Tíminn - 17.06.1938, Page 1
Stoínfundur Sambands ungra Framsóknarmanna
að Laugarvatní
KVEÐJA
ti! iingra Fraiiss(»kaaai*msiiiiia á Laugai’vatni
11. jiiiiá 1938.
Kæru samherjar!
Ég vildi feginn hafa verið í ykkar hóp á þessum merkilega
fundi, sem mun marka spor í sögu Framsóknarflokksins og í sögu
landsins. Því miður varð ég, þessa sömu daga, að sinna skyldu-
störfum annarsstaðar á landinu.
Mér finnst að flokksþing ykkar og valið á fundarstaðnum
vera táknandi fyrir þá þyðingu, sem ég tel aS skipulagsbundin
samtök ungra Framsóknarmanna muni hafa í framtíðinni. Þið
veljið Laugarvatn fyrir fundarstað. Þar er nú stærsta heimili í
sveit á íslandi. Þar eru fjölbreyttari náttúruskilyrði en til eru á
öðrum bæjum hér á landi. Hin nýja byggð átti á Laugarvatni t í u
ára afmæli þessa dagana. Um stofnun þessa nýja heimilis hafa
staðið þrálátar deilur. Andstæðingar Framsóknarflokksins hafa
með langri mótstöðu tengt Laugarvatn við nafn hans, enda er það
vitað, að án samstarfs Framsóknarmanna myndi þessi nýbyggð
ekki vera risin upp í Laugardalnum. Ykkur mun finnast allmikið
hafa veriö gert til umbóta á Laugarvatni og það er rétt. Hinir
gömlu ungmennafélagar, sem hófu hugsjónabaráttu sína fyrir
30 árum, hafa hrundið áfram þessu verki og ótal mörgum öðrum,
sem öll eru unnin til aö bæta og fegra landið, og til að styrkja þjóð-
ina í baráttu sinni fyrir frelsi og menningu á ókomnum öldum.
En þó að ykkur finnist allmikið liafa verið unnið á Laugar-
vatni, þá er það aðeins byrjun á miklu meira verki sem þar mun
verða unnið á komandi árum.
Sú kynslóð, sem vaknaði til mikils starfs á morgni yfirstand-
andi aldar, hefir sýnt í verki skilning á því hve ísland er gott land,
fagurt og auðugt að náttúrugæðum. Á Laugarvatni hefir verið
gert átak einnar kynslóðar, mikil vinna í sjálfu sér, en þó aðeins
örlítil byrjun á því að fullnota hin miklu náttúrugæði fyrir lands-
ins börn.
Hlutverk ykkar, ungu Framsóknarmenn, er að taka fundar-
stað ykkar, Laugarvatn, á táknrænan hátt. Þar leggur landið fram
mikil náttúrugæði. Þar hefir núverandi kynslóð lagt grundvöll að
þjóðnýtu starfi. En meginvinnan er eftir. Og hún bíður ykkar.
Sú umbótastarfsemi, sem hefir verið byrjuð á Laugarvatni af
Framsóknarflokknum, er aðeins örlítill liður í hinni miklu og
margháttuðu baráttu Framsóknarmanna. Merki þeirrar baráttu
sjást að einhverju Ieyti á hverju heimili, í hverri byggð, hverju
kauptúni, og hverjum kaupstað á íslandi. Framsóknarflokkurinn
er í meira en tuttugu ár búinn að vinna að því að gera ísland að
framfaralandi og íslendinga að nútíma menningarþjóð, en bjarg-
að þó inn í hið nýja land öllu sem bjargað varð af menningarverð-
mætum eldri kynslóða.
Verkefniö er ætíð hið sama: Að nota náttúruauö landsins
handa börnum þess. Að skipta auðæfum landsins réttilega og vit-
urlega. Að efla hina íslenzku þjóð, styrkja æsku hennar, líkamlega,
andlega og siðferðilega.
Innan fárra ára gerir þjóðin lokaátak í frelsismálum sínum.
Þá á að ljúka þeirri baráttu, sem Jón Sigurðsson og Fjölnismenn
hófu í frelsismálum íslendinga fyrir meira en öld og sem haldið
hefir verið uppi hvíldarlaust síðan.
