kaupfélaga,
með því að láta kaupmennina
jafnan hafa innflutning í hlut-
iálli við eldri verzlunarveltu,
svo að viðskiptamennirnir geti
ekki farið frá þeim yfir til
kaupfélaganna. Einkum er nú
hin hraðvaxandi kaupfélags-
starfsemi í Reykjavík sár
þyrnir í aukum hinnar tekju-
háu heildsalastéttar, sem fram
að þessu hefir talið höfuðstað-
inn aðalvígi hinnar misnotuðu,
„frjálsu samkeppni“. Nú í
pumar sameinuðust fimm sam-
vinnufélög í Reykjavík, Hafn-
e.rfirði og þoi*punum „suður
með sjó“ og mynduðu með sér
eitt öflugt samvinnufélag und-
ir nafninu „Kaupfélag Reykja-
víkur og nágrennis". í því telj-
Sauðfjáreígendur
t
öll stærstu sauðfjÁrræktarlönd heimains nota
OOOFESS-BADLTF
Það læknar hverskonar óþrif betur en nokk-
urt annað baðlyf.
OOOFEBS-BADLTF
©ykur vöxt og gæði ullarinnar fremur on
nokkurt annað baðlyf.
COOFERS-IADLTF
DUFT - LÖGUR - SAPA
fæst hjá öllum kaupfélögum.
Samband fsl. samvínnufélaga
Sími 1080.
?.st nú yfir 3000 félagsmenn.
Félagið hefir þegar . lækkað
kolaverð í Reykjavík um 6 kr.
tonnið. Næsta sporið ætti að
vera það, að smáútgerðar-
mennimir við Faxaflóa mynd-
uðu með sér samvinnufélag til
innkaupa á olíu til báta sinna.
Á þessu sumri hefir verið
lokið hinni miklu raforkuvirkj-
i
un við Sogið. Hefir Reykjavík-
urbær látið framkvæma virkj-
un þessa, og til þess að geta
það, fékk bærinn árið 1934 á-
byrgð ríkisstjómarinnar fyrir
um 6 millj. kr. láni, sem tekið
var í Svíþjóð. Margir höfðu
gert sér vonir um, að um leið
og Sogsstöðin tæki til starfa
og ekki þyríti að spara orkuna,
myndi rafmagnsverðið í Rvík
geta lækkað til muna, sérstaL
lega á því rafmagni, sem not-
að er til suðu og hitunar, svo
að takast mætti að draga ur
kolanotkun svo að um mun-
aði. En ráðamenn bæjarins eru
enn sem komið er tregir til
breytinga og hafa reynt s/5
eyða málinu með bollalegging-
um um að taka þyrfti sölu
íafsuðutækja úr höndum einka-
sölu ríkisins og lækka verð
þessara tækja, enda þó upplýst
hafi verið með tölum að þau
eru ódýrari hér en annars stað-
ar á Norðurlöndum. Annað úr-
lausnarefni, sem upp kemur í
sambandi við virkjun Sogsins,
er raforkuþörí ýmsra þorpa og
byggðarlaga á Suðvesturlandi,
og raunar einnig á Norðurlandi
í sambandi við væntanleg'a
virkjun Laxár í Suður-Þingeyj-
arsýslu. Hefir ríkisstjórnin
skipað raforkumálanefnd til að
framkvæma athuganir og gera
tillögur þessum efnum viðkom-
andi. Á almenningur mikið
undir því, að rétt verði á þess-
um málum tekið.
Talsverðar kauphækkunar-
kröfur hafa verið uppi á sl.
misseri, og bera verkamenri
fyrir sig verðhækkun þá, er
orðið hefir á erlendum vörum.
Starfsmenn ýmsra iðnaðarfyr-
irtækja riðu á vaðið og náðu
.samningum um hækkun. 1 sum-
ar auglýsti svo Verkamannafé-
lagið Dagsbrún nýjan taxta,
þar sem almennt dagvinnu-
kaup var hækkað úr kr. 1.36
upp í kr. 1.50. Út af þessu
varð vinnustöðvun um tíma og
gekk sáttasemjari ríkisins í
málið. Reyndist Vinnuveitenda-
íélagið þá strax tilleiðanlegt til
að hækka kaupið nokkuð frá
því, sem áður var, og varð sam-
komulag um kr. 1.45. Jafn-
framt var gerður samningur til
eins árs milli Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar og Vinnu-
veitendafélagsins, og er það
spor í áttina til að tryggja
\ innufriðinn. í þessum samn-
ingi er eftirtektarvert ákvæði
um það, að deilur út af samn-
mgnum skuli lagðar fyrir
sáttanefnd, og megi ekki hefja
vinnustöðvun í viku, meðan
hún er að reyna að koma á
sáttum. Er þetta spor í áttina
til viðurkenningar aðila á
nauðsyn hóflegrar vinnulög-