Tíminn - 01.10.1938, Síða 1
RITSTJÓRAR:
GÍSLI GUÐMUNDSSON (ábm.)
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
RITSTJÓRNARSKRIFSTOFUR:
Edduhúfii, Lindargötu 1D.
SÍMAR: 4373 og 2353.
ÚTGEFANDI:
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
22. árg.
Reykjjavík, laugardaginn 1. okt. 1938.
47. blað
Saltf isksalan
Hægt heSdi verið að selja 10-12 þús.
smálestum meira á þessu ári
HorSurnar iramundan virðast góðar
Austurvöllur er eini grasgróni öletturimv úr túni Ingólfs Arnarsonar, sem friðhelgi liefir notið til þessa dags.
Fyrir tveim árum var tekið það heillaráð, að fjarlœgja girðingu þá, sem verið hefir umliverfis völlinn, og er hann
nú aðeins varinn a) skilningi borgaranna á göfgi staðarins. Stendur völlurinn nú með miklum blóma, lagður
gangstígum og blómum skreyttur. Á miðjum Austurvelli er myndastytta Jóns Sigurðssonar, en umhverfis völl-
inn standa ýmsar lielztu byggingar höfuðstaðarins, svo sem þingliúsið, dómkirkjan, landsima- og útvarpsstöðin
(er sést á miðri myndinni), Hótel Borg o. fl.
Samkomulagið í Míinchen
Á aðalfundi Sölusam-
bands íslenzkra fiskfram-
leiðenda, gaf Magnús Sig-
urðsson bankastjóri, sem er
formaður S. í. F., ítarlegt
yfirlit um saltfisksöluna á
þessu ári. Fer útdráttur úr
því hér á eftir:
Um síðastliðin áramót voru
fiskbirgðir í landinu 2730 smá-
lestir. Afli landsmanna frá 1.
janúar 1938 til 1. september þ. á.
er 34376 smálestir og því 7584
smálestum meiri en síðastliðið
ár. Allur þessi afli er nú seldur,
að undanteknum 700—1000 smál.
sem eru í útboði til Portugal.
Alls er nú útflutt 27674 smá-
lestir, og hefir sá fiskur verið
fluttur til eftirgreindra landa:
ítalíu........... 8522 smál.
Portugal ........ 2168 —
Bretlands........ 8205 —
Danmerkur ........ 738 —
Noregs ............ 37 —
Brazilíu......... 1489 —
Argentínu ........ 428 —
Cuba ............. 909 —
Spánar .......... 5000 —
U. S. A............ 12 —
Ýmissa landa .... 166 —
Samtals 27674 smál.
Auk þess er selt en ófarið 8308
smál., sem eiga að flytjast út til
eftirfarandi landa:
Spánar ........... 2500 smál.
Ítalíu............ 3000 —
Braziliu.......... 1394 —
Cuba .............. 737 —
Argentínu.......... 677 —
Samtals 8308 smál.
Eftir óselt 700—1000 smál.
Fiskur sá, sem fiskast kann til
Sjúkraflutningar og
flugskílyrðí
Öræfabyggðin er einangruð
af Breiðamerkursandi og Skeið-
arársandi. Stórvötn, svo sem
Skeiðará og Jökulsá, sín á hvor-
um sandi. Hafnleysa fyrir
sandi. Allir flutningar eru erf-
iðir fyrir þesa sveit, en þó eink-
um sjúkraflutningar. — í þess-
ari viku urðu Öræfin í fyrsta
sinn fyrir því, að njóta góðs af
flugsamgöngum. Húsfreyjan á
Sandfelli þurfti læknisaðgerðar
á sjúkrahúsi. Agnar Kofoed-
Hansen tók Klemminn, litlu
þýzku landvélina, sem við eign-
uðumst í sumar, ásamt Páli
Þorgeirssyni bílstjóra, uppöld-
um Öræfing, flaug austur í
von um að einhversstaðar find-
ist lendingarstaður í sveitinni.
Og hann fannst á túninu i
Svínafelli, en það er næsti bær
við Sandfell. Var nú sjúkling-
urinn fluttur bæjarleiðina að
Svínafelli. Eitthvað hefir það
tekið skemmri tíma en flugið til
Reykjavikur. — Sjúklingurinn
komst á sjúkrahús, en Páll bíl-
stjóri varð að vera eftir í Ör-
æfunum, sakir þess, að flugvél-
in rúmar aðeins flugmann og
einn farþega.