Ungir Framsóknarmenn! Notið þetta fyrsta flokksþing ykkar
til að festa heit í málum lands og þjóðar. Vitið að á ykkur hvilir
mikil ábyrgð. Við ykkur eru tengdar miklar vonir. Gangið fram
með djörfung og festu í því mikla verki, sem bíður íslendinga, að
gera þjóðina frjálsa, sterka og samheldna. Munið, að hin fyrsta
sókn hefir verið hafin og hennar sjást glögg merki um allt land.
Ykkar sókn á að verða enn meiri. Verkefni ykkar og átök stærri.
Gangið hugheilir til starfa. Þá mun gifta fylgja hverju ykkar
fótmáli um mörg ókomin ár.
Jónas Jóussou
formaður Framsóknarflokksins.
LANDNEMAR SKAPA SÉR SJÁLFIR
STARF. - Ræða Eysteins Jóassonar fjármálaráð-
herra á fundmum
EYSTEINN JONSSON
Heiðruðu félagar!
ÞiÖ hafið vafalaust öll hugs-
aö töluvert um Framsóknar-
flokkinn, þann flokk, sem þið
fyllið og ætlið að starfa fyrir —
um störf hans og stefnu. Eigi
að síður getur það verið tíma-
bært að í byrjun þessa fyrsta
landsmóts ungra Framsóknar-
manna veröi örfáum orðum
rninnst á megin kjarnann í
stefnu Framsóknarflokksins. —
Ég ætla að reyna að benda á
meginstefnuna í stuttu máli.
Ekki dægurmálin, heldur þau
undirstöðuatriði, sem afstaða
Framsóknarflokksins til dægur-
málanna mótast fyrst og fremst
af.
Einstöku sinnum hafið þið
ef til vill heyrt það af vörum
andstæöinganna, að megin-
stefna Framsóknarflokksins sé
ekki eins glögg og flokkanna til
hægri og vinstri, af því að flokk-
urinn sé miðflokkur, og af því
að flokkurinn byggi ekki á er-
lendum hagfræðilegum kenn-
ingum, eins og t. d. jafnaðar-
menn og að sumu leyti Sjálf-
stæðismenn (samkeppnismenn)
enda þótt flokkur með starfs-
aðferðum Sjálfstæðisflokksins
sé sennilega hvergi til annar-
staðar.
Það er rétt, að Framsóknar-
flokkurinn er miðflokkur, og
það viljum við láta koma alveg
sérstaklega greinilega fram.
Hitt er einnig rétt, að flokkur-
inn byggir ekki, nema þá að
nokru leyti stefnu sína á er-
lendum hagfræðikerfum. Þrátt
fyrir þetta er meginstefna
Framsóknarflokksins áreiðan-
lega eins glögglega mörkuð og
nokkurs annars stjórnmála-
flokks, sem á íslandi starfar.
FramlellSslnstarfscmln
undirstaðan.
Sjálf framleiðslustarfsemin
er undirstaða allrar velmegun-
ar þjóða og einstaklinga. Allt
er undir því komið, að fram-
leiðslumöguleikarnir notist sem
bezt, og að þeir, sem að fram-
leiðslustarfseminni vinna beint
og óbeint, geti haft framfæri
sitt af þeim störfum. Allir munu
viðurkenna þetta með vörun-
um. En í reyndinni er það nú svo
hér á landi og annarsstaðar,
að þeir, sem stunda þessi störf
eiga í stöðugri baráttu um arð-
inn af þeim. Framleiðsluvör-
urnar margar hverjar þarf að
flytja, oft um langa vegu, til
notkunarstaða. Þær þurfa að
seljast neytendum á fjarlægum
stööum og oft þarf aö breyta
þeirn á ýmsa vegu frá því, sem
þær eru þegar þær fara úr
höndum bóndans eða sjó-
j mannsins. Allir þeir, sem um
þessar vörur fjalla, hafa til-
hneigingu til þess að fá sem
mest fyrir sína hlutdeild.