Agnar Kofoed-Hansen hefir
ritað grein í Skinfaxa, blað ung-
mennafélaganna, um það, að fé-
lögin ættu að stofna deildir á-
hugamanna um flug, sem m. a.
hefðu það að viðfangsefni að
leita að hentugum flugvallar-
(Framli. á 4. síðu.)
áramóta og sem aðallega verður
gerður að pressufiski og saltfiski,
er áætlað að geti fallið inn í þá
samninga, sem þegar eru gerðir.
Verðlag fisksins í ár hefir verið
borið saman við síðastliðið ár,
sem hér segir:
Portugalsfiskur. 1936—37: 75
kr. pr. skp.; 1937—38: 75—83 kr.
Ítalíuverkaður Labrador. 1936
—37: 60—62 kr. pr. skp.; 1937—
38: 60—65 kr.
Ítalíuverkaður yressuf. 1936—
37: 311/2 eyr. pr. kg.; 1937—38:
3iy2—32 au.
Saltfiskur. 1936—37: 22—27%
eyr. pr. kg.; 1937—38: 25—28 au.
Spánarfiskur. 1936—37: 73—82
au. pr. kg.; 75—84 au.
Ef fiskmagnið hefði verið
nægilegt, hefði verið hægt að
hagnýta Portugalsmarkað meira
í ár, en gert hefir verið. Taldi
ræðumaður að auðvelt myndi
hafa verið að selja 10—12 þús.
smál. meira til Portugals og ann.
arra markaðslanda.
Um framtíðina fórust honum
orð á þessa leið:
Þegar litið er á, að við höfum
nú selt svo að segja allan afla
okkar, að Norðmenn, þrátt fyrir
mikinn afla á þessu ári, eiga
mun minni birgðir en í fyrra, og
að Newfoundland er búið að
selja mikinn hluta af sínum afla,
og þurrð er á fiski í neyzlulönd-
unum, þá er útlitið fyrir að selja
megi fiskafla næsta árs, eins vel
og verða má, og það fljótt, að
minnsta kosti framan af árinu,
en hvort hægt verður að þoka
verðinu upp eins og nauðsyn
krefur, verður ekkert sagt um
með vissu, þó hinsvegar verði að
vonast eftir því, og að allar líkur
séu fyrir því að það hljóti að
hækka eitthvað.
Stjórn Skógræktarfélags íslands hef-
ir skrifað bæjarráði Reykjavíkur bréf,
þar sem hún leggur til, að allstórt land-
svæði umhverfis E11 i ð a v a t n verði
afgirt og friðað og gert að þjóðgarði
Reykvíkinga. Reykjavíkurbær á mest-
an hlutann af þessu landi. Skógarleifar
eru þarna talsverðar, en fullkomin eyði.
legging vofir yfir þeim af völdum sauð-
fjár. Bendir stjórnin á, að þarna séu
mörg verkefni fyrir hendi, sem mæltu
með því að hafður yrði þar vinnuskóli
fyrir unglinga. Gætu þeir unnið við
vegalagningar, bryggjugerð, leikvelli,
skóggræðslu o. fl. Staðurinn er hinn
fegursti. Kappróðra er hægt að iðka
á vatninu á sumrum og skautaferðir
á vetrum. Erlendar stórborgir, svo sem
Oslo og Kaupmannahöfn, hafa keypt
stór landsvæði utan við borgirnar, frið-
að þau og haft opin til afnota fyrir
íbúa sína og er reynslan af þessu hin
ákjósanlegasta. Er þessi tillaga mjög
merkileg og sjálfsagt að hún verði tekin
til nákvæmrar athugunar. Formaður
Skógræktarfélagsins er nú Árni G. Ey-
lands framkvæmdastjóri og með-
stjórnendur H. J. Hólmjárn ráðunautur
og Maggi Júl. Magnús læknir.
t t r
Að tilhlutun atvinnumálaráðherra
verður í haust undirbúið nokkurt land-
svæði til garðræktar á Vífilsstöðum.
Er það hugmynd ráðherrans, að landið
verði unnið og girt, en síðan verði
sjúklingum á hælinu, sem geta og
vilja vinna að garðrækt, gefinn kostur
á að fá landið til afnota, og verða þeir
aðstoðaðir við útvegun á áburði og út-
sæði. Með þessu vinnst tvennt. í
Samkomulaginu á ráðstefn-
unni i Múnchen hefir yfirleitt
verið fagnað af almenningi í
hlutaðeigandi löndum, þar sem
sýnt þykir að það muni afstýra
ófriði a. m. k. fyrst um sinn.
Samkomulagið gengur nokkru
lengra en brezk-frönsku tillög-
urnar, en talsvert skemmra en
úrslitakostir Hitlers. Er almennt
talið að hervæðing Englendinga
hafi orsakað undanhald Hitlers
og einkum hafi Mussolini verið
þess hvetjandi, að samkomulag
næðist, þar sem afleiðing styrj-
aldar gat hæglega orðið sú, að
ítalir misstu Abessiníu og töp-
uðu ítökum sínum á Spáni.
fyrsta lagi það, að sjúklingar, sem að
einhverju leyti eru vinnufærir, fá hent-
ug viðfangsefni og í öðru lagi miðar
þetta að því að auka garðræktina, en
þess er mjög mikil þörf. Er því ástæða
til að fagna þessari framkvæmd.
t t t
Ungur Lithaui, Teodoras Bieliacki-
nas, hefir dvalið langdvölum hér á landi
undanfarið og stundað norrænunám
við háskólann, Hefir hann tekið miklu
ástfóstri við land og þjóð og unir sér
hér framúrskarandi vel. Tómstundum
sínum hefir hann varið til að rita
greinar um ísland og íslenzk málefni
og hafa þær birzt í helztu blöðum
og tímaritum í Iáthauen. Einnig hefir
hann í hyggju að þýða að minnsta
kosti eina nútíðarskáldsögu íslenzka á
móðurmál sitt. Á sumrin hefir Teo-
doras Bieliackinas ferðazt um landið
og á góða vini í mörgum byggðar-
lögum. í næstu viku hverfur hann
um stundarsakir til ættlands síns, en
ef ekkert hamlar för hans, mun hann
koma aftur á aflíðandi vetri og ljúka
þá meistaraprófi í norrænum málvís-
indum við háskólann hér. Verður hann
hinn fyrsti maður sinnar þjóðar, sem
slíku prófi lýkur, ef til kemur.
t t r
Ungmennasamband Vestfjarða hélt
27. héraðsþing sitt á ísafirði 23. og 24.
september og sátu það níu fulltrúar,
auk sambandsstjóra U. M. F. í., séra
Eiríks J. Eiríkssonar, og stjórnar Vest-
fjarðasambandsins. Á þinginu var rætt
um íþróttamál, fyrirlestrastarfsemi,
Meginatrið'i samkomulagsins
eru þessi:
1. Þýzkaland fær til umráða
á tímabilinu 1.—10. okt. öll aðal-
héruð Sudeta eða þar sem Þjóð-
verjar eru meira en 50% af íbúa-
fjöldanum. Skal tékkneski her-
inn hafa farið á brott úr þess-
um héruðum fyrir þann tíma og
þýzki herinn koma strax í hans
stað. Alþjóðanefnd sér um af-
hendingu héraðanna. Er hún
skipuö fulltrúum frá Tékkósló-
vakíu, Frakklandi, Bietlandi,
Þýzkalandi og Ítalíu.
2. Á öðrum svæðum, sem al-
þjóðanefndin ákveður, skal fara
fram atkvæðagreiðsla um það,
á U. M. F. í. að beita sér fyrir viki-
vakanámskeiði og ákveðið að koma á
vikivakakennslu í Núpsskóla í vetur.
Þingið samþykkti og áskorun til allra
ungmennafélaga um hófsemd og bind-
indi og fastréð að beita sér fyrir því,
að bindindismenn innan kennara-
stéttarinnar sitji í fyrirrúmi um
kennslustörf, og vinna gegn því, að
embættispróf veiti drykkjumönnum
réttindi. — Stjórn U. M. F. Vestfjarða
var endurkosin: Björn Guðmundsson
skólastjóri, formaður, Guðmundur Ingi
Kristjánsson og Kristján Davíðsson.