Framleiðandinn á mikið und-
ir því, að alir þessir aðilar, sem
með vörur hans fara, fái ekki
meira fyrir sína fyrirhöfn en
réttlátt er. Við suma þeirra hef-
ir baráttan verið löng og hörð.
Um aldaraðir hafa' Islenzkir
framleiðendur verið rændir
réttum arði af vinnu sinni um
hendur þeirra, sem verzlunina
hafa rekið.
Framleiðendui* og
milliliðir.
Eitt meginatriðið í stefnu
Framsóknarflokksins hefir frá
upphafi flokksins verið og er
enn baráttan gegn því að fram-
leiðendur landsins væri sviftir
tekjum sínum af framleiðslu-
starfinu af öðrum, sem um
vörur þeirra þurfa að fjalla.
Samvinnufélögin hafa verið
og eru voldugasta vopnið í
þeirri baráttu. Með þeim hefir
Framsóknarflokkurinn staðið
frá öndverðu og stendur enn.
Flokkurinn hefir verið þeirra
sverð og skjöldur á hinum póli-
tíska vettvangi og aldrei þolað
neitt ranglæti í þeirra garð,
þótt hart hafi verið að þeim
sótt með ýmsu móti.
Með aðstoð samvinnufélaga
sinna og Framsóknarflokksins
hafa islenzkir framleiðendur
unnið stórvirki — einkum
bændurnir.
Kaupfélögin ráða nú verðlagi
á nær öllum vörum aðfluttum
í flestum þeim verzlunarstöð-
um, þar sem íslenzkir bændur
hafa verzlun sína. Samvinnu-
félögin hafa til sölumeðferðar
fyrir bændurna mestan hluta
þeirra eigin afurða og gæta þess
að bændurnir fái rétt verð
heim. Bændurnir hafa í eigin
höndum nær öll kjötfrystihús
landsins, mjólkurbúin öll, og
nær alla þá starfsemi, sem mið-
ar að því aö breyta vöru þeirra
eða koma henni í söluhæft á-
stand. Með þessu móti hefir
meginþorra bændastéttarinnar
og sem betur fer nokkrum
hluta annara framleiðenda i
landinu, tekizt að tryggja sér
rétt verð fyrir vörur sínar og
að koma í veg fyrir þá féflett-
ing, sem áður átti sér stað.
Árangurinn er einnig sýni-
legur í því, að vart munu þess
dæmi að nokkrir framleiðendur
greiði jafn lítinn milliliðakostn-
að og sá hluti íslenzkra fram-
leiöenda, sem hefir borið gæfu
til þess að notfæra sér úrræði
samvinnunnar og notið til þess
stuðnings Framsóknarflokks-
ins.
V erzl iinarkostnað-
isrinn eim of liár.
Enda þótt mikið hafi orðið á-
gengt í baráttunni gegn óþörf-
um kostnaði á framleiðslu
landsmanna, eru fjöldamörg
verkefni enn óleyst í því efni. í
sumum kaupstöðum landsins
ráða kaupfélögin ekki ennþá
verðlagi og á verö ýmsra vö'ru-
tegunda hafa samvinnufélögin
ekki ennþá úrslitaáhrif. Verzl-
unarkostnaður þjóðarinnar er
því ennþá mikils til of hár til
tjóns fyrir framleiðslustéttirn-
ar og þjóðina í heild, og verður
áreiðanlega ekki lækkaður
nema með aukinni starfsemi
samvinnufélaga. Framsóknar-
flokkurinn er eini flokkurinn
sem fyllilega er treystandi til
þess að stuðla að slíkri þróun.
íslenzkir útgerðarmenn og
sjómenn hafa ekki ennþá nema
að litlu leyti notfært sér sam-
vinnuna til úrlausnar við-
skiptamálum sínum. Við sjóinn
blasa við ótal verkefni, sem eiga
að leysast á hreinum samvinnu-
grundvelli. Innkaup og vörusala
útgerðarmanna og margskonar
iðnaðarstarfsemi, sem bezt
verður leyst með samvinnu út-
gerðarmanna á sama hátt og
bændurnir reka sín frystihús og
xjómabú. Jafnóðum og útgerð-
armenn og sjómenn grípa til
þessara úrræða og árekstrar
verða við þá, sem hagsmuni
hafa af því að þeir noti þau
ekki, munu þeir komast að raun
um, að Framsóknarflokkurinn
stendur með þeim í þeirri bar-
áttu.