Ákveðið var að næsta þing skyldi háð
í Önundarfirði. Félög i Vestfjarðasam-
bandinu eru nú 11 og virkir meðlimir
þeirra 274.
r r r
Hraðfrystihús var reist á Flateyri við
Önundarfjörð síðastliðið sumar og er
það eign hlutafélags, sem allmargir í-
búar þorpsins hafa stofnað. Var starf-
ræksla frystihússins hafin í júlímánuði
og heflr hún gengið vel. í sumar hefir
verið frystur þar ýmiskonar fiskur,
koli, lúða, þorskur, ýsa, og dálitið af
smáskötu. í haust veröur sennil. fryst
þar kjöt fyrir innanlandsmarkað, eink-
um í þorpinu sjálfu.
r r r
Samband íslenzkra samvinnufélaga
hefir tekið upp þá nýbreytni að kaupa
murtu af bændum við Þingvallavatn
og er hún söltuð til útflutnings. Borg-
ar það tuttugu aura fyrir pundið af
murtunni. Murtuveiðin í Þingvalla-
hvoru ríkinu íbúarnir vilji til-
heyra.
3. Alþjóðanefndin ákveður hin
nýju landamæri og taka stór-
veldin ábyrgð á þeim. Frakkland
og Bretland taka þessa ábyrgð
að sér strax, en Þýzkaland og
Ítalía lofa að veita hana, þegar
lokið hefir verið að semja um
kröfur Ungverja og Pólverja.
Hafi ekki náðst samkomulag um
þessar kröfur innan þriggja
mánaða, hittast Chamberlain,
Daladier, Mussolini og Hitler að
nýju.
4. Tékkum í Sudetahéruðum
og Þjóðverjum, sem verða í hinni
nýju Tékkóslóvakíu, er gefinn
sex mánaða frestur til að flytja
sig milli landanna.
5. Tékkar skili landinu og öll-
um mannvirkjum í núverandi
ástandi og hafi skilað pólitísk-
um föngum innan fjögra mán-
aða og leyst Þjóðverja, sem þess
óska, úr opinberum störfum.
Tékkneska stjórnin hefir lýst
því yfir, að hún teldi sig nauð-
beygða til að ganga að þessum
afarkostum. Áður en samkomu-
lagið í Múnchen var undirritað
hafði hún gert nýtt tilboð, sem
gekk mun lengra en brezk-
frönsku tillögurnar.
Alþjóðanefndin hefir þegar
verið skipuð. Eru í henni Reis-
siger ríkisráð af hálfu Þjóðverja
og sendiherrar Breta, Tékka,
Frakka og ítala í Berlín.
Bandalag milli
stórveldanna í
\ estur-E vr ópu?
Það er ljóst, að fleira hefir
verið rætt á fundinum í Mún-
chen en lausn Sudetadeilunn-
ar. Daladier og Chamberlain létu
þau orð falla við heimkomuna
að ráðstefnan í Múnchen myndi
treysta friðinni í álfunni og
verða upphaf að víðtækara sam-
komulagi. Það er einnig athygl-
isvert að bæði Daladier og Gö-
ring hafa viðhaft þau ummæli
eftir ráðstefnuna, að Frakkar og
Þjóðverjar bæru ekki haturshug
hverjir til annara og ekkert væri
því til fyrirstöðu, að sambúð
þessara þjóð gæti verið friðsam-
leg. Er þetta i samræmi við ræðu
Hitlers í Núrnberg, er hann lýsti
því þar yfir, að Þjóðverjar hefðu
ákveðið í eitt skipti fyrir öll að
hagga ekki að fyrra bragði við
fransk-þýzku landamærunum.
Gleggst er þetta þó af við-
ræðu, sem þeir áttu Hitler og
Chamberlain, áður en Chamber-
lain fór heimleiðis. Þeir undir-
(Framh. á 4. síðu.)
Á víðavangi
Síðan svar Bergs Jónssonar al-
þingismanns, sem birt var í síð-
asta blaði, var ritað, hefir Gísli
Jónsson vélaumsjónarmaður enn
ritað langa grein í Mbl. um
„flokkshagsmuni og þjóðarhags-
muni“ í Barðastrandarsýslu. M.
a. skýrir G. J. frá því, að Bergur
Jónsson hafi „borið fram tillögu
í fjárveitinganefnd" viðkomandi
tilteknu máli þar vestra. Tíman-
um er ekki kunnugt um að Berg.
ur Jónsson hafi nokkurntíma átt
sæti í fjárveitinganefnd á Al-
Dingi. E. t. v. er fleira álíka rétt
í frásögn Gísla.
* * *
Stríðshættan virðist nú úr sög_
unni i taili, sem betur fer. Það er
dví hægt að ræða um það í ró og
næði, hvaða ráðstafanir hefði
átt að gera hér á landi, til að
forða þjóðinni frá óþægindum og
tjóni af völdum heimsófriðar. —
Því miður var helzt svo að sjá á
sumum blöðum hér í Rvík, að
iau sæu í stríðshættunni efst á
blaði tilvalið efni til árásar á
rikisstjórnina fyrir að hafa ekki
birgt landið upp að vörum löngu
fyrirfram. Það var þeirra fram-
lag til þjóðlegrar samheldni á
stund hættunnar.
* * *
Nágrannaþjóðir okkar á Norð-
urlöndum virðast ekki hafa verið
undir það búnar betur en við
íslendingar, að vöruflutningar
stöðvuðust. Talið er að Danir
hafi keypt inn vörubirgðir, sem
svara til þess, að hér væru t. d.
keypt kol til tveggja mánaða og
um Norðmenn er svipað að segja.
En slík var framkoma stjórnar-
andstæðinga í Danmörku, þegar
hættan vofði yfir, að Stauning
forsætisráðherra fann ástæðu til
að þakka þeim sérstaklega fyrír
það í útvarpsræðu, að þeir hefðu
„neitað sér um“ að notfæra sér
ástandið til að vekja æsingar eða
óánægju í landinu.
* * *
Þeir, sem haldið hafa uppi op-
inberum árásum á kjötlögin og
framkvæmd þeirra siðustu fjög-
ur árin, eru nú allir þagnaðir —
nema einn. Þessi eini er Sigurður
sá, er forðum reit mosagreinina
um íslenzka bændur. Það má
segja, að sá maður gæti sam-
ræmis í verkum sínum.
* * *
Nú nálgast tími sá, að flokks-
þing Alþýðuflokksins komi sam-
an. Munu þar verða átök hörö
milli flokksstjórnarinnar og
Héðinsmanna. Hefir Héðinn
gengið hart fram í því, að fá sína
menn kosna í einstökum verk-
lýðsfélögum og haft til þess að-
stoð kommúnista. Hafa þeir Ein-
ar Olgeirsson og hann m. a.
ferðazt mikið um á Norðurlandi
í þessu skyni undanfarið. Þó er
nú talið fullvíst, að Héðinn verði
undir á þinginu, og útilokun
hans staðfest.
* * *
Ýmsir hafa óskað eftir að fá
útreikning á því, hversu stór
hundraðshluti tollur annarsveg-
ar og verzlunarálagning hins-
vegar væri af útsöluverði þeirra
11 vörutegunda, sem skýrsla var
um í síðasta blaði. Hefir blaðið
nú látið reikna þetta út og er
niðurstaðan þessi:
Tollur Álagning
Strigaskór 14% 48%
Kápuetni 6% 64%
Léreft 5% 56%
Satin 3% 67%
Ferðatöskur 10% 55%
Kjólaefni 10% 64%
Gardinuefni 4% 55%
Sængurveraefni 12% 50%
Rafsuðupottar 7% 35%
Tauvindur 16% 35%
Mjólkursett 10% 58%
Lægra en y2% er sleppt. Þegar
reiknaður er hundraðshluti af
útsöluverðinu, koma auðvitað út
miklu lægri tölur bæði í tolli og
álagningu en ef reiknað er af
innkaupsverði. En niðurstaðan
er i báðum tilfellum sú sama:
Að tollurinn er alveg hverfandi
hluti af búðarverði varanna,
samanborið við álagningu verzl-
ananna.
heimaiðju, vikivaka, bindindismál og
félagsmál. Var meðal annars skorað
vatni er fyrir skömmu hafin og varir
nokkuð fram eftir haustinu. Fer lengd
veiðitímans nokkuð eftir tíðarfarinu.
A. KE-OSSaÖTTJM
Þjóðgarður Reykvíkinga. — Frá Vífilsstöðum. — Norrænufræðingur frá Lit-
hauen. — Héraðsþing U. M. F. Vestfjarða. — Hraðfrystihús á Flateyri. —
--------- Murta til útflutnings. -