Rétt stefna að létta
stofnkostualS fram-
leiðeuda.
Þá mun ég minnast á annan
þátt í starfsemi Framsóknar-
flokksins, sem skýrir vel megin-
stefnu flokksins og höfuðsjón-
armið.
Þjóðinni er hin mesta nauð-
syn að sem flestir. stundi sjálfir
framleiðslustörfin — skapi sér
og þjóðarheildinni raunveru-
legar tekjur með því að vinna
verðmæti úr skauti náttúrunn-
ar, og þá jafnframt að sem
fæsta þurfi til þess að vinna þau
störf, sem eru kostuð af fram-
leiðslunni, þótt þau séu mörg
nauðsynleg.
Hinsvegar er það staðreynd,
að stofnkostnaður sá, sem sam-
fara er sjálfstæðu framleiðslu-
starfi I byrjun, reynist oft erf-
iður þrándur í götu þeirra,
sem vilja stunda slík störf —
einkum síðan það fór illu heilli
að tíðkast meir en áður, að unga
fólkið eyði mestöllum tekjum
sínum í stað þess að búa sig af
alvöru undir framleiöslustörf
á eigin spýtur eins og áður var
algengara en nú.
Framsóknarflokkurinn hefir
gert það að einu meginatriði í
starfi sínu, að varið væri fé úr
sameiginlegum sjóði lands-
manna til þess að létta stofn-
kostnað framleiðendanna. Það
yrði of langt upp að telja allt
það sem unnið hefir verið í
þessa átt, en t. d. má nefna
jarðræktarstyrkinn, framlögin
í frystihúsin og mjólkurbúin
starfsemi Verkfærakaupasjóðs
og Byggingar- og landnámssjóðs
o. s. frv. Á síðustu árum, eftir
að erfiðleikarnir fóru að vaxa
við sjávarsíðuna og þrengjast
tók hagur útgerðarmanna, hef-
ir þessari stefnu Framsóknar-
flokksins einnig verið fylgt í
málum sjávarútvegsins. Má
nefna t. d. framlögin til hrað-
frystihúsanna, harðf iskhj all-
anna, rækjuverksmiðja og á
næsta ári verður lítilsháttar
byrjað að styrkja þá, sem eign-
ast ætla vélbáta smiðaða hér-
lendis.
Framsóknarflokkurinn hefir
þannig frá öndverðu litið á það
sem sitt megin hlutverk, að
styðja framleiðslustéttirnar.
Með því að berjast fyrir stuðn-
ingi af opinberu fé til þess að
létta stofnkostnað framleið-
endanna og eigi síður með bar-
áttu sinni fyrir því að fram-
leiðendur gætu tryggt sig gegn
ágangi annara.
Frainleiðendur annist
sjálfir atvinnu-
reksturiim.
Allar ráðstafanir Framsókn-
arflokksins í þessum málum
hafa hinsvegar verið miðaðar
við það, að framleiðendurnir
önnuðust sjálfir atvinnurekst-
urinn. Er þá komið að því
grundvallaratriði i stefnu
Framsóknarflokksins, sem
meira en nokkuð annað mótar
aðstöðu hans. Framsóknar-
flokkurinn álítur að það sé bezt
fyrir þjóöfélagiö í heild og ein-
staklingana, að sem allra flest-
ir séu beinir þátttakendur í
rekstri framleiðslunnar og eigi
beinna hagsmuna að gæta í
sambandi við hann. Með því
móti eru beztar líkur fyrir góðri
afkomu og fyrir því að menn
leggi sig einlæglega fram við
störfin og þegar til lengdar læt-
ur, er þetta í raun og veru eina
færa leiðin. Það er alveg óhugs-
andi, að nær öll þjóðin geti haft
fastar tekjur af launum, sem
ekkert fari eftir því hvernig
afrakstur framleiðslunnar er á
hverjum tíma. Hvar á að taka
(Framhald. á 4. siðu.